Heimskringla - 23.07.1952, Blaðsíða 4
4. SÍÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 23. JÚLÍ, 1952
FJÆR OG NÆR
Special Train to Gimli 4. ágúst
Frá Wirmipeg kl. 9 f. h., kemur
við í Selkirk kl. 9.30 D.S.T., kem-
ur til Gimli kl. 10.30.
Að kvöldinu fer það frá Gimli
Park kl. 12.45 á miðnætti, D.S.T.,
frá Gimli járnbrautarstöðinni
12.55.
* • *
Elías Elíasson frá Vancouver,
B. C., sem fyrir þrem mánuðum
tók sér ferð á hendur til fslands,
kom til baka s.l. laugardag. Hann
lagði af stað 18. júlí frá Kefla-
víkurflugvelli og var kominn til
Winnipeg daginn eftir. Hann
kunni hið ágætasta við sig heima,
sagðist ekki verða svo gamall
að hann gleymdi endurminning-
um úr heimsókninni.
Hann kvað veður hafa verið
kalt heima, eiginlega ekkert sum
ar.
Hann dvaldi hjá systur sinni
Pálínu Elíasdóttur og manni
hennar, Elíasi Bjarnasyni, í
Reykjvaík meðan hann stóð við
heima.
Hann brá sér austur á Síðu til
æskustöðvanna með skyldfólki
sínu og dvaldi á dásamlegu heim
ili þar er að Hörgsdal heitir, hjá
Bjarna Bjarnasyni, bróður Elías-
ar Bjarnasonar mágs hans,
Hann heimsótti og æskuheimili
sitt að Steinsmýri.
Hann sagðist hvergi á þessari
jbrð geta hugsað sér móttökur
gesta eins og þær er hann átti
að fagna heima. Bað hann Hkr.
að flytja íslendingum innilegar
þakkir fyrir móttökurnar og alla
velvild sér sýnda.
Hann gisti á Keflavíkur hótel
fyrstu nóttina, er hann kom
heim, því honum þótti of fram-
orðið til að síma fólki sínu til
Reykjavíkur. — Kostaði átta
stunda dvölin þa’r 7 dollara eða
113 krónur.
Elías mun dvelja í Winnipeg
fram yfir fslendingadag, en fer
úr þvií vestur til Vancouver.
I m TOEATRE
| —SARGENT <S ARLINGTON—
July 14-26—Thur. Fri. Sat. General
Kirk Douglas—Lauren Bacall
“VOUNG MAN WITH A HORN”
Willrad Parker—Audrey Long
“DAVID HARDING, Counterspy”
July 28-30—Mon. Tue. Wed. Adult
Gary Cooper—Lauren Bacall
“BRIGHT LEAF”
Mala Powers—Tod Andrews
“OUTRAGE”
Magnús Gilbertson, maður 89
ára lézt s. 1. mánudag, að heim-
ili sínu 697 Rosedale Ave., Wpg.
Hann var fæddur á íslandi, en
kom til þessa lands fyrir 70 ár-
um. Hann var trésmiður að iðn.
Hann lifa kona hans, Guðrún, 3
dætur, Mrs. K. Thorsteinsson,
Mrs. J. Kellet og Mrs. E. John-
son, og einn sonur Thomas. Jarð
arför fer fram kl. 4 e.h. frá út-
fararstofu Bardals. Séra Rúnólf-
ur Marteinsson jarðsyngur .
★ * ★
Hósías B. Pétursson og kona
hans Svafa, eru stödd í bænum.
Þau komu til að vera við útför J.
K. Péturssonar fóður Hósíasar.
★ ★ ★
Mrs. Stanley Smith frá Bos-
ton, kom til bæjarins í byrjun
vikunar. Hún kom til að vera við
útför föður síns J. K. Pétursson-
ar.
* ★ *
Benedikt Ólafsson og Páll
Hallsson báðir úr þessum bæ,
komu til baka s.l. sunnudag úr
mánaðarferðalagi til fslands.
Þeir heimsóttu æskustöðvar
sínar, Benedikt á Akranesi, en
Páll á Akureyri.
Þeir eru svo hrifnir af férð-
inni, að þeir segjast aldrei því-
líka helgi eða hvíldardaga hafa
átt.
Þeim var óskiljanlegt hvað
eins fámenn þjóð og íslending-
ar eru hefðu afkastað á sviði
framfara, eins og hin nýja Sogs-
virkjur þeirra bæri vott og
Karfa-fiskniðuruðan á Akranesi.
Benedikt heyrði talað um
aukna fiskveiði síðan landhelgin
var að lögum gerð.
* « *
Bergur Jónsson frá Baldur,
Man., var staddur í bænum s.l.
föstudag. Hann sagði alt bæri-
legt að frétta úr sinni bygð, —
bændur fengju gott verð fyrir
framleiðslu sína.
