Alþýðublaðið - 20.05.1960, Síða 2

Alþýðublaðið - 20.05.1960, Síða 2
 t Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. — Framkvæmdastjóri: Ingólfur Kristjánsson. 1 — Ritstjórar: Gísli J. Ástþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — Fulltrúar Í" vitstjórnar: Sigvaldi Hjálmarsson og Indriði G. JÞorsteinsson. — Fréttastjóri: | Bjbrgvin Guðmundsson. — Símar: 14900 — 14902 —14 903, Auglýsingasími: | ^4906. — Aðsetur:'Alþýðuhúsið. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. Hverfis- | flata 8—10. — Áskriftargjald: kr. 45,00 á mánuði. í lausasölu kr. 3,00 eint. Hættan í Berlín ■i t i 1 Auku heimsins beinast nú frá París til Ber- ’iínar. Það er ekki tilviljun, að Krustjov hefur farið þangað, eftir að honum tókst að eyðileggja stór- veidafundinn. Næsta skref hans er að halda úti- fund í Austur—Berlín. í lok síðustu styrjaldar skiptu Vesturveldin <og Sovétríkin Þýzkalandi í fjögur hernámssvæði. Berlín er á hemámssvæði Rússa, en borginni var sérstaklega skipt í fjóra hluta. Samgöngur við borg ‘ina hafa Vesturveldin yfir rússneska svaeðið. Nú hafa þrjú hernámssvæðin að vestanverðu sameinast í Vestur-þýzka sambandslýðveldið, en eystra hernámssvæðið er alþýðulýðveldi að kom- múnistískum sið. Vesturveldin viðurkenna ekki þefcta austur-þýzka ríki. Hins vegar er Berlín kommúnistum mikill þyrnir í augum. Hún er eins og vinjar frelsis á eyðimörk kommúnismans, biomstrar með hraðbatnandi lífskjörum og frelsi Iborgaranna. Þetta þola kommúnistar ekki. Þess vegna hef- •<ur Krustjov beint athyglinni að borginni og talið stoðu hennar óþolandi. Hann neitar að sameina allt Þýzkaland í eitt ríki með frjálsum kosningum, ©n krefst þess, að Berlín verði gerð að sjálfstæðu borgríki, og setulið bandamanna hverfi þaðan. Kom múnistar mundu fljótlega leggja það borgríki ’Uíidir sig. Krústjov tilkynnti á hinum sögulega blaða- mannafundi í París, að Sovétríkin mundu gera sjálfstæða friðarsamninga við Austur—Þjóð- verja. Þetta þýðir, að austur—þýzka leppríkið, sem vesturveldin ekki viðurkemia, fær vald yfir samgönguleiðum til Vestur—Berlínar. — Þannig ætlar Krustjov að knýja Vesturveldin til að krjúpa á kné, viðurkenna Austur—Þýzka- land og semja við það, en staðfesta þannig skiptingu Þýzkalands. Þetta væri mikið áfall fyrir Vesturveldin og stórt skref í áttina til uppgjafar í Vestur^-Berlín. Ef Krústjov gerir alvöru úr hótunum sínum, er hann vísvitandi að dansa á barmi styrjaldar. Hann er að setja Vesturveldin í þann vanda, að þau verði til að halda opinni samgönguæð til V- Berlínar. Þetta er sú spenna, sem verið hefur um Berþn, og getur nú orðið uggvænlegri en áður. Eina skynsamlega leiðin væri samkomulag rnLííi Vesturs og Austurs um að sameina Þýzka- Ipid í eitt ríki, og leyfa Þjóðverjum að kjósa sér stjórn undir eftirliti Sameinuðu Þjóðanna, svo að íryggð verði frjáls kosning. En slíkt hentar ekki tllgangi Sovétríkjanna.. Frekar en að velja þessa áugljósu leið, nota kommúnistar Þýzkalandsmálið til að halda kalda stríðinu áfram — þótt það kosti siíöðuga hættu á kjamorkustyrjöld. Hvað líður endurskoðun laga um verkamanna- bústaði? ÞAÐ er kunnara en frá þurfi að segja, að lögin um verka- mannabústaði eru löngu úrelt orðin. T. d. er útborgun, sem krafizt er, miklu hærri en verkamenn almennt eiga nokk- urn kost á að inna af hendi. Benedikt Gröndal hefur bor- ið fram á alþingi fyrirspurn um það, hvað líði störfum nefndar, sem þáverandi félags- málaráðherra, Hannibal Valdi- marsson, skipaði 20. des. 1958 til að endurskoða lög nr. 36 frá 1952, um opinbera aðstoð við byggingar íbúðarhúsa í kaupstöðum og kauptúnum. Má búast við, að núverandi félagsmálaráðherra, Emil Jóns- son, svari fyrirspurninni á næsta fundi Sameinaðs alþing- is, sem væntanlega verður á miðvikudaginn kemur. Minning Byrds steypa hana í eir, á Byrd, eins og hann sér mikla frægð fvi ÞETTA er mnnismerki um Richard Byrd aðmírál, hins kunna landlcönnuðar og