Heimskringla - 15.01.1947, Page 1
«Ve lecommend loi
your approval our
//
BUTTER-NUT
LOAF
//
CANADA BREAD CO. LTD.
Winupeg Phone 37 144
Frank Hannibal, Mgr.
We recommend lor
your approval our
" BUTTER-NUT
LOAF"
CANADA BREAD CO. LTD.
Winnipeg Phone 37 144
Frank Hannibal, Mgr.
LXI. ÁRGANGUR
WINNIPEG, MIÐVTKUDAGINN,, 15. JANÚAR 1947
NÚMER 16.
FRÉTTAYFIRLIT OG UMSAGNIR
Rússar biðja um her-
stöðvar á Spitzbergen
Utanríkismálaráðið í Noregi,
tilkynti s. 1. föstudag, að Sovét-
Rúsisland befi farið fram á “sér-
stök hlunnindi” sér til handa á
Spitzbergen.
1 Londno hafði utanníkisráðið
hugmynd um að krafist hefði
verið af “einhverjum”, herstöðva
'í Norður-íshafinu.
Reuters-fréttastofan reyndi
að fá frekari skýringar á þessu
frá ultanníkisráðunieytinu niorska,
en varð ekki annars vísari en
þess, að stjórnin í Noregi væri
að íhuga að beiðni Rússa, samn-
inginn um Spitzbergen fná 1920.
Sá samningur laut að því, að
leyfa engri þjóð herstöðvar á
Spitzbergen. Skrifaði Canada
með Bretlandi undir þann samn-
ing við Norðmenn.
En eins og kunnugt er, fór
canadiskt, brezkt og norskt her-
lið til Spitzbergen í sept. 1941
og tók þar yfir kolanámurnar,
meðan á síðasta stníði stóð. Og
sá er för þeirri stjórnaði, var
Brig. E. Potts frá Saskatoon. —
Þetta mál kemur því Canada
nOkkuð við.
Standa uppi í hárinu
á Duplessis
Mörg hundruð manns af þeim
trúarflokki, er kallast Jehovh’s
Witnesses, hafa lent í ónáð
stjómarinnar í Quebec, og hefir
hún (stjórnin) borið sakir á með-
limi þessa flokks um að útbreiða
og útbýta bæklingum og alls-
konar pésum.
Fyrir skemstu reis flökkur
þessi upp á móti gerðun og til-
tektum sitjórnar formannsins,
Mr. Duplessis, og útbýttu nýjum
mótmæla-pésum er meðal ann-
ars höfðu inni að halda kveðju
til Mr. Duplessis:
“Þú hefir brugðist þínu eigin
fólki”.
Fyrir útbýtingu á þessum
bæklingum, voru 21. handteknir.
Stefnu um frjálsa fólks-
innflutninga til Canada,
haldið fram
“Ganada ætti að opna dyrnar
meira en í hálfa gátt, hvað inn-
flutning fólks snertir; hún þarfn-
ast miljóna.” Svo fórust Hon.
J. G. Gardiner, akuryrkjumála-
ráðherra orð í Vancouver fyrir
skömmu.
Sagði hann þetta í ræðu, er
hann hólt í “Canadian Club”,
viðvíkjandi borgaralaga brteyt-
ingunni í Canada.
Sagði hann að landsins eina
von væri auknir innflutningar,
ef það ætlaði sér að hálda þeirri
afstöðu ,í heimsmálunum, sem
það hefði nú þegar náð.
“Það er eins nauðsynlega á-
ríðandi fyrir okkur, að bæta við
okkur miljónum, eins og það er
nauðsynlega áríðandi fyrir Ev-
rópu, að losna við miljónir.”
Hann kvað enga leið betri til
að ná nánum og vinsamlegum
samböndum við Evrópu en þá,
að leyfa miljónum manns þaðan
að flytja til Vestur-Canada.
