Heimskringla - 05.07.1950, Blaðsíða 8

Heimskringla - 05.07.1950, Blaðsíða 8
8 SÍÐA HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 5. JÚLÍ 1950 FJÆR OG NÆR Messað verður í Árborg N.k. sunudag, 9. júlí, kl. 2 e. h. n ★ * Messa í Piney Séra Philip M. Pétursson mess- ar í Piney n. k. sunnudag, 9. júlí. Guðsþjónustan fer fram á þeim tíma sem tiltekin hefir verið af safnaðarnefndinni í Piney, og verður í kirkju Piney bygðar. — Allir verða velkomnir! * * n Gifting Séra Philip M. Pétursson gaf saman í hjónaband á prestsheim- ilinu, 681 Banning St., Stephen Collier Morrison og Hannah Justice fimtudaginn, 29. júní. — Þau eru bæði af hérlendum ætt- um. * * * Davíð Björnsson bóksali, 763 Banning St., Winnipeg og frú leggja af stað upp úr miðri þess- ari viku í skemtiferð til Van- couver. Þau ferðast í bíl og munu koma við á leiðinni í Portland, Seattle og fleiri bæjum. Burtu verða þau í 2 til 3 vikur. * * * í bæinn komu: Séra Eyjólfur J. Melan frá Matlock, aMn., s- 1- föstudag, í kirkjumála-erindum. Böðvar H. Jakobsson frá Ár- borg, Man., s. 1. fimtudag í heim- sókn. Séra B. A. Bjarnason frá Ár- borg og frú, s. 1. þriðjudag í kirkjustarfs erindum. Trausti G. ísfeld frá Selkirk, s. 1. mánudag á þjóðræknisnefnd- arfund. Stefán Mathews, Vogar, Man., s. 1. þriðjudag í kaupsýsluerind- um. * * • Meðtekið frá Mrs. I. Sigurðs- son....................• .$5.00 í minningu um góðan vin, Þórð Sigurðsson. J. McDowell Oddný Ásgeirsson, 657 Lipton St., tekur nú eftir 1. júlí við, sem f jármálaritari Sambandsins og skulu allar gjafir sendar til henn- ar. Gefið í Blómasjóð Sumar- heimilisins á Hnausum: $25.00 frá Riverton Sambands- söfnuði, I minningu um Svein Thorvaldson. Með kæru þakklæti, Fyrir hönd nefndarinnar, Oddný Ásgeirsson —657 Lipton St., Winnipeg ★ ★ ★ Leikfélag Geysirbygðar sýnir leikinn “Orustan á Hálogalandi” að Hayland Hall, miðvikudaginn 12. júlí. Athygli bygðarbúa er dregið að þessum degi. ★ ★ ★ Opið bréf Eg hefi verið að undanförnu, og er en að fást við í frístund- um mínurn að safna heimildum fyrir söguágrip Argyle-bygðar, M TIIÍITIIE —SARGENT & ARLINGTON— July 6-8—Thur. Fri. Sat. Cray Grant—Franchot Tone Diana Lynn “Every Girl Shoultl Be Married” Fuzzy Knight—Audrey Long “Adventures Of Gallant Bess” July 10-12-Mon. Tue. Wed. Fred MacMurray-Madeleine Carroll “Don’t Trust Your Husband” Robert Ryan—Merle Oberon “BERLIN EXPRESS” og langar mig að komast í sam- band við afkomendur, nána ætt- ingja eða vini eftirfylgjandi frumherja í Argyle, eða ein- hverja þá sem gæti gefið mér upplýsingar um þá: Andrés Helgason Jón Magnússon Tryggva V. Friðriksson Þorstein Antoniusson Halldór Valdason Rafn G. Nordal Jón Halldórsson Sæmundur Friðriksson Pál Árnason Stefán Oliver Árna Valdason Eg mundi meta mikils ef eg gæti komist í samband við af- komendur eða ættingja þessara manna, eða einhverja sem gætu gefið mér nánari upplýsingar um æfiferil þeirra. Þakklátur væri eg hverjum sem þekktu til á fyrstu árum hér, sem gætu gefið mér hald- góðar upplýsingar, (sem eg máske ekki hef) úr starfi ein- staklinganna og félagsstarfsem- inni. Einnig ef einihver