pól- arflugmanns. Listamaðurinn, sem verkið hefur gert, Felix de Weldon sést líka ál myndinni'. Hann er að verða búinn með sjálfa frummyndina, en þegar búið er að að setja hana upp í Virginiu. Myndin sýnir var á fertugsaldri, en um það leyti gat hanh ir flug sitt um heimskautalöndin. t annes h o r n i n u Verðlagseftirlitið er ekki nógu strangt. ■jíf Eitt dæmi af mörg- um. Hvers vegna eru verð merkingar í búðar- gluggum hættar? ) NAUÐSYNLEGT ER að verð- íagseftirltið sé víðtækt og áhrifa mikið. Fólk kvartar um að það sé ekki nógu starfsamt. Garð- ræktarunnandi skrifar mér um þetta og segir dæmi. Hann segir: ,,Ég hef undanfarin sumur átt í dálitlum erfiðleikum með blett- inn minn. Ég hef reynt að þétta grasið, en það hefur gengið erf- iðlega. Nú var mér ráðlagt að gera tilraun með að sá grasfræi í blettinn og við það myndl hann þéttast. ÉG FÓR ÞVf á stúfana til þess að kaupa fræ. Ég fór í Flóru Austurstræti og spurðist fyrir um það. Ég gat ekki fengið nema stóran poka og hann kostaðj sjö- tíu krónur. Mér þótti þetta mikið og taldi víst að mér mundi duga minni poki, en hann fékkst ekki í Flóru. Ég fór því í aðra búð. Þar fékk ég helmingi minni poka fyrir tuttugu og fimm krónur. ÉG VEIT EKKI hvað þessir pokar hafa kostað í Flóru, en stóru pokarnir fengust líka í þessari búð — og beir kostuðu fimmtíu krónur. Þarna munaði tuttugu krónum á pokanum og þykir mér það furðulegur verð- ■mismunur. Nú langar mig að spyrja: Selur Flóra grasfræ í stórum pokum langt yfir verði, eða selur hin búðin sitt grasfræ á innkaupsverði? “ ÞÁ SKRIFAR IIULD á þessa leið: „Einu sinni var sú fyrir- skipun gefin út að verzlanir skyldu hafa í gluggum sínum verðmerktar vörur svo að fólk gæti fyrirfram vitað hvað vör- urnar kostuðu og mun tilgangur- inn einnig hafa verið sá, að reyna að koma í veg fyrir dag- þessu, að minnsta kosti allir þeir stærstu, en það stó# aðeins skamma stund. NÚ ER SVO ICOMIÐ, að þessu er að mestu leyti hætt. Nú sjást varia verðmerktar vörur í glugg unum. Hvernig stendur á þessu? Er það nokkuð óhagkvæmara fyrir kaupmennina að auglýsa þannig verð á vörum sínum fyr- ir opnum tjöldum? Er þetta mik il aukavinna fyrir verzlunarfólk ið? Eða er þetta gert til þess að reyna að halda uppi dagprísum? MÉR ÞÆTTI VÆNT UM að fá þessu svarað, því að hér er um mikið hagsmuna- og áhugamál alls almennings að ræða. Um leið er nauðsynlegt að svara því, hvort gefin hefur verið út nokk- ur reglugerð um þetta, þannig að kaupmönnum sé skylt að hafa vörur sínar verðmerktar í glugg unum eða ekki. Ef svo er, þá verður að áfellast verðlagseftir- litið fyrir að sjá ekkj betur um bað að þeir haldi fyrirskipaðar reglur en raun er á. Ef reglu-' gerð eða lögleg fyrirskipun ep. ekki til um þetta, þá álít ég sjálfsagt að sett verðj reglugerð um það.“ li ÞAÐ ER RÉTT að hér er umi hagsmunamál almennings að ræða. Ég skil ekki hvers vegnai kaupmenn hafa nú aftur hætfi við verðmerkingar. Það værl sannarlega gott að fá upplýsing-i ar um beRa mab prísa. Kaupmenn fóru eftir, samkeppni DAGBLAÐIÐ New York Her ald Tribune mun á næsta ári eins og að undanförnu bjóða framhaldsskólanemendum frá ýmsum löndum, einum frá hverju landj, í þriggja mánaða kynnisför <il Bandaríkjanna, og greiðir blaðið fargjökl og kostnað v‘ð dvölina vestra (jan< —marz 1961). Þátttakendur verða valdir með hliðsjón af ritgerðasam- keppni. og er ritgerðarefnið á íslandi að þessu sinni: ,,Gildi persónulegra kvnna fyrir sam- búð þjóða“. Lengd ritgerðar- innar skal vera 4—5 vélritað- ar síður. Þátttaka í samkeppninni eV heimil öllum framhaldsskóla-i nemendum, sem. verða 16 ársÉ fyrir 1. janúar 1961, en ekki 19 ára fvrir 30. júní það ár, eru íslenzkir ríkisborgarar og hafa góða kunnáttu í ensku. Ritgerðirnar, sem eiga a5 vera á ensku. skulu hafa borizt menntamálaráðuneytinu fyric, 15, september n. k. (Frá menntamálaráðuneytinu)« ^ 20. maí 1960 — Alþýðublaðið i

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.