Heimskringla - 07.07.1954, Blaðsíða 1
LXVIII, ÁRGANGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 7. JÚLÍ, J954
NÚMER 40.
FRÉTTAYFIRLIT
FRÁ OTTAWA
Stjórn Canada ætti að skýra
þjóðinni frá hvernig á því
standi, að hún réði 15 manns i
vinnu hjá sér á hverjum einasta
degi s.l. árs.
Samkvæmt skýrslum hennar
vou í febrúar á þessu ári
135,884 stjórnarþjónar. En það
er 5,548 fleiri en í febrúar 1953.
Hafði stjórnin svo mikið fyrir
stafni þessa 12 mánuði að hún
þyrfti að bæta hálfu sjötta þús-
undi við tölu þjóna sinna?
Árið 1948, þegar stríðinu var
lokið og við fækkun þjóna mátti
búast, voru 118,000 manns í
stjórnarvinnu. Það þótti mikið
frá því sem var fyrir stríðið. Þá
var talan 46,000 Hvernig stendur
á því, að nú 1954 þarf 17,0000
fleiri stjórnarþjóna en 1948?
Við vitum ástæðuna. Hún er
skrifstofuvaldinu að kenna, sem
við 20 ára ráðsmensku sinnar og
sömu flokksstjórnar skapast. —
Skrifstofuvaldið vex eins og gor
kúlur á haug, við slíkt stjórnar-
far.
EINN KEMUR ÞÁ
ANNAR FER
Kínar eru mikið búnir að
vinna að því að fá Sameinuðu
þjóðirnar til að leyfa sér inn-
göngu í félag þeirra.
Starf þeirra virðist og hafa
borið nokkurn árangur. Það er
að minsta kosti það sem þeir
sjálfir halda.
'Þeir hafa ákveðið að leiða mál-
ið til lykta í september í haust.
Þeir gera ráð fyrir nægu fylgi
frá Sameinuðu þjóðunum til
þess.
Skyldi þetta vera víst? Það er
hreint ekki ómögulegt, ef satt
er sem Christian Science Moni-
tor heldur fram, reynist sann-
leikur.
En það er í því fólgið, að hinn
nýi stjórnarformaður Frakka,
hafi gert á bak við tjöldin samn-
ing við Kína um að aðstoða þá í
kröfum sínum í inngöngu í félag
Sameinuðu þjóðanna, ef þeir
verði rýmilegir í viðskiftunum
við Frakka í Indó-Kína.
Og það eru ekki Frakkar ein-
ir, sem fúsir eru að selja Kínverj
um fylgi sitt. Bretar eru hreint
ekki frá því heldur, að það sé í
þágu góðra viðskifta, að styðja
kínversku kommúnista stjórn-
ina í Kína í þessum áformum
hennar. Og hver veit hvað marg
ar Sameinuðu þjóðir þeir geta
fengið til að slást í leik með sér?
Það er farið að hvessa svo í
Bandaríkjunum út af þessu, að
Knowland efrimálstofu þingmað
ur og félagsforingi republikana,
kveðst segja af sér formensku-
starfi sínu, ef Kínaverjum verði
veitt innganga í félag Samein-
uðu þjóðanna. Hann kvaðst og
frá þeim degi beita sér alt sem
hann megi á móti félaginu, og
ekki hætta fyrir en Bandaríkin
segðu skilið við það.