Mr. Gardiner kvaðst hallast að
skoðun J Dermud Sutcliffe, víð-
frægs hagfræðings, er hefði sagt
í Montreal, eftir að hafa kynt sér
Vestur-Canada rækliega: “Land-
ið þarfnast 10,000,000—12,000,-
000 fleiri íbúa, en það hefir, og
margfalt meiri vélakrafts.
Canadamenn sjálfir eru vel
að sér í öllurn iðnaði og akur-
yrkju, en þurfa fleiri sérlfræð-
inga til þess að vinna við vélar.
Ráðherrann varaði þá, er nú
hafa á hendi stjórn fríðinda
landsins, við því, að ef þeir ekki
sæu skýrt fram á hvernig not-
færa skyldi auðsuppsprettur
landsins, þá væri næsta hætt
við því, að einihverjum fyndist
nauðsynlegt, að fela einhverjum
öðrum umsjónina yfir fram-
leiðslunni.
Var það ef till vill tæplega of-
sagt. Hann sagði einnig að iðn-
aður landsins og framleiðsla ætti
ekki að vera í neinum sérstök-
um miðpunkti, heldur dreift
meira yfir vesturhluta landsins,
en nú er.
Húsaleigumálið tekið
til meðferðar í stjórn-
arráðuneytinu
Þrátt fyrir það, þótt margar
sögur hafi borist út um það í
Ottawa, að á hámarksverði húsa-
leigu verði linað hjá stjórninni,
þá neitar verðlagsnefndin,
(W. L. A. B.) því algerlega, að
hún hafi nokkra hugmynd um
slíkar gerðir.
Samt sem áður er það víst, að
hámarksleigu-málið hefir að
lokum komist á dagskrá hjá
stjórnarráðuneytinu, og hafa um
það orðið langar og miklar um-
ræður.
Eftir áreiðanlegum fréttum að
dæma, þá verður engin hækkun
Sem fyrst, að Þýzkaland nái sér
svo efnalega, að það verði að
nokkru sjálfstætt, og verði þar
með minni byrgði fyrir skatt-
greiðendur Bandarikjanna.
Hið annað: Skipulagning
stefnu Bandaríkjastjórnarinnar
gagnvart Argentínu.
Hið þriðja: Hver úrræði
skuli hafa með hið sundurtærtta
Klínaveldi, og beiðni þess um
j $500,000,000 lán úr export-im-
i port bankanum; en það er krafa
samveldaþingsins, að fá ó-
vefengjanlega tryggingu fyrir
því, að þetta lán verði notað til
endurreisnar og umbóta í land-
inu, en ekki til að framlengja
borgara-styr j öld.
Oddhvössum örvum
beint að Churchill
Henry A. Wallace, fyrverandi
meðlimur í stjórnarráðuneyti
Bandaríkjanna, sakar Winston
Churríiill í nýrri útgáfu (rits-
ins) blaðsins, New Republic um
það, að hann tali fyrir hönd víg-
stöðva álls heimsins, og sé að
gera tilraun til að búa til nokk-
urskonar Anglo-American um-
sáturshring utan um Rússland
(Sovét).
Wallace, sem nú er ritstjóri
“New Republic”, heldur því ein.
dregið fram, að ekki sé annað
sýnilegra, en Ghurohill láti svo
á, að það sé meira áríðandi að
fyrirgefa Nazistunum, sem
kveiktu alheims-ófriðarbál,
heldur en að halda áfram sam-
vinnu við Rússa, er með ægileg-
. I
leifð á leigu húsa og fjölhýsa fórnfæringu, styrktu sam-
(apartments) fyr en þá að minsta
kosti á næsta sumri. Ef húsaeig-
eindur fá nokkra ívilnun, þá
verður það svipað og í Banda-
ríkjunum, að hámarksverðinu
verður létt af leigu fyrir ferða-
fólk, svo sem í gistihúsum, ferða-
mannaskálum og því um líkt.
