Heimskringla - 05.09.1951, Side 1
Toast Master
BREAD
Good Fot Toast or Table
At Your Neighborhood Grocer’s
Toast Master
BREAD
Good Fot Toast or Table
At Your Neighborhood Grocer’s
LXV ÁRGANGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 5. SEPT. 1951
NÚMER 49.
FRETTAYFIRLIT OG UMSAGNIR
FRIÐUR VIÐ JAPA veitt þeim í samningunum. Og
TAFIN I FJÖGUR ÁRI viðvíkiandi sambandi Kína við
þá, sem Sameinuðu þjóðirnar
í San Francisco komu þjóð-
irnar saman í byrjun þessarar
viku, sem við friðarmál Japans
eru riðnar. Er nú hugmyndin að
semja frið við Japan, eftir að
Rússar hafa tafið fyrir slíkum
friði í fjögur ár.
Hvað hafa Rússar meint með
því ? Blátt áfram það, að Banda-
ríkin komi sem minst til greina
við friðargerðina og aðrar þjóð-
ir, sem hita og* *þunga dagsins
báru af stríðinu.
Bandaríkin sendu 11. júlí
1947 öllum þjóðum, er út um
friðarmál Asíu var æskilegt að
gerðu, skeyti um að koma til
fundar, er þau boðuðu til.
Þarna var um 10 þjóðir að ræða,
auk Bandaríkjanna. Þær voru
frá þessum löndum: Ástralíu,
Canada, Kína, Frakklandi, Ind-
landi, Hollandi, Nýja Sjálandi,
Philipseyjum, Bretlandi og
Rússlandi. Þær samþyktu allar
að koma til fundar nema Rúss-
land.
Rússar svöruðu því til að ut-
anríkisráð fjögra stórþjóðanna
gerði út um þessi friðarmál. En
það utanríkisráð var frá þessum
löndum: Bretlandi, Bandaríkj-
unum, Rússlandi og Kína.
Þetta kom Bandarkjunum, né
neinum af hinum 10 þjóðunum
ekki til hugar að samþykkja.
Rússland var nákvæmlega
sagt í sex daga í stríði við Jap-
an. Tilkynning Trumans for-
seta um að stríðinu væri lokið,
kom sömu vikuna og Rússar
lýstu Japönum stríði á hendur.
Þrátt fyrir það þó aðrar þjóðir
legðu eignir sínar og líf í fleiri
ár í sölur til varnar í stríðinu,
finst Stalin þær eigi enga
heimtingu á að láta sig friðar-
málin skifta.
En það voru ekki einungis
þær, sem Rússinn vildi svifta
þarna öllu frelsi. Þeir ætluðu
engri þjóð meiri yfirráð, en þeim
sjálfum. Ef ské kynni, að þeir
yrðu í minni hluta á ráðstefnum
fulltrúa fjögra stóru þjóðanna,
átti neitunarvald að gilda til að
kveða alt niður, sem Rússum
var mótfallið.
Bandaríkin hafa kostað eina
biljón dali' á ári að hafa setulið
í Japan. Þau hafa og orðið að
veita Jöpunum íán til fram-
leiðslureksturs, svo að 400 milj-
ón dölum nemur. Japan töpuðu
Mansjúríu, Koreu, Formósa og
Suður-Sakhalin til Rússa —
og eru því sviftir öllum mögu-
ieikum ekki einungis til að rísa
upp aftur, sem herveldi, heldur
einnig sem þjóð er svipuðu lífi
gæti lifað og hún áður gerði.
Það er svo út af við þá gert, að
þá er ekkert að óttast. Rússar
og Kínverjar hafa enga ástæðu
til að óttast þá framar. En nú
eru það einmitt þessar tvær
þjóðir, sem halda smáþjóðum
heimsins á reiðiskjálfi út af því
að verða gleyptar upp af Rúss-
úm, en ekki Japönum.
Þannig standa nú sakir, þegar
fulltrúar frá 51 þjóð kom sam-
an s.l. mánudag í San Francisco
til að ljúka stríðssamningunum
við Japan.
Það er ætlast til að það kom-
ist í verk þessa viku. En gegn
þessum samningum verður mik-
ið barist af Rússum, sem furðu-
legt er, eins og annað, af þeirra
hálfu, því þeir hafa ekki neitt
tilkall til neins, sem ekki er
eiga nú í stríði við, er það að
segja, að þeir þurfa ekki að
halda, þó Bandaríkin frelsuðu
Kína undan yfirráðum Japa, að
þau fari til að byggja það upp
hernaðarlega meðan það á í
stríði við Sameinuðu þjóðirnar
fyrir Rússa. Kína þarf að semja
frið við Sameinuðu þjóðirnar
og hætta þjónsku sinni við
Rússa, áður en samningar við
það koma til greina. Þeir kom-
ast vel út úr því, að hafa fengið
Bandaríkin til að frelsa landið
fyrir þá. En að launa það með
því, að heyja stríð bæði á þau
og aðrar smáþjóðir, er búið er
að bjarga þeim, er svo svívirði-
legt, að sú þjóð, sem það gerir
nýtur seint virðingar annara
þjóða heimsins.
Frá Iran
Samkomulag hefir ekki enn
orðið um rekstur olíulindanna í
fran.
Hér er um stærstu olíufram-
leiðslu að ræða í heimi. En nú
stendur hvert hjól kyrt.
Bretar hafa skilið aðeins 350
menn eftir í Abadan til að byrja
vinnu, ef af sættum yrði. Um
15,000 verkamenn frá íran hættu
vinnu og eru nú iðjulausir.
Einn þingmaðttr í íran fann
stórlega að því við Mossadegh
forsætisráðherra, að hafa ekki
komist að samningum við Breta
um rekstur olíuframleiðslunnar.
Bretar eru að hugsa um að
hætta framleiðslu í íran og leita
annars staðar fyrir sér, þar á
meðal í Alberta í Canada.
Frá Koreu
Alvara Rússa f friðarmálum
fer nú að sýna sig í sinni réttu
mynd. Það eru á leiðinni, eða nú
komnar til Koreu um 40 her-
sveitir frá Rússlandi og eru
reiðubúnar í bardagann við S.
þjóðirnar í Suður Koreu, þegar
friðarskrafinu er lokið.
Þetta er það sem Sameinuðu
þjóðirnar hafa grætt á vopna-
hlés- eða friðar tilraununum.
Það eru auk 40 hersveita sem
að mestu eru alla leið komnar
frá vestur landamærum Rúss-
lands, um 30 hersveitir komnar
til Mansjuríu. Alls er því nú
70 hersveitum að mæta í Koreu
nú þegar Sameinuðu þjóðirnar
sækja norður.
Hersveitir þessar hafa mán-
uðum saman verið á leiðinni.
Þær hafa 1000 flugvélar að
grípa til.
Það er þetta, flutningur þessa
hers Rússa í ró og næði, sem
vakti fyrir með friðarskrafinu
við Sameinuðu þjóðirnar.
Nú verður her hinna Samein-
uðu þjóða boðið að taka N. Ko-
reu, þegar hann sjái sér það
haganlegast! Hann verður ekki
lengur tafinn frá því með frið-
arskrafi.
ÚR ÖLLUM ÁTTUM
Hinar knáustu skriðdreka-
deildir í liði Eisenhower í Ev-
rópu, standa vörð við ána Rín.
Er það aðallega 1 Mannheim og
Mainz, sem þær halda sig, en það
eru tvær stærstu borgir við Rín.
Sumir kalla deildir þessar “hel-
víti á hjólum’’ vegna þess hvað
ægilegar þær þykja.
YERÐUR BRÁÐKVADD-
UR I TORONTO
Jónas G. Johnson
Um leið og blaðið er að fara í
pressuna, berast því fregnir af,
að Jónas G. Johnson, 682 Alver-
stone St., hafi látist í Toronto
í gær (4. sept.).
Hann hafði yfir 40 ár verið
starfsmaður hjá T. Eaton félag-
inu og annast innkaup fyrir viss-
ar deildir félagsnis mörg síðustu
árin.
í skeyti til fjölskyldu hans
segir að hann hafi verið á gangi
á götu úti í Toronto um kl. 3*4
leitið og hnigið örendur niður.
Með líkið verður komið til
Winnipeg, en hvenær jarðað
verður, hefir ekki enn verið á-
kveðið.
