Heimskringla - 16.02.1944, Side 3

Heimskringla - 16.02.1944, Side 3
I WINNIPEG, 16. FEBRÚAR 1944 HEIMSKRINGLA 3. SÍÐA nema guðs sérstök náðarráð- stöfun komi til en hún nær ekki til allra — kanske mjög fárra. “Já, en við erum nú hættir að trúa þessu,” segja þeir. Það er sennilegt, en hver getur vitað hverju þeir trúa í þeim játning- um, sem þeir telja sér og öðrum nauðsynlegar? Hvað sem trú þeirra og vantrú líður nú orðið, þá hefir þessi minni máttarkend orðið varan- leg hjá fólkinu. Menn trúa ekki á mátt hins góða í sjálfum sér — í heiminum. Ef menn heyra um framfarir einhverstaðar trúa þeir því ekki. “Þetta er svo ó- eðlilegt”. Þeir trúa því ekki af því þetta sé óeðlilegt. Þeir trúa því ekki að mennirnir geti nokk- urntíma búið í bræðrafélagi, því þeir séu svo eðlisvondir. í raun og veru er þetta vantraust á föð- urnum himneska og er það þá nokkuð undarlegt þótt fólkið fremur sniðgangi þá kirkju, sem prédikar úr þeim kjarkinn í lífs- stríðinu. (Þetta á náttúrlega ekki við allar kirkjur). Þið hafið öll heyrt söguna um Satan. Hann var í upphafi höf- uðengill í Paradís en féll til vít- is af því hann vildi verða guði líkur. Hugleiðið nú þetta til samanburðar við orð Krists: “Verið fullkomin eins og ykkar himneski faðir er fullkominn.” Hvert er nú eiginlega sannsýnis- legra. Hvar er sá faðir í jarðríki, sem ekki vill láta barnið sitt erfa alt, er hann á, og gleðjast í þeim manndómi sem lífið, á hinum æðstu stigum, hefir að bjóða. Guð vill ekki einungis gefa þetta, hann vill gefa okkur tækh færið til að ávinna okkur þetta. Við getum líka áunnið okkur þetta ef við hlýðum Kirsti í þvi að elska sannleikann og stunda bróðurkærleikann. Hversvegna gerir Kristur svo mikið úr sannleiksástinni? 1. Hún eflir sjálfsvirðinguna. Lýgi og yfirhylming er skálka- skjól hins huglausa. Með skin- helgi leitast hann við að véla heimildir á sjálfum sér og eign- ast það álit sem hann á ekki skilið. Þetta verður hans eigin- lega eðli, með tímanum, og, að síðustu, blekkir hann engan meir en sjálfan sig. Hann tekur að trúa því að vandlega faldar mis- gerðir séu syndlausar, eigingirn- in í helgiskrúða sjálfsögð guðs- þjónusta, lýgin nauðsynlegt sjálfsvarnar vopn. Lýgin er andlegt krabbamein, sem upp- étur sálina. Öll mannrækt verð- ur að byrja á því að mönnum lærist að trúa á sannleikann, rækta sannleikann eins og sál- rænan fjör- og heilsugjafa. 2. Sannleiksþroskinn er grundvallar skilyrði fyrir heil- brigðu félagslífi. Öll samvinna verður að byggjast á gagn- kvæmu trausti. Engin treystir lygaranum, og hann treystir heldur engum, ekki einu sinni sjálfum sér. Vantraust nútíðar- mannsins á getumagni góðleik- ans spretfur fyrst og fremst af meðvitundinni um þann ógna- mátt ósannsöglis, blekkinga og hræsnis, sem heimurinn er háð- ur. Allar lífsins leiðir formyrkv- ast í náttmyrkri lýginnar svo fáir vita vegaskil. 