Heimskringla - 14.07.1954, Qupperneq 1
LXVIII, ÁRGANGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 14. JÚLÍ 1554
NÚMER 41.
FRÉTTAYFIRLIT OG UMSAGNIR
KVEÐJA FRÁ V.-ÍS-
LENDINGUM
• V.-íslendingar sendu heima-
þjóðinni kveðju sína og árna'öar-
óskir með 10 ára afmæli hins ís-
lenzka ljýðveldis. Dr. Richard
Beck prófessor kom hingað
heim sem fulltrúi þeirra á þjóð-
hátíðinni og flutti þar skörulegt
ávarp.
Fyllsta ástæöa er til þess að
þakka löndum okkar fyrir vest-
an hafið ræktarsemi sína og
tryggð við heimaþjóðina. Hún
er okkur ómetánlega mikils
virði. Margir íslendingar í Vest-
urheimi hafa barizt merkilegri
baráttu fyrir viðhaldi islenzkrar
tungu og menningar. Fjölmarg-
ir þeirra hafa einnig getið sér
ágætt orð í hinum nýju heim-
kynum sínum og þannig orðið ís
landi til hins mesta sóma.
Við skulum ekki vanrækja
sambandið við frændur og vini
í Vesturheimi. Þeir eru tengdir
okkur traustum böndum þjóð-
ernis og tungu. Við þökkum dr.
Richard Beck þess vegna fyrir
komuna hingað og biðjum hann
að flytja Vestur-íslendingum
kærar kveðjur og velfarnaðar-
óskir. —Mbl. 20. júní ’54
ÍSLENDINGAR BORGA
MEST AÐ TILTÖLU
*
Samkvæmt ný-útkominni
skýrslu sambandsþjóðanna í N.
Y. þá borga íslendingar hærra
gjald til starfs Sameinuðu þjóð-
anna, en nokkur önnur þjóð þeg
ar miðað er við fólksfjölda.
Islendingar borga $16,520 á
þessu ári sem gjörir 11 cent á
hvern einstakling þjóðarinnar.
Næst kemur Nýja-sjáland , sem
borgar 9.7 cent á hvern einstakl-
ing. Svo kemur Svíþjóð með 9.5
cents á ann. Canada með 9.2 cent
og svo Bandaríkin með 8.6 cent
á mann. Rússland er 15 í röðinni.
Byelo-Rússar og Ukraine til
samans 3.3 cents á mann.
Stærstu upphæðina borga
Bandaríkin, $13,765,290.00
J- J- B.
OTTAWA STOKKAR
SPILIN
Það var kominn timi til að
breyta eitthvað til í ráðuneyt-
inu í Ottawa, eins og nú hefir
gert verið að nokkru, en hefði
mátt vera róttækara. Þrír ráð-
herrar sem lengi hafa verið við
völd og þjóðin var orðin óánægð
með fyrir langa löngu, hafa nú
úr áðuneytinu horfið. Það eru
Abbott f jármálaráðherra, sem
uú fær dómarastöðu í yfirrétti,
Chevrier flutningsmálaráðherra,
sem nú er settur yfir rekstur St.
Lawrence mannvirkisins og Clax
ton, hermálaráðherra, sem lengi
hefir verið óánægður með starf
sitt og tekur nú við forustu
Metropplitan Life Insurance fé-
lagsins.
Við starfi fjármálaráðherrans
Abbotts tekur maður sem Walter
Harris heitir. Hann var áður yf-
irmaður fólksinnflutnings og
þegnréttindadeildar stjprnarinn
ar. Er hann ekki öfundsverður
af sínu verki. í fjármáladeild-
inni hefir eyðslusemi kastað
tólfunum. Þar voru rétt svo eitt
eða tvö dæmi séu nefnd, greidd-
ar $839,903, fyrir gólfteppi til
hersins. Þjóðin hefði heldur vilj
að sjá því fé varið^til flugskipa
kaupa. Að greiða j$562 á hverri j
klukkustund, eins og gert hefir
verið, innan hernaðardeildarinn
ar, fyrir símskeyti og símtöl,
hefir og þótt vel að verið. Að
% erja ennfremur $4,410 á klukku
stund innan þessarar deildar fyr
ir ferðalög og flutninga, virðist
bera eyðsluseminni glöggan
vott.
