Heimskringla - 17.03.1943, Síða 4

Heimskringla - 17.03.1943, Síða 4
4. SíÐA HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 17. MARZ 1943 Heimskringla fStofnuB 18SS) Kemur út á hverfum miBvikudegi. Eigendur: THE VIKINO PRESS LTD'. 853 og 855 Sargent Avenue, Winnipeg Talsimi: 86 537 Verð blaðsins er $3.00 árgangurinn, borgist fyrlrfram. Allar borfcnir sendist: THE VIKING PRESS LTD. öll vlðskifta bréf blaðinu aðlútandl sendist: Manager J. B. SKAPTASON 858 Sargent Ave., Winnipeg Rltstfóri STEFÁN EINARSSON Dltanáskrift til ritstjórans: EDITOR HEIMSKRINGLA 853 Sargent Ave., Winnipeg "Heimskringla" ls published and printed by THE VIKING PRESS LTD. 853-855 Sargent Avenue, Winnipeg, Man. Telephone: 86 537 WÍNNIPEG, 17. MARZ 1943 UM VÍÐA VERÖLD (Bogi Bjarnason, ritstjóri Treherne Times, skrifar greinar um margvísleg efni í Ibaði sínu, undir fyrirsögninni sem yfir þessari grein stendur. Ein slíkra greiria hans er hér þýdd og er skrifuð eftir að hann hafði heimsótt fylkisþing Manitoba). Eg lagði leið mína inn í áheyrendasal þingsins. Garson, sem bæði er forsætis- og fjármálaráðherra, var að lesa fjár- hagsáætlunina — skýra áheyrendum frá hvaðan nítján miljónir dala eða svo kæmu og hvert þær færu. Veldissprot- inn lá fagurskygður á borðinu, þingfor- setinn, sem segir ekki miera en hann má til, sat í bakháa stólnum að vanda; og sólonarnir, löggjafarnir, voru hver á sínum útvalda stað og leit út fyrir að vel færi um þá. Fyrir ofan þá sátu kon- ur svo skrautklæddar, að það minti mann á að maður væri í leikhúsi og litu yfir þingliðið eins og alvarlegur klerkur frá stóli sínum yfir söfnuð sinn. Á öllu var mesti hátíðisblær og friður. Eg kastaði tölu á þingmennina; þeir voru innan við fjörutíu og mun það góð þingsókn talin af fimtíu og fimm, sem þeir eru alls. Ekki virtust þeir heldur veita eins mikla athygli því er fram fór og við hefði mátt búast: víða töluðu tveir og tveir saman, aðrir komu og fóru. Einn háttvirtur þingmaður blund- aði og var að byrja að hrjóta, er sessu- nautur hans hnipti í hann. Forsætisráðherrann tók sig vel út í frakka Brackens, þó herðarminni sé en fyrirrennari hans. Frá hinum háu á- heyrendabekkjum séð, kom hann fyrir, sem gætinn maður ,er ekki mun hrapa að neinu, jafnvel þó hann játi að bein- ust lina milli tveggja staða sé sú styðsta. Þetta ber ekki ávalt vott um afburða- manns hæfileika, en það eru farsælar gáfur. í skjótu bragði mundi eg ekki segja að Mr. Garson, væri stjórnmála- maður á borð við fyrirrennara hans. En það verður um leið að taka með í reikn- inginn, að til þess að standa jafnfætis Bracken, skal nokkuð með þurfa. Það má enginn misskilja. Þingbekkirnir gætu frá mörgu sagt, ef talað gætu, sem aðrir hafa gleymt eða hafa aldrei vitað um. Það var einu sinni — eins og þjóðsögurnar segja — að á þeim sat maður, sem Major hét og var ekki dómari, þegar Stubbs var það, en sem nú er þar ekki og er dómari, þeg- ar Stubbs er það ekki. Þar var og einu sinni Clubb, sem nú er gætir hinna gló- andi veiga í Manitoba