Heimskringla - 12.07.1944, Side 4
4. SIÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 12. JÚLl 1944
ifehttakrinjjk
í (StofnuB 1886)
Kemur út á hverjum miðvikudegi.
Eigendur: THE VIKING PRESS LTD.
853 og 855 Sargent Avenue, Winnipeg — Talsími 86 537
Verð blaðsins er $3.00 árgangurinn, borgist fyrirfram.
Allar borganir sendist: THE VIKING PRESS LTD.
öll viðskiftabréf blaðinu aðlútandi sendist:
Manager J. B. SKAPTASON, 853 Sargent Ave., Winnipeg
Ritstjóri STEFAN EINARSSON
Utanáskrift til ritstjórans:
EDITOR HEIMSKRINGLA, 853 Sargent Ave., Winnipeg
Advertising Manager: P. S. PÁLSSON
"Heimskringla" is published by and printed by
THE VIKING PRESS LIMITED
853-855 Sargent Avenue, Winnipeg, Man. — Telephone 86 537
WINNIPEG, 12. JÚLl 1944
Jón Magnússon skáld
Marga setti hljóða við fréttina að góðskáldið velþekta, Jón
Magnússon væri dáinn. Hann var svo ungur og átti svo margt
eftir að skrifa og svo mörg kvæði að yrkja. Hér var maður
fallinn að velli sem djúp ítök átti í hjörtum allra Islendinga austan
hafsins og vestan, sem á annað borð skildu og virtu góðan skáld-
skap og fagrar hugsanir.
En nú var skáldið góða, sem orti hina fögru kveðju til Vestur-
Islendinga árið 1930, fallið að velli. Það kvæði var veganesti
þeirra á vestur-leiðinni og verður þeim ógleymanlegt hér í dreif-
ingunni. Ástúðin og einlægnin fyltu hverja hendingu í kvæðinu,
og snerti hverja einustu ættjarðar-taug í brjóstum þeirra, sem nú
voru að kveðja. Það var eins og blíða og fegurð íslenzkrar náttúru
tækju höndum samán til þess að gera þessum stundar-gestum
hinnar göfugu Fjallkonu, skilnaðar stundina ógleymanlega, og hún
valdi þennan ástmög sinn til þess, að búa til og afhenda þeim
þetta ódauðlega listaverk.
Eg get ekki stilt mig um að birta hér þrjú erindi úr þessu
kvæði, rúmið er takmarkað svo ekki verður viðkomið að taka hér
upp alt kvæðið, þó eg hefði helzt kosið að gera það:
“Við höldum ennþá hópinn,
þótt hafið skifti löndum.
Og okkar sæng er sveipuð
af sömu móðurhöndum.
Við hverja vöggu vakir
sem vorblær frónskur óður.
Og systkin öll við erum,
sem elskum sömu móður.
Og æskutrygð og ástir
þið ortuð heim í ljóði,
þó komu fleiri kveðjur,
sem kveðnar voru í hljóði.
Við sjáum oft á aftni
sem eld í vestri kvikna.
Við hlustum yfir hafið,
og hugir okkar vikna.
Að heiman heim þið siglið.
Og hjartans þakkir okkar.
Það logar ennþá eldpr,
sem út á djúpið lokkar.
Þið berið kæra kveðju
frá koti, stekk og heiðum
þeim Islands börnum öllum,
sem eru á Vesturleiðum.”
Jón var aðeins 47 ára þegar hann dó, 2. febrúár 1944. Hann
hafði gefið út eftir sig fjórar kvæðabækur, og kennir þar alstaðar
listræni og fegurðar í rími og hugsun, jafnframt óvenjulegri skáld-
skapar-gáfu. Þessar bækur eru: Bláskógar, Hjarðir, Flúðir og
Björn á Reyðarfelli. Hafa þær allar komið á bókamarkaðinn hér
vestra og mætt afar miklum og verðskulduðum vinsældum.
Minningin um þennan listríka ljóða-svan mun vara meðan
íslenzkt mál er lesið af skilningi, og kafað er eftir hinum óvið-
jafnanlegu bókmentaperlum sem það á yfir að ráða. P. S. P.
