Heimskringla - 19.11.1941, Side 8
8. SIÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 19. NÓV. 1941
%
FJÆR OG NÆR
MESSUR 1 ÍSLENZKU
SAMBANDSKIRKJUNUM
Útvarpsmessa í Winnipeg
- Umræðuefni prestsins við
morgunguðsþjónustuna í Sam-
bandskirkjunni í Winnipeg n. k.
sunnudag 23. þ. m. verður
“Spiritual Needs of Men“. —
Kvöld messunni verður útvarp-
að, og fer fram á ensku, eins og
landslögin krefjast. En sálm-
arnir verða eins og vanalega,
sungnir á íslenzku. Ræðuefni
prestsins verður “When Ye
Pray . . .” Söngflokkurinn
undir stjórn Péturs Magnús,
syngur “Lofsöng” eftir Sigfús
Einarsson. Sólóisti er Miss Lóa
Davidson, sem syngur einsöng,
“My Task” eftir E. L. Ashford.
Organisti er Gunnar Erlends-
son. Séra Philip M. Pétursson
messar.
Sálmarnir sem sungnir
verða, eru eins og hér segir,
og eru öll númerin úr eldri
sálmabókinni: 18, í gegnum
lífsins æðar allar, Matthías
Jochumsson; 334. Sú trú, sem
fjöllin flytur, Helgi Hálfdánar-
son; 303. o, hversu sæll er hóp-
ur sá, Valdimar Briem; 643.
Virztu, guð, að vernda’ og
styrkja, Helgi Hálfdánarson.
Þessi útvarpsguðsþjónusta
verður eins og áður, undir um-
sjón Hins Sameinaða Kirkjufé-
lags Islendinga og er haldin
aðallega með það í huga, að ná
til flestra íslendinga út um
landsbygðir þar sem örðug-
leikar eru á þvi, að halda reglu-
legar messur. Kirkjufélaginu
þætti vænt um að frétta hvern-
ig þetta fyrirtæki tekst, og
einnig að taka á móti samskot-
um sem menn kunna að vilja
senda inn þessum útvarpsmess-
um tjl styrktar. Ritari kirkju-
félagsins er séra Philip M. Pét-
ursson, 640 Agnes St., Winni-
peg. Féhirðir er Páll S. Páls-
son, 796 Banning St., Winnipeg.
* * * *
Tilkynning um
Laugardagsskólann
Skólanum verður lokað n. k. kvenfélag norsku lút. kirkjunn
laugardag 22. nóv. sökum þess ar öllum til máltíðar í nýju
að þá verður “Eaton’s Santa norsku kirkjunni á Minto St.,
Claus Parade”. En börnin eru rétt norður af Portage. Þetta
beðin að koma á skólann laug- er hin árlega “lutefisk” máltíð,
ardaginn 29. nóv., þau sem sem frægar eru, og Norðmenn
koma stundvíslega fá aðgöngu- og íslendingar halda mjög af.
miða á Rose Theatre. Máltíðin hefst kl. 5.30 e. h. og
Forstöðunefndin. kostar 50^.
Séra Guðm. Árnason messar
á Lundar næstkomandi sunnu-
dag, þann 23. þ. m. Messu þar
var frestað síðastliðinn sunnu-
dag vegna jarðarfarar.
# * *
Séra Albert E. Kristjánsson
messar í Únítara kirkjunni i
Vancouver, sunnudaginn 23.
nóv. kl. 7.30 að kveldinu. Kirkj-
an er á West Tenth Street,
hálfa “block” fyrir vestan
Granville. Séra Albert gerir
ráð fyrir að flytja messur á
sama stað, 4. sunnudag hvers
mánaðar í vetur, nema öðruvísi
verði auglýst. Allar messurn-
ar byrja kl. 7 e. h.
* * *
Messað verður að Wynyard
kl. 2 e. h. sunnudaginn þann
23. nóv. H. E. Johnson
# # *
Hjálparnefnd Sambandssafn-
aðar í Winnipeg, efnir til sölu
á heimatilbúnum mat laugar-
daginn 6. desember kl. 2.30 e.h.
Einnig verður spilað “bridge”
að kvöldinu. Fóik er beðið að
hafa þetta í huga og leggja lið
góðu málefni þetta kvöld.
