Heimskringla - 28.12.1949, Side 1
»««»«»>»»
Buy and Try—
“DAILY DOUBLE
LAYER” - 35c
Different Flavor Daily
French Cream Filling
ASK YOUR GROCER FOR THEM
Canada Bread Co. Ltd.
Buy and Try—
“DAILY DOUBLE
LAYER” - 35c
Different Flavor Daily
French Creani Filling
ASK YOUR GROCER FOR THEM
Canada Bread Co. Ltd.
LXIV. ARGANGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN 28. DES. 1949
NÚMER 13.
GLEÐILEGT NÝAR
ÞAKKIR FYRIR GAMLA ARIÐ
B RÉ F
Seattle, Wash.
Stutt yfirlit og þættir úr starfi
Þjóðræknisdeildarinnar “Vestri”
frá síðustu áramótum 1949, og
fram til þessa dags, — og svo
ýms önnur hugtök í sambandi við
þjóðræknisstarf íslendinga
vestan hafs.
Það er skylda og einkaréttur
allra þjóðræknisdeilda íslend-
iuga vestan hafs, að senda ís-
lenzku vikublöðunum í Winni-
Peg greinargerð og yfirlit yfir
starfsemi hverrar deildar út af
fyrir sig um hver áramót. Það
vekur áhuga og samhygð allra
íslendinga, sem þeim málum
unna, og slær dimmu eða björtu
Ijósi fram á þá braut, sem nú
horfir við, með því eina móti,
verður skynsömu heildaráliti náð
Ul*i íslenzka þjóðrækni vestan
hafs.
Um síðustu áramót hélt deildin
‘Vestri” veglega samkomu í
^agle’s Auditorium hér í Seat-
Ue. Kom þar fjölmenni mikið af
íslenzku bergi brotið, sumt
blandað og gi-ft í allar áttir kyn-
flokka og þjóða, sem byggja
þetta meginland, og starfrækja
með merkustu þjóð, sem mann-
heimur hefir þekt, The United
States of America, en allir voru
einhuga um að sýna “íslandi”
Vlrðingu með nærveru sinni
þennan dag.
Samkomusalurinn var skreytt-
ur fánum Bandaríkjanna og ís-
innds, og svo litborðar um alla
Veggi sem veittu gestum aðlað-
andi sýn. Skemtiskráin fór fram
a ensku og íslenzku jöfnum
höndum. Forseti “Vestra” setti
samkomuna og bauð gesti vel-
komna, þá var sungið af öllum
The Star Spangled Banner” og
Ó guð vors lands”.
Aðal ræðuna fyrir minni ís-
lands flutti á ensku frú J. P.
Wall. Lýsti hún sögu lands og
þjóðar í skírum dráttum, til
skilnings og þekkingar fyrir
yngri kynslóðina, sem hér er
fsedd og uppalin, og ekki skilur
islenzka tungu. Frú Wall er vel
nientuð og sérestaklega vel máli
farin; vakti ræða hennar mikla
eftirtekt. Hún á kýn sitt að
rekja alíslenzkt í báðar ættir, en
Rift hérlendum lögmanni, sem
Uáir fsland og íslenzkar bók-
nientir.
^á flutti ræðu á íslenzku séra
^araldur Sigmar, D.D., frá Van-
eouver, B. C. Hefir hann marg-
Slnnis heimsótt okkur hér í Seat-
tle 0g gefið okkur glaðar stund-
lr> hann er einn af þessum óbil-
andi fslendingum sem heldur
virðingu íslands á lofti hvar sem
hann fer, en á sama tíma hátt-
metinn og virðulegur borgari
'þessa lands, ennfr. sungu ein-
söngva Tani Björnson og Dr.
Edward Pálmason, báðir alís-
lenzkir og söngmenn með af-
hrigðum, og fyllast allir landar
metnaðar hvar sem þeir koma
fram, svo var drukkið kaffi og
óansað langt fram á nótt, og
Þetta skeði um síðustu áramót
meðal fslendinga í Seattle, en
híðum nú við og sjáum hvað hef-
ir skeð síðan?
Á sumardaginn fyrsta héldu
fslendingar hér í Seattle aðra
sanikomu á sama stað, einnig
mjög f jölmenna, með ágætri
skemtiskrá og góðum árangri í
aiia staði, í minningu lands vors
°g þjóðar.
