Heimskringla - 17.03.1943, Side 8

Heimskringla - 17.03.1943, Side 8
8. SIÐA HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 17. MARZ 1943 FJÆR OG NÆR MESSUR 1 ÍSLENZKU SAMBANDSKIRKJUNUM Messur í Winnipeg Umræðuefnið við kvöldguðs- þjónustuna n. k. sunnudag verður “Trúfrelsi grundvöllur alls frelsis”. Við morgunguðs- þjónustuna samkvæmt sér- stakri beiðni, verður haldin minningarathöfn lík þeirri sem fram fór í Westminster Church hér í bæ i fyrra, í minningu um J. S. Woodsworth, á dánar- afmæli hans. Aðal ræðumað- ur verður Rev. Lloyd C. Stin- son. Hann tekur sem umræðu- efni sitt, “Woodsworth, Cru- sader for Social Justice.” Hann verður aðstoðaður af presti safnaðarins. ★ ★ ★ Messa i Árborg Messað verður í Sambands- kirkjunni i Árborg 21. þ. m. kl. 2 e. h. ★ ★ ★ Gifting Þriðjudaginn, 9. þ. m., voru gefin saman að heimili séra Philip M. Pétursson, Arthur Van Vogt og Guðný Rebecca Árnason, dóttir Helga Árna- sonar og Sigríðar Guðjónsdótt- i ROSE THEATRE q ---Sargent at Arlington- I Mar. 18-19-29—Thur. Fri. Sat. | George Formby | “IT TURNED OUT NICE” 1 Lynn Bari—Joseph Allan Jr. § “Night Before the Divorce” | Mar. 22-23-24—Mon. Tue. Wed. | GENE TIERNEY WALTER HUSTON | “SHANGHAI GESTURE” Hafið þér Fengið yðar? EATON’S Nýja 1943 Vor og Sumar Vöruskráin Hefir nú verið send út. Ef þér hafið ekki fengið eintak þá skrifið oss, og hún verður send strax. Verzlið í EATON'S Vöruskrá "Vörubúð milli spjaldanna" ^T. EATON C?— EATON’S Dick Foran—Anne Gwynne “MOB TOWN” ur, konu hans. Þau voru að- stoðuð af Mrs. Edna M. Tum- er og H. A. Van Vogt, bróður brúðgumans. Framtíðarheimili þeirra verður í Winnipeg. ★ ★ ★ Edwin T. Goodmundsson, fyrrum frá Elfros, Sask., en nú í Royal Canadian Corps of Sig- nals í Canadadiernum í King- ston, Ont., kom til bæjarins 5.1. mánudagsmorgun. Hann hélt austur aftur í gærkveldi. ★ ★ ★ Winnipeg-fréttir Félag suður í Chicago, sem verið hefir að rannsaka hvern- ig hægt sé að verjast því að hús flæði full í hverri rigningu, sem drottinn gefur, í Winnpeg, hefir lokið athugunum sínum. Viðgerðin sem þessu er sam- fara kostar 5 miljón dali. Ráð- legging sérfræðnganna í Chi- cago kostar $3,800. Áður en stóra lokræsið var gert, sem kostaði 4 miljónir(?), bar aldrei á flóðum. Ef vatnið fær að renna skemstu leið í ána eins og áður, er öllu borgið. Og hversvegna má ekki nota þau lokræsi í verstu rigningum nú? Það getur varla kostað nein ósköp, ef lokræsi þau hafa ekki verið meira og minna eyðilögð að gamni sínu eða af fávitaskap, og þessi ráðlegging kostar ekkert. ★ ★ ★ 1 Winnipeg snjóaði svo mikið tvo fyrstu daga þessarar viku, að kvenfólkið komst ekki niður til Eaton’s. ★ ★ ★ Frá Lundár Fjársöfnun til Red Cross gengur hér vel. 1 þorpinu er tillagið orðið yfir $300.00 . Og utan úr bygðinni hefir einn hefðarbóndi, Guðjón Rafnkels- són, sent $50.00 frá sínu heim- ili, og aðrir bændur eru að bregðast rausnarlega við kvöfl- ICELANDIC CANADIAN CLUB BRIDGE AND DANCE I. O. G. T. HALL. TUESDAY MARCH 23. 