Heimskringla - 17.02.1954, Qupperneq 5
WINNIPEG 17. FEBR. 1954
HEIMSKRINGLA
5. SlÐA
YFIR 790 ÚTIBÚ
I he ROYAL BANK of CANADA er stæðsti banki landsins, og
starfrækir útibú næstum hvervetna. Hvert útibú er verndað með
eignum alls bankans, svo peningar yðar eru algerlega visir. Þér
getið byrjað sparisjóð á “ROYAL ” með einungis einum dollar.
VÉR FÖGNUM VIÐSKIFTUM YÐAR
THE ROYAL BANK OF CANADA
Hvert einstakt útibú er vemdað með samanlögðum eignum bankans er nema að
upphæð: $2,675,000,000
Ad. No. 5351
FRÁ BERLfNFUNDINUM
í byrjun þessarar viku, voru
allar líkur til að Berlínarfundin-
um lyki n.k. fimtudag (18. feb.)
Hefir hann þá staðið yfir í 24
daga en friðurinn eins fjarri og
þegar byrjað var.
Þegar fundurinn sneri sér að
því, að byrja friðarstarfið í verki
í Austurríki, kvaðst Molotov
ekki undir þann samning skrifa,
nema því aðeins að rússneskt her
lið færi ekki úr landinu fyr en
samningum við Þýzkaland væri
lokið. Því vildi Molotov einnig
í samninginn koma, að Austur-
ríki gerði aldrei samning við
nokkra vestlæga þjóð Evrópu.
Við þessu sagði Dulles Banda-
ríkjafulltrúi, að þjóð sín krefð-
ist af Molotov, að hann undir-
skrifaði samninginn athuga-
semdalaust eða sliti fundi n.k.
fimtudag. Hann gaf honum 2
daga til að ráða við sig hvað
hann gerði.
Molotov, sem var forseti fund
arins sem þetta gerðist á, sagði
bezt að slíta fund nefndan dag.
FYRSTA KONA A ÞINGI
CANADA DÁIN
Agnes Campbell McPhail,
^yrsta kona á þingi í Canada, og
Um langt skeið eina konan þar,
dó s.l. laugardag í Leaside, Ont.
Hún var 63 ára gömul.
Hún var víðkunn í þessu landi
fyrir þátttöku sína í stjórnmál-
um. Hún var frjálslynd, var
fyrst kosin á sambandsþing und
ir merkjum bændaflokksins í
Ontario og síðar CCF flokksins.
Var hún fulltrúi sambands-
þings ein 19 ár og eitt kjörtíma-
hil á fylkis þingi í Ontario.
Á þingi lét hún sig öll manúð-
armál mikið skifta. Tók hún
stundum leiðsögu þeirra mála í
sínar hendur. Þannig er henni
þakkað að meðferð fanga var
bætt og ýms fleiri umbótamál.
Hún var ein af ásjálgeri kon-
um, gædd góðum gáfum, fegurð,
kurteisi og skemtilegri fram-
komu.
Það var af einskærri virðingu
fyrir henni, að farið var að
vinna að því, að hún yrði skipuð
fulltrúi Efrimálstofu Canada.
Hefði henni sæmt að vera fyrsti
kvenfulltrúi þar, sem í Neðri-
deild. En af því varð ekki.
Dauða hennar bar fyr að en ætl-
að var. Auk þess lágu henni ekki
vel orð til Efri deildar starfs-
ins. Sagði hún deild þá, einu
sinni er rætt var um endurbæt-
ur þar, krýna alt stjórnar-
farslegt humbúk landsins og að-
al þýðing þingmannastarfsins
væri fólgið í því að hlægja að
sjálfum sér.
Franco reisir sér minnismerki
Franco, einvaldur Spánar, er
almennt talinn fastur í sessi, og
mun það rétt vera.
Fjendur á hann að vísu marga,
innan lands og utan, en ekkert
hefur gerzt síðan borgarastyr-
jöldinni lauk fyrir 14 árum, sem
hefur gert aðstöðu hans veikari.
