Heimskringla - 17.03.1943, Side 3

Heimskringla - 17.03.1943, Side 3
WINNIPEG, 17. MARZ 1943 HEIHSKRINGLA 3. SlÐA ÁRNI MAGNÚSSON F. 24. maí 1866—D. 2. des. 1942 Með dauða hans er eikin fallin til jarðar sem gnæfði yfir nýgræðingin í Hallson bygð á frumbýlingsárunum frá 1883 til aldamóta. Eftr það fóru önnur tré að teygja sig hærra, sem aðhlynningu fengu, og andlegs áburðar nutu, en sem hann fór algerlega á mis við, nema það sem hann gat reitt saman að afloknu verki einn og annan dag. Þrátt fyrir þessar hans erf- iðu kringumstæður, kom það fljótt í ljós að hann var flestum færari i ensku máli bæði í ræðu og riti, og því megnugur að liðsinna þeim er þar strönd- uðu. Það var lika vanalega svarið til þeirra sem leituðu með vandamál sín til nágrann- ans, “Því miður get eg ekki greitt úr þessu. Þú verður að fara til Árna Magnússonar. — Hann getur það, og vilja til greiðvikni hjá honum er ekki að efa.” Hann tapaði margri stund frá eigin þörfum fyrir svona kvabb úr ýmsum áttum, en aldrei var tregða á hjálp- seminni, þó óborgað væri með öðru en hlýju handtaki og þakklætis orðum. Það var ekki annað til í þá daga. Smíðar var hann hneigður fyrir, og æfði nökkuð, og ýms nauðsyn- leg áhöld til þess aflaði hann sér við fyrsta tækifæri. En eins fór með það og kunnáttu hans með pennan, að óspart var hann beðinn að laga til eitt og annað á nærliggjandi heimilum, og launin voru oft- ast Htil eða engin. Um það leyti et Menningar félagið var stofnað á Garðar, var hann tvítugur, og þá búinn að lesa margar fræðibækur, svo hann var hrifinn af stefnu fél. En fjarlægðar vegna gat hann ekki sótt fundi þess né tilheyrt því. Á þeim árum voru samgöngur erfiðar ef um vegalengd til muna var að ræða. Um 1890-93 var stofnað kappræðufél. í Hallson. Má ó- hikað telja hann hvatamann að því. Það hafði marga skemtilega og fræðandi fundi, meðan það hélst við. Hann var snjall í kappræðu og var oft til með að taka þá hiið málsins er hallloka fór eina vikuna, og rétta hana við hina, því oftast var sigurinn dæmdur þeirri hlið er hann fylgdi. Ekki var þetta af neinni mik- ilmensku því hann var yfirlæt- islaus maður. En hann vildi láta alt koma í ljósmál sem þekt var við hvort málefni, Eg heid að orðið ljósmál hafi verið hans uppáhalds orð í fleirum en einum skilningi. Mælingar geta ekki orðið nákvæmlega réttar nema í Ijósrúmi og ljós- mál það tungumál sem skír- ustu myndirnar dregur fram og iengst seilist í þær eftir nýju og auknu efni. Þar fanst honum íslenzkan skara fram úr, enda notaði hann hana ætíð í samræðu er við íslending tal- aði, þó enskan væri honum jafn töm er á fullorðins árin var komið. Um líkt leyti og kappræðu- féi. var við líði, var lestrarfél. “Vestri” stofnað í Hallson, og var hann einn af hvatamönn- um þess og lengst af forseti. Ekki sótti hann eftir opinber- um embættum í sýslunni, þó kunnáltu hefði hann næga til að leysa þau störf af hendi. En kosin var hann i hrepps em- bætti, oft á mót hans eigin vilja, t .d. var hann friðdómari í Beaulieu hreppi um 40 ár, og mörg þau síðustu var hann