Heimskringla - 27.07.1949, Blaðsíða 9

Heimskringla - 27.07.1949, Blaðsíða 9
LXIII. ARGANGUR WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 27. JÚLÍ 1949 NÚMER 43. og 44. Giftingarathöfn Mr. og Mrs. Jón Júlíus Arnason Ein þeirra fjölmennustu gift- ingarathafna sem fram hafa far- ið í Fyrstu Sambandskirkju í Winnipeg fór þar fram laugar- daginn, 23 júlí er gefin voru sam- an í hjónaband Jón Júlíus Arna- son og Lilja Johnson. Séra Fhil- ip M. Pétursson gifti. Kirkjan var þétt skipuð og þeir gestir sem á síðustu mínútu voru, kom- ust ekki inn. Kirkjan var skreytt hvítum “gladiolum” og burkn- um og lýst með kertaljósum. Mrs. Elma Gíslason söng tvisvar, fyrst “Brúðkaups bæn”, sem fað- ir brúðarinnar hafði sérstaklega ort fyrir tækifærið og í Síðara skiftið brúðkaupssönginn “I’ll Walk Beside You”. Gunnar Er- lendsson var við orgelið. Brúðguminn er sonur þeirra hjóna Vilhjálms og Guðrúnar Arnason á Gimli, en brúðurin er dóttir Bergthors Emils og Krist- ínar Johnson í Winnipeg. Brúð- urin var aðstoðuð af Mrs. S. J. Perkinss og Miss Elín Arnason, systur brúðgumanns, og-Patricia Arnason var blómamey fflower girl). Brúðguminn var aðstoðað- ur af Frank Arnason. Svaramað- ur brúðarinnar var faðir hennar, Mr. B. E. Johnson. Þeir sem leiddu til sæta voru Herman Arnason, Charles Simpson, Ger- ald Stephenson og Arthur Vopni. Frá kirkjunni var farið á Marl- borough hotel, þar sem brúð- kaupsveizla fór fram í “The Purple Room.” Öll borð í hinum stóra borðsal voru þéttskipuð Our Compliments TO THE ICELANDIC PEOPLE, ON THE OCCASION OF THE 60th ANNIVERS- ARY THEY ARE NOW CELEBRATING AT GIMLI, AUGUST 1, 1949. ★ CEYMOUR ° J-JOTEL /. McKENDRY, Manager 277 MARKET AVE. WINNIPEG, MAN. DR. ÞORKELL JÓHANNESSON GESTUR Á ÍSLENDINGADEGINUM Gestir írá Islandi Séra Valdimar Eylands, forseti íslendingadags- ins á Gimli, biður Hkr. að geta þess, að dr. phil. Þorkell Jóhannesson og frú hans verði gestir á ís- lendingadeginum á Gimli n. k. mánudag og flytji dr. Þorkell þar ávarp og kveðjur. gestum. Veizlustjóri var séra Philip M. Pétursson. Dr. K. I. Johnson, föðurbróðir brúðarinn- ar mælti fyrir skál hennar, en Mr. John Laxdal mælti fyrir skál brúðgumans, sem þakkaði gestum og vandamönnum með nokkrum velvöldum og viðeig- endi orðum. Að borðhaldinu loknu var stigin dans fram á mið- nætit og voru allir hinir glöðustu. — Ungu hjónin lögðu af stað næsta dag, bílleiðis til Minneap- olis en eru væntanleg heim um næstu helgi. Framtíðarheimili þeirra verður að 1057 Dominion St. í nýbygðu húsi, gjöf til brúð- arinnar frá foreldrum hennar. P. M. P. BRÚÐKAUPS BÆN Lífsins faðir, ljóssins andi Legðu þína mildi og náð Yfir þessi ungu hjörtu Örlög þeirra og sérhvert ráð. Breiddu ástar ylinn þýða Yfir hverja von og þrá. Vernda þau frá þungum harmi Þerra angurs tár af brá. Megi allar óskir rætast; Ykkar draumur þenna dag Fléttast inn í framtíðina Friðarins við sigur lag. trygð í hjarta, trausta bindi trú á lífsins gæði og mátt. Drottins kraftur öllu ofar Ykkur leiði í sólarátt. Bergthor Emil