Þjóðin er heldur ekkert hrif-
in af eyðslunni í öðrutn deildum
stjórnarinnar, en hermáladeild-
ar. En þar verða menn þess vís-
ari að varið hefir verið $40,880 á
dag í ferðakostnað; fyrir sér-
staka þjónustu sem til annara
varð að sækja, en þeirra sem hjá
stjórninni unnu, um $78,279 á
dag. Og þannig mætti lengi
halda áfram.
Hinn nýi ráðherra verður að
ráða einhverjar bætur á þessari
eyðslusemi, og mun ekki hald-
ast uppi með hana og að hækfca
skatta eins og Abbott gerði, til
að geta haldið henni áfram. Hér
er ekki verið að gagnrýna skatta
ef notkun skattfjársins væri til
þess, er í góðar þarfir kæmi. En
þegar hún er ekki til þeirra
hluta notuð, heldur óþarfa, eins
cg á hefir verið bent hér að ofan
og oft og af mörgum blöðum
áður, þá er við gagnrýni af þjóð
arinnar hálfu að búast. Ef nýju
ráðherrarnir bæta ekki neitt úr
skák, þakkar þjóðin stjórninni
ekkert fyrir stokkun spilanna,
við næstu kosningar.
Ralph Compney, sem tekur
við af Claxton, var í stjórn her-
ráðsins áður.
Af skrá yfir ráðuneytið, eins
og það er nú skipað, má sjá nöfn
annara nýju ráðherranna. En sú
skrá er þannig:
Prime Minister — Rt. Hon.
Louis St. Laurent.
Trade and Commerce — Rt.
Hon. C. D. Howe.
Agriculture — Rt. Hon. James
G. Gardiner.
Health and Welfare — Hon.
Paul Martin.
National Revenue — Hon. J. J.
McCann.
Labor — Hon Milton Gregg,
V.C.
External Affairs — Hon Les-
ter B. Pearson.
Justice — Hon. Stuart Garson.
Public Works — Hon Robert
Winters.
Veterans Affairs — Hon. H.
Lapointe.
Finance — Hon. Walter Har-
ris.
Mines — Hon. George Prud-
ham.
Postmaster General — Hon. Al-
cide Cote.
Fisheries — Hon. James Sin-
clair.
Defence — Hon. Ralph Camp-
ney.
Solicitor-General — Hon W.
Ross Macdonald.
Citizenship and Immigration
— Hon. J. W. Pickersgill.
Northern Affairs — Hon. Jean
Lesage.
State Secertary — Hon Roch
Pinard.
MÁLIN FLÓKNA
Nú er farið að gera því skóna,
að útlagastjórn Arbenz frá Guate
mala, sé að senda beiðni til Sam-
einuðu þjóðanna um, að viður-
kenna sig sem útlagastjórn í
Guatemala, en ekki byltinga-
stjórnina er þar hrifsaði nýlega
völd. Þetta er eitthvað skjömp-
ótt útlits við skoðun kommún-
ista, er yfirleitt hafa heitt barist
á móti því, að útlagastjórninni
kínversku á Formosa, sé nokkur
viðurkenning veitt. Samt er ekki
úr vegi, að Sameinuðu þjóðirnar
athugi beiðnina. En það er hætt
við, að ef þær gerðu það og kæm
ust að þeirri niðurstöðu, að reka
yrði and-kommúnista stjórnina í
Guatemala, að samtök Samein-
uðu þjóðanna þyrfti þá að gera
það sama í Kína, sem hlífst hefir
verið við til þessa, sem sé, að
teka núverandi stjórn þar frá
völdum. Við það væri að vísu
ekki mikið að athuga, en gallinn
á þessu er, að kommúnistar skoða
hjálpina nauðsynlega aðeins
þegar útlaginn er kommúnista-
stjórn og jjyltinguna réttmæta
því aðeins að hún sé af völdum
kommúnista háð. Um aðra en þá,
ei alt öðru máli að gegna.
1970 í MEIRIHLUTA
✓
f blaðinu Saturday Night var
þess nýlega getið að frakknesk
blöð í Quebec ræddu nú mikið
þjóðræknismál sín. í þeim um-
ræðum hefir þeirri spurningu
verið varpað fram, hvað há íbúa
tala þessa lands yrði 1970? —
Bjuggust flestir við að hún yrði
orðin æði há eða alt að helm-
ingi hærri en hún nú er. En
næsta spurningin er hvað marg-
ir af íbúunum verða þá Frakkar?
