Heimskringla - 07.07.1954, Blaðsíða 2

Heimskringla - 07.07.1954, Blaðsíða 2
2. SÍÐA HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 7. JÚLÍ, ,1954 |!|eimskrin0k (StofnuD IS»«) Ctmni út á hverjum mlðvikudegl. Clgendur: THE VIKING PRESS LTD. 853 og 855 Sargent Avenue, Winnipeg, Man. - Talsími 74-6251 VerO bktOeln* er W-00 árgangurinn, borgist fyrirfram. Allar borganir sendistí .THE VIKING PRESS LTD. öll viOakiftabréf blaOinu aflútandi sendist: The Vlking Press Limited, 853 Sargent Ave., Winnipeg Rltatjóri STEFAN EINARSSON Utanáskrift tll ritstjórans: EDITOR HEIMSKRINGLA, 853 Sargent Ave., Winnipeg Advertising Manager: GUNNAR ERLENDSSON "Helmakringla" is published by THE VIKING PRESS LIMITED and printed by VIKING PRINTERS 853-855 Sargent Avenue, Winnipeg, Man., Canada — Teiephone 74-62ol Authorlxed gs Second Clasa Mail—Post Oftice Dept« Ottawa WINNIPEG, 7. JÚLÍ, ,1954 Aldinn Tacoma fræðaþulur kennari hjá brezku konungsfjölskyldunni Söngkonan Ninna Stevens í Tacoma skrifar: Eg sendi þér dá- litla sögu um íslending, sem kom út í dagblaðinu okkar hér “The Tacoma News Tribune” fyrir svo sem tveimur árum, sem eg hafði haldið til haga. í fyrra sumar, þegar Árni Jóhannsson kunningi okk ar dvaldi hér, rakst hann á þessa sögu og hvatti mig til að sendn Heimskinglu hana. Höfundur hennar heitir Page R. Hosmer, er persónulega kyntist Bertel Högna Gunnlögssyni en hann er sa sem sagan er um. Blaðið skrifar um hann á þessa leið: “Einn af sérkennilegustu íbúum Tacoma um 1890, var aldinn maður, hár og grannur, er við rákumst eigi ósjaldan á í hinum ýmsu mentastofnunum nefndrar borgar. Hann var með gisið yfir- vararskegg, hálfopin starandi augu, góðlegur í viðmóti og prúður og tiginmannlegur á svip og í allri framkomu. Þetta var Bertel Högni Gunnlögsson. Hann var fæddur á ís landi 1839, mentaður á kardinálaskóla í Róm, glímdi við þýðingar úr sanskrít, og hverjum manni fjölfróðari í Tacoma fyr og síðar (sem eg man eftir), og þó víðar væri leitað. Það var árið 1892, sem prófessor Gunnlögsson kom til Tacoma. Hann kom frá Chicago. En það var ekki fyr en 1910, að mér veitt- ist sú ánægja, að kynnast honum verulega. Eftir það kom hann í eina sex mánuði einu sinni í viku heim til mín. Æfðum við þá lest- ur saman í frönsku. Ekki vorum við alveg sammála um hvað lesa skyldi. Eg stakk upp á að við læsum “Sur L’Eau” eftir Maupassant, en hann var á móti því. Hann benti í þess stað á “Abbe Constant- ine” En eg var mótfallin. Til þess að yfirstíga þenna skoðar.a- mun, sættumst við á að lesa sögu Frakklands eftir Guizot, sem ali hagkvæmt var. Voru þetta uppbyggilegar stundir, en oft fanst mér mest út i það varið, að fá Gunnlögsson til að taka af sér gleraugun hans dökkleitu og halla sér aftur á bak í stólinn og ræða um fyrri daga hans, þó það yrði alt að fara fram á frönsku, því frönsku tímanum mátti ekki öðruvísi eyða. Komst eg þá að ýmsu sem eg hefði aldrei annars vitað, eins og að Gunnlögsson hefði lesið með Richard Bur- ton prófarkir af bók hans um ísland og hvað hann hefði starfað og með hverjum sem eg vildi að eg vissi meira um, en hann vildi sem minst um ræða. Einnig var gaman að fa að vita hvernig Persia leit út í augum víðföruls, íslenzks, 20 ára draumóra drengs, voru myndir