Nefndin.
• • •
B. E. JOHNSON
er sœkir í annari kjördeild
um kosningu í skólaráðið talar
yfir CJRC stöðina á fimtudags-
kvöldið í þessari viku kl. 8.55
og yfir CKY stöðina miðviku-
dagskvöldið 25. nóv. kl. 10.40.
# # *
Eftirtalin ungmenni voru
fermd að Hólar Hall, Sask.,
sunnudaginn þann 16. nóv. s. 1.
af séra H. E. Johnson.
Fredrick Helgi Franklin Stef-
ánsson
Jóhann Victor Guðmundsson
Kristján August Árnason
Magnús Baldur Ólafsson
Anna Hallson
Jóhanna Sigrún Ólafsson
Málfríður Eyjólfsson
Sigurveig Arndís Árnason
Sylvia Jónína Árnason
Fimm ungmenni voru skírð
við þessa guðsþjónustu.
Fimtudaginn 20. nóv. býður
MIKILSVERÐ TILKYNNING
TIL BÆNDA
ALLIR BÆNDUR í Manitoba eru mintir á, að sækja
um hina sérstöku verðuppbót (bonus), sem Sam-
bandsstjórnin hefir heitið þeim ekki seinna en 30.
nóvember. Sjáið sveitarskrifara bygðar yðar tafar-
laust. Ef yðar hlutur er þegar skráður, segir hann
yður það. Ef ekki, þá eru í fórum hans eyðublöð, sem
hann hjálpar yður að fylla út.
1 héruðum sem ekki er sveitastjórn, skal sjá skatt-
heimtumanninn.
ÞETTA ER MIKILVÆGT.
30. NÓVEMBER ER SlÐASTI DAGURINN.
D. L. CAMPBELL,
Akuryrkjuráðherra fyrir Manitoba
Ársfundur íslendingadagsins
verður haldinn í Goodtemplarahúsinu
MÁNUDAGSKVELDIÐ 24. NÓV. 1941. kl. 8 e. h.
Lagðar fram skýrslur og reikningar. Kosning sex
embættismanna í nefndina í stað þeirra, sem endað
hafa $tarfsár sitt. Áríðandi að allir sæki fundinn.
NEFNDIN
Junior Icelandic League News
A general meeting of the
Junior Icelandic League will be
held in the Antique Tea Rooms,
210 Enderton Building, on Sun-
day evening, November 23,
commencing at 8.30 p.m.
Guest speaker will be Mr.
Grettir L. Jóhannson.
Don’t forget the annual
dance to be held in the Marl-
borough Hotel on December
5th. Tickets are obtainable at
Asgeirson’s Paint Store, 698
Sargent Avenue. Further
notice will appear soon.
• • #
Þakkarávarp
Okkur langar til að votta
okkar ágætu vinum fjær og
nær okkar hjartans þakklæti
fyrir þá innilegu samúð og
kærleika sem okkur var auð-
sýnd í veikindum og við jarðar-
för okkar elskaða sonar, bróð-
ur og eiginmanns (Metusalem
Jóhannesson).
—Winnipeg, 18. nóv. 1941.
Guðmundur og Kristveig
Jóhannesson og börn:
Grímur, Ingi, Robert,
Adolph, Árni, Alfred Jón,
Arnþór, Ása og Mrs.
M o 11 y Jóhannesson,
(ekkja hins látna).
For Good Fuel Values |l
Warmth “ Value Economy
ORDER
WILDFIRE LUMP (DRUMHELLER)
BIGHORN SAUNDERS CREEK LUMP
(Saunders Area)
CANMORE BRIQUETTES
PHONES
23 8n
23 812
TV/TCr^URDYQUPPLYf^O.Ltd.
1*1 ^^BUILDERS' B^SUPFLIES ^^and COAL
1034 ARLINGTON ST.
Rússum hjálpað
Mánudagskvöldið, s. 1. hélt
stofnun hér í bæ, sem skáld-
konan góðkunna, Mrs. Lára
Goodman Salverson er forseti
fyrir, fund í Auditorium til að
hafa saman peninga fyrir Can-
adian Red Cross til hjálpar
Rússunum. Alls komu inn yfir
$3,000,00 í samskotum. Tveir
menn afhentu bankaávísun fyr-
ir $1,000.00 hver, fyrir hönd fé-
lagsskapa sem þeir tilheyrðu.
