Heimskringla - 12.10.1949, Side 1
3 New loaves by
CANADA
BREAD
1. Tender Crust
2. 16 oz. White Sandwich
3. Honey Crushed Brown
Ask your Grocer for them
LXIV. ÁRGANGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN 12. OKT. 1949
3 New loaves bv
CANADA
BREAD
1. Tender Crust
2. 16 oz. White Sandwich
3. Honey Crushed Brown
Ask your Grocer for them
NÚMER2.
Bæjarstjórnar kosningar í Winnipeg
George Gardiner, ritari Win-
nipegbæjar, sagði þær fréttir s.l.
viku, að tilnefndir væru 32 menn
er um bæjarráðs- og skólaráðs-
stöður sæktu í kosningunum í
Winnipeg 26. október.
Níu verða kosnir í bæjarráð
en 14 sækja. Eru sjö af þeim í
borgara flokki, 5 C C F og 1
kommúnisti, einn frá Ratepay-
ersfélaginu.
í skólaráð verða og 9 kosnir,
en 18 sækja. Eru 8 af þeim úr
borgarflokki, 5 C C F, 2 óháðir,
2 kommúnistar, einn frá Rate-
payers-félaginu.
Borgarstjórakosningar verða
ekki í ár. En um þessar fjárs-
veitingar verður greitt atkvæði:
$1,500,000 til nýrra skóla og
$700,000 fyrir lóð fyrir nýja bæj-
arráðshöll.
Þriðja málið sem atkvæði
verður sérstaklega greitt um,
er um að flýta klukkunni yfir
sumarmánuðina á árinu 1950. -
Þessi aukamál ættu að hleypa
fjöri í kosningarnar. i
Eitt er eftirtektarvert við
þessar kosningar. í þeim sækja
nú 5 konur, áður hafa þær að-
eins verið tvær.
Annað eftirtektarvert eða nýtt
við kosningarnar, er að 12 nýir
og óreyndir sækja.
Atkvæða greiðsla fer fram frá
klukkan 10 að morgni til klukk-
an 9 að kvöldi. Það er einni
stund lengur en vanalega, en
með því er verið að greiða fyrir
þeim, er frameftir vinna.
Atkvæði greiða menn með töl-
um um fulltrúana eða eftir hlut-
fallskosningu og geta því merkt
við nöfn allra á seðlinum ef þeir
V1lja, en í þeirri röð, sem þeir
kjósa sér. Tvö og þrjú nöfn munu
menn vanalegast láta duga sér.
Einhverjir buðu sig fram, sem
ekki voru á kosningaskrá bæjar-
ins og voru þessvegna léttir
fundnir.
Hver bæjarráðsmaður verður
að greiða tryggingarfé er nemur
$25, en er greitt það aftur, ef
hann hlýtur 15% allra atkvæða.
Að sækja í skólaráð, er hægt án
þessa.
Hér á eftir flygja nöfn þeirra
er sækja. Stendur við nafn hvers
bæjarráðsmanns, er endursækir
“Ald.”, en skólaráðsmanns
“Trustee”.
NÖFN FRAMBJÓÐENDA
í bæjarráð:
Ward 1
Ald. C. E. Simonite, C.E.C.
Ald. C. Graham, C.E.C.
Mrs. Maude McCreery, C.E.C.
Ronald Moran, C.C.F.
Ward 2
Ald. J. Black, C.E.C.
Ald. J. St. John, C.E.C.
Ald. V. B. Anderson, C.C.F.
J. Mclsaac, C.C.F.
Ward 3
Ald. J. Blumberg, C.C.F.
G. H. Beckford, C.C.F.
Ald. M. J. Forkin, L.P.P.
Ald. J. Stepnuk, R’payers Assn.
Fred Ward, C.E.C.
Slaw Rebchuk, C.E.C.
1 skólaráð:
Ward 1
Trustee S. B. Laing, C.E.C.
Trustee W. S. McEwan, C.E.C.
Mrs. E. R. Tennant, C.E.C.