hans oft svo skírar af þessu undralandi og sögu þess, að það var oft sem maður væri kominn á staðinn með honum. Einu sinni man eg eftir að eg spurði Gunnlögsson að því, hvaða þýðingar hann áliti beztar af harmleikjum Grikkja. Eftir nokkra umhugsun svaraði hann: “En frú mín góð, það eru engar góðar þýðingar til, hvorki af þeim né öðru. Grísku leikritin verður að lesa á grísku”. Eftir stutta þögn bætti hann við: “Það er held- ur ekki til neins að reyna að lesa þau með aðstoð orðabóka”. Hann lét þessu fylgja runu af hrynjandi setningum á grísku, og sagði: “Þarna sjáið þér það? Til að lesa leikina verður að hugsa á grísku”. Það nægði honum sjáanlega ekki hálfverk í túlkun. Svo lítið var honum um að þiggja nokkuð að gjöf frá öðrum, að hann þáði ekki einu sinni af kunningjum, að fara neinstaðar inn til að fá sér máltíð. Hann vildi engum skulda. Já, prófessor Gunn- lögsson var oft “skrítinn”. Það efuðu menn ekki jafnvel þó hann skrifaði í sérfræðirit á Englandi og í Bandaríkjunum og gerði slikt aðdáanlega vel. En hann fékk stundum glórur í höfuðið, eins og til dæmis um að hann væri ofsóttur. Er ekki ólíklegt að það hafi stafað af ýmsum óhöppum eða vonbrigðum, sem hann hafði orðið fyrir. . j Þegar eg rakst nýlega í gömlum blöðum á fregina af því, að hann hafi komið til Tacoma 17. október 1892, fór eg að rýna í það, sem frekar var um hann sagt. Ungur fregnriti getur um hann á þá leið, að í mentastofnuninni upp í hlíðinni megi líta skritinn fugl nýkominn þangað. Með þessu hefir eflaust verið átt við stofnun þá, er nú heitir College of Puget Sound. En hún var þá í stóru timb ur húsi að So. 9th og G. stræti. Ein spurning fregnritarans var sú, hvernig á því stæði að þessi viðurkendi lærdómsmaður væri kominn til Tacoma, þar sem ekki væri svo mikil þægindi til sem ærlegt bókasafn fyrir lærða menn. Svarið var að hér væri um aldraðan mann að ræða sem mikið bók- mentalegt starf hafði af hendi leyzt, og ætti fyrir því að taka sér hvíld. Hann hafði og meðal annars all-mikið bóka á sanskrít, sem hann hugsaði sér að dunda við að þýða og hafa ofan af fyrir sér með, þegar hann fýsti að leggja niður starf á College of Puget Sound. Ennfremur gátu fréttirnar þess, að þessi lærði maður væri fæddur á íslandi og hafði frá blautu barnsbeini stundað nám hjá prestum. Fjórtán ára gamall var hann sendur til Kaupmannahafn- ar. Prófin sem hann leysti þar af hendi yoru svo góð, að hann fékk leyfi til að byrja nám á stofnun kardinála í Róm (College of the Cadinals in Rome). Eðlilega var búist við, að hann stundaði guð- fræðinam, en grískan og latínan heilluðu hug hans meira. Tíma úr arinu 1861 var hann á fslandi. En um erindið þangað veit enginn hér. Næsta ár var hann kominn ti! Skotlands og var þar ráðinn til að kenna Lady Mary Nesbitr Hamilton, dóttur hins fræga manns Elgins lávarðar. Lady Mary Cummings tók einnig þátt í ná x;Lnu. Nátnsgreinar voru meðal annars danska og ítalska var auðvelt fyrir Gunnlögsson að kenna þau mál, því harm kunni og gat talað 9 tungumál vel, og kent þau. En þessi kunni hann bezt. Þessar tvær ungfrúr áttu að verða brúðarmeyjar Al- cxöndru prinsessu frá Danmörku er giftist prinsinum af Wales. Að tala dönsku henni til ánægju, þótti sjálfsagt bæði af þeim og við