Hún hefur þvert á móti orðið æ
öflugri. Þannig gerði hann á sín
um tíma samning við Páfastól-
inn, svo að nú er beðið fyrir hon
um við hverja messugjörð í land
inu. Og í haust gerði hann samn
ing við Bandaríkin, svo að doll-
arar streyma nú inn í landið, en
Spán hefur um langan tíma
skort dollara eins og fleiri ríki.
En þó hefur Franco sínar á-
hyggjur. Hann á aðeins eina
dóttur, sem nú er gift og farin
^iiiiiiiiiiiiciiiiimmiiriiiiiiiiimitiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiuiimiiiiiiinimiiiiiiiioiiiiiimiiiuiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiin.......
að heiman. Son á hann engan til
að taka við völdunum. En hann
hefur samt gert ráðstafanir til
þess að nafn hans gleymist ekki,
þótt hann verði horfinn úr þessu
lífi. Nokkurn spöl fyrir norðan
höll hans, E1 Pardo, sem er 15
km. fyrir norðan Madrid, hefur
árum saman verið unnið að minn
ismerki hans í La Nava-tindi í
Guadarrama-fjöllum. Hafa 6000
menn stundum unnið við minnis
merkið á þeim 11 árum, sem lið-
in eru frá upphafi verksins, og
hafa margir sakamenn verið not-
aðir við framkvæmdina og feng-
ið dag eftirgjöf af dómi sínum
hver fyrir hverja þrjá, sem þeir
hafa starfað þar.
Tindurinn hefur verið holað-
ur að innan og þar hefur verið
gert grafhýsi sem er stærra en
Péturskirkjan í Róm. Ætlast
Franco til þess, að er fram líði
stundir verði þar greftraðir á ný
alllr þeir, sem féllu undir stjórn
hans í borgarastyrjöldinni —
150,000 menn.
Stigi mikill liggur frá dalbotn
inum að dyrum grafhýsins. Með-
fram honum eru 14 kapellur, en
uppi á tindinum verður 500 feta
hár kross, sem verður upplýstur
um nætur. Verður hægt að kom-
ast með lyftu úr grafhýsinu upp
í krossinn.
Franco gerði sjálfur áætlun
um mannvirki þetta, og fær eng-
inn að sjá það enn nema með
leyfi nánustu samstarfsmanna
hans. Einn hinna útvöldu lét svo
um mælt, er hann hafði séð það:
“Það mun standa um alla eilífð.
— Kannske það muni, eins og
pyramidarnir, endast lengur en
minning mannsins, sem það á að
heiðra.” —Vísir
Hugheilar
árnaðaróskir
til íslendinga í tilefni af ársþingi
Þ jóðrækni sfélagsins
A. S. Bardal Ltd.
FUNERAL HOME
843 SHERBROOK STREET
Established 1894
WINNIPEG, MAN.
Phone 74-7474
IIIIIIUII
Frá Nazaret
íbúar þessa litla bæjar við
rætur Galileuhæða eru enn all-
kvíðnir um framtíðina, vegna á-
kvörðunar ísraelsstjórnar að
flytja þangað stjórnarskrifstof-
ur og hafa þar miðstöð stjórnar-
framkvæmdanna, en af því
mundi leiða, að í bænum yrði allt
er frá liði með nútímablæ.
íbúunum er hugleikið að varð
veita bæinn eins og hann er, en
enn er þar allt með svipuðum
blæ og á Krists dögum.