J. Pearce, C.C.F.
C J. Kozlowski, Ind.
Ward 2
Trustee Adam Beck, C.E.C.
Dr. A. C. Brotman, C.E.C.
Mrs. Howard (Nan) Murphy,
C.E.C.
Mrs. Margaret Chunn, L.P.P.
Trustee P. M. Petursson, C.C.F.
Miss Marie Guay, C.C.F.
G. A. Frith, Ind.
Ward 3
D. Levin, C.E.C.
Trustee A. Zaharychuk, C.E.C.
Saul Cerniak, C.C.F.
Len Stevens, C.C.F.
Trustee J. Zuken, L.P.P.
W. P. Naskar, Ward 3 R’payers
Association
John Hergshiemer, Independent
MERKUR íslendingur
A. S. (Fd) Sigurdson
Ágúst heftið af Rexall tímarit-
inu hefir á kápunni mynd af
manni en í kring um myndina er
kort af Vestur-Evrópu og Ame-
ríku og er þar vikingaskip á leið-
inni frá íslandi til Ameríku. Eru
svo tveir staðir á kortinu merktir
ísland og Minnesota. Maðurinn
á myndinni er apótekari A. S.
(Ed) Sigurdson frá Moorhead,
Minnesota, sem fæddist í Reykja-
vík á fslandi en kom kornungur
til Ameríku með foreldrum sín-
um en er nú eigandi og forstjóri
stórrar lyfjabúðar í Moorhead,
þar sem að hann gerir afar mikla
verzlun. Er löng hólgrein um
Mr. Sigurdson í þessu víðtæka
hefti og eru þar líka margar
myndir af búðinni, heimili,
verkafólki og fjölskyldu hans.
Tilefni alls þess er að síðast-
liðið ár var Ed Sigurdson forseti
alheims félagsskapar Rexall lyf-
sala sem eru yfir tíu þúsund að
tölu og finnast um öll Bandarík-
in, í Canada, á Englandi og víðar.
Var svo góður rómur gerður að
framkomu Mr. Sigurðsons í em-
bætti þessu að hann var heiðraður
í stóru samsæti í Minneapolis að
árinu liðnu og var honum gefin
stór, indæll bakki (tray) úr ekta
silfri.
Grein þessi fjallar mikið um
hvað Mr. Sigurðson sé fær kaup-
maður og hvað hann hafi og sé að
gera mikla og happasæla verzlun.
Er þar líka talið fram hvað
hann starfi mikið fyrir það opin-
bera og hvað hann sé mannfélag-
inu þarfur maður. Hefir hann
verið forseti North Dakota lyf-
salafélagsins, og forseti bæði
Minnesota og North Dakota Rex-
all Clubs. Hefir hann verið fram-
kvæmdarstjóri sameinuðu heild
sölu lyfsala í Chicago. Líka hefir
hann verið forseti Moorhead
Chamber of Commerce, Moor-
head Rotary Club, og Retail Mer-
chants Association.* Síðastliðið
sumar, á fundi í Winnipeg, var
hann kosinn forseti Rotary In-
ternatonal Fellowship og er hann
líka framkvæmdarstjóri í Fargo-
Moorhead Executive Club.
Er saga Ed Sigurðsonar skyld
sögum margra annara íslendinga
sem komu ungir frá íslandi og
hafa unnið sér frægð og frama
hér í nýju álfunni.
Kom Ed tíu ára gamall til
Ameríku með foreldrum sínum
Sæmundi og Steinunni Sigurd-
son, sem lifðu mörg ár á Moun-
tain, N. Dakota. Voru þau bæði
ágætis manneskjur en eru nú dá-
in fyrir mörgum árum. Lifir ein
dóttir þeirra, Kristín, Mrs. Chris
Guðmundson, enn á Mountain og
svo er Sigurður sonur þeirra
akótekari í Bottineau, N. Dak.
Önnur börn þeirra munu vera
norðvestur í Canada og suður í
Californíu.