hirðina. Svo mikill var þá vegur dönskunnar! í Edinburgh kyntist íslenzki kennarinn Dr. Herman Bicknell, er var frægur fyrir ferðir sínar og rannsóknir í Asíu. Varð það úr, að hann bauð Gunnlögsson með sér í tveggja ára ferðalag, sem hann þáði með mestu á- nægju. Var fyrst haldið til Sikil eyjar, síðan til Grikklands, Smyrna og Egiptalands. Erind- ið var að lesa þar úr gömlum og máður áletrunum. “En það hafði svo slæm áhrif á sjón mína”, segir Gunnlögsson, “að eg gat ekki farið með dr. Bicknell í leið angurinn til Indlands. En hann sá fyrir því er eg þurfti með unz mér skánaði. Fór eg þá til há- skólans í Naples, hóf nám hjá prófessor Lignana í heimspeki, sanskrít og persnesku, en kendi nýju málin til að kljúfa þann námskostnað.” Hann segir ennfremur: “Árið 1868 sneri eg svo aftur til London, hitti þar lafði Mary, er gerði mig kunnugan við hirð- ina. Var eg þá ráðinn til að kenna danskar og íslenzkar bókmentir. ; Nemandi minn ein var Helena Christiana prinsessa, fjórða dótt ■ ir Victoríu drotningar. Þá fékk eg °S fyrir aðstoð prófessor I Huxleys, starf hjá North British i Review við að skrifa og gagn- rýna rit um ýms vísindaleg efni. ^ Það var einnig um þetta leyti, sem Sir Richard Burton var að gera bók sína úr garði um ís- land. Fékk hann mig til að hjálpa sér til við ýms smáatriði er hann ; mundi ekki eða athugaði ekki ' á hinni stuttu dvöl sinni á ætt- jörðinni. Þar næst skrifaði eg, en ó- reglulega þó, greinar fyir blaðið ; “New York Sun”, í eitt ár, en var boðin fasta staða -síðar og í þáði eg hana, fór því vestur um haf 1880. Eitt af því er eg gerði hér meðal annars var að þýða “The Science of Finance”, úr 1 ítölsku fyrir stjórnina hér ! vestra. Næst dvaldi eg um hríð í Madi j son, Wis.; þar skrifaði eg nokkr • ar all-langar greinar fyrir fjöl- | fræðibók um vísindalega hag- | fræði.” | í Chicago, þar sem Gunnlögs- , son dvaldi um skeið sem háskóla kennari, skrifaði hann allmikið um uppruna hinna mörgu þjóða- brota er í borginni bjuggu fyrir blaðið “Daily News”. Hann var og túlkur í borgarréttinum. Þar byrjaði hann einnig að kenna sanskrít hér vestra. “Atvikin hafa hagað því svo, að eg komst því ekki þangað sem mig hafði dreymt um og ákosið að leiðin lægi, til hinna fjar- lægu Austurlanda, heldur í þess stað allar götur—vestur, jafnvel á sjalfa brún vestursins—til Ta- coma.” Við þessa ofanskráðu grein, sem fjallar um einn hinn merk- asta og fjölmentaðasta fslending er leið sína hefir lagt til Vestur- heims, viljum vér bæta nokkrum atriðum úr grein, er Jón Ólafs- son, ritstjóri, skrifaði um Bertel H. Gunnlögsson í rit sitt “Öld ina” 1895, er hann gaf út hér vestra. Ber ofanskráðri grein saman við hana um flest nema hvað sumstaðar er fljótar yfir- sögu farið. í grein Jóns er Gunn lögsson ættfærður á þessa leið: Hann var fæddur 29. maí 1839, og var sonur Gunnlögs landfó- geta á íslandi, Stefánssonar prests Þórðarsonar á Hallorms- stað í Norður-Múlasýslu, Högna sonar. Móður nafn hans vitum við ekki, en móðurafi hans var Benedikt Jónsson Gröndal. Af íslandi fer Bertel fyrst 4 ára gamall með föður sínum árið 1843, er eitt ár erlendis, en dvel- ur á íslandi til 13 ára aldurs (segir Jón), en fer þá aftur til Kaupmannahafnar og byrjar lat- ínunám. Eftir