Heimskringla - 30.05.1951, Síða 3
WINNIPEG, 30. MAf, 1951
HEIMSKRINGLA
3. SÍÐA
maðurinn stóri, sterki,
starfaði hér af mildi,
maðurnn sanni, merki,
maður sem framför vildi.
Einar á Hlíðarenda,
ágætismaður talinn,
frá okkur varð að venda,
vinanna augum falinn;
máske við æfienda
æðri til starfa valinn.
Sýnt er að sorgin streymi
sár, eftir mikinn vinning,
get eg að margir geymi
gróða frá Einars kynning,
og beri í hugarheimi
hlýa til vinar minning.
Böðvar H. Jakobson
Einar Benjamínsson
Samleið við áttum á æskuslóð,
þá ort voru mörg hin fegurstu
ljóð,
í skjóli ný-íslands skóga.
Og uppsprettan var hvorki hug-
laus né hálf
en hreinlynd og traust, eins og
náttúran sjálf
þar dýrmætir gimsteinar glóa.
Og bygðin og sveitin og um-
hverfið alt,
það uppskar og blómgaðist
hundrað falt
Og lækirnir sigurlag sungu,
Sá kraftur sem búandinn beisl-
aði þar,
blessaði allt sem að heilnæmast '•
var,
og settist í sál þeirra ungu.
Þú reistir þinn bústað, og ruddir
þinn skóg
og réttir þeim hendi sem fátæk-
ur bjó.
Það taldir þú verk til að vinna.
Sá kærleikans andi sem umskap-
ar bygð
á útsýni fegurst, og þróttmesta
tryggð
í framtíðar hugsjónum hinna.
Þitt dagsverk er unnið, enn öll
. 7
þin spor
við æfilok geymd eru meðal vor.
Því hér var þín sveit, og þín saga
jafn djarfan, og hreinlyndan
mannkosta mann,
á mold brautum lífsins eg óvíða
fann
þeim minningum held eg til
haga.
Nú syrgja þig börnin og ekkjanj
og alt,
en umhverfið virðist svo litlaust
og kalt,
og næðingur bítur nú blómin.
En inndælar raddir, handan þau
höf,
í hljóðbylgjum svífa um ástvin-
ar gröf,
og sál okkar hlu'Star á hljóminn.
Við kveðjum þig vorglaði vinur,
um stund.
Vorsólin kyssir þann ilmríka
lund,
Þar minninga gimsteinar glóa.
Við berum þig hingað með harm
inn í lund,
og hér átt þú frið, þennan síð-
asta blund,
í skjóli Ný-íslands skóga.
G. O. Einarsson
Ung stúlka óskast
til þess að inna af hendi létt
húsverk hjá lítilli fjölskyldu,1
aðeinis eitt barn. Engri mat-;
reiðslu né erfiðum þvottastörf-
um að sinna. — Engin reynsla
nauðsynleg. Margar frístundir.
Skrifið eða símið 592 582. Mrs.
D. Glickman, 78y2 Cathedral
Ave., Winnipeg.
« * *
Messiiboð
Lundar — sunnud. þann 3. júní,
messa á íslenzzku kl. 2 e.h —
messa á ensku kl. 7.30 e.h.
Betel söfnuður Silver Bay, —
sunnudaginn þann 10. júní,
messa á ensku kl. 2 e.h.
Rev. T. Fredriksson
KAUPIÐ HEIMSKRINGLIT
ötbreiddasta oq fiölbreyttasta
islenzka vikublaðið
“Eg ætla samt að reyna það”, svaraði hún
einbeitt. “Úr því eg hefi skilið við klaustrið, og
er komin svona langt í þeim tilgangi að verða
hjá afa mínum, þá vil eg ógjarnan hverfa aftur
að óreyndu”.
Förunautur hennar kinkaði kolli, en sagði
ekkert. Svo sneri hann sér að svertingjanum og
spurði:
“Hvert ætlar þú að ferðast, Pierre?”
