Heimskringla - 19.11.1941, Qupperneq 7
WINNIPEG, 19. NÓV. 1941
heimskringla
7. SIÐA
“GULLNA HLIÐIД
Hið nýja leikrit Davíðs
Stefánssonar
Eftir séra Jakob Jónsson
Hér á íslandi er yfirleitt
gengið út frá því, að fáir lesi
leikrit sér til ánægju. Bókaút-
gefendur hafa þá sögu að segja,
að leikrit seljist allra bóka sízt.
Nú eru fáir leikflokkar til á
landinu, leikhús, þau, sem völ
er á, óhaganleg og skortir allan
útbúnað, svo að óvíða er ráðist
í erfiða leiki. Ef engin von er
um það, að almenningur gerist
áhugasamari um lestur sjón-
leika er fyrirsjáanlegt, að leik-
ritagerð á litla framtíð fyrir sér
hér sem bókmentagrein. Er
nú þegar til í landinu all-mikið
af leikritum, bæði frumsömd-
um og þýddum, sem engin á-
stæða er til annars en að láta
koma fyrir almenningssjónir
en eru aðeins fáanleg í afrit-
um. Hinsvegar má líta á það
að mikill hluti þjóðarinnar
þess engan kost að kynnast
leiklist, nema í útvarpi, og þó
að það sé stórkostlega dýr
mætt út af fyrir sig, er það þó
aldrei nema eins lið af mörgum
til þess að flytja almenningi
skáldskap af þessari tegunc
Það er því brýn nauðsyn á því
að þjóðin færi að leggja meira
upp úr lestri leikrita en nú er
gert. Mér finst, að alþýðuskól-
ar og mentaskólar ættu að
geta gert eitthvað til hvatning-
ar á þessu sviði með aðstoð
þeirra leikmentamanna sem við
eigum. Meðal annars þarf
mönnum að vera ljóst, í hverju
liggur aðal-munur á sögu og
- NAFNSPIÖLD -
Dr. M. B. Halldorson
401 Boyd Bldg.
Skrifstofusími: 23 674
Stundar sérstaklega lungnasjúk-
dóma.
Er að finna á skrifstofu kl. 10—12
f. h. og 2—6 e. h.
Heimili: 46 Alloway Ave.
Talsimi 33 158
Thorvaldson & Eggertson
LögfrœOingar
300 NANTON BLDG.
Talsíml 97 024
Á mynd þessari er verið að reyna hraða brezkra skriðdreka í sandinum í grend við
Lybíu í Norður-Afríku. Her Breta berast daglega vopnin til Egyptalands, svo her þeirra
er þar að verða æ betur óg betur útbúinn.
sjónleik og lesandinn getur
beinlínis æft sig í því að upp-
fylla þær kröfur, sem leikritið
gerir, — fram yfir söguna. Við
lestur leikritsins þarf lesand-
inn t. d. oftast nær að hugsa
sér sjálfur útlit fólksins og mál-
róm, og sjaldan er leiksviðinu
lýst nema í stórum dráttum.
