Heimskringla - 10.09.1947, Blaðsíða 3

Heimskringla - 10.09.1947, Blaðsíða 3
WINNIFEG, 10. SEPT. 1947 HEIMSKRINGLA 3. SIÐA álýktun spunnin upp til iþess að hindra menn í að fella þann dóm er staðreyndir myndu heimta. Kommúnisminn er nefnilega hvorki ný né opinská stefna. Hann má kynna sér á öllum sviðum félagsmála, stjórnmiála og menningarmála, í sambandi við öll vandamál, sem koma i ljós á mannlegu samfélagi, í stríði og friði, í spilaklúbbum og skátafélögum jafn vel og í hinum stærstu herjum. Þær staðreyndir sem þá hafa fengizt, | eru ekki aðeins nógar heldur ó- þrjótandi. Einasta afsökunin fyrir því að vilja ekki láta dóm ganga yfir kommúnistum er því óvitaskapur eða uggur við að horfast í augu við sannleikann * Ameníkumenn, Enklendingar og allir, sem reisa póliíískar skoðanir sínar á grunvelli pól- itískra flokka í löndum lýðræð- isins, eiga erfitt með að öðlast skilning á kommúnismanum. Enda þótt tekið sé kröftuglega fram, að kommúnisminn hafi “aðra stefnuskrá”, er einlægt litið svo á, að hann beri uppi samskonar stjórnmálaflokk og demókratar eru eða repúblikan- a.r eða brezki íhaldsflokkurinn eða franski róttæki flokkurinn. Menn standa í þeirri meiningu,1 að félagi 'í kommúnistaflokkn- um sé sama ,gerð og demókrati eða íhaldsmaður. Hann hafi ein- ungis gengið í flokk, er sam- bærilegur sé við hina. Sé rökrætt og starfað eftir þessari skoðun, virðist sjálfsagt að vega kommúnistana á sömu vog og félaga hvers annars flokks, er vera skyldi. Menn þinga um sovétríkin nákvæm- léga eins og rætt er um hverja aðra þjóð. Kommúnistaflokkar hafa lagalegan rétt til að starfa eins og allir aðrir flokkar, og er þeim vel fagnað eða að minnsta kosti veitt viðtaka í samsteypu- stjómir. Kosningasamvinna með kommúnistum er ekki aðeins til lí Frakklandi og Ungverjalandi, heldur einnig í New York. Góð- ir og gildir borgarar skirrast ekki við að ganga að alls konar mikilvægum nefnarstörfum — með kommúnistum, og frjáls- lyndir menn rísa öndverðir ef kommúnistar kvarta ýfir, að borgaraleg réttindi þeirra séu skert. iSkoðun þessi er kynleg og röng. Fyrir utan viss einkenni, sem eru sameiginleg öllum flokkum og í þessu tilfelli eru þaul ekki þýðingarmikil, er kommúnistum ekkert sameigin- legt með lýðræðis- og þingræðis- sinnuðum flokkum. Þeir til- heyra geróhkum sviðum stjórn- niálanna. Þingræðisflokkarnir, sem við þekkjum, eru frjálsar félagsheildir einstaklinga. Er flestum það að vera repúblikani ekki annað en að greiða nokkra dollara í flokkssjóðinn við og við og greiða flokknum atkvæði við kosningar. Þegar um er að ræða þingræðissinnaða atvinnu- stjórnmálamenn má liíkja stjórn- málunum við hvert annað starf sem ekki þarf endilega að vera mesta áhugamál þeirra. Hinn sanni kommúnisti er fullkomin andstæða þessa. Hann á ekkert utan samtakanna og hins þrönga óumbreytanlega hugsjónasviðs.1 Allt, sem hann aðhefst og allt sem hann á, fjölskylda, staða, fjármunir, trú, Mf og hæfileikar hans er veðsett kommúnisman- um. Hann er ekki kommúnistt aðeins á