og sem senn mun eiga eftir að komast að því, hvað smygl- arar og leynisalar hafast að. Beint á móti þingforseta, situr eftirmaður Clubbs, Willis, ráðherra opinberra verka; hann spaugar þrátt við Farmer, sem við hlið hans situr en sem ekki hefir náð sér síðan hann og Bracken yfirgáfu sam- steypustjórnina. Farmer veit eflaust hvað hann vill, þó mér sé það dulið. Hvað Willis vill get eg heldur ekki gizkað á. Hann gagnrýndi áður alt sem stjórn þessa fylkis gerði og dró fátt undan. Nú hefir hann umsjón tveggja stjórnardeilda, sem að öllum líkindum gerir nokkurn mun. En tíminn flýgur og mennirnir með, hvort sem prentarar eru eða löggjafar; að koma og fara, það er sagan. Þó mörg gömul andlit megi enn líta á þingi, gömul í starfinu á eg við — þá eru samt nokkrir nýir. Einn þeirra er Thor- valdson, sem sjá sig mun um, ef honum er gefinn tími til þess. Hann er at- hyglisverðastur úr hópi yngri þing- manna. Hann hefir nokkuð við sig er aðrir hafa ekki. Þegar eg var kominn út aftur í svalan og á leiðina yfir að The Mall, leit eg til baka til þessarar hrúgu Kelly’s gamla, með gullstráknum hlaupandi eitthvað efst uppi á henni; mér flaug margt í hug og furðaði mig á mörgu. Eg hafði rétt heyrt Garson segja, að það kostaði okk- ur nítján miljón dali á ári, að halda gömlu stjórnarvélinni starfandi. Það nálgast að vera $30 á hvem þeirra 700,- 000 ibúa, sem í fylkinu eru, mann, konu, barn, aldraða, sjúka, fávita og alla, sem ekki geta fyrir sér unnið jafnt og aðra. Deildu því nú aðeins á þá, sem tekjur hafa og það verður dálagleg summa. Bættu svo við það sveita-útgjöldunum og til sambandsstjórnarinnar og þú munt hætta að furða þig á hversvegna við erum ekki ríkir. Það er ekki ómögu- legt, að þú spyrjir einnig, hvort okkur sé ekki óþarflega mikið og vel stjórnað. En eg má eins vel láta hér staðar nema. Að halda áfram að spyrja, er til lítils. — Það greiðir enginn af þeim sem okkur stjórnar atkvæði með því, að þeir séu óþarfir menn í þjóðfélaginu. Þú munt halda áfram að eiga þér heimili þar sem þú ert og þeir einnig. Það sama má segja um þá er skrifstofur hafa verið reistar fyrir í Ottawa. En þetta er alt mjög áhrifamikið og í vissum skilningi ánægjulegt, þrátt fyrir þó það sé ekki mikið meira virði til þín, en að líta á vörur í búðarglugga sem þú getur ekki keypt. Lýðræðis- stjórnskipulagið er oft þessu líkt. STANDLEY MÁLIÐ HJAÐNAÐ NIÐUR Það virðist skjótt hafa hjaðnað niður málið, sem Standley, sendiherra Banda- ríkjanna í Moskva, braut nýlega upp á, og var áklögun á Rússa fyrir að dylja al- menning í Rússlandi þess, að þeim kæmi nokkur hjálp í þessu stríði frá Banda- ríkjunum. Það gat vel risið óánægja út af þessu máli, en bæði Rússar og Banda- ríkjamenn tóku svo undir það i byrjun, að svo varð ekki. Rússar sögðu um hæl í blöðum sínum og útvarpi frá aðstoðinni frá Bandaríkjunum, eins og hún var sögð af umsjónarmanni leigulánsstarfsins i Moskva, og er haldið fram, að þeir hafi oftast gert það. 1 Bandaríkjunum virtist Sumner Welles, vara-ríkisritari, undir