Heimskringla - 12.05.1954, Page 3

Heimskringla - 12.05.1954, Page 3
WINNIPEG, 12. MAÍ, 1954 HEIMSKRINGLA 3. SfÐA in the third and fourth years may be taken from those avail- able in Uhe first and second years. Af þessu sjáum við, að nem- j endum í fræðadeild (Arts) eru allar götur greiðar að íslenzk- j unni, hvar í náminu sem þeir eru staddir og hvort sem þeir vilja lesa hana lengur eða skemur. ís-j lenzkan á auðvitað fyrst og fremst heima í þessari deild og þaðan að vænta þeirra nemenda, er líklegir eru til alvarlegs náms í íslenzku. En þá er að athuga þessu næst, hver skilyrði til íslenzkunáms eru búin nemendum í náttúru- vísindadeildinni (Science). Kennslugreinar eru þar allar hinar sömu og í fræðadeildinni j (Arts), sbr. skrána hér að fram- j an, en námsskipan eðlilega önn-j ur. Birti eg nú nokkur ákvæði, um námið í vísindadeildinni: i Subjects and Courses Required, ior the Degree of Bachelor of, Science in the General Course. j Each candidate for the B.Sc. degree must meet certain re- j quirements in the first and second years, as indicated in the following summaries: . First Year (Five full courses constitute a normal programme.) REQUIRED COURSES: Group A: English I (110); *One of: French IA (101) or French I (110); German IA (101) or German I (110); Latin IA (102) or Latin I (111) ; Greek IA (101); Russian IA (102) or Russian I (111). (*A non-langu-! age Junior Matriculant who de-j sires to select a language in thej first yera in Science other than the language taken in the Junior Matriculation course, is^requir-j ed to complete two years of aj language course if proceeding to the General degree in Science, j the two language courses to be IA and I in sequence. In ex- ceptional circumstances, devia- j tions from language patterns al- ready described may be permit- ted with the approval of the ap- propriate faculty committee.) Group C: Mathematics I (110); Chemistry I (110); *Phys ics I (110) (*Registration in Physics 110 is restricted to stu- dents who have completed Grade XI Physics. Students wishing tö do Physics without having the prerequisite must do Physics IA (101).) Framh. Thelma (RAGNAR STEFÁNSSON ÞÝDDI) ^ íslenzk—ensk og ensk—ís- lenzkar orðabækur G. T. Zoega eru nú komnar í Björnsson Book Store að 702 Sargent Ave,1 Winnipeg Og kostar hver um sig $7.00 eða báðar $14.00. . . . the letters start. Then Irom all over the free world come such comments as these from readers of THE CHRISTIAN SCIENCE MONITOR, an international daily newspaper: “The Monitor is must read■ ing for straight-thinking people. . . .” “I returned to school after a , lapse o/ 18 years. I icill get my degree from the college, but my education comes from the Monitor. . . .” “The Monitor gives me ideas for my tvork. . . .” “I truly enjoy its com■ pany. . . .” You, too, will find the Monitor informative, with complete world news. You will discover a con* structive viewpoint in every news story. Use the coupon below for a spe- cial Introductory subscription — 3 months for only $3. The Christian Science Moiiitor One, Norway St., Boston 15, M«m„ U. S. A. Plea«e »end me an introductory tubscrip* tion to The Chriitian Science Monitor— 76 ÍMuet. 