Heimskringla


Heimskringla - 08.06.1949, Qupperneq 2

Heimskringla - 08.06.1949, Qupperneq 2
2. SÍÐA HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 8. JÚNl 1949 r~ Ufcimskrin^Ia (StofnvJB 1886) Kemui út á hverjum miðvikudegi. Ei?endur: THE VIKING PRESS LTD. 853 og 855 Sargent Avenue, Winnipeg — Talsími 24 185 Verð blaösins er $3.00 árgangurinn, borgist fyrirfram. Allar borganir sendist: THE VIKING PRESS LTD. öll viðskiftabréf blaðinu aðlútandi sendist: The Viking Press Limited, 853 Sargent Ave., Winnipeg Ritstjóri STEFAN EINARSSON Utanáskrift til ritstjórans: EDITOR HEIMSKRINGLA, 853 Sargent Ave., Winnipeg Advertising Manager: P. S. PÁLSSON "Heimskringla" is published by THE VIKING PRESS LIMITED and printed by VIKING PRINTERS 853-855 Sargent Avenue, Winnipeg, Man. — Telephone 24185 Authorized as Second Class Mail—Post Office Dept., Ottawa WINNIPEG, 8. JÚNf 1949 Fullveldishátíðin á Iðavelli Fullveldisdags íslands hefir síðan 1944 verið minst á Iðavelli í Hnausabygð 17. júní, sama daginn, eða því sem næst, og þjóð- hátíðin fer fram heima á íslandi. Þessum upptekna sið verður haldið áfram og nú í ár fer þjóðminningarhátíðin fram laugardag- inn 18. júní. Hefir með ágætum verið til hennar efnt. Stjórn dagsins hefir Gunnar Sæmundsson frá Árborg, en ræður flytja Guttormur J. Guttormsson skáld, Hallgrímur Pétursson og próf. T. J. Oleson, en kvæði Böðvar H. Jakobsson og Einar P. Jónsson. Annars skal vísað til skemtiskrár dagsins um hvers gestir hátíðarinnar eiga þar von. Að því vildum vér þó víkja, að minna Vestur-íslendinga á þessa hátíð, því hún er eini fögnuðurinn, sem hér fer fram sama daginn og hátíðin heima. Og það sæmir oss illa, að hafast ekkert að meðan þjóðin heima fagnar frelsisdegi sínum með hrífandi ræðum, söngvum, leikjum og dansi. Góða veðrið hlýtur nú að vera á næstu grösum og við ættum þessvegna að geta haft tvefalda ánægju af sókn dagsins.. við það tap sé nú bætt, með ein- okuninni á bygg og hafra söl- unni. SMÆLKI HEFIR ÞVARANN í POTTINUM í Ottawa var tilkynt 1. júní, að hafra- og byggsala Canada yrði frá 1. ágúst á þessu ári í höndum stjórnarinnar eða Hveitiráðs Canada. Landstjórnin hefir lengi að því stefnt, að koma á sem fullkomn- astri einokun í sölu bændaafurða. En hveitisala hennar hefir verið svo illa þokkuð, að hún hefir til þessa ekki séð sér fært að ráðast í það. En nú loksins hefir hún hert upp hugann, enda er nú til þess ný ástæða — kosningarnar. í Austur-Canada kaupa bænd- ur fóðurkorn úr vesturfylkjum landsins. En kosninga glíman, sem nú fer í hönd, er aðallega háð af flokkunum í Quebec og On- tario. Það er í þessum fylkjum sem á öllu veltur um sigurinn. Fylgi stjórnarinnar er orðið hverfandi í Vestur-Canada. Þegar svona stendur á, sér stjórnin sér þarna kosningaleik á borði. Hann er sá, að afla sér fylgis austanbænda, með því að halda niður verðinu á fóðurkorni úr sléttufylkjunum. Þessi einok- un á höfrum og byggi, sem á hveiti hefir verið, kemur sér því vel. Á þinginu sem fyrir skömmu var rofið, mátti ekki gera þessa ráðstöfun. Það hefir þótt vissara að gera hana utan þings. Það mun sannleikur vera að stjórnin sé farin að óttast um kosningasigur sinn. Og í neyð- inni skal nota flest. Ef bændur vesturfylkjanna, eru ánægðir með að stjórnin kaupi sér fylgi í kosn- ingunum í Austur-Canada á kostnað þeirra, eða afurðasölu þeirra, þá er ekkert við það að athuga af vorri hálfu. En það er ótrúlegt samt, að þeim hafi ekki þótt nóg komið með tapinu á hveitisölunni hjá Hveitiráðinu og að þeir kæri sig ekki um að Það er hermt, að feyrur séu komnar í veggi Hvítahússins og þess bíði að falla. Buckingham höllin, sem Bandaríkjamenn héldu að hryndi fyrst, er