eins vilja gera lítið úr umkvörtun sendi- herrans, og neðri deild þingsins í Wash- ington samþykti um leið og mál þetta kom á dagskrá, með 407 atkvæðum gegn 6, frumvarp um að veita Rússum þá aðstoð á leigulánsskilmálunum sem fram var tekin. Þetta fór eins og það átti að fara. Rússar vita fullvel hver aðstoð þeim er að Bretum og Bandaríkjamönn- um í striðinu. Þeir vita og skilja vel hvað brezki flotinn á mikinn þátt í þvi, að Hitler er nú innilokaður og hvað mikið gott það eitt gerir bæði sér og öllum bandaþjóðunum. Þeir vita einnig full- vel, hvað Bandaríkin eiga mikinn þátt í þessu, auk hjálparinnar, sem þeir ausa ótakmarkað út til bandaþjóðanna í stríð- inu. Og Bretar og Bandaríkin vita það einnig vel, hversu erfitt þetta stríð hefði orðið þeim án hjálpar Rússa og sigur- vonin mesta og eina, er sú, að samvinna bandaþjóðanna haldist og eflist æ meir og meir, í stað þess að dvína. Allur kritur sem upp kemur milli bandaþjóðanna eins og Frakka út af Norður-Afríku, áður en henni er náð úr óvina höndum, og Pólverja vð Rússa út af landi þeirra ,sem Rússa kostar að sjálfsögðu mörg mannslíf enn áð ná úr höndum Þjóðverja, er Þjóðverjum að- einYtil skemtunar, en ekki til farsældar rekstri stríðsins, sém þó er fyrir öllu. UPPÞOTIN í FRAKKLANDI Alt frá hinum öríagaþrungna degi í júní 1940, að Frakkland féll fyrir Þjóð- verjum, hafa hinar frjálsu þjóðir heims- ins verið að vona að sjá einhver merki byitingar í Frakklandi. En nú eru ár liðin síðan og þess hefir orðið lítið vart. Síðustu tvær vikurnar hefir þó orðið breyting á þessu. Bardagar hafa orðið á götum Parísarborgar og nokkrir þýzkir foringjar verið drepnir í Frakklandi. Ef- laust verður ekki minna úr þessu gert en ástæða er til vegna þess sem áður er sagt. En að þama sé um svo öflug sam- tök eða sókn að ræða, að mikils megi af þvi vænta, munu þó margir efast. Bylt- ingin virðist fremur vera barátta ungra föðurlandsvina fyrir lífi sínu, sem Vichy- stjórnin eltir uppi, til að senda til Þýzka- lands og bíða nú ofsóknar af hennar hálfu og nazista. Ein ástæðan fyrir því, að Þjóðverjar vilja óðir fá þá til Þýzkalands, gæti ver- ið sú, að þeir óttuðust, að þeir yrðu bandaþjóðunum mikil stoð, ef innrás af þeirra hálfu ætti sér stað á meginland Evrópu. Erfiðleikar Vichy-stjórnarinn- ar og lögreglunnar, að fá unga menn til að fara til Þýzkalands, getur verið nokk- ur vottur þess, að samtök séu hafin, til að berjast gegn því. En að samtök þau geti að nokkru haldi komið, án aðstoðar frá innrásarher frá bandaþjóðunum til Frakklands, mun hæpð vera. Að mótstaðan er samt sem áður eins alavrleg og hún er, ber ótví- rætt vitni um það, að innrés frá banda- þjóðunum á vísa aðstoð nú þegar í Frakklandi og að sjálfsögðu á meðal annara undirokuðu þjóðanna í Errópu, ef skjótlega yrði komið við. CHROMIUM ER GÓÐ BEITA “Það mætti auðveldlega fullnægja þörfum alls heimsíns, úr þeim námum sem vér nú rekum.” Jemal Bey, námu- ráðsmaður Tyrklands, sagði þannig um tyrkneskt ohromium, þegar árleg fram- leiðsla þar var