Umræður þeirra um þessi
mál leiða í ljós, að þeir geri ráð
fyrir, að verða þá orðnir hér í
meirihluta.
Við höfum, segja þeir, spornað
við því fram á þennan dag, að
fólksinnflutningur < frá öðrum
löndum ykist hingað. En það er
hætt við, eftir því sem landkost-
ir hér verða víðkunnari, að í-
búunum muni fjölga. Það fyrsta
sem við verðum að gera er að fá
haganleg fólksinnflutningslög.
Það er ekki frá Frakklandi einu
sem við verðum að fá innflytj-
endur. Við verðum að fá þá víð-
ar að. En hvaðan? spyrjið þið.
Það er svo skrítið að það er mik
ið af Frökkum nær okkur, en
við höldum. í Ný-Englandsrík-
unum, rétt fyrir sunnan okkur,
er alt að því 1% miljón frakk-
neskra manna. Þeir eru óðum að
hverfa úr hópnum, sem Frakkar.
Það er blátt áfram skylda vor,
að sjá um að þeir hverfi ekki.
Við ættum því að byrja á, að fá
þá til að flytja hingað. Þeir
gætu orðið mestu hjálpvættir
vorir hér og verið forsprakkar
hinna nýkomnu frá Frakklandi
siálfu. Þeir ættu ekki að horfa í
bústaðaskiftin, er þeir sjá hvers
þeir geta hér vænst, og hafa átt
að sig á hver skylda þeim hvílir
á herðum með að halda hér við
frakkneskri tungu og menningu.
Þetta tínir Sat. Night upp j
úr blöðum Frakka í Quebec, eins j
og blaðinu Le Droit, La Patrie j
og La Devoir. íbúum Quebec- J
fylkis er -þetta því sameiginlegt
alvörumál, úr því að svo mörgl
blöð leggja fram skerf sinn til
að ræða það. Heimskringla hefir |
bent á þetta áður, að hér gæti |
enn svo farið, að brezk menning;
ætti eftir a fara halloka fyrir
hinni fönsku. Á liberalflokkur-
inn, næst kaþólskunni ,veiga-
mesta þáttin í því, með því að
gerast hér talsmaður Frakka í
málum þeirra á móti öllum öðr-
um pólitískum flokkum þessa
lands og hverri þeirri stefnu,
sem ekki hefir verið sniðin eftir
kokkabókum Frakka.
Það var verið að finna það að
sögu Winnipeg- íslendinga, að
SITT AF HVERJU
Nýr flokkur?
• Sagt er, að Eisenhower for-
seti og ráðunautar hans hafi rætt
með leynd möguleikana á stofu-
un þriðja flokks í Suðurríkjun-
um, fyrir forsetakosningarnar
’56. Mundi þessi flokkur senni-
lega verða kallaður “Stjórnar-
skrárflokkurinn” (Constitution
Party) og tilgangurinn að ná í
atkvæði demokrata, sem hlynnt-
ir eru “Ike-áætluninni”, en ekki
vilja kjósa flokk republikana.
Fann Vínland kl. 6
• Klukkan 6 að morgni 24. sept
ember 1003 fann Leifur Eiríks-
son AmeHku. Svo segir hinn
brezki prófessor Friðrik I. Pohl
í bók, sem kom út fyrir skömmu
og heitir “Týndar uppgötvanir”.
—Vísir 4. júní
Chaplin þakkar friðarverðlaun
—(Skeyti frá Lúsanne)
• Charlie Chaplin, kvikmynda
leikarinn heimsfrægi, hefur lýst
yfir því, að hann telji sér mikla
sæmd hafa verið gerða með veit-
ingu “friðarverðlaunanna’” fyrir
árið 1953, sem kommúnistar hafa
komið á laggirnar.
Verðlaunin voru afhent hér á
heimili hans í gær. “Allt sem
fyrir friðinn er gert, hvort sein
það er í austri eða vestri, er
skref í rétta átt . . . Eg véit ekki
hvernig unnt er að leysa ýmis
vandamál, sem friðurinn er und-
ir kominn, en hitt veit eg, að
þjóðirnar leysa þau aldrei í
andrúmslofti haturs og grun-
semda, né heldur munu hótanir
um að varpa vetnissprengjum
verða til þess.”