kjördag eða í aðal stöðv um flokksins; hann er alltaf kommúnisti. Honum finnst heiminum vera skipt í aðeins tvær stéttir, — kommúnista og hina. Eigi maður að geta skilið kommúnismann, verður hann því að losa sig við allar fyrir. fram gerðar ályktanir, er varða hina hefðbundnu þingræðis- flokka. Geri hann það ekki, er það sama og að reyna að skilja eðli skáklistarinnar án Iþess að þekkja nokkuð annað en dam, og ímynda sér að reglurnar séu hinar sömu vegna þess, að leik urinn fer í báðum tilfellum fram á sama borði. I * Á grunni þeirra staðreynda, sem fengizt hafa, má í stuttu máli skilgreina kommúnismann sem uppreistnarhreyfingu um víða veröld, sem hefur það mark og mið að koma á einræði á hnignunartlímábili auðvalds- veraldarinnar. Pólitískt er hann byggður á ótta og múgblekking- um. Efnahagslega er hann eða hefur tilhneigingu tfl að vera hlynntur hag heildarinnar, en félagslega er hann einræðissinn- ! aður. Fullkomlega er mér það Ijóst, að þessi skilgreining á einnig við urn fasismann. Og er það ekki undarlegt, þar eð báðir þelr fasisminn og kommúnisminn eru afbrigði af sömu pólitísku hreyfingunni. Mismunurinn á þeim liggur fyrst og fremst í öðrum hugsjóna- eða helgisagna þáttum, sem hagnýttir hafa ver- ið d starfsemi þeirra og óMkum aðstæðum, er þeir komu til sög- unnar. Þeir voru keppinautar alveg á sama 'hátt og tveir hnefa- leikamenn eru á alþjóðakeppni í þungavigt. Aðferðir þeirra og markmið eru hin sömu. Eru full- yrðingar kommúnista um að þeir væru forustumenn heims- ins í baráttunni við fasismann hitrasta háð sem um getur í mannkynssögunni. Þegar Byrnes, Cadogan og hinir aðrir sitja að fundum með Gromyko í öryggisráðinu, undr- ast þeir framkomu hans og finnst hann óskiljanlegur. En framkoma hans er eðlilegri en framkoma þeirra. Þeir virðast ekki vilja taka það með í reikn- inginn, að hann á ekki hlut að málunum af einlægum áhuga á að stefna að heillavænlegri lausn þeirra vandamála, er snerta frið og velgengni, þvert á móti til þess að gera vanda- málin torleystari, þó ekki vegna þess, að hann óski að binda enda á samstarf sitt við aðra þáttak- endur lí ráðinu, en hann er stað- ráðinn í að hagnýta sameinuðu þjóðirnar sem gagnlegt tæki til að lama og eyðileggja aðra þátt- takendur og þær þjóðir, er þeir mæta fyrir. Þegar franskir kommúnistar ganga að stjórnar- samstarfi er tilgangurinn ekki sá að vinna að viðreisnarmálum föðurlandsins, svo að það megi verða traust og efnað ríki, held- ur til hins gagnstæða, því að þeir óska eftir því ástandi heima fyrir, er tryggt getur kommún- istum áframhaldandi stjórn í Frakklandi. Claude Pepper, Joseph Davies, Elliot Rossevelt, Henry Wallace og allir hinir ráð- herrarnir og leikararnir og önn- um kafnir blaðamenn ganga al- veg duldir þeirri fyrirlitningu, er kommúnistar hafa á þeim, vegna þess að þeir halda ræður í grunleysi sínu á þjóðfylking- arfundum kommúnista í Madi- son Square Garden og láta við- gangast að nöfn sín prýði íburð- armikinn bréfapappír þjóðfylk- ingamefndanna.. SÝNIÐ TRtT YÐAR 1 VERKUM YÐAR 1 febrúar 1944 reyndu Hind- úar, sem saman voru bomnir í borginni Delhi á Indlandi, að stöðva heimsstyrjöldina með bænasamkomu, svo kallaðri — “mahayajna”. Er þetta fyrsta bænasamkoma af þessu tagi, sem haldin hefir verið siíðan á 17 öld. Kynntir voru um 100 heilagir eldar þar sem 1000 Hindúaprestar báðust fýrir í 10 daga, 6 klukkustundir á dag. Lásu iþeir 10,800,000 bænir, en athöfnin kostaði 3,250,000 kr. * “Var gaman í veizlunni í gær- kvöldi?” “Nei, andstyggilegt, borðdam- an mín var rangeygð og át alltaf af diskinum mínum.” I. Á öllum öldum — frá því er sögur hófust hafa komið fram m'eð þjóðum heims, menn, sem létu sig mannfélagsmál, öðrum fremur varða. Þessir komu auga á hinar ýmsu mannfélags mein- semdir, leituðu orsaka til þeirra — og að þeim fundnum, leituð- ust við að ráða bót á þeim. Eg tel ekki einungis vansalaust, heldur miklu fremur hið gagn- stæða, að Mta um öxl til heimilda sögunnar. Jesús kemur fram með gyðingum og boðar þeim sameignarstefnuna “Guðsríkið” Hann hefur áður, í einrúmi, leit- að orsaka fátæktarlbölsins og fundið þær. Úrlausn þess vanda- máls verður honum sameign. Eg hafði ekki hugsað mér að ræða þann lið mannfél.-málanna, sem. stjórnmál kallast, í þessari grein, en þar sem nú 'hefur svo tiltekist og mér finnst, sem væt- anlegur lesandi muni gera þá kröfu til mín að eg færi nokkur rök fyrir ofan'skráðu, vil eg svo vera láta. Þó vil eg biðja lés- andann að hafa hugfast að stór- máM sem þessu verða engin skil gerð í stuttu máli. Einnig að hann hugsi fyrir sig sjálfur. Leiti raka óskorðaður af hleypi- dómum, kenninga kreddum. Þessi eru þá rökin. Meistarinn veit, af spádóm- um ritningarinnar, að þjóðin trúir því yfirleitt, að með henni muni framkoma, fæðast, sá mað- ur, konungur, er geri hana að öndVegisþjóð, drotnara allrar jarðar. Því Mkt sem verið höfðu in fyrri heimsveldi. Nú var þjóðin troðin jarnhæl Rómar. Meistarinn hugleiðir hvort svo geti orðið? Svarið verður nei- kvætt. Rök: þjóðin er fámenn, fá tæk, og sem verst er, sjálfu sér sundurþykk. Hvað verður þá til ráða? Nýtt skipulag sem ráði bót á öllu mannMfsins böli. Nú kemur margt til greina. Margs að spyrja. Meistarinn gengur ekki í geitarhús í ullar- leit út lí eyðimörkina, einrúmið, til fundar við guð sinn. Hann knýr á og fær svörin. Hin fyrsta spurning hans er: Hversvegna eru boðorðin svo tíðlega brot- inn? Svar: Menn girntu'st öll Mfsins gæði. Til grundvallar lá það eitt, að alMr gátum vér ekki aMa hluti veitt.. Gengu á sátt- mála gerðann. Gat Þessu orðið breitt? Úrlausn er fyrir hendi, svarið verður jákvætt. Gyðingar hafa — að því er bezt verður vitað ætíð verið eingyðistrúar. Þeir trúðu því, að einn væri guð. Skapari himins og jarðar. “Hann bauð og það varð”. Hann skap- aði manninn og bauð honum að uppfyMa jörð. Meistarinn kem- ur fyrstur manna fram með föð- ureðlis kenninguna í guði. Þjóð- in gat ekki hafnað þeirri kenn- ing, rökin lágu fyrir henni. Trú Iþjóðarinnar sem bein afleiðing þeirrar játningar verður