Það er ekkert sjaldgæft vor á
meðal í Canada og í Bandaríkjun
um jafnframt, að heyra menn
lýsa sig fylgjandi stefnu Frakka
og Breta í því að leyfa Kjnverj-
um inngöngu í félag Sameinuðu
þjóðanna. Þó Sameinuðu þjóð-
irnar standi í stríði við Kína út
af yfirgangi þeirra í Koreu og
það hafi kostað Bandaríkin 130,-
000 fallna hermenn og Suður-
Koreu og aðrar Sameinuðu þjóð
irnar á aðra miljón, finst þessum
mönnum ekki nema sanngjarnt,
að Kínaverjar bæti jjetta að
engu, en séu yfirlýstir “heilagir
_0G UMSAGNIR
og flekklausir” af stríði sínu og
öllu þeirra ódæði, og séu svo
ofan á alt heiðraðir með því, að
gera sjálfir upp sínar sakir! Sé
þetta réttlátt, hví þá ekki að
reka dómara úr dómsölum sem
dæma eiga bófa, manndrápara og
þjófa, og segja þeim seku að
taka við dómsmálunum og kveða
upp dóminn yfir sér sjálfir. Sið-
íerðislega er enginn munur á
þessu. •
Kína er of sjúkt enn til þess
að geta aflað sé vináttu nokk-
urrar erlendrar þjóðar. Það verð
ur að nota sverðið, ef því á nokk
uð að verða þar ágengt. Jafnvel
Rússar pólitískir bræður þeirra
trúa þeim ekki.
En auðvitað halda þeir, eins og
allir kommúnistar að þeir séu
allra manna vitrastir og mestir.
Kína talar nú um sig eins og
eina voldugustu þjóð í heimi.
Fyrir 10 árum lágu þeir marflat-
i fyrir Japönum. Japar tóku alt
sem nokkur veigur var í af land-
inu og heldu því, unz Bandarik-
in komu til sögunnar og leystu
þá undan okinu. En þá sáu kom-
múnistar sér færi á að brjótast
til valda, er aðfarir erlendra kúg
ara voru stöðvaðar.
Það er eins og kommúnistum
finnist þeir hafa unnið þennan
sigur. Þeir tala ennfremur um
að þeir séu eina þjóðin sem
Bandaríkin hafi ekki getað unn-
ið á í stríði. Þeir vitna í Koreu-
stríðið sem sönnun þessa. Þann-
ig skilja þeir góðmensku Tru-
mans, sem rak MacArthur frá
stríðsforustunni, til þess að of-
þyngja þeim ekki á ný. Já—það
má segja, að þar fengu Banda-
ríkin jafnoka sinn í stríði.
Viðskiftum Sameinuðu þjóð-
anna má mikill hagur af því
standa að fá Kína í félag sitt, en
tapa Bandaríkjunum fyrir bragð
ið. Bandaríkin hafa ekki mikið
fyrir þær gert síðan stríðinu
lauk. Að halda nokkrum miljón-
um af þeim lifandi og þiggja fé
af þeim og styrk til að halda
sjálfstæði sínu, getur sjálfsagt
ekki talist mikils vert.
Og þegar betra er nú í boði
hví þá ekki að halda sig að því?
HVAÐ MUNDUM
VIÐ SEGJA?
Það kemur fyrir, að einn og
einn af þeim miljónum banda-
rískra og canadiskra manna, sem
yfir landamærin fyrir sunnan
okkur fara, reki sig á lögin og
af því stafi einhverja töf. Hér
getur verið einhver þörf á bót
og betrun. En af smáfrétt í tyrk-
nesku blaði að dæma, er hennar
þar eigi síður þörf. Fréttin er
svona:
“Bugarskur borgari reyndi að
stelast suður yfir landamærin
til Tyrklands.
Þrír búlgarskir landamæra
verðir skutu á hann í einu. Dó
hann samstundis.
Landamæra verðirnir sóttu
hinn dauða, en urðu að fara spöl-
korn inn í Tyrkland til þess.
Áður en þeir komust alla leið til
hins skotna, stigu þeir ofan á
sprengjur sem lagðar voru sem
gildrur fyrir landshornamenn
og drápust allir.”
Hvað mundi um annað eins
sagt hér?
FORSETI ÍSLANDS HEIÐ-
URSFÉLAGI N. F.