Eins og gefur að skilja, er fólki
misjafnlega sýnt um að setja
sér atburði fyrir hugskotssjón-
ir. Guttormur J. Guttormsson
skáld, sem ætlast til, að leikrit
sín séu lesin, en ekki leikin,
sagði mér einu sinni, að sér
þætti meira varið í að lesa leik-
rit en sjá það. í leikhúsi hug-
ans fanst honum síður hætta á
mistökum af hálfu leikend-
anna. Þó að fæstir muni vera
sammála Guttormi skilyrðis-
laust, þá mættu fleiri líkjast
INNKÖLLUNARMENN HEIMSKRINGLU
I CANADA:
Antler^Sask^ZZZZZZZZZI"^. J. Abrahamson
Antler. bask.......... Sumarliöi J. Kárdal
r?®®"...................... G. O. Einarsson
...........“Z...........sigtr. Sigvaldason
Símont................-.........J-oleBon
Brotmbury.......................j- Gisiason
Churchbndge---------IZTZIZGuðm. Sveinsson
Cypress River......""..........S. S. Anderson
Eb^ti'tiZManZZZZ..................^±j£'<£££%£
Fishiníf Lake, S«Ak.Z-------- H 'GSteSíSS
Fo«mUk«......------- -ZZZZZZZ..^:
S:"........................... G. J. Oleson
Hayland....ZZIZZIZ.......-...Slg. B. Helgason
H^ZZIZZZZZZ..............GeBtur 8. Vídal
?nÚnSl...................ZZZZZZZZZófeigur Sigurðsson
Sfewítin...ZZZZ..Z...........Sigm. Bjömsson
iZ „ÍS...................... Böðvar Jónsson
Langruth................ „v, n„.mi<n^ann
honum í því að reyna að njóta
leikrita við lestur, ef ekki er
þess kostur að sjá þau á leik-
sviði, og raunar hvort sem er.
Eitt af því sem ætti að hjálpa
íslendingum til þess að fella sig
við lestur lekirita, eru Islend-
ingasögurnar. Þar er saman-
þjappað form, stuttorðar lýs-
ingar, samtöl og látbragðslýs-
ingar, sem víða minna á leikrit.
Hugurinxj verður að lesa sig
inn í hin ytri gerfi, og finna
hræringar andans hið innra.
Eins og vænta má, er auð-
veldast að lesa og skilja þau
leikrit sem grunvallast á okk-
ar eigin sögu, þjóðlífi eða þjóð-
legum erfðum. Þar á hugurinn
fyrirfram mótuð gerfi, sem
leikritið gæðir lífi að nýju. Þess
vegna getur alþýða manna les-
ið leikrit eins og “Skuggasvein”
og “Fjalla-Eyvind” af meiri un-
aði en ýms erlend leikrit. Ný-
lega hefir komið út leikrit, sem
að mínum skilningi ætti að
vera vinsælt bæði í lestri og á
leiksviði. “Gullna hliðið” eftir
Davíð Stefánsson frá Fagra-
skógi er bygt á gamalli þjóð-
sögu, sem flestir kannast við.
Áður hefir Davíð ort kvæði út
af sögunni, hefir það náð all-
miklum vinsældum, en það er
von mín, að yrkisefninu verði
því betur tekið í hinu nýja
Office Phone
87 293
Res. Phone
72 409
Dr. L. A. Sigurdson
109 MEDICAL ARTS BUILDING
Office Hours:
12—1
4 P.M.—6 P.M.
AND BY APPOINTMENT
M. HJALTASON, M.D.
ALMENNAR LÆKNINGAR
Sérgrein: Taugasjúkdómar
Lætur útl meðöl í viðlögum
Viðtalstímar: kl. 2—4 e. h.
7—8 að kveldinu
Sími 80 857 643 Toronto St.
komið er í leikhús. T. d. er eg
í vafa um, hvaða áhrif bænin á
bls. 125.muni hafa á blæ leiks-
ins, og eitthvað af blótsyrðum
Jóns hlýtur að verða felt niður,
ef hann á ekki að verða of
ruddalegur fyrir eyru leikhús-
gesta. Annars er það einn af
hinum góðu eiginleikum Da-
víðs, hve vel hann fágar málið
á skáldverkum sínum.
Persónurnar eru margar,
sennilega yfir 30, að meðtöld-
um “englum og útvöldum”, en
þær eru flestar skýrt afmark-
aðar fyrirfram í hugum fólks-
ins. Þær eru að fáeinum und-
anteknum, ýmist táknrænar
sem ímynd sérstakra hópa inn-
an mannfélagsins — t. d.
drykkjumaður, ríkisbubbi,
bóndi, sýslumaður, prestur,
grasakona — eða gamalkunn-
ar persónur úr trúarbrögðum
og þjóðtrú (svo sem postularn-
ir, Maria Mey, óvinurinn, púk-
ar, englar). 1 leiknum tekst
höfundi vel að gefa þeim líf og
liti, án þess að færa þær nokk-
Dr. S. J. Jóhannesson
215 RUBY ST.
Beint suður af Banning
Talsimi 30 877
Viðtalstími kl. 3—5 e.h.
