Heimskringla - 30.08.1944, Blaðsíða 3

Heimskringla - 30.08.1944, Blaðsíða 3
WINNIPEG, 30. ÁGÚST 1944 HEIMSKRINGLA 3. SIÐA mikla og góða starf í sambandi við þetta. Þá var næst beðið um skýrsl- ur frá formönnum milliþinga- nefnda. Miss S. Vídal, formaður “Friendly Links” nefndarinnar í sinni skýrslu sagði frá því, að vegna stríðsins hafi ekki eins mikið verið gert í þessu máli, en samt að “Friendly Links” væri til ánægju og uppbyggingar fyr- ir hvern sem sinti því. Miss H. Kristjánsson, for- maður “Post Office Mission” nefndarinnar, sagðist hafa reyni það sem hún hefði getað að út- býta bæði frá A. U. A. og Gen. Alliance miðum og bæklingum. . Þá skýrði forseti frá að það hafi verið tekið upp á nefndarfundi Sambandsins að kaupa tilhlýði- legar bækur og senda drengjun- um okkar fyrir handan hafið. Mrs. E. J. Melan, formaður “Religious Education” nefndar- innar, byrjaði sína skýrslu með því að lesa fallegan sálm. Skýr- sla hennar var mjög fullkomin, lýsti hún starfi og sögu trúmála- fræðslu nefndarinnar. Hún lagði áherzlu á uppeldismálið og hvað nauðsynlegt það væri áð skapa heimili, þar sem trúárlegur grundvöllur sé gefin hverju ein- asta barni á meðal vor. Hún sagði frá því, að General Alliance hafi tekið upp á stefnuskrá sína þessa áskorun, og hafi stofnað nefnd, er hefir það hlutverk að sjá um trúarlega fræðslu á heim ilunum. Að Gen. Alliance hafi látið gefa út mjög góð smárit í þessum tiigangi, og sent þau til allra kvenfélaganna. Einnig sagði hún að Gen. Alliance hafi líka hjálpað til að stofnsetja fé- lagsskap trúarbragðar fræðslu og “Parents Teacher’s Assn.” og námsstundir fyrir foreldra, og stofnsett mæðrafélag í þessum tilgangi, svo skýrði hún frá því hvernig ætti að fara að því að stofna mæðrafélög, og að nefnd trúmálafræðslu hafi gefið bóka- kistu með 17 bókum til Samb. íslenzkra frjálstrúar kvenna, með þeim skilyrðum, að mæðra- félög séu stofnuð. Að endingu sagðist hún leggja til: 1. Að skrifarinn okkar riti Mrs. Paul Chapman forstöðu- konu trúmálafræðslu nefndar- innar og þakki henni fyrir þessa höfðinglegu gjöf. 2. Að hvert kvenfélag kjósi forstöðukonu trúmálafræðslu, og sendi nafn hennar til ritara sam- bandsins. 3. Að þau félög sem hafa á meðlimaskrá sinni ungar mæð- ur, eða ef þær eru í söfnuði fé- lagsins, stofni mæðrafélag. 4. Að stjórnarnefnd Sam- bandsins reyni að gefa eina bók á ári til hvers kvenfélags. Þessar tillögur voru ræddar og síðan samþyktar. Mrs. G. Árnason, formaður “Cheerful Letter” nefndarinnar, skýrði frá því, að hún hafi skrif- að nokkrum hermönnum og sent þeim bókina “Think of These Things” og að hún hafi skrifað saiphygðarbréf til þeirra sem hafi mist sína í stríðinu, og hún biður konur, sem eru formenn þessarar nefndar í hverju kven félagi, og einnig kvenfélög sem hafa ekki þennan formann, að skrifa þeim sem missa ástvini sína. Mrs. S. E. Björnson, formaður “Social Service” nefndarinnar, sagði að hennar vinna hafði verið mest fyrir Sumarheimilið, og í þágu stríðsins, og að öll kvenfé- lögin hafi unnið vel og dyggiiega að þessum málum. Var þakkað fyrir allar þessar skýrslur. Tillaga Miss K. Benson, studd af Mrs. J. B. Skaptason, að við höldum áfram eins og að undan- förnu að reyna eftir megni að vinna að líknarstarfsemi í sam- bandi við stríðið. Samþykt. ■ Forseti sagði frá því að útför Dr. B. J. Brandson yrði eftir miðdag og hvort það væri ekki tilhlýðilegt að Sambandið sendi Mrs. Brandson samúðar skeyti. Tillaga Mrs. J. B. Skaptason studd af Mrs. Gísli Jónsson, að við sendum ekkju og fjölskyldu Dr. Brandsonar samúðarskeyti. Fundi var frestað til sunnu- dagsmorguns kl. 9.30. Samkoma Sambandsins var sett í Sambandskirkjunni í Winnipeg laugardaginn 24. júní kl. 8 að kveldinu. Skemtiskrá: T. Ávarp forseta Mrs. S. E. Björnson; 2. Piano solo, Miss Thóra Ásgeirson; 3. Söngur, nokkrar ungar stúlkur; 4. Ræða: Hlutverk kvenna í frið- arstarfi framtíðarinnar, Mrs. E. L. Johnson; 5. Upplestur, Mr. Ragnar Stefánsson; 6. Einsöngur, Mr. Pétur G. Magnús. Ó guð vors lands og God Save the King. Var að öllu þessu gerður góð- ur rómur. Forseti þakkaði öll- um er hlut áttu að samkomunni fyrir góða skemtun. Fundur var settur aftur á ný sunnudagsmorguninn kl. 9.30. Mrs. S. E. Björnson flutti stutta bæn. Gjaldkeri, Mrs. P. S. Pálsson, las upp fjárhagsskýrslu Sam- bandsins. Inntektir á árinu voru $128.70 Útgjöld ______________ 39.13 Peningar á banka —....... $ 89.57 Einnig las hún skýrslu Sumar- heimilisins: Inntektir $1,461.26 Útgjöld __________________ 1,117.10 1 sjóði ____________ $ 344.16 Gjafir í Blómasjóðinn á árinu voru $495.25. Tillaga Mrs. Melan studd af Mrs. G. Árnason, að fjárhags- skýrslan sé samþykt. Samþykt. Því næst lásu erindsrekar skýrslur sínar: Árnes skýrslu las Mrs. Guðrún Johnson; Árborgar skýrslu las Mrs. S. O. Oddleifson; Piney skýrslu las Mrs. B. Björn- son; Oak Point skýrslu las Mrs. Björg Björnsson; Winnipeg skýrslu las Mrs. Ó. Pétursson; Lundar skýrslu las Mrs. Björg Björnsson; Riverton skýrslu las Mrs. H. Thorvarðarson; Gimli skýrslu las skrifari; Langruth skýrslu las skrifari. • Allar skýrslurnar sýndu, að öll kvenfélögin, auk þess að styrkja söfnuðinn, hefðu starfað að líknarstarfsemi, sent bæði föt og peninga til hjálpar Rússlandi, hjálpað Rauða Kross starfsem- inni o. fl. Öll gáfu til Sumar- heimilsins og sumt af kvenfélög- unum lögðu peninga í minning- arsjóð Mrs. W. J. Lindal. Mrs. Gísli Jónsson þakkaði fyrir þessar greinilegu skýrslur og gerði tillögu að þær væru samþyktar, var það stutt og sam- þykt. Mrs. J. B. Skaptason þakkaði kvenfélögunum fyrir það sem þau hefðu lagt í minningarsjóð Mrs. Lindal. Með skýrslunni frá Langruth var lesið bréf frá Mrs. Þóru Finnbogason, þar sem hún lýsti nákvæmlega frá byrjun starf- semi frjálstrúar stefnurtnar í Langruth, og í hvaða horf það væri komið nú. Þetta mál var rætt um stund, þá gerði Mrs. J. B. Skaptason tillögu, sem var studd af Mrs. G. Árnason, að skrifara sé falið að skrifa Mrs. Finnbogason, hug- hressandi, vingjarnlegt bréf. Samþykt. Tillaga Mrs. E. J. Melan, studd af Mrs. Gísli Jónsson, að bréfið frá Mrs. Finnbogason verði lesið á aðalþinginu. Samþykt. Þar næst las skrifari Sumar- heimilis nefndarinnar, Miss S. Vídal, skýrslu Sumarheimilisins á Hanusum. Sagði hún að 1 ágúst s. 1. boðaði stjórnarnefnd Kvennasambandsins stjórnar- nefnd Sumarheimilisins á fund að sumarbústað Miss Margrétar Pétursson, Gimli, Man. Verkefni fundarins var að ræða um löggildingu Sumar- heimilisins, og samþykti fundur- inn, eftir langar umræður, að löggilda Kvennasambandið. Forseti Kvennasambandsins skýrði frá því að Mr. Árni Eggertson væri reiðubúinn að taka að sér að löggilda samband- ið án þess að setja neitt fyrir lög- mansstarf sitt við það verk. Var því boði tekið með þökkum. Fundurinn kaus því næst 5 manna nefnd til að starfa með Mr. Eggertson að þessu verki: Miss Margrét Pétursson, Mr. S. Thorvaldson, Dr. L. A. Sigurðs- son, Mrs. S. E. Björnson og Miss Sigurrós Vídal. Þetta er mikið starf og hafa þau Miss Pétursson og Mr. Eggertson gert alla vinn- una. Sömu nefndinni var einn- ig falið að draga upp lög fyrir Blómasjóð Barnaheimilisins. — Miss Pétursson hefir annast um það. Þann 20. febr. 1944 var stjórn- arnefndarfundur Sumarheimilis- ins haldin að heimili Mrs. Ó Pétursson, 123 Home St., Winni- peg, Man. Fundurinn ákvað að starf- rækja heimilið þetta komandi sumar, og að taka á móti ung- mennafélaginu eftir 20. ágúst og selja þeim máltíðir, 30c máltíð- ina eins og í fyrra. Ritara var falið að biðja Hannes Péturson að senda mann til að gera við Sumarheimilið. Dr. L. A. Sig- urðsson var falið að kaupa ofn fyrir heimilið. Forseti minti á að brunnurinn lægi fyrir skemd- um, og var skrifara falið að rita sveitarráði Bifröst og biðja það að gjalda helming þess kostnað- ar sem á félli við viðgerð brunns- ins. Sveitarritari svaraði bréfi skrifara og benti henni á að leita til trjágarðsnefndar, Gísla Sig- mundssonar og G. O. Einarsson- ar, þeir hefði $25 sem veittir hefðu verið í þeim tilgangi að gera við brunninn. Þá var talað um að nauðsyn- legt væri að fá “telephone” í heimilið og það að mínu áliti nauðsynlegt sem allra fyrst. — Ennfremur var rætt um að mikil skemtun væri að fá “radio” í heimilið og saumavél væri þarf- legt að fá og þyrfti að koma þvi i framkvæmd. Var Miss Vídal þakkað fyrir þessa ágætu skýrslu. Mrs. Melan óskaði þess að eitt- hvað af konunum væru á nám- skeiði Sumarheimilisins. Þá gaf Mrs. Gísli Jónsson eft- irfarandi skýrslu um Brautina og útgáfumálin: Á ársþingi Hins sameinaða kirkjufélags, sem haldið var á Gimli í fyrra sumar, komst það til umræðu, að æskilegt væri, ef möguleikar leyfðu, að gefa út kirkjurit á komandi ári. Var stjórnarnefnd kirkjufélagsins falið að ráða fram úr því hvort slíkt fyrirtæki væri framkvæm- anlegt. Á kvennaþinginu vöktu tvær konur máls á því, að ef að kirkju- rit yrði gefið út, væri það mál- efnum Sambandskvenfélögunum styrkur að fá svolítið rúm í rit- inu. Um miðjan janúar í vetur sem leið, tilkynti forseti kirkjufé- lagsins mér að kirkjufélags- nefndin hefði ákveðið að gefa út ritið á kostnað og ábyrgð kirkju- félagsins. Einnig hafði nefndin samþykt að ætla málefnum Kvennasambandsins nokkurt rúm í ritinu án þess að biðja konurnar um þátttöku í útgáfu- kostnaði á þessu ári, því ef að rit- ið seldist vel, bæri það sig. Þá skýrði forseti mér einnig frá því, að eg hefði verið útnefnd í rit- nefndina og útgefendur bæðu mig um að hafa umsjón með deild Kvennasambandsins í rit- inu. Þótt mér væri um og ó að tak- ast þetta verk á hendur, lofaðist eg þó til að gera það, þar tii frekari ráðstafanir yrðu gerðar á næsta þingi Sambands kvenfé- laganna. Á stjórnarnefndarfundi Kv.- sambandsins sem haldin var að heimili mínu 27. jan. í vetur, lagði eg þetta mál fyrir fundinn. Létu nefndarkonur ánægju sína í ljósi yfir þessum ráðstöfunum og samþykti fundurinn þær. — Einnig það að greiða fyrir sölu kirkjuritsins og að ráðstafa út-j gáfu máli kvennadeildarinnar á komandi þingi. Nú er Brautin komin út og reyndi eg að halda til haga fé- lagsmálum Sambandskvenfélag- anna, eftir því, sem ástæður leyfðu og tími gafst til. Tillaga Mrs. Björg Björnsson, studd af Mrs. J. B. Skaptason, að við þökkum Mrs. Guðrúnu F. Jónsson hjartanlega fyrir að hafa haft umsjón og ritstjórn að þeim hluta er Kvennasambandið hef- ir gefist kostur á að taka þátt í með útgáfu kirkjufélags ritsins Brautin. Samþykt. Mrs. Jónsson þakkaði fyrir velvildina og traustið sem hefir verið sýnt í orðum og lófaklappi. Því næst fóru fram kosningar og voru þessar kosnar í stjórnar- nefndina: Forseti: Mrs. E. J. Melan, Riverton; Vara-forseti: Mrs. J. B. Skaptason, Winmpeg; Skrifari: Mrs. S. O. Oddleifson, Árborg (endurkosin); Bréfritari: Miss K. G. Benson, Gimli, (end- urkosin); Féhirðir: Mrs. P. S. Pálsson, Winnipeg (endurkosin); Fjármálaritari: Mrs. G. Árnason, Winnipeg; Meðráðendur: Mrs. H. von Renesse, Árborg, Miss M. Pétursson, Winnipeg (endurk.), Miss S. Vídal, Winnipeg, (end- urk.). Yfirskoðunarmenn: Mrs. B. Stefánsson, Winnipeg, Mrs. B. E. Johnson, Winnipeg (endurkosn- ar). Formenn milliþinganefnda: Friendly Links: Miss S. Vídal, Winnipeg, (endurk.); Cheerful Letter: Mrs. S. Björnson, Winni- peg; Religious Education: Mrs. H. Thorvarðarson, , Riverton; Social Service: Mrs. S. E. Björn- son, Árborg (endurk.); Post Office Mission: Miss H. Krist- jánson, Winnipeg (endurkosin). Tillaga Mrs. J. B. Skaptason, studd-af Mrs. E. J. Melan, að Mrs. S. E. Björnson sé gerð að Frh. á 7. bls. WARTIME PRICES AND TRADE BOARD “voucher” hjá Local Ration Board, en mér var sagt að eg hefði ekki nóg af seðlum, samt voru margir seðlar í bókinni sem eg kom með. Hvernig gat þetta verið? Svar: Seðlarnir í bókinni þinm hafa enn ekki verið gengnir íj gildi. Þessi “vouchers” fást ekkr nema með gildum seðlum. Það er aldrei hægt að taka út á seðla fyrirfram. Spurt: Hvar fæst veiðimanna- leyfi til að kaupa skotfæri? Svar: Hver og einn verður að sækja um leyfi á Local Ration Baord skrifstofunni í sínu bygð- arlagi. Spurt: Er grapefruit safi skamtað? Svar: Nei. Grapefruit safi hefir aldrei verið skamtaður. • Sykurseðlar 40—41 ganga í gildi 31. ágúst. Smjörseðlar 70—71 falla úr gildi 31. ágúst. • Spurningum á íslenzku svarað á ísl. af Mrs. Albert Wathne, 700 Banning St., Winnipeg, Man. FRÉTTIR FRÁ ÍSLANDI Emil Thoroddsen látinn Emil Thoroddsen tónskáld lézt í Landakotsspítalanum aðfara- nótt föstudagsins s. 1. Hann hafði legið þar sjúkur skamma hríð. Emil var sonur hinna kunnu hjóna, Þórðar læknis Thorodd- sen og Önnu Pétursdóttur Guð- johnsen. H'ann var 46 ára að aldri, er hann lézt, og var löngu þjóðkunnur maður fyrir tónlist- arstörf sín. —Tíminn, 11. júlí Skeytaskifti forseta Islands og Bandaríkjanna Forseti Islands, herra Sveinn Björnsson, sendi herra Franklin D. Roosevelt, forseta Bandaríkj- anna þetta skeyti í tilefni af þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna: “1 tilefni af sjálfstæðisdegi Bandaríkjanna er mér ánægja að því, að senda yður og þjóð yðar hjartanlegar kveðjur frá ís- lenzku þjóðinni og mér sjálfum. Vér erum allir þakklátir yður og þjóð yðar fyrir vináttu í garð Is- lands, ekki sízt í sambandi við stofnun lýðveldisins. Um leið get eg fullvissað yður um að Islend- ingar meta mjög samskiftin und- anfarin 3 ár við Ameríku, við fulltrúa yðar hér á landi og ame- ríska herinn. Að lokum sendi eg beztu óskir mínar um heill og heilsu yður sjálfum til handa. Sveinn Björnsson.” Frá forseta Bandaríkjanna barst forseta Islands þetta svar- skeyti: “Eg met mikils kveðjur yðar á þ j óðminningardegi sjálfstæðis Bandaríkjanna, og þakka yður vinsamleg ummæli yðar um hið einlæga samband, sem ríkir milli íslenzku þjóðarinnar og þeirra borgara þessa lands, sem nú dvelja á íslandi. Eg er sann- færður um að þau bönd, er tengja lýðveldi okkar, muni enn styrkjast á árunum eftir að sigur hefir unnist og sá ameríski her, sem nú er á Islandi, snýr aftur hingað með endurminningar um alúð og gestrisni, sem íslenzka þjóðin hefir ávalt sýnt honum. Franklin D. Roosevelt.” —Vísir, 12. júlí. Te og kaffi seðlar Allir te og kaffi seðlar í skömt- unarbók nr. þrjú falla úr gildi 31. ágúst, samkvæmt ákvörðun skömtunardeildar W. P. & T. B Eftir þann dag verða engir seðlar meðteknir fyrir te eða kaffi nema grænu T-seðlarnir í bók nr. fjög- ur. Kaupmönnum og öðrum sem verzla með kaffi og te verða gefnar tvær vikur til þess að kaupa út á alla seðla frá númer 14 til 29 og E-1 til E-6, og auka viku til þess að skila af sér seðl- unum eða leggja þá inn á seðla “banka.” Niðursoðið Grapefruit Niðursoðið grapefruit í gler ílátum er ekki skamtað sem stendur og fæst án seðla þangað til 15. okt. Þessi breyting var gerð til þess að kaupmenn gætu selt allar fyrirliggjandi birgðir áður en nýja uppskeran kemur á markað. Eftir 15. okt. verður skemturinn sami og áður, þ. e. a. s. einn sætmetisseðill fyrir hverj- ar tuttugu únzur. Þetta skömtunarhlé á aðeins við niðursoðið grapefruit í gler- ílátum. Spruningar og svör Spurt: Mig langar til að fá nokkur herbergi í húsinu sem við búum í, máluð og pappíruð. Eru engar reglugerðir í leigulögun- um sem eigendur verða að fylgja í þessu sambandi? Svar: Nei. Spurt: Er hægt að fá sérstaka seðla til þess að kaupa te og kaffi eða sykur til þess að senda til hermanna sem eru handan hafs? Svar: Nei, því miður er þetta ekki mögulegt. Spurt: Eg ætlaði að skifta sæt- metis seðlum fyrir hunangs INNKOLLUNARMENN HEIMSKRINGLU A ISLANDI Reykjavík------------Björn Guðmundsson, Reynimel 52 ICANADA Antler, Sask........................K. J. Abrahamson Árnes, Man.......................JSumarliði J. Kárdal Arborg, Man..........................G. O. Einarsson Baldur, Man..................... Sigtr. Sigvaldason Beckville, Man......................Bjöm Þórðarson Belmont, Man.............................G. J. Oleson Brown, Man,..._................. Thorst. J. Gíslason Cypress River, Man..................Guðm. Sveinsson Dafoe, Sask—..........................s. S. Anderson Ebor, Man..........................K. J. Abrahamson Elfros, Sask..................Mrs. J. H. Goodmundson Eriksdale, Man...................... Ólafur Hallsson Fishing Lake, Sask..—.....—..................Jtósm. Árnason Foam Lake, Sask..................... Rósm. Árnason Gimli, Man.............................K. Kjernested Geysir, Man..........................Tím. Böðvarsson Glenboro, Man...............................G. J. Oleson Hayland, Man.........................Sig. B. Helgason Hecla, Man.............................Jóhann K. Johnson Hnausa, Man............................Gestur S. Vídal Innisfail, Alta...................Ófeigur Sigurðsson Kandahar, Seisk..................... S. S. Anderson Keewatin, Ont.......................Bjarni Sveinsson Langruth, Man...................—....Böðvar Jónsson Leslie, Sask....................................Th. Guðmundsson Lundar, Man.......................... D. J. Líndal Markerville, Alta............. :.._ófeigur Sigurðsson Mozart, Sask..........................S. S. Anderson Narrows, Man.............................S. Sigfússon Oak Point, Man......................Mrs. L. S. Taylor Oakview, Man........................-....S. Sigfússon Otto, Man.........................—Hjörtur Josephson Piney, Man...............................S. V. Eyford Red Deer, Alta....................-Ófeigur Sigurðsson Riverton, Man..._.,.................Einar A. Johnson Reykjavík, Man.........—.............Ingim. Óleifsson Selkirk, Man..........................S. E. Davidson Silver Bay, Man.......................Hallur Hallson Sinolair, Man......................K. J. Abrahamson Steep Rock, Man.........................Fred SnædaJ Stony Hill, Man..—......................Bjöm Hördal Tantallon, Sask........_...:--------..Árni S. Árnason Thornhill, Man....................Thorst. J. GLslason Viðir, Man.....—.......................\.ug. Einarsson Vanoouver, B. C....................Mrs. Anna Harvey Wapah, Man............................Ingim. Ólafsson Winnipegosis, Man...........................S. Oliver Wynyard, Sask......................T..S. S. Anderson í BANDARIKJUNUM Bantry, N. Dak.......................J. Breiðfjörð Bellingham, Wash................Mrs. John W. Johnson Blaine, Wash.....................Magnús Thordarson Grafton, N. Dak..................... Ivanhoe, Minn....................JMiss C. V. Dalmann Milton, N. Dak..........................JS. Goodman Minneota, Minn....................Miss C. V. Dalmann Mountain, N. Dak.----------------------- C. Indriðason Nationail City, Calif....John S. Laxdal, 736 E. 24th St. Point Roberts, Wash.....................Asta Norman Seattle, Wash.......J. J. Middal, 6723—21st Ave. N. W. Upham, N. Dak-------------------------E. J. Breiðf jörð The Viking Press Ltd. Winnipeg Manitoba v

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.