£*ví næst kom hinn sólbjarti
dagur, sem hrærir strengi í
hjarta hvers einasta íslendings,
þó oft séu skiftar skoðanir um
málefni, þar sem engin pólitík
eða trúarbrögð koma til greina,
17. júní, frelsisdagurinn mikli,
þegar ísland náði rétti sínum á
ný eftir sjö alda kúgun undir
útlendu konungsvaldi. Þessi at-
burður skeði eins og alheimi er
kunnugt, 17. júní 1944; ávalt síð-
an höfum við Vestur-íslending-
ar minst þessa stórmerka við-
burðar í sögu lands vors og þjóð-
ar, með virðingu og hátíðarhöld-
um þennan dag, og einmitt af
þessum ástæðum héldu fslend-
ingar hér í Seattle fjölmenna
samkomu þar sem íslands var
veglega minst á fleiri tungumál-
um, því hér komu fram merkir
menn úr ýmsum stéttum þjóðfé-
lagsins: konsúlar Svíaríkis og
Noregs og íslands, auk annara
hérlendra borgara í hærri stöð-
um. Samkoman fór mjög virðu-
lega fram, og hennar getið í hér-
lendum blöðum. Samkomustað-
urinn var fundarsalur Fyrstu ís-
lenzku lútersku kirkjunnar hér
í Seattle.
(Svífur að hausti og svalviðrið
gnýr, o. s. frv.). Auðvitað höfum
við ekkert af því að segja. ís-
lendingarnir hér á Kyrrahafs-
ströndinni, þó halli sumri eftir
“Almanaki”, en samt hljóma
þessar hendingar enn í eyrum
hinna eldri landa sem fæddir
voru heima, þegar sól lækkar á
lofti og hverfur fyrri að fjalla-
baki.
Þessvegna hefir það verið við-
tekin regla íslendinga hér í Seat-
tle í síðastliðin tuttugu og fimm
ár, að koma saman og fjölmenna
í skógargildi við Silver Lake.
Wash., sem mætti kalla einskon-
ar töðugjalda hátíð, þegar afurð-
ir uppskeru sumarsins eru komn-
ar undir þak, í öll þessi ár hefir
fyrsti sunnudagur í ágúst mán-
uði, verið valinn til þessa mann-
fagnaðar. Sunnudaginn 7. ágúst
s. 1. komu þar samap fjöldi ís-
lendinga að sunnan og norðan,
austan og vestan. Skemtiskráin
var fjölbreytt, eins og að undan-
förnu. Samkoman ávalt haldin í
því skyni að heiðra ættland vort
og þjóð, og ennfremur að mæta
frændum og vinum hvaðanæfa,
og þessar samkomur hafa mætt
miklu athygli og vinsemd íslend-
inga hér á Kyrrahafsströndinni.
fyrst og fremst sökum þess, að
staðurinn og umhverfið við “Sil-
ver Lake er eitt af meistaraverk-
um guðs i sköpuninni á þessari
jörð, og svo hitt, að þar kannast
allir við sjálfa sig, sem samkom-
ur þessar sækja, og þeir eru ís-
lendingar þennan dag, hversu ó-
tryggir sem þeir kunna að vera
'íslenzku þjóðerni alla aðra daga
ársins, (eg veit að þessa klausu
tekur enginn til sín án þess að
hann finni sig veikan fyrir?).
Margir ágætis landar komu
fram á skemtiskránni þennan á-
minsta dag, aðal ræðuna flutti
séra Haraldur S. Sigmar, margir
góðir gestir voru hér til staðar,
og bauð forseti dagsins þeim til
sætis á ræðupalli, meðal þeirra
voru þessir: séra Haraldur Sig-
mar, D.D., frá Vancouver, B. C.,
H. Halldórson byggingameistari
frá Victoria, B. C., Soffonías
Thorkelsson rithöfundur frá
Victoría, B. C., séra Guttormur
Guttormsson frá Minneapolis.
Minn., fluttu þeir allir stutt á-
varp hver, er gerði skemtiskrána
fullkomnari, öllu var útvarpað
' gegnum hátalara, og gátu menn
heyrt alt sem fram fór meðan
þeir sátu við borð og snæddu.
Fyrir öllum þessum samkom-
um hefir þjóðræknisdeildin
“Vestri” staðið, sem nú á 50 ára
afmæli um næstu áramót, og
verða tvær samkomur haldnar
hér í Seattle af því tilefni, sú
fyrri 6. janúar, hin síðari í febrú-
ar n. k. Tvær fjölmennar nefnd-
ir starfa að undirbúningi; febrú-
ar samkoman verður með því
sniði, sem þorramótin voru í
fyrri daga meðal landa í Winni-
peg. Ræður, borðhald og réttir
alt íslenzkt, og er búist við fjöl-
menni á báðum samkomunum.