★ ★ *
í flugfari frá fylkisstjóm
Manitoba er haldið að 7 menn
hafi farist norður við Berens
River í morgun. Einn mannanna
er íslendingur, R. H. Fredrick-
son, 908 Talbot Ave., Winnipeg.
★ * *
Séra Eiríkur Brynjólfsson frá
Útskálum, kom til Winnipeg um
miðja s.l. viku. Með honum er
kona hans, og börn þeirra hjóna.
Séra Eiríkur er ráðinn til þjón-
ustu lúterska safnaðar í Vancouv-
er, og lagði af stað þangað á byrj
un þessarar viku.
★ ★ ★
Eftirfylgjandi nemendur Mr.
O. Thorsteinsonar á Gimli tóku
próf við Royal Conservatory of
Music of Toronto:
Grade 1. Piano: Honors — Linda
Bjarnason, Ruth Hokanson,
Carolynn Martin, Joy Bllen
Magnusson, Jennette Peterson.
Grade 2 Piano: Honors — Mari-
lyn Magnusson, Carol Bjarna-
son,
Grade 2 Violin: Honors— Har-
old F. Bjarnason.
Grade 3 Piano: Honors — Bev-
erly Keller, Joan Chapel
Pass — Patsy Chapel.
Grade 4 Piano Honors— Anna
Johnson, Guðfinna Kárdal.
Grade 7. Piano Pass— Donna
Mae Einarson.
Grade 2 Theory — First Class
Honors, Donna Mae Einarson.
★ * «
English Services at Silver
Bay at 11 a.m. and Vogar 2. p.m.
Sunday July 17. —Rev W. Keim
conducts.
Gísli Einarsson frá Riverton,
var staddur í bænum s.l. mánu-
dag.
★ * *
Mr. og Mrs. Walter Baldvin
frá Independence, Miss. Komu
fyrir viku síðan til bæjarins.
Gera hjónin ráð fyrir að dvelja
hér nyrðra fram á haust. Þau
sögðu hita óþolandi, eða yfir
100 dag eftir dag í borg Tru-
mans forseta.
★ ★ ★
í bænum voru staddar s.l. viku
Mrs. M. Craig frá Foam Lake,
Sask, og Mrs. S. M. Pálsson frá
Oakland, Californíu, þær eru
systur Mrs. O. Pétursson, Wpg.,
og voru að heimsækja hana og
annað skyldfólk og kunningja. ■
• • «
Til leigu að 800 Lipton St.
á annari hæð
4 björt og góð verelsi með-
fylgjandi rafstó. Verelsin fyrir
skömmu pappíruð og máluð. —
Miðaldra hjón æskileg eða tvær
stúlkur sem vinna út. Ph. 28 168.
★ ★ ★
Séra Eric Sigmar messar í
Piney Man. sunnudaginn 27. júlí
kl. 2 e.h.
FOR POWER
When and Where You
Need It
You Can Depend on
wov
MARINE
MOTORS
OAíÓuNB
j/fm
We have jusi the size you
need.
Ask for particulars.
A\umford.
Medland,
Phone 37 187
576 WaU St.
[IMITEP,
WINNIPEG
%
Islendingadaguriim
í GIMLI PARK
• Mámidaqinn 4. Agúst 1952
Forseti: Séra V. J. Eylands Fjallkona: Frú Friðbjörg Jóhanna Jónasson
Hirðmeyjar:
Miss Lilja Maria Eylands Miss Jacqueline Neil
SKEMTISKRÁ HEFST Kl. 2 e.h. -D.S.T. —ÍÞRÓTTIR BYRJA Kl. 11. f.h.
HEILRÆÐI
SKEMTISKRA
1. O Canada (Karlakórinn og allir sýngja)
2. ó, Guð vors lands (Karlakórinn og allir sýngja)
3. Forseti, séra V. J. Eylands, setur hátíðina
4. Ávarp Fjallkonunnar, Frú Fríða Jónasson
5. Karlakórinn sýngur undir stjórn A. A. Anderson
6. Ávarp gesta
7. Karlakórinn sýngur, Gunnar Erlendsson við hljóðfærið
8. Minni fslands, ræða, próf. Finnbogi Guðmundsson
9. Minni íslands, kvæði, Dr. Richard Beck
10. Karlakórinn
11. Minni Canada, ræða, Mr. John Laxdal
12. Minni Canada, kvæði, Mrs. Kenneth McDonald
13. Karlakórinn
14. God Save the Queen
Skrúðganga að landnema minnisvarðanum, Fjallkonan leggur á hann blómasveig.
Community söngur kl. 7, undir stjórn Paul Bardal, M.L.A.
Dans byrjar kl. 9 í Gimli Pavilion
Aðgöngumiðar að garðinum, ’O cents fyrir fullorðna, frítt fyrir börn innan 12 ára
Aðgöngumiðar að dansinum 75 cents. —Gjallarhorn góð.
