Heimskringla - 08.07.1953, Side 4
4. SIÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 8. JÚLÍ 1953
FJÆR OG NÆR
Messur í Nýja-íslandi
og á Lundar
Á eftirfarandi stöðum verður
messað í kirkjum Sambandssafn-
aðar af P. Allan Myrick, únitars
presti: Sunnudaginn 12. júlí, að
Árborg kl. 11 f.h.; að Lundar kl.
3.30 e.h.
Sunnudaginn 19. júlí að Gimli
kl. 11 f.h.; að Riverton kl. 7.30
e.h.
Allir eru boðnir velkomnir.
* * w
Messa í Piney
Sunnudagskvöldið, 12. júni
messar séra Philip M. Pétursson
í sveitarkirkjunni í Piney, Man.,
Eru allir bygðarbúar góðfúslega
beðnir að veita því eftirtekt og
láta þá frétt berast út.
* t ★
Gjöí til sumarheimilisins á
Hnausum
Mrs. Thora Finnbogason, Lang-
ruth, Man ..............$10.00
Meðtekið með þakklæti,
Mrs. P. S. Pálson
Gimli, Man.
* ★ ★
tslendingadagurinn á Hnausum
íslendingar norður-bygöa
Nýja-fslands, voru hepnir með I
veðrið á fslendingadeginum 1.
júlí. Sólskin var og blíða allan!
daginn. Þrálátar rigningar höfðu j
gert jörðina raka áður, en þessi
sá ekki mikinn vott á hátíðinni.
íþróttir fóru fram sem vanalega.
Auk ræðu Valdimar Björnson
ar, Fjallkonu og Miss Canada,
sem í íslenzku blöðunum munu
birtast, flutti Helgi Austman
þar ræðu, er vonandi birtist
einnig, eigi síður en skemtanir
dagsins, sem vér vonum að ein-
hver verði til að segja frá í blöð-
unum.
Jón Pálsson var forseti dags- j
ins. Daginn mun hafa sótt um 5
til 6 hundruð manns.
* * *
Miss Heiða Jóhannesson frá
Ashern, Manitoba, var stödd í,
bænum s.l. mánudag. Hún er á,
leið til Regina, þar sem húnj
stundar nám eða leiðsögn í 10
daga í forustustarfi ungmenna'
(Luther League). Hún er dóttir
Gríms Jóhannessonar að Ashern,
fyrrum að Árborg.
W 9 9
Skírnarathöfn
S. 1. sunnudagsmorgunn, 5 júlí!
skírði séra Philip M. Pétursson,
tvö börn, Sandra Lynn og j
Bonnie Lou, dætur þeirra hjóra
Mr. og Mrs. Edward W. Kutch,
frá Seattle, Wash. Mrs. Kutch er
dóttir þeirra hjóna, Mr. og Mrs.
Ingólfur Goodman, sem nú búa
í Vancouver, B. C.
Seinni part dagsins skírði séra
Philip, Patrivia Ann, litla dóttir
j tH Tiimitlj
j —SARGENT <S ARLINGTON— j
j July 9-11—Thur. Fr.i Sat. Adult j
j Linda Darnell—Tab Hunter i
“ISLAND OF DESIRE” (Color)
1 Mickey Rooney—Ann James ■
“SOUND OFF” (Technicolor)
j July 13-15—Mon. Tue Wed. Adult j
’ Ginger Rogcrs—David Wayne
“WE’RE NOT MARRIED”
ÍBette Davis—Garv Merrill j
“ANOTHER MAN’S POISON”
þeirra hjóna Mr. og Mrs. Guðjón
A Abrahamson. En Mr. Abra-
hamson er sonur þeirra Mr. og
Mrs. Guðjón Abrahamson í Ár-
borg.
Báðar skírnarathafnirnar fóru
fram í Sambandskirkjunni.
ÚR BRÉFI FRÁ ÍSLANDI
Frh. frá 1. bls.
kálfar ,og hjörðin þarmeð að ná
fullum 3000 alls! Þú sérð því að
þetta er allmikil fjölgun síðan
1939, er hópurinn var aðeins lið-
lega 100 dýr, og fór fækkandi
með ári hverju. En erfiðlega
gengur mér að fá blessaðar rík-
isstjórnirnar til að gera skyn-
samlegðar og nauðsynlegar fram
tíðar-ráðstafanir með hjörðina.
