Heimskringla - 04.05.1949, Page 4

Heimskringla - 04.05.1949, Page 4
4. SÍÐA HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 4. MAÍ 1949 Ifeimskringla (Stofnuð 1S89) Kemui út á hverjum miðvikudegl. Eigendur: THE VIKING PRESS LTD. 853 og 855 Sargent Avenue, Winnipeg — Talsími 24 185 Verð blaösins er $3.00 árgangurinn, borgist fyriríram. Allar borganir sendist: THE VIKING PRESS LTD. öll viöskiftabréf blaðinu aðlútandi sendist: The Viking Press Limited, 853 Sargent Ave., Winnipeg Ritstjóri STEFAN EINARSSON Utanáskrift til ritstjórans: EDITOR HEIMSKRINGLA, 853 Sargent Ave., Winnipeg Advertising Manager: P. S. PÁLSSON "Heimskringla" is published by THE VIKING PRESS LIMITED and printed by VIKING PRINTERS 853-855 Sargent Avenue, Winnipeg, Man. — Telephone 24185 Authorized as Second Class Mail—Post Office Dept.. Ottawq WINNIPEG, 4. MAÍ 1949 Hundum og börnum úthýst Eftirfarandi grein um húsnæðisleysið í Bandaríkjunum og hvernig þar er ilt gert verra, vegna miskunarleysis margra hús- eigenda, birtist nýlega í ritinu Reader’s Digest. Hún er skrifuð af Howard Witman blaðamanni. Greinin kom upprunalega út í Woman’s Home Companion, en er hér eins og í Reader’s Digest, nokkuð stytt. Eg hafði ekki gert mér neina grein fyrir því fyr en eg þurfti að leita mér húsnæðis víðsvegar um Bandaríkin, vegna starfs míns. hve óvinsæl og óvelkomin börn eru. Það bergmála enn í eyrum mínum sum svörin sem eg fékk: “Eingöngu fullorðnir! Engir hundar; heldur ekki börn!” Skammsýni, fégirni eða blátt áfram skeytingarleysi of margra húseigenda, hefir orsakað þúsundum foreldra mikilla áhyggna og rauna. Eftir áreiðanlegum skýrslum að dæma, skortir þrjár til fimm miljónir fjölskyldna hræðilega húsnæði. Nokkru eða mörgu af þessu fólki væri hægt að útvega sæmilega íbúð, ef alt húsrúm, sem völ er á, væri réttilega notað. En í stað þess eru stærstu íbúðir og stundum tveggja fjölskyldna, leigðar barnlausum hjónum, ef nóg er fyrir það borgað, en fjölskyldum sem börnum hafa fyrir að sjá, er hnappað inn í smáherbergja-leigukompur (Rooming Houses), eða þær verða að þrengja sér inn hjá ættingjum eða tengdafólki, hvemig sem þar er ástatt. Dr. Bryn J. Hovde, forseti húsnæðiseftirlitsnefndar Banda- ríkjanna, segir að 25% af öllum leigðum húsum í Bandaríkjunum, einkum í stærri borgunum, séu hálftóm og telur ástæðuna fyrir því, þessa útilokun barna úr hópi leiguþurfa. Að gert sé upp á milli barnlausra hjóna og þeirra er börn eiga, hefi eg alls staðar rekið mig á í leit minni að húsum. Eg hafði leitað mig uppgefinn í Chicago að íbúð til leigu. Það næsta sem eg komst í því, að fá hana, var í tveim stöðum, en þó var skilyrðið hjá báðum eigendum, að börnunum mínum tveimur yrði að koma annars staðar fyrir! í lítilli borg í Missouri, neitaði prófessorsfrú ein mev um fylgivagn bílsins þeirra (trailer), er hún hafði auglýst til leigu, en auðvitað “aðeins til fullorðinna . í Madison í iWsconsin, þar sem bezt er að búa í öllum Banda- ríkjunum, fann eg auða 6 herbergja íbúð, ágæta að búa í fyrir fjöl- skyldu með börn. “Þykir fyrir að segja það, að við látum ekki börn inn ,í hana,” sagði eigandinn. Af 43 auglýsingum um íbúðir til legu í Cincinnati blöðunum, var sagt í 22, að