hún að viðurkenna bróðureðlið í mönn- unum. Að þegar öllu er á Ibotn - inn hvolft, séum vér systur og bræður. Með örðum orðum. — Þjóðin ein fjölskylda sem bein afleiðing þessarar kenningar. þessa hornsteins eða grundvall- ar. — “Og enginn getur annan lagt en maðurinn Jesús Krist ur” — hlýtur stjórnskipulagið að verða. Sameign 'þin gerist nú æ fleiri sem svo Mta á, að á ann- an hátt né betri, verði ekki ráð- in bót á mannMfsbölinu, fiátækt. En á meðan vér bíðum eftir þeirri breyting til blessunar öllu mannkyni, vil eg biðja þig kæri lesari að hafa hugföst þessi orð meistaranS: “Það sem þér gerið einum af mínum minstu bræðr- um, hafið þér og mér gert.” II. Hinn norræni kynstofn — og þá sérstaklega Islendingar, hafa ætíð verið mannúðarinnar og drengskaparins menn. 1 fyrstu lögum sínum höfðu þeir það ákvæði, að yrði búi fyrir því áfalli að missa bú. skyldi honum að fuMu bættur skaðinn með annari. I Langholts-Þóra — ef rétt er munað — lét reisa skála um “götu þvera” og veitti þar beina, “gesti og gangandi”. Vitanlega án endurgjalds. Ætti allra' þeirra að minraast, sem kristin-; dómurinn var í blóð borinn, yrði það langt mál. Hefi eg því að- eins bent á þessi mannúðar for- dæmi, til sönnunar því, að góðar erfðir glatast seint, og að þéss verður lengi getið sem gert er. | “Fátæka hafði þér jafnan hjá yður”. Þessara orða hafa landar minst hér í landi sem heima. Mannúðar og drengskapar erfðir fylgdu þeim vestur um haf og frægðu landnámið. Margt sporið stigu þeir, hvor í annars þágu. á frumbýMngsárunum og síðar, er þeim óx afl, til framkvæmda hafa þeir stigið ihin stærri sporin á sviði mannúðarmálanna. Á | eg þar sérstaklega við stofnun dvalarheimila fyrir gamla fólk- ið. Þrjú þeirra eru nú á döfinni í bygðarlögum þeirra. Tvö á Bandaríkjunum, að Blaine og Mountain; eitt í Canada, að Vancouver, B. C. Um hið síðast nefnda, hefir mér af forstöðunefndinni, verið falið að fara nokkrum orðum í blöðunum. Þess vil eg þá fyrst geta, að fest hefir forstöðunefnd- in kaup i húsi og lóð í hjarta borgarinnar. Það var bygt af miljónamæringi frá Bandaríkj- unum fyrir nokkrum árum og kvað ihafa kostað $75,000.00. — Þar eð húskaups þessa hefir áð- ur verið getið á opinberum vett- vang, skýri eg ekki frekar frá því, en vísa til greinar sem birt- ist um það í blöðunum 21. ágúst þ. á., skrifaða af vara-formanni heimiMs-nefndarinnar, H. J. Halldórsson. 1 full tvö ár hefir nefndin verið að verki, þó veru- legur skriður kæmist ekki á starfið fyr en ’46. Hefir sá skriður, — ekki ein- ungis haldist heldur aukist þar eð nefndin hefir róið ibakföMum að takmarkinu og mun svo gera unz hún lendir heilu og höldnu í öruggri höfn, en það ér þegar fjármálin eru komin í það horf að vel þyki fyrir þeim séð. — Nefndin hafði í fyrstu ekki hugs- að sér að leita styrks til fyrir- tækisins utan fylkisins. En sem alt hafði verið reynt. Samkom- ur verið hafðar til arðs fyrirtæk- isins, gengið fyrir hvers manns dyr og henni á þann hátt orðið vel til fjár. Varð henni ljóst að getuMtið