Á fundi sínum hinn 4. maí s.l.
samþykkti stjórn Norræna fé-
lagsins að óska eftir því við for-
seta íslands, herra Ásgeir Ás-
geirsson, að hann yrði heiðurs-
FRÁ ÍSLANDI
GUNNAR MATTHfASSON
OG ÞÓRA DÓTTIR HANS
f ÍSLANDSFERÐ.
Um helgina er von á Gunnari
Matthíassyni flugleiðis frá
Bandaríkjunum hingað til
Reykjavíkur í stutta heimsókn.
Dóttir hans, Þóra, verður hon-
um samferða hingað svo og mað-
ur hennar.
Frú Þóra er kona á bezta aldri
Hún nýtur mikils álits vestra, í
Los Angeles og Hollywood, scm
söngkona. Hefur hún haft á
hendi fast starf við útvarpsstöð
þar vestra, og sungið þar ein-
söngva í útvarp. En auk þess
heldur hún oftlega sjálfstæðar
söngskemmtanir í vestanverðum
Bandaríkjunum.
Blöðin þar ljúka miklu lofs-
orði á söng hennar, en í þeirri
miklu listaborg, HolljAvood, ec
samkepnin mikil á því sviði, svo
auðsætt er, að hún hefði ekki
r.áð þar almenningshylli, nema
hún hefði sérstaka hæfileika til
að bera á þessu sviði.
Heimsóknin hingað er þó fyist
og fremst kynnisför, fremur en
félagi félagsins. Varð forsetinn
við þeirri ósk. Laugardaginn 29.
maí komu forsetahjónin til fund-
ai við stjórn Norræna félagsins
í “Krystal sal” Þjóðleikhússins,
og afhenti formaður félagsins,
Guðlaugur Rósinkanz, forseta
skrautritað skírteini ásamt merki
félagsins í gulli.—Tíminn.
STENDUR MIKIÐ FÉ
TIL BOÐA
“Engillinn” frá Dien Bien
Phu en svo er frakkneska hjúkr
unarkonan De Gallard nefnd, cr
í ofannefndu virki vann og vildi
ekki yfirgefa hina sjúku, er kom
múnistar hertóku það, kom fyrir
mánuði síðan til Parísar. Hefir
stúlka þessi áunnið sér mikið á-
lit jafnt frá kommúnistum sem
frakkneska hernum og þjóð
sinni. Hún átti ekki aðeins góð-
um viðtökum að fagna, er heim
kom, heldur hefir henni boðist
mikið fé fyrir bók, sem hún hef-
ir í huga að skrifa um reynsklu
sína og gerir eflaust, ef hún fær
leyfi frakknesku hersins til þess.
Ennfremur hefir henni verið boð
ið til Hollywood til að leika i
kvikmynd er fjallar um virkið.
Bandaríkjastjón hefir og boðið
henni í heimsókn. Einnig hafa
tilboðum um starf hennar ringt
yfir hana frá blöðum, útvarps-
og sjónvarpsstöðvum bæði í Ev-
rópu og Bandaríkjunum. En Gen
eveive er ennþá í frakkneska
hernum og er í 30 daga leyfi frá
þjónustu. Hvað hún ræður af er
ekki vitað ennþá.
FLÓÐ í BRANDON
f gær rauf Assiniboine-áin 200
feta vítt skarð í varnargarðinn
austan vert við Brandon og áin
flæddi um nokkurn hluta austur-
bæjarins, einangraði nokkur
heimili. Voru nokkur þeirra tal-
in í hættu og íbúarnir sóttir á
bátum i ein 12 þeirra.
BRETLAND KAUPIR
MEIRA HVEITI
Bretland hefir ráðgert að
kaupa um 10 miljón mæla af
hveiti á skilmálum, sem ekki seg
ir frá, hvergjir eru. En verðið er
talið $1.80 mælirinn.
Hveitið á að senda frá Church
ill austur yfir haf. Nú kváðu
þau }jó ekki vera nema um 2Va
miljón mæla í geymsluhlöðun-
um. En þær munu skjótt verða
fyltar hveiti eftir þörfum.
til að halda hér söngskemmtanir.