SÍMSKEYTI
frá Utanríkisráðuneyti íslands
Reykjavík, 6. júlí 1944
Gettir Jóhannson,
Icelandic Consul, t
Winnipeg, Canada.
Sunnudaginn 2. júlí var Dr.
Beck heiðursgestur Borgfirðinga
og aðalræðumaður á lýðveldishá-
tíð og íþróttamóti þeirra að Ferju
koti er 3000 manns sóttu. Flutti
hann kveðjur frá Vestur-íslend-
ingum og sagði frá þjóðræknis-
starfi þeirra. Var honum og
máli hans ágæ’tlega fagnað; hann
og Vestur-íslendingar voru hylt-
ir í ræðulok með ferföldu húrra-
hrópi. Um helgina heimsótti
hann einnig Reykholt og fræði-
mannin Kristleif Þorsteinsson á
Stórakroppi sem V.-ísl. er að
góðu kunnur, var hann í för
með Haraldi Böðvarssyni kaup-
manni á Akranesi, náfrænda Dr.
Brandsons heitins. Beck kom úr
þessari för á mánudag. Á þriðju-
dag var hann gestur Sendiherra
Bandaríkjanna á fjórða júlí hátíð
og síðar um daginn hjá yfir-
mönnum Bandaríkjahersflota;
um kvöldið flutti hann erindi í
Ríkisútvarpið í tilefni f jórða júlí,
mikið rómað af almenningi.
Á miðvikudag 5. júlí var hann
gestur við hátíðlega athöfn Há-
skóla íslands, þar sem hann flutti
kveðjur frá Ríkisháskóla Norður
Dakota, fylkisháskóla Manitoba,
og Cornell háskólanum, jafn-
framt flutti hann kveðjur frá
Þjóðræknisfélagi Vestur íslend-
ftnga. Rektor háskólans Jón Sig-
; urðsson læknir strýði athöfninni.
! Samkomugestir hyltu Vestur-
| íslendinga, að lokum var drukk-
j ið kaffi í kennarastofu háskól-
ans.
Um kvöldið hélt Þjóðræknis-
| félag Islendinga Dr. Back virðu-
legt samsæti á Hótel Borg, bisk-
! up íslands, Dr. Sigurgeir Sig-
! urðsson, flutti aðalræðuna, aðrir
i sem töluðu voru, Árni Eylands
j forseti félagsins, Ófeigur Ófeigs-
J son læknir, séra Jakob Jónsson,
(Arnfinnur Jónsson skólastjóri,
en Kjartan Ólafsson flutti frum-
ort kvæði. Dr. Beck þakkaði með
1 alllangri ræðu góða samvinnu og
^ viráttumerki af hálfu Þjóðrækn-
isfélagsins og ræddi um fram-
haldandi samstarf austan hafs og
vestan og mælti fyrir minni ís-
I lands. Máli hans var tekið með
! miklum fögnuði. Vilhj. Þór
Útvarpserindi um ísland 17. júní 1944
Eftir Guðmund dómara Grímson
Dagblöðin hafa í vor verið að
geta atburðar, sem hefir kanske
ekki vakið mikla athygli, en er
samt sem áður all mikilvægur.
Það voru fréttirnar um algerðan
aðskilnað íslands og Danmerk-
ur, og ^ndurreisn hins forna ís-
lenzka lýðveldis.
Island er lítið land. Að flat-
armáli er það minna en Norður
Dakota. Einungis tveir fimtu
hlutar þess er byggilegt, hitt eru
fjöll, jöklar, hraun og eldfjöll.
Það liggur upp að norðuríshafs-
baug. Landfræðilega er austur
og vestur hveli jarðar skift eftir
tuttugasta hádegisbaug (merid-
ian), sem skifti íslandi til helm-
inga milli Evrópu og Norður
Ameríku. Hin réttari skifting
milli heimsálfanna, er eftir hin-
um dýpsta Atlants ál, og yrði
Jsland þá, alt, Norður Ameríku
megin.
Eftir að Bandaríkin keyptu
Alaska, hvatti ríkisritarinn,
Hon. William H. Seward til að
Island yrði keypt líka. Það er
eitt af útvörnum álfu vorrar.