Einn kom með $200.00 og marg-
ir komu með minni upphæðir.
Mrs. Edith Rogers, vara-for-
seti Red Cross félagsins var
þar stödd og tók á móti pen-
ingunum. Einnig voru þar
Lieut.-Gov. McWilliams og Mrs.
McWilliams og borgarstjóri
John Queen. Ræður fluttu Rev.
E. G. D. Freeman, prófessor á
Wesley College, Mr. R. C. Mc-
Cutcheon og séra Philip M. Pét-
ursson. Rússneskur kór, Úk
raníu kór og hljómsveit skemtu
með söngum og hljóðfæra-
slætti. Miss Gertrude New-
ton söng einsöng. Hljómsveit
St. Boniface bæjar var einnig
viðstödd og spilaði nokkur lög.
Mrs. Lára Goodman Salverson
stýrði samkomunni, sem fór
hið prýðilegasta fram í alla
staði, og endaði með því að
Mrs. Rogers, er hún þakkaði
fyrir hönd Red Cross félagsins,
hrópaði “Lengi lifi Rússland”.
Um þúsund manns sótti þessa
samkomu.
• • *
Gefin saman í hjónaband af
sóknarpresti, að heimili Mr. og
Mrs. Magnús Hjörleifsson í Sel-
kirk, Man., þann 1. nóv., Joseph
Svanberg Albertsson frá Húsa-
vík, Man., og Guðný Hjörleifs-
son, frá Winnipeg Beach, Man.
Brúðguminn er sonur Carls
heitins Albertssonar og eftir-
lifandi ekkju hans Margrétar
Albertsson ,er býr með börnum
sínum að Steinsstöðum í Víði-
nesbygð. Brúðurin er dóttir
Mr. og Mrs. Jón Hjörleifsson i
Winnipeg Beach. Giftingin fór
fram á heimili föðurafa og
ömmu brúðarinnar; áttu þau
um þær mundir 55 ára gifting-
arafmæli. Framtíðar heimili
ungu hjónanna verður í Húsa-
vík.
* * *
Gjafir í blómasjóð Sumarheim-
ilis ísl. barna að Hnausa, Man.:
1 minningu um Skafta B.
Brynjólfsson og Gróu Brynj-
ólfsson ................$30.00
Nöfn gefendanna eru:
Kristjón Indriðason
C. B. Indriðason
P. I. Indriðason
M. B. Indriðason
Skafti F. Indriðason
Stefán Indriðason,
að Mountain, N. Dak., U.S.A.
Meðtekið með innilegu
þakklæti.
Emma von Renesse,
Árborg, Man.
# # #
Frú Sigríður Ólason, kona
Friðgeirs læknis Ólasonar,
lagði af stað í gær suður til
New York, að líkindum alfarin
héðan. Maður hennar, sem ný-
kominn er úr íslandsferð, mun
hafa pkveðið að «etjas,t að
syðra. Heim til Isl. fór hann að
sækja son þeirra 4 ára. Is-
lendingar hér nyrðra óska þeim
til heilla og þakka þeim ágæta
viðkynningu en styttri en æski-
legt hefði verið.
# • •
Úr bréfi:
-----Eg legg hérmeð Postal
Notes að upphæð $12.00 fyrir
áfallna skuld við blaðið. Vona
eg að það hækki á þér og Jósep
Skaptason hægri augnabrúnin
ritstjóri sæll. Mig langar til að
skrifa þér langt fréttabréf, en
af því getur líklega ekki orðið
fyr en um jólin. Mikið and-
sk . . . var hún snjöll Hnausa-
ræðan þín í sumar, ein sú allra
bezta, sem eg hefi lesið nú í
seinni tíð. Hafðu kæra þökk
fyrir hana og alt sem frá þín-
um penna kemur. Á, bak við
öll þín skrif, er íslenzkt vit og
heilbrigði”------- T. C.
* • *
Laugardaginn 8. nóv., fór
fram giftingar athöfn í St. Ig-
natius kirkjunni hér í borg.
Prestur safnaðarins, séra Mc-
Lennan, gaf saman í hjóna-
band þau Ruth Edythe Gott-
fred og James Seldon Primeau.
Brúðurin er dóttir Óskars Gott-
fred af fyrra hjónabandi, hann
er sonur Jóhannesar heitins
Gottskálkssonar og eftirlifandi
ekkju hans, Sesselju. Hefir
hún alið Ruth upp frá barn-
dómi. Brúðguminn er af
frönskum ættum. Vegleg
veizla var haldin að heimili
Mrs. Sesselju Gottskálksson,
619 Agnes St. Skorti þar hvorki
glaum né góðan fagnað. Um
sjötiu manns sátu boðið. Utan-
bæjargestir voru Gústaf Gott-
fred og frú, frá Edmonton,
Alta.; Kristján Christie og frú;
B. Merdith og frú; Halldór
Christie og Finna Sveinsson,
öll frá Glenboro, Man. Heims-
kringla óskar hinum ungu
hjónum allra heilla.
* * •
Míessur ! norður Nýja-Islandi
Sunnudaginn 23. nóv.: Ár-
borg, ísl. messa kl. 11 f. h. Víðir,
messa kl. 3 e. h. Allir boðnir
og velkomnir.
B. A. Bjarnason
Lótið kassa i
Kœliskápinn
SARGENT TAXI
and TRANSFER
SÍMI 34 555 eða 34 557
7241/2 Sargent Ave.
Contracts Soiicited
Þjóðræknisdeildin “Brúin” í
Selkirk, Man., heldur fund að
heimili Mr. og Mrs. J. Erickson
á mánudagskveldið, 24. nóv. kl.
8. Meðlimir eru beðnir að fjöl-
menn.
Einar Magnússon, forseti
* * #
Þann 1. nóv. voru gefin
saman í hjónaband í Lútersku
kirkjunni í Selkirk, að við-
stöddu margmenni, Ralph Ed-
win Jónasson og Erma Light,
bæði frá Selkirk, Man. Gift-
inguna framkvæmdi Rev. R.
Huget, lúterskur prestur frá
Minnipeg, með aðstoð sóknar-
prests. Stór veizla var haldin
að aftni sama dags, að heimili
foreldra brúðarinnar, í grend
við Selkirk. Brúðguminn er
sonur Mr. og Mrs. Jacob Jónas-
son, en sonarsonur Mr. og Mrs.
Klemens Jónasson. Búa for-
eldrar brúðgumans norður með
Rauðará austanverðri, í grend
við Selkirk. Brúðurin er af
Evrópiskum ættum, búa for-
eldrar hennar í sama umhverfi.
Framtiðar heimili ungu hjón-
anna verður í Selkirk, Man.
* * *
Sœkið dansa Gibsons
sem haldnir eru á hverjum
þriðjudegi í Templarahúsinu á
Sargent Ave. og McGee. Gaml-
ir og nýir dansar. Inngangur
25tf.
• • •
Tilvalin jólagjöf
Hið afarfagra og stórmerka
25 ára afmælisminningarrit
Eimskipafélags Islands, má
hiklaust teljast ein hin allra
fegursta jólagjöf, sem kostur
er á; gefur þar að líta nákvæmt
yfirlit yfir þróunarsögu þessa
óskabarns Islands, sem telja
má í samgöngu — og viðskifta-
legu tilliti, lífæð þjóðarinnar.
Þessi mikla bók, sem kosta
myndi ærið fé, að því er bóka-
verð alment- gerist, fæst send
póstfrítt út um bygðir íslend-
inga fyrir aðeins $1.50. Pant-
anir sendist Árna Eggertssyni,
766 Victor St., Winnipeg, Man.
• # •
fsl. guðsþjónusta i Vancouver
verður, ef G. 1. haldin í
dönsku kirkjunni á E. 19th Ave.
og Burns St., kl. 3 e. h. næsta
sunnudag, 23 nóv. Allir eru
velkomnir og allir eru beðnir
að láta þetta berast sem bezt.
Rúnólfur Marteinsson
• • •
!
Sunnudaginn 30. nóv. verður
kvöld guðsþjónustunni frá
Fyrstu lút. kirkju útvarpað
yfir CKY stöðina. Byrjar kl.
7 e. h.
• • •
N. k. sunnud. 23. nóv., mess-
ur i Vatnabygðum, Sask: Wyn-
yard kl. 3 e. h, á ísl. Kanda-
har kl. 7.30 e. h. á ensku.
B. T. Sigurðsson
+■— ---------—----------
MESSUR og FUNDIR
í kirkju Sambandssafnaðar
Messur: á hverjum sunnudegi
Kl. 11 f. h. á ensku
Kl. 7 e. h. á íslenzku.
Saínaðarnefndin: Fundir 1.
föstudag hvers mánaðar.
Hjólparnefndin: Fundir fyrsta
mánudagskveld í hverjum
mánuði.
Kvenfélagið: Fundir annan
þriðjudag hvers mánaðar,
kl. 8 að kveldinu.
Söngœfingar: islenzkri söng-
flokkurinn á hverju fimtu-
dagskveldi.
Enski söngflokkurinn á
hverju föstudagskveldi.
Sunnudagaskólinn: Á hverjum
sunnudegi, kl. 12.15 e. h.
---------------------——.-4
j ÞJóÐRÆKNISFÉLAG :
ÍSLENDINGA
!| Forseti: Dr. Richard Beck
!; University Station, ;
;; Grand Forks, North Dakota ;
Allir íslendingar í Ame-
!; ríku ættu að heyra til !
Þjóðrœknisfélaginu
!; Ársgjald (þar með fylgir ;
I; Tímarit félagsins ókeypis) !
;| $1.00, sendist fjármálarit- ;
; ara Guðmann Levy, 251
; | Furby St., Winnipeg, Man. j
Takið eftir
Góðar bækur eru góðir vinir.
Látið bækurnar njóta þess að
þær eru yður til nytsemdar og
gleði. Hafið þær einnig til
prýðis í bókaskápnum yðar. —
Sendið þær í band ef þær eru
óbundnar, og látið gera við þær
séu þær í ólagi. Hvergi fáið
þér betra band, né ódýrara, en
í Bókaverzlun Davíðs Björns-
sonar að 702 Sargent Ave.,
Winnipeg. Og munið eitt:
Þetta er eina íslenzka bókabúð-
in í Vesturheimi. Látið hana
njóta viðskifta yðar. Styðjið
íslenzk þjóðræknismál.
'• • •
Lúterska kirkjan i Selkirk
Sunnud. 23. nóv.: Sunnu-
dagaskóli kl. 11 f. h. Islenzk
messa kl. 7 e. h.
S. Ólafsson
1 samkvæmi einu, sém haldið
var í New York nýlega, voru
gestirnir beðnir um að mæta í
þannig fötum, að þau táknuðu
titil á einhverri bók. Meðal
gestanna var mjög gömul pip-
armey, sem mætti með stóra
mynd af fimmburunum á kjöln-
um sínum. Hún fékk fyrstu
verðlaun, því að þetta táknaði
titilinn á bók Sinclair Lewis:
“It Can’t Happen Here”, eða
“Það getur ekki komið fyrir
hér.”
• • •
—Jóhannes var tvímæla-
laust besti maðurinn, sem uppi
hefir verið.
— Af hverju heldurðu það?
— Eg veit það. Eg giftist
ekkjunni hans.
THE WATCH SHOP
THORLAKSON & BALDWIN
1
Dlamond and Weddlng Rings
Agent for Bulova Waitchies
Marrlage Licenses Issued
699 SARGENT AVE
---Tilkynning til hluthafa-
Eimskipafélags Islands
Á ársfundi félagsins í júní í sumar var samþykt að
borga hluthöfum 4% arð fyrir árið 1940.
Eg leyfi mér hér með að tilkynna að eg er reiðu-
búinn að taka á móti arðmiðum fyrir árið 1940 til
afgreiðslu. Ennfremur þeir sem ekki hafa sent mér
arðmiða sína fyrir árin 1937,1938 og 1939 geta sent mér
þá líka til afgreiðslu.
Árni Eggertson,
766 Victor St., Winnipeg, Man.
Umboðsmaður félagsins.