fjölskyldur með börn vær útilokaðar. í Pittsburg blöðunum var hið sama tekið fram í 17 af 26 auglýsingum. í Columbus voru 15 íbúðir auglýstar til leigu, en í 13 var tekið fram, að börn væru þar ekki velkomin. Loks sagði eg við húseiganda í Pittsburg er eg hafði lengi reynt til að fá hús leigt hjá, en ekki var viðkomandi vegna barnanna: En ef eg gæfi þér 200 dala bónus eða uppbót á leigunni fyrir börnin, þ ,e. 100 dali fyrir hvert barn, hvað segðirðu um það? Þá varð húseigandinn alt annar maður! Hánn byrjaði með þvi að segja mér af gæðum íbúðarinnar og hvað sér væri kært, að eiga viðskifti við eins sanngjarna menn og mig, að hann sæi ekki sólina fyrr börnum og ætti þrjú sjálfur. Þetta auka meðlag með börn- um, var msmunandi á ýmsum stöðum. í Chicago varð eg að bjóða konu $500 með hvoru barni, áður en eg fengi íveru leigða er sneri mót suðri og sól. “Ef þú greiðir mér eitt þúsund dali fyrirfram og í peningum,” sagði hún, “geturðu farið inn á morgun. Margir húseigendur hafa reynt að sekta hjón, er hafa verið svo djörf, að eiga börn, efftr að hafa flutt í íbúðina. Einn húsaeigandi kallaði það “samningssvik” og annar “‘að sigla undir fölsku flaggi að gera slíkt. Ung hjón í New York voru nýlega kölluð fyrir rétt, út af því að upp komst, að konan hafði verið ólétt, er hún flutti í íbúðina. “Hún blekti mig,” sagði húseigandi. “Hún vissi að eg leyfði ekki börn í mínum húsum”. Tveir prestar og heill skari nágranna ungu hjónanna og vina komst í það, að opna augu hús- eigandans. Hann hætti við að reka hjónin út. Harry B. Grund, dómari í Des Moines, bjargaði ungum hjón- um og nýfæddu barni frá því að vera rekin út, með því að halda fram, að það væri það sem guð hefði gert ráð fyrir, að mannkynið ætti börn og gæti þessvegna ekki verið brot framið með því þó á móti lögum og reglum húseiganda væri! Af húsum sem til leigu eru í New York og auglýst hafa verið, kemur í ljós, að 88 húseigendur af hverju hundraði banna að leigja fjölskyldum með börn. Þau einu hús, er börn eru leyfð í, eru í útjörðum og svo langt frá vinnustöðum verkalýðsins, að þau koma ekki að miklum notum. Eg talaði við mann, sem James E. Hannon hét, lagastúdent. Hann varð allur að brosi, er hann sagði mér af þriggja vikna göml- um dreng, sem hann átti, en þar væri nú samt sá ljóður á, að hann gæti ekki tekið konuna sína út af sjúkrahúsinu, vegna þess að íbúðir fengu ekki aðrir en barnlaus hjón og einhleypir menn. Kona hans átti að vera komin út úr sjúkrahúsinu fyrir 10 dögum, en læknarnir aumkvuðu sig yfir okkur og hafa ekki enn rekið hana út. Eg sá, að hann var hugsi og hálf utan við sig af þessu. Hann aug- lýsti: Verð að fá íbúð fyrir konu og barn til að rýma fyrir öðrum á sjúkrahúsi. Borga leigu sem um er beðið. En þegar þetta er skrifað. hefir ekkert svar borist. Ástæðurnar sem gefnar eru fyrir banninu til leigjenda er börn hafa, eru oftast þessar: “Þau eyðileggja svo mikið. “Þau krota út veggi”. “Þau hoppa upp og niður stigana”. “Þau renna sér ofan stigahandföngin og brjóta þau”, o. s. frv. En hvað er satt í þessu? Húsnæðis-eftirlitsnefnd Banda- ríkjanna hefir rannsakað þetta. Hún hefir athugað 173,000 íbúð- ir. Hún telur skemdir barna aðallega í tvennu fólgnar: að reka hjól sín eða vagna á hurðir og dyrastafi og að skrifa á veggi; frekari skemdir telur hún ekki. Fullorðnir eiga aftur á móti sök á 8 tegundum skemda. Þeir skemma gluggasillur með heit- um diskum, brjóta ofnhurðii, eyðileggja eldavélar með van- hirðu og sóðaskap, stoppa upp pípur með matarúrgangi, fylla baðker og skálar svo út af flóir, skilja glugga eftir opna í rign- ingu, slá húsmunum í gólf og veggi. valda bruna með ófull- kómnum rafáhöldum. “Hinir fullorðnu”, se£ir nefnd- in, “eru þeir sem íbúðir eyði- leggja, en ekki börnin”. Hvað er hægt að gera gegn þessari óbeit í garð barna? Á þingi New York ríkir 1946, var það álitið lagabrot af húseigenda, að setja í leiguskilmálann, “að leigjendur megi ekki eiga börn” í húsabyggingarlög sín setti stjórnin á síðast liðnu sumri á- kvæði um það, að vátryggingar- félag skuli ekki vátryggja íbúð- arhús, stór eða smá hjá ríkinu, sem neita að leigja fjölskyldum íbúðir, er fyrir börnum eiga að sjá. En það er ekki hægt að gera alla góða með lögum. Almenn- ingur verður að skapa það álit er með þarf til þess að uppræta þá óbeit sem börnum er nú sýnd af húseigendum, með framferði sínu í húsaleigumálum. Fasteignafélög geta mikið gert til að uppræta þetta ljóta uppá- tæki hjá húseigendum. Til dæm- is hélt Walter Sparry, vara-for- seti fasteignafélags New York- borgar nýlega fram, að hann væri að brýna fyrir eigendum þeirra 125 fjölhýsa, sem féalgi hans tilheyra, að hætta algerlega að banna börnum inn að koma. Nokkur blöð hafa sýnt þá dáð af sér, að byrja, að neita að flytja leigu-auglýsingar frá húsaeig- endum, sem ekki leyfa börnum inn í hallir sínar. Önnur blöð eru farin að lofa að setja ekki fyrir leiguauglýsingar, * sem bjóða börnum inn í íbúðir sínar, þ. e. fjölskyldum er fyrir börnum sjá. Kristur sagði: Lofið börnun- um til mín að koma. Það er því hálf illa kristin menning, sem við börnin segir: farið frá mér, — skemdarormar! Á VÍÐ OG DREIF Kostnaður síðasta stríðs Hartley Grattan, atkvæðamik- ill blaðama^Sur, tók sér fyrir hendur, að rannsaka, hvað síð- asta stríð hefði kostað heiminn. Hann hefir birt hinar háu tölur sínar yfir þetta í Harper’s Magazine. Eftir útreikningi hans að dæma kostaði stríðið 40 miljón mannslíf. Tíu miljón af þeim menn og konur, voru innritaðar í stríðinu. En 30 miljónir voru við friðsamleg störf. f nútíðar stríð- um eru þrír fjórðu þeirra er falla, menn er aldrei hafa af byssu hleypt. Með uppfyndingu atómsprengjunnar, eða annara sprengiáhalda, má gera ráð fyrir að hlutfall látinna verði hærra af mönnunum heima fyrir en í stríðum. í næsta stríði verður hver maður í fremstu víglínu, hvar sem hann er. Svo er fjárkostnaðurinn. Þar koma oss nýjar tölur fyrir sjónir, er fáir af oss gefa gert sér veru- lega grein fyrir. Segir Grattan allan stríðskostnaðinn nema 4 trilljón dölum. f tölum er það skráð þannig: $4,000,000,000,000. Við erum að vísu orðin dálítið kunnug tölum, er biljónum nema. En Trilljón er ný tala í reikningum þjóða heimsins. f biljónum talið, lítur stríðs- kostnaðurinn þannig út: 4,000 biljón, en það er sama og fjórar trilljónir. Það gefur ef til vill nokkra hugmynd um stríðskostnaðinn, að bera hann saman við framleið- slu, segjum Bandaríkja