3. Kristur líkir sannleikan- um við ljósið, sem veitir mönn- um frelsi til að rata réttar stefn- ur. 1 heiðni var fólkið hnapp- setið af illvættum, sem bjuggu í holum í björgum,í næturhúminu, í dalnum hinumegin við fjallið, í landinu handan við hafið. Af til verunni var einkis góðs að vænta. Heimsrásin stjórnaðist af hjartalausum, mislyndum ör- laganornum. Siðir og venjur ennþá frumstæðari forfeðra stjórnuðu gerðum lifandi lýða og þá var margt að varast en fátt leyfilegt. Siðalögin voru öll nei- kvæð og hindruðu alla viðleitni til sjálfsbetrunar. Ástandið er nú undra líkt. -— Við trúum ekki fremur en heiðingjarnir á hollvætti sannleikans, lífsins og kær- leikans. Alstaðar er eitthvað að varast: aðra trúflokka, aðra at- vinnuflokka, aðrar þjóðir, ná- ungann og enda sjálfan sig. Guð er ekki leiðarljós mannanna heldur skipandi einvaldur. Áll- ar nýjar kenningar þykja ugg- vænar en gamlar, barnalegar og úreltar kreddur metnar sem guðsorð. Betrunarstarfið á að byrja með biblíulestri og lög- þvinguðu játninga stagli í öllum barnaskólum. Kirkjan á nú ekki framar einungis “að laða og leiða” heldur ætlar hún nú að fara að láta til sín taka og “með valdi neyða” illa matreiddan kristindóm ofan í þjóðirnar. Þó veit þessi kirkja ekki hvað á að kenna eða hverju að trúa af því hún fæst ekki til að leita sann- leikans með sálhjálplegri trú á handleiðslu þess guðs sem býr í sannleikanum, í frelsinu og framfara viðleitninni. Kirkjan hefir sjaldan lagt þá áherslu á siðakenningar Krists sem sýni að hún telji þær nokkra lífsnauðsyn. Það var nefnilega miklu auðveldara, að trúa því, að blóðfórnin hafi greidd vor syndagjöld en að ástunda kær- leikann, eða gera sér skynsam- lega grein fyrir lífsmagni hans. Eg held að menn alment meti hina gullnu reglu um að elska náungan eins og óstarfhæfa hug- sjón, enda ætlunarverk kirkj- unnar ekki að bjarga þjóðinni og því síður heiminum heldur fáeinum frómlyndum sálum með því að innræta þeim “hina sálu- hjálplegu trú.” Kristur hugsar til kærleikans sem endurskapandi orku og mót- vegi gegn mannspillandi mann- hatri og ófélagslegri eigingirni. Þessvegna talar hann um kær- leikann, sem sjálfan guð, sem sjálfa lífsorkuna. Hverju þessi orka kemur til leiðar sjáum vér einna bezt í heimilunum, í félags- skap þeirra sem unnast. Hvað verður um samlíf hjóna, um sam- starf fjölskyldunanr ef hans nyti ekki við og breyskum mönnum j veittist ekki hans kraftur til að, fyrirgefa? Hversu varfærnir sem við erum kemur það samt iðulega fyrir að við særum til- finningar og móðgum þá sem vér viljum þó mest til gleði gera. Afléiðingarnar geta orðið alvar- legar ef okkur þrýtur kærleika til að fyrirgefa. Ógleymd og ó- fyrirgefin móðgun vekur heiftar- hyggju. Heiftin svarar rentum og ávextir hennar er illvilji til annara. Sá illvilji heimtar út- rás í vondum verkum, sem aftur elur hatur í annars brjósti. — Heiftin margfaldast þar til heim- urinn — eða heimilin — myrkv- ast í mannskaðaveðrum mein- fýsninnar. Kærleikurinn einn megnar að slökva þetta bál því á honum byggist samvinnan og samvinnan skapar félagshyggju. Hitt er eilíflegur sannleikur sem Shakespeare lætur Shylock segja: Hates any man the thing he would not kill. Jú, allir munu kannast við, að gullna reglan ætti að gilda á heimilunum, en að hún geti náð til stærri mannfélagsheilda virð- ist þeim bara dramatiskar draumasýnir óraunvitra hug- sjónaglópa. Þeir hafa ekki átt- að sig á staðreyndum, að heimur- inn hefir fluzt/ inn í dalinn þinn og áhrif hans, ill og góð, ná til þín og þinna, hversu afskekt ból sem þú kant að byggja. Til þess að þér og þínum sé borgið þarftu að ganga að því vandaverki að endurskapa heiminn í kristileg- um kærleika. Aldrei hefir þess verið meiri þörf en nú ef kærleikurinn á að lægja þær hatursöldur sem leiða mennina út á helveginn. Ef