sem línur þessar skyldi eiga “Bæjarnafn- bók” frá íslandi sem hann vildi selja eða lána, þá vildi eg eiga vingott við þann mann eða konu, helst fá hana keypta ef þess væri kostur. Eg hefi um lengri tíma reynt að fá þessa bók, bæði hér og heima, en það hefur verið á- rangurslaust. Þökk til allra þeirra sem eitt- hvað geta liðsint mér í þessari “bónorðsför” Vinsamlegast, G. J. Óleson Glenboro, Man. * * * Til V. fslendinga í Kanada Er ekki einhver íslendingur 1 Kanada, sem vildi leyfa mér að dvelja á heimili sínu um eins eða tveggja mánaðar tírna. Eg er nítján ára og vil hjálpa til við hvaða vinnu sem er, ef eg get framkvæmt hana á viðunandi hátt. Mig langar mikið til að kynnast heiminum og ekki sázt högum og háttum Vestur-íslend- inga. Vilji einihver íslendingur, i sveit eða borg taka þetta til at- hugunar, þá er nafn mitt: Páll Steingrímsson, og heim- ilisfang: Hvítingaveg 6, Vest- manneyjum, ísland. Vinsamlegast sendið svar sem fyrst. Canada s Standout Regular Value »VIKING« Outboard Motors VIKING Motors . . EATON’S exclusive brand featuring the many fine points found usual- ly only on higher priced out- boards! Choose 5, 3 or 1^2* horse power — all designed with full reverse, propeller protection, rubber clutoh hub and many other features! 5 h.p. Twin Cylinder, each... $179.00 3 h.p. Single Cylinder, each... $125.00 IV2 h.p. Single Cylinder, each..............S89 50 Budget Plan Terms Available —Boat Section, Donald Annex, Main Floor. T. EATON C° LIMITED Sumarheimilið á Hnausum verður opnað fyrstu vikuna í júlí n. k. — Áríðandi er að for- eldrar sem hafa í hyggju að senda börn sín þangað komi sér í sam- band við einhvern af eftirskráð- um sem hafa umsóknar eyðublöð. Tíminn er orðin naumur og þess- vegna er fólk beðið að draga ekki að sinna þessum tilmælum. Fyrsti hópurinn, stúlkur að- eins, verður sendur á sumarheim- ilið föstudagsmorguninn 7. júlí. Læknisskoðun fyrir þann hóp fer fram fimtudag 6. júlí og verða allar stúlkurnar sem ætla sér að fara á þeim tíma, að koma kl. 8.30 f.h. til Sambandskirkj- unnar á Banning, stundvíslega. Mrs. J. Ásgeirsson, 657 Lipton St., Winnipeg Séra Philip M. Pétursson, 681 Banning St., Winnipeg. Mrs. P. S. Pálsson, 796 Banning St., Winnipeg. Mrs. E. Renesse, Árborg, Man. Mrs. S. Thorvaldson, Riverton, Man. Mrs. B. Björnsson, Lundar, Man. Mrs. B. Björnsson, Piney, Man. ★ ★ ★ Messuboð Messað verður í Guðbrands- söfnuði við Morden, Man., sunnudaginn 9. júlí, kl. 2 e. h. (standard time). Fólk er vinsam- lega beðið að auglýsa messuna heima fyrir S. Ólafsson ★ ★ ★ Jesú sagði “Sá sem heyrir mitt orð og trú- ir þeim sem sendi mig, hefir eilíft líf og kemur ekki til dóms, heldur hef ir hann stigið yfir frá dauðanum til lífs- ins.” “Herrar, hvað á eg að gjöra, til þess að eg verði hólpinn? En þeir sögðu: Trú þú á Drottin Jesúm, og þú munt verða hólpinn og heimili þitt.” Lesið, trúið, takið á móti. A. Sveinbjörnson ★ ★ ★ Messur i Nýja íslandi 9. júlí — Riverton, ferming og altarisganga kl. 2 e. h. 16. júlí — Árborg, íslenzk messa og ársfundur kl. 2 e. h. Geysir, messa kl. 8.30 e. h. B. A. Bjarnason » * * Tilkynning „ Nefndin sem stendur fyrir landnámshátíðarhöldum þeim er væntanlega fara fram að Gimli, 6—7 ágúst n. k. hefir hug á því að sýna sérstakan sóma, öllum hin- um uppprunalegu íslenzku land- nemum sem enn kunna að vera á lífi í Manitoba, og öðrum sem fluttust til Manitoba-fylkis, eða fæddust þar á árunum 1875-80. Nefndin mælist vinsamlegast til þess að þeir sem hér kunna að eiga hlut að máli, gefi sig fram við einhvern eftirgreindra manna sem allra fyrst. Davíð Björnsson, Winnipeg, Man. Snæbjörn Johnson, Árborg, Man. Wm. Árnason, Gimli, Man. * * * Steve Indriðason frá Mountain, N. Dak., er eins og áður hefir verið getið umboðsmaður Hkr. og annast innheimtu og sölu blaðs- ins í þessum bygðum: Mountain, Garðar, Edinburg, Hensel, Park River, Grafton og nágrenni nefndra staða. Allir í nefndum bygðum, bæði núverandi kaup- endur og þeir, sem nýir áskrif- endur hyggja að gerast, eru beðn- ir að snúa sér til umboðsmanns- ins S. Indriðason, Mountain, N. Dak., með greiðslur sínar. . * * * Sigurður S. Anderson, 800 Lipton St., hefir tekið að sér inn- köllun fyrir Hkr. í Winnipeg. Áskrifendur eru beðnir að minn- ast þessa og frá þeirra hálfu gera honum starfið sem greiðast. — Símanúmer hans er 28 168. r-------------x Ladies! PERMANENTS! Latest Paris Hollywood and New York styles. Lasting. Guarantecd. Golden Cream Oil Waves, $3.50 with 50c bottle o£ fine exquisite French perfume Golden Cold Waves $4.95 with $1.00 bottle of fine exquisite French perfume The finest permanent wave you’ve ever had. Remember, you’ll be at your loveliest in 1950 with a GOLDEN permanent wave—given by professional experts only. No appointment neces- sary at the—< Golden Beauty Salon (In the Golden Drugs) St. Mary’s at Hargrave, Winnipeg Back of Eaton’s Mail Order—1 block south of Bus Depot—across from St. Mary's Cathedral. PHONE 925 902 V____-____________________________ FRÁ SEATTLE MALLON OPTICAL 405 GRAHAM AVENUE Opposite Medical Arts Bldg. TELF.PHONE 927 118 Winnipeg, Man. Better Be Saíe Than Sorryl Order Your Fuel Requirments NOW "Tons of Satisfaction" Thos. Jackson & Sons LIMITED Phone 37 071 BALDVINSSON’S Sherbrook Home Bakery 749 Ellice Ave., Winnipeg (milli Simcoe & Beverley) AUar tegundir kaffibrauSs. Brúðhjóna- og afmæliskökur gerðar samkvæmt pöntun Sími 37 486 M. Einarsson Motors Ltd. Distributors KAISER & FRAZER AUTOMOBILES The Cars with Distinction — Style — Economy IMMEDIATE DELIVERY Showroom: 445 RIVER AVENUE Phone 44 395 & 43 527 Seattle er sólrík borg sín með brött og fögru torg bygð er steini og stáli af' og stendur við hið mikla haf. Heimsins öllum álfum frá ýmsar þjóðir líta má, upp að telja allar þær um það varla eg er fær. Svíinn hefir hárið bjart hjá oss dvelur, vinnur margt. Baunverjinn er hér frá höfn hingað kominn yfir dröfn. íslendinga einnig hér. Innan um synda lítum vér, tekur óhræddur ölið inn unir hjá oss þýzkarinn. Rússar, Finnar, Frakkarnir, flutt hafa hingað allmargir. Urmull sézt af ítölum, útsmognum frá páfanum. f húsum ríkra og hótelum er heilmikið af mongólum. Þeir eru mestu þrifa skinn og þolnir að ná í dollarinn. Líka frinn er oss hjá, Engla og Skota telja má. Þá er hér einnig þegnaval frá Þrándheimi og Raumudal, gráðugir að græða féð Gyðingana fáum séð, þeir alslags varning selja sveit, sjaldan tapa það eg veit. Allir virðast eiga gott í amerískum þjóða pott. Vér höfum flest sem hugur kýs hér er jarðnesk paradís.. Nú í ár eins og mörg undan- farandi hafa íslendingar í Seattle ákveðið að hafa fslendingadags- hátíð að Silver Lake, en vegna þess að það urðu eiganda skifti á Silver Lake garðinum gátum við ekki fengið hann lí þetta sinn um sama leiti og vanalega. Svo íslendingadagurinn fer fram nú í þetta sinn sunnudag- inn 20. ágúst n. k. að Silver Lake. Nefndin mun reyna af fremsta megni að undirbúa hátíðáhaldið sem bezt. Skemtiskrá verður hin bezta, einkanlega hvað ræður og söng snertir. Aðal ræðumaður dagsins verður Dr. J. P. Pálsson frá Victoria, B. C., sem er talinn ágætlega máli farinn og verður engum vonbrigði að hlusta á hann. Svo höfum við hina framúr- skarandi ágætu söngmenn, Dr. Edward Pálmason og Jónatan Björnson, að hlusta á þá flytur hvern og einn himnum nærri. fþróttir af ýmsu tagi fara fram undir stjórn Mr. F. J. Frederick- son, sem er ágætlega starfinu vaxinn og hefir verið ií fslend- ingadags nefndinni í allmörg ár undanfarandi og reynst framúr- skarandi vel. Geta má þess ennfremur að gjallarhorn ‘Loud Speaker”, verður haft um hönd svo allir geti heyrt sem hlusta vilja á ræð- ur og það sem fram fer á skemti- skrá. Dansað verður þegar kvölda tekur og er öllum velkomið að taka þátt í honum, dans music verður hið bezta. Veitið athygli auglýsingum okkar um íslendingadagshátíð- ina í Seattle að Silver Lake, sem fer fram sunnudaginn 20. ágúst 1950. /. /. Middal FRETTIR FRÁ ISLANDI Stofnar færanlegt vélaverk- stæði fyrir miðvesturland Á undanförnum árum hefir sí- vaxandi vélanotkun í sveitum landsins skapað brýna nauðsyn þess, að komið sé á fót vélaverk- stæðum á hentugum stöðum, þar sem bændur geta fengið gert við bifreiðar og búvélar ýmiskonar og hefir iðulega verið á það bent. Þarna væri verkefni fyrir marga framtakssama vélaviðgerð- armenn, er setjast vildu að í sveitunum, og skapa sér lífvæn- lega atvinnu. Nú hefir Vísir frétt, að fram- takssamur, ungur vélaviðgerðar- maður hér í Reykjavík, hyggist skapa sér atvinnu í sveitum við þessi störf, en það er alger ný- lunda, hvernig hann ætlar að búa um sig og reka atvinnuna, og tel- ur Vlísir líklegt, að þetta fyrir- komulag muni víða vel gefast. Maður þessi heitir Bjarni Guð- björnsson, kvæntur maður, og nýtur hann nokkurs stuðnings Búnaðarfélagsins, til þess að koma sér fyrir. Bjarni ætlar að setjast að á Beitistöðum, sem er eyðibýli í Melasveit, skamt frá Vogatungu, en þar er símstöð. Á Beitistöðum mun vera nýlegt hús, sem notað hefir verið sem sumarbústaður. Flytur Bjarni þangað með fjölskyldu sína. Hann áetlar sér að hafa færan- legt vélaverkstæði, á vörubifreið með 6 smál. burðarlþoli, og fara heim til bænda og gera við vélar þeirra þar. Þarf ekki mörgum orðum um það að fara hvert hag- ræði bændum verður að því, að þurfa ekki að flytja búvélar, sem í lamasessi eru, langar leiðir til viðgerðar, en auk þess er slíkur flutningur ærið kostnaðarsamur. Starfssvæði Bjarna verður Mýra- og Borgarfjarðarsýsla, Snæfellsness- og Hnappadals- sýsla og Dalasýsla. Væri óskandi, að fyrirætlanir þessa brautryðjanda hepnuðust vel, og að fleiri færu að dæmi hans í öðrum landshlutum. - Vásir ★ Sigurjón Friðjónsson skáld látinn Sigurjón Friðjónsson skáld og fyrv. alþingismaður lézt í fyrri2 nótt að heimili sínu Litlu-Laug- MESSUR og FUNDIll í kirkju Sambandssaínaðar Winnipeg Prestur, sr. Philip M. Pétursson, Ph.B., B.D. 681 Banning St. Siirfí 34 571 Messur: ó hverjum sunnudegl Kl. 11 f. h. á ensku KL 7 e. h. á íslenzku. Saínaðarnefndin: Fundir 1- fimtudag hvers mánaðar. Hjólparnefndin: Fundir fyrsta mánudagskveld i hverjum mánuði. Kvenfélagið: Fundir annan þriðjudag hvers mánaðar, kl. 8 að kveldinu. Ungmennafélagið: — Hvert fimtudagskveld kl. 8.30. Skátoflokkurinn: Hvert mið- vikudagskveld kl. 6.30. Söngœfingar: Islenzki söng- flokkurinn á hverju föstu- dagskveldL Enski söngflokkurinn á hvqrju miðvikudagskveldi. Sunnudagaskólinn: Á hverjum sunnudegi, kl. 12.30. CARL A. HALLSON C.L.U. Liíe, Accident and Health Insurance Representing THE GREAT-WEST LIFE ASSURANCE COMPANY Winnipeg, Man. Phones: Off. 926 144 Res. 88 803 HACBOHG fVll&U PHONE 21351 J— MINNIS7 BETEL í erfðaskrám yðar Phone 23 996 761 Notre Dame Ave. Just west of New Materpity Hospital NELL’S FLOWER SHOP Wcdding Bouquets, Cut Flowers Funeral Designs, Gorsages Bedding Plants Nell Johnson Ruth Rowland 27 482 88 790 um í Suður-Þingeyjarsýslu nær 83 ára að aldri. Sigurjón Friðjónsson er löngu þjóðkunnur maður. Hann hefir gegnt mörgum trúnaðarstöðum. Var um tíma formaður Fjárrækt- arfélags Þingeyinga, lengi hreppsnefndarmaður og oddviti í Reykjadal. Hann átti sæti á Alþingi 1917—22. Sigurjón var skáld gott og hafa komið út eftir hann ljóðmæli og sögur. —Mbl. 27. maí. ★ Viðskifti fslendinga við 25 erlend ríki í febrúarmánuði s. 1. áttu ís- lendingar meiri eða minni við- skifti við 25 erlend ríki. Þessi lönd eru Danmörk, Nor- egur, Svíþjóð, Finnland, Austur- iúki, Belgía, Bretland, Frakk- land, Grikkland, Holland, írland, ítaliía, Pólland, Spánn, Sviss, Tékkósóvakía, Vestur-Þýzka- land, Bandaríkin, Brasilía, Can- ada, Cúba, Brezkar nýlendur í Ameríku, Hollenzkar nýlendur í Ameríku, Ceylon, Indland og Is- raelsríki. Mest var flutt inn af kornvöru til manneldis, eða fyrir röskar 2 milj. kr., þar næst álnavara fyr- ir 1.2 milj. kr. og í þriðja lagi brensluolíur fyrir röska 1 milj. kr. Þess má geta að í febrúar- mánuði árið áður voru brenslu- olíur fluttar inn fyrir hálfa 9. milj. kr. og hefir því dregið gíf' urlega úr þeim innflutningi. Aðal útflutningsafurðir okkar voru þá óverkaður saltfiskur, freðfiskur og lýsi, fyrir saman- lagt hátt á 19. milj. kr. —Vísir, 24. maí. Frú Elka Jónsdóttir, 2243 - I5th St., Eugene, Oregon, óskar eftir að komast í samband við fóstur- systir sína (eða afkomendur) — frú Guðbjörgu Jónsd. Friðrik' son, frá Neðrahreppi, Skorradal- Borgarfj.sýslu. — Upplýsingar mjög þakksamlega þegnar.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.