“Eg er á leið til pósthússins, til þess að skila
þar bréfum, og eg held helzt að annað þeirra sé
til stúlkunnar, og sé skeyti frá húsbóndanum
um það, að hann vilji ekki með neinu skilyrði
hafa hana hjá sér.”
“Lofaðu mér að líta á það”.
Pierre rétti Mendon bréfin og las hann ut-
anáskriftina hátt.
Adrienne rétti út höndina, og ætlaði að
taka við bréfinu.
“Fyrirgefið, ungfrú góð”, mælti Pierre
kurteisislega, “en hann húsbóndi minn er geð-
ríkur maður og mjög bráður, og ef eg fer ekki
með bréfin á pósthúsið, eins og hann hefir skip-
að mér, þá getur vel viljað til að hann særi til-
finningar mínar, og eg er mjög tilfinninganæm-
ur.”
“Kærðu þig ekkert um það, Pierre,” mælti
Mendon hlæjandi. “Eg skal segja honum Lecour
gamla frá því, hvernig á því stendur, að þú ferð
ekki með bréfið, og þú skalt ekki komast í neina
'bölvun fyrir það. Komdu nú með okkur, og svo
segji eg húsbónda þínum, að við höfum klófest
póstsendilinn hans á leiðinni. Það er sjálfsagt
óþarft líka, að senda hitt bréfið af stað, úr því
svona er komið.”
“Ætlið þér líka til Bellair? Hamingjan
góða hjálppi mér. Þá er eg viss um, að heim-
sendir er bráðum kominn”.
“Eg vona, að hans sé langt að bíða enn þá,
gamli minn. En snúðu nú við og ríddu á eftir
okkur. Eg ætla sem sé í raun og veru að heim-
sækja Lecour gamla.”
Þau riðu nú öll þegjandi áleiðis heim að
höllinni, og hafði hvert þeirra um sig ærið um-
hugsunarefni; þau voru sem sé að hugsa um það,
hvernig viðtökur þau myndu fá hjá Lecour
gamla. Adrienne hengdi tauminn á handlegg sér
og fór að rífa upp bréfið. Hún varð náföl er hún
sá það, að Lecour harðbannaði henni að koma,
og það brann eldur úr augum Mendons, þegar
hann sá, hver áhrif bréfið hafði á hana.
“Er það sem mig grunar, ungfrú góð?”
spurði hann alvar.lega. “Vill Lecour ekki taka
við yður? Hvers vegna viljið þér þá vera að gera
svo lítið úr yður, að biðja hann um hússkjól?
Hafið nú ráð mín og snúið þegar við aftur heim
til móður minnar”.
Adrienne braut bréfið saman í hægðum sín-
um og stakk því í vasa sinn.
“Úr því eg er nú kominn svona nærri hon-
um afa mínum, þá verð eg að tala við hann fyrst,
og sjá svo, hvort það er nauðsynlegt fyrir mig,
að þiggja tilboð móðir yðar”, mælti hún að lok-
um. "Þegar hann skrifaði þetta bréf, vissi hann
ekki annað, en að eg væri í klaustrinu, tryggi-
lega geymd undir verndarvæng nunnanna, og
eg álít rétt, að biðja hann ásjár, áður en eg þigg
annara hjálp. Það sakar að minnsta kosti ekki,
þótt eg reyni það.”
Mendon svaraði engu, en beit á vörina af
gremju. Þau riðu nú hratt, unz þau komu að
skógi þeim, sem var umhverfis húsið. Skógur-
inn var svo þéttur og fullur af fléttujurtum, að
hvergi varð komizt gegnum hann heim að hús-
inu, nema eftir stig einum, er var svo mjór, að
tveir menn gátu ekki riðið samsíða.
Mendon reið fremstur, og Adrienne næst
honum. Þegar hún kom inn í þennan skuggalega
skóg, og sá trjá toppana lykjast saman yfir höf-
uð sér, kom allt í einu einhver óhugð yfir hana,
og henni fannst hjartað í sér engjast saman af
sársauka—hún hafði fengið eitthvert óljóst hug-
boð um þrautir og mótlæti, er hún yrði að reyna
í nýja heimkynninu.