Hvert smábarn í Jerúsalem
getur sýnt ferðamanninum hell-
inn, þar sem erkiengillinn Gab-
riel birtist Maríu og boðaði,
henni, að hún mundi eignasc sonj
getinn af Heilögum Anda. Enn1
í dag er riðið á ösnum um hinar
þröngu götur borgarinnar, eins
og fyrir 1953 árum. Kristnir í-.
búar borgarinnar eru langflestir
eða 13,000 af 20,000 og flestir á-
hangendur grísku rétttrúarkirkj
unnar. Er það því algeng sjón,
að sjá presta hennar þar á götun-
um, klædda svörtum síðhempum
með gullkross á brjósti. Ef bær;
inn yrði gerður að stjórnarsetri
myndi öll arabisk menning þar
líða undir lok, en arabiska er
móðurmál flestra íbúanna. Fá- ^
tækt er mikil og atvinnuleysi, j
enda hafa 5000 arabiskir flótta-(
menn leitað þar hælis, og er þaðj
alvarlegt vandamál að sjá fyrir
þeim. En litill vafi er a, að ef af
áforminu um að gera bæinn að
stjórnarsetri mundi færast fjör^
í athafnalífið í bænum.
Bærinn hefur búið við isra-
elska hernaðarlega stjórn síðan
snemma árs 1948 og vona menn,
að bærinn losni við þá stjórn
hið fyrsta. Henni er kennt um
atvinnuleysið, þar sem hún hef-
ur það á valdi sínu hvort menn
halda kyrru fyrir í bænum eða
ekki. Vafalaust hefðu margir
farið þaðan í atvinnuleit til
annarra staða, ef þeir hefðu feng
ið að fara. Það er vegna land-
fræðilegrar aðstöðu, sem Nazar-
et hefur lent innan vébanda Is-
rael, en öll menningar og félags-
leg tengsl eru við Araba, og tals-
verðum viðskiptum hefur verið
haldið áfram (smygl) við Araba
i Trans-jordaníu, Sýrlandi og
Libanon.
Kommúnistar hafa látið nokk-
uð til sín taka í Nazaret og haft
forystuna gegn hernaðarstjórn-
inni, en almenningur segir, að
með batnandi efnahag bæjarbúa
muni áhrifa þeirra gæta lítið.
—Vísir
SMÁVEGIS
Frúin: Mikill dæmalaus dóni
var þessi kerlingarnorn, sem eg
var að tala við. Þarna geispaði
hún ellefu sinnum upp í opið
geðið á mér.
Maður hennar: Ertu viss um
elskan mín, að hún hafi alltaí
verið að geispa. Getur ekki ver
ið, að hún hafi bara verið að
opna munninn í vonlausri til-
raun til a<5 svara einhverju.
★
Vilhjálmur Wrigley, tyggi-
gúmmíframleiðandinn heims-
kunni, var einu sinni á ferð í
flugvél, og sat kunningi hans
hjá honum.
Eg skil ekki, hvernig á þvi
stendur, að þú skulir eyða millj-
ónum dollara árlega í það að
lauglýsa tyggigúmíið þitt, sem
allir þekkja og allur heimurinn
tyggur.
Wrigley þagði andartak og
spurði síðan:
Hve hratt heldurðu, að þessi
vél fljúgi?
Ætli hún fari ekki um 300 míi-
ur á klukkustund.
Nú, hvers vegna fleygja þeir
þá ekki hreyflunum og láta hana
bara svífa af eigin rammleik?—
anzaði Wrigley.
*
Enskur maður var á ferðalagi
um Bandaríkin. Hann var einn
af þessum Englendingum, sem
ekki telur varið í neitt, nema það
sé á enskri grund, eða í samveld-
islöndunum.
Þegar hann kom til New York
var hann spurður hvernig hon-
um litist á Bandaríkin.
“Æ, þau eru fremur leiðinleg”,
sagði hann.
“Hafið þér ekki séð neitt, sem
yður finst markvert”.
“Ónei, ekki get eg sagt það.”
“Það er undarlegt Hér er þó
margt merkilegt að sjá. Komuð
þér að Niagarafossunum?”
“Já, eg tafði þar hálfan dag.”
“Fanst yður ekki tilkomu-
mikið að horfa á þá”.
“Eg læt þá vera, þegar horft
er á þá Kanadamegin.”