1 enclose $3. (name) (addres$) (city) (xone) (state) PB-11 FYRRI HLUTI: Land Miðnætursólarinnar 1. KAFLI Miðnætti! — bjart eins og dagur! Sól sést enn á himni eins og konunglegur sigurvegari í hásæti, sveipaður gullbryddri purpuraskikkju. Himinhvelfingin ber kuldalegan bláan lit, en glampandi og fagran, og gulllituð ský berast fyrir hægum blæ með yndislegustu litbreyting- um. Bylgjandi ljósrönd eins og s.terkur kast- geisli frá stórkostlegum eldhnetti, skín á “Alt- in Fjörð”, og slær gullnum roða og ósegjan- lega fjölbreytilegri litbrigðadýrð á hið lygna yfirborð fjarðarins. Fjalllendið og hæðirnar á strandlengjunni er baðað í rauðleitum og fjólulitum töfrabjarma, eins og ljósálfar hefðu kveikt á óteljandi blysum uppi á fjallstindun- um. Alger og fullkomin þögn ríkti yfir öllu. Ekki einu sinni sjófuglagarg rauf þessa dauða- þögn — ekki hinn allra minnsti vindblær ýfði hinn slétta vatnsflöt. Þessi fagra landslagsmynd, þetta dýrðlega útsýni, hefði vel getað verið upphugsuð töfra- mynd einhvers ímyndunarríks málara, er í list sinni hefði komist fram úr allri mannlegri þekkingu og tækni. Og þó var þetta guðdómlega fagra útsýni aðeins alvanaleg mynd af þeim töfraljóma, sem miðnætursólin í Noregi varpar yfir land og lög, — sérstaklega í Alten-firðinum, þar sem sumar veðrráttan er líkust því sem hún er á ítalíu, þrátt fyrir það þótt hann liggi utan við heim- skautsbaug, og landslagsfegurðin þar er víð- fræg og óviðjafnanleg. Aðeins einn áhorfandi var þar staddur ti! að njóta þessa dýrðlega útsýnis. Það var maður sem bar á sér glögg merki siðfágunar og mennt- unar í útliti. Hann reis upp við olnboga á stórum loð- feldi, sem hann hafði breitt á jörðina nálægt f jöruborðinu. Hann horfði á hvernig miðnætur-^ sólin ummyndaði þetta tignarlega umhverfi, og það skein aðdáun og einlæg hrifning úr skýr- legu mó-gráu augunum. “Dásamlegt! Dásamlegra en nokkur gæti í- myndað sér”, sagði hann hálf-hátt við sjálfan sig, um leið og hann leit á úrið sitt, og sá að klukkan var nákvæmlega tólf. “Eg held eftir allt saman að eg hafi valið hið góða hlutskiftið. Jafnvel þótt þessir félag- ar mínir komi, Eulalin, í góða afstöðu, þá hafa þeir ekki tækifæri til að sjá neitt yndislegra en þetta.” Um leið og hann sagði Jietta, lypti hann sjónaukanum, og leitaði með augunum að skip- inu út við sjóndeildarhringinn, sínu eigin lysti- skipi sem þrír félagar hans höfðu farið á, eftir sérstakri beiðni þeirra og löngun, til að skoða eyjuna Seiland, hinum megin fjarðarins. —Sei- land sem gnæfði í tröllslegri tign þrjú þúsund fet yfir sjávarmál, og þar sem hinn mikli Jedke tindur var aðal aðdráttaraflið—nyrzti jökullinn á öllu 'hinu mikla og risalega f jalla-hálendi Nor egs. Það sáust engin merki þess að skipið væri á leið til baka, og hann hélt áfram að skoða og dá hin stórkostlegu og margbreyttu litbrigði loftsins. Purpuralitu skýin voru að dragast saman og þéttast, eins og þau væru að mynda fótskör fyril neðan hina glampandi sól. Það var hægt að gera sér í hugarlund að blásið hefði verið í lúður upprisunnar, og öll þessi geisla- dýrð—þessi undarlega þögn væri fyrirboði hins mikla augnabliks, dómsdags! Hann brosti dáiít- ið að sinni eigin ímyndun, því þótt hann væri dálítið skáldlega hugsandi