1943 Commencing 8:00 p.m. — Refreshments Proceeds to Jón Sigurdsson Chapter I.O.D.E. 35tf per person um líknarfélagsins. Sökum snjóþyngsla getur nefndin hér, GEFIÐ,» Rauða Kross Canada + $10,000,000 þarf til framhalds mannúðarstarfseminni. —bögglasendingar til herfanganna, sjá fyr- ir blóðefnum handa þeim særðu og hjálpa sjúkum, klæðlausum og hungruðum. Þessi auglýsing er birt af . . . . CITY HYDRO - eigi heimsótt bygðarfólk en treystir að hvert einasta heim- ili í Coldwell-svjeit leggi af mörkum eftir fremstu ástæð- um í þetta umfangsmikla mannúðarstarf. Nefndarmenn: W. F. Breckman, skrifari; D. J. Lindal, forseti; A. F. Eyjólfs- son, féhirðir. ★ ★ ★ Mrs. J. J. Sneddon (Unnur), frá Toronto, Ont., kom til bæj- arins í síðustu viku til áð vera viðstödd jarðarför móðursyst- ur sinnar, Mrs. A. I. Blöndahl. Hefir hún dvalið með foreldr- um sínum síðan, Mr. og Mrs. Ágúst Sædal, 669 Simcoe St., en fer heim i enda þessarar viku. ★ ★ ★ Jón Sigurdson Chap. I. O. D. E. Jóns Sigurðsonar félagið heldur sitt árlega spilakveld í fundarsal Sambandskirkju á afmælisdegi sínum laugardags- kveldið 20. marz. kl. 8.30 e. h. Dregið verður um tvo happa- drætti, sem félaginu hafa verið gefnir. Góðir prísar fyrir Bridge-spil. Veitingar. ★ ★ ★ Gjafir í blómasjóð sumarheim- ilis ísl. barna að Hnausa, Man.: Mr. og Mrs. Ingimundur Sig- urðsson, Lundar, Man. . $5.00 i minningu um mjög kærkom- in vin þeirra hjóna, séra Guð- mund Árnason. Meðtekið með samúð og þökk Emma von Renesse Arborg, Man ★ ★ Laugardaginn 6. febr. lézt að Weyburn, Sask., Guðbrandur Guðbrandsson á áttræðisaldri fæddur áð Hólmlátri á Skógar strönd í Skaftafellssýslu í okt 1869. Foreldrar hans vóru þau Guðbrandur Guðbrandsson og Lilja ólafsdóttir, búandi að Hólmlátri. Hann skilur eftir systur hér í landi og skyld- menni önnur. Guðbrandur var greftraður í grafreit Weyburn bæjar. ★ ★ ★ Viltu leiðrétta í blaðinu prentvillu, sem stendur í ræð- unni minni eftir séra Guðmund. Þar stendur: dansa við hel- grindur, en á að vera: stansa við helgrindur. E. J. M Matreiðslubók Kvenfélags Fyrsta lúterska safnaðar í Winnipeg. Pantanir sendist til: Mrs. E. W. Perry, 723 Warsaw Ave.; Mrs. E. S. Feldsted, 525 Dominion Street. /erð $1.00. Burðargjald 5«. ★ ★ ★ Ort 15. marz 1943 Fimm og tvö hefi fetað ein fótmál gegnum húmið. Eg er að verða alt of sein í efra hvílurúmið. Finst mér árin 5 og 2 feykt mér hafi um þýfið. Nú er eg orðin 77— svona gengur lífið. —Yndo ★ ★ ★ Lúterska kirkjan í Selkirk Sunnud. 21. marz: Sunnu- j dagaskóli kl. 11 f. h. Ensk messa kl. 7 e. h. Allir boðnir velkomnir. Áætluð messa í Gimli presta- kalli sama dag: Gimli kirkju, kl. 2 e. h. S. Ólafsson. Laugardagsskólinn heldur lokasamkomu sína 17. apríl n. k. Fjölbreytt skemti- skrá er í undirbúningi. Árið- andi er að börnin sæki hvern einasta laugardag sem eftir er af skólaárinu, og komi stund- víslega. Hafið 17. april i huga! Engan mun iðra þess að sækja hina íslenzku samkomu barnanna. ★ ★ ★ Jósep Hóseasson frá Mozart, Sask., hefir dvalið í bænum um viku tíma í heimsókn hjá skyldmennum og vinum. ★ ★ ★ Bcekur til sölu á Heimskriuglu Endurminningar, 1. og II. hefti, alls 608 blaðsíður, eftir Friðrik Guðmundsson. Verð upphaflega $2.50, báðar bæk- urnar; nú $1.00. * * Hetjusögur Norourlanda, um 200 blaðsíður að stærð, eftir Jacob A. Riis. Islenzkað hefir Dr. Rögnvaldur Pétursson. — Verð 35c. ★ ★ ★ Hið eldra kvenfélag Fyrsta lúterska safnaðar hefir áform- að að standa fyrir “Food Dem- onstration” sem haldin verður i samkomusalnum í kirkjunni á fimtudaginn 18. marz, kl. 2.30 e. h. undir umsjón Miss Dor- othy Falconer. Það þarf ekki