Johnsíon Kvæði sungið við giftingu Lilju Johnson og Jóns Júlíus Arnason laugardaginn, 23 júlí í Fyrstu Sambandskirkju. Viðskifta-öngþveitið Það er nú að verða ljóst, að til hreinna og beinna vándræða horfir með heimsviðskiftin. Á- stæðuna fyrir því látast menn ekki sjá. En hún er þó einfald- ari en svo, að hún dyljist nokkr- um. Eftir síðasta stríð, varð þurð á ýmsum vörum. En eins og oft vill verða, þegar maðurinn er sviftur því, er hann er vanur, rís hann upp og greiðir hvað háa upphæð sem er fyrir hlutinn, heldur en að vera án hans. En með þeirri ströngu eftirspurn vöru, bregst heldur ekki, að var- an hækki í verði og kaup verka- manna hækki að sama skapi. — Þannig verður dýrtíð til. En af háverði vöru leiðir eitt. Gjaldþol peninga rýrnar og kaupmáttur þeirra hjá erlendum þjóðum. Nú er háverði á bandarískum pen- ingum um alt þetta kent. En hitt dettur engum í hug, að það sé hver þjóð út af fyrir sig, sem sjálf sviftir peninga sína kaup- mætti. Það sem gerist, er að jafnvægi milli framleiðslu ogj framleiðslu kostnaðar fer úr skorðum. Framleiðslan verður of dýr fyrir heimsmarkaðinn. — Þetta er það sem er að gerast, eða hefir gerst nú í verzlunar- málum Breta, og sem stórtap leið- ir af fyrir Canada, eða svona um 250 miljón dala tap. Þeir geta ekki fengið það verð fyrir fram- leiðsluna, sem hún kostar. Við- skifti er aldrei hægt að reka með því að framleiða sér í skaða. Þó Bandaríkin köstuðu nú fé í Bret- ann til að jafna sakir hans, yrði það ekki stoð, nema í svip. Þjóð- félagsreksturinn hefir úr skorð- um gengið og það er ekki um neinar varanlegar bætur að ræða, fyr en hann er aftur kominn í lag, framleiðslu kostnaður minkar, gjaldþol peninga vex og jafn- vægi kemst á hlutina eins og í öðrum löndum. Það er talað um “dollara svæði” og “sterlingspunda svæði”| en í sjálfu sér hefir það ekkert við hag þjóða að gera, ef þau skil- yrði hafa verið sköpuð, er raska öllu jafnvægi framleiðslu og framleiðslu kostnaðar. Fall pen- inganna er því að kenna hjá viss- um þjóðum, en ekki hinu, að aðr-j ar þjóðir hafi lagt ok á þær, með því að fara ekki að dæmi þeirra, eins og þráfaldlega er haldið fram. Eftir því sem framleiðslan jókst nú að stríðinu loknu, fór auðvitað að bera á samkepni þjóða milli. Sú þjóðin, sem sam- j kepnisfærust reynist, ber eðli-! lega mest úr býtum heimsvið-! skiftanna. Það er samkepnis- fyrirkomulagið, sem nú er aftur að ná sér á strik. Og það skrítna er, að Bretland, sem ávalt hefir fylgt því strangara, en nokkur önnur þjóð og gerir vissulega á kaupum sínum, er nú öðrum Ev- rópu þjóðum ver stödd með sölu afurða sinna. Það er að tapa markaði sínum í heiminum vegna þessa og hækkar verð vöru sinn- ar, þegar það ætti sem mest að lækka eða líkjast því að minsta kosti, sem hjá öðrum þjóðum ger- ist. Bretland hefir ekki þurft að taka mikið tillit til þess, er aðrar þjóðir gerðu, meðan ríki þess var svo víðtækt, að sól gekk aldrei undir í því. Nú er öldin önnur. Gamalíel Thorleifsson GARÐAR, N. D. Þegar allt er vorblæju vafið, vlðáttunnar