fámenni mundi aldrei koma hugsjóninni í framkvæmd. Þá gérast þau tíðindi á fundi að fram kemur tillaga um að gefa öllum bygðarlögum “landa” hvar sem í Canada séu tækifæri að búa í haginn fyrir sitt gamla og góða fólk. Var og á það foent að hér, og hvergi annarstaðar í landinu væri hinn ákjósanleg- asti staður fyrir stofnun þessa og vísað á því sambandi til bldð- viðrisins. Var sú tillaga studd og í einu hljóði samþykt. Þá er og kosin nefnd manna til að skrifa til hinna ýmsu deilda Þjóðræknisfélagsins. Lágu til þess þær ástæður að sá var fjöl- mennastur félagsskapur talinn og iað menningar- og mannúðar- mál væru svo skyld, að í faðma féllust. Þeim var sent umfooðs- bréf ásamt kvæðinu “Hærukoll- ar” sem fylgir nú — til birtingar — þessum Mnum. Deildin í Churohbridge, Sask., er sú fyrsta og eina — enn sem komið er — sem málaleitun; vorri hefir svarað. Sent álitlega fúlgu fjár fyrirtækinu til styrkt- ar. Hlýindin í skrifi ritarans, H. B." Jónssonar, eru ljúf eins og vorblær, veðurfoitnum vanga. — Innilega þökk forstöðunefndar- innar flyt eg ykkur, góða og göf- uga fólk. Nefndin — þessi hinn þolin- móði Job — kastar ekki trúnni á góðar undritektir og liðveizlu, hinna annara deilda, þótt drátt- urinn sé nú orðinn óskemtilega langleitur, en sér í gegnum fing- ur við ykkur, deplar augum og bíðuur átekta. III. Sá er siður, og forn, að reisa gengnum ástvinum bauta.Leggja áletraðann stein á leiði þeirra. en frægum mönnum varða sem oft og tíðum kostar of fjár. Nú er þetta þó að breitast. Nú gefa menn það fé til Mknar starfs sem áður var varið til blómakaupa og enn aðrir gefa stórfé eða steinaverðið til hins sama og halda á þann hátt uppi minn- ingu látinna vina og varada- manna. Nýlega sá eg þess getið í Lögberg að Eimskipafélag fs- lands hefði gefið 15,000.00 krón- ur til dvalarheimilis gamalla sjó- manna. Keypti 1 herbergi í hús- inu í minningu um Clausen og skal herbergið bera hans nafn. Þetta fordæmi finst mér að þeir ættu að hugleiða sem í hyggju hafa að halda minningu látinna H HAGBORG FUEL CO. H ★ Dial 21 331 áo.U) 21 331 ástmenna sinna uppi. En með í Tvent er það sem mér hefir þessari aðferð er tvennum til-| gangi náð. Líknarstofnun styrkt og mannsins minst, á hinn göf- ugasta hátt. Elfros-búar, ef þið 'hafið enn ekki gert samninga um varða á leiði J. M. Bjarna- sonar, þá kaupið lestrarsalinn í Övalarheimili Vancouver íslend- inga og búið á þann hátt í hag- inn fyrir sveitunga ykkar í fram- t'íð. Þar mundu verk hans sóma sér vel, skrautbundin á arin- hillunni. Nafn hans verður skráð í málm yfir dyrum. Hugleiðið þetta. Enn á ný hefir heimaþjóðin gefið oss fagurt fordæmi. Lát- um ei undir höfuð leggjast að hagnýta það: Látum hvetjast til dáða. IV. “Þess verður getið sem gert er,” kvað Grettir Ámundason, hinn sterki og spaki formaður. Ekki get eg svo við þetta mál skilið, að eg ekki geti í þessu samfoandi þess félagsskaps vors hér í Vancouver, sem stórvirk- astur og fengsælastur hefir reynst'mannúðarmáli þessu. Er sú hjálpanhella, félagsskapur