sérstaklega góða frammistöðu við það, fer hannj til Róm og kemur aðeins einu sinni eftir það til íslands. Eitt sem Jón heldur fram um Gunnlögsson eftir að hann fer frá Chicago, er á þessa leið: Var hann ráðinn sem háskólakennari, er hann fór frá Chicago, og þeim starfa hélt hann um tíma eftir að til Tacoma kom. En forstöðu- menn og eigendur háskólans voru methodistar og vildu gjarn- an umsteypa alla nemendur í einu og sama móti. En Gunnlögs son þolir alt annað betur en þröngsýni og fanatismus í hverju sem er.” Lauk dvöl hans við háskólann af þessum ástæðum og hann byrj aði á ný tímakenslu á eigin spít- ur. Fjölgaði nemendahópur hans óðum og varð miklu stærri en hann hafði í skólanum. Flutti hann í hverri viku um langt skeið fræði fyrirlestra um ein- hverja fræðigrein, einkum bók- mentir og fagrar listir, með nemendum sínum, er jafnframt voru sóttir af mentamönnum og stórmennum bogarinnar. Til dæmis talaði hann um Indland, Egiptaíand, Grikki, Rómverja, sögu, bókmentir, listaverk, tungumál, o.s.frv. Á þann hátt kyntust og Tacomabúar sögu ís- lands og bókmentum. Við öll meiriháttar tækifæri, var til Gunnlögssons leitað til ræðu- flutnings. Svo framarlega stóð hann í mentalífi samtíðar sinn- ar. skipshöfninni, eins og dagbók skipsins færði í Ijós? Item: Hvað er á botni gryfj- unnar á eikar eyjunni (Oak Is- land) við minni St. Lawrence fljótsins? Þessi hola, átta fet í þvermál, og í það minnsta 172 fet á dýpt, er haldið að geymi fjársjóð, sem um meira en hundr að ár hefir varist þess að mann tuga frá krossfestingunni á Gol- gata. Kvað þá svo lítið að kristni hreyfingunni í Galileu á þeim tíma (síðla á fyrstu öld vors tímatals), að Josephus vaið hennar ekki var? Eða sniðsker hann hana í ritum sínum af ein- hverjum öðrum ástæðum? Hann ritar sem sé eins og að hann hafi aldrei heyrt Jésú getið eða legar hendur nái til sín, þrátt, hreyfingu þeirrar sem við hanr. fyrir ítrekaðar tilraunir ótal! er/ kennd. 'Þetta verður máske manna og auð fjárs að ná í botn|aldre greinilega vitað, en merki RÁÐGÁTUR bryfjunnar. Frá 172 feta dýpi kom nafarinn upp með nokkra hlekki af fínni gull-keðju, meðal annars, en þar stanzaði nafarinn á einhverju svo hörðu, sem hald- ið er að sé járnplata, að frá varð að hverfa, og þar við situr. — Hverjir grófu þessa holu, og í hvaða tilgangi ef ekki til_ að leg ráðgáta er það samt. L. F. SKÓGARGILDI ? Þegar almenningur mætist i rjóðri einu sér til skemtunar, þar sem allir undirviðir og rusl og hangandi greinar hafa verið I hreinsað burt, þá köllum við það geyma fjársjóð, sem þeir hinir! skógargildi. sömu gátu vart hafa vonast tili „ . , ,, “ En her skulum við taka okkur að ná í aftur, svo vel gengu þeir frá hnútunum? Skrítið! Item: Hverjir hjuggu, og reistu, stytturnar á Páska-eyj- unni XEaster Island), i Kyrra- hafinu vestur af suður Ameríku? Um 600 steinmyndir hafa verið taldar, allar af líkri gerð, næst- afskræmis göngu um eitt gott rjóður með skrúð viði, rósarunna, og blóma beði og alla vega litum blómum, sem eru svo smekklega sett út, sum í hringbeði, ö.nnur í kring um tré, sum eru bygð upp tvö fet i king um tré, sum i lang-beðum, með skrauttrjám til enda og um atskræmis myndir, sumar j miðju> Qg SVQ þetta yndæia flos allt að 50 fet á hæð, og