í verunni, var hann þó meiri heimspekingur. Hann hafði of mikið kynnst trúleysi nú- tímans, til þess að hugsa alvarlega um engla og upprisulúðra, en í eðli hans var þó viss tegund af ást á dulspekilegum og skáldlegum hugsun- um, sem jafnvel reynsla hans í Oxford, og hin kalda, drungalega enska efnishyggja hafði ekki getað þurkað út. Og það var eitthvað meira en lítið áhrifa ríkt við að sjá sólhnöttinn í allri hans konung legu dýrð um miðnætti—eitthvað óraunveru- °g dularfullt við þetta blossandi geisla bál himinsins, borið saman við hina helgu—og og að því er virtist tilbeiðslufullu þögn jarðar innar; og hann rifjaði upp fyrir sér brot úr goðasögunum í ljóðum sem hann hafði hafl miklar mætur á, og stök viðkvæði úr gömlum söngvum, sem hann hafði kunnað í æsku. Þessi stund var 'hvað hann snerti, kyrstöðu stund æfinnar, sem alla hendir, þegar tíminn og heimurinn virðist nema staðar; fáein augna- blik, er oss leyfist stundum að ígrunda hið djúpa, dimma haf, sem skilur hið liðna frá því ókomna. Hlann dvaldi með hugann við hinar hárfínu ósýnilegar línur sem liggja á milli raunveruleikans og draumheima. Hann vaknaði upp úr þessari draumkenndu leiðslu við það að þögnin í kringum hann var rofin með söng—hárri og skærri rödd, sem barst j- til hans á loftbylgjunum; ljúft og undur þýtt | lag við norskt fjallakvæði—eitt þessar villtu | viðkvæmu þjóðsöngva, er virðast hafa inni að | | halda sorg, undrun, þrá, óútmálanlega sára þrá, sem ekki verður látin í ljósi nema í söng. Hann stóð upp og leit í kringum sig til að vita hvort hann kæmí ekki auga á söngvarann. Gulu skýjarandimar í loftinu voru að breytast í dökkrauða eldsloga; fjörðurinn var | ásýndum eins og brennandi eld'haf; einn sjó-1 fugl flaug með liprum vængjatökum hátt í lofti, og það glampaði á vængbroddana eins og dem- anta, þegar hann klauf geislahaf loftsins, ann- að merki um dýralíf var þar ekki. Ennþá barst röddin á öldum blævakans, og hlustandinn stóð undrandi og hrifinn af hinu heillandi lagi þessa ósýnlega söngvara. “Kvenmannsrödd, en hvar er konan?” Hann horfði undrandi í allar áttir, og út á gljáskyggðan fjörðinn, og hálfbjóst við að sjá j fiskistúlku róandi og syngjandi við róðurinn, j en þar sást engin lifandi vera. Meðan hann beið, hætti söngurinn skyndi- ■ lega, og í stað hans heyrði hann urg'hljóð af | bátskjöl í f jörunni. Hann snéri sér í áttina sem j hljóðið kom úr, og sá bát, sem ýtt var fram j af ósýnilegum höndum að sjávarmálinu fram úr klettaskúta, sem skagaði dálítið fram í fjörð- í inn, og hann færði sig af forvitni nær hellis- j munnanum, þegar hann sá allt í einu stúlku snarast út úr myrkum hellinum, og standa upp- > rétta í bátnum. Stúlka, á að gizka 19 ára gömul j —hærri en flestar konur, með yndislegt flaks-; andi hár með lit miðnætursólarinnar, ofan á herðar. Kinnar hennar voru kafrjóðar, og litar- J hátturinn töfrandi. f hinu dökkbláa djúpi augna hennar, lýsti sér undrun og gremja, og j af svipbrigðum hennar mátti greinilega ráða að. nærvera ókunna mannsins, var henni allt ann- j að en geðfeld, þar sem hann að hinu leytinu j hafði verið með öllu óundirbúinn að finna þessa J dásamlega fögru veru á þessum tíma, og undir j slíkum kringumstæðum, og eitt augnablik vai hann sem þrumu lostinn,' og vissi ekkert hvaö j hann ætti að reyna að segja. En brátt náði hann sinni vanalegu sjálf- stjórn, lypti hattinum, benti á bátinn, sem enn var hálfur inni í skútanum, og sagði blátt áfram: “Má eg hjálpa þér?” Hún horfði á hann þegjandi, dálítið grun- samlega og rannsakandi. “Eg geri ráð fyrir að hún skilji ekki ensku,” hugsaði hann með sér, “og eg kann ekki eitt orð í norsku, eg verð að reyna að gera h.enni þetta skiljanlegt með bendingum;” hann byrjaði því næst á bendingamáli, er hann hélt að mundi koma að gagni. Stúlkan hló dátt og hjartanlega — léttan, dillandi, sakleysislegan hlátur, sem fyllti fögru augun hennar með óteljandi geislabrotum. “Þetta var mjög vel gert hjá þér”, sagði hún hógværlega á ensku með dálitlum útlend- um hreim. “Jafnvel Lapparnir mundu skilja þig, og þeir eru ósköp heimskir, vesalingarnir.” Honum hálfþótti, — varð dálítið móðgaður, og fanst þessi háa, fagurhærða stúlka hafa far- ið dálítið illa með sig. Hann hætti í skyndi fett- um sínum og brettum, og horfði á hana með örlitlum feimnisroða á andlitinu. Eg kann tungumál þitt”, hélt hún áfram Professiorial and Business ===== Directory— Office Phone 924 762 Res. Phone 726 115 Dr. L. A. SIGURDSON 528 MEDICAL ARTS BLDG. Consultations by Appointment Dr. P. H. T. Thorlaksoa win’mi’fc; climc St. Mary’s and Vaughan. Winnipeg Phone 926 441 J. J. Swanson & Co. Ltd. REALTORS Bental, Insurance and Flnancial Agents Sítni 927 538 308 AVENUE Bldg. — Wlnnipeg <r' L. J. HALLGRIMSSON B.A. LL.B. BARRISTER & SOLISITOR 734 Somerset Bldg.—Wpg. Bus. Ph. 93-7565 Res. Ph. 72-4636 \-----------------------^ CANADIAN FISH PRODUCERS Ltd. J. H. Page, Managing Direct.or Wholesale Distributors of Fresh and Frozen Fish 311 CHAMBERS ST. OCfice Ph. 74-7451 Res. Ph. 72-3917 M. Einarsson Motors Ltd. Buying and Selling New atjd Good Used Cars Distributors for FRAZER ROTOTILLER and Parts Service 99 Osbome St. Phone 4-4395 The BUSINESS CLINIC (Anna Larusson) 306 AFFLECK BLDG. (Opp. Eaton's) Office 927 130 House 724 315 Bookkeeping, Incoine Tax, lnsurance Mimeographing, Addressing. Typing MALLON OPTICAL 405 GRAHAM AVENUE Opposite Medical Arts Bldg. TELEPHONE 927 118 Winnipeg, Man. C--- PUBLIC eftir dálitla þögn, eftir að hún hafði horft at-1 hugulum, rannsóknaraugum á ókunna manninn. j “Það var ókurteist af mér að svara þér ekki undireins. Þú mátt hjálpa mér ef þú vilt. Kjöl- ur bátsins hefir grópast ofan í smásteinana i fjörunni, en við getum auðveldlega ýtt honum fram, ef við hjálpumst að.” Að svo mæltu stökk hún léttilega út úr bátnum, náði haldgóðu taki öðru megin og kail- aði glaðlega: “Samtaka”! Hann greip með sterkum handtökum hina hliðina, og á milli sín komu þau bátnum auðveldlega á flot, og vaS&aði hann dálítið til og frá, eins og af ó- þolinmæði að komast á stað. Stúlkan hraðaði sér í sætið á þóftunni, án þess að þiggja meiii hjálp af hans hendi, og kom árunum í flýti fyr- ir í keipum bátsins reiðubúin að fara, en stanz- aði þó lítið eitt og spurði skyndlega: “Ertu sjómaður?” Hann brosti: “Nei, það er eg ekki—kem eg' þér þannig fyrir augu?” “Þú ert sterkur, og tókst á bátnum með æfð um handtökum, eins og þú værir vanur þess- konar verkum. Þú lítur líka út