þjóðar- innar, sem er mesta framleiðslu þjóð heimsins. En framleiðsla þeirra á ári nemur 250 biljón döl- um. Ef Bandaríkin reyndu að komast yfir eins mikið fé . og þennan stríðskostnað, yrðu þau að vinna í 16 ár til þess og fasta allan þann tíma. Auðvitað er nú eitthvað borg- að af þessum fjögra trilljóna herkostnaði. Það var eitthvað af honum borgað á sama tíma og stríðið var háð. Fyrir eyðilegg- ingu verksmiðja og akuryrkju- framleiðslu, þarf enn að greiða. En alt um það, er stríðskostnað- urinn svo hár, að hann verður varla á næsta mannsaldri greidd- ur . Það er nú mikið talað um stríð. Og þó skrítið sé, um svo fégjarn- an lýð, eins og þann, sem jörðina byggir, er nú ekkert talað um að fresta stríði, þar til síðasta stríðs- skuld sé goldin að fullu. Það væri þó talsvert viðskiftavit í því. ★ Vér höíum yfirmenn! (f febrúar hefti ritsins “Víð- sjá” 1949, er eftirfarandi saga sögð og mun lærdómsrík þykja, ekki sízt á kosningatímum, er ráðstöfunum rignir yfir menn frá löggjafaefnunum um hvað fyrir okkur eigi að gera): Frú nokkur á Englandi hafði keypt sér kú, til þess að vera trygg með að hafa næga mjólk til heimilisins. En kýrin mjólk- aði meira en frúin hafði not fyr- ir. Nú var það óleyflegt að selja mjólk. Frún lét því bónda nokk- urn fá afgangsmjólkina, en fékk aðrar nauðsynjar frá honum í staðinn. En svo gat ekki lengi til gengið og fljótlega komst einn eftirlitsmaðurinn í sveitar-1 stjórnarmálum að þessu. Hann sagði að óleyfilegt væri að gefa frá sér mjólk. “Þér viljið þó ekki að eg helli þeirri mjólk niður, sem eg þarf ekki að nota sjálf?” spurði frúin. “Nei, það er með öllu óleyfi- iegt, að ónýta nokkra matvöru,” útskýrði embættismaðurinn. “En kýrin má ekki mjólka meira, en þér komist yfir að nota!” Tryggir gúmmí hringir Inn á bílastöð eina í Banda- ríkjunum kom maður nýlega að fá sér smurningsolíu. Þegar bíln- um var lyft upp eins og venja er til er skift er um olíu, sá stöðv- arstjórinn nagla í einum gúmmí- hringnum. “Viltu að eg geri við hringinn”, spurði hann. Ferða- langurinn bað hann um töng og dró naglann út. Bílstöðvarstjór- inn bjóst við að heyra hvin og að hringurinn legðist saman. En svo var ekki. Og ferðamaðurinn hélt leiðar sinnar, eftir sem áður. Þarna var því takmarki náð, sem lengi hefir verið keppikefli bílgerðarfélaga. En það er að koma í veg fyrir að bílhringir bili eins oft og raun hefir verið á. Félagi einu (B. F. Goodrioh Co.) hefir tekist að búa til gúmmí- hringi, er ekki bila eða tæmast af lofti við hverja naglastungu. Gerð þessa hrings kunnum vér ekki að lýsa, en það er aðeins ein- faldur gúmmí-hringur eða ekki með neinni slöngu innan undir gúmmíinu. Er gúmmíið í hringn- um þannig gert, að það verður strax loftþétt, þó nagli sé tekinn úr því, er þar hefir lent. Þetta er stórvægileg uppgötv- un, því með svona öruggum gúmmíhringum, er tekið fyrir að hjólhringir bili, sem oft hefir ekki einungis verið mikil töf að og óþægndi, heldur hefir einnig ollað slysum og manndauða. Ferðarminningar Eítir Marju Björnson Það er afar vandasaiht verk, að segja ferðasögu þannig að les- endur geti notið hennar nema þá að litlu leyti. Einnig þarf sögu- maður að hafa mikla æfingu í því að segja frá