Heimskringla - 16.08.1944, Qupperneq 3
WINNIPEG, 16. ÁGÚST 1944
HEIMSKRINGLA
3. SlÐA
Þó að venjur og tízkur bæði
fyrir og eftir Westminster laga-
boðið og lagaboðið sjálft hafi
skýrt margt sem að fullveldi
Canada lýtur, þá er samt enn
margt sem laga má. Telja má'
þar með afstöðu Canada hvað’
ráðherra sambönd við aðrar
þjóðir snertir. Ef Canada á að
njóta sín og halda og efla velvild'
og álit umheimsins, má ekki
dragast að koma á stofn slíkum
samböndum við fleiri þjóðir en
nú á sér stað.
1 réttarmálum er leyfilegt að
flytja mál til dómstóla Breta.
Tízka þessi er smásaman að úr-
eltast. Til dæmis 1942 var að-
eins eitt mál flutt til Englands.
Ef venju þessari er ekki löglega
hafnað af Canada hálfu eykur
hún kostnað málaflutnings og
tálmar sjálfstæði dómstóla Can-
ada.
Stjórnarskrá Canada (B. N. A.)
var samin á þingi Breta 1867. Að
ummælum Canada var fast á-
kveðið að breytingar allar skyldu
vera samþyktar af sama þingi,
Nú eru nærri 80 ár liðin og
st j órnarfyrirkomulag á mikiu
hærra stigi og dreyfing og ósætt-
ir minni. Margt sem þá var
nauðsynlegt er nú úrelt og sumt
sem þá var heppilegt er nú van-
hagur. Ætla má því að Canada
ætti sem fyrst að fá lausn frá
þessu fyrirkomulagi og að fram-
tíðar breytingar, ef anuðsynleg-
ar, ættu að vera í sjálfs hendi.
Annað fyrirtæki sem ekki má
dragast er að fá okkar eigin fána.
Okkur ber að mynda sögulega
hefð um fána Canada og um kon-
ung hennar sem sjálfsögð eining-
armerki þjóðarinnar. Þetta geta
þjóðarbrot öll aðhylst. Frakkar
sem aðrir bera konungi lotningu
og allir virða veruleika þann sem
fáninn táknar.
Að síðustu er óhugsandi að
fólk það er unnið hefir að og
fengið borgararéttindi hér í landi
eða er hér innfætt, skuli ekki
vera viðurkent af lýð og lands-
stjórn sem canadiskt. Venja sú
að telja ættir manna til landa
þeirra er forfeður þeirra fluttust
frá er beint áfram skaðleg. Stofn-
að er á þann hátt til lítilsvirðingu
öllu sem Canada tilheyrir, og
haldið við þjóðarlegum greinar-
mun milli manna og þjóðflokka.
Það er viðurkent að landsskolinn
réttlátt að þessháttar tálmun sé
sett í veg kenslu borgararéttinda
hér í landi.
Það er langt frá mér að ætla
að þjóðarbrot hér eigi strax að
slíta öllum samböndum við ætt-
land sitt. Þeim er skylt að halda
við og efla alt prúðmannlegt og
göfugt í eðlisfari og þjóðerni og
að nota það Canada í hag.
Þjóðbrot hér geta ekki afneit-
að eða kastað frá sér ættjarðar-
arfi og á svipstundu öðlast cana-
diska menningu og sálarþrótt
Til þess er nauðsynlegt að byggja
á menningargrundvelli þeim sem
þjóðbrot hvert hefir öðlast að
móðurbrjósti.
íslendingar standa framarlega
í áliti og virðingu Canada, því
þeir hafa djarfmannlega vernd-
að móðurarfin. Þjóðræknisfélag
Islendinga, Islendingadagurinn,
íslenzk blöð og tímarit, í mörg ár
íslenzkur skóli og íslenzk kirkju-
félög hafa styrkt bæði ættlandið
forna og frjálsa og Canada. Is-
lenzk menning er þannig gróður-
sett í Canada. Ef tillag allra
þjóðbrota er í eins ríkum mæli
útilátin er framtíð Canada glæsi
leg.
Eg hef minst á stjórnmála-
framför lands vors og á fáein
atriði sem laga ber, en hvað um
framtíðarhorfur?
Sir Wilfred Laurier kemst svo
að orði skömmu fyrir aldamótin:
18. öldin var Englands, 19. öldin
er Bandaríkjanna, en 20. öldin
verður Canada.
Við í Canada höfum í mörg ár
litið með auðmýkt á okkar fagra
og frjósama land sem nýlendu
Breta og á auðmagn og framför
nágranna okkar syðra sem smá-
barn lítur á afkastaburði hreysti-
manns. Okkur ber að gæta að
framtíðin brosir við Canada. —
Þjóð vor er auðug að landi, auð-
ug að mat og málmi, skóg og
vatnsafli, auðug af öllu er lýtur
að velmegun manna. Hún liggur
í leið loftfara milli Evrópu og
Asíu. Hún tengir hið gamla og
nýja í landsafstöðu og menn
ingu. Sprottinn er frá rótum
heilbrigðum og þróttmiklum
ættarstofn ný þjóð á þroskaár
um.
KVEÐIÐ VIÐ LÁT VINAR
eigi að vera deiglan sem þjóðbrot
öll bræðir saman. Virðist því ó-
Jarðabók Árna Magnússonar,
öll bindi, óskast til kaups.
Björnsson’s Book Store
702 Sargent Ave. — Winnipeg
“BREZKT STÓRSKOTALIÐ A LEIÐ TIL TOKIO”
Ledo brautin, “brautin til Tokio”, yfir Patkoi hæðirnar,
sem aðsklja Burma frá Assam, var bygð til þess að hægt væri
að koma sendingum til hersveita General Stilwell, er börðust
í Norður Burma. Það er ljóst dæmi um framfarir í vegagerð,
að nú má fara þessa vegalengd á bílum á átta klukkutímum,
en áður lá leiðin um fjöll og nálega ófæra heiðarfláka. Meðan
verið var að byggja veg þennan, börðust hinar kínversku
hersveitir Stilwells við japanskar í Hukawn dalnum og
brezkir stórskotaliðsmenn voru alstaðar meðfram brautinni.
Fullgerning vegarins er feikna hjálp með alla flutninga, ekki
eingöngu fyrir Kínverja heldur og fyrir Bandaríkjamenn er
hafa flugvelli í Kína. — Myndin hér að ofan sýnir eina þessa
fallgyssu er notaðar voru meðfram vegastæðinu, og heita
mennirnir er stjórna henni B. Gayford frá Bath Road, Beck-
ington, Bath, og hann til vinstri, en hinn er A. Clair, R.A.,
Pale St., Manchester.
Nú siglir þú annan sjó,
en berjast um sent og bita
í brennandi sólarhita
— vonlaus um vinning þó.
Hinn þreytti á eina þrá:
að hvílast guðs í geimi
og gleyma þessum heimi,
sem enga miskun á.
Þig lítið lýðir dá
þó verðist þú á vetri
og værir mörgum betri,
sem fremstu síðu fá.
Öreiginn aldrei sá
verðhlutinn verka sinna
þó vinnu gerði hinna,
sem lof og launin fá.
Þín vörn var vösk og trú.
En hjartað skalf af hita
og höndin þoldi ei svita.
— Nú liggur liðinn þú.
Farnist þér ferðin vel.
Njóttu nú heilla handa. .
Herfjötur þreytu banda
geymist hjá gömlu Hel.
J. S. frá Kaldbak
N/O^e
Beztu Kaup
eru
VOGUE
CIGARETTE
TOBACCO
WARTIME PRICES AND
TRADE BOARD
KóRóNAN HVERFUR
Áður hefir verið bent á það
hér í dálkunum, að þegar lýð-
veldið verði stofnað, verði kórón-
ur allar að hverfa úr skjaldar-
mérkjum, innsiglum, einkennis-
búningahnöppum embættis-
manna o. s. frv. Víða eru kórónu-
merki, t. d. á Alþingishúsinu,
Dómkirkjunni og sjálfsagt ann-
arsstaðar. En eitthvað verður
að koma í staðinn fyrir kórónu-
.merkið, þó ekki hafi heyrst, að
það hafi verið ákveðið. Gerðar
hafa verið tillögur um, að fálka-
merki yrði tekið upp í stað kór-
ónunnar og trúi eg, að sú hug-
mynd muni fá góðan byr. Fleira
og fleira kemur til greina, sem
breyta þarf, þegar lýðveldið
verður stofnað. Hvað verður t.
d. um Fálkaorðuna? Verði hún
áfram virðulegasta tignarmerki
Islands, þarf að breyta henni.
Ekki getur hún lengur verið með
konungs kórónu. Smámyntin
íslenzka er með kórónumerki.
Ólíklegt er, að hægt verði að fá
slegna nýja mynt fyrri en að
stríðslokum. Ennfremur verður
að breyta skjöldum á ræðis-
mannaskrifstofum okkar erlend-
is og sendisveitaskrifstofum. Alt
eru þetta smáatriði í sjálfu sér,
en þurfa hinsvegar að gerast og
því fyrr, sem því er af lokið, því
betur.—Mbl. 8. júní.
Þeim sem ekki finst mikið til
um verðlags eftirlits hér í Can-
ada, ætti að vera dálítil huggun í
eftirfylgjandi verðskrá frá Ný-
fundnalandi.
Egg, frá 80c upp í $1.20 dús.;
Round steak, 60—65c*pundið.
Sausage 40—45c pd. Hænsni og
Turkey 65—70c pd; Bacon 65—
75c pd. Rjómi $1.80 mörkin;
mjólk 34c potturinn.
Appelsínur 1.00 dús.; epli 80c
dús.; carrot 18c pd.; kál 15—20c
pd. Sykur 12c pd. Smjör (að-
flutt) 85c pd. Soft coal $24.50,
hard coal $30.00 tonnið.
Kaffi og te seðlar T38 og
smjörseðlar 72-23 gengu í gildi
10. ágúst.
Spurningum á íslenzku svarað
á ísl. af Mrs. Albert Wathne,
700 Banning St., Winnipeg, Man.
liornp M.olP
Höfum 465 sveita kornhlöður og
165 kolaskýli í Manitoba og
Saskatchewan.
ÚR BRÉFI VESTAN
AFSTRÖND
“-----17. júní Heimskringla,
er meistaraverk hjá ykkur og
gott ef ekki einstætt í íslenzkri
blaðamensku, austan hafs og
vestan. Þökk sé öllum þeim,
sem þar eiga hlut að máli. Það er
sómi okkur Vestur-íslendingum,
hversu blaðið hefir þroskast að
anda og útliti undir þinni rit-
stjórn. Og það er, finst mér,
skylda hvers einasta íslendings,
að tryggja framtíð Heims-
kringlu. Hún hefir spunnið einn
sterkasta þáttinn í þjóðlífi vor
Vestur-lslendinga, en aldrei eins
jafn auðsæilega eins og nú í
seinni tíð.”
BORGIÐ HEIMSKRINGLU—
því gleymd er goldin skuld
S T ö K U R
Hver einn bjóði hluttekningar
Hjartað góða er sorgir stinga,
Meðan óða ilska þvingar
Allra þjóða vesalinga.
Örlög þjóða eru að sjá
Öll í blóði þegin.
Heljar-slóðum æða á
Yfir bróður veginn.
Auðs og valda vitfirring
Verður út að loga,
Svo um alda sjónar-hring
Sjái friðar-boga.
Verðlaun
Það var fyr í samning sett,
Svo þó málið reifi:
Eitthvað sem að ei var rétt
En samt skálda leyfi.
Oft var skýrð á eina hlið
Og ekki mentun sönnuð.
Ef þú snýrð því eitthvað við
Er sú prentun bönnuð.
Skinn-skifti í skálda gáska
Það er vandi að skifta um skinn
Og skerðir þína æru,
Ef að kæmist eitthvert sinn
Úlfur í sauðar gæru.
J. O. Noraian
Handritið Lorna Doone
ágæt saga, 700 til 800 bls. í
söguformi, til sölu — $100 út í
hönd eða $10 á mánuði.
Jóhannes Eiríksson
»SUCCESS«
• Winnipeg’s largest, most modern, and most beautifully appointed private
Commercial College.
• Winnipeg’s only air-conditioned, air-cooled Cómmercial College.
• In Day Classes, eníolls only students of Grade X, Grade XI, Grade XII,
or University standing.
• Provides its students with:
(a) Independent graduation examinations set and marked by the
Business Educators' Association of Canada.
(b) A large staff of expert instructors many of whom are University
Graduates.
(c) The service of an active Employment Department, which co-oper-
ates closely with the placement office of National Selective Service.
FALL TERM
OPENS
MONDAY, AUGUST 21st
As our system of persorial and group instruction permits students to commence
right at the beginning of each subject, you may enroll for Day or Evening Classes
at any time, but we suggest the weeks commencing:
MONDAY, AUGUST 28th MONDAY, SEPTEMBER llth
TUESDAY, SEPTEMBER 5th MONDAY, SEPTEMBER 18th
For our Fall Term we have already received many advance registrations from near
and far-distant points in Western Canada. To reserve your desk, write us, call at
our office, or telephone. Ask fot a copy of our illustrated Prospectus, with which
we will mail you a registration form.
TELEPHONE 25 843
PORTAGE AVE. AT EDMONTON ST., WINNIPEG