að auk 1 Þess er oft getið, hvað verald- arsagan á sér margar og miklar ráðgátur, sem firrast ráðningu á algengan mælikvarða. Það er eins og að náttúran hafi lagt huliðshjálm yfir ýms atvik, svo að rækileg ráðning er sem í fel- um. Til dæmis: Hvað varð um af- komendur útibús þess er Eyrík- ur rauði stofnsetti á suður- Gænlandi seint á níundu öld- inni, og sem var i blóma og vel- megun í fleiri aldir, en sem svo varð að engu á tiltölulega stutt- um tíma—fólkið (9000 að tölu er það var flest) týnt og tapað, svo að segja horfið i hyl. Til þessa dags er ekki vitað með neinni vissu um afdrif þess, þrátt fyrir ótal getgátur. Sá sem þetta ritar hefur elt ólar við þetta efni um tugi ára og lesið urmul bóka og ritgerða þvi við- víkjandi, en er að endingu litlu nær, svo flókið er það. Þykir sennilegt að Vilhjálmur Stef- ánsson sé þó á réttri leið e’- hann ályktar að síðasti áfangi þessara norðmanna hafi verið sá, að blandast skrælingjum (Eski- móum), og þannig horfið svo al- gerlega að lítið ef nokkuð má finnast af áhrifum þess í fari, I málsháttum, siðum eða öðru hjá þeim skrælingjum sem næstir stóðu. Item: Hvað varð um skips- höfnina, þarmeð konu og ung- barn kapteinsins, á Marie Cel- este, sem fannst úti á regin At- lanzhafi fyrir hægum byr, allt í röð og reglu um borð, en mann laus? Skipshöfnin hafði sýni- lega staðið upp frá borðum, og kona kapteinsins frá hálf-saum- aðri flík, og stigið um borð í einum skipsbátnum sem svo kom aldrei i leitirnar. Hvað var til- efnið að það flúði skipið, þó ekki í neinu ofboði og í góðviðri, því að skipið var enn ekki veðurbar- ið þegar það fannst, tíu dögum eftir að það var yfirgefið af a hálft það ofan í jörð, geysiþung ar og úr hörðu grjóti. Þær standa hingað og þangað á eyj- unni, en hvorki í röð né reglu, sumar fluttar langa leið frá grjótnámunni, sjálfsagt með ærnu erfiði. Fólkið sem nú býr á eyjunni veit engin rök á þess- um styttum, enda skiftir sér lít- ið af þeim. í þeirra augum hafa þær ávalt staðið þar sem þær eru. Hvi þá að gera sér gryllu út af þeim. Item: Hver var höfundur leik ritanna og sonnetanna sem kenndar eru við William Shake- speare? Að vísu var maður sem þetta heiti bar, fæddur og dáinn í Stratford-on-Avon (1564-1616) uppi á þeim tima sem leikritin urðu til, sem fékkst eitthvað við leiksýningar (sú stétt átti ekki upp á háborðið á þeim dögum),jfæri að reyna að lýsa því, þá en á stundum vann fyrir sér með kemst maður ekki þar nálægt því að halda í hesta-tauma | veruleikanum. Maður verður að þeirra ríku er leiksýningar sóttu. Shakespeare þessi mun hafa fengið einhvern vísir að menntun á smábæjar skóla, sem ekki voru yfirgipsmiklir í þá silki sem við göngum á i bless- uðu sólskininu. Þarna eru marg- ar tegundir rósa og rósarunn- um með mismunandi litum, all- ar rósirnar eru í opnum garði og kvert rósabeð hefur sinn sér- lit; er það fögur sjón sem blasir við manni, að horfa á þessa reiti, þar á bak við er tiu eða tólf feta há .vírgirðing, og langband á straurunum sem halda netinu upp, þar eru margar rósir með mismunandi litum sem vefja sig alla leið upp á topp á netinu og halda svo áfram eftir langband- inu og mætast þar í miðju og flétta saman krónur sínar. Nú skulum við ganga 10 eða 15 fet frá smærra