Samt áformar hún að gefa al-
menningi kost á að hlusta á söng
einhvern tíma í næstu viku.
Heimili Gunnars Matthíasson
ar Jochumssonar í Los Angeles
er rómað fyrir gestrisni, enda
hafa margir íslendingar er kom-
ið hafa vestur til styttri eða
lengri dvalar, átt þess kost að
kynr.ast heimili Gunnars og
fjölskyldu, Frú Þóra er fædd og
alin upp þar vestra. En Gunnar
var rómaður fyrir söng sinn
meðan hann dvaldi hér heima í
töðurhúsum sem kunnugt er.
—Mbl. 5. júní
★
TEKUR KVIKMYND AF
HÁTÍÐAHÖLDUM 17. JÚNÍ
FYRIR AMERÍSKT SJÓN-
VARPSFÉLAG
Hall Linker, hinn bandaríski
kvikmyndatökumaður kom til
landsins flugleiðis í gær. Mun
hann sýna íslandskvikmynd sína
í Nýja Bíó á föstudag og þriðju-
dag, en auk þessa mun hann taka
hérna myndir bæði til að bæta í
myndina og fyrir sjónvarpssend-
ingar vestra.
Fyrir sjónvarpsþáttinn “You
Asked for It” mun Linker taka
4—6 mínútna mynd af íslenzkri
glímu. Má geta þess, að um 20
milljónir manna munu horfa að
staðaldri á þennan þátt.
Þá mun Linker taka myndir
hérna af hátíðahöldunum 17
júní fyrir C.B.S. útvarps og
sjónvarpsfyrirtækið.
Héðan fer Linker til Noregs
og síðan til Belgíu, þar sem
hann mun taka kvikmynd. Getur
og svo farið, að hann fari til
Belgiska Kongó og taki þar
myndir líka.
Hal Linker hefur komið hing-
að á hverju ári síðan 1950, neim
í fyrra, en þá vann hann að kvik
myndatöku á Kúba. Hefur hann
á þessum tíma sýnt íslandskvik-
mynd sína víða. —Alþbl. 9. júní
★
FIMMLEMBD ÆR
f lok fyrri viku varð ær að
sauðfjárræktarbúinu að Hesti í
Borgarfirði, fimmlembd. —Er
þetta einsdæmi hér á landi, a.m.
k.\ Öll lifðu lömbin og eru hiti
sprækustu. Ærin er með þrjú
þeirra, þar eð hún gat ekki
mjólkað þeim öllum og voru tvö
sett undir aðrar ær.
Halldór Pálsson sauðfjárrækt-
unarráðunautur lét á s.l. vetri
gefa 20 kindum á búinu að Hesti
hórmónainnspýtingu, með það
fyrir augum að auka frjósemi
kindanna. Árangurinn varð þessi
—-en þrjár sem borið hafa eru
þrílembingar. —Mbl. 1. júni
★
VAR BENT Á AÐ FARA
TIL ÍSLANDS
Mikið frægðarorð hefur víða
farið af starfi Flugbjörgunar-
sveitarinnar og hve vel hún sé
skipulögð. Hefur sveitin oftlega
hlotið viðurkenningu fyrir störf
sín í sambandi við leit að flug-
vélum, sem farizt hafa.
f vetur sem leið fóru nokkrir
starfsmenn flugmálastjórnarinn
ar til Bandaríkjanna til þess að
kynna sér ýmsa þætti flugþjón-
ustu. Einn þeirra Guðmundur
Guðmundsson, slökkviliðsstjóri
á Reykjavíkurflugvelli, fór þá
til að kynna sér brunavarnir og
flugbjörgunarmál.