Heimskringla vottar fjölskyld-
unni hluttekningu sína og mun
síðar minnast hins látna merka
°g góða manns ítarlegar en hér
er kostur á.
Fulltrúar Rússa á San Fran-
cisco-fundinum lifa eins og
kóngar í borginni.
Dvalarstaðurinn sem þeir hafa
leigt til að búa í er miljónéffi
höll, metin á $1,600,000 dali. '
Mrs. Romiec Jacks heitir hall-
areigandinn. Fer hún úr húsinu
meðan fulltrúarnir eru þar, en
húsáhöld sín öll skilur hún þar
eftir.
Húsið er útbúið með öllum
upphugsanlegum þægindum eins
og nærri má geta. Eitt af þeim
er bókasafn, er kostar 250,000
dali. i
Húsið leigja Rússarnir í 3 vik-
ur. Gera þeir sjáanlega ráð fyrir
iengri umræðum, en aðrar Sam-
einuðu þjóðanna, því fundurinn
var ætlast til að stæði aðeins yfir
frá 4. sept. til hins 8. sept.
*
*
Rússar eru að bæta samgöngur
í löndum sínum í Kákasus, eins
og Georgíu, Armeníu og Azer-
baijan. Þar eru nú komnir vegir,
sem áður voru ófærur og 2 járn-
brautir þar sem áður var ein. Er
þessi vegagerð sífelt að nálgast
íran að norðan og austan og eiga
eflaust að vera til, þegar ráðist
verður á íran og sópa þarf fram-
leiðslunni þaðan til Rússlands.
★
ítalir eru óðir og ærir út af því,
að þeim finst þeirra hlutur vera
fyrir borð borinn í Tieste. Þar
búa ítalir og Slóvakar saman
undir stjórn manna frá Samein-
uðu þjóðunum. Að nokkuð sé
gert þar upp á milli þegnanna,
er þráfaldlega neitað. En ítalir
vita betur en það. Og við vest-
lægu þjóðirnar voru þeir fyrir
skömmu að hóta að skilja, vegna
þessa. Þeir skoða og vestlægu
þjóðirnar gera það á móti sér, að
styðja Tito. Gasperi álíta þeir
og hafa verið of-eftirgefanlegan
við vestlægu þjóðirnar og fata
ofmikið eftir vilja þeirra. Vilja
þeir hann frá völdum. En svo
eru kosningar í októbóer í
Trieste og getur verið að ærsl
ítala eigi rætur til þess að rekja;
þeir vilja þar vissulega nýja
stjórnara.
Ferðalangar halda fram, að
Rússland muni vera að efna til
stórkostlegrar alheims-iðnsýn-
ingar í Moskva. Þeir segja
margar ekrur af landi hafa verið
keyptar í útjaðri borgarinnar og
þar er byrjað að reisa 15 gólf-
hæða hús, sem þeir segja fyrir
sýninguna gerða. Þar eru mat-
söluhús og skemtistaðir af mörgu
tæi fyrirhugaðir.
*
Nýja Sjáland er meðal annars
frægt fyrir, að eiga stærra land
af ræktuðum skógi til pappírs-
gerðar, en nokkurt annað land.
Skógland þetta hefir verið gert
á landi, sem áður óx hvorki viður
á né gras. Segja Nýsjálendingar,
að á þennan hátt sé auðvelt að
sjá heiminum fyrir viði til papp-
írsgerðar.
*
Efrimálstofa Bandaríkjanna
leggur til að öll stærri samvinnu-
félög (co-operatives) séu skött-
uð. Akuryrkjumála ritari kvað
þetta brot á 30 ára stjórnarvenj-J
um og hann var hræddur um að j
það lamaði samvinnuhugmynd- j
ina og drægi úr samvinnustarfi,
sem fjöldi manna hagnaðist á,
hvað sem öðru liði.
★
Biandaríkjastjórn heldur fram
að bændavara hafi farið sílækk-
andi í verði síðast liðna 6 mánuði.
Hún væri þó ennþá heldur hærri
en á síðasta ári. En hún lítur á
þetta sem fyrirboða þess, að
vöruverð fari að lækka úr þessu.