Niðursuðuhús í Winkler
1 bænum Winkler í Mnaitoba
er að rísa upp stóreflis niður-
suðuhús, sem talið er eitt af
stærri iðnaðarfyrirtækjum í
Manitoba.
bandsþjóðirnar til þess að vinna
sigur.
Wallace segir, að Ohurdhi'll
beiti sér auðsjáanlega fyrir því,
að mynda nýtt CMveden set í
Bandaríkjunum. Hann gengur
að því sem vísu, að kjarnorku-
sprengjur okkar og löftvarnir
séu Englandi heimilar, hvenær
sem er.
Að Frakkland og Þýzkaland
muni verja England. England
muni verja Frakkland og Þýzka-
land, — og með Guðs hjálp og
Churchills, muni loftskipafloti
Ávexti, garðmat og kjöt á að Gg kjarnorka Bandaríkjanna
sjóða niður og búa um í dósum;
er gert ráð fyrir að framleiðslan
nemi 5 miljón kössum á ári.
Niðursuðuhúsið á að hafa öll
fullkomnustu áhöld sem með
þurfa til starfsins.
Fyrir lítið þorp ætti auk alls
annars að verða mikil atvinnu-
bót þessu samfara.
Bandaríkin
styrkja svo hans hægri handlegg
að hann geti ávalt haldið honum
á lofti yfir öllum — og öllu.
Bitrustu frosthörkur auka
bágindi lýðsins í Þýzkalandi
; Berlin er hulin þykkri snjó-
I breiðu, sem að vísu dregur úr
I ljótleik og ægilegu útsýni rúst-
anna og eyðileggingarinnar, en
bætir við nýjum erfiðleikum og
Gen. George C. MarShal, hinn hörmungum fyrir hina þjökuðu
nýskipaði ríkisritari, var boð- borg.
aður til Capitol Hill, til þess að A'lUr flutningaF, sem undan-
l’eggja fram stefnur sínar og a* farið hafa nálega staðið á stað,
kvæði í utanrlíkismálum, áður
en hann leggur af stað til Mos-
cow, ti'l að sitja ráðstefnuna
þar.
Senatið staðfesti útnefningu
Mr. Marshals til eftirmanns
James F. Byrnes á mjög hátíð-
hafa nú með öllu stöðvast. Kola-
flutningar sama sem engir —
aðeins um 20 daga forði af kol-
um til í borginni. Raforku-
straumum hefir verið iokað í
hersetusvæðum Rússa, Frakka
og Amerikumanna svo fólk fær
legan og óvanalegan hátt ný- agejns ag nota rafmagn 8 kl.st.
lega, og án allra venjulegra j sóiarhring. á brezka svæðinu
nefndar funda. j eru það 12 kl.stundir, og er talið
Senator Arthur H. Vanden- að útlitið sé þannig að þetta
berg, * forseti senatsins sagði, að ^ muni fremur fara versnandi en
þessi skyndilega og óvanalega batnandi.
innsetning ætti að fullvissa Áæltun sérfræðinga á því
heimipn um það, að þessi breyt-: svigi; er ag 150,000 manns sé nú
ing í ráðneytinu, breytti í engu þegar atvinnulaust, og það á
hlutföllum utanríkismála-stefnu þeim tíma, sem Berlinar-búar
Bandaríkjanna. 'venjulega draga aðeins fram líf-
Þrjú verkefni, er sinna þarf ið, og hafa ekkert í eigu sinni að
sem fyrst, liggja fyrir Mr. Mar- byggja á, eða grípa til.
shal, sem eftirmanni Mr. Byrnes: j Tala atvinnuleysingja er gizk-
Hið fyrsta, hver efni eru fyr- uð á að muni aukast svo mikið,
ir hendi að koma í framkvæmd j að hún komist upp í 300,000 hér
um bil einn tíunda af íbúatolu
borgarinnar. Eins og neyðar-
úrræði, hefir borgarstjórinn
skipað svo fyrir, að atvinnulausu
fólki yrði greiddur sem svarar
þriðji hluti af venjulegum laun-
Um þeirra upp að 56 marks,
($5.60) á viku.
