Heimskringla - 13.09.1944, Page 1
We recommend for
your approval our
//
BUTTER-NUT
LOAF
//
CANADA BREAD CO. LTD.
Winnipeg Phone 37 144
Frank Hannibal, Mgr.
-+
We recommend for
your approval our
" BUTTER-NUT
LOAF"
CANADA BREAD CO. LTD.
Winnipeg Phone 37 144
Frank Hannibal, Mgr.
T
LVIII. ÁRGANGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 13. SEPT. 1944
NÚMER 50.
Forseti Islands kemur til New York
Eftir Bjarna Guðmundsson
blaðafulltrúa utanríkisráðuneytis Islands
Forseti og föruneyti
Eftir hádegið sunnudaginn 27.
ágúst hafði hópur íslendinga
safnast saman á LaGuardia-flug-
vellinum í New York til að fagna
forseta Islands, sem væntanleg-
ur var flugleiðis frá Washington,
þar sem hann hafði verið gestur
Bandaríkja forseta í Hvíta hús-
inu.
Laust eftir klukkan 2.30 sveif
silfurvængjuð farþegaflugvélin
niður á völlinn. Út úr vélinni
stigu forseti Islands, hr. Sveinn
Björnsson, utanríkisráðherra Is-
Islands, hr. Vilhjálmur Þór,
sendiherra íslands í Washington,
herra Thor Thors, og frú Ágústa
kona hans, forsetaritarinn, hr.
Pétur Eggerz, og blaðafulltrúi
utanríkisráðuneytisins hr. Bjarni
Guðmundsson, sem báðir höfðu
komið með forseta og ráðherra
að heiman, sendiráðsritarinn í
Washington, hr. Henrik Sv.
Björnsson, sonur forsetans, og
kona hans frú Gígja, ungfrú
Elísabet Sv. Björnsson, dóttir
forseta, dr. Edward Thorlakson
starfsmaður U. S. O. W. I., Jakob
Jónsson fylgdarmaður forseta og
loks fjórir Bandaríkjamenn, sem
verið höfðu sérstakir förunautar
forseta á ferðalaginu, Kimble
brígadhöfðingi, Baltazzi flota-
kapteinn, Raymond Muir full-
trúi í utanríkisráðuneyti Banda-
ríkjanna og Mr. Newkirk aðstoð-
armaður hans.
Móttökurnar í New York
Dr. Helgi P. Briem aðalræðis-
maður Islands og hr. Fiorello La-
Guardia borgarstjóri í New York
tóku á móti forseta um leið og
hann var stiginn á land, en frú
Doris Briem leiddi fram dóttur
sína tvævetra, sem rétti forseta
forkunnarfagran blómvönd. Eld-
ingar virtust á lofti sindra með-
an blaðaljósmyndararnir tóku
myndir í óða önn af íorseta
minsta ríkis heimsins, er þrýsti
hönd hins dökkleita og þéttvaxna
borgarstjóra stærstu borgar í
veröld. Síðan kynti aðalræðis-
maður yfirmann sinn utanríkis-
ráðherrann fyrir borgarstjóra,
og gafst nú nokkurt ráðrúm til
að líta yfir þann fríða og mynd-
arlega hóp íslendinga, sem kom-
ið höf-ðu víða að til að fagna for-
seta og ráðherra.
ið heima, hver í sínu starfi og eru
mér mjög kærir vinir, sérstak-
lega Valdi (Lt. K. V. Björnson,
U.S.N.), sem enn starfar í
Reykjavík. Richard kynnir mig
fyrir tröllauknum manni og
virðulegum. “Ekki er á hann
logið,” hugsa eg. (Thor sendi-
herra kallar hann víkinginn).
“Eg átti að skila kveðju frá
Valda,” segi eg. “Nei, þekkir þú
valda?” segir Gunnar, og frú
Ingibjörg kona hans tekur undir.