kirkjan ætlar sér að hjálpa til við björgunina þarf henni að lærast að hugsa frjálst, hugsa djarft og forðast lamandi þunga hins útlifaða heiðindóms. Hún þarf að endurskírast af heilög- um anda sannleikans, til þjón- ustunnar með Kristi í trúnni á guðlegt almætti til endalausrar fullkomnunar. Ef kirkjuna þrýtur trúna á málstað sinn er hún andlega dauð, ef hún hang- ir í andvana bókstaf gengur hún inn í jökulinn eins og Bárður Snæfellsás. Hún þarf að vita hvað hún er, hvar hún er og hvert hún stefnir. Það er í raun og veru engin vantrú til nema vantraustið á guðsorkunni, á lífsorkunni að endurleysa lífið frá yfirsjónum aldanna. MIÐSVETRARMÓT ÍSLENDINGA í CHICAGO Það var haldið föstudags- kvöldið 4. febrúar, við sæmilega aðsókn, heldur þó færra en vana- lega, sem er eðlileg afleiðing ýmsra orsaka nú á dögum. Fyrst takmörkun á gasi, og annað, að sumt fólk vinnur á þeim tíma sem samkoman var haldin. Aðal ræðumaður kvöldsins var séra K. K. Ólafsson. Þarf ekki að kynna hann íslendingum, því hann er svo vel þektur meðal þeirra hér vestan hafs, og jafn- vel austan líka. Mun hann vafa- laust einn sá allra færasti ræðu- maður sem íslendinga eiga. Umræðuefni hans var: The Icelandic Contingent in the United States: Salient Traits, Facts and Values. Guðmundur Guðlaugsson söng solo fjögur lög: “Martha” by Flo- tow, “Mingnon” by Thomas, “Christ in Flanders” by Ward Stephens, og lag er hann sjálfur hefir samið á kvæðinu eftir StepharL G. “Þótt þú langförull legðir.” Þetta nýja lag eftir Guðmund hefir verið raddsett nú þegar. Heyrði eg fólk segja að því líkaði lagið mjög vel. Að mínu áliti fellur það mjög vel við kvæðið, og heyrt hef eg söng- fróða menn segja að í því lagi sé list tónskáldanna. Piano solo var einnig á pró- grami, “Waltz C Sharp Minor” eftir Chopin og “Rustle of Spring” eftir Sinding, spilað af Fred Butler; hann er kunningi Guðmundar Guðlaugssonar, spil- aði einnig undir söng hans. Annað á prógrami voru nokkrar stuttar tölur, sem þessir héldu: J. S. Björnson kennari, fyriverandi forseti Vísis í 14 ár, nú sá fyrsti og eini heiðursmeð- limur félagsins. Árni William- son (norskur), forseti norska klúbbsins í Chicago. Árni Helga- son, konsúll íslands í Chicago og I undirritaður sagði fáein orð. Einnig var kallað á: Svein Storm til að segja nokkur orð, sem heimsótti okkur við þetta tækifæri ásamt konu sinni; þau voru fyrverandi meðlimir Vísis, en fluttu í burtu til Cedar Rap- ids, Ia., fyrir nærri tveimur ár- um. Saknar fólk þeirra hér í Vísir, því þau voru mjög góðir meðlimir og gengdi Mr. Storm ýmsum embættum félagsins meðan hann var hér. Einnig voru sungnir nokkrir íslenzkir söngvar af öllum. Við pianóið var Mrs. Paul Halldór- son. Forseti Vísis, Egill Anderson lögmaður, stýrði samkvæminu með rögg og lipurð. Virtist fólk hafa skemt sér vel og fór heim ánægt að eg vona eftir okkar þrettánda “Goðablót”, sem við köllum þetta samkvæmi okkar. Nú á næsta hausti er Vísir 20 ára. hefir komið til tals að þeirra tímamóta verði minst að einhverju leyti; er hann því að- eins 5 árum yngri en aðal Þjóð- ræknisfélag Islendinga í Vestur- heimi, sem nú er að halda upp á 25 ára afmæli sitt á þessum ' vetri. Man eg vel að sumir spáðu því skamma lífdaga, en 1 eftir öllu útliti stendur það í [ góðum blóma, vonandi að það haldi áfram í langan aldur enn. Þó aldrei