að skýra nákvæmar frá þess- ari samkomu því konum er al- kunnugt um hvernig þeim er háttað. Og þar sem nú eru erfiðir timar fyrir húsmæður, verður, óefað gaman að heyra hvaða ráð Miss Falconer legg- ur fram til að auka og efla starf húsmæðra. öllum kon- um er boðið, yngri og eldri, og eru þær beðnar að hafa með sér 15f sem tillag til kvenfé- lagsins. Veitingar framreidd- ar af Miss Falconer. Fjöl- mennið. M. S., fyrir hönd kvenfél. Lótið kassa í Kœliskápinn WvmoLa m GOOD ANYTIME ÚR ÖLLUM ÁTTUM Frh. frá 1. bls. J. C. Fernand-Laurent, þing- maður i Frakklandi um langt skeið og ritstjóri Paris Jour, segir Þjóðverja svo fáa í Frakk- landi nú, að þeir mundu ekki' geta veitt innrás mikið við- nám. Fernand-Laurent er nú í heimsókn í Washington. Ilann sagði blaðinu Evening Star, að tíminn fyrir innrás væri nú, eða aldrei, vegna þess, að þjóð- in liði hungur. Frá Dieppe-innrásinni í ág. 1942 og til síðustu árásarinnar í Suður-Rússlandi, hefðu Þjóð- verjar haft um 30 hersveitir i Frakklandi eða um 450,000 menn. Nú væru ekki einn sjötti þeirra í Frakklandi. “Eg átti heima á Miðjarðar- hafsströndinni nokkrar vikur áður en eg fór frá Frakklandi fyrir þrem mánuðum,” sagði Fernand-Laurent. “Það hafði ekkert verið gert til varnar þar >á og er ekki enn. Þjóðverjar verða að fá frakkneska verka- menn til alls, og það verður ekkert ofgott að fá þá til að víggirða ströndina.” - Anthony Eden, utanríkisráð- herra Breta kom til Banda- ríkjanna s. 1. föstudag. Erindi hans kvað vera, að ræða við Bandaríkin um fund, er allar stjómir bandaþjóðanna taki þátt í og haldinn verði í Banda- ríkjunum. Á fundinum á bæði að ræða um hvað hafast skuli að í stríðinu og að þvi loknu. Fréttinni fylgir, að Eden muni heimsækja Canada. ★ ★ ★ Það var á orði í New York s. 1. föstudag, að La Guardia, borgarstjóri, væri liklegur tii að vera gerður að stjórnara í Lybíu í Norður-Afríku og ný- lendum henni tilheyrandi. — Fregnritar hafa komist að því, að hann hafi verið að líta eftir sex mönnum að taka með sér til fararinanr. ★ ★ ★ Útvarpið i Paris flutti þá frétt s. 1. mánudag, að brezkir og bandarískir fangar í Þýzka- landi yrðu teknir af lífi i hefndarskyni fyrir sprengjuá- rásir Breta eða bandaþjóðanna á þýzkar borgir. ★ ★ ★ Til þess að spara sem allra mest og með því hjálpa til að vinna striðið, á að stytta eld- spýtur um helming, sem hér eftir verða búnar til í Banda- rikjunum. ★ ★ ★ Hermálaráðherra Bandaríkj- anna, Henry Stinson, segir 8,200,000 menn í her Banda- ríkjanna, sem ekki sé lítið, en hinu megi samt ekki gleyma, að her óvinaþjóðanna sé um 17 miljónir. Telur hann 14 miljónir vera í Evrópu, en 3 í Japan. Her Rússa og Breta telur hann mimni, en Evrópu- her óvinanna. Þjóðverja segir hann hafa 300 hversveitir, ítali 80 og um 80 frá öðrum Evrópu- þjóðum. Hersveitir Japa séu 86. ★ ★ ★ J. P. Morgan “hinn yngri” sem var þó orðinn 75 ára gam- all, og einn af þremur sonum auðmannsins mikla, með sama nafni, lézt s. 1. laugardag á sjúkrahúsi í Boca Grande, Fla., í Bandaríkjunum. Var hinn nýlátni loðinn um lófana, átti persónulega um 500 miljónir dala, en var auk bankarekst- urs síns, meðstjórnandi 89 stofnana, er fjárráð höfðu er námu 20 biljón dölum til sam- ans. Hann skilur heiminum dálitið eftir. ★ ★ ★ John Curtin, forsætisráð- herra Astralíu, sagði s. 