“Vestri” heldur reglubundna
fundi fyrsta miðvikudag í hverj-
um mánuði, og eru þeir oft vel
sóttir og skemtir fólk sér vel,
fríar veitingar frambornar í
hvert sinn að fundi slitnum, og
kynnast menn þá fyrir alvöru og
rabba saman, deildin telur á ann-
að hundrað meðlimi, og hefir
meir en tugur bæst við á þessu
ári.
Ýmsir góðir gestir sem hér
hafa verið á ferð, skemtu á sum-
um fundunum og er slíku ávalt
vel fagnað.
Þetta er stutt yfirlit yfir starf-
semi félagsins á árinu sem nú er
nærri liðið, og sýnir það að enn
er hér haldið í horfinu til minn-
inga um ísland, þjóð og tungu,
en oft er starfið erfiðleikum
bundið og hvilir mest á fáum
mönnum, sem finna til eins og
stendur í vísunni:
Þetta aldna ættarband,
sem ekkert getur slitið,
tengir menn við móðurland,
meðan endist vitið.
H. E. Magnússon
—12. desember 1949.
ÚR ÖLLUM ÁTTUM
Á sjötugs afmæli Stalins, 21.
des. bárust honum gjafir frá
kommúnistum víðsvegar að, er
námu 5 miljón dölum. Eitt lepp-
ríkjanna, Júgóslavía, sat hjá og
hafðist ekki að. En Tító herti
sóknina, að fá Ungverjaland til
að greiða sér þær stríðsskaða-
bætur, sem um samið var og
námu 70 miljón dölum, en hætt
var að geiða á s. 1. ári, að skipun
yfirráðs Rússa (Cominform).
Rússastjórn tilkynti Titó, að
senda fulltrúa á sinn fund til
skrafs og ráðagerða um þessa
skuld.
★
Frá stjórn Byron Johnson í
British Columbiafylki barst sú
frétt nýlega, að kona, að nafni
Nancy Hodges, hefði verið val-
in fyrir þingforseta. Er það sagt
í fyrsta skifti innan Bretaveldis,
sem kona stjórnar þingi. Frú
Hodges hefir verið við stjórn-
mál riðin um mörg ár, var fyrst
í vali fyrir þingfulltrúa 1935, en
náði ekki kosningu. En 1941 var
hún kosin og 1945 og 1949. Mað-
ur hennar Harry P. Hodges, er
ritst-jóri The Victoria Times.
Hefir kona hans annast málefni
kvenna í því blaði um langt
skeið. Frú Hodges kom frá Eng-
landi fyrir 37 árum. Hún hefir
um langt skeið verið forseti fé-
lags liberal-flokkskvenna í Can-
ada og er fyrir það starf mjög
víðkunn.
Sumir spá að nýung þessi geti
haft áhrif á hegðun þingmanna
og þeir verði ekki eins hortugir
við forseta, sem er kona, og þeir
hafa stundum verið.
•k
í Júgóslavíu kom þing sem
snöggvast saman s. 1. mánudag
og undirskrifaði viðskiftasamn-
ing við Breta er nemur 650 milj.
dala. Er það sagður hinn stærsti
og hagkvæmasti samningur sem
gerður hafi verið við nokkra
vestlæga þjóð síðan fyrir stríðið.
Júgóslavíu stjórnin býr við góð-
an hag, hefir á þessu ári 520 milj.
dala tekjuafgang.
★
Síðast liðinn miðvikudag, eða
21. desember, byrjaði vetur hér
eftir tímatali í Canada. Þá er
styztur dagur, en lengst nótt
eða það sem kallað var fyrrum
vetrar-sólhvörf og gaf svo vel ti1
kynna ,hvað um var að vera, er
nú hefir verið breytt í sólstöður.
Hér var 20 stig fyrir neðan núll
mark þennan dag, og sagði til að
vetur væri kominn. Það er sjald-
an talað um skammdegi í þessu
landi, en þó er sólsetur þennan
fyrsta vetrardag klukkan 4.29 e.h.
og myrkvar skjótt, en sólarupp-
koma ekki fyr en klukkan 8.24 að
morgni og varla nema hálf bjart
fram að þeim tíma.
En hugmyndin að segja vetur
byrja þegar dag fer að lengja,
verður seint skilin af íslending-
um.
★
Þrjátíu og átta fórust í Canada
af slysförum yfir jólin.
í umferðarslysum fórust 18, af
eldi 8 og 12 af öðrum slysum.
Flest urðu slysin í Ontario
(18), þá í B. C. (9), Manitoba
(4).