enn í bezta lagi. ★ Mr. St. Laurent talar við út- varpshlustendur eins og maður sem er að biðja forláts á yfir- sjónum sínum fyrir dómstólun- um. * Það eru margir sem halda, að þeir séu sæmliega trúaðir, þegar þeir eru búnir að kynna sér sam- anburðar-guðfræði þjóðanna. ★ Ein miljón nýrra kjósenda greiða atkvæði 27. júní, segir blaðið Montreal Star. Þetta þarf ekki að skiljast bókstaflega. Ef þeir eru nokkuð líkir foreldrum sínum, tekst vel til ef helmingur eða tveir þriðju af þeim koma nærri kjörstað. * Rússland leggur offjár út til þess, að trufla útvarp frá Banda ríkjamönnum og bjarga Rússum frá að verða vantrúaðri en þeir nú eru á það, sem það segir. * Helzta nauðsyn kauphækkunar “Eg verð að fá kauphækkun til þess að geta gert verkfall. Hvern- ig get eg gert verkfall með minna en 50 dali á viku?” — Bandarísk- ur verkamaður. * Það er eitt gott við fyrirkomu- lag stjórna í lýðríkjum; það er, að forsetunum er bannað að mynda samvinnustjórn við aðra forseta. ★ Það segja margir greindir menn að þeir séu fegnir þegar þessum kosningum Ijúki. Sem stendur, eru þeir hræddir að ferðast með T.C.A. eða að hlusta á C.B.C. og eru jafnvel farnir að furða sig á hvað um C.N.R. sé. —Þýtt. FJÆR OG NÆR Þetta NYJA Ger VINNUR HRATT! - HELDUR FERSKLEIKA Þarfnast engrar kælingar Nú getið þér bakað í flýti án fersks gers. Takið pakka af Fleisch- mann’s Royal Fast Rising Dry Yeast af búrhillunni og notið það á sama hátt og köku af fersku geri. Þér fáið sömu fljótu hefinguna. Þér fáið bezta árangur í öllum yðar bakningum. Fáið yður mánaðar forða af þessu ágæta, nýja geri. Notið það í næsta bakstur af brauðum og brauðsnúðum. Þér verðið hrifin. Þér munuð aldrei kvíða oítar viðvíkjandi því að halda ferska gerinu frá skemdum. Þér munuð ávalt nota Fleischmann’s Royal Fast Rising Dry YeaLst. Pantið það frá kaupmanninum yðar, í dag. 1 pakki jafngildir 1 köku af Fresh Yeast! f skrúðvagnssjóðinn er Hkr. sagt, að enn skorti nokkuð á upp hæðina, sem mælst var til að gef- in væri, en hún var um 1500 dalir. Nú eru þó rúm 1100 dalir komnir inn svo afganginn ættu íslend ingar að standa sig vel við að greiða. Það hefir þegar sýnt sig, að þátttakan hepnaðist og verð- ur bæði þjóð vorri hér til hags og heilla. íslendingar hafa grætt á henni hvernig sem fer. ★ * * Guðmundur Guðjónsson frá Reykjavík kom til Winnipeg sd. mánudagskvöld. Hann lagði af stað að heiman á sunnudags- morguninn 5. júní, en var kom- inn hingað seint á mánudags- kvöld 6. júní. Þetta er ein sú fljótasta ferð, sem eg hefi heyrt getið um. Guðmundur kemur hingað í frítíma sínum frá störfum og verður hér um þriggja mánaða skeið. Hann er starfsmaður stál- iðju í Reykjavík. Guðmundur er ættaður frá Sölfholti í Árnes- sýslu, sonur Guðjóns Guðnason ar og Bryngerðar Eiríksdóttur. Er systir móður hans María Eríksd., kona Sigurþórs Sigurð- sonar í Winnipeg. Dvelur Guð- mundur á heimili þeirra hjóna. Veður sagði hann að væri að | batna heima, en veturinn og vor- ið hefði verið hið versta, enda hafís í nánd við Norðurland um nokkurt skeið. ★ * * Ársþing Tuttugasta og þriðja ársþing Sambands íslenzkra Frjálstrúar Kvenfélaga verður haldið á Sum- arheimilinu á Hnausum þann 19. og 20 júní og byrjar að kveldi, þann 18. kl. 8. Eru kvenfélögin hérmeð beðin að tilkynna Mrs. P. S. Pálsson, 796 Banning St., Winnipeg, tölu fulltrúanna, sem búist er við að sendir verði. Aug- lýsing um þingið og árssamkom- una verður svo birt í blöðunum í næstu viku. - Marja Björnsson (forseti S. f. F. K.) Gjaíir í Skrúðvagnssjóðinn, (Float) 75 ára afmælis Winnipegborgar 1949 Mr. E. Vopni.............$10.00 Judge W. J. Lindal....... 10.00 S. O. Bjerring............ 5.00 Rev. P. M. Petursson .... 