1. mánu- dag í ræéu er hann hélt I sam- bandi við 300 miljón dala lán- töku, sem hafin er af stjórn MESSUR og FUNDIR í kirkju Sambandssainaðar Prestur, sr. Philip M. Pétursson 640 Agnes St. Sími 24 163 Messur: á hverjum sunnudegi Kl. 11 f. h. á ensku Kl. 7 e. h. á islenzku. Safnaðarneíndin: Fundir 1. föstudag hvers mánaðar. Hjálparnefndin: Fundir fyrsta mánudagskveld. í hverjum mánuði. Kvenfélagið: Fundir annan þriðjudag hvers mánaðar, kl. 8 að kveldinu. Ungmennafélagið: Yngri deild — hvert sunnudagskveld kl. 8.30. Eldri deild — annað hvert mánudagskveld kl. 8.15. Skátaflokkurinn: Hvert fimtu- dagskveld. Söngcefingar:- íslenzki söng- flokkurinn á hverju fimtu- dagskveldi. Enski söngflokkurinn á hverju föstudagskveldi. Sunnudagaskólinn: Á hverjum sunnudegi, kl. 11 f. h. ÞJóÐRÆKNISFÉLAG ÍSLENDINGA Forseti: Dr. Richard Beck University Station, Grand Forks, North Dakota Allir Islendingar í Ame- ríku ættu að heyra til Þjóðrœknisfélaginu Ársgjald (þar með fylgir Tímarit félagsins ókeypis) $1.00, sendist fjármálarit- ara Guðmann Levy, 251 Furby St., Winnipeg, Man. C E LT U C E NÝRJARÐ- ÁVÖXTUR Hinn ágætasti fyrir garða i Canada. — Spónnýr. Að notkun og bragði sambland af celery og lettuce. Hrár Celtuce er not- aður sem celery. — Soðinn lítur hann vel úr og er mildur á bragð, sem minnir í senn á celery, let tuce, asparagus, broccoli, eða sum- __ _ mer squash. Vex á 90 dögum hvar sem er. Við sendum fullkomnar reglur fyrir sáningu og notkun. Farðu ekki þessa nýja á- vaxtar á mis. Yfir 130,000 garðyrkju- menn voru ánægðir með hann 1942. (Pk. 250 sœði 15$) (2 pk. 25$) (i/2 oz. 65$) (oz. $1.25) póstgjald greitt. FRÍ—Ný, stór 1943 útsœðis og rœkt- unarbók—Betri en nokkru sinni fyr. DOMINION SEED HOUSE GEORGETOWN, ONTARIO hans, að Bismarck sjávar árás- in ein, hefði kostað yfir 5 milj. dali. Skipatap Japana sagði hann hafa numið 32 miljón dala. Þetta er gott sýnishorn af hvað hernaður kostar. H. F. EIMSKIPAFÉLAG ISLANDS AÐALFUNDUR Aðalfundur HlutMélagsins Eimskipafélags Islands, verður haldinn í Kaupþingssalnum í húsi félagsins í Reykjavik, laugardaginn 5. júní 1943 og hefst kl. 1 e.h. D A G S K R Á : I. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og fram- kvæmdum á liðnu starfsári, og frá starfstil- högununni á yfirstandandi ári, x>g ástæðum fyrir henni, og leggur fram til úrskurðar end- urskoðaða rekstursreikninga til 31. des. 1942 og efnahagsreikning með athugasemdum end- urskoðenda, svörum stjórnarinnar og tillögum til úrskurðar frá endurskoðendum. 2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skiftingu ársarðsins. 3. Kosning fjögra manna í stjórn félagsins, í stað þeirra sem úr ganga samkvæmt félagslögun- um. 4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess er frá fer, og eins vara-endurskoðanda. 5. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp kunna að verða borin. Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða. Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hlut- höfum og umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu fé- lagsins í Reykjvík, dagana 2. og 4. júní næstk. Menn geta fengið eyðubloð fyrir umboði til þess- að sækja • fundinn á aðalskrifstofu félagsins í Reykjavík. Reykjavík, 22. janúar 1943. STJÓRNIN.

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.