4. Kapítuli
Loksins komu þau Mendon og Adrienne
heim að húsinu; þau námu staðar við framhlið
þess, og fóru af baki. Svo litu þau við, til þess
að gæta að Pierre, en hann var þá horfinn. Hann
hafði farið eftir sniðstíg einum, er lá heim að
kofa þeirra gömlu hjónanna til þess að skýra
Eady frá komu þessara óvæntu gesta.
Gólfið í ganginum með framhlið hússins var
alþakið visnu skógarlaufi, og hurðarhamarinn,
sem var úr járni, var svo rygðaður, að naumast
var hægt að nota hann. Þegar Mendon barði að
dyrum, tók svo undir í höllinni, að það var lík-
ast þrumuhjóði, en enginn svaraði eða kom til
dyra. Svo drap Mendon aftur að dyrum, svo berg
málið glumdi í höllinni. Þá var allt í einu hrund
ið upp glugga einum á turni Lecours. Lecour
kom út í gluggann og teygði höfuðið fram yfir
grindurnar á veggsvölunum.
“Hver er það, sem er að berja þarna niðri”?
spurði hann reiður. “Vitið þið það ekki enn þá,
að eg hleypi engum ókunnugum inn í hús mitt?
Snautið þið þegar á brott, því að annars sleppi
eg víghundinum á ykkur”.
Mendon ætlaði að fara að svara, en þá var
dyrunum lokið upp. Eady kom i gættina, og var
hún nú í ljósum léreftskjól og með eldrauða vef j
arhöttinn sinn á höfðinu. Hún virtist vera mjög
æst, og áður en Mendon gæti heilsað henni
mælti hún áköf:
“Eg verð að ljúka upp fyrir yður, Adolph,
úr því þér berjið að dyrum, hverjar svo sem af-
leiðingarnar verða. O, þér eruð velkominn hing-
að, að minnsta kosti að því er Eady gömlu snert-
ir”.
“Því trúi ef, Eady, og það gleður mig að sjá
þína blíðu ásjónu aftur. Eg er hingað kominn
til þess, að útvega dóttur húseigandans húsnæði.
Ungfrú Durand hefir hugsað sér, að dvelja hér
á^Bellair, ef hún getur haldizt hér við.”
Adrienne rétti fram höndina. Gamla konan
greip hana, og starði litla stund þegjandi fram-
an í stúlkuna, og virti hana nákvæmlega fyrir
sér. Svo hristi hún höfuðið, mjög alvarleg á
svipinn, og bað þau að koma með sér inn í eystri
turninn. Þegar þau komu inn, bauð hún þeim
sæti, og fór svo upp til húsbónda síns, til þess
að tilkynna honum komu þeirra.
Adrienne litaðist um í herberginu. Vegg-
irnir voru allir skreyttir myndum úr sögu Hek-
tors og Andromakes, en dregnar höfðu verið
með litum á veggjalímið, meðan það var blautt.
Gólfði var skreytt svörtum og hvítum tiglum úr
ýmsum trjátegundum, og í öllum átta hornunum
stóðu marmaramyndir. Blá guðvefjartjöld héngu
fyrir gluggunum, og til og frá um gólfið voru
alls konar húsgögn, útskorin í stíl Lúðvíks
f jórtánda. Kalkmyndirnar og gluggatjöldin voru
töluvert upplituð orðin, og var auðséð á öllu, að
herbergið hafði ekki verið notað um mörg ár.
Á borði einu litlu, er var greypt smíði og
vandað mjög, lá töluvert af bókum, og hjá þeim
stóð skrautker eitt með skrælnuðum blómum í,
er auðsæilega voru búin að vera þar í mörg ár..