Er það rausnarlegt, ef þess er
gætt, að lögregluþjónn fær að-
eins 220 marks, ($22) á mánuði.
Það er ekki mikið, þegar það
er miðað við verð á vindlingum.
En tíu vinglingar kosta 56 marks
(mörk) í svörtu verzlununum.
Margar borgir í Þýzkalandi
eru þó en þá ver stæðar en Ber-
lin, til dæmis hefir Munich verið
án raforku algerlega, sókum þess
að orkuleiðslan hefir gaddfrosið.
Hamiborg hefir skýrt frá því,
að 17 manns hafi frosið í hel, og
41. veikir af alvarlegri frost-
bólgu. Ruhr, sem er kolafram-
leiðslu stöð landsins, hefir engin
kol til heimilisnota.
0. Max Gardner
Frá Washington berst sú frétt,
að utanríkismálauefnd Senats-
ins, hafi staðfest í einu hljóði út-
nefningu O. Max Gardner, fyrr-
um aðstoðarfjármála-ritara rík-
isins, til þess að gerast sendi-
herra þjóðarinnar á Bretlandi,
og einnig að fyrverandi Senat-
or Warren R. Auistin hafi verið
kjörinn aðalfulltrúi Bandaríkj-
anna í Sambandsþjóðaráðinu, og
fulltrúi í U. N. öryggisráðinu.
ær málið aftur
Það vildi til í Worcester á
Englandi, að Maurice Davis, 24
ára að aldri, er verið hafði mál-
laus í 10 ár (afleiðingar af háls-
sjúkdómi), hrópaði upp, er hann
nálega var búinn að missa aðra
hendina er hann var við vél-
knúða stórsög í verksmiðju, og
Jcomst hann að því, að hann haifði
fengið málið aftur eftir allan
þennan tíma, og talaði og talaði,
þangað til hann var orðinn hás.
FRÉTTIR FRÁ ÍSLANDI
Störfum tólf manna nefndar
innar lokið án árangurs.
Porsætisráðherra Ólafur
Thors flutti í gær tólf manna
nefndinni, sem um meira en
tveggja mánaða skeið hefur ver-
ið að ræða möguleikana á mynd-
un fjögurra flokka stjórnar,
s.vohiljóðandi skilaboð frá forseta
Islands:
“Porseti Islands telur að þær
tilraunir, sem tóif manna nefnd-
inni var ætlað að gera, hafi
reynzt árangurslausar og muni
ekki bera árangur.”
Samkvæmt þessu var störf-
manna nefndarinnar slitið í
gær og mun þess nú, samkvæmt
fyrri yfirlýsingum forseta Is-
lands, ekki nema skammt að
bíða, að reyndar verði aðrar leið-
ir til stjórnarmyndunar.
—Alþbl. 17. des.
★ * ★
Flugfélag íslands hefir flutt
12,000 farþega á árinu
Þegar “Kata” Flugfélags Is-
lands kom frá Akureyri í gær
flutti hún tólf þúsundasta far-
þegan, ^em Flugfélagið hefir
flutt á þessu ári. Hann heitir
Frosti R. Bjarnason. Er komið
var til Reykjavíkur var Frosta
tilkynt, að honum yrði endur-
greitt fargjald hans, þar sem fé-
lagið hefði ákveðið að flytja
hann endurgjaldslaust í tilefni
af því að hann var tólfþúsundasti
farþegi félagsins á þessu ári.
Af þessum 12,000 farþegum
hafa samtals 9570 farþegar flog-
ið á innanlandsleiðum, en 2,430
milli landa í flugvélum F. 1. að
mestu leyti, en þó noikkrir í
leiguvélum félagsins.