“Ójá, eg er nú ekki sá eini, sem
þekki Valda,” svará eg. “Það er
fljótlegra að telja hina upp, sem
ekki þekkja hann.” En tíminn
er ekki nægur til mikilla orða-
skifta að sinni, því að nú á að
halda af stað inn í borgina. En
eg heilsa í flýti upp á dr. Árna
Helgason ræðismann og konu
hons, prófessor Sveinbjörn
Johnson og konu hans, Guðmund
dómara Grímsson, dr. Stefán
Einarsson, Gretti ræðismann Jó-
hannsson, séra Valdimar Ey-
lands, Hannes Péturson og
“kollega” mína Einar Pál Jóns-
son Lögbergs-ritstjóra og Stefán
Einarsson Heimskringlu - rit -
stjóra og fleiri Islendinga að
heiman en nöfnum tjáir að
nefna.
Ræða forseta
Þá tók til máls forseti íslands
og hyltu veizlugestir hann með
því að rísa úr sætum og með,
langvarandi lófaklappi. Létfor-|
seti í ljósi hina miklu ánægju,
sína yfir því að vera nú staddur í
hópi landa sinna vestan hafs og
kvað þessa för sína hið mesta
æfintýri, er verða myndi sér með ^
öllu ógleymanlegt. Mintist hann '
síðan fagurlega íslenzku þjóðar-|
innar austan hafs og vestan; lýsti [
því með áhrifamiklum orðum, j
hver hátíðarhugur og hrifningar,1
út af lýðveldisstofnuninni, nú
býr með íslenzku þjóðinni. —•!
Kvaðst hann hafa orðið þess eft- j
irminnilega var á nýafstaðinni
ferð sinni víðsvegar um landið. j
Sagði hann að sér hefði fundist í
hinum ágætu viðtökum alstaðar
á landinu og hátíðahöldum eins
og þar væri um að ræða fram-j
hald af 17. júní hátíðinni á Þing-,
velli og þeim anda þjóðarinnar,
er þar hefði ríkt.
Hið sama kvað hann sér finn-
ast á þessari fagnaðarstundu
meðal landa sinna í Vesturheimi. j
Þakkaði hann Þjóðræknisfélag-j
inu starf þess, í þágu Islands og j
Vestur-lslendingum í heild sinni j
ræktarsemina til ættlands síns j
og ættþjóðar. Kvað hann það
sárast að þurfa að flýta för sinni j
svo mjög að eigi ynnist tími til
að heimsækja bygðir Islendinga
Mynd þessi var tekin í Hvíta húsinu við samræður þeirra Roosevelts forseta og Sveins
Björnssonar, forseta íslands — 24. ágúst s. 1.
Fjölmenni landa
Skal þá fyrst frægan telja dr.
Richard Beck, forseta Þjóðrækn-
isfélagsins, sem kominn var frá
Grand Forks til að þakka komu-
mönnum fyrir síðast, því að eigi
var fullur mánuður liðinn, frá
því hann kvaddi ísland eftir
tveggja mánaða dvöl á vegum ís-
lenzku stjórnarinnar, en hann
hafði verið gestur íslendinga á
fullveldishátíðinni. Þegar Rich-
ard hafði heilsað forseta og ráð-
herra, kom hann kíminn í bragði
til mín og þakkaði mér fyrir síð-
ast, og var mér það óblandin á-
nægja að heilsa þeim ágæta vini
mínum, sem eg get næstum kall-
að gamlan vin, þótt við höfum
ekki þekst nema tæpa þrjá mán-
uði. En þessháttar menn finst
manni sem maður hafi þekt alla
æfi — ef ekki ofboðlítið lengur.
Svo fórum við að flissa og
spyrja: “Manstu eftir þessu? —
Manstu eftir hinu?” — Og svo
brá hann við snögt og sagði:
“Þekkirð’ ekki Gunnar?” — “Eg
þekki Gunnar,” svaraði eg, “en
eg hef aldrei séð hann.” Gunnar
B. Björnson er nefnilega faðir
f jögurra sona, sem allir hafa ver-
Ekið í borgina
Síðan var ekið með heiðurs-
verði frá flugvellinum til Wal-
dorf-Astoria hótelsins. Fóru
fyrst fjórir lögregluþjónar á bif-
hjólum, er hvert var skreytt ís-
lenzkum og amerískum fána, en
auk þess fánum New York-borg-
ar og New York ríkis. Var það j
hin fríðasta fylking, er fylgdar- j
lið ríkisstjóra og föruneyti lagði j
af stað um götur stórborgarinn- j
ar, og tilkomumikið að sjá ís-j
lenzka fánann blakta þar svo'
víða á stöng.