nema íslenzkan tapist hér með tímanum, sem að lík- indum er áhjókvæmilegt, þá get- ur íslenzkur félagsskapur haldið áfram fyrir því. Er gott dæmi þar sem er félag yngri íslendinga í Winnipeg og gefa út tímaritið ‘The Icelandic Canadian”. Þar er vel á stað farið, og óska eg því langra lífdaga, veit eg að það muni verða góð fyrirmynd til eftirbreytni Islendinga í fram- tíðinni bæði í Canada og Banda- ríkjunum. S. Árnason Bœkur til sölu á Heimskriuglu Endurminningar, 1. og II hefti, alls 608 blaðsíður, eftii Friðrik Guðmundsson. Verð upphaflega $2.50, báðar bæk urnar; nú $1.00. Hetjusögur Norðurlanda, um 200 blaðsíður að stærð, eftir Jacob A. Riis. Islenzkað hefir Dr. Rögnvaldur Pétursson. — Verð 35c. ★ ★ ★ Deild dönsku hjálparnefndar- innar í Manitoba, efnir til sam- komu 19. febrúar kl. 8 e. h. í Manitoba-háskóla (Theatre A). Þar verður sýnd kvikmynd frá Grænlandi. Ennfremur hefir verið vandað til söngs og hljóm- leika. Inngangur er 50^. ★ ★ ★ Sögubækur, Ljóðmæli, Tíma- rit, Almanök og pésar, sem gefið er út hér vestan hafs, óskast keypt. Sömuleiðis, “Tí- und” eftir Gunnst. Eyjólfsson, “Út á víðavangi” eftir St. G. Stephansson, Herlæknissög- urnar allar, sex bindin. Björnssons Book Store 702 Sargent Ave. Winnipeg. Man. Vér óskum . . . Þjóðræknisþingi Islendinga er kemur saman í n. k. viku, til allra heilla ! Gesti þingsins bjóðum vér velkomna. ---KOMIÐ VIÐ HJÁ “BAY”-------- Vanhagi yður um eitthvað getið þér verið vissir um að fá það í búð vorri. Máltíðir vorar eru viðuvkendar Látið oss sýna yður um húðina. (Eömpang. INCORPORATED 2T? MAY 1670. PLAN T0 MAINTAIN H0G PRODUCTION During 1944 and 1945 Every gooc/ quality hog that can be produced during the next two years will be needed. The current bacon contract is for two years. It guarantees bacon prices and the delivery of 900 million pounds of bacon over the contract period. To help Britain maintain her present weekly ration of 4 oz. for each person Canada will try to deliver 600 million pounds of bacon this year. IMPROVE QUALITY Quality premiums of $3.00 for each Grade A carcass and $2.00 for each Grade Bl carcass have been authorized. They increase the net profit in hog production and emphasize the urgency of improving quality to protect the after-the-war position on the British market. Hog Production is Profitable After allowing reasonable feed allowances and liberal overhead charges to cover all possible costs the following net returns can now be expected from feed grains fed to hogs: Wt. ofHog Live Lbs. Selling Price per 100 lbs. dressed Value of Hog Quality Bonus Bl Grade Returns per Hog Returns for grain Value of grain per 100 lbs. 200 $15.00 22.50 2.00 24.50 17.50 1.75 200 15.50 23.25 2.00 25.25 18.25 1.83 200 16.00 24.00 2.00 26.00 19.00 1.90 200 16.50 24.75 2.00 26.75 19.75 1.98 200 17.00 25.50 2.00 27.50 20.50 2.05 Grade A hogs on which $3.00 tional lOc. per Quality Bonus is paid will return an addi- hundred for the grain used. For jurther injormation consult your Provincial Department oj Agriculture, Agricultural College, nearest Dominion Experimental Farm or Live Stock Ojjice oj the Dominion Department oj Agriculture. AGRICULTURAL SUPPLIES BOARD Dominion Department of Agriculture, Ottawa Hortourable James G. Gardiner, Minister

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.