minni enn 30,000 tonn. Það var fyrir tuttugu árum; nú er fram- leiðslan tiu sinnum meiri, og þó ekki nægileg. Bandaþjóðirnar eiga í harðri sam- kepni við möndulþjóðirnar um þau 300,- 000 tonn af chromium sem nú er völ á. Tyrkland er hið eina land sem hefir það að bjóða, svo nokkru nemi. Bandaþjóð- irnar urðu óðar árið 1941 þegar Tyrk- land samdi við Þýzkaland um sölu á 90,000 tonna af því. En við þann þriðj- ung af nútíðar-framleiðslu sinni, höfðu Tyrkir hnýtt streng, sterkari en við varð búist; og enn, eftir fimtán mánuði, halda þeir fast í hann. Á meðan aðrar þjóðir brutu heilann um, hvað Tyrkir hefðu í hyggju, voru þeir í raun og veru á fiskiveiðum. Þeir ætluðu að veiða sér hergögn; og höfðu chromium til beitu. Ef nokkur fiskur er svo heimskur, að hann grípi hina glans- andi veltikúlu, í stað lifandi beitu, er það fiskinum sjálfum verst. Beitan er þá óskemd; og fiskimaðurinn getur notað hana aftur. Vitanlega gæti fiskurinn kipt svo fast í, að hann sliti sig lausan og færi með veltikúluna fögru; en van- ur fiskimaður er við því búinn. ★ Reyndur fiskimaður verður sjaldan stjórnmálamaður á Tyrklandi. Tyrk- neskir stjórnmálamenn, kunnugir Bret- um og Þjóðverjum, gerðu verzlunar- samþykt Tyrkja og Þjóðverja árið 1941. Vandamálið um chromium lét fyrst á sér bera þegar Þjóðverjar réðust á Rúss- land. Hinir brezku bandamenn óttuð- ust, að hin forna vinátta Tyrkja og Þjóðverja, og hið forna hatur Tyrkja á Rússum, myndi skjótt láta á sér bera, og að Tyrkir myndu aðstoða Þjóðverja í viðureign þeirra við Rússa, að minsta kosti á allan þann hátt, sem ekki út- heimti samhernað. En þó Bretar óttuð- ust um staðfestu Tyrkja, á þeim tíma, voru Tyrkir í engum efa um Breta. Þeir vissu, að með tilliti til þeirrar aðstoðar sem Rússar þörfnuðust frá bandaþjóð- unum, myndi Bretum verða enn erfiðara en fyr, að láta sér í té, eimreiðar, vélar, hergagnaefni, lyf og annað sem þeir höfðu mikla þörf fyrir. Hvernig gátu þá Tyrkir leyst úr þess- um þrefalda vanda, að bregðast ekki loforði sínu við Breta, bandamenn sína, að styrkja ekki Þjóðverja og þó að fá þann varning, sem Bretar gátu ekki af hendi látið, en Þjóðverjar gátu veitt, að minsta kosti að nokkrum hluta? Banða- ríkin, sem þá voru ekki komin í striðið, en voru þá þegar hergagnabúr þingræð- isþjóðanna, voru þá ásamt Bretlandi að reyna að ná haldi á allri chromium- framleiðslu Tyrkja; höfðu í raun og veru gert samning um hana til ársloka 1942. Bandaríkin hertu þá enn meira að hnútunum við Tyrkland, stjórnmálalega; og bar það þann árangur, að engin við- skifti gerðust við Þýzkaland. Enginn getur þó hindrað Tyrki frá fiskiveiðum, með chromium sitt í beitu. þeir kasta sínum 90,000 tonnum, ef ekki beint til Þýzkalands, þá að minsta kosti í þá átt. Vera má, að engan nema þá sjálfa hafi grunað hvað sá strengur er sterkur, sem við þau er bundinn. ( ★ Þjóðverjar áttu að láta Tyrkjum í té hinn nauðsynlega járn- og stálvarning, eimreið- ar, vélar, lyfjaefni, eir, kopar, pappír og gljákvoðu, tafar- laust. Jafnframt