íslenzkar hljómplötur, nýjar, verða spilaðar að morgninum
AUur tími miðaður við Daylight Saving Time
Bjart er úti og inni;
eins í sálu minni. /
Reistu háar hallir
til hæða stefna allir.
✓
Vektu vizku dísir,
vizkan öllu lýsir,
sendu sólargeisla
sem er hægt að beizla.
Temdu tungu þína
tekur þá að hlýna.
Samúð öllu sendu,
sannleik réttan kendu.
Guð er alt í öllu
eins í koti og höllu;
hann sendir blessun sína
sem þú mátt ei týna.
Ljósin björtu ljóma,
lífsins raddir óma,
út um allan heiminn
alveldis um geiminn.
Andans auðlegð kendu,
ástúðina sendu,
vertu vökumaður
: viðmótinu glaður.
Kendu ungri æsku
alvizkunnar gæzku,
bentu á réttar brautir
burt það nemur þrautir.
Ef þú iðkar þetta,
enginn vill þig pretta.
Blóm í lífsins beði
bezta veitir gleði
— Gamfti Láki
Gamli Láki segir:
Af kærleik til lífsins á maður-
inn að haga sér eins og enginn
dauði væri til; sá sem ekki elsk-
ar lífið, getur ekki elskað guð.
Fegurðin göfgar sálina.
Maðurinn er lifandi sjálfhreyfi-
vél.
Vonin er leiðarstjarna mannsins.
Sá er voldugur sem kann að
stjórna sér.
f reiðinni er ekkert rétt athug-
að — engin aðgætni.
Geðilskunni og sjálfsálitinu fylg
ir ætíð vesalmenska.
Að óttast er sama og að hata.
Oft fylgjast málæði og grunn-
hygni að.
Menn deila mest um það sem
þeir skilja sízt.
Hafið er spegill himinsins.
Alt liífið er lofsöngur til guðs.
Þegar maðurinn elskar, er hann
brot af guði.
í augnaráðinu talar sálin.
Auðurinn er engin hamingja, —
heldur meðal til hamingju.
Vísindin eru æðsta speki lífsins.
Orðin eru ávöxtur sálarinnar.
Morgungleði lífsins er vonin,
kvöldgleði þess er sigurinn.
Fúsleg umgengni bendir á þíð-
leik sálar.
Biblían er heimsfræg þjóðsaga.
Druknandi manni má bjarga, en
ástfangnum ekki.
Lífið er hreyfing, dauðinn er
kyrstaða.
í náftúrunni eru öll vísindi folg
in.
Söngurinn er alheimsmál.
J. WILFRID SWANSON
& CO.
Insurance in all its branches.
Real Estate — Mortgages — Rentals
210 POWER BUILDING
Telephone 937 181 Res. 403 480
LET US SERVE YOU
Mimisi
BETEL
í erfðaskrám yðar
COPENHAGBN
“HEIMSINS BEZTA
NEFTÖBAK”
Kaupmaðurinn: Fræðu frúnni
þennan tískuhatt, drengur minn,
og reyndu að flýta þér, svo hann
verði ekki kominn úr móð áður
en hún fær hann.
• loaders move grain fast, up to 25 bu. per
minute.Move ashes, cottonseed, water.too.
SATISFACTION GUARANTEED
OR YOUR MONEY BACK
SIZES 16,21,27, 34 and 41 fl.
Flutningsgjald að auk, $9.00
UJestern flgricultural Supply Co. Ltd.
105 PEMBINA HIGHWAY WINNIPEG, MAN.
Islendingadagurinn
í BLAINE WASHINGTON,
Sunnudaginn 27. júlí 1952
Forseti dagsins — Stefan Eymundson
Framkvæmdarnefnd: S. Eymundson, Andrew
Danielson, Nita Westman, Lara Sigurdson, A.
E. Kristjansson
Söngstjóri — H. S. Helgason
Undirspil annast — Mamie Popple Rolands
SKEMTISKRÁ
1. Ó Guð vors lands................Allir
2. Ávarp Forseta...............S. Eymundson
3. Blaine söngflokkur
4. Einsöngur ................. Ninna Stevens
5. Ræða, Minni íslands, . ...próf. Finnb. Guðmundsson
6. Söngflokkurinn
7. Einsöngur ............... Margaret Sigmar
8. Ræða á ensku.............Halldor C. Karason
9. Einsöngur .................E. K. Breidford
10. Söngflokkurinn .............. O Canada
11. Almennur aöngur......H. S. Helgason stjórnar
12. Gestir
13. Eldkamla Isafold, God Save the Queen, My Country
Veitingar verða á boðstólum
Gjallarhorn flytur skemtiskrána til heyrenda
Skemtiskráin byjar, stundvíslega kl. 1.30 Standard Time