Svarræða forseta var afburða
snjöll og vel flutt. Mintist hann
' þess að hann hefði komið fyrst
í Vesturheimi. Var ræðu forseta f., ,T x
, . .* * ... ... | til New York fynr 30 arum til að
tekið með miklum fognuði. , . „
j stofna til viðskifta við Bandarik-
Ræða utanríkisráðherra j in. Urðu úr þessu mikil við-
Því næst hélt Vilhjálmur Þór j skifti, sem því miður urðu ekki
utanríkisráðherra mjög sköru-1' til frambúðar. “Slíkt má ekki
Kvöldboð dr. Briem og frúar
Á sunnudagskvöldið héldu þau
dr. Helgi Briem aðalræðismaður
og frú Doris, kona hans, mjög
virðulegt samsæti til heiðurs
forseta íslands og utanríkisráð-
herra í einum af hinum skraut-
legu veizlusölum Waldorf-Astor-
ia hótelsins, og sátu það ein-
göngu íslenzkir gestir og konur
þeirra, en þeir voru þessir, auk
þeirra sem þegar eru upptaldir:
Frú Evelyn og Vilhjálmur Stef-
ánsson, Garðar Gíslason ræðis-
maður og frú, Ólafur Johnson
ræðismaður og frú, Halldór próf.
Hermannsson, Ólafur J. Ólafs-
son, Jón Björnsson, frú María
Markan og George Östlund, frú
Helga og Sveinn Valfells og
Helgi verzlunarfulltrúi Þor-
steinsson.
Helgi aðalræðismaður setti
samsætið og ávarpaði forseta og
utanríkisráðherra með virðu-
legri og skörulegri ræðu. María
Markan óperusöngkona söng ís-
lenzka þjóðsönginn, en séra
Valdimar J. Eylands las' borð-
bæn Undir borðum voru auk
þess þessar ræður fluttar: dr.
Richard Beck mælti fyrir minni
Islands og flutti kveðjur frá
Þjóðræknisfélaginu; Hannes
Péturson flutti kveðjur frá ís-
lendingum í Canada og Vil-
hjálmur Stefánsson kveðjur frá
Norður-Ameríku. Þá tóku einn-
ig til máls Gunnar B. Björnson,
dr. Árni Helgason, Grettir L. Jó-
hannson og Bjarni Guðmunds-
son blaðafulltrúi, sem mintist
sérstaklega vestur-íslenzkra
blaðamanna. Var hinn bezti
rómur gerður að ræðum þessum.
lega ræðu fyrir minni Bandaríkj-, koma fyrir öðru sinni,” sagði
anna og forseta þeirra. Hann forseti.
sagðist minnast með sérstakri á-1 Um sambandið við Norðurlönd
nægju dvalar sinnar í landi þar^fórugt forseta orð á þá leið, að
sem fulltrúi þjóðar sinnar. Hann fsiencjingar teldu sig algerlega
dró athyglina að þeirri merki-'tn norrænna þjóða og myndu
legu þj óðfélagsþróun, sem væri halda því áfram. En hinsvegar
að gerast í Bandaríkjunum, þar myndu þeir leggja alt kapp á að
sem hugsjónir frelsis og fram- vargveita vinsemd allra annara
sóknar sameina hina f jarskyld- ! þjóða.
ustu kynstofna í eina heild. - j Ræðu forseta var SVQ vel fagn.