rósabeðinu og horfa yfir allt rósa skrautið með öllum sínum litbreytingum og blöndun lita. Það er svo guð- dómlega fagurt, að þó maöur sjá það sjálfur til að fá rétta hug mynd um það. Nú skulum við ganga i gegn- um skraut garðinn, sem er allur fullur af blómabeðum og skraut- daga, en frekari mentun, ef um|trjám, alla leið niður á brúnina. var að ræða, aflaði hann sér af Þaðan er fagurt útsýni. eigin dáð. Engin handrit er vit- að um eftir þennan mann, utan tvö smá sýnishon af handskrift hans, annað erfðaskrá á klaufa- lega samsettu og viðvaningslegu máli, þar sem hann ánafnar ekkju sinni “annað bezta rúmið mitt”; hitt grafskrift, bæði aula- leg og illa framsett, þar sem hann kveður fram ógæfu yfir hvern þann sem freistast til að ónáða bein hans. Var þetta maðurinn sem fram- leiddi Hamlet og King Lear og sonneturnar ódauðlegu? Er ekki liklegra að einhver hinna mennt- uðu og mikilhæfu manna þess tímabils, svo sem Francis Bacon eða Christopher Marlowe, hafi samið þau undir gerfinafni af pólitískum eða persónulegum á- stæðum ? Eitt af mörgu sem bendir í þá átt er það, að handritin voru fai- in eða eyðilögð, með það kannske i huga að höfundurinn yrði ekki fundinn gegnum þau. Til dæmis- voru handrit Miltons, á hælum Shakespeares (1608-’74), öll vandlega geymd, og eru enn í góðu lagi. En hver svo sem ritaði Shake- speares leikina og kvæðin varð- ar auðvitað minnstu. Þau eru jafnmikils virði, hver sem höf- undurinn var. En ráðgáta er það samt, sem forvitnin leikur við. Item: Enn eitt atriði. Hvers- vegna minnist Josephus, einn af mikilhæfustu sagnariturum (historians) sem uppi hafa verið svo að segja ekki einu orði á Jésú frá Nazaret? Hann var þó uppi og samdi verk sitt í heima- högum Jésú innan nokkurra ára- Fyrst er hlíðin, alla leið niður að þjóðveginum sem liggur suð- ur og norður til Canada. Hliðin er alsett blóma beðum, skraut- trjám af mismunandi tegundum og skrúði, að hugsa sér þá feg- urð. Þá fyrst fer maður að líta inn í fjölbreytni náttúrunnar. En hinu megin við þjóðvegin eru skrúðgrænar grundir með stórum blómabeðum i suðurpart- inum og eins er fjöldi af blóma beðum í kring um Friðarstólp- ann, sem stendur á línuni milli Bandaríkjanna og Canada. Héð- an til norðurs eru 3 mílur ti! White Rock, B. C. En beint í vesthr er Point Roberts i Banda rikjunum, tólf til fimtán milur yfir sundið. Nú skulum við horfa út á sjóinn. Utan skerja er þar kári oft úfinn og lundstirður. Hann tekur öldurnar hverjar af annari og þeytir þeim áfram i ruggunni sinni, þar til út úr rennur. En þegar maður gætir að, þá eru þær allar kvíthærðar. En þá kemur blessuð sólin með sina gullnu slæðu og greiðir hana inn i hár Ægis dætranna, og gerir það tilkomumikla sjón. En nú skulum við líta innan skerja. Sjá litla og stóra voga. Þeir eru á mismunandi stærð og fríðleik. f suma þessa stærri sern við sjáum ekki, renna stór ár er ser koma eins og hlýkkjóttir silfur þræðir eftir héraðinu til sjávax- En í hina minni voga renna smá lækir í þá, sumir þeirra hafa rutt sér djúpan farveg i gegn- um bakkann, En aðrir steypast af smá klettum og mynda foss er þeir steypast í lygnan voginn, og kyssa hann hinum mjúka og langa kossi. En nú skulum við

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.