Hefi eg leitað fyrir mér um það
í full 10 ár, og ekkert áunnist
enn—að undanskilinni friðun-
inni. Og hún var fyrsta skilyrð-
ið.
Jæja. Mér þykir nú samt afar
vænt um, að stofnhjörðinni varö
borgið, og að nú hefir reynslan
sýnt og sannað það, sem efast
var um áður, að hjörðin er þroska
mikil og lífvænleg, og fjölgun
afar mikil! Þetta eru ljómandi
fallegar skepnur. Og dýrin eru
fullum Ys þroskameiri heldur en
forfeður þeirra í Finnmörku,
sem hingað komu fyrir senn 200
árum, og eru enn í dag! Hér er
því síður en svo um hnignun að
ræða ,eins og sumir vildu þó
fullyrða og töldu orsök hinnar
“árlegu fækkunar dýranna”. En
fæstir þessarar “fróðu” manna
höfðu nokkru sinni hreindýr
augum litið!
Þú minnist á fjörðinn okkar
gamla og góða, sveitina okkar
elskulegu og undrafögru! Eg fæ
sting í hjarta í hvert sinn, sem
mér verður hugsað til þess ,að
þessi unaðslega landkostasveit
skuli vera að leggjast í auðn og
eyði sökum samgangnaleysis!
Því að nú er hraðinn orðinn að-
alkjarni tilverunnar, þangað til
heimurinn kollhleypur sig ræki-
lega! Og það hlýtur hann að
gera, áður en lýkur! — Jæja. Nú
eru aðeins 5—fimm bæjir í
byggð í Loðmundarfirði; Nes,
Stakkahlíð, Klippstaður enn,
Úlfsstaðir, og Sævarendi. A
Úlfsstöðum býr Jón sonur
“Steina” heitins og Sigríðar
systur minnar, sem einnig er dá-
in. Og nú er Jón sennilega alveg
að gefast upp á búskapnum!
Hann hefir nýskeð auglýst jörð-
ina til sölu. En hver kaupir jörð
í deyjandi sveit!
Hefði Loðmundarfjörður ver-
ið í Ameríku, myndu hafa verið
sprengd jarðgöng gegnum fjöll-
in til Seyðisfjarðar, eða lögð
vírkaðlabraut yfir Árnastaðar-
skörð með vögnum fyrir vörur
og fólk! Og yrði öll sveitin full-
ræktuð, gæti þar búið fjöldi
fólks! Já, Hallur minn góðui.
Svona fjarstæðukenndar hug-
myndir getur gamall Loðm.firð-
ingur látið sér detta í hug, er
honum verður hugsað til gereyð-
ingar æskusveitar sinnar; “Hún
býr mér í huga, hvert sem eg fer”
get eg sagt með sanni—eins og
“hinn nýi maður” segir í Þing-
rof!
Þá er bezt að venda sínu kvæði
í kross og reyna að gleyma sorg-
um sínum, sem þó í þessu til-
felli “eru þungar sem blý!” Eg
hefi undanfarið verið að tína
saman ljóðin mín, bæði að fornu
og nýju, og er það allmikil syrpa.
Þó sakna eg fjöldamargra
norskra Ijóða frá æskuárum
mínum og síðan. Eg hélt þeim
því miður ekki til haga á þeim
árum ,enda var auðvitað margt
misjafnra grasa í þeim flekkj-
um, og ekki allt góðgresi. En þó
eftirsjá í sumu.
Svona er að vera trassi með
sjálfan sig, og er eg þó eigin-
lega mesti hirðumaður, en það
lærði eg þegar í æsku af konu-
efni mínu, sem var uppalin á
mesta hirðuheimili og mann-
kosta annarra. Safn mitt hafði
eg hugsað mér að nefna — ”Á
HVERFANDA HVELI, — og
skipta því þannig í deildir: —
I. Æskuljóð (“Blýantsmyndir”,
1907 og 08); II. í dagsins önn
og ótta nætur; III. Tækifæris-
ljóð; IV. Ort á ritvél (Kveðjur
og gamanvísur til kunningja og
vina; “spunnin á ritvél” af
munni fram) ; V. Ljóð á norsku
(á tveimur tungum: “Ríkismáli
og Landsmáli”).