til heimilis að staðaldri i öðr- um hrepp. Þetta sýnir hvaða traust fólkið bar til hans, enda hefði verið hæpið að fá annan hans, réttlætis tilfinning og lögfræði héldust ætíð í hend- ur. Ekki tilheyrði hann nein- um trúarflokki, en verklega sýndi hann trú sina með dygð- ugu líferni og sjálfstjórn í orði og athöfnum. Hann réttlætti tilveru sína með því að auðga andan í leit eftir meira ljósi og sannleika. Hann “gekk út frá því” að andlegir áttavitar gætu hall- ast ögn frá réttum depli, ef þau öfl væru í nánd sem trufl- un orsaka. Eftir dauða móður hans breyttust trúarskoðanir hans nokkuð, svo hann neitaði því ekki sem hann hafði til- hneigingu til áður. Eitthvað á þessa leið heyrði eg honum falla orð: Þó enga sönnun sé að fá, sanngrundaða dauðum frá. Við höllum okkur að því enn, að eftir dauðan lifi menn. Ötull stuðningsmaður var hann allra mála er hann tók að sér. Hann átti drjúgan þátt í að prýða Minningarrit 50 ára landnámshátíðarinnar á Moun- tain 1928 með þáttum um fyr- stu landnema í Dakota bygð- unum íslenzku, fyrir utan að vera í ýmsum nefndum hátíð- inni aðlútandi. I riti því er mynd af framkvæmdarnefnd- inni, og má þar sjá góða mynd af Árna. Ef hann hefði fengið skólagöngu eins og æskulýður fær nú, hefði hann staðið fram- arlega í röð leiðtoga í þessu ríki. Árni var elzti sonur Magnús- ar Guðmundssonar og Guðrún- ar Guðmundsdóttir konu hans. Hann var fæddur á Islandi í Hálfdánatungu á Norðurlandi. Með foreldrum sínum fluttist hann til Ameríku 1876 í “stóra hópnum” sem kallaður var og settust fyrst að suðvestur af MöðruvöHum við Islendinga- og Magnús Daniel, sem öll eru í Calif., ásamt móðir þeirra, sem enn lifir þar. Magnús Daniel fékk styrk til fram- haldsnáms frá Juilliard tón- listaskólanum í Bandaríkjun- um til að ljúka þar námi. Þessi styrkur er veittur þeim sem skara fram úr við nám. Hann er í New York síðan n. 1. haust. Hann er 22 ára — fæddur í Hallson, N. Dak. Árið 1919 tók Árni að sér að hjúkra manni sem krabbamein hafði i andlitinu, það hefðu fá- ir karlmenn viljað fara í spor hans þá. Um það leyti fór heilsa móður hans að bila, og sjón hennar að þverra unz hún misti hana alveg og var þá lika orðin rúmföst. Hún dó 23. marz 1923, 94 ára. 1 allri henn- ar legu hjúkraði hann henni einn og var slíkt annáls vert. Á þessu tímabili gengu eig- ur hans af honum svo ekki var eftir nema fjórði partur af heimilisréttarlandi Guðrúnar. Hann gat ekki greitt sumt af skuldum sem á honum hvíldu, og mun það hafa legið þungt á honum. Við geymum það bezta en gleymum því, þó gægist upp léttvæg þokuský, í fari eins eða annars hér. Mjög ábata- vant því flestum er. Eftir dauða móður hans, hvarf hann burtu af heimilinu, og hélt til á ýmsum stöðum. Samt taldi hann þennan land- blett og hús æ sitt heimili. Þar voru bækur hans og ýms skjöl geymd, — landnámssaga er hann byrjaði að safna til um þetta leyti, og ætlaði að eftir- láta Thorstinu S. Jackson i bók hennar er hún gaf út 1926. Árni var seinvirkur en velvirk- ur, svo lengri tími gekk í að fá heimildir en búist var