Hann kvað það vera einlæga ósk ag ag engu yar 1{kara en að ls_
síns íslenzka lyðveldis að eiga lendingar einir hefðu verið þarna
samvinnu við Bandaríkin og aðr- j saman komnir
ar þjoðir, sem unna rettlæti,
frelsi og friði. Var mikill rómur Islendingar heilsa forseta
njóta sómans af því að ykkur
hafi vel tekist.”
gerður
herra.
að ræðu utanríkisráð-
Sendiherra talar
Thor Thors sendiherra hóf þá
máls. Þakkaði hann með fögr-
um orðum íslenzkum kjörræðiS'
Klukkan 5—7 hafði aðalræðis-
maður boðið íslendingum að
koma til fundar við forseta og
ráðherra í móttökusal Waldorf
hótelsins. Þangað komu hátt á
þriðja hundrað manns, konur og
Móttaka hjá LaGuardia
Um hádegisbil á þriðjudag ók
forseti með föruneyti sínu frá
hótelinu áleiðis til ráðhúss New
York-borgar. Þar var saman
komið margmenni mikið, lög-
regluvörður og hljómsveit. Um
leið og forseti, ráðherra og föru-
neyti þeirra stigu út úr bifreið-
unum, lék hljómsveitin íslenzka
þjóðsönginn og hinn ameríska.
Var síðan gengið til einkaskrif-
stofu LaGuardia borgarstjóra, en
þar ávarpaði hann heiðursgest-
ina, einkum forseta. Drap hann
á hina löngu lýðræðissögu Is-
lands, hernámið og hið ágæta
samkomulag, sem ríkt hefði milli
íslendinga og ameríska herafl-
ans. Lauk hann ræðu sinni með
þessum orðum á íslenzku, og var
til þess tekið, hversu skýran og
ljósan framburð hann hafði á
tungumáli, sem vitað er að hann
kann eigi að tala að neinu ráði:
mönnum vel unnin störf þeirra í karlar> gengu fyrir heiðursgest-
þágu íslands og hélt síðan snjalla ina °S ræðismannshjónin og
ræðu fyrir minni Canada. Mint- ÞaSu síðan hressingu.
ist hann þess sérstaklega, hve 1 Síðan bað aðalræðismaður for-
náin bönd væru milli Canada og seta að ávarpa samkomuna og
íslands, vegna þess, hve margirjkvað forseti sér það ljúft. Hann
íslendingar eru búsettir þar í kvað för sína vestur myndi hafa
landi og þakkaði þeim fyrir : orðið fátæklega, ef sér hefði ekki
trygð þeirra við Island og fram- gefist kostur á að heilsa þessum
lag þeirra til canadiskrar menn- frfða hópi. Kvað hann sér það
ingar, og tóku gestir undir mál nú ljósari
j hans með fögnuði.
en áður, hversu ís-
land væri stórt, því að Island
sem íslenzk hjörtu
1 Var síðan staðið upp frá borð- væri þar,
; um, spjallað langa hríð, en sumir j bærðust — og hér fyndi hann
isöfnuðust að hljóðfærinu og íslenzkan anda og hina sömu
sungu íslenzk .lög, og var frú hrifningu er þjóðina hefði gagn-
j María Markan-Östlund eðlilega
\ framarlega í þeim hópi.
j Hádegisverður í Bankers’ Club
j Daginn eftir bauð Thomas J.
Watson, kunnur kaupsýslumað
tekið á þjóðhátíðinni — andann
frá 17. júní. “Mætti sá andi að
eilífu lifa með oss Islendingum”,
lauk hann máli sínu.
Því næst kynti aðalræðismað-
“Herra forseti!
Viljið þér bera kveðjur
fólksins hér í borginni til
þjóðar yðar. Skilið til þeirra
að það beri vinsemdarhug í
brjósti til hennar og óski
henni alls hins bezta.
Lengi lifi hið íslenzka
lýðveldi!”
Tóku viðstaddir undir orð
borgarstjóra, en forseti íslands
tók síðan til máls:
Hið raunverulega gildi þeirrar
herverndar hefði nú komið í-ljós
með hinu ágæta samkomulagi,
sem ríkti milli hers og þjóðar, og
væri það betra en nokkur gæti
hugsað sér milli svo mikils her-
afla og vopnlausrar þjóðar. I
þessu lægju miklar vonir og ósk-
ir um batnandi og styrkta sam-
vinnu, sem um aldir myndi
tengja þjóðirnar tvær. Lauk
hann máli sínu á þessa leið:
“Allir óskum vér þess, Islend-
ingar, að borg þessi megi þróast
og vaxa að vinsæld og hamingju.