ungra kvenna “Sólskin”. Kanske eru og eldri konur í hópnum þeim, en hvað um það, þær eru allar ungar í anda, fullar af mannúðar-starfsþrá og hafa blessunarrík áhrif á umihverfið. Þær höfðu lofað að styrkja dval- arheimilið með 500.00 dala til- lagi. En, viti menn. þúsund dala ávísun barst nefndinni frá þeim! Við þessu hafði nefndin ekki bú- ist af svo fámennum félagskap, enda sat hún orðlaus og undr- andi. En er henni varð ljóst hvað skeð hafði, töluðu á henni allar tuskur. Fagnaði þeirri giftu sinni, að eiga í fórum sínum svo ennþá. höfugann “Draupnir” sem félag þetta reyndist. Þetta höfðu þær reitt og dregið saman með skemtisamkomum sem allir vita fyrirfram að verða góðar — og frjálsum samskotum sín á miMi. Þetta frábæra samstarf þeirra er “viljinn til hins góða” getur áorkað. Þegar “holdið er ekki veikt”. Með öðrum orðum, þeg- ar ósérplægnin ber eigingirnina fyrir borð. Samtals er nú upp- hæð sú sem þær hafa af mörkum látið $1,250.00 og enn kváðu þær vera að efraa til frekari á- taka. Sólskins systur! Innilega þakkar heimilisnefndin ykkur þátttökuna. Þegar eg nú hug- leiði hverju þessi fámenni fé- lagsskapur hefir afkastað verður mér ljóst hvað fjölmennari bygð- arlög vor gætu afrekað. Og fjár- aflavonin vængjast. V. gleymst um að geta. Hið fyrra er að hér með fylgir myndamót af dvalarheimilinu. Þótt mynd- in sé að vísu ekki nema “svipur hjá sjón”, gefur hún þó glöggu auga til kynna að ekki mun því fé á glæ kastað sem til kaup- manna fer. Hitt er annað, að ráð- in hefir verið forstöðukona, er Mrs. Björg Thompson heitir. Er hún dóttir Jóns Þorsteinssonar og konu hans, sem eru nú búsett að White Rock, B. C. Frú Björg er lærð hj úkrunarkona og hefir gert það mannúðarstarf að Mfs- starfi sínu. Hún starfrækti sjúkrahús í félagi með Bardals- systrum, sé rétt munað. Hefir unnið á vegum stjórnarinnar sem (Health Inspector) og nú síð- ast um nokkurt skeið starfrækt hjúkrunar heimili fyrir gamalt fólk á eigin reikning. Er það hið gamla fólk handbendi borg- arinnar (Vancouver) og sér borg- arráðið um fyrirgreiðslu. Nú sem hún gerist forstöðukona eða forsjá dvalarheimilisins, leggur hún af hendi eina trúnaðarstöð- una til að taka við annari. Er foún lipur og ljúf í raun og við- móti og fellur því vel inn í um- gerð heimilisins. Þar eð: Nátt- úru bl'íðlyndið bregst ekki hér, sem blómskrúðið vafið er í út- sýnið, valið úr völ. Og um- hyggjusemin mun annast þann hinn erfiði lúða mann, sem kem- ur til dvalar að Dvöl. Fyrir hönd dvalarheimilis- nefndarinnar, Ármann Björnsson Presturinn: Og þú hefur verið drykkjumaður allt þitt Mf, Jón minn. Jón: Nei, ekki ennþá, ekki COUNTER SALESBOOKS Kaupmenn og aðrir sem þannig lagaðar bækur nota, geta fengið þær með því að snúa sér til vor. Allur frágangur á þessum bókum er hinn vandað- asti. Spyrjist fyrir um verð, og á sama tíma takið fram tegund og fjölda bókanna sem þér þarfnist. The Viking Press Limited 853 Sargent Ave. Winnpieg, Man.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.