við í fyr- meðferðinni. Hann leitaði Áma lækninga í Cavalier og Lang- don en árangurslaust. Svo fór hann með hann til Drayton á spítala 13. des. 1940. Læknirinn þar sagði harnn þurfa uppskurð, sem gerður var 29. s. m. og tókst vel. En brátt kom í ljós að annað og verra var á ferð líka til að eyða honum, það var krabbi í bein- unum sem fór hægt en sótti stöðugt á. Á þessum spítala var hann út alla leguna nema 1 mán. júní 1941, að Einar tók hanin iheim. Árna langaði til að breyta ögn til og sjá gamla heimilið um stund. Alla þessa mán. sem hann var á spítalanum vitjaði Einar hans mánaðarlega og stundum oftar, þó stundum væri slæm færð og vegalengd báðar leiðir um 100 mílur, og æfinlega tók hann eins marga kunningja Árna og komust í bílinn, til að skapa honum þannig stundar ánægju. Þau hjón eiga þakkir skilið allra bygðarmanna fyrir um- önnun þeirra á honum, eins Mrs. J. E. Galbraith í Cavalier, sem reyndist honum mjög vel í veikindunum. Með skýra sansa var hann til síðustu stundar að heita mátti. Hann sá fréttablöð og fylgdist með ýmsum málum er þar voru skráð. Ekki þurfti hann gleraugu til að geta lesið nokkrar línur. Sínar löngu þrautir bar hann með frábærri stillingu. Ef hann var spurður um líðan hans, var svarið ætíð það sama: “Mér líður vel, það er alt gert fyrir mig sem hægt er.” Hann dó 2. des 1942 og var jarðaður þ. 7. við hlið móður sinnar í grafreitnum “And- vam” U/2 mílu frá heimilinu er hann taldi sér í 60 ár. Einar sá um útförina. Prestarnir H. Sigmar og Philip M. Pétursson fluttu minningarorð í Hallson kirkju yfif leifum hans. A. J. J. VISUR Eftir C. O. L. C. Þegar ljóða gyðjan góð geislum braga klæðist, hýrnar auga hitnar blóð hjartað endurfæðist. Ef að sálar minnar mál mátt og göfgi hrifin, gæti kveikt það bræðrabál' er breiddi frið um lönd og ál. Inn þótt blæði undin sár engin fær það kanna, hefi eg lært að hylja tár hlægja á fundum manna. Ort eftir lestur greinar í Iðunni eftir Stgr. lækni, sem hann nefndi “Epli Iðunnar” og fjallaði um yngingar tilraunir. Eplum fjölgar Iðunnar, ýmsan vísdóm geyma, unaðs lindir æskunnar— um allan skrokkinn streyma. Laxness teygir lopann sinn, langan æðiskendann, ef eg næði í endan hinn til ann^rs heims eg sendi hann. VONAR BLóMIÐ Sölna lauf á litlu blómi, lifið sjálft er veikt, velkist það í veðra hjómi vindar geta feykt. Traðkað blóm úr götu grómi greip eg fölt og bleikt, hélt það væri himinljómi en hrakið blóm er veikt. Oft þó lit eg lita fjöldin leiftra blöðum á, slikt sem þráir öll veröldin útsýn dimmri frá, þegar leyfa gleði gjöldin glaða Ijós að sjá, munum finna friðar völdin fögru blómi hjá. Tíminn er svo lengi að líða, lifið finnur til. Oft við þurfum ein að stríða, ýmsu að gera skil, andinn þreyttur oft má hlýða úfnum veðra byl. Tíminn er svo lengi að líða, lífið finnur til. Yndo börn lifðu af. Móðirin var ein sem ekki sýktist, og öll störf þurfti af hendi að leysa úti og inni. Árið 1881 fluttist móðir hans til Dakota Territory og nam land 2 mílur vestur af Halison, sem nú er kallað. Árni varð eftir í Winnipeg. Hann fékk vinnu hjá ekkju Thomas Burn’s, fyrsta fylkis- fljót, og nefndu bæ sinn þar stu Thorstína gat ekki beðið Húsabakka. Þar dó Magnús meg bókarútkomuna, sem kan- 1878 og tvö systkini Árna. Þrjú gj^ hefði þó verið betra fyrir báða málsparta. Villur hefðu orðið færri í bókinni, og rit Árna komið fyrir almennings sjónir. (Kanske getur það orð- ið enn, og þannig reisi hann sinn eigin mininisvarða.’ . Árni var ekki ánægður með mynd af móður sinni í bókinni, sem konu Jóns Eyjólfssonar, sjá bl. 377. Guðrún giftist ekki eftir skrifara Manitoba. Hann var lát Magnúsar. Þó líkaði hon- þá 14 ára og litið bjargfær í | um enn ver hvað fráleit mynd- ensku máli, en komst fljótt in var af skóginum á Tungár- niður í því, næmur skilningur | bakka bak við heimili J. P. og minni var samtaka í því. I Hállssonar, sjá bl. 138, og sagt Nýja Islandi horfðist Árni í málað eftir upplýsingu Á. augu við nálega alt sem ægi-, Magnússonar. í þann tíma var legast er til í lífi manina. Þar j þar þéttur skógur, svo ekki var hans byrjunar og háskóli. sást í gegn, hvorki til sand- I þeim reynslu skóla tók hann hæðanna 2Vs> mílu N.V. eða próf sem gerði hann að gildum Pembina fjalla 7—12 mílur rnanni síðar. Það var oft þröngt þaðan. í búi í Dakota á fyrstu árunum j Arni lifði við góða heilsu og krepti að til muna, en smá-: fram yfir sextugt. Árið 1929 vægt var það borið saman við var hann skorinn upp í Grand neyðina í N. íslandi, þegar ( Forks við kviðsliti, og í annað ekki var annað til að borða en ] sinn 1931. Meðan hann lá á kartöflubrauð og soðið hveiti- j spítalanum þar, vitjaði Hon. korn. Kornið var bragðgott, en , o. B. Burtness hans tvivegis. brauðið smakkaðist illa, hvað p,eir höfðu haft mörg bréfa- svangur sem maður var. skifti viðvikjandi pólitik og fl. Árið 1883 kom Árni hingað; og voru til vina. Burtness var suður til að hjálpa móður sinni ■ erindreki Calvin Coolidge for- og 2 systkinum, Kjartan og Sigurbjörgu, en hvarf til Win- nipeg aftur um ársskeið til að vinna, síðan hefir hann dvalið 'í þessari bygð óslitna veru. Hann stundaði búskap með móður sinni, þó hann væri við aðra vinnu öðru hvoru eins og áður er getið. Systkini hans yfirgáfu heimilið von bráðara. Sigurbjörg giftist hérlendum manni, H. M. Menth, í Mon- tana. Hún dó fyrir nálega 40 árum. Kjartan giftist í Seattle, WTash.', íslenzkri konu, Svönu Jóhsdóttir Reykdal. Hann dó í San Diegd, Californiu-ríki 1930. Árni giftist ekki, en skil- ur þessi ættmenni eftir: Syst- urdætur tvær, Evelyn og Mamie Menth, og 4 bróðurbörn, seta á landnámshátíðinni á Mountain. Álits Árna leitaði hann um mannval til Island^ á þúsund ára afmæli fulltrúa þings þess. Það var ætíð tek- ið til greina hvað hann sagði viðríkjandi einu eða öðru mál- efni. í nokkur ár eftir uppskurð- ina leið honum vel, en 1938 fór að bera á lasleik í honum, þó hann gerði litið úr því. Það á- j gerðist unz hann var ekki; vinnufær lengur. Siðla sum- ars 1940 tóku heiðurshjónin, Dína og Einar J. Einarson, hann heim til sín. Þau hafa lifað í nokkur ár á móðurleifð hans. Einar