Mér þótti það mjög athyglisvert
að þér skylduð ávarpa mig á
minni eigin tungu. En ef ís-
lenzku landnámsmennirnir í
Maine og Massachusetts hefðu
eigi horfið aftur heim, þá hefði
svo getað farið að eg talaði við
yður á íslenzku (hlátur!). En af
því að þetta er í fyrsta sinn svo
vitað sé að borgarstjóri í New
York hafi talað íslenzku, þá er
það ekkert undarlegt þó að vér
Islendingar óskum borgarbúum
í New York allra heilla undir
forystu yðar, herra borgar-
stjóri.”
jur, til hádegisverðar í Bankers’ ur ráðherrann, og mælti herra
Club í New York til heiðurs for- Vilhjálmur fáein orð á þessa
t seta og ráðherra. Voru þar flutt-,lein:
j ar margar afburða snjallar ræð- “Eg vonast til að sjá ykkur öll
j ur af viðstöddum gestum úr hópi aftur heima. Komið þið heim að
helztu kaupsýslumanna borgar- námi og starfi loknu og skýrið
i innar, en auk þeirra voru þarna frá því, sem þið hafið séð í þessu
' margir frægir Bandaríkjamenn, j landi. Skýrið frá öllu því góða,
J svo sem Leahay aðmíráll og Lt. sem þið hgjöð séð í þessu landi.
Richard Barthelmess, aðstoðar- J Skýrið rétt og satt frá, og mun
: foringi hans, herra James A. það heillaríkt fyrir samband
j Farley fyrrum póstmálaráð- Ameríku og íslands. Leyfið ís-
herra, Henry J. Kaiser iðjuhöld- landi að njóta þess, sem þið
í ur o. fl., o. fl. ^hafið lært og látið þetta land
“Herra borgstrajóri!
Ræðu yðar þakka eg af öllu
hjarta. Hún ber hinum sama
vinarhug vitni, er eg hefi orðið
var alstaðar í yðar landi í garð
míns eigin lands.
Þér veittuð oss mikla aðstoð,
þegar við íslendingar tókum þátt
í heimssýningunni í Né?w York.
Fyrir það er mér ánægja að
þakka yður. Forstjóri þeirrar
sýningar hefir beðið mig að
þakka yður einnig fyrir sína
hönd. Hann er staddur hér hjá
mér, því að hann er nú utanríkis-
ráðherra íslands. — Þakklætið
er ekki einungis frá mér, heldur
allri íslenzku þjóðinni, sem vel
kann að meta vinarhug yðar og
hjálpfýsi.”
Drap forseti síðan á samkomu-
lag það, er gert hefði verið fyrir
3 árum um það að Bandaríkin
tækju að sér hervernd íslands.
Hádegisverður hjá forseta
Að þessari móttökuathöfn
borgarstjóra lokinni bauð for-
seti til hádegisverðar á Waldorf
hótelinu. Meðal gesta var utan-
ríkisháðherra og föruneyti for-
seta alt, Richard Beck, Árni
Helgason og frú, Halldór Her-
mannsson, Gunnar B. Björnson
og frú, Grettir L. Jóhannson,
Grettir Eggertson og frú, séra
Valdimar Eylands, Sveinbjörn
Johnson og frú, Guðmundur
Grímsson, Hannes Péturson,
Stefán Einarsson ritstjóri og Ein-
ar Páll Jónsson. Forseti bauð
gestina velkomna með fáeinum
orðum, og að málsverði loknum
kvaddi hann hvern og einn með
handabandi. Stóð máltíðin að-
eins stutta stund, því að innan
skamms þurfti forseti að hraða
för sinni og leggja af stað í fyrsta
áfangann heim til íslands aftur.
Bað hann viðstadda að bera
kveðjur sínar til allra Vestur-
íslendinga, og lýkur þessum lín-
um með hinum sömu kveðjum
frá utanríkisráðhérra, sendi-
herra íslands og frú, forsetarit-
ara og fjölskyduliði og.frá þeim
sem þessar línur hefir hripað,
áður en hann gat gert sér hið
hraða ferðalag að fullu ljóst.