5.00 Mrs. S. Sigurðson ........ 5.00 Mr. & Mrs. H. F. Danielson 5.00 Mr. H. M. Swan............ 5.00 Mr. & Mrs. Steindór Jakobsson ............. 5.00 Mrs. Jóhanna Cooney ... 1.00 Áður auglýst $ 51.00 . 1,119.00 Samtasl alls .......$1,170.00 Davíð Björnson féhirðir * * * Fréttapistill frá Blaine Hr. Stefán Einarson, ritstj. Hkr. Kæri herra: Viltu gera svo vel að ljá eftir- farandi línum rúm í næsta tölu- blaði Heimskringlu. Hér hefur sól og sumar sezt að völdum og klætt móðurjörð í dýrðlegan skrúða, grös fæða fénað, blóm og jurtir anga og fuglar himins hafa fyrir nokkru tekið sér bústað í laufkrónum trjánna, þennan útlíðandi mán- uð hefur verið óslitin veðurblíða en helzt til lítil rigning. Eins og alltítt er, á meiri hluti fólks góðri heilsu að fagna en mim hlutin stríðir við ýmsa kvilla. Félagslíf meðal íslendin| nóg kunnátta feðra tungunai hamlar því frá að geta átt full- komna samvinnu með þeim eldri. heimilið “Stafholt”, í Blaine það prýðileg bygging hverjum emábæ til sóma. Þangað er nú komið yfir 20 vistmanna. Tveir íslenzkir prestar hafa komið sér saman um að flytja þar íslenzka guðsþjónustu, endurgjaldslaust í mánuð hver. Eru það séra G. P Johnson og séra A. E. Kristjáns- son. Þjóðræknisdeildin “Aldan heldur sína ákveðnu fundi reglu- Notið 2, 4-D til . .. Eyðileggingar Illgresis Brúkið Dow Chemical med “Naco Dust- er eða Spray Machine. Viðvíkjandi frekari upplýsingum skuluð þér tala við næsta FED- ERAL umboðsmann. fi*f llltlti.. ' __________ FEDERHL GHHHl LimiTED P. M. PETURSSON Frambjóðandi CCF flokksins í NORQUAY mála og ellistyrksmála. Greiðið atkvæði með CCF í N0RQUAY Phiiip m. Petursson Starfar að heill og velferð' alþýðunnar, gætir r é 11 a r hennar á sviði fræðslumála, heilbrigðismála, samvinnu- By Authorily Norquay CCF Constituency Association Barney Egilson, Gimli, Manitoba, Official Agent lega og minnist 17. júní frelsis- dags íslands árlega með al- mennri skemtisamkomu sem höfð er á víxl í samkomuhúsum íslenzku kirknanna, í þetta sinn verður hún haldin 18. júní, kl. 8 e. h. í lúterska kvenfélags- húsinu. Verða þar góðir söng- kraftar, tvær íslenzkar hreyfi- myndir og ýmislegt fleira. Nokkur óánægja er hér með misjöfn og sein skil á íslenzku blöðunum. Kemur alloft fyrir að þau koma hingað viku eftir út- gáfu dag en engin veit hvað því veldur. Þakka eg svo fyrirfram fyrir væntanlega veittan greiða með birtingu þessara lína og óska Heimskringlu heilla og langra lifdaga. Mrs. J. Vopnfjörð Ritað 30. maí, 1949 * * * Messur í Nýja-íslandi 12. júní — Hnausa, íslenzk messa kl. 2. e. h. Riverton — íslenzk messa og safnaðarfundur kl. 8. e. h. 19. júní — Víðir, ensk messa kl. 2. e. h. B. A. Bjarnason 17. júní hátíð á Mountain Föstudaginn 17. júní 1949 verður haldin ÍSLENDINGADAGSHÁTÍÐ Á MOUNTAIN N.D. Aðalræðuna flytur Dr. R. Beck frá Grand Forks og svo verða fleiri ræður, söngur, solos, tvísöngur o. s. frv. Komið öll og hafið skemtilegan dag. Skemtunin byrjar kl. 2 e. h. Aðgangur að garðinum $1.00 og 50c fyrir börn á skólaaldri. NEFNDIN Lýðveldishátíð íslendinga verður haldin að Iðavelli 18. júni 1949 íþróttir fyrir yngri og eldri hefjast kl. 10 f.h. ★ SKEMTISKRÁ (Hefst kl. 2 e.h.) Þjóðsöngvar Ávarp forseta Gunnar Sæmundsson Ávarp fjallkonunnar. .. . Söngur Ávarp Miss Canada Síöngur Minni íslands, ræða Minni íslands, kvæði... Ávörp heiðursgesta Söngur Minni Canada, ræða ... ,. Hallgrímur Pétursson Minni Canada, kvæði... Söngur Minni landnema, ræða. .. Minni landnema, kvæði.. Söngstjóri. Jóhannes Páisson Dans í Hnausa Hall — byrjar kl. 8.30 e.h. Gunnar Sæmundsson, forseti Tímóteus Böðvarsson, ritari

x

Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.