til þess að mynd- irnar sem dregnar eru fram verði nægilega skýrar. Er mér þetta nú að sjálfsögðu ofvaxið, en vegna þess að eg hafði dregist á að segja eitthvað frá ferðalagi okkar vestur að hafinu, og frá veru okkar þar, varð eg að láta tilleiðast með það, og því er þetta ferðasögubrot til orðið. Eg má geta þess í byrjun, að þó ferðalög eigi að vera og sé í mörgum tilfellum manni til hvíldar og hressingar og að mað- ur finni til fagnaðar yfir því að eiga von á, að sjá svo margt, sem hrífur augað og kynnast svo mörgu, sem gleður og hressir hugann og eykur lífskraftana, að sama skapi, þá er það ekki með Öllu sársauka laust að slíta sig frá öllu því, sem hefir orðið minni kært í liðinni tíð. Höfð- um við nú búið í Árborg í sam- fleytt 26 ár og eignast á því tíma- bili fjölda góðra kunningja, sem við hlutum nú að kveðja, eftir að þeir höfðu haldið fyrir okkur ríkmannlega veizlu að skilnaði og látið góð?r gjafir fylgja síð- ustu kveðjunni. Verðum við á- valt minnug þeirrar stundar og þakklát öllum þeim sem þar lögðu hönd að verki. Eins og gef- ur að skilja, þá er það ekki með öllu sáraukalaust að kveðja góðu vini sem maður hefir orðið sam- ferða í fjórðung úr öld. En svo er það ávalt í öllu lífi manna það skiftast á skúrir og skin, og vissulega eru veðrabrygði kall fyrir alt, sem lifir, eins og þau eru nauðsynleg fyrir jörðina sjálfa. í veðrabrigðum haustsins, þegar veturinn var að ganga í garð með afar miklu snjókyngi, lögðum við á stað frá Winnipeg þ. 9. nóv., 1945. Var þá svo mikill skafrenningur að bílaslóðir allar fylltust á svipstundu á leið okk- ar suður að landamærunum. Vor- um við fjógur í bílnum, eins og ávalt síðar þó ekki væri altaf sama fólkið. Þarna á Emerson þjóðveginum voru með okkur tveir ungir menn, Sveinbjörn sonur okkar og Karl Goodman. Er sagt að nægilegt verði kom- ið af þessum gúmmíhringum (tires) á markaðinn í Canada og Bandaríkjunum á þessu sumri, með sama og engri verðbreyt- ingu. Mörg önnur félög eru að spreyta sig á framleiðslu svip- aðra gúmmíhringa svo á þeim verður senn engin þurð. Frank Herzegh heitir sá er uppgötvunina gerði hjá Good- rich félaginu; ’ hann var starfs- maður þess. Tilraynir sem gerðar voru í síðasta stríði í því, að gera gúmmíhringi svo úr garði, að byssukúlur þyldu, hafa eflaust flýtt fyrir þessari uppgötvun. ★ Páfinn álítur helvítis kenning- una bráð nauðsynlega í ræðu er Píus páfi flutti ný- lega í Róm, fyrir prestum og kardinálum, lagði hann mikla á- herzlu á hve helvítis-kenningin væri nauðsynleg, og komst með- al annars svo að orði: “Að prédika helvíti í prédik- unarstólum kirknanna er meir á- líðandi nú, en nokkru sinni áður. Skylda kirkjunnar fyrir guði og mönnum er að kenna helvíti eins og Kriistur opinberaði það. Þó fólk þrá að verða sálúhólpið og komast til himnaríkis, er þó ótt inn við eilífa hegningu og útskúf- un sterkasta meðalið til að halda því frá syndum og snúa sér til guðs.” G. þýddi —Free Press, 23. marz 1949. Hafði Sveinbjörn fengið 10 daga frí til þess að geta verið með okkur fyrsta áfangann af leið- inni, en Karl var ráðin til þess að vera með alla leið vestur, hafði hann áður ákveðið að ferðast til Vancouver í atvinnu leit og einnig til að sjá þar