Frúin sáluga hafði sjálf látið blóm þessi í skraut
kerið, nokkrum klukkustundum áður en það
gerðist, síðasta atriðið í hinum voðalega harm-
leik, er veggir þessir höfðu verið vitni að, og
blökkukonan gamla, er dustaði rykið af hús-
gögnunum, bar svo mikla lotningu fyrir frúnni
sálugu, að hún hafði aldrei getað fengið af sér,
að taka blómin burt. Það fór ætíð hrollur um
Eady gömlu, þegar hún hugsaði til þess, er hún
hafði þá verið sjónarvottur að, og hinna hörmu-
legu afleiðinga þess, og hún fór aldrei svo inn í
þetta herbergi, að hún signdi sig ekki fyrst og
liti í kringum sig, rétt eins og hún byggist við
að sjá aftur ógnir þær, er þar hafði borið fyrir
augu hennar. Hún sagði aldrei neinum fráleynd-
armáli sínu, og enginn, nema hún og húsbóndi
hennar, vissi orsökina til dökkva blettsins á gólf
inu, er leit úr eins og sterkt kaffi hefði hellzt
þar niður. Einu sinni hafði blettur þessi verið
ljósari, en leyndarmálið var vel geymt, eins og
áður er sagt.
Mendon gekk fram og aftur um gólfið, og
var í þungu skapi. Honum hafði þótt innilega
vænt um mágkonu sína> þessa undurfríðu konu,
er hafði að miklu leyti alið hann upp, og gengið
honum í móðurstað; og í síðasta skiftið, sem
hann hafði verið staddur í þessu herbergi, hafði
hún þrýst honum að hjarta sér og grátið beisk-
um tárum, af því að hún var neydd til þess að
láta hann fara frá sér.
Yfir skilnaði Hektors og Andromakes hékk
mynd ein, hjúpuð dökkri blæju. Mendon dirfðist
varla að snerta við blæjunni, en dró hana þó að
lokum til hliðar og mælti:
“Hérna sjáið þér andlit það, ungfrú, sem eg
minntist á, að væri svo aðdáanlega líkt andlitinu
á yður”.
Það var mynd af konu forkunnar-fríðri sýn
um, með ljóst, hrokkið hár, er náði niður undir
mitti. Varirnar voru rósrauðar, yfirbragðið barns
legt, og augun dökk og raunaleg.
“Nei, frú Lecour er miklu elskulegri heldur
en eg”, mælti stúlkan, og starði frá sér numin á
þessi augu, er virtust horfa á hana með innilegri
viðkvæmni. Henni vöknaði um augu, og það var
því líkast, sem einhver óumræðileg samkennd
knýði han4 til að horfa á myndina.
Mendon horfði ýmist á myndina eða stúlk-
una, og mælti
“Mér geðjast þó enn þá betur að lifandi and
litinu, heldur en að málaða andlitinu, því að í
lifandi andlitinu býr auðsæilega kjarkur og táp,
en þá eiginleika vantaði vesalings systur mína.
En þér eruð dásamlega lík henni, og eg er mjög
hræddur um, að það geti ásamt fleiru, stuðlað að
því, að þér haldizt hér ekki við til lengdar.”
Hún sneri sér að honum, auðsæilega forviða,
og ætlaði að svara einhverju, en í sama bili kom
Lecour gamli í gættina. Hann var í slitnum og
upplituðum guðvefjarslopp, og það var í sann-
leika einkennileg sjón, að sjá þennan hruma öld-
ung með snjóhvítt skegg og hár, er náði niður á
herðar, og tindrandi augu og nábleikt andlit, er
engdist sundur og saman af bræði.
Professional and Business
Directory—
Office Phone
924 762
Res. Phone
726 115
Dr. L. A. SIGURDSON
528 MEDICAL ARTS BLDG.
Consult.ations by
Appointment
Talsími 925 826 Heimilis 404 6S0
DR K. J. AUSTMANN
Sérfræðingur í augna, eyma, nefs
og kverka sjúkdómum
209 MEDICAL ARTS BLDG.
Stofutími: 2—5 e. h.
Dr. P. H. T. Thorlakson
WINNIPEG CLINIC
St. Mary’s and Vaughan, Winnipeg
Phone 926 441
J. J. Swanson & Co. Ltd.
REALTORS
Rental, Insurance and Financial
Agents
Sími 927 538
308 AVENUE Bldg. — Winnipeg
THE WATCH SHOP
CARL K. THORLAKSON
Diamond and Wedding Rings
Agent for Bulova Watches
Marriage Licenses Issued
699 SARGENT AVE.
WINDATT COAL
CO. LIMITED
Established 1898
506 PARIS BLDG.
Office Phone 927 404
Yard Phone 28 745
CANADIAN FISH
PRODUCERS Ltd.