eins og þú hefð- ir verið mikið á sjónum”. “Það er rétt ályktað”, sagði hann enn bros- andi; eg hefi áreiðanlega verið á sjónum und- anfarið; og hefi siglt með öllum ströndum þins yndislega lands. Lystiskipið mitt fór yfir ti! Seilands eyjarinnar seinni partinn í dag”. Hún horfði á hann með ennþá rannsóknar- fyllra augnaráði, og sá með 'hinum skörpu eftir- tekta-hæfileikum konunnar, hvað allur hans' klæðnaður bar merki um góðan 'smekk og sið-! fágun. Hvernig víðu ferðafötin hans voru snið- in eftir nýjustu tízku, og hvað dýri loðfeldur- inn bar vott um mikið ríkidæmi, sem var þar í fjörunni skammt frá. Það kenndi ofurlítils þótta og fyrirlitningar í röddinni þegar hún ávarpaði hann aftur. COURTESY TRANSFER & Messenger Service Flytjum kistur, töskur, húsgögn, píanós og kæliskápa önnumst allan urabúnað á smásend- ingum, ef óskað er. Allur fltuningur ábyrgðstur Sími 526 192 1096 Pritchard Ave. Eric Erickson, eigandi BALDWINSON’S BAKERY 749 Ellice Ave., Winnipeg iniilli Simcoe &: Beverley) Allar tegundir kaffibrauðs. Brúðhjóna- og afniiftiskökur gerðar samkvæmt pöntun DR. A. V. JOHNSON DENTIST ♦ 506 Somerset Bldg. * Office 927 932 Res. 202 398 Thorvaldson Eggertson Bastin & Stringer Logirœðingaz Bank of Nova Seotia BlcUí. Portage og Garry St Sími 928 291 H. J. PALMASON CHARTERED ACCOUNTANT 505 Confederation Life Bldg. Winnipeg, Man. Phone 92-7025 Home 6-8182 Rovatzos Floral Shop 253 Notre Dame Ave. Ph. 932 934 Fresh Cut Flowers Daily. Plants in Season We specialize in Wedding and Concert Bouquets and Funeral Designs Icelandic Spoken A. S. BARDAL L I M I T E D selur líkkistur og annast um ötfaric AHur úítoúnaður sá bestí. Ennfremur selur hann allskonar minnisvarða og legsteina 843 SHERBROOKE ST. Phone 74-7474 Winnipeg Union Loan & Investment COMPANY Bental, Insurance and Finandcu Agents Sími 92-5061 508 Toronto General Trusts Bldg. Halldór Sigurðsson * SON LTD. Contractor & Builder 526 Arlington St. Sími 12-1212 FINKLEMAN OPTOMETRISTS and OPTICIANS Kensington Bldg. 275 Portage Ave. Winnlpeg PHONE 922 496 Vér verelum aðeins með fyrsta flokks vörur. Kurteisleg og fljót afgreiðsla. TORONTO GROCERYr PAUL HALLSON, eigandi 714 Ellice Ave. Winnipeg TALSÍMI 3-3809 THiis. mmx & » LIMITED BUILDERS’ SUPPLEES COAL - FUEL OIL Phone 37 071 Winnipeg '\ GRAHAM BAIN & CO. ACCOUNTANTS AUDITORS and 874 ELLICE AVE. Bus. Ph. 74-4558 ___ Res. Ph. 3-7390 Off. Ph. 74-5257 700 Notre Dame Ave. Opp. New Maternity Hospital NELL’S FLOWER SHOP Wedding Bouquets, Cut Flowen Fimeral Designs, Corsagcs Bedding Plants Mrs. Albert J. Johnson Res. Phone 74-6753 J. WILFRID SWANSON & CO. Insurancc in all its branches. Real F.state — Mortgages — Rentals 210 POWER BUILDING Telephone 937 181 Rcs. 403 480 LET US SERVE YOU Office Ph. 92-5826 Res. 40-1252 d— i "'i JACK POWELL, B.A. LL.B. BARRISTER, SOLICITOR, NOTARY PUBLIC Off. Ph. 927751 - Rcs Ph. 56-1015 206 Confederation Building, Wínmpeg, Mán. DR H. J. SCOTT Spedalist in EYE, EAR NOSE and THROAT 209 Medical Arts Bldg. HOURS: 9.30 - 12.00 a.m. 2 — 4.30 p.m. ______________—----------S Hafið HÖFN í Huga ICELANDIC OLD FOLKS HOME SOCIETY — 3498 Osler Street — Vancouver 9, B. C. —

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.