áttu Tyrkir, áður en samningar þeirra við Bretland og Bandaríkin féllu úr gildi, að greiða margskonar varning, þar á meðal húðir, hör, baunir, aldini, tóbak, njarðarvetti og ýmsa málma. Árið 1943 átti greiðslan að vera innifalin í vissri upphæð af chromium, þó með skilyrði, — og í því geymdist aflið sem enn hélt chromium í höndum Tyrkja. Skilyrðið var, að chromium yrði afhent Þjóð- verjum árið 1943, því aðeins að þeir hefðu, fyrir árslok 1942, afhent innan tyrkneskra landa- mæra þar sem það yrði rann- sakað áður en því yrði viðtaka veitt, 18 miljón tyrkneskra líra virði af hergögnum. Nú er meira en mánuður lið- inn frá nýári; og Þjóðverjar hafa enn ekki lokið þeim af- hendingum. Tyrkir eru þess vegna þvínær reiðubúnir til að draga upp sína dýrmætu beitu. Ef þeir geta ekki gint Þjóð- verja til að láta af hendi eitt- hvað annað, sem þeir eiga ekki kost á annarstaðar, er eins líklegt að þeir fari að fiska á öðrum miðum. Bandaþjóðirn- ar gefa gætur að því sem ger- ist; og þær eru reiðubúnar til að taka beituna og borga vel fyrir hana. Ef vér getum opn- að skipum vorum leið um Mið- jarðarhafið, fáum vér gott tækifæri til að senda Tyrkjum þau gögn, sem þá vanhagar mest um. —Þýdd af B. Th. SANTA BARBARA Eítir Rannveigu Schmidt Hún ber af öðrum smábæj- um á Kyrrhafsströndinni eins og ljón af hundi hún Santa Barbara. Hér er gott að ala aldur sinn, segjum við hvert við annað, og við prísum okk- ur sæl, að því hagaði svo til, að við getum ílengst hér. . . Það er altaf sumar í Santa Barbara. Hæðirnar i baksýn eru svo fagrar og grænar, blómgarðarnir í kringum hús- in svo fullir af yndislegum blómum . . . já, í febrúar mán- uði . . . appelsínurnar hanga gular og glitrandi á trjánum og pálmamir standa tígulegir meðfram breiðum strætunum. Hafið tekur okkur opnum örmum, ef okkur langar til að synda og sólin skín og vermir á hverjum einasta degi. . . Bærinn Santa Barbara ber nafn af dóttur Dioscorusar hins rómverska; hann hjó hana banahöggi þegar hún tók kristna trú, en í helgisögunni segir, að þegar sverð föðursins snerti höfuð dótturinnar, þá kom elding af himnum ofan og drap morðingjann. Santa Bar- bara er sérstaklega dýrlingur skipa og verndar þau fyrir eldingum, að því er kaþólskir trúa. Fyrir hálfri öld síðan færðu spánskir grámunkar og aðals- menn spánskar siðvenjur til Samta Barbara . . . “þeir fundu hér fagurt land og gróðursettu hér lifnaðarhætti Spánar”, segja túristabæklingarnir. — Þessir Spánverjar bygðu hina fögru og nafntoguðu Santa Barbara Mission árið 1786, en þessari “mission” eða kirkju hefir verið betur haldið við en öllum hinum gömlu kirkjunum í Californíu. í fy^stu var kirkj- an í miðju Rauðskinna-þorp- inu, umkringd af 250 “adobe”- húsum (adobe-byggingarstíll- inn er gamli spánski stillinn). Spönsku trúboðarnir voru ekki eingöngu kennarar Rauðskinn- anna, heldur voru sumir þeirra listamenn og byggingameist- arar. Þeir kendu Rauðskinn- um ýmsar listir og má enn sjá þess mer-ki í kirkjunni og um- hverfi hennar. í kirkjunni sjálfri eru mörg fögur lista- verk, sem kaþólsku prestarnir höfðu með sér frá Spáni og kirkjan hefir altaf verið -mið- depill alls þess, sem fram hefir farið í bænum. Gömlu kirkju- klukkur-nar hringja svo skært enn þann dag í dag, en í kring- um kirkjuna er stór og fagur garður og má þar oft sjá presta og munka í siðum, dökkum kuflum. 