Til samanburðar má geta þess,
að árið 1945 flutti F. 1. rúmllega
7,000 farþega alt árið.
—Mbl. 20 des.
» * *
Forseti íslands kominn heim
Sveinn Björnsson, forseti Is-
lands, er nú á góðum batavegi.
Fór hann heim af Landaköts-
spítalanum síðast liðinn laugar-
dag, eftir rúmlega viku legu þar.
—Alþbl. 17. desember.
★ ★ ★
Ólafi Thors falið að
reyna stjónarmyndun
Það varð kunnugt um hádegi
í gær, að forseti Islánds hefði
fa'lið ólafi Thors forsætisráð-
herra að gera tilraun til stjórn-
armyndunar, og forsætisráð-
herrann fallizt á það.
—Alþbl. 19. desember.
* ★ *
Sigurður Einarsson skip-
aður í Holtsprestakall
Séra Sigurður Einarsson hef-
ur verið skipaður sóknarprestur
í Holtsprestakálli í Rangárvaila-
prófastsdæmi frá 1. nóvember
að telja. Var skipunin útgefin
af kirkjumálaráðh. 10. okt. s. 1.
* w *
Alaska eftir Evelyn
Stefánsson á íslenzku
Fyrsta bókin, sem frú Evelyn
Stefánson, kona Vi'lhjálms, skrif-
aði heitir Alaska land og lýður.
Bókin hefir hlotið mikla út-
breiðslu í Bandaríkjunum og
höfundi verið hælt að verðleik-
um af gagnrýnendum. Nú er
bókin komin út á íslenzku í
þýðingu Jóns Eyþórssonar veð-
urfræðings. Má búast við að
marga fýsi að lesa þessa bok og
kynnast landinu, sem fyrir flest-
um stendur í æfintýraljóma og
íbúum þess, hinum frumlegu
Eskimóum.
Evölyn Stefánsson hefir feng-
ið gott tækilfæri til að kynnast
siðum og háttum Alaskabúa.
Hún var um fjölda mörg ár rit-
ari hjá Vilhjálmi Stefánssyni og
skrifaði bækur eftir hans fyrir-
sögn. Frú Evelyn Stefánsson er
prýðilega vel ritfær, skrifar létt
og skemtilega. Ekki þarf að efa,
að Jóni Eyþórssyni hefir tekist
vel þýðingin því auk þess sem
Jón er málhagur maður er hér
um hugðarafrii hans að ræða.
Vilhjálmer Stefánsson skrifar
formála að bókinni og Hákon
Bjarnason skógræktarstjóri
skrifar einnig nokkur formáls-
orð.
Mikill fjöldi ágætra mynda er
í “Alaska”. Hefir prentun þeirra
tekist vel, enda myndamót gerð
eftir frummyndum, en ekki
eftir prentmyndum, eins og
stundum er vani, þegar bækur
eru þýddar úr erlendu máli. Út-
gefandi er Prentsmiðjian Oddi.
Pappdr er góður og allur frágang-
ur eftir því, eftir því sem best
verður séð. t.
Dánarfregn
Kristín Gunnarson, kona Ólafs
Gunnarsonar, andaðist á Betel,
9. jan., s. 1. Hún var fædd 1.
ágúst 1861, að Hraungerðarsókn
í Árnessýslu; hún kom til Can-
ada árið 1887, með foreldrum
sínum, Magnúsi Einarssyni og
Ragnhildi Magnúsdóttir. Kristín
heitin var til heimilis hjá for-
eldrum sínum í milli þess sem
hún vann út, þar til hún giftist
eftirlifandi mann,i slínum, 25.