Golf straumurinn rennur með-
fram ströndum þess, svo lofts-
lagið er milt, þrátt fyrir hið
kuldalega nafn landsins. Vatn
hinna mörgu heitu lauga og
hvera, er brúkað til upphitunar,
og matreiðslu. Landið er mjög
vogskorið, með djúpum fjörðum
og góðum höfnum, sem eru opn-
ar alt árið í kring.
Vegna legu landsins og afstöðu
þess til varnar, settu Bretar þar
herlið á land, fyrir hernaðarlega
nauðsyn, eftir að Þjóðverjar
höfðu hernumið Noreg.
Þegar Bretar fóru, bað stjórn
íslands Bandaríkjastjórnina um
vernd, og síðan 9. júlí 1941 hafa
hersveitir vorar verið þar. Þeir
hafa bygt á Islandi sumar hinna
stærstu og fullkomnustu flug-
stöðvar og herskipa lægi, sem til
eru. Það hefir verið til stórrar
verndunar siglingum á Norður
Atlantshafinu, gegn herskipum
og neðansjávarbátum Þjóðverja.
Það land sem hefir ísland vel
víggirt, hefir yfirráðin á sigl-
ingaleiðum á Norður Atlantshaf-
inu í hendi sér.
ísland var bygt af norrænum
víkingum, sem voru meðal hinna
herskáustu manna þeirra tíma.
Á sínum stóru opnu bátum, sem
einungis var*róið með árum, og
þegar vindur var hagstæður,
þjálpað með ófullkomnum segl-
um, þeir höfðu ekki annan leið
arvísir til að sigla eftir, en sólina
og stjörnurnar. Þeir fóru frá
Noregi til landaleita, og stund-
um til að taka sér bólfestu, og
aðsetur á eyjum og ströndum
Vestur Evrópu. Sumir settust
að á Frakklandi, og nefndu land-
nám sitt Normandy, þar sem að
nú geysandi hersstyrjöld er háð.
Sumir fóru alla leið til Con-
stantinopel. Á níundu öld þegar
Haraldur konungur hárfagri
vann undir sig allan Noreg, og
gerðist einvalds konungur yfir
landi og þjóð, fóru sumir hinna
óháðu víkinga burt úr landi, til
íslands, ásamt nokkrum Irum,
sem tóku sér þar bólfestu. Þeir
einu menn sem voru fyrir í land-
inu, voru 'fáeinir írskir einsetu-
menn — munkar.
íslendingar hneigðust brátt að
friðsamlegum störfum og ment-
un. 1 sögnum sínum varðveittu
þeir átrúnað hins forna norræna
kynstofns. Þeir sigldu meðfram
ströndum Norður Ameríku árið
1000, næstum 500 árum áður en
Columbus fann Ameríku.
Um sextíu ára bil, hafði hver
foringi (höfðingi) ótakmörkuð
yfirráð yfir félögum sínum. Árið
930 komu þeir sér saman um, og
ákváðu að setja ein lög sem gilda
skyldu fyrir alt landið.
Á þjóðsamkomu, sem þeir
kölluðu alþing, mættu allir leið-
togar og foringjar þjóðarinnar,
og stofnuðu lýðræði, þingbundna
höfðingjastjórn, samþyktu lög
sem gyltu fyrir land alt, ásamt
dómsmálafyrirkomulagi, með
kviðdómurum.
Sökum ótta við einveldi, hafði
stjórnin ekkert framkvæmdar-
vald. Þetta fyrirkomulag entist
í kringum þrjú hundruð ár. Þá
komu upp deilur milli ráðríkra
og valdmikilla höfðingja. Nor-
egskonungurinn hvatti íslend-
inga til að gerást sína þegna, og
hét þeim að stilla til friðar í
landinu, og styðja að velmegun
landsmanna.