1 bænum heyrum við spön- sku talaða álíka mikið og ensku, því þetta má kalla hálf- spánskan bæ. Oft sjáum við fallegar stúlkur með kolsvart hár og dökkan hörundslit og það er hægðarleikur að flytja þær í hu-ganum til Sevilla eða Madrid og sjá þær í anda með háa kamba í hárinu og biakt- andi “mantillur” . . . eða við mætum gömlum, tígulegum manni með fyrirmannlega and- litsdrætti og tindrandi augu . . . hann litur nákvæmlega eins út og við höfum altaf hugsað okkur spánskan “granda”. Flestar göturnar heita spönskum nöfnum og reynum við aðskotadýrin að béra þau fram á réttan hátt . . . Canon Perdido t. a. m.; um þá götu eru þau munnmæli, að þar stóð fallbyssa, sem rak á land af strönduðu skipi, en svo hvarf fallbyssan á dularfullan hátt og bæjarbúar voru dæmdir til að borga stjórninni 500 dali fyrir bragðið, en þetta þótti mikil skömm í þá daga. . . De La Guerra heitir ein gatan, en Don Pablo de la Guerra var einn af frumbyggjendunum, spáinskur höfðingi. Margir af- komendur hans eiga hér enn heima og eru ákaflega stoltir af ættimni... Carrillo (Carijo)- gatan dregur nafn af Caríllo ættinni; einm afkomandi henn- ar er filmleikarinn Leo Carril- lo. .-. De La Vina — þar var vingarður í gamla daga. . . Anapamu heitir eftir nafntog- uðum Rauðskinna . . . Michel- torena . . . Montecito . . . það er músik í þessum nöfnum. . . En áður en lengra fer má eg tll að segja ykkur frá því, hvað Santa Barbara er gestrisinn bær. Snemma morguns er barið að dyrum hjá okkur og inn kem- ur fríð og velbúin kona, sem segist vera send af verzlunar- ráði bæjarins, til þess að bjóða okkur velkomin til Santa Bar- bara. Hún gefur okkur kort yfir bæinn og nágrennið, segir sögu staðarins í stórum drátt- um, rausar upp nöfnum á ótal frægum mönnum og konum, sem eiga hér heimili og koma hiingað nokkra mánuði á ári hverju, til þess að hvila sín lúin bein og njóta sólarinnar og fegurðarinnar. T. a. m, ríku Vanderbilt- og Gould-fjölskyld- urhar, Toscanini hinn guðdóm- legi og söngkonan Lotte Leh- man-n, fyrir nú utan allar film- stjörnurnar, sem hér eiga sinn friðarhimin, 100 enskar milur frá Hollywood. Filmleikarinn Ronald Colman á hér jörð (ranch), sem hann hefir gert að einskonar gististað, en sjálf- ur á hann heima með konu sinni í einu hús-inu á jöi'ðinni. En nú kemur frúi-n okkar að aðalefni heimsóknarinnar. — Ýmsar verzlanir bæjarins bjóða okkur viðskifti . . . og dregur hún upp boðskort frá þessum verzlunum öllum .. . og svo kveður hún með beztu ósk- um um farsæld í Santa Bar- bara. Við förum að athuga kortin. Og við heimsækjum sumar verzlanirnar . . . allar gefa þær okkur eitthvað. Ný-

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.