maí, 1904. Maður hennar og hún
byrjuðu að búa <í Þingvalla ný-
ORÐSENDING
til kaupenda Heimskringlu
og Lögbergs
Útgáfa íslenzku vikublaðanna
vestan hafs, hefir jaifnan verið
ýmis konar vanda bundin, og þá
ekki hvað sízt með hliðsjón af
fjármálunum; þau hafa ttíðum
reynst erfið viðureignar, og
margir, er að útgáfu þeirra hafa
staðið, orðið mikið á sig að
leggja; þó hefir engum blandast
hugur um það, hve mikilvægt,
menningarlegt erindi blöðin hafi
átt, og eigi enn, varðandi þjóð-
rækniismál vor og aðra menning-
arlega starfsemi; þau hafa verið
og eru, hin lífræna taug, er knýtt
hefir saman dreifðar bygðir vor-
ar og einstaklinga, og þau vilja
vinna að því aif alúð í lengstu
lög, að inna 9líka starfsemi af
hendi, að ógleymdu kynningar-
sambandinu við stofnþjóð vora
á Isilandi, sem þau vilja að styrk-
ist því meir, ,sem árin líða.
Þeim, sem blöðin kaupa, og
njóta þeirra till aflesturs, er það
ef til vill ekki nægilega ljóst, hve
kosnaðurinn við útgáfu blaðanna
eykst jafnt og þétt; nægir í því
efni að vitna til þess, að frá því
um byrjun síðasta stríðs, hefir sá
pappír, sem blöðin eru prentuð á
hækkað um helming, en vinnu-
laun hækkað um 25 af hundraði;
þar að auk hafa partar, sem
kaupa verður til aðgerða og end-
urnýjunar vélum, farið síhækk-
andi; þó helzt verð blaðanna ó-
breytt og vafalaust heldur áfram
að gera það.
Margt smátt gerir eitt stórt,
segir hið fornkveðna.
Sú venja hefir fram að þessu
viðgengist, að íslenzk mannifé-
lagssamtök fengi auglýsingar
fyrir lægra verð en aðrir auglýs-
endur, eða fyrir 50 cents á þuml-
unginn, í stað 70 centa, sem aðrir
greiða; nú hefir útgefendum
blaðanna komið saman um það,
að eitt skuli yfir alla ganga varð-
andi verð auglýsinga, að allir
auglýsendur greiði fyrir auglýs-
ingar sínar 70 oent á þumlung-
inn; þá hefir það einnig orðið að
samkomulagi, að frá birtingu
þessarar auglýsingar, skuli dán-
arminningar, sem fara yfir 4 ein-
dálka þumlunga, greiðast með
20 centum á þumlunginn, auk
gerðar myndamóts þar sem sMks
er krafist; með þessari ákvörðun
skapast blöðunum vitanlega eng-
inn stóreflis tekjustofn, þó nokk-
uð geti um munað á betri veg,
þar sem tíðum er um langar dán-
arminningar að ræða; með þessu
næst jöfnuður, sem átt hefir að
hafa náðst fyrir löngu, og þarf
eigi að efa, að þeir, sem við blöð-
in þurfa að skifta í áminstu efni,
telji þessa ráðstöfun sanngjarna.
Ánl íslenzku vikublaðanna,
yrðu mannfélagsamtök vor Vest-
uh-lslendinga eins og gróðurlaus
eyðimörk.
Winnipeg, 14. janúar 1947.
Virðingarfylst,
THE VIKING PRESS, LTD.
THE COLUMBIA PRESS, LTD.
lendunni árið 1904, en hættu bú-
skap sínum 1929, vegna van-
heilsu Ólafs, og bygðu sér annað
heimili í sömu bygðinni, þar
sem þau lifðu til 1941, en 17.
9ept., það sama ár, komu þau
hjónin til Betel.
Kristín hafði verið rúmföst
síðustu 34 mánuði æfinnar; hún
bar sína löngu legu með fádæm-
legri þolinmæði og frið í hjarta.
Útförin fór fram frá Betel, 13.
þ. m. unddr stjórn heimilis-
prestsins.