Vann Ed við hitt og annað eft-
ir að til Ameríku var komið. —
Hjálpaði hann járnsmiði þegar
hann var ellefu ára. Þurfti hann
þar að passa eldinn og gera önnur
vikadrengs verk. Var það bæði
heit og óhrein vinna. Um haustið
þegar hann hætti til að fara á
skóla fékk hann tólf dali fytir
sumar vinnuna. Önnur sumur
vann hann stundum í búð og
stundum hjá bændum. Þegar
hann var seytján ára byrjaði hann
að vinna á apóteki í Hensel, N.
Dak., og fyrsta árið var kaupið
bara fæði og herbergi. Næsta árið
var kaupið $25 á mánuði en $16
fóru til baka fyrir fæði og her-
bergi. Vann hann seinna í apó-
tekum í Valley City og í Fargo.
Árið 1928 keypti hann búðina
í Moorhead og hefir verið við
stýrið þar síðan. Nú í mörg ár
hefir búðin hans verið hæðst í
sölum af öllum Rexall búðum í
Minnesota. Kemur þetta af því
hvað Mr. Sigurðson er vingjarn,
hjálpsamur, áreiðanlegur og
sanngjarn. Er búðin smekkleg.
vel birgð með vörum og spegil
hrein.
Hann er giftur aðlaðandi og
myndarlegri hjúkrunarkonu, —
Ruth Nilles. Eiga þau þrjú efni-
leg börn: Mary Elizabeth, 16;
Katherine Anne, 8; Jón Edward,
6. Hafa þau einnig lítinn bróð-
urson Mrs. Sigurðson, sem misti
móður sína þegar fárra vikna
gamall. Er heimili þeirra Sig-
urðsons mjög smekklegt og eru
þau bæði ágæt heim að sækja.
fslendingar mega vel v~
montnir af Ed Sigurðson, þvl
hann er mesta prúð- og sóma-
menni. Hann kemur alstaðar vel
fyrir og hefir virðingu og álit
allra sem þekkja hann. Er ekki
ofsagt um hann það sem greinin
í Rexall blaðinu endar með:
“Menn í Minnesota og Norður
miðvestrinu eru fyrirhyggju,
upphafsmenn, menn með forsjón
— já — miklir menn. Ed Sigurð-
son er einn af þeim mestu og
bestu.” K. O. T.
gunnl. TR. JóNSSON
fyrverandi ritstj. Heims-
kringlu látinn
f morgun meðtók Heimskringla
bréf frá gömlum vini hennar
heiman af íslandi, er getur láts
Gunnlaugs Tryggva Jónssonar er
um skeið var ritstjóri Heims-
kringlu, en fór heim til íslands
fyrir nærri 30 árum. Var hann
fyrstu árin heima ritstjóri ís-
lendings, en rak síðari árin bóka-
verzlun á Akureyri. Gunnlaugur
átti hér vestra miklum vinsæld-
um að fagna. Hann var síglaður
í viðmóti og vildi hverjum manni
vel. Heima á Akureyri var mér
sagt árið 1946, að hann væri einn
vinsælasti borgari bæjarins. Var
hann þá við góða heilsu að því er
virtist og bráðskemtlegur að
hitta. Áttum við langt tal saman
um Vestur-íslendinga, enda var
ekki á mann svo minst hér, að
Gunnlaugur ekki þekti hann og
fýsti að vita hvernig nú liði.
í þinghúsgarðinum í St. Paul,,
Minn., hefir stytta verið reist af
Leifi Eiríkssyni. Var hún af-
hjúpuð s. 1. sunnudag og var
myndin, hér að ofan tekin, með-
an athöfnin fór fram. St. Paul
Pioneer Press segir 5000 hafa
verið viðstadda.
Styttan er 12 feta há og vegur
um 4000 pund. Hún er smíðuð af
John Karl Daniel, styttusmið,
norskum, í Minneapolis. Afhjúp-
uð var hún af Mrs. O. I. Brack,
vara-forseta minnisvarðanefndar
, Leifs í St. Paul. Norðmenn syðra
eru höfundar fyrirtækisins.