Þú sérð, að hér virðist vera úr
talsverðu að moða, og að í moði
felst oft nýtileg—jafnvel góð
tugga! Og vonandi reynist einn-
ig svo með mitt moð. Og nú er
eg að velta fyrir mér, hvort eg
ætti að senda þér eina slíka
tuggu, ef nýtileg fyndist, til við-
bótar við hitt, er eg hefi áður
sent þér. Sjáum nú til, áður en
lýkur!
í “Jónsmessunóttinni” minni
eru tvær þulur, og er það í raun-
inni einkennilega kliðmjúkur
háttur, hugðnæmur og hrífandi.
Gömlu ömmurnar okkar og afar
vissu, hvað þau sungu! Nokkur
skáld hafa vakið þuluháttinn
upp aftur á þessari öld, fyrst
Hulda og Theódóra Thoroddsen
(ekkja Skúla) og þær Andrés-
dæturnar breiðfirzku: Herdís
og Ólína. Mér þykir vænt um
þennan bernskukunningja og
hefi gælt dálítið við hann. Og nú
held eg, að eg sendi þér eitthvað
af því tagi, en ort á ritvel. En
það veiztu að er ekki skáldskap-’
ur, frekar en hjá Kolbeini jökla-
skáldi forðum! Sendi eg það því ■
á sérstöku blaði, svo að þú getir!
kveikt með því í einhverju hjá j
þér, eða þá- bara kveikt í því
sjálfu! Því að svo vitlaust er það
ekki, að ekki logi í skrælþurrk-^
inum vestur á Kyrrahafsströnd.,
Þú mátt verða við því búinn, að
snurður og bláþræðir verði á
slíkum loðbandsspuna. En samt
ætti að verða spotti og spotti
nýtilegur inn á milli. Þú athug-
ar nú það.
Og þá er þetta nú orðið all-
langt fréttabréf að sinni, þótt
þurrar séu fréttirnar og fremur!
fáskrúðugar. En hver veit nema |
eg geri bragarbót næst og bræði
saman skemmtilegra bréf og efn-
ismeira. Það er “up to-date” að
lofa—og ljúga um þessar mundir
undir alþingiskosningar, ásamt
stjórnmálamönnum, frambjóð-
endum þeirra og því hyski öllu!
Og svo kveð eg þig og þína
kærri kveðju og óskum alls hins
bezta er Loðmfirzkum smala get-
ur hugkvæmst til handa “kol-
lega” sínum!
Þinn einlægur
Helgi á Nesi
ORT Á RITVÉL
AFMÆLIS-ÞULA
16. septmeber 1951
“Eg gat ekki sofið fyrir söngv-
unum þeim”
Sælt er þegar ævi alla
æskuraddir vorsins kalla,
búa oss í björtum huga,
bregðast ei á þreytustund,
svala ljúft, er sorg vill buga,
svella, er gleðin hrífur lund!
Þá á líf vort þúsund hljóma,
þrungna töfrum, moll og dúr,
sól í rofum, skin og skúr.
Svefns og vöku söngva-óma.
Söngvahreimur hugann fyllir,
hverfur aldrei næmu geði,
syngur bæði í sorg og gleði,
samræmur við hjartans slátt,
hafsins djúp og heiðið blátt.
Lífsins unað glóey gyllir.
Heyrið lífsins hörpuhljóma
hvísla, gjalla, syngja, óma:
Bunulækir kliða kátt,
kveður foss í suðurátt,
niða silfurlindir lágt
langt fram til dala.
Laufvindarnir hjala,
FRÁ GRINDARVERKI
TIL GLERS
Nýjar hugmynclir viðvíkjandi banka-
skrifstofum eru áformaðar, til að geta veitt
yður greiðari og þægilegri afgreiðslu. Þær eru
hluti hinar óþvinguðu og látlausu leiðar, er
þér óskið við bankaviðskifti. Löggyltir
bankar Canada—byggðir á heilbrigðri
bankareynslu—stöðuglega bæta þjón-
ustu sína, til að geta mætt breyti-
legum yfirgripsmiklum þörfum.