dásemdir skína, sendi eg yfir sólblikað hafið sumarkveðju íslands og mína. Einnig þegar hertaka heiminn haustsins öfl með kjarnorku sinni, varpa eg yfir víðfeðma geiminn vetrarkveðju íslands og minni. Gjarnan vil eg hlusta og heyra hljómana af tilsvörum þínum, ef þér skildu berast að eyra ómarnir af kveðjunum mínum. Með þökk fyrir vinsamleg orð í minn garð í greininni “Þökkuð kveðja” í Heimskrniglu þ. 16. marz s. 1., og vinsam- legri kveðju. Matia Rögnvaldsdóttir frá Réttarholti Dr. phil. Þorkell Jóhannesson Frú Hrefna Bergsd. Jóhannesson Dr. phil. Þorkell Jóhannesson, prófessor í sögu við Háskóla ís- lands, kom ásamt frú sinni til Winnipeg s. 1. mánudagskvöld. Þau lögðu af stað að heiman s. 1. sunnudag. Þau sögðu í stuttu viðtali er vér áttum við þau á heimili frú Hrólmfríðar Péturs- son, 45 Home St., í gær, alt bæri- legt að frétta að heiman. Þau dvelja hér um mánaðar- tíma vestra. Dr. Þorkell slær ekki oft slöku við starf sitt, sem nú lítur að'sögulegum skrifum, auk háskólakenslunnar. En þessi ferð hans mun nú gerð í hvíldar- tíma hans og vera í skyndi farin. Dr. Þorkell er frá Syðra-Fjalli í Aðaldal, sonur Jóhannesar bónda þar og hreppstjóra og Svöfu Jónasdóttur, systur Mrs. Hólmfríðar Péturssonar, ekkju dr. Rögnvalds Péturssonar. Hann lauk prófi í íslenzkum fræðum 1927 og hefir síðan mátt telja sem einn af afkastameiri fræður- um þjóðar vorrar, bæði sem kenn- ari og rithöfundur. Hann var nokkur ár skólastjóri Samvinnu- skólans í Reykjavík áður en hann varð prófessor við Háskóla ís- lands. Auk nokkurra bóka, sögulegs efnis, er hann hefir ritað, liggur mikið eftir hann af fræði rit- gerðum í beztu íslenzku tímarit- unum. Hann var og ritstjóri Samvinnunnar, Nýja Dagblaðsins og Dvalar um skeið. Frú Hrefna Bergsd. Jóbannes- son, sem í förinni er með manni siínum, er ættuð frá Ökrum á Mýrum, dóttir Bergs Jónssonar bónda þar. Vestur-íslendingar bjóða þessa góðu gesti velkomna! ÚR ÖLLUM ÁTTUM B æ n d u m vesturfylkjanna verða greidd 61^ cents sem fyrstu borgun á höfrum og 90 cents fyrir bygg, þegar Hveitiráð Canada tekst söluna á hendur 1. ágúst. Burðargjald til Ft. Wil- liam er af þessu fé tekið, en það er 1 Yz á hafra, en 3 cents á kyggi- Sala á rúgi og hör, er þá það eina af kornframleiðslu, sem stjórnin hefir ekki hrifsað. * Hafnarverkfallinu í London er nú lokið eftir fjögra vikna uppi- hald og ómetanlegt tap. Varð að beita herliði gegn verkfallsmönn- um í fyrsta sinni í sögu Bret- lands, til þess að bjarga því af matvöru, er annars lá fyrir skemd og hefði orðið að kasta í sjóinn. ★ Fyrir Bandaríkjaþing hefir Truman forseti lagt frumvarp er fer fram á fjárveitingu til hers í Evrópu, er nemur $1,450,000,000. Veitingin er búist við að verði samþykt, þó nokkrir rekpublik- anar hafi í efri málstofunni and- mælt því, að Bandaríkin skuld- bindi sig með þessu til þátttöku í Evrópu stríði í fyrsta skifti í sögu landsins. Y Q U AL □□ □□ BU Y BRE AD and C AKES □□ □□ De,íYoru; Food d Fresh DailV d Store

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.