*
Skoti kom inn í lyfjabúð i
London og spurði hvort til væri
meðal við skalla, Jú, lyfsalinn
hélt það.
—Hérna er afbragðs meðal. Eg
hef vitnisburð frá fjölda manna,
sem hafa notað það. Nýtt hár
sprettur undan því á einum sól-
arhring.
Skotinn leit á lyfsalann, sem
var nauðsköllóttur og sagði:
—Berðu það þarna á kollinn á
þér og svo ætla eg að líta inn á
morgun og vita hvort þú segir
satt.
COPENHAGEN
“HEIMSINS BEZTA
NEFTÖBAK”
Note New Phone Number
j^K HAGBORG FUEL/^y
; Ælf PHONE 74-5431
séra Theódór B. Sigurðsson,
sem nú býr í N. York. Hann er
landfrægur fyrir mælsku og
glæsimennsku. — Tvær ungar
stúlkur skemmta með söng og
eru það Lorna Stefánsson og
Lilja Eylands. Sú fyrrnefnda er
enn á unglingsaldri, en hefir þeg
ar aflað sér nokkurrar söng-
menntunar og hefir fagra rödd.
Lilja Eylands virðist vera með
efnilegustu yngri söngkonum ís
lenzkum hér í borg og hefir á
síðustu árum sungið yfir útvarp
ið og á ýmsum samkomum meðal
íslendinga og annara. — Pálmi
Pálmason, sem er óefað bezti
fiðluleikarinn, sem við íslend-
ingar eigum á að skipa í þessari
borg, ætlar að spila tvö lög. Það
eru “Rímnalög” eftir Karl O.
Runólfsson, sem bárust hingað
vestur fyrir skömmu og hafa'
MESSUR og FUNDIR
í kirkju Sambandssafnaðar
Winnipeg
Prestur, séra Philip M. Pétursson,
Ph.B., B.D.
681 Banning St. Sími 3-4571
Messur: á hverjum sunnudegL
Kl. 11 f. h., á ensku
Kl. 7 e. h., á íslenzku
Safnaðarnefndim Fundir 1. fimtu-
dag hvers mánaðar
Hjálparnefndin: Fundir fyrsta
mánudagskveld í hverjum mánuði
Kvenfélagið: Fundir annan þriðjtr
dag hvers mánaðar, kl. 8 að kveld
inu.
Ungmennafélagið: — Hvert fimtu-
dagskveld kl. 8.30
Skátaflokkurinn: Hvert miðviku-
dagskveld kl. 6.30.
Söngæfingar: Islenzki söngflokkur-
urinn á hverju föstudagskveldi.
Enski söngflokkurinn á hverju
miðvikudagskveldi.
Sunnudagaskólin: — A hverjum
sunnudegi, kl. 12.30
MINNIS7
BETEL
í erfðaskrám yðar
ekki áður heyrzt opinberlega v,-
hafs, og lag eftir fyrrverandi
Winnipegbúa, J. E. Forrest,
sem nú stundar nám í London á
Englandi. Lag þetta sem höfund
ur nefnir “Rhapsodie”, hefir
hann tileinkað vini sínum Pálma
Pálmassyni.
Um niðurröðun skemmtiskrár
innar vísast til auglýsingar, sem
birt er hér í þessu blaði. Víst er
um það, að enginn þarf að sjá
eftir því, að sækja mótið, sem nú
er orðið að heita má eina alís-
lenzka stórsamkoma ársins í
Winnipeg.
Eftir samkomuna fást ágætar
íslenzkar veitingar keyptar í
neðri sal kirkjunnar.
