Heimskringla - 25.07.1951, Page 1
Toast Master
BREAD
Good For Toast or Table
At Your Neighborhood Grocer’s
Toast Master
1
BREAD
Good For Toast or Table
At Your Neighborhood Grocer’s
-----------------------,>
LXV ÁRGANGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN , 25. JÚLf, 1951
NÚMER 43.
FRÉTTAYFIRLIT OG UMSAGNIR
Frægur íslenzkur
bátasmiður
f grein í balðinu Winnipeg
Free Press s. 1. viku, er athygli
dregin að íslenzkum bátasmið í
Riverton, Kristjáni (Chris) Thor
steinssyni. Hann hefir smíðað
ein ósköp af fiskibátum, en hefir
síðari árin gefið sig mikið við
smíði annara báta, bæði stærri og
vandaðri. Og nú síðast hefir
hann í smíðum skemtibát (plea-
sure yacht) fyrir félag í Winni-
peg úr mahoni, 42 feta langan og
með vélum og hverskonar tækj
um, jafnvel radar, er fullkomn-
ustu skip hafa. Það er sagt að
bátur þessi geti komið til að
kosta $35,000.
Kristján hefir haft þann sið,
að smíða báta hvar sem er um
norðvestur Canada af öllu tæi.
Fer hann með smiði sína til
þessara staða, Athabaska, Rein-
deer Lake, Sask., o. s. frv., og
vinnur að smíðinni þar. Hann
hefir einnig sent mikið af bátum
frá bátasmiðju sinni í Riverton
til Ontario, Lake of the Woods
og Kenora.
Frásögn nefnd blaðs af þessu
fylgja fjórar all-stórar myndir,
bæði af bátum og mönnum við
smíðina.
Gerir fregnritinn mikið úr
verki Kristjáns Thorsteinssonar,
hagleik og hugkvæmni hans og
segir báta hans hafa sérstaklega
fagra lögun og svip, er fáir muni
eftir leika.
Friðarstarfinu frestað
Á friðarfundinum í Kaesong,
báðu rauðliðar s. 1. föstudag um
frest á friðarstarfinu til 25. júlí.
Þeir kváðust þurfa þennan
tíma til að íhuga og afgreiða
málin, sem þegar hefðu komið til
umræðu.
Það er haldið að neitun Sam-
einuðu þjóðanna á kröfum kom-
múnista um að þeir færu fyrst af
öllu með her sinn burt úr Koreu,
hafi ollað því, að kommúnistar
hafi þurft að sækja vit sitt til
hinna háu í Moskva um hvað
gera skyldi næst.
N orðvesturhéruðunum
veitt sjálfstjórn
Þann 17. september næstkom-
andi fara fram kosningar í fyrsta
skifti á land svæði því, sem kall-
að hefir verið Norðvesturhéruð
Canada. Héruð þessi eru aðal-
lega Mackenzie, Keewatin og
Franklin. Þau liggja öll fyrir
norðan 60. breiddargráðu. Ot-
tawastjórn hefir haft stjórn og
eftirlit með héruðunum; þeim
hefir verið stjórnað af 5 manna
ráði, sem aðsetur hefir haft í
Ottawa. íbúarnir voru fáir í
fyrstu og eingöngu Indíánar og
Eskimóar. En svo fundust
málmar þarna í jörðu og eftir
það fóru héruðin að byggjast
hvítum mönnum. Nú eru íbúarnir
taldir alls um 17 þúsund og eru
flestir í MacKenzie héraði, í
grend við Yellowknife, en þar
er náma-vinna rekin. Kosninga-
rétt af þeim hafa um 6,000. Eru
hvítir 4000 af þeim, en 600 Eski-
móar, 15 hundruð Indíánar og
tveir Kínverjar. "
Á síðasta sambandsþingi fóru
íbúar þessa ómælilega endalausa
héraðs, sem er 1,304,903 fermílur
að stærð, eða sem næst einn
þriðji af stærð Canada, fram á
að vera veitt nokkur þátttaka 1
stjórn héraðs síns. Verða því 3
menn kosnir í viðbót við hina
fimm, sem Ottawa-stjórnin hefir
skipað. Eiga þeir að koma því
til leiðar að þing komi saman
tvisvar á ári og á annað þeirra að
vera haldið í Mackenzie-hérað-
inu sjálfu, en hitt í Ottawa, eins
og venja hefir verið. Verður ef-
laust verkefni fyrsta þings, að
athuga möguleika á, að mynda
þarna fylkisstjórn. En með allar
þær umbætur í samgöngum sem
þyrfti að gera, er ekki líklegt
að efnin leyfi slíkt fyrst um
sinn.