J. H. Page, Managing Director
Wholesale Distributors ol
Fresh and Frozen Fish
311 CHAMBERS ST.
Office Phone 26 328
Res. Phone 73 917
M. Einarsson Motors Ltd.
Distributors
KAISER AUTOMOBILES
The 1951 Kaiser Car is here
Built to Better the Best on the Road
IMMEDIATE DELIVERY
Shewroom: 445 RIVER AVENUE
Phone 44 395 & 43 527
The BUSINESS CLINIC
(Anna Larusson)
308 AFFLECK BLDG. (Opp. Eaton’s)
Office 927 130 House 724 315
Bookkeeping, Income Tax, Insurance
Mimeographing, Addressing, Typing
MALLON OPTICAL
405 GRAHAM AVENUE
Opposite Mcdical Arts Bldg.
TELEPHONE 927 118
Winnipeg, Man.
PRINCESS
MESSENGER SERVICE
Við flytjum kistur og töskur,
húsgögn úr smærri íbúðum
<»g húsmuni af öllu tæi.
NEW ADDRESS:
WHITLA Bldg., 70 ARTHUR ST.
WINNIPEG, MAN.
C. A. Johnson, Mgr
l
Gimli Funeral Home
Ný útfararstofnun hefir tekið til
starfa á Gimli.
Hún er á lst Avenue — Sími 32
Heimilissími 59
Allur útbúnaður hinn fullkomnasti.
Otfararstjóri: ALAN COUCH
1
DR. A. V. JOHNSON
DENTIST
506 Somerset Bldg.
Office 927 932 Res. 202 398
ANDREWS, ANDREWS,
THORYALDSON &
EGGERTSON
Lögfrœðingar
Bank of Nova Scotia Bldg.
Portage og Garry St.
Sími 928 291
DR. H. W. TWEED
Tannlæknir
508 TORONTO GENERAL TRUSTS
BUILDING
Cor. Portage Ave. og Smith 9t.
PHONE 926 952 WINNIPEG
H. J. PALMASON & Co.
Chartered Accountants
505 CONFEDERATION LIFE Bldg.
TELEPHONE 927 025
Rovatzos Floral Shop
Zdö Notre Dame Ave. ph. 932 934
Fresh Cut Flowers Daiiy.
Plants in Season
We specialize in Wedding and
Concert Bouquets and Funeral
Designs
Icelandic Spoken
A. S. BARDAL
limited
selur líkkistur og annast um
útfanr. Allur útbúnaður sá besti.
Ennfremur selur hann allskonar
mmnisvarða og legsteina
843 SHERBROOKE ST.
Phone 27 324 Winnipeg
Union Loan & Investment
COMPANY
Rentai, Insurance and Finandal
Agents
Sími 925 061
510 Toronto General Trusta Bldg,
GUNDRY-PYMORE Ltd.
British Quality - Fish Netting
60 Victoria St., Winnipeg, Man.
Phone 928 211
Manager: T. R. THORVALDBON
Your Patronage Will Be
Appreciated
Halldór Sigurðsson
& SON LTD.
Contractor & Builder
1147 Ellice Ave.
Sími 31 670
FINKLEMAN
OPTOMETRISTS
and
OPTICIANS
Kensington Bldg.
275 Portage Ave. Winnipeg
PHONE 922 496
Vér verilum aðeins með fyrsta
flokks vörur.
Kurteisleg og fljót afgreiðsla.
TORONTO GROCERY
PAUL HALLSON, eigandi
714 Ellice Ave. Winnipeg
TALStMI 37 466
______r>
TIIIIS. JilKNIIN & SIINS
LIMITED
BUILDERS’ SUPPLIES
COAL - FUEL OIL
Phone 37 071 Winnipeg