er sonur Jóns sál. Einarsonar (Hnappdal). Vin- fengi var mikið með Árna og Jóni. Einar hefir erft þann j hæfari i þá stöðu. Dómgreind i Árna, Sigurbjörgu, Theodore vinskap, og ekki rýrt hann i i »i» y ua- TILKYNNING CANADA STENDUR ANDSPÆNIS ELDIVIÐAR- ÞURÐ NÆSTA VETUR ERT ÞÚ einn af þeim Canadisku húsfeðrum sem brendu girðingum, hurðum og jafnvel gólfum til þess að vernda þig fyrir hörkum vetrarins sem nú er að liða? Eða ef til vill varstu einn þeirra sem með naumindum komst fram úr vandræðunum? Hvort heldur er, þá munt þú nú vilja búa þig undir næsta vetur, þegar'máske verða enn meiri vandræði, með því að gera nauðsynlegar ráðstafanir undir eins. Víðsvegar er tilfinnanlegur eldiviðar skortur nú þegar þar sem birgðirnar eru næstum gengnar til þurðar. 1 sumum tilfellum er nú verið að nota nýhöggvinn, grænan við, sem átti að geymast til næsta vetrar. Víða í Canada er eldiviðurinn tekinn nálægt þeim stöðum sem hann er notaður. Framleiðsla og úthlutun er í höndum bygðarbúa. Sambandsstjórninni er það ljóst að eldiviðar skorturinn er svo alvarlegur, áð jafnvel með almennum samtökum er ekki vist að nægi- legar birðir verði fáanlegar á þeim stöðum sem þannig hagar til. Þess- vegna hefir verið ákveðið að hvetja til aukinnar framleiðslu eldiviðar, með því að veita aðstoð þeim sem venjulega hafa með höndum fram- leiðslu og úthlutun þeirra hluta. Með þeim tilganjji, verða eftirfarandi ráðstafanir gerðar: ■| Fjárstyrkur sem nemur $1.00 á korðið verður gefinn kaup- mönnum fyrir allan söluhæfan eldivið sem samkvæmt samn- ingi hefir verið feldur fyrir 30. júní 1943 og er eign téðs kaupmanns þann dag. g The Coal Controller má, eftir því sem honum þykir henta, skipa fyrir um hluttöku flutningskostnaðar á eldivið, einkum þar sem kaupmenn,—til þess að fá birgðir,—verða að gera samninga um slíkt, utan þess héraðs sem þeir venjulega fá birgðir sinar frá. En til þess að fá þessa endurborgun, verða kaupmenn að fá leyfi hjá the Coal Controller áður en þeir gera samninga um slíkar birgðir. 9 The Coal Controller mun kaupa frá kaupmönnum, gegn því verði sem það hefir kostað þáyallan söluhæfan eldivið sem $1 fjárstyrkur hefir verið veittur til að kaupa og sem liggur ónotaður hjá þeim 31. maí 1944. ^ Foi’'gangsréttur verður gefinn til nauðsynlegs útbúnaðar. C Bændur, nú á jörðum sínum, en sem fara að heiman um stundar sakir að vinna að skógarhöggi samkvæmt þessari beiðni, verða álitnir af National Selective Service sem þeir séu að uppfylla sína venjulegu skyldu sem bændur, og halda fullum rétti um frestun á striðsskyldu sem þeirra atvinna nú innifelur. Samt má ekki slík fjarvera koma i bága við akur- yrkju framleiðslu. Sveitaráð, bœndur, eldsneytis kaupmenn, einstaklingar, greiðafélög og öll smœrri samtök í bygðum þar sem eldiviður er notaður, eru alvarlega beðnir að rannsaka ástandið sem fyrst og taka strax nauð- synlegar framkvœmdir að Iétta vandrœðunum. THE DEPARTMENT 0F MUNITIONS AND SUPPLY Honourable C. D. Howe, ráðherra W.F. 1

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.