★
í ræðum sínum á verkamanna-
daginn, 3. sept. komust foringjar
tveggja stærstu samvinnufélaga
Canada, að þeirri niðurstöðu, að
verð vöru yrði að lækka, ef stýra
ætti hjá gjaldeyrishruni. Aðeins
það gæti komið í veg fyrir verk-
föll og vinnlaunakröfur sam-
vinnufélaga. Þeir sögðu sam-
bandsstjórn hafa gert herfilegt
axarskaft, að leyfa verðhækkun
eftir stríðið, eins og hún gerði.
Mennirnir voru Percy Bengough
forseti Trades and Labor Coun-
cil, er hefir um 500,000 félaga, og
A. R. Mosher, forseti Canadian
Congress of Labor, með um 350,-
000 félagsmenn. Þeir sögðu ekki
efa á, að rétt hlutföll milli vöru-
verðs og vinnulauna væri auð-
fundið, ef stjórnmálamenn at-
huguðu það af einlægni.
★
f kosningum sem fóru fram í
Nýja-Sjálandi s. 1. sunnudag, var
þjóðstjórnarflokkurinn undir
stjórn Hollands, endurkosin með
talsverðum meirihutla atkvæða.
Verkmannaflokkurinn er fá-
mennari á þingi en við síðustu
kosningar.
FJÆR OG NÆR
Arthur Gook trúboði frá
Akureyri, var staddur ásamt
konu sinni, frú Kristínu Steins-
dóttir í Winnipeg yfir síðustu
helgi. Þau hjónin hafa verið á
ferðalagi kring um hnöttinn
nærri árlangt og eru nú á leið
heim til íslands aftur. Þau lögðu
af stað að heiman 11. ágúst. Á
leiðinni héðan heim koma þau
við á Bermuda og víðar.
í Winnipeg messaði Arthur
Gook í fyrstu lútersku kirkju á
íslenzku. Hann er búinn að vera
um 45 ár á íslandi og kann ís-
lenzku orðið vel og gefur út trú-
málablað “Ljósið” á íslenzku. —
Hann var um skeið ensku kenn-
ari á Möðruvallaskóla.
Hann er fæddur í Lundúnum,
Fer til Parísar til músik náms
íslendingar hér hafa sýnt að
þeir vilja ‘rétta örvandi hönd’
þeim ungmennum sem, fyrir
framúrskarandi námshæfileika
og dugnað, hafa vakið á sér eftir-
tekt meðal dómbærra manna á
listasviðinu. Þeim er það því ó-
efað gleðiefni, að hafa tæfifæri
til þess að vera með í vinahópn-
um, sem kemur saman til þess að
kveðja Thoru Asgeirson, og óska
henni gæfu og góðs gengis áður
en hún leggur af stað til Frakk-
lands til frmahaldsnáms í píanó-
spili.
Thora, sem er dóttir Mr. og
Mrs. Jón Ásgeirson, 657 Lipton
St., á að baki sér glæsilegan
námsferil í músik. Vafalaust hef-
ir það aukið áhuga hennar og
mótað smekk hennar að hafa fyr-
ir kennara fyrstu tíu árin, lista-
spilarann, Snjólaugu Sigurðson.
Síðan Snjólaug fór til New
York hefir kennari hennar verið
Eva Claire, sem þjálfað hefir svo
fjölda marga framúrskarandi
nemendur.
Snjólaug segist muna svo vel
eftir Thoru þegar hún tók fyrstu
prófin sín. “Hún var aðeins sjö
ára, og svo ósköp lítil og nett.
Hún leit út eins og falleg brúðai
með ljósgulu lokkana sína, og í
blúndulögðum, ljósrauðum kjól.”
En við þessi fyrstu próf hlaut
Thora hæstu einkunn, og hefir
það haldist við svo að segja ár-
lega síðan. Fyrir frammistöðu
sína hefir hún unnið mörg verð-
laun og margskyns viðurkenn-
ingu, og eru þar á meðal:
I.O.D.E. Coronation Scholar-
ship, 1942; Effie Dafoe Memor-
ial Scholarship, tvisvar sinnum;
Jón Sigurdson, I.O.D.E. schol-
anship (ttftvegis) ; Wednesday
Morning Musicale scholarship,
1947; og University Women’s
scholarship, 1948. Gull-medalíu
kom heim til íslands 25 ára gam-
all og hefir bqðað þar baptpista-
trú með ídýfu skírn síðan og
margan dag staðið úti í sjónum í
Pollinum upp undir hendur og
skírt menn og konur sem við
kenningum hans hafa tekið. —
Hann hefir háskólamentun frá
Englandi.