Er að þeim þætti námskeiðsins
kom, að Guðmundur skyldi
kynna sér flugbjörgunarstarf-
semina, komu um það boð frá að-
alstöðvum amerísku flugbjörg-
unarmiðstöðvarinnar í Washing
ton, að vænlegast til árangurs af
slíku námi, væri að hann færi til
íslands, og fengi þar leyfi til að
starfa með flugbjörgunarsveit-
inni íslenzku! en ekki vissu ráða
menn að Guðmundur væri íslend
ingur. •
Guðmundi þótti þetta sérlega
góð meðmæli og viðurkenning á
starfi Flugbjörgunarsveitarinn-
ar. Hann er einn hinna fjöl-
mörgu ungu manna, sem tók þátt
í stofnun Flugbjörgunarsveitar-
innar. —Mbl. 2. júní
*
SLÁTTUR BYRJAÐUR
í blaðinu Tíminn dagsettu 3.
júní, er sláttur sagður byrjaður
víða um land. Er það tveim vik-
um fyr en vanalega. Grassprettu
segir blaðið hafa verið góða og
það sé hún sem geri mögulegt
að byja slátt svo snemma.
★
BARNAKÓRAKUREYRAR
FRÝÐILEGA TEKIÐ
í NOREGI
Eins og áður hefur verið skýrt
frá fór Barnakór Akureyrar
söngför til Noregs fyrir nokkru.
Barnakórinn kom flugleiðis
heim á sunnudag eftir hina ágæt
ustu ferð hjá frændþjóð vorri
og mun halda söngskemmtun í
Gamla Bíó í kvöld kl. 7. Gefst
Reykvíkingum þar tækifæri að
hlýða á söng kórsins, en hann er
fyrsti barnakórinn, sem utan fer.
Mbl. átti tal við Hannes J.
Magnússon skólastjóra Barna-
skóla Akureyrar í gær, en hann
var með í Noregsförinni.
Tveir einsöngvarar
í Barnakór Akureyrar eru 29
börn á aldrinum 10—14 ára. —
Söngstjóri kórsins er Björgvin
Jörgensson kennari, en einsöngv
arar með kórnum voru þau Anna
G. Jónsdóttir og Arngrímur B.
Jóhannsson. Hefur söngstjórinn
lagt mikla alúð við þjálfun kórs-
ins og hlaut hann mikið hrós í
Noregi fyrir þann árangur, sem
hann hefur náð. Fararstjóri var
Tryggvi Þorsteinsson kennari.
í útvarp
Barnakórinn hélt flugleiðis
til Osló 12. júní og fór þaðan rak
leitt til Álasunds og kom hann
þangað 27 tímum eftir að lagt
var af stað frá Reykjavík. Ála-
sund er vinabær Akureyrar og
hafði hann sérstaklega boðið
kórnum til samsöngs þar. Var
þar tekið á móti kórnum af mik-
illi alúð. Mætti honum forseti
bæjarstjórnar Álasunds, sendi-
herra Norðmanna á íslandi And-
erssen-Rysst og Bjarni Ásgeirs-
son sendiherra í Osló. Bjuggu
börnin ýmist á heimilum út uai
bæinn, eða í unglingaskóla ein-
um. Annaðist karlakórinn í Ála
sundi mótttökurnar og vistina í
borginni. Kórinn hélt eina hljóm
leika í Álasundi og aðra þai
skammt frá við geysimikinn
fögnuð áheyrenda og komust
færri að en vildu.
Hjá ræðismanni
Hinn 17. júní hélt íslenzki
ræðismaðurinn í bænum boð fyr
ir kórinn. Þar voru staddir menn
frá norska útvarpinu og tóku
þeir upp nokkur lög, sem síðan
var útvarpað um kvöldið 17. júní
frá Osló. Alls dvaldist kórinn 5
aaga í bænum og voru börnin
leyst út með gjöfum, er þau fóru
þaðan.
Þaðan var haldið sjóleiðis til
Bergen, en þar tók barnakór út-
varpsins í bænum á móti íslenzku
börnunum með söng á bryggj-
unni.