Árið 1262 var gerður sáttmáli
við konungin, þar sem hann var
viðurkendur sem konungur ls-
lands, með því skilyrði að hann
skyldi halda friði í landinu, en
láta íslenzk lög haldast óbreytt,
og meðfarin af Islendingum ein-
um. I þessum sáttmála er það
skýrt tekið fram, að ísland, þó
það hafi sama konung og Nor-, gtjórnarfyrirkomulags. Eldur sá
egur, skuli það alls ekki skoðast er jjer var kveiktur og logaði,
sem hluti hins norska konungs- hefir varpað birtu til allra landa,
en 97 % greiddu atkvæði með að
segja ujpp samningnum. Aðeins
370 greiddu atkvæði með fram-
haldi konungs sambandsins. —
Meir en 95% greiddu atkvæði
með lýðveldis stjórnarskránni.
I samræmi við hina almennu
atkvæðagreiðslu, og undirbúning
Alþingis, var hið forna lýðveldi
formlega endurreist.
Þjóðþing Bandaríkjanna hefir
rétt nýlega samþykt tillögu um
heillaósk, og boðið hið nýja ís-
lenzka lýðveldi velkomið í fjöl-
skyldu frjálsra þjóða. Hon.
Louis G. Dreyfus, sendiherra og
einkafulltrúi Roosevelts forseta
á íslandi, flutti í dag (17. júní) á
Þingvöllum, alúðar kveðjur og
hamingjuóskir forsetans. Hann
hrósaði íslenzku þjóðinni fyrir
trygð sína við hinar háu þjóð-
ræknis og þjóðræðis hugsjónir
sínar.
“Alþing, ‘heimsins elzta lög-
gjafarþing, er hvarvetna skoðað
og viðurkent sem hið veigamesta
tillag Islands til lýðræðislegs
ríkis.
Árið 1397 ganga Norðurlönd,
Noregur, Svíaríki, Danmörk og
ísland, í eitt ríkjasamband, und-
ir Dana-konungi.
Eins og sagan hefir svo þrá-
faldlega sýnt, að einvaldskon-
ungar, hvers lands sem eru, eru
líklegir til að hrifsa meiri völd
til sín, en ætlast var til að veita
þeim. Þannig höfðu konungar
Noregs og Danmerkur stöðugt
brotið hinn upphaflega sátt-
mála. Þeir tóku sér alræðisvald
yfir íslandi, tróðu rétt Islend-
inga undir fótum sér, settu
verzlunareinokun, og þrengdu
yfirleitt að kjörum Islendinga.
Snemma á nítjándu öldinni hefj-
ast íslendingar handa til að bera
fram sterk mótmæli gegn þess-
ari útlendu kúgun. Þeir höfðU
hvorki sjó- né landher, og engan
auð. Þeir voru fáir og smáir
miðað við Danaveldi. Einungis
með sannfærandi orðum, og til-
vitnunum til hins upphaflega
sáttmála, og sýna fram á rétt-
mæti málstaðar síns, gátu þeir
búist við að sér yrði nokkuð á-
gengt.
Danir eru einnig friðelskandi
þar sem frjálsir menn búa, og
mannkyninu mun æfinlega verða
minnug sú þakklætisskuld, er
það stendur í við ísland.
I dag standa Bandaríkip og ís-
land saman að því, að vernda
frelsið, sem oss öllum er svo
kært, það frelsi sem tryggir öll-
um þann ómótmælanlega rétt;
sem forsjónin hefir oss öllum
veitt.
Herra forseti og íslenzka þjóð,
standið nú á þrepskyldi nýs tíma-
bils sem gefur yður ný viðfangs^
efni. Megi yður auðnast að eiga
a og vernda hið sama viljaþrek,
hið sama áræði og hinar sömu
dygðir, eins og þeir áttu er fyrstir
stigu fæti hér á land. Með hinu
sama hugrekki og trúlyndi, er
þeir sýndu, stefnið þér að háu og
göfugu markmiði.”
Stefnumið íslenzka lýðræðis-
ins er greinilegast gert grein
fyrir í skrýslu Hon. Thor Thors,
sendiherra íslands í Bandaríkj-
unum: “Vér Islendingar, erum
óhræddir um framtíð lands vors.
Vér erum í engum efa um hvern-
ig stríðinu lýkur, og höfum fult
traust á, að oss muni verða leyfð
samvinna, á okkar smáu vísu,
með öðrum lýðræðislöndum, að
fólk. Leiðtogar þeirra gátu séð
lengra en aðeins sína eigin hags-1 stríðinu ]0knu.
muni. Þeir viðurkendu, smátt! vér vituip að vér erum fá-
og smátt réttmætiskröfur íslend- mennir> að land vort er lítið, og
inga. Samningstilraunir stóðu að tillegg vort getur aldrei orðið
yfir í morg ár- Islendingum var j { stórum stfl> en löngun vor er að
gefin sfjórnarskrá árið 1874. —! reyna að sýna heiminum, að vér,
Stjórnarskráin veitti þó ekki fult j lítil þjóð> getum bygt réttlátt og
sjálfsforræði^ svo ^ frelsiskröfur! hamingjusamt þjóðfélag. Á frið-
verður Island altaf
I , * ,
frjalst og fullvalda land. A tim-
! um styrjalda og árása getur eng-
af Dönuyi og íslendingum, sem | in þjóð; engin einstaklingur ver.
kom sér saman um úrgreiðslu|ið frjalSy þvi árásar hernaður
þeirra mála er á milli bar, og | stafar af þrælkun heima fyrir, og
samningur milli Danmerkur og| að heiman. 0ss er vel ljóst um
Islands, var undirskrifaður °g þa ægilegu fórnfærslu sem
samþyktur af báðum rfkjunum,|Bandaríkja þjóðin er að leggja
sem gaf Islandi fult sjálfsfor-: fram til að tryggja freIsi og vel-
ræði, en Dana konungur hélt líðan aldna Qg óborna kynslóða {
Islendinga héldu áfram, en sam-! artimum
komulagið varð betra. Árið
1918 var að síðustu valin nefnd
áfram að vera konungur íslands.
1 samningnum var ákvæði um,
að eftir tuttugu og fimm ár gæti
hvort landið sem vildi sagt upp
samningnum, og skilið að fullu
og öllu, hvort við annað án frek-
ari málaleituna.
Þessi tuttugu og fimm ár voru
liðin í síðast liðnum desember.
1 nokkur undanfarandi ár, hafa
allir stjórnmálaflokkar á íslandi,
verið sammála um, að segja upp
samningnum, og setja á stofn
lýðveldi. Nefnd manna hefir
unnið að því að koma því í fram-
kvæmd.
Strax eftir að Alþing kom
saman í janúar, var samþykt að
slíta öllu sambandi við Dan-
mörku, og samþykt stjórnarskrá
sem stofnsetti lýðræðislegt
stjórnarfyrirkomulag á íslandi.
Almenn atkvæðagreiðsla um
máliðv var fyrirskipuð, og at-
kvæði greidd 20.—25. maí, að
báðum dögum meðtöldum. At-
kvæði greiddu 98% allra at-
kvæðisbærra í landinu og meir
þessum heimi. Vér stöndum með
þeim, af öllum huga vorum og
hjarta, þar til sigur er unnin.”
Stofnun þessa nýja lýðveldis,
sýnir sanngirni Sambandsþjóð-
anna, gagnvart smáþjóðunum.
Þau loforð ,er gefin voru er her-
námið fór fram, hafa öll verið
haldin, bæði England og Banda-
ríkin hafa leyft íslendingum að
fara með innanlandsmál sín, án
nokkurrar íhlutunar. Þeir hafa
leyft íslendingum óskorað frelsi
til að halda áfram hinni löngu
baráttu sinni fyrir algerðum að-
skilnaði við Danmörku, á frið-
saman og skipulegan hátt, og
stofnsetja sitt eigið stjórnarfyrir-
komulag og stjórn. Það bendir
til hver verður meðferð sam-
bandsþjóðanna með hernumdu
löndin, þegar þau öðlast frelsi
sitt, að fólkið getur sjálft á-
kveðið hvaða stjórnarfar það
vill, og æskir eftir.
Að öðru leyti, og ef til vill enn
þýðingarmeira, er úrgeiðsla þess-
ara mála, milli Islands og Dan-
merkur, á friðsamlegan hátt,
unnin af tilkvöddum fulltrúum
beggja þjóðanna, bendir á hina
réttu leið í viðskiftum og úr-
greiðslu alþjóða mála í framtíð-
inni.
Ef því fyrirkomulagi yrði
komið á í sambandi við alþjóða
deilumál í framtíðinni, þá virtist
sem möguleiki væri fyrir hendi,
að hætta að brúka og beita of-
beldi.
Um leið og eg óska þessu nýja
lýðríki til hamingju og býð það
velkomið í félag þjóðanna, lang-
ar mig til að vona að með þeirri
aðferð sem það hefir beitt til að
öðlast sjálfstæði sitt, megi verða
leiðbeining til að afleggja stríð
og styrjaldir. Megi ísland halda
áfram að vera frjálst og óháð í
gegnum aldanna raðir.
Vér fögnum ölL, menn og kon-
ur, af íslenzku bergi brotin, yfir
endurreisn hins forna íslenzka
lýðræðis. Vér erum og innilega
þakklát Bandaríkjunum fyrir
þeirra ágætu framkomu gagn-
vart ættlandi voru.
Islendingar, hvar sem þeir eru,
skilja það, að ef það hefði ekki
verið fyrir hina tímabæru íhlut-
un Englands og Bandaríkjanna,
gæti ísland nú verið í sömu
kringumstæðum og Noregur. —
Sem endurgjald fyrir það leggur
ísland með ánægju, fram það
sem landið hefir að bjóða, sem
hefir hjálpað til, að stytta og
vinna stríðið.
Að lokum vil eg þakka WDAY
og öðrum útvarpsstöðvum, sem
hafa góðfúslega hjálpað til að
flytja þetta erindi, og þannig
heiðrað hið nýja íslenzka lýð-
veldi. G. Eyford þýddi
ÍSLENDINGADAGURINN
í CHICAGO
I minningu um hinn mikils-
verða atburð er skeði með ís-
lenzku þjóðinni síðastliðinn 17.
júní, sem sé stofnun lýðveldisins,
héldum við íslendingar hér í
Chicago okkar Islendingadag,
sunnudaginn þ. 18. júní. Sam-
koman tókst vel, meiri aðsókn
en vanalega, eg held um 150
manns.
Þar fóru fram ræðuhöld, söng-
ur og sports. Stjórn samkom-
unnar hafði Egill lögmaður
Anderson, sem er forseti Vísis.
Söngurinn var undir stjórn
söngmannsins okkar vinsæla
Guðmundar Guðlaugssonar,
sport var undir umsjón Óla Al-
freds og Skafta Guðmundssonar.
Aðal ræðumenn dagsins voru
Dr. Árni Helgason og Mr. Paul
Halldórsson. Dr. Helgason er
íslendingum vel kunnur, en Mr.
Halldórson mun ekki kunnur Is-
lendingum eins mikið, þar sem
hann mun ekki hafa komið opin-
berlega fram, það mér sé kunn-
ugt. Hann er vel mentaður mað-
ur, útskrifaður af University of
Nebraska, hann er ættaður það-
an, sonur Jóns heitins Halldórs-
sonar, sem kom til Milwaukee
frá Islandi með þeim fyrstu er
þangað fluttu, nam svo land í
Nebraska og ílengdist þar, hans
er getið í landnámssögu íslend-
inga í Vesturheimi öðru bindi.
Paul Halldórson rekur Trans-
former verkstæði hér í Chicago
í félagi við bróðúr sinn og systur.
Ræður þessara manna ætla eg
að senda með þessum línum til
birtingar í blaðinu, þær eru báð-
ar vel þess virði. Þess má geta
að ræða Helgasonar var flutt á
íslenzku en Halldórssonar á
ensku.
Nú mun útkljáð um hver verða
mun þjóðhátíðardagur íslands í
framtíðinni. Það var töluvert
um það skrifað fyrir mörgum ár-
um. Sumir vildu halda í annan
ágúst, sem þjóðminningardag,
sem varð líka ofan á víðast hvar,
en svo voru aðrir sem hafa vildu
17. júní. Nú álít eg að það sé
engum blöðum um það að fletta
lengur hvor dagurinn sé haldinn
hátíðlegur.
Þetta söguríka tilfelli sem nú
hefir skeð með þjóðinni tekur af