BANKAR STARFANDI I UMHVERFI YÐAR
COPENHAGEN
“HEIMSINS BEZTA
NEFTÖBAK”
hvísla millum læk og lóna
Ijúfum blævi, klökka tóna:
Hverfur lóa, bliknar blóm,
blundar moll í haustsins róm.
Þanngi er vor ævisaga,
unaðsþrungin, moll og dúr,
blessuð bæði af skini og skúr.
Undrum-slungin alla daga!
KJARVAL (Úr bréfi)
Enginn annar er þér líkur!
Ef hér fæddist margur slíkur,
ætti “víðreist” íslands hrós!
Þú ert sonur hraunsins-heima,
hugur þinn skyggn um undra-
geima,
í æðum þínum stórár streyma,
stjörnublik og norðurljós
sindra um þins sefa ós!
Þú átt allar íslands álfur,
ætíð heill, en hvergi hálfur:
Kjarval einn! Og Kjarval sjálf-
ur!
GUÐ GAF MÉR EYRA
(Á sextugs afmæli tónskálds)
Sá er erfði söngva-trega
svellandi í hug og blóði,
hrynjandi í hverri stöku,
lijartaslög í söng og ljóði,
honum tónatöfrar ungum
tignum röddum glæddu eyra:
unun var að hlusta og heyra
hljóma-brim á streng og tungum,
fallþungt eins og foss af stalli
fimbulrómi kveði snjöllum
fyrir tröll í hamrahöllum,
hraðstígur að næsta falli.
Eða bjart sem bunulækur
blár og tær í hlíðum niðar,
sífrar, fyssir, seytlar kliðar,
MINMS7
BETEL
í erfðaskrám yðar
VID KVIÐSLITI
Þjáir kviðslit yður Fullkomin hvkninp;
og vellíðan. Nýjustu aðferðir. Engin tegju
bönd eða viðjar a£ neinu tagi.
Skrifið SMith Manfg. Company
Dept. 234 Preston Ont
PAUL S. JOHNSON
| LAWNS CUT AND CARED FOR
MODERN EQUIPMENT
119-áth Ave. GIMLI, MAN.
silfurlindir hjala
dátt fram til dala . . .
Allt er hljóma-hreimi slungið,
hvarvetna er slegið, sungið,
stundum heyrist hljóður grátur
hljóma á streng, og síðan hlátur.
Allt er tóna-töfrum vafið,
trega vekur óma-hafið. . .
Hljómlist þráir, hærra, meira
sá, er “Guð gaf eyra”.
BRÚÐKA UPS-SKEYTI
til Vestmanneyja
Tyrkir komu af hafi
úr háloftunum þú!
Já, hættan vofir sífellt yfir
Eyjum!
Eg óska ykkur til hamingju,
Hörður minn og frú!
En heyrðu góði: Rændu ei fleiri
meyjum!
—Skýrinðar: Hörður, góðkunn-
ingi minn, flaug til Vestmanna-
eyja og giftist þar einni heima-
sætunni, sem hann hafði kynnst
hér á kvennaskóla! En þú manst
víst frá Tyrkjaránssögu forðum,
að Tyrkir rændu allmörgu fólki
í Vestmanneyjum á sinni tíð og
fluttu til mansals í Algeirsborg
í Norður-Afríku!
-^T. EATON C°_.
WINNIPEQ CANADA
USE EATON S MAlt ORDER OFFICE SERViCE
if there is one in or near your town. You receive prompt, courteous
attention, whether you place your order in person or by telephone.
ÞU’
REGISTERED
AND CERTIFIED
SEEd' «
GOOD SEED INCREASES
PRODUCTION
See our Agent for prices ond particulors
on cereal ond forage seed ^
See your FEDERAL AGENT for free germination service.
FEDERAL GRAIN
L I M I T E D
SERVING PRODUCERS AC R-O SS T H E CANADIAN WEST