í kirkju
Þar var og staddur íslenzki
iæðismaðuinn Tryggvi Rittland,
sem greiddi fyrir kórnum á ali-
an hátt. Kórinn söng tvisvar i
bænum, í Konserthallen og á
skemmtistaðnum Gamle Bergen
við prýðilegar undirtektir., Það-
an var haldið til Voss og söng
kórinn þar í bæjarkirkjunni.
Þá hitti kórinn skömmu seinna
í Osló kórana, sem þátt tóku í
norræna söngmótinu í Osló m.a.
Samkór Reykjavíkur. Söng
barnakórinn í Folketeatret í
Bygdö og í Bygdö Söbad. Voru
undirtektir ávallt hinnar sömu
hvar sem farið var, hinar hjart-
anlegustu.
Flest voru lögin íslenzk á söng
skránni, 28 alls, en nokkur norsk
og vakti “Sunnudagur Selstúlk-
unnar’’ eftir Olav Bull sérstaka
hrifningu, en í því söng Arn-
grímur einsöng bæði á norsku og
íslenzku.
Börnin gátu fljótt gert sig
skiljanleg við jafnaldra sína,
sagði Hannes J. Magnússon. Þau
hafa haft mjög gaman að förinni
húnhefur í senn verið skemmti-
leg og lærdómsrík og örugglega
á borð við fjölmarga tíma í
kennslustofunum.
—Mbl. 24. júní
★
ÚTGÁFA LJÓSPRENTAÐRA
HANDRITA FYRIRHUGUÐ
Unnið er að undirbúningi -að
ljósprentun á allmörgum íslenzk
um fornritum á bókaforlagi
Munksgaards í Kaupmannahöfn,
undir stjórn próf. Jóns Helga-
sonar.
í ráði er að gefa út 20 bindi,
og komi tvö á ári. Fyrstu tvö
bindin, sem út koma, verða Víg-
lundar saga og Grettis saga í
einu bindi, og safn níu sagna i
öðru, þ.á.m. Bandamanna saga,
Göngu-Hrölfs saga o.fl.
Heildartitill útgáfunnar verð-
ur Manuscripta Islandica, og
verður ákaflega vel til hennar
vandað, bæði um pappír, prent-
un og frágang allan. Bækurnar
verða 33.5X25 cm. að stærð, í
vönduðu bandi, kjölur úr ljósrí
nautshúð. Á ári hverju munu
koma út um það bil 240 bls., og
verða bindin því eðlilega ekki
af sömu þykkt. Próf. Jón Helga-
son mun rita formála að band-
unum, og lýsa handritum þeim,
sem um ræðir hverju sinni, ásig-
komulagi þeirra og uppruna, aö
svo miklu leyti, sem hann er
kunnur.
Bækurnar munu eiga að kosta
400 kr. danskar á ári, sé allt verk
ið pantað, en einstök bindi verða
ekki föl. Þó verður hægt að fá
einstaka árganga fyrir 600 kr. d.
Nútíma tækni hefir verið beitt
við ljósprentun handrita þessara,
enda sum handritin svo snjáð og
velkt, að ekki hefði verið unnt
að greina á þeim orðaskil nema
með notkun útf jólublárra geisia,
og hefir próf Jón Helgason m.a.
notað þá aðferð.
Við val handrita þeirra, scm
nú verða gefin út, hefir ýmissa
sjónarmiða verið gætt, en hér
er um að ræða handrit, sem fjalla
um íslendinga, Noregs- og Dana
konunga, Snorra Eddu, Orkney-
inga sögu o. s. frv.
—Vísir 15. júní
★
STÚDENTAR GEFA ÚT
HÁTÍÐABLAÐ 17. JÚNÍ
Stúdentaráð Háskóla fslands
ákvað fyrir nokkru að gefa út
hátíðablað 17. júní, í tilefni af
10 ára afmæli lýðveldisins. Hef-
ur undanfarið verið unnið að út-
gáfu blaðsins og nokkrir þjóð-
kunnir menntamenn beðnir um
greinar í það.—Mbl. 1. júní