* * *
Til viðskiftamanna vorra
á íslandi
Heimilisfang umboðsmanns
okkar á íslandi, Björns Guð-
mundssonar, er nú; Freyjugata
34, Reykjavík.
* * *
V
Gimli Lutheran Parish
Harold Sigmar, pastor
Sunday, Sept. 9, 9 a.m. Betel,
11 a.m. Vidir, 2 p.m. Árborg, 7
p.m. Gimli—English Confirma-
tion Service, 8 p.m. Gimli—Ice-
landic Communion Service. —
Everyone always welcome.
háskólóans vann hún tvö síðustu
árin, og lauk í vor prófi sem
Licentiate in Music (Manitoba).
Hún hefir einnig A.M.M. stig,
og L.R.S.M. (Licentiate, Royal
Schools of Music, London).
í þrjú ár stundaði Thóra enn-
fremur nám við ‘Arts’ deild há-
skólans og auk þess að vinna
verðlaun fyrir músik öll þau ár,
vann hún einnig, “The Sellers
Scholarship”, fyrir að skara fram
úr í öðrum greinum í fyrsta ári
þeirrar deildar. Síðustu árin hef-
xr Thora haft marga nemendur,
hefir haft hljómleika fyrir CBC
útvarpskerfið og fyrir mörg
hljómlistarfélög í Winnipeg.
Þrátt fyrir allar þessar annir
og frábæra ástundunarsemi hefir
Thora verið óspör á því að miðla
íslenkum félagssamtökum af list
sinni. Allir fslendingar sem
nokkuð sækja samkomur í þess-
ari borg hafa víst oftar en einu
sinni haft unun af að hlusta á
þessa látlausu ungu stúlku, sem
kann að spila af svo mikilli list
og smekkvísi, og sem altaf er
svo broshýr, glöð og vingjarnleg
í viðmóti.
Thora leggur af stað til New
York 13. september og þaðan fer
hún með franska farþegaskipinu
Liberté til le Havre. Hún ætlar
sér að stunda framhaldsnám við
The National Conservatory of
Music í París, og hefir lengi ver-
ið að búa sig undir þetta mikla
æfintýri, með því að stunda nám
í frönsku, og komast í samband
við fólk í París sem ætlar að
taka á móti henni; hún hefir
meira að segja ákveðið að reyna
að vinna fyrir sér með því að
kenna músik eða e. t. v. ensku.
Nú hafa vinir Thoru ásett sér
að eiga einhvern ofurlítinn þátt í
því að för hennar til Frakklands
geti orðið bæði skemtileg og
uppbyggileg, og munu það óefað
verða margir sem koma til að
kveðja hana bæði 10. sept., þá er
fyrverandi kennari hennar, Snjó-
laug Sigurdson heldur hljóm-
leika, henni til heiðurs í Fyrstu
lútersku kirkjunni, undir umsjón
Icelandic Canadian Club Schol-
arship-nefndarinnar, og áins
kveldið eftir í Sambandskirkj-
unni, þar sem kveðju samsæti
fyrir hana verður haldið. Allir
sem óska þess að taka þátt í
samsætinu, og sækja hljómleika
Miss Sigurdson eru beðnir vin-
samlega að veita eftirtekt um-
getningu á öðrum stað í blaðinu.
Hólmfríður Danielson
Miss Hlaðgerður Kristjánsson
úr þessum bæ kom nýlega til
baka úr 3 vikna dvöl í Wynyard,
Sask.
* * *
Gísli Jónsson, sem lengi hefir
búið að 910 Banning stræti hefir
flutt að 124 Middlegate.
tr « *
Mrs. B. E. Johnson og Mrs. S.
Sigurðsson, báðar úr þessum bæ,
komu heim um miðja s. 1. viku úr
6 vikna dvöl vestur við Kyrrahaf.
Einkennilegar og vel
gerðar vísur
Úr syrpu “Bjarnar i Gröf”
Staka
Hafís, eldur, óþurkar,
aflabrestur, landskjálftar,
sæld þó tíðum svifti Frón,
sundrung vinnur meira tjón.
1914)