Aðalræðuna á þessari hátíð
flutti norski sendiherrann Vil-
helm Morgenstjerne. Kvað hann
styttuna tengja Noreg og Banda-
ríkin saman.
Það helzta sem fyrir vakti með
styttuna hélt Valdimar Björns-
son fram, er einnig var ræðumað-
ur, var að minna á þann sann-
leika, að Leifur hefði fundið
Ameríku 5 öldum á undan Kristo-
fer Kolumbusi.
Gestir á hátíðinni héðan voru
Grettir Jóhannsson konsúll og
frú og dr. Richard Beck. Voru
þau kynt áheyrendum. Fluttu
þeir hátíðinni kveðjur frá Þjóð-
ræknisfélaginu.
Friðrik Fljózdal, hinn kunni
verklýðsforingi frá Detroit,
Mich., sem verið hefir í St. Paul
á þingi Amercan Federation of
Labor, var líka á ræðupallinum.
Hann var í nefnd Bandaríkjanna,
er heim fór 1930.
Hann var mikill vinur Vestur-
íslendinga og túlkaði vel afstöðu
þeirra til ættjarðarinnar. Hann
var forseti Þjóðræknisfélags Ak-
ureyringa og góður stuðnings-
maður margra félagsmála bæjar
síns.
Vér látum hérmeð fylgja bréf-
ið með fregninni af láti hans.
Akureyri, 4. okt. 1949
Hr ritstj. Stefán Einarsson
Kæri vin!
Hérmeð tilkynnist þér og ykk-
ur öllum vestra að Gunnlaugur
Jónsson andaðist að
kvöldi hins 1. okt. og verður jarð-
aður kl. 2 n. k. laugardag. Gunn-
laugur sál. hafði átt við van-
heilsu að stríða undanfarið, við
máttleysi í fótum og líkama, var
búinn að leita lækna í Reykja-
vík en þeir gátu ekkert fyrir hann
gert svo hann kom heim aftur
hingað og var ætlunin að hann
færi í dag með flugvél til útlanda,
en honum var ætluð önnur flug-
leið og lækning, sem honum hefir
verið fyrir beztu að dómi okkar
sem þektu hann best og það munu
vera allir Akureyringar og marg-
ir Vestur-íslendingar síðan hann
var ritstjóri Heimskringlu.
Hér syrgja fjölda margir góð-
an glaðann samferðamann. Það
skarð verður aldrei skipað af
öðrum.
Gunnl. Tr. Jónsson var fæddur
18. janúar 1888 hér í bæ og eg,
sem þekti hann frá fæðingu til
dauðadags, þakka honum sam-
fylgdina hér heima og vestra og
bíð þess að samfundum okkar
verði ekki lengi að vænta af 77
ára gömlum manni. “Guð blessi
þig vinur á sælunnar landi frið-
arins.”
Kær kveðja til allra Vestur-ís-
lendinga, óskandi öllum alls hins
besta og vellíðan.
Þinn einl.
/. S. Thorarensen
Heimilisiðnarfélagið heldur
næsta fund á þriðjudaginn 18 okt.
að heimili Mrs. J. P. Markússon,
500 Waterloo St. Fundurinn
byrjar kl. 8. e. h.
» * »
Gifting
Gefin voru saman í hjónaband
s. 1. fimtudag, 6. október, þau Jón
Friðriksson og Arngerður Gríms-
dóttir bæði fyrir stuttu komin
heimanað frá fslandi. Séra Philip
M. Pétursson gifti, og fór athöfn-
in fram á prestsheimilinu, 681
Banning St. Aðstoðarmenn brúð-
hjónanna voru Dr. og Mrs. Björn
Jónsson. Brúðkaupsveizla fór
fram að heimili Mr. og Mrs. Roy
Vernon, 220 Maryland St. Auk
annars söng Mrs. Vernon og
einnig var hlustað á íslenzka
söngvara á plötum. Öll athöfnin
var hin skemtilegasta. Brúðhjón-
in eru lögð af stað austur til
Montreal, en þar stundar brúð-
guminn framhaldsnám á McGill-
háskóla í vetur eða um skeið.
* * *
Skírnarathöfn
Sunnudaginn 9. október skírði
séra Philip M. Pétursson, Karin
Margaret og Lesley Judith dæt-
ur Mr. og Mrs. Kára L. Árnason
frá Árborg. Athöfnin fór fram á
heimili Mr. og Mrs. R. Gíslasor>
738 Warsaw Ave. En Mrs. Gísla-
son er föðursystir barnanna. Á
sama tíma var verið að fagna Mr.
og Mrs. Ingólfi Árnason, foreldr-
um Kára L., föður barnanna, og
Mrs. Gíslason, á fimtugs gifting-
arafmæli þeirra. Þar voru marg-
ir vinir og ættingjar saman
komnir og var það mikið fagnað-
ar og gleðimót.
* * *
Þakkargerðarsamkoman í Sam-
bandskirkju s. 1. mánudag, var
hin skemtilegast, enda þótt rign-
ingar fár-veðrið drægi nokkuð
úr aðsókn. Skemtiskráin var mjög
góð og aðalræðan, ræða Guðrún-
ar Hallsson hin áheyrilegasta. —
Söngur og hljómleikar voru og
fyrirtak, enda var þar um þekt og
viðurkent söngfólk að ræða. Ein
stúlka áður óþekt kom þó fram,
sem mikla eftirtekt og yndi vakti
með söng sínum. Hún heitir
Lorna Stefánsson, 11 ára gömul,
irá Gimli, Man., en er við nám
hjá Mrs. Elmu Gíslason, sólóista
Sambandssafnaðar í Winnipeg.
* * *
Látin er nýlega í Seattle, Wash.
frú Anna María Straumfjörð,
kona Jóhanns H. Straumfjörðs
gullsmiðs og skrautmuna kaup-
manns þar í borginni, mikilhæf
°g göfug kona. Auk eiginmanns
síns og tveggja dætra, Díönu og
Unnar, lætur frú Anna María eft-
ir þrjá hálfbræður, ísak bygg-
ingarmeistara í Seattle, Gísla rit-
stjóra í Winnipeg og Gunnar,
fyrrum bónda á Fossvöllum í
Jökulsárhlíð, og tvo albræður,
Einar Pál Jónsson ritstjóra Lög-
bergs og séra Sigurjón prest á
Kirkjubæ í Hróarstungu; hin
látna var dóttir Jóns Benjamíns-
sonar á Háreksstöðum í Jökul-
dalsheiði og seinni konu hans
Önnu Jónsdóttur.
* * *
Skemtisamkoma í Framnesbygð
Kvenfélag Framnesbygðar efn-
ir til ágætrar skemtisamkomu,
föstudagskvöldið, 21. október, í
Framnes Hall. Mrs. Elma Gísla-
son söngkonan góðkunna frá
Winnipeg og Guttormur J. Gutt-
ormsson skáld frá Riverton hafa
góðfúslega lofast til að koma og
skemta. Einnig skemta nokkur
börn með söng, hljóðfæraslætti
og íslenzkum upplestri. Dans á
eftir. Samkoman byrjar kl 9. e. h.
Komið og njótið ánægjulegr-
ar kveldstundar.
Inngangur verður 60 cents fyr-
ir fullorðna og 25c fyrir börn
innan 12 ára.
» * *
S. 1. 8. október lézt að heimili
dóttur sinnar, Mrs. D. W. Pekary,
382 Edgewood St., St. Boniface,
Christian Ólafsson, 63 ára gamall.
Hann var sonur Kristjáns Ólafs-
sonar, lífsábyrgðarumboðsmanns.
Kona hans er látin fyrir mörgum
árum. Börn þeirra eru 2 dætur,
uppkomnar. Jarðarförin fer fram
í dag frá A. S. Bardal útfarar-
stofu kl. 3.30 e. h.