Hinir nýju fulltrúar fylkisins
verða kosnir til þriggja ára.
Petain dáinn
Síðast liðinn mánudag lézt i
Frakklandi Henri Philippe Pe-
tain, marskálkur, 95 ára gamall.
Hann hafði séð tvenna tímana.
Á árum fyrra heimsstríðsins
háði hann látlausa 40 daga or-
ustu við Verdun við Þjóðverja
og var eftir það kallaður Verdun
hetjan. Hefir enginn franskur
herforingi unnið þvílíkt þrek-
virki. í síðara stríðinu treysti
hann sér ekki að endurtaka Ver-
dun-bardagan og samdi frið við
Hitler. Varð hann þá höfuð
Vichy-stjórnarinnar svonefndu,
en var sakaður um landráð og
dæmdur til æfi-langrar fanga-
vistar.
Petain hafði beðið um að vern
jarðaður við Verdun hjá her-
mönnunum sínum. En það er ó-
víst að það fáist. Er líklegast að
hann verði grafinn á eyjunni,
sem hann var útlagi á í 5 ár.
Kommúnistarnir ellefu
Það hefir margt verið sagt um
mál ellefu kommúnistanna, sem
Bandaríkjadómstólarnir fundu
seka um landráð nýlega. Kom-
múnistar hafa haldið fram, að
þeir hafi ranglega verið dæmdir.
Verja þeir mál sitt með því, að þó
að þeir séu byltingasinnar, sé það
annað en að vera byltingamaður í
framkvæmd. En dómstóllinn á-
Ieit ekki nauðsynlegt, að bíða
eftir að yfirlýst stefna þeirra
yrði framkvæmd.
Dómararnir 6 litu þannig á
málið, en 2 ekki.
Það sem í ljós var leitt, var að
kommúnistar þessir voru banda-
ríkst pólitburo — þ. e. æðsta ráð
rússnesks kommúnisma í Banda-
ríkjunum. Öllum gerðum flokks-
manna þeirra, var af þessum
mönnum stjórnað. Hér skulu
gefin nöfn þeirra:
Tveir mannanna voru svert-
ingjar; hétu þeir Henry Winston
og Benjamin Davis yngri. Hinir
níu voru: Jack Stachel (Jacob
Abraham Stachel), John B. Wil-
liamson, Gilbert Green (Gilbert
Greenberg), Eugene Dennis
(Francis Eugene Waldron), Carl
Winter (Philip Carl Weissberg),
Robert Thompson, Gus Hall
(Arvo Mike Halberg). John
Gates (Israel Ragenstrich), Ir-
vin Potash.
Um leið og þessir menn voru
teknir úr umferð, voru aðrir
kosnir í þeirra stað í æðsta ráð
(politburo) kommúnista. Segir
Newsweek nöfn þeirra þessi:
William Schneiderman — for-
maður yfir alt land.
William Meinstone — hinn
nýi ritari.
Sid Stein — verkamálaritari.
Fred Fine — yfirmaður friðar-
starfsins.
Allan Max eða Simon Gerson
— tekur við ritstjórn The Daily
Worker.
Claude Lightfoot og Pettis
Perry — stjórnarar Negra deild-
ar flokksins.
En, segir Newsweek, hinir
verulegu stjórnendur halda
agents-stöðum sínum á bak við
tjöldin, þeir Alexander Bittel-
man og Willaim Weiner, sem nú
hafa þó verið handteknir með
það fyrir augum að senda þá til
Rússlands.
Er sagt að stjórnin hafi í huga
að sækja alla þessa nýju stjórn J
endur yfirráðanefndarinnar að!
lögum eins og fyrirrennara
þeirra. Þeir munu halda sig við
verkefnið eigi síður en hinir, sem
nú eru í fangelsi, og sem í því er
fólgið að steypa með valdi eða
byltingu stjórnum, sem að völd-
um sitja og taka völdin þannig í
sínar hendur.
ÚR ÖLLUM ÁTTURí
Á sama tíma og Bandaríkin
eru að undirbúa hernaðar samn-
ing við Spán, eru þau að semja
við Grikkland og Tyrkland um
þátttöku í Norður-Atlanzhafs-
bandalaginu. Snúast Bretar og
Frakkar eins illa við þátttöku
þessara þjóða í hernaðinum gegn
kommúnisma og þau gerðu gegn
Spáni. Hvað fyrir þessum þjóð-
um vakir með andstöðu þessari,
er ekki gott að segja. Vilja þau
að Bandaríkin hugsi ekki um
vernd annara þjóða, en sinna?