vini og vandamenn. Reyndist hann að vera góður ferðafélagi og keyrði hann bílin mikið af leiðinni. En Sveinbjörn varð að snúa heim- leiðis eftir að hafa heimsótt Minneapolis og Rochester; því hans stutti frítími leið óðum, og í Rochester hlutum við því að kveðja hann, þar skildu leiðir um stundar sakir. En þessi fyrsti áfangi á með- an hann var með okkur, reyndist mjög ánægjulegur í alla staði. í Grand Forks nutum við gest- risni Dr. og Mrs. Becks, þar sem svið snæddum alíslenzkan morg- unverð á því ágæta heimili; skoð- uðum íslenzkar myndir og meist- araverk, sem dr. Beck hafði ver- ið gefið heima á fslandi; einnig margskonar muni tilbúna af frúnni sjálfri. Voru það leirker og Hkneski af ýmsri gerð, er sýndu afar mikla smekkvísi og kunnáttu í þeirri grein. En þessi morgunverður og hið innilega viðmót hinna góðu hjópa á þessu há-íslenzka heimili þeirra var hugnæm byrjun á okkar langa ferðalagi út í óvissuna og við gleymdum því að veturinn var að ganga í garð og sáum ekkert nema sumar framundan. Það brá Hka svo við þegar við komum inn 1 Minnesota að varla sást föl á jörð og sólskin höfðum við mest allan daginn á leiðinni til Minneapolis. — Komum við þangað að kveldi þess 10. og átt- um þar engu að síður vinum að mæta, en þar höfðum við við- dvöl hjá Mr. og Mrs. T. Athels- tan í gesta nætur þrjár, eins og á okkar fyrri ferðalögum. En við erum aldrei gestir þar heldur heimafólk og óvíða hefir okkur liðið betur. Áttum við þar ó- gleymanlegar stundir með al-ís- lenzku skólafólki og búsettu ís- lenzku fólki, sem við höfðum kynst þar áður, á okkar fyrra ferðalagi. Það er ef til vill ekki á margra vitund að heimili Mr. og Mrs. Athelstan er um leið heimili allra íslenzka stúdenta sem stunda nám í Minneapolis. Er þetta unga fólk þar eins og í foreldra húsum og munu þeir seint gleyma viðtökunum, sem þeir áttu að fagna, hinu hlýa viðmóti sem óvíða var annars- staðar að finna í eins ríkum mæli. Var þetta skólafólk óþreytandl að syngja fyrir okkur ýmsa merkilega söngva, sem nú tíð- kast mikið heima, og þá einnig gamla og góða ættjarðar söngva, sem við öll kunnum. En það var einkver hreimur í þeirra söng, sem mátti greina frá því venju- lega hér vestra og manni fanst ó- sjálfrátt gamla landið taka und- ir með söngnum og maður vera farinn að hlusta á bergmál svana- söngsins eða þá brimsins við ströndina; eða þá vorsöng fyrstu lóunnar úti á túni. Þetta er þá það, sem ferðamaðurin er að leita eftir. Hann vill finna eitthvað, sem friðar og gleður hugann, og það gerir þessi ís- lenzka æska, eins og vorið sjálft, eftir langan og harðan vetur. Það var okkur ekki lítið á- nægju efni að einn af þessum ungu stúdentum afréð að gjör- ast farþegi í bílnum vestur. Var það Guðm. Hjalmarson, banka- maður frá Reykjavík. Hafði hann dvalið í Minneapolis um nokkurt skeið til að kynna sér banka- starf. Hafði hann orð á því, að sig langaði vestur að hafinu áð- ur en hann fa^ri heim aftur og buðum við honum því far með okkur ef hann gæti fengið lausn frá starfi. Guðmundur er Mý- vetningur að kyni og mörgum hér að góðu kunnur. Hugði hann að heimsækja Dr. J. S. Arnason í Seattle og fl. frændur og vini

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.