★
f flóðunum miklu vestur á
strönd, fórust 2 menn í á einni í
bíl, en 2 komust af. Segir annar
þeira er komst af svo frá, að bíll-
inn hafi oltið ofan í ána, fylst
vatni og þeir hafi synt inni í
honum eins og gullfiskar í gler
kúpli, unz hann komst út um
afturglugga bílsins. — Hvernig
glugginn fór úr veit hann ekki.
HEIÐURSSAMíSÆTI
Þann 10. des. s. 1. var heiðurs-
samsæti haldið einum landa okk-
ar í samkomuhúsi Árnes-ibygðar.
Það er vitaskuld engin nýlunda
að slík samsæti séu haldin hin-
um og þessum af margvíslegum
ástæðum og fyrir mismunandi
verðleika.
Samsæti þetta hélt félag fiski-
manna, foseta sínum Þorsteini
Kardal á Gimli og konu hans og
fjölskyldu, sem viðurkenningu
fyrir ágæta forystu hans, síðast-
liðin 2 ár.
Sá sem þetta ritar, hefir aldrei
vitað viðurkenningu og þökk,
lenda á verðugri einstakling, en
einmitt Mr. Kardal.
Saga Kardals er ekki ýkja löng
í þessu landi, en hún er athyglis-
verð og merkileg að ýmsu leyti.
Hann mun hafa komið til þessa
lands árið 1922 (?), ómentaður að
öðru en barnaskólanámi á sveita-
kenslu mælikvarða og dróg það
sjaldan mjög langt. Ólæs var
hann og mállaus á enska tungu.
Innan örfárra ára talar hann og
les ensku reiprennandi og flytur
ræður á svo góðri ensku að til
er tekið. Kemur hér fram sem
oftar, að góðar meðfæddar gáfur
samfara eldheitum áhuga, vega
vel svo mikið sem stundarseta á
skólabekk.
Allmörg fyrri ár sín hér, lagði
hann stund á fiskimensku og
farnaðist í beta lagi. Hann varð
þess bráðlega var að ýms vanda
og velferðarmál fiskimanna voru
óleyst og ef til vill órannsökuð
með öllu af ókunnum ástæðum á
umliðnum tíma. Hann tók því að
kynna sér sögu og gang fiski-
veiða málanna og varð bráðJega
ljóst hvílík harma og hrygðar-
saga slíkt var frá upþhafi til
enda. Einsetti hann sér því að
verja kröftum sínum þessu máli
til framdráttar og freista hversu
takast mætti í þeim efnum.
Af og til bar við að sendimenn
Manitoba-stjórnarinnar mættu á
fundum fiskimanna, til þess er
þeir nefndu að “vita vilja þeirra”.
Þá hlaut Kardal, ekki einungis
að svara fyrir hönd félagsmanna,
heldur einnig að krefjast ýmsra
réttarbóta sem þóttu nýlunda, og
gerði það með þeim skörungs-
skap og einurð, að félögum hans
varð ljóst, að hann var einmitt
maðurinn sem var hæfastur til
'þess að ráðstafa málum þeirra
innan félags og utan í framtíð-
inni.
Kardal rækir starf sitt með
heilum hug og fullri alvötu;
hann ferðast um vetur og sumar
meðal fiskimanna um veiðitím-
ann, heldur yfir þeim ræður og
hvetur þá til dáða, hanr. sannar
þeim með órækum dæmum að
sameinaðir muni beir standa en
sundraðir falla. Séu nokkrar und-
antekningar meðal fiskimanna
að taka þessi eggjunarorð alvar-
lega, þá er það áreiðanlega ekki
sök forsetans.
Margar ferðir mun Kardal eiga
í stjórnarráðs byggingarnar við
Broadway í Winnipeg, til þess
að leggja fram beiðnir og kröf-
ur — eftir því sem rök standa til
— fyrir hönd fiskimanna og
vissulega hefir hann ýmsu komið
til leiðar, sem telja má til veru-
legra hagsbóta, en örðugur mun
róðurinn vera á stundum og ekki
mun hann ætíð hafa byr Hrafn-
istumanna á þeim slóðum. Grun-
ur minn er sá að margir muni
meiri aufúsugestir á skrifstofum
stjórnarinnar en Steini Kardal,
vegna þess að í fylgd hans eru:
góður málstaður, gott málfar og
rökfesta, þar ofan í kaupið er
hann ekki til sölu á neinum
markaði.