Fróns-nefndin
oixl HURttW B00K
The finest and largest Catalog
we have ever issued, now 164 pages,
all to help you enjoy the lovliest garden ever. Many
fine new things lik Bush for Sweet Peas, a miracle
Flower that changes color every day, Salvias so early
they fowler in the seed flat, Miniature Glads, Giant
_____ Hybrid Begonias and Gloxinias, Baby Orchid, New
f T 77T ,n King Maple, latest Hybrid Vegetables, Large Fruited Straw-
berries from seed, Nursery St< ck, Bulbs, Houseplants, Garden Chemicals,
Supplies, etc. Send today. ,OI
D0MIN10N SEED H0USE GEontar?o
Miðsvetrarmót Fróns
Eins og sagt var frá í síðasta
blaði verður þrítugasta og
fimmta miðsvetrarmót Fróns
haldið í Fyrstu lútersku kirkju
á mánudagskvöldið 22. febr. n.k.
Ræðumaður á mótinu verður
NÚMER 17. I UPPLVSINGAFLOKKl
'1
Calvert Canadiska vasabókin
Þetta er ein þeirra greina, sem sérstaklega eru ætlaðar nýjum
Canadamönnum.
“EG KREFST AFTUR PENINGA MINNA”.
Samkvæmt canadiskum lögum er vogin talin óyggjandi, samkvæmt
þessu eiga neytendur'hvorki heimtingu né endurgreiðslu, þetta er kaup
manni og neytanda jafnt i hag. Sumir neytendur vilja vera vissir um að
þcir geti skilað vörunni aftur ef þeim svo sýnist, þeir geta valið sér þá
búð eða búðir, sem viðhafa Vöruskipti og endurgreiðslu og verða að skapa
sér sjálfir skoðun á því hvað þeim í þessu efni sé fyrir beztu.
En það er holt að menn geri sér það ljóst, að með að taka vogina trú-
anlega og fylgja föstum reglum, verður vöruverðið jafna lægst og sann-
gjarnast með því að þar verður um minstan aukakostnað að ræða.
Sérhver neytandi ætti að skipta við þá búð, sem veitir honum þatt
forréttindi, er hann æskir. Þess verður ekki krafist af búðum að í glugg-
um þeirra séu auglýsingar um sölu eða viðskiptaaðferðir. Standi þannig
á um búðir sem ekki auglýsa viðskiptaaðferðir sínar, skuluð þér ganga úr
skugga um hvort skila megi vöruuni aftur eða hvort andvirði hennar
verði greitt í peningum.
I hvert sinn er þér kaupið, eða fallist á að kaupa, skuluð þér gera
bindandi samning, hvort heldur umræðir matvöru, skófatnað eða hus.
Þetta gildir jafnt um það hvort þér borgið út í hönd eða gegn ákveðnum
afborgunum, þetta er góð regla, sem enginn ætti að víkjá frá.
Að kaupum og sölum eru tveir aðiljar, seljandinn og þú. Eftir að
samningur hefir verið gerður, getur hvorugur aðilji rofið hann án sam
þykkis hins, nema þá með falsi og svikum.
Seljandinn eða kaupmaðurinn niótar vitaskuld sjálfur sína eigin
stefnu í viðskiptamálum, hann getur neitað um vöruskipti og endur-
greiðslu og hann gctur jafnframt veitt hið gagnsla-ða ef honum svo sýn-
ist, sé vörulýsing ekki fullnægjandi og varan lélegri, en yður var gefin til
kynna, hafið þér lagalegan rétt til að skila henni aftur og krefjast endur-
gjalds á andvirði hennar.
Samningar þurfa að vera fastbundnir mcð undirskrift svo sem er þér
fcstið kaup í bifreið og ákvæði um greiðslu skýrt tekin fram. Menn
þurfa að eiga afrit af öllum slíkum samningum og hlutast um að anda
þeirra og orðfæri sé af beggja hálfu fylgt út í yztu æsar, afhending þarf
að fara fram á tilteknum tíma án fyrirsláttar eða teganlegs orðalags.
Leiðbeiningar varðandi framhald þessara grcina eru kærkomnar og
verður þeim komið á framfæri við Calvert House af ritstjóra þessa blaðs.
t næsta mánuði THE BETTER BUSINESS BUREAU
Caivert
DISTILLERS LIMITED
AMHERSTBURG, ONTARIO