A. S. BARDAL
selur likkistur og annast um útíar-
ir. AUur útbúnaður sá besti.
Ennfremur selur hann allskonar
minnisvarða og legsteina.
843 SHERBROOKE ST.
Phone 86 607 WINNIPEG
J. J. Swanson & Co. Ltd.
REALTORS
Rental, Insurance and Financial
Agents
Síml: 26 821 “
308 AVENUE BLDG.—Winnipeg
Rovatzos Floral Shop
253 Notre Dame Ave., Phone 27 989
Presh Cut Flowers Daily.
Plants in Season
We speciaUze in Wedding & Concert
Bouquets & Funeral Designs
Icelandic spoken
DR. A. V. JOHNSON
DENTIST
506 Somerset Bldg.
Office 88 124 Res. 27 702
Dr. P. H. T. Thorlakson
205 Medical Arts Bldg.
Cor. Graham & Kennedy Sts.
Phone 22 866
Res. 114 Greníell Blvd.
Phone 62 200
þá fegurstu sýn, sem birst hefir
uð úr þeim ham, sem þjóðtrú- á íslenzku leiksviði. En það
leikið af snjöllum leikara, mun- Trillubáturinn tók þegar
um við þar eignast einhverja niennina og fór með þá í land,
þar sem þeim var veitt' öll
nauðsynleg hjúkrun, enda voru
T.n D. J. Undal
ófeigur Sigurðsson
S. S. Anderson
S. Sigfússon
Mrs. L. S. Taylor
S. Sigfússon
fVtt-r, BJörn Hördal
ófeigur Sigurðsson
BJörn Hjörleifsson
Selkirk Mati Min. David Johnson, 216 Queen St.
Hallur Hallson
K. J. Abrahamson
Steep Itock Snæda
ytiii Bjorn HördaJ
Árni S.'Árnason
Thorst. J. GísVason
Víöir Aug. Eirarsson
Vancouver Mrs. Anna Harvey ... S. Oliver
. S. S. Anderson
í BANDARIKJUNUM: Bflntrv E. J. BreiðfjörB
....Mrs. John W. Johnson
Magnús Thordarson
. Mrs. E. Eastman
... Miss C. V. Dalmann
Los Angeles, Calif.... Miltnn S. Goodman
Minnenta MÍ88 C. V. Dalmann
Th. Thorfinnsson
National City, Calif Seattle, Wash .Johin S. Laxdal, 736 E 24th St. ...Ásta Norman t t Middal. 6723—21st Ave. N. W.
Upham. E. J. Breiðfjörð
The Viking Press Ltd.
Winnipeg, Manitoba
in hafði ofið þeim, og er það
vel gert. Sennilega meira þrek-
virki en flesta grunar við fljót-
an yfirlestur.
Leiksviðið verður því fallegra
sem á líður, og er það tvímæla-
laust kostur á leik, sem í raun
formi, sem átökin af skáldsinsiog veru er æfintýraleikur. —-
lálfu eru sterkari og betur úr Verði þessi leikur sýndur hér í
sögunni unnið. jokkar fátæklega leikhúsi, verð-
Þjóðsagan er skopsaga með ur það meir en lítill vandi að
djúpri alvöru á bak við. Skopið gera lokaatriðið þanmg ur
er fólgið í því, að umkomulítil garði, að það hrífi hugann,
kerling snýr á sjálfan dyravörð eins og höfundur ætlast til. En
íimnaríkis, kemur sálinni hans þar er ætlast til að fagur söng
Jóns síns inn í himininn, þrátt ur og hljóðfærasláttur verði
fyrir það, að hann hefir allar samfara ljósadýrð og lita-
íkur á móti sér, þegar miðað skrauti.
við endurgjaldslögmálið. — Sennilega ríður hvergi meir
Alvarlega hliðin er aftur á á góðri meðferð leiksins en í
móti sú, að þeim, sem elskar af síðasta atriðinu. Þar kemur
barnslegri einlægni, tekst fyr að lokum sú niðurstaða, sem
eða síðar að bjarga syndugri stefnt er að frá upphafi vega.
mannssál inn fyrir hurðarstaf Þetta uppátæki kerlingar, a
himnaríkis, ef hún gefst ekki einhenda skjóðunni með sal
upp, þrátt fyrir það, þótt Jóns inn í himnaríki, hefir rms-
strangasti bókstafur laganna jöfn áhrif á þá, sem nærstaddir
dæmi syndugan til vitis. eru. Djöfullmn kvartar fyrs -
Til eru fleiri en ein leið til að ur yfir því, að alt rettlæti se
vinna úr slíkri sögu. Skáldið þrotið, Pétur er hnugginn og
gat tekið hinn siðferðilega sál- óttast, að sér verði ekki lengur
fræðilega kjarna sögunnar og trúað fynr varðstöðunm en
bygt upp sitt eigið listaverk, án Páll verður til þess að verja
þess svo mikið sem að nefna það, sem skeð hefir. Hann
söðuna á nafn. Hann gat líka minnir á, að kærleikunnn se
ef til vill látið atburði slíks langlyndur, trui ollu, vom ait,
leikrits minna svo ljóst á sög- umberi alt (Smbr. I. 'cor- '
una, að hún yrði í huga áhorf- “Hans er mátturinn og dyrð-
endanna, þótt ekki væri hún in.”
leikin nema óbeinlínis. En svo En hvað verður um Jon.
er til að minsta kosti ein leið Hann var að vísu farinn a
enn; _ sú sem Davíð Stefáns- klökkna við áhrif Maríu, hinn-
son'kaus sér, — að gera leikrit ar mildu guðsmóður. Fram að
úr sögunni, eins og hún er, því hafði hann ekki tekið þessa
halda hinum skoplega blæ, en himnaríkisferð alvarlega, og
láta alvöruna alstaðar skína i talið hana vera til lítils. Hann
gegn, unz hún í lok leiksins var búinn að sætta sig á sinn
kemúr fram með fullum þunga broslega hátt við erfið örlög
og fegurð. Það verður auðvit- og honum datt ekki í hug að
að ekki vitað til fulls, hvernig koma öðruvísi fram en hann
þetta hefir tekist, fyr en góðir var klæddur. En einmitt vegna
leikarar hafa tekið leikinn til hispursleysis síns getur hann
meðferðar á sviði, en það er orðið snortinn af dýrð himins-
von mín, að þessi leikur reynist ins, þegar hann finnur fegurð
vel og verði talinn í fremstu gleði og kærleika alt umhverf
röð íslenzkra sjónleika. Að is sig. Á tveim síðustu blað-
vísu kæmi mér ekki á óvart, þó síðum leiksins er lýst þessum
að einstaka setningu þyrfti að áhrifum á sál Jóns, og verði
verður ekki heiglum hent að
framleiða þá sýn. — Sá sem
aðeins les leikinn, en sér hann
ekki leikinn, verður að lesa
geðshræringar Jóns út úr fá-
einum smáletursorðum, auk
þeirra spurninga, sem Jón Jegg-
ur fram í hrifningu sinni. Ef
það þætti ekki of mikill “ex-
pressionismi”, vildi eg leggja
til, að slík orð, sem ráða meiru
um skilning lesandans, væru
prentuð á þann veg, að þau
vektu athygli. Hér á eg t. d
við setninguna: “Jón skimar í
allar áttir, eins og dýrðin sé nú
fyrst að birtast honum o. s.
frv.” Ennfremur þau orð, sem
lýsa fögnuði hans og ljóma,
þegar náðinni og kærleikanum
hefir tekist að ummynda þá
sál, sem refsivald himins og
jarðar hefir ekki haft nein á-
irif á.
Eg óska Davíð Stefánssyni
til hamingju með leikinn, sem
eg hygg að telja megi að mörgu
leyti frumlegan, þegar tekið er
tillit til forms og byggingar.
Víst er um það, að hann hefir
fullkomna sérstöðu meðal ís-
lenzkra leikrita fram að þessu.
Alþbl. 17. sept.
ieir svo aðframkomnir að það
varð að styðja þá upp fjöruna.
I gær voru þeir svo þjakaðir,
að lítið var hægt að tala við þá,
en í morgun voru þeir farnir að
hressast, nema skipstjórinn,
sem var enn töluvert þjakaður
og gátu sagt sögu sína í aðal-
dráttum.
SELUR SKRÍÐUR UPP Á
fleka til þriggja skipbrots-
manna og bjargar lífi þeirra
Færeysk fiskiskúta “Silaer-
is”, frá Sandvaag fórst á tund-
urdufli fyrir Austurlandi síð-
astliðinn mánudagsmorgun. —
Átta manns voru á skipinu og
fórust fimm þeirra, en þrír
björguðust á fleka og fundust
í gær út af Djúpavogi. Segja
þeir að selur, sem skreið upp á
fleka þeirra hafi raunverulega
bjargað lífi þeirra.
Síðdegis í gær fann trillubát-
ur héðan af Djúpavogi skips-
fleka á reki nokkuð út af
Djúpavogi og voru þrír menn á
honum, allir mjög þjakaðir og
reyndust þetta vera skips-
brotsmenn af færeyskri skútu
endurskoða rækilega,
og var skipstjórinn meðal
þegar I hlutverk hans á sínum tíma þeirra.
Þeir skýrðu svo frá, að þeir
hefðu verið á leið hingað til
lands, en hrept þoku, vilst af
leið og lent inn í tundurdufla-
beltið, sem lagt hefir verið út
af Austfjörðum. Síðastliðinn
mánudagsmorgun rakst skútan
á tundurdufl, að því er þeir á-
litu, einhversstaðar út af Seyð-
isfirði, en þeir gátu ekki, vegna
þokunnar glöggvað sig á því
nákvæmlega hvar þeir voru.
Skipið sprakk samstundis í
loft upp og malaðist mjölinu
smærra að framan — og fórust
við sprenginguna 5 af áhöfn-
inni, sem staddir voru fram á
skipinu.
Hinir þrír, sem eftir voru og
af komust á björgunarfleka,
voru á reki á honum undan
stormum og straumum þangað
til trillubáturinn frá Djúpavogi
fann þá eins og áður er skýrt
frá.
Á björgunarflekanum voru
engar birgðir, hvorki vatn,
vistir né fatnaður — og kvöld-
ust skipbrotsmennirnir mjög af
þorsta, hungri og vosbúð.
En í mestu þrengingum
þeirra vildi þeim það ótrúlega
happ til, að selur skreið upp á
flekann til þeirra. Tóku þeir
honum fegins hendi, drápu
hann, drukku úr honum blóðið
og hrestust mjög við það. Telja
skipbrotsmennirnir sjálfir, að
þetta hafi orðið til þess, að þeir
héldu lífi þar til þeim var
bjargað.
Eins og áður er sagt, voru
skipbrotsmennirnir mjög þjak-
aðir, en enginn þeirra hafði
slasast við sprenginguna.
Skipið var 300 smálestir að
stærð og talið gott skip.'
—Alþbl. 22. ág.