Ekki er mér kunnugt um með-
limatölu fiskimanna, en eg veit
að sú tala er álitleg að minsta
kosti á pappímum. Vonímdi er
að fiskimenn þekki svo sinn vitj-
unartíma, að þeir fylgi þessum
foringja sínum ótrauðir og sam-
heldnir.
Gömul harmsaga yrði óefað
endurtekin ef menn vanræktu
skyldur sínar við sjálfa sig og
félaga sína á þeim tímum sem
mest ríður á að standa saman og
hörfa hvergi. Trú mín er sú, að
með einlægri samheldni þeirra
sjálfra og forystu Kardals, muni
fiskimenn eiga bjartari framtíð
en fortíð.
f samkomulok var Kardals-
hjónunum afhentur alldigur fé-
sjóður á dýrmætum silfurdiski,
þess utan blómvöndur fyrir Mrs.
Kardal sérstaklega. Ýmsir ræðu-
menn fluttu Mr. Kardal þakkar-
ávörp við góðan róm áheyrenda.
Samkomugestir munu hafa ver-
ið um 300 og önnur eins fala
styrkt samkomuna, án þess þó að
geta verið þar viðstaddir.
/. G.
Knowles um þingið
Stanley Knowles, þingmaður
frá Winnipeg, kom austan frá
Ottawa s. 1. miðvikudag. Höfðu
fregnritar hér eftir honum, að
þingið í Ottawa hefði sannfært
hann um, að það hefði verið mikil
yfirsjón af kjósendum í síðustu
kosningum, að veita liberölum
eins einhliða fylgi og raun varð
á.
Það sem lengst verður í minn-
um haft um þingið”, sagði
Knowles, er það, að það braut
lögin, sem samin voru því við-
víkjandi ,að vernda almenning
fyrir verðhækkunar-samtökum
viðskiftahölda.
Með 190 þingmenn sér að baki,
veit stjórnin hvað hún má þjóða
sér. í sjálfu sér þarf þetta nú
ekki ávalt að vera til ills. En
þegar það gengur svo langt, að
stjórnin og lið hennar hættir að
skeyta um lög landsins og heldur
sig upp yfir þau hafin, þá fer að
verða til lítils, að halda þing.
Andstæðingar stjórnarinnar
drógu ekki af sér, að benda á
þetta, og að minna á að skildi
þingsins bæri að halda hreinum.
Uppkast sambandsstjórnar að
skilmálum um skattgreiðslu á
eignum sambandsstjórnar, var
Knowles óánægður með. Hann
sagði fjóra bæi aðallega hagnast
á þessu; og Winnipeg væri ekki
í tölu þeirra.
Af þeim 9 þingum sem hann
hefði setið á, hefði þetta verið
hið róstusamasta og óskemtileg-
asta.
Blóðbanki byggður við Rann-
sóknastofu háskólans á
Landsspítalalóð
Samkvæmt upplýsingum, sem
Vísi hefur fengið hjá prófessor
Níels Dungal, er nú verið að
grafa fyrir byggingunni og
steypuvinna mun væntanlega
hefjast á næstunni, en reynt verð
ur að steypa húsið upp í haust
eða fyrripartinn í vetur, og von-
ir standa til að það verði fullbú-
ið og tekið í notkun síðari hluta
næsta árs.
Byggingin verður 11X25 metr.
og verður tvær hæðir. Á efri hæð
inni veðuru sjálfur blóðbankinn,
en neðri hæðin verður aðallega
notuð fyrir tilraunadýr.
Þetta er fyrsti blóðbankinn,
sem stofnaðuru er hér á landi.
Að vísu hefur lítils háttar blóð-
taka átt sér stað á undanförnum
árum, og hafa það aðallega ver-
ið skátar, sem gefið hafa blóð.
Hins vegar hafa blóðbirgðirnar
verið allt of litlar, og blóðskort-
urinn valdið margVíslegum
vanda í sambandi við ýmsar
læknisaðgerðir.
Með tilkomu blóðbankans er
búist við að úr þessu rætist, og
að jafnan verði nóg blóð til, svo
að hægt verði að sjá öJlum
sjúkrahúsum landsins fyrir
blóði. —Vísir
Dr. Sveinn Björnsson frá Oak
River, Manitoba, leit inn á skrif-
stofu Hkr. í morgun. Hafa lækn-
is hjónin verið hér eystra um
jólin í heimsókn hjá fornum
vinum og kunningjum.
* * *
Jarðarför
Séra Philip M. Pétursson jarð-
söng Mrs. Emelia Longner, 22.
desember. Útförin fór fram frá
útfararstofu Mordue Bros., og
jarðsett var í Brookside grafreit.