—Vísir 5. júní
“Hrikalegar þrælabúðir" —
• Dr. Morek Korowizc var
einn þeirra fulltrúa, sem pólska
kommúnistastjórnin sendi til N.
York til þess að sitja Allsherjar
þing Sameinuðu þjóðanna á s.l.
hausti fyrir hönd Póllands. En
þessi fulltrúi var ekki fyrr kom-
inn til hins frjálsa heims en hann
lýsti sig pólitískan flóttamann
og sagði sig úr öllum lögum við
pólsku kommúnistastjórnina, —
Þegar hann ræddi við blaðamenn
nokkru síðar komst hann þann-
<ig að ®rði að Pólland væri nú
“hrikalegar þrælbúðir” undir
I stjórn kommúnista. “Eg fagna
því”, sagði dr. Korowizc, “að
geta nú sagt sannleikann, en það
er bannað í heimalandi mínu um
þessar mundir”. Hann skýrði
einnig frá því, að það væri al-
menn skoðun í Póllandi að
minna en 7% af pólsku þjóðinni
hefði hina minnstu samúð með
kommúnismanum og Rússum.
Leppstjórn Rússa í Póllandi
væri þannig gjörsamlega fylgis-
laus.
Þannig lýsa þei ástandinu fyr
ir austan járntjaldið, sem bezt
þekkja það og hafa fengið tæki-
færi til þess að reyna alþýðu-
lýðræðið og sovétskipulagið. En
út um lönd keppast kommúnista
flokkarnir um að lofa það og
telja fólki trú um að það sé al-
fullkomið —Mbl.
Draugur ásækir HiIIary
® (Frétt frá Sviss)—Tensing,
sem kleif Everest-tind með Hiil-
ary, og dvelst hér í þessu Alpa-
þorpi um þriggja vikna skeið, til
að klífa fjöll með kunnum, sviss
neskum f jallgöngumönnum, og
læra þeirra listir, er ekki í vafa
um hvað valdið hafi veikindúm
Hillarys.
Tensing segir, að hér sé um að
ræðá dularfull áhrif að handan
frá “anda Everest tinds”. Er
hann var beðinn nánari skýringa
á þessu, sagði Tensing:
“Eg var líka mikið veikur í
fyrra mánuði og ákaflega þreytt
ur. Eg tel, að veikindi okkar
stafi frá kvendraugnum Sho Mo
| Lounca, sem heldur vörð um
; hæsta tind heims.” —Vísir
þar væri ekki alt að finna, sem
þar ætti heima. Oss virtist þetta
fjarstæða, er vér lásum það. En
á þennan menningarskerf, sem
þeir er liberala nefna sig, hafa
svo drjúgan lagt, hefði ef til
vill verið rétt að minnast á—þó
ritara sögunnar hafi ekki fund
ist það eiga sem bezt heima við
skoðanir annara frá eyjunni, sem
ekkert bindur utan bláfjötur æg
is, eins og Steingrímur orðaði
það.
HVAR BYRJAR STRÍÐ?
Hvar mundu átök fyrst hefj-
ast í stríði ef í bráðina brytist
út ?
Vér heyrðum yfir útvarpið í
þessu landi haldið fram í gær.
að ísland hlyti að verða eins
snemma fyrir barði óvinanna og
nokkurt annað land. Leiðin þangj
að væri eins opin og að nokk-
urri víglínu og þörf á vörn væri
brýnni og mikilvægari þar en ef
til vill annarsstaðar væri hægt
að finna. Þar væri aðal-vígi At-
lanzhafsins, sem óvinirnir vissu
hvað meinti, ef ekki við.
DULLES í PARÍS
Ríkisritari John Foster Dulles;
flaug til Parísar í gær í fundar-
erindum við hinn nýja stjórnar
formann Pierre Mendes-France.
Á fundinum verður einnig utanr.
ráðherra Breta, Anthony Eden.
Á ferð Dulles er litið mjög al-
varlega. Ætla margir að hún sé í
því fólgin að segjá Bretum og.
Frökkum að þeir geti farið eða
komið, að því er úrlausn mála í
Indó-Kína áhræri; Bandaríkin
og að líkindum flestar aðrar Sam
einuðu þjóðanna og Þýzkaland
haldi áfram vörn gegn útbreiðsiu
kommúnisma á þann hátt, sem
þeim sýnist.
Bandaríkin eru eina landið
sem óhikað hefir beitt sér fyrir
henni af stórveldunum. Þau hafa
í þvi efni menningu að verndaj
sem fram tekur öllum stjórnar-
tilraunum, sem áður eru þektar,
í •þvr að bæta hag almennings,
og láta honum líða vel. Það hefir
engin þjóð í heimi neitt að sýna
í því efni, sem Bandaríkin. Af-
koma manna í öllum greinum, er
hvergi eins góð, frjáls og eðli-
leg og þar. Það eru til menn sem
meta þetta einskis og halda fram
ómenningu og ófrelsi í þess stað.
Forði oss allar góðar vættir frá
þeim náungum.
ÚR ÝMSUM ÁTTUM
f dagblöðum þessa bæjar s.l-
mánudag, var þess getið, að dun-
ur og dýnkir voru miklir við
Grímsvötn í Vatnafókki og þar
væri búist við gosi.
•
Grænn Landi skrifar: —“Eg
kom í bæ einn í Wisconsin ný-
lega. Þar fór fram kaþólk messa.
Af bílum var þar fult. En það
sem mér þótti skrítnast, var að á
fjölda þeirra voru veifur með
nafni Joseph McCarthy árituðu.
Hann var í kirkjunni og svona
var viðhöfn kaþólskra mikil af
því.” —
Vara-foseti Bandaríkjanna, R.
M. Nixon, gat þess í ræðu á
stjórnarfundi í Washington i
gær, að það lægi fyrir að
afgreiða veitingu til vegagerðar
í Canada, er næmi 50 biljón döl-
um, það væri eitt af því sem gera
þyrfti í hervarnarskyni í sam-
vinnu við Canadástjórn.
Þess var nýlega getið að Can
ada hefði lýst sig fylgjandi
Churchill og Eden í Asíumálun
um en væri ekki með verndar-
stefnu Bandaríkjanna eystra. En
hvaða land skyldi vernda Canada
raunverulegast, ef í það versta
fer?
FRETTIR FRÁ ISLANDI
Fljúgandi bændur
Flugfélag íslands flytur í dag
60 bændur austan af Héraði til
Kirkjubæjarklausturs á Síðu, á
bændaþing, sem þar verður hald
ið næstu daga.
Að þinginu loknu koma bænd-
urnir hingað til Reykjavíkur og
í næstu viku flytur Flugfélag
íslands þá aftur austur að Egils-
stöðum á Héraði. —Vísir
★
VfGÐUR BISKUP
Á sunnudaginn var dr. theol.
Ásmundur Guðmundsson vígður
biskup yfir fslandi. Fór athöfn-
in fram í Dómkirkjunni að við-
stöddu miklu fjölmenni, þ. á.m.
rúmlega 100 hempuklæddum
prestum. Við setningarguðsþjón-
ústu prestastefnunnar í gaer
vígði biskupinn 6 guðfræðikandi
data til preststarfa.
Áður en 4smundur Guðmunds
son var vígður biskup hafði
guðfræðideild Háskóla fslands
kjörið hann heiðursdoktor.
—Þjóðv. 22. júní
★
28 hvalir skotnir
Hvalveiðarnar hafa gengið
fremur treglega í vor.
Fjögur skip eru að veiðum
fyrir h.f. Hval og hafa þau sam-
tals fengið 28 hvali til þessa.
Eru það aðallega dimmviðrin
að undanförnu, sem hamlað hafa
veiðum. —Vísir 11. júní
★
3 íslenzkir lögregluþjónar á
námskeið hjá Scotland Yard
Bæjarstjón samþykkti í gær
að veita þrem lögregluþjónum
styrk til að sækja námskeið í
lögreglufræðum í sumar á veg-
um British Council. Verður
þetta í annað sinn er íslenzkir
lögreglumenn sækja slík nám-
skeið.í Englandi.
Ekki hefur enn verið afráðið
hvenær íslenzku lögregluþjón-
arnir halda utan. En væntanlega
munu þeir dvelja 4—5 vikur í
Englandi.
Lögregluþjónamir munu fá
tækifæri til að kynnast flestum
þáttum lögreglumála í Bret-
landi. M.a. munu þeir fá að kynn
ast starfsemi Scotland Yard i
London og dveljast þar í aðal-
stöðvunum um nokkurt skeið.
—Alþbl. 4. júní
★
MINNISMERKI UM GARÐ-
AR SVARARSSON Á
HÚSAVÍK
Bæjarstjórn Húