Heimskringla - 01.04.1942, Side 1
The Modern Housewife Knows
Quality That is Why She Selects
“CANADA
BREAD”
“The Quality Goes in
Before the Name Goes On”
Wedding Cakes Made to Order
PHONE 33 604
■1" ... . ..
ALWAYS ASK FOR—
“Butter-Nut
Bread’’
The Finest Loaf in Canada
Rich as Butter—Sweet as a Nut
Made only by
CANADA BREAD CO. LTD.
Phone 33 604
LVI. ÁRGANGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 1. APRIL 1942
NÚMER 27.
• *HELZTU
Árás á St. Nazaire
Á vesturströnd Frakklands,
iþar sem Brittany heitir, er
borg sú er St. Nazaire nefnist.
Þar er skipalægi gott á stríðs-
tímum og óhægt heim að sækja
án þess eftir verði tekið. Síðan
Þjóðverjar tóku ströndina, hafa
kafbátar þeirra haft þarna
bækistöð, þeir er vestur á At-
lanzhaf sækja og jafnvel alla
leið til stranda Bandaríkja og
Canada. Þurkví er þarna ein
hin stærsta á allri ströndinni
og sú eina, er viðgerð stærri
skipa, sem Tirpitz, leysir af
hendi. Á þessa hafnborg réð-
ust Bretar s. 1. laugardag úr
lofti og af sjó utan og lauk
þeim hildarleik þannig, að
höfnin var sögð gersamlega
eyðilögð. Um tap flugskipa
Breta getur ekki, en tundur-
spillir var sökt og einum 13
smábátum með honum. Mann-
björg var einhver, enda beið
fjöldi skipa í grendinni til
bjargar þessum ofurhugum,
sem á sprengjudufla-garð Þjóð-
verja réðust til að koma vissu
eyðileggingarstarfi fram. Um
100 manns er haldið að farist
hafi þó af Bretum. En höfnina
er talið víst að Þjóðverjar fái
ekki notað og verði annar stað-
ar að líta sér eftir bækistöð
fyrir kafbáta sína. Þetta er
sagt að draga muni úr kafbáta-
hernaði þeirra um stund á At-
lanzhafinu, enda mun árásin
hafa verið gerð með það í huga.
Hvað mikið var af kafbátum í
höfn og hvað af þeim hefir far-
ist, getur ekki um. En Bretar
fögnuðu mikið komu flugskipa
sinna heim með fregnina af
eyðileggingu hafnarinnar.
Áfengi sent með skipuni er
leiguláns vörur flytja
Uppvíst hefir orðið, að skip
frá Bandaríkjunum, er leigu-
lánsvörur hafa flutt til Egypta-
lands, hafi oft verið hálfhlaðin
af öli og öðru áfengi.
Enn er ekki vist hvort áfeng-
ið var leigulánsvaran. Hitt er
víst að því var smyglað í tin-
ílátum, sem margir munu hafa
ætlað að væri dósa-matur. 1
einum skipsfarmi voru 200,000
kassar af þannig frágengnu á-
fengi.
Áfengið var sent vissum
mönnum í Egyptalandi er seldu
það sem hverjir aðrir vínsalar.
Með skipum þessum mátti
ekki senda þessa vöru. Þau
eru eingöngu leigð til að flytja
leigulánsvörur. Stjórnin i
Washington er að rannsaka
þetta mál.
íslenzkt námsfólk syðra
Síðan Dr. Friðgeir ódason og
kona hans, Dr. Sigrún ólafsson
föru frá Winnipeg, höfum vér
ekki haft neinar fréttir af þeim.
I síðasta hefti ritsins “The
American - Scandinacian Re-
view”, er þess getið, að dr.
Friðgeir starfi að rannsókn
sjúkdóma við “The Nevv York
Hospital”, en það starf hlaut
hann, er hann á s. 1. hausti
kom til baka frá íslandi; hann
fór þangað að sækja son þeirra,
Óla, fjögra ára gamlan, sem nú
er hjá þeim í New York. Hjónin
eru heiðursfélagar “American-
Scandinavian Foundatiion.
Ennfremur getur ritið þess,
að ungfrú Ágústa J. Magnuss,
sé við fram'haldsnám í hjúkr-
unarfræði við Mayo-spítalann
FRÉTTIR - 4
í Richester. Hún er útskrifuð
frá Landspítalanum í Reykja-
vík og er heiðursfélagi Svensk-
Ameríska félagsins.
Þá getur um þrjá unga náms-
menn frá Akureyri við Cali-
forniiu-háskólann í Berkley. —
Heita þeir Jónas Jakobsson, er
stundar nám í veðurfræði,
Aðalsteinn Sigurðsson, sögu-
nemi og Halldór Thorsteinsson
frönsku-nemi.
Senda Bretar her til
meginlands Evrópu?
Þrjátíu þúsund manna söfn-
uðust saman á Trafalgar Sq.,
s. 1. sunnudag til að hlýða á
ræður þær, er þar voru fluttar
af stjórnmálamönnum og öðr-
uim um að Bretar ættu að senda
herlið til meginlands Evrópu.
Töldu ræðumenn nú tæki-
færið bíða Breta meðan Hitler
væri með fjóra fimtu af liði
sínu í Rússlandi. Að færa sér
það ekki í nyt, gæti kostað
Breta stríðið.
í ræðunum var haldið fram,
að stjórnin þverskallaðist við
þessu vegna þess að hana fýsti
að sjá Rússa tapa stríðinu.
Frétt þessi birtist hér í báð-
um dagblöðunum, en fregnrit-
inn, William H. Stoneman, bæt-
ir við hana í blaðinu Free
Press, að árásin á St. Nazaire,
sýni, að slík innrás sé ekki
hættulaus.
Stríðið
Rússland: Síðustu fréttir frá
Rússlandi eru þær, að Þjóð-
verjar hafi tapað ónefndri borg
í grend við Leningrad, sem
mikla hernaðarlega þýðingu
hafi. Voru 2500 Þjóðverjar
drepnir þar í orustu er stóð
yfir í tvo daga.
Við Vyazma, nokkru sunnar,
unnu Rússar einnig sigur í
orustu og drápu 500 menn af
Þjóðverjum.
í Suður-Rússlandi halda þeir
enn sókninni.
Þjóðverjar hafa verið að
hrúga her á vigvellina í Rúss-
landi. En af því er ekki annar
árangur en harðari orustur.
S. 1. sunnudag töpuðu Þjóð-
verjar 25 fugskipum; Rússar
12. Yfir vikuna nam flugvéla-
tap Þjóðverja 161 skipi, en
Rússa 71. Sýnir þetta að bar-
dagarnir eru að harðna. En
Rússar hafa samt sóknina.
Astralía: 1 gær lutu fréttir
frá Ástralíu að því, að mikil
árás hafi verið gerð á herstöðv-
ar Japana á Nýju Guinea og
flugskálar brendir og 6 loftskip
eyðilögð; Ástralingar mistu
ekkert flugskip.
Tap Japana þarna er nú orð-
ið: 30 herskip, 60 flutrtingsskip
og 200 flugför.
Japanir gerðu flug-árás á
Darwin í Ástralíu í gær; um
skaða getur enga.
Burma: Þar er barist aðal-
lega á tveimur stöðum við Ir-
rawaddy-fljót, er um mitt land-
ið rennur. Heitir annar stað-
urinn Toungoo, borg með
20,000 íbúa; þar eru Kínverjar
með lið sitt og verja borg þessa
frækilega, þrátt fyrir mikinn
liðsmun. Hinn bardagavöllur-
inn er við Prome, borg með
30,000 íbúum; þar eru Indverj-
ar og Bretar. Bjuggust þeir
við liði frá Indlandi, en það
kom ekki. Náðu Japanir þar i
gær betri aðstöðu en áður og
þykir þarna nokkur ha'tta á
ferðum. Burma-búar greiða
fyrir Japönum alt sem þeir
geta og berjast með þeim. í
einni orustu voru 300 japanir
herteknir og voru 70 Burma-
búar í þeim hópi. Mestir bar-
dagar eru sagðir að hafa verið
við Toungoo; segja Kínverjar
þar hafa af Japönum fallið alls
síðan bardagar þar hófust um
5000 manns.
Orusta fyrir norðan Noreg
Á hafinu fyrir norðan Noreg,
gerðu Þjóðverjar árós á brezk
og bandarísk skip, sem voru a
leið til Murmansk með vörur
til Rússa. Sagði í fyrstu frétt-
um frá Þýzkalandi, að sam-
bandsþjóðirnar hefðu tapað
einum 8 skipum. Sjóorusta
þessi, eða eltingarleikur, stóð
yfir í tvo daga. Brezk herskip
og rússnesk tóku á móti þýzku
skipunum. Hið sanna er nú,
að tvö brezk herskip voru hitt
og löskuðust, en komust alla
leið til Murmansk; Skipin hétu
Trinidad og Eclipse — hið
fyrra 8 þús., en hitt 1375 smá-
lestir. Þetta voru varnarskip
við flutninginn, ásamt rúss-
neskum kafbátum. En af
Þjóðverjum var einum tund-
urspilli sökt, einn eða tveir
aðrir löskuðust og 3 þýzkir
kafbátar sukku — að því er
haldið er — eða 5 skip alls.
Flutningurinn komst því alla
leið til Murmansk, án þess að
nokkru af honum væri sökt.
Tirpitz eða önnur stór skip
Þjóðverja voru ekki í orustu
þessari. Skipin voru flést sma
og lögðu á flótta eftir ófarír
nefndra þýzkra skipa.
Leiðin til Murmansk er þvi
ekki enn lokuð, þó Hitler hafi
eflaust ætlað sér að gera það
með sendingu herskipa sinna
til Noregs.
Vestur að hafi
Hjörtur Kristmannsson heit-
ir maður sem hefir ferðast um
bygðir íslendinga meðfram
Winnipeg og Manitoba vatna
undanfarnar vikur, ókunnugur
oss að öðru en því að hann var
kominn vestan frá hafi. Af er-
indi hans fóru litiar sögur, en
af nýlega útkomnu blaði —
Vanoouver Sun, 24. marz — má
sjá, að landar frá ofannefndum
bygðum eru þangað komnir og
von sé á fleirum frá sömu slóð-
um. Þeir séu ráðnir til fisk-
veiða í stað Japana, sem land-
stjórnin hefir vandlega smalað
af ströndinni og flutt til ann-
ara staða, suma til vegavinnu í
miðju landi og annara nauð-
synlegra verka.
Blaðið nefnir tvo með nöfn-
um og flytur myndir af sum-
um. Þessir eru nefndir: Pétur
Valdimar Eiríksson, 59 ára,
átta barna faðir; Sigurður
Brynjólfsson, 44; Burney Joihn-
son, Gimli, 18 ára; Harry Thor-
steinsson, 49 og synir hans
tveir: Mundi 27 og Marino 29;
Alfred Magnússon, Hallur Sig-
urðsson, Lincoln Peterson. —
Þessir teljast ráðnir til lúðu-
veiða af British Columbia
Packers Ltd., en sú veiði byrjar
um þetta leyti. Um 30 landar
hefir blaðið eftir þeim að
komnir séu vestur, í sama
augnamiði.
Frá öðrum hefir oss borist sú
frétt að þessir séu ráðnir til
vesturferðar af fyrgreindu fé-
liagi: Kris Sveinsson; Siggi
Sveinsson, Riverton; Doddi
Þórðarson, Gim’li; Daniel
Bjarnason, Hnausa; Toki John-
son, Gimli; Rósi Eldjárnsson,
Gimli; Gisli Benson, Gimli; Art
Willis, Riverton; Jónas Mag-
nússon og Sam Redshaw, Víð-
ir, Man.; Herbert Albertson,
Húsavík; Bill Magnússon, Riv-
erton; Harold Robinson, Pine
Falls; Geiri Sigurgeirsson,
Heklia; Jakob Sigurgeisson,
Hekla; Kristján Sigurgeirsson,
Hekla; Alli Jónasson, Hekla;
Beggi Helgason, Gimli, Magnús
Jónasson, Gimli.
Indverjum ekki þokað
1 gærkvöldi voru miklar lik-
ur taldar á þvi, að Indverjar
ætluðu ekki að ganga að samn-
ingunum sem Sir Stafford
Cripps býður þeim. 1 þeim
samningum, er Indverjum lof-
að sjálfstæði eftir stríðið á
sama hátt og öðrum nýlendum
Breta, t. d. Canada, fyrir það
að taka nú þátt í stríðinu með
Bretum. En Indverjar sætta
sig engan veginn við þetta. —
Þeir hafa á orði í blöðum sín-
um, að þeir séu hissa á boði
hins góða manns, Cripps, um
að áskilja Bretum herstjórn
yfir landinu. Indverjar vilja
fá hana nú þegar í sínar hend-
ur, ásamt fullveldi í stjórnmál-
um.
All-India-congressið hefir
aldrei annað látið á sér heyra
en að það væri eindregið á
móti samningum Cripps.
ÚR ÖLLUM ÁTTUM
Fjörutíu mílur á klukku-
stund — það vill nú sambands-
fcstjórnin að verði akusturshraði
bíla á þjóðvegum í Canada. —
Mun landstjórnin 'hafa farið
fram á það við fylkin, að þau
semdu reglur um þetta; álitur
sambandsstjórnin það bæði
mínka neyzlu á gasolíu og slit
á gúmmi-hringum á bílhjólum.
Síðan Japanir náðu í 90 af
hundraði af allri togleðurs trjá-
rækt, með hernámi Indlands-
eyja, litur illa út með efni til
slíks iðnreksturs í Canada, sem
anmars staðar.
• • •
Á síðustu dögum Manitoba
þingsins voru lög samþykt er
svifta Winnipeg-borg réttinum
til að leggja $5 skatt á bíla; þau
lög koma í gildi í lok ársins
1942. Ennfremur var 2% á-
fengisskatturinn tekinn af
bænum; þau lög koma í gildi
30 apríl á þessu ári. Tekjutap
Winnipeg-borgar nemur $200,-
000 af þessu. Bæjarstjórnin í
Portage la Prairie fór fram á
sömu hlunnindi og Winnipeg
hafði, áhrærandi áfengisskatt-
inn. f stað þess að vera veitt-
ur hann, var hann tekinn af
Winnipeg.
• * •
Nefnd sem hafði rannsókn
ellistyrkslaganna með höndum,
lagði til að sambandsstjórnin
hækkaði styrkinn úr $20 í $25
á mánuði. Fylkisþingið í Mani-
toba tjáði sig í gær samþykt
hækkuninni. Fylkisstjórnin
greiðir einn fjórða skattsins
en sambandsstjórnin þrjá
fjórðu hluta hans.
* * *
í brezku útgáfunni af Who’s
Who”, (hver er maðurinn) sem
nýlega er komin út fyrir árið
1942, er lýsingin af Stalin níu
orðum lengri en í útgáfunni
1941.
Thoreau segir:
Það er meira vert að kenna
mönnum að virða sannleikann
en lögin.
Ástin er óvægin gagnrýnari.
Hatrið fyrirgefur meira en hún.
TOGLEÐUR ÚR RÚSS-
NESKUM FÍFLUM
Eftir A. T. Steele
Meðal þeirra fífla-tegunda
sem gróa í Rússlandi, er ein
tegund sem hefir forðað Sovét-
ríkinu frá skorti á togleðri; og
um leið orðið mikilvægt atriði
í framleiðslu hergagna innan
ríkisins.
Meirihluti hins rússneska
togleðurs er gerður úr ýmsum
efnum blönduðum saman; en
af aðeins einu þeirra efna er
notað meira en af fíflarótun-
um. Með því að þvi nær ekk-
ert togleður er nú fáanlegt er-
lendis, hefir stjórnin rússneska
gert áætlun um, að togleðurs-
fifla-akrarnir verði stækkaðir
um 250% á þessu ári. Eru þeir
akrar mestmegnis inni í miðju
landinu. í síðastliðin tíu ár
hafa vísindamenn þeirra vitað
um þessa togleðurs-fífla; en
notkun þeirra hefir verið bund-
in við Rússland eitt. Jurtin
hefir fengið hið vísindalega
nafn: Taraxacum Koksaghys
Rodini. En alstaðar, innan
Sovét-rikisins er hún nefnd
Koksaghys. Þessi tegund fífla
gefur ekki ríkulega uppskeru;
en hún hefir þann mikilvæga
kost, að hún getur þroskast í
köldu loftslagi.
Það var árið 1932 að rúss-
neskur bóndi fyrst tók eftir
þessari tegund fífla. Hann
sá að hún var öðrum frábrugð-
in að því leyti, að hún hafði
stórgervari rætur, sem voru
fullar af Jímkendum vökva,
mjög áþekkum togleðri. Hann
fór þá með rætur þessar til
Moskva og gaf þær í hendur
Rodini, jurtafræðingi stjórnar-
innar, sem lýsti yfir að það
væri alls kostar ný tegund
fifla, sem hefði í sér miklu
meira af togleðurs-vökva en
þær sem áður voru kunnar.
Það var þó ekki fyr en árið
1937 að farið var að rækta Kok
saghys í stórum stíl. En síðan
hefir stjórnin hvatt til, að
ræJctað væri sem mest af henni
og jafnvel veitt fjárstyrk til
þess.
Að ytra útliti er Koksaghys
mjög áþekk þeim tegundum
fífla, sem vaxa óræktaðar hér
og þar. Togleður-vökvinn er í
rótinni og hýði hennar. George
Pavlov, forstöðumaður í akur-
yrkju-deild stjórnarinnar, sem
hefir gefið oss mest af þessum
upplýsingum, segir, að þessa
Koksaghy-rætur séu, eftir
þurkun, 7—9% togleður; og að
200 pd. af togleðurs-vökva af
ekrunni sé talin góð uppskera.
Hann segir að þetta fíflaróta-
togleður sé ekki eins gott og
það sem framleitt er í hitabelt-
is-Iöndunum; en þó betra en
efnablöndunar-togleðrið. Hann
hyggur að Koksaghys myndi
þrifast vel á ýmsum stöðum í
Bandaríkjunum. Eg spurði
hann, hvert þetta rússneska
fíflafræ myndi verða fáanlegt,
í stórum stíl, til ræktunar-til-
rauna hér í landi; og kvaðst
hann hyggja að svo myndi
verða.—Þýtt úr Free Press. B.
Úr fundarræðu: Það er á-
byggilega ábyggilegt, að skoð-
un andmælanda míns er á-
byggilega röng — í stórum
dráttum ....
• • •
Börnin stæla fullorðna fólkið
og langar til að líkjast því í
öllu. En þegar þau eldast,
skilja þau ekkert í því, að þau
skuli nokkurn tíma hafa lang-
að til þess.
FJÆR OG NÆR
Goðafoss er nýlega kominn
til New York. Með skipinu
komu að heiman þessir farþeg-
ar: Stefán Wathne, Kristján
Jónasson, Alfred Eliasson, Ás-
björn Magnússon, Selma Jóns-
dóttir, Sig. Runólfsson, Alfred
Nielsen, Fl.Lieut. Bulukin. —
Fregn þessi kom í bréfi til Á. P.
Jóhannssonar er hann góðfús-
lega færði Hkr. til birtingar.
• • •
Horv J. T. Thorson kom til
bæjarins fyrir síðustu helgi og
dvelur hér fram yfir páska.
• • •
Lýður S. Líndal, 498 Victor
St., Winnipeg, lézt 28. marz að
heimili sinu. Hann var 81 árs
að aldri, ættaður úr Stranda-
sýslu. Jarðarförin fór fram frá
Fyrstu lút. kikrju í gær.
♦ • •
S. Thorkelsson kom fyrir
helgina austan frá Ottawa. —
Hann hitti ýmsa landa eystra
svo sem Major K. Austmann,
Hon. J. T. Thorson o. fl. Lét
hann mikið af að landar, sem
til Ottawa kæmu, ættu þar
hauk í horni, sem Mr. Thorson
væri.
• • •
W. J. Líndal dómari hefir
það starf með höndum í þess-
um bæ, að athuga beiðnir
þeirra er um atvinnuleysis-
styrk sækja.
• • •
Munið eftir og sækið sam-
k o m u Laugardagsskólans,
laugardaginn 18 apríl n k.
Ókeypis fyrir börn upp að 14
ára aldri. Mjög er áríðandi að
börn sæki allar kenslustundir
til loka skólans og séu stund-
vís.
• • •
Mrs. Steina J. Sommerville
talar í CKY útvarp miðviku-
daginn 8. apríl, kl. 4 e. h. um
“Islenzka frumherja.”
• • •
Á laugardaginn opinberuðu
trúlofun sína Alice, dóttir Mr.
og Mrs. Herbert Baldwinson,
Riverton og Jóhannes Snorra-
son frá Dalvík við Eyjafjörð.
Gildi var haldið að 902 Ban-
ning St., hjá Mr. og Mrs. M.
Thorvaldson. Jóhannes og einn
félaga hanis lögðu upp daginn
eftir til þriggja mánaða fram-
haldsnáms í fluglist í Regina.
Hkr. óskar til lukku.
• • •
Laugardaginn 21. marz,
var veglegt brúðkaup haldið á
heimili Mr. og Mrs. W. E. Perry,
723 Warsaw Ave., hér í borg.
Gengu þá tveir bróðursynir
Mrs. Perry, þeir Helgi og
Brynjólfur Jones, saman í
heilagt hjónaband. Foreldrar
þeirra eru Thorbergur og Anna
Jones frá Birkilandi í Mikley.
Helgi giftist Frances Anne
Hirst; er hún íslenzk í móður-
ætt, dóttir Mr. og Mrs. Walter
Hirst, sem búa við Oak Point,
Man. En Brynjólfur gekk að
eiga Sigríði Kristjönu Johnson,
dóttir Mr. og Mrs. Sigurðar
Johnson í Mikley. Séra Bjarni
A. Bjarnason framkvæmdi
hjónavígsluna. Heimili hinna
ungu hjóna verða í Mikley.
• • •
Mr. og Mrs. Eddie Johnson
frá Elfros, Sask., lögðu á stað
heimleiðis í bíl s. 1. mánudags-
morgun eftir að hafa dvalið hér
í nálega tvær vikur í heimsókn
hjá skyldmennum og kunningj-
um.
• * *
Stúkan Skuld heldur ekki
fund þessa viku.