Það verður naumast annað ráðið
af framkomu þeirra. Canada fet-
ar dyggilega í fótspor Breta,
og Frakka og kveðst vera á móti
því, að Bandaríkin taki þessar
þrjár þjóðir í lið með sér, eða
Sameinuðu þjóðunum til þess
að berjast á móti kommúnisma.
Tyrkir eru hernaðarlega
sterkir og mikil hjálp Samein-
uðu þjóðunum. En Pearson, ut-
anríkismálaráðherra Canada seg-
ir, að jafnvel þó þörfin sé bráð
til hervarna, þurfi ekki að taka
þessar þjóðir í Norður-Atlanz-
hafs sambandið, sem sé ekki til
bráðabirgða heldur til farmbúð-
ar. Samkvæmt því vill Atlanz-
hafsbandalagið ekki varanlega
samvinnu við þessar þrjár þjóðir.
★
Siglunesbúar hafa um langt
skeið haft í huga nauðsynina á
að koma upp sjúkrahúsi í bygð
sinni.
Málinu var fyrir ári síðan
hreyft í blaði Lundar-búa (In-
terlake Municipal Observer). —
Sjúkrahúsið var hugmyndin að
hefði 11 rúm.
Sjúkrahús-þörfin hefir einnig
vakað fyrir Lundar-búum. En
málið æ strandað á reksturskostn-
aði.
Er mjög hætt við, að erfitt
hefði einnig orðið að yfirstíga
hann í Siglunes-bygðinni.
Nú hefir samt sem áður tekist
svo til, að Roman kaþólska kirkj-
an hefir fallist á að reisa sjúkra-
hús í Ashern, Man., er veitt get-
ur 50 sjúklingum móttöku.
Þykir þetta góð frétt. Á Gimli
lagði íslendingur fram fé, er varð
til þess, að sjúkrahús var þar
stofnað af Róman kaþólsku kirkj-
unni og er starfrækt með hinum
ágætasta árangri.
Það er ekki getið um hvort ís-
lendin^ar styðji Ashern spítala-
fyrirtækið. En þar er fyrir gott
bygðarfyrirtæki óneitanlega að
vinna. (Eftir I. M. Observer).
★
Mr. St. Laurent, forsætisráð-
herra Canada, er sem stendur á
hvíldardögum sínum í St. Pat-
rice, Que. En með ágústmánað-
ar byrjun er honum ekki til set-
unnar boðið. Þá ætlar hann að
takast ferð á hendur um sléttu-
Séra Bjarni Jónsson vígslu-
biskup kveður söfnuð sinn
Sunnudaginn 3. júní kvaddi dr.
theol. séra Bjarni Jónsson söfn-
uð sinn við fjölmenna guðsþjón-
ustu í Dómkirkjunni, en þar hef-
ir hann verið prestur í 41 ár.
Fékk hann lausn frá því um-
fangsmikla starfi, svo og dóms-
prófastsstörfum frá 1. júní s. 1.,
en mun hinsvegar hafa á hendi
vígslubiskupsembætti í Skál-
holtsbiskupsdæmi hinu forna
fyrst' um sinn.
Séra Bjarni Jónsson er kominn
fast að sjötugu og hefir allan
sinn presskap gegnt umfangs-
mesta prestsembættinu innan ís-
lenzku þjóðkirkjunnar og fram-
kvæmt fleiri prestsverk en nokk-
ur annar prestur hér á landi, fyrr
eða síðar og notið í starfinu mik-
illar virðingar og vinsælda enda
fylkin. Mun mönnum skjótt
detta í hug, að samband sé eitt-
hvert milli þessa ferðalags og
kosninga tapsins nýlega í þessum
fylkjum, ' Manitoba tveimur Ot-
tawa-þingsætum, og í Saskat-
chewan einu fylkisþingsæti. En
svo er þó ekki látið heita. Það
stendur einmitt svo á, að Ukrain-
ar eru um þetta leyti að minnast
60 ára landnáms síns 1 Canada
og forsætisráðherra hefir verið
fenginn til að koma þar fram.
Verður hann á hátíð þeirra á
Gimli þriðja ágúst, síðan opnar
hann sýningu í North Battleford
og verður þá á hátíð Úkraina í
Elk Island-Park. Ferðinni mun
ekki lengra heitið en til Vegre-
ville, Alta.
