Heimskringla - 19.08.1942, Qupperneq 8
8. SlÐA
HEIMSKRINGLA
VVINNIPEG, 19. ÁGÚST 1942
FJÆR OG NÆR
MESSUR í ÍSLENZKU
SAMBANDSKIRKJUNUM
Séra Guðm. Árnason messar
á Steep Rock næstkomandi
sunnudag, þann 23. þ. m.
• • •
N. k. sunnudag, 23. þ. m.
messar séra Philip M. Péturs-
son i Free Christian Church í
Underwood, Minn., þar sem er
söfnuður norðmanna sem til-
heyrir Unitara félaginu.
• • •
Messa á Vogar
Sunnudaginn 30. þ. m. mess-
ar séra Philip M. Pétursson í
kirkjunni á Vogar, kl. 2 e. h.
• * •
Miss Lína Sigurðsson frá Se-
attle, Wash., sem fyrir einum
mánuði kom í heimsókn til
frænda og kunningja til þessa
bæjar, lagði s. 1. föstudag af
stað suður til Bandarikjanna,
Minneota og Minneapolis; mun
hún dveija þar á aðra viku
áður en hún leggur upp í ferð-
ina vestur.
• • •
Miss Stefanía, dóttir séra Jó-
hanns heitins Bjarnason, fór
til Washington, D. C. í lok fyrri
mánaðar og hefir fengið stöðu
á skirfstofu þeirrar hermála-
deildar sem ræður loftferðum.
• • •
Mr. K. J. Matthíasson kom
til bæjarins snögga ferð um
helgina frá Saskatoon. Hann
sá drýli á ökrum nálægt Por-
tage la Prairie og hvergi ann-
arstaðar.
• • •
Frá Toronto er að flytja bú-
ferlum Mr. Jón Ragnar John-
son ásamt konu og ungum syni.
Jón Ragnar hefir fengið stöðu
sem lögfræðilegur ráðanautur
hjá olíufélagi í Calgary.
• • •
Pínulítil leiðrétting
I orðum þeim í síðasta blaði,
er eg mintist Kristjáns sál.
Hannessonar, hefir sú skekkja
hent mig, að kalla þriðja son
hans Karl óskar, en hann heit-
ir Kári óskar. Þetta bið er þá,
sem láta sig það nokkru skifta,
að fyrirgefa mér og leiðrétta.
Eg vissi betur; en að klína
þessu á prentarann tjáir ekki
fyrir mig. Sveinn Oddsson
• • •
Mrs. Björg Bjarnason frá
Churchbridge og Mrs. Guðrún
Martin frá Wynyard, systur,
uppaldar í Nýja íslandi og
Winnipeg, komu til hátíðarinn-
ar á Gimli og heimsóttu vini
og gamla kunningja í þeirri
ferð. .
Eftirfylgjandi farþegar komu
með s./s. Dettifoss til New York
nýlega, frá Islandi:
Mr. Hilmar Fenger, verzlun-
armaður; Mr. J. Guðmundsson,
verzlunarmaður; Mr. Páll Stef-
ánsson frá Þverá, verzlunar-
maður; Mr. Guðm. Árnason,
student; Miss Inger Bentzen,
túristi; Miss Katrín Pálsdóttir,
Gjafir til Sumarheimilis ísL
barna að Hnausa, Man.:
I blómasjóðinn ......$30.00
í minningu um ástkæra móður,
Sigríði Brynjólfsdóttur Indriða-
son, gefið af fimm sonum þess-
arar látnu heiðurskonu, og eru
nöfn þeirra sem hér fylgja:
Percy R. Indriðason, Cavalier,
N. D.; Magnús B. Indriðason,
Buffalo, N. Y; Skafti T. Indriða -
son, Grand Forks, N. D.; Kristj-
án B. Indriðason, Berkeley,
Calif.; Stefán Indriðason,
Mountain, N. D.
Aðrar gjafir eru:
Mrs. S. Mathews,
Oak Point, Man........$8.00
Mr. og Mrs. W. Eyjólfson,
Árborg, Man. ......... 5.00
Mrs. A. G. Eggertson,
Winnipeg, Man. ....... 5.00
Mrs. Áslaug ólafsson,
Winnipeg, Man. ....... 5.00
Mr. og Mrs. J. Sigurðsson,
Cranberry Lake, B. C.. 2.00
Kærar þakkir,
Emma von Renesse,
• * •
Dans verður á Hnausum til
arðs fyrir Sumarheimilið 26.
ág. Pálsson’s Orcehstra spilar.
• • •
Næsti fundur St. Skuld verð-
ur haldinn að heimili Mr. og
| Mrs. H. ísfeld, 189 Kelvin St.,
'Elmwood, miðvikudagskvöldið
þann 19. ágúst.
• • •
Matreiðslubók
Kvenfélags Fyrsta lúterska
' safnaðar í Winnipeg. Pantanir
Isendist til: Mrs. E. W. Perry,
723 Warsaw Ave.; Mrs. E. S.
iFeldsted, 525 Dominion Street.
Verð $1.00. Burðargjald 5í.
verksmiðjuna, þar sem fram-
leiddar eru hinar frægu, loft-
kældu flugvélar. Þessi heim-
sókn opnaði augu hans.
Ellefu mánuðum seinna, í
ágústmánuði 1941, hóf Sören-
sen stórframleiðslu flugvéla í
nýrri verksmiðju, sem kostaði
37 miljónir dollara. Áætlun
verksmiðjunnar er stórfengleg,
og Sörensen var svo forsjáll að
byggja verksmiðjuna þannig,
að hægt væri að stækka hana,
ef þyrfti að auka afköstin.
Sörensen var ekki ánægður
með að smíða einungis vélar í
flugvélar. Hann var ákveðinn
I í að smíða flugvélarnar að öllu
I leyti og gera það í stórum stíl.
i Þegar hann mintist fyrst á það,
að framleiða flugvél á klukku-
|tíma, urðu jafnvel félagar hans
| fullir efasemda. Nú er þessi
, hugmynd komin í framkvæmd.
íbúarnir í Detroit hafa gam-
^an að þvi, að bera saman Dan-
;ina tvo, sem hafa svo mikla
þýðingu fyrir hergagnafram-
leiðslu Bandaríkjanna — Sör-
ensen og William Knudsen, her-
foringja, yfirmann hergagna-
framleiðslunnar fyrir landher-
inn. Knudsen á miklu fleiri
vini í borginni, af því að hann
hefir gefið sig þar að ýmsum
málum. En fáir utan fjölskyld-
unnar þekkja Sörensen náið.
— Hvers vegna ætti hann að
þarfnast vina? sagði einn af
embættismönnum stjórnarinn-
ar nýlega; — hann er sjálfum
sér nógur.
Sörensen þykir mikið til
Knudsens koma. Flestar flug-
vélarnar og sprengjuflugvéi-
arnar, sem við fáum 1942 og
1943, segir hann, — eru að
þakka framkvæmdum Knud-
sens á árunum 1940 of 1941.
Þrátt fyrir langt samstarf,
kallar Sörensen Henry Ford
altaf húsbónda sinn, og hann
lítur á sjálfan sig sem aðstoð-
armann hans. Fyrir starf hans
Látið kassa i
Kœliskápinn
WvmoLa
m GOOD ANYTIME
borgar Ford honum 169,000
dollara á ári. Fyrir löngu síð-
an er sagt, að Ford hafi sagt
við hann: Ef þú vilt meira
kaup, Charlie, þá segðu bara
til. En Sörensen eru peningar
lítils virði.
Það hefir blásið nýju lífi í
Sörensen, að fá tækifæri til
þess að efla framleiðslumögu-
leika Ameríku í þjónustu góðs
málefnis. Sörensen er ánægð-
ur, þegar hann sér hjólin snú-
ast og nýjar verksmiðjur þjóta
upp.
— Við getum lært á þessu,
segir hann og benti á verk-
smiðjuna. — Við vitum, að við
höfum lagt lið góðu málefni, og
við lærum að búa til betri flug-
vélar. Er það ekki nóg?
—Alþbl. 2. júní.
SARGENT TAXI
7241/2 Sargent Ave.
SÍMI 34 555 eða 34 557
TRUMP TAXI
ST. JAMES
DANINN SEM FRAM-
LEIÐIR FLUGVÉL Á
HVERRI KLUKKUST.
Frh. frá 5. bls.
ur vexti og axlabreiður. Hann
er um sextugt, en er hvergi far-
inn að láta á sjá og heldur enn
þá framkvæmdaþreki sinu og
hugkvæmni óskertri.
Sörensen er fæddur í Kaup-
mannahöfn árið 1881. Fjöl-
skylda hans fluttist til Ameríku
meðan hann var kornungur, og
Sörensen lærði ofnasmíði
ofnasmiðju föður síns. Dag
nokkurn árið 1903 kom Henry
Ford inn í smiðjuna. Hann var
þá að byrja að smíða bíla sína.
Hann þurfti að láta smíða mjög
vandgerðan hlut, og Sörensen
tók að sér að smíða hann. Ári
seinna gekk hann í félag við
Ford. Frá þeim degi hefir hann
ráðið fram úr öllum erfiðum
tæknilegum vandamálum fyrir
Ford.
Sörensen hefir aldrei verið
hræddur við að taka að sér
erfið og áður óþekt verkefni. 1
Detroit er sögð saga af því,
þegar Ford á fyrri árum var að
reyna að auka bifvélafram-
leiðslu sína upp í 2,000 á dag.
(Hún hefir komist upp í 9,000).
Verkstjórinn sagði, að það væri
ekki hægt.
— Þá er víst bezt, að þér
í
ÞJóÐRÆKNISFÉLAG S
ISLENDINGA* j
Forseti: Dr. Richard Beck 2
University Station,
Grand Forks, North Dakota
Allir Islendingar í Ame-
ríku ættu að heyra til
Þjóðrœknisfélaginu
Ársgjald (þar með fylgir |
Tímarit félagsins ókeypis) .
$1.00, sendist fjármálarit- ;
ara Guðmann Levy, 251
Furby St., Winnipeg, Man. '
1 #################################«
túristi; Mr. Haukur Gunnars- hypjið yður, sagði Sörensen. Og
hann réði sér annan verkstjóra.
Hinum nýja verkstjóra hepn-
aðist ekki strax, en meðan
hann reyndi, studdi Sörensen
hann með ráðum og dáð. Enn
við nýafstaðin próf við Tor- í dag krefst hann þess, bæði af
onto Conservatory of Music. sjálfum sér og undirmönnum
Alls tóku 10 nemendur þátt sínum, að þeir geri það, sem
í prófunum eins og hér segir: þeir geta
son, stúdent; Mr. Sigurjón
Danivalsson, verzlunarmaður.
• • •
Nemendur Jónasar Pálsson-
ar skara langt fram úr öðrum
2 í 7. bekk, sem báðir hlutu
honors.
5 í 8. bekk, 3 hlutu lst class
honors, og 2 honors.
1 í 10. bekk og hlaut lst
class honors.
2 í 11. og síðasta bekk út-
skrifuðust sem konsert spilar-
ar, annar með honors og hinn
(Alda Pálsson) með lst class
honors.
2 voru sæmdir medalíum,
annar í 8. bekk og hinn í 10.
bekk. Medalíurnar eru veittar
Þegar Þjóðverjar réðust inn
í Danmörku vorið 1940, vissi
hann, hvað til síns friðar
heyrði. — Danska þjóðin mun
aldrei fyrirgefa þessa innrás,
sagði hann. Og frá þeirri
stundu var hann reiðubúinn að
neyta allrar orku til þess að
vinna bug á ofbeldinu. .
Fram að þeim tíma hafði
Sörensen algerlega unnið að
bílaframleiðslu. Og fyrsta hug-
myndin, að reyna í einhverri
annari grein, mótaðist í huga
þeim, sem ná hæstu stigum í hans sumarið 1940. Sörensen
öllu fylkinu í hverjum bekk. heimsótti Pratt & Whitney
Vinnuveitendur og póst-
hús hafa verið beðin að
auglýsa á góðum stað
hjá sér töflu yfir skatt-
inn.
Form TD-1 er hægt að
fá hjá vinnuveitenda,
pósthúsum eða á In-
come Tax skrifstofum.
Tekjuskatturinn er sanngjarn
gagnvart öllum
Á fjórða ári stríðsins, þarf Canada með nærri fjórar biljónir dala.
Það er að jafnaði $350 á hvern mann, konu og barn í landinu.
Þó skattar séu hærri en nokkru sinni fyr, nema þeir ekki nema
52% af því sem með þarf. Afgangsins verður að afla með sölu Stríðs-
sparnaðar frímerkja, skírteina og sigurláns verðbréfa.
Með september-mánuði byrjar skattgreiðslan af tekjum yðar. Er
af vinnuveitanda að lögum krafist, að skatturinn sé dreginn frá laun-
unum og sendur stjórninni hið bráðasta. Hver og einn verður að greiða
það sem honum ber.
Það verður erfitt . . . en ekki um of! Hér eru nokkur
atriði, sem ekki eru hin verstu:
1. Þér greiðið skattinn um leið og tekjurnar koma inn; Það tryggir að
miklar fjárhœðir þarf ekki að horfast í augu við á nœsta ári.
2. Herskatturinn, sem greiddur hefir verið í 8 mánuði yfirstandandi árs,
er dreginn frá í töflunum.
3. Þó tekjuskatturinn sé mun hærri en síðast liðið ár, verður stór hluti
hans greiddur yður til baka með vöxtum að stríðinu loknu.
4. Peninga sem þér þurfið með til að greiða lífsábyrgð, árs-iðgjöld (an-
nuities), veðskuld á heimili, eða í launasjóði (pension fund), má draga
frá (upp að vissu marki) frá þeim hluta skattsins, sem lánaður er (sav-
ings portion). 1 mörgum tilfellum þarf ekki neitt að greiða af þessum
hluta skattsins.
Nema því aðeins að þú sért einhelypur, án ómegðar, og greiðir ekki þau
atriði skattsins, sem nefnd eru í 4. grein, hér á undan, áttu að fylla inn
Form TD-1 hjá vinnuveitanda. Án þess getur svo farið, að yður verði
ekki leyft, að draga það undan, sem farið er fram á. FRESTIÐ EKKI
ÞESSU. Fyllið inn Form TD-1 undir eins hjá vinnuveitenda, svo þér
fáið alla undanþáguna frá byrjun.
HON. COLIN GIBSON,
Minister of National Revenue.
DOMINION OF CANADA — DEPARTMENT OF NATIONAL REVENUE
INCOME TAX DIVISION
C. FRASER ELLIOTT,
Commissioner of Income Tax.