*
Stjórnarformaður Breta, Mr.
Attlee, kvað ráðgera að bregða
sér til Washington á fund við
Truman forseta í ágústmánuði.
Fregnritar hafa ekki getað feng-
ið neinar fréttir um erindið frá
stjórnarráðinu í Washington og
telja sér koma ferð þessi að ó-
vörum. Stjórnin átti von á Hugh
Gaitskill fjármálaráðherra, inn-
an fárra vikna. En á Attlee áttu
þeir ekki von. Það getur verið,
að honum sé ant um að tala við
Truman um Spánarmálið eða um
hvernig sakir standa í Koreu. En|
einn fregnriti að minsta kostij
taldi eins líklegt, að hann vildl
ná fundi Trumans viðvíkjandi1
fjárhagsástandi Breta.
★
Frá Jerúsalem herma fréttir 16.
júlí að Abdullah, konungur í;
Jórdan, hafi verið myrtur. Hann;
var 69 ára, hafði stjórnað ríki í|
28 ár. Hann var á leið inn í I
musteri, að biðjast fyrir við gröf
föður síns. Morðinginn var 21
árs, Arabi, hét Mustapha Shukry
Ashsho og heyrði til byltinga
flokki. Hann var skotinn á staðn-
um.
Það er talin mikil hætta á, að
þessu fylgi hryðjuverk milli
Gyðinga og Araba.
★
Leopold Belgíu konungur af-
salaði sér konungdómi 16. júlí
með því skilyrði að sonur hans,
Baudouin prins, 17 ára tæki við
af sér.
Það var tvent, sem á móti Leo-
pold var haft. Það fyrsta var
makk hans við Þjóðverja í síð-
asta stríði. Annað var að hann
giftjst konu af borgaraætt en
ekki konungs.
En hann kemur ekki sem verst
út'úr þsesu. Hann ber konungs-
nafnið eftir sem áður; er bara
ekki konungur Belgíu. Hann
nýtur sinnar konunglegu virð-
ingar, en er ábyrgðarlaus og
valdlaus.
framkvæmt það með mikilli
röggsemi, dugnaði og skyldu-
rækni.
Þessi kveðjuguðsþjónusta í
Dómkirkjunni var virðuleg og
áhrifamikil. Prestar bæjarins
mættu hempuklæddir við guðs-
þjónustuna til virðingar við pró-
fast sinn. Þar var og viðstödd
sóknarnefnd og safnaðarfulltrúi,
biskupp landsins og borgarstjóri
Reykjavíkur. Auk kirkjukórsins
tóku að þessu sinni þátt í kirkju-
söngnum flestir þeir, sem áður
hafa starfað í söngkór Dóm-
kirkjunnar, en látið höfðu af því
starfi.
f kveðjuræðu sinni gat séra
Bjarni þess, að þenna sama
sunnudag fyrir 43 árum hefði
hann sem kandidat í fyrsta skifti
flutt prédikun í Dómkirkjunni
og lagt út af hinu sama guð-
spjalli og nú í dag. Hann þakk-
aði fyrir sína hönd og konu sinn-
ar alla þá velvild og vináttu, sem
þau hefðu notið í söfnuðinum á
liðnum árum, þakkaði samstarfs-
fólki sínu við guðsþjónusturnar
í Dómkirkjunni og minntist á þá
miklu heill, sem sér hefði hlotn-
ast í fæðingarbæ sínum. Að lok-
um bað hann blessunar biskupi
landsins, prestastéttinni yfirleitt
og prestum Dómkirkjunnar sér-
staklega, svo og öllum þeim, sem
með honum hefðu starfað á lið-
inni tíð.
Að lokinni prédikun flutti
biskup landsins hinum fráfar-
andi dómkirkjupresti og prófasti
þakkir kirkjunnar fyrir hin mik-
ilvægu störf hans og árnaði hon-
um og konu hans, frú Áslaugu
Ágústsdóttur, heilla og blessunar
Guðs. Fórust honum orð á þessa
leið:
“Dr. theol. séra Bjarni Jóns-
son, dómprófastur, hefur flutt
kveðjuræðu sína og lætur nú af
prests -og dómprófastsstörfum.
Vil eg á þessum degi, fyrir hönd
þjóðkirkju íslands og allra
þeirra, sem starfs hans hafa notið
á umliðnum fullum 40 árum, færa
honum þakkir og árnaðaróskir.
Séra Bjarni var vígður hér í
kirkjunni prestsvígslu 26. júní
1910 og hafði þá hinn 12. marz
s. á. verið skipaður 2. prestur við
Dómkrikjuna í Reykjavík. Árið
1924, hinn 9. júlí, fékk hann veit-
ingu fyrir Dómkirkjuprestsem-
bættinu. Hann gegndi prófasts-
störfum í Kjalarnessprófasts-
dæmi um 6 ára skeið og dóm-
prófastur í Reykjavík hefur hann
verið síðan 1945, og vígslubiskup
í Skálholtsbiskupsdæmi hinu
forna var hann skipaður 22. marz
1937.
Séra Bjarni hefir allan prests-
þjónustutíma sinn starfað við
þessa kirkju. 40 ár er langur
tími og umfangsmikið var starfið
í fjölmennasta prestakalli lands-
ins, en það var þetta prestakall
lengst af starfstíma séra Bjarna.
Embættisverk hans eru orðin
fleiri en nokkurs annars manns,
sem gegnt hefir prestsþjónustu á
íslandi. Auk þeirra voru mörg
önnur störf að kirkjulegum mál-
um, meðal æskulýðsins, í guð-
fræðideild Háskólans, á kirkju-
iegum fundum innan lands og
utan og að koma fram fyrir hönd
embættisins við óteljandi tæki-
færi.
Ætlun mín er ekki sú, að telja
fram störf séra Bjarna í þessi
rúm fjörutíu ár, enda ekki hægt
í þessum fáu orðum. Hitt vil eg
leggja áherzlu á, að störfin voru
unnin af dæmafárri skyldurækni
og elju og á svipríkan og fagran
hátt.
Spor séra Bjarna eru orðin
mörg hingað í kirkjuna frá heim-
ili hans í Lækjargötu. Oft var
hugsað með gleði til þess að koma
hingað til guðsþjónustuhalds og
hátíðlegra embættisverka. En
stundum voru sporin þung, erfið
og sár. Lífið á bæði skin og
skugga. Ef til vill finnur prest-
ur með næmum tilfinningum það
mörgum fremur. Hann stóð hér
oft á stærstu og sárustu stund-
unum í síðastliðin fjörutíu ár.
Störf hans voru samofin sögu
Reykjavíkur. Og það mun flest-
um augljóst, að oftast eru stærstu
og minnisstæðustu stundirnar í
lífi voru að einhverju leyti í
sambandi við kirkjuna og prest-
inn.
Tíminn líður og lífið breytir
svip. Þótt þetta verði ekki um-
flúið, verður það þó oft við-
kvæmt mál. Séra Bjarni á vini
hér í Reykjavík og víðsvegar um
landið, sem kunnu því vel að
heyra hann og sjá hann að störf-
um. í dag sameinast þeir í þökk
til hans. Honum og konu hans,
frú Áslaugu Ágústsdóttur, er
stóð með honum í starfi, elskaði
starfið eins og hann og þessa
kirkju, er færð þökk fyrir alt,
sem þau voru þeim, er starfs
þeirra nutu.
Söfnuðurinn og kirkja íslands
biður séra Bjarna og konu hans
og öllum ástvinum blessunar
Guðs í nútíð og framtíð og að
lán og farsæld megi fylgja þeim
hvar sem þau fara.
Eg flyt þér, séra Bjarni, þakkir
safnaðar þíns, organista, söng-
fólksins, kirkjuvarðarins, hringj-
ara, sóknarnefndar og starfs-
bræðranna í þessum bæ og víðs-
vegar um landið.
Megi enn sem mest fagurt og
heillaríkt gróa upp af sáðmanns-
starfi þínu. Og að lokum: Frá
húsi Drottins, þessari kirkju,
sem var þér andlegt heimili og
athvarf og bjartur helgidómur,
blessa eg þig og bið þér heilla.”
í lok guðsþjónustunnar fór
fram barnsskírn í Dómkirkjunni
og var það síðasta prestsverk
séra Bjarna sem Dómkirkju-
prests í Reykjavík.
Kirkjuathöfninni allri var út-
varpað.—Kirkjublaðið.
Mutual Leader Honored
i
Skapti Reykdal
The Mutual Life of Canada is
pleased to announce that Mr.
Skapti Reykdal of its Winnipeg
Branch has qualified for mem-
bership in the M L C Production
Club.
Membership in this group is
attained only through the under-
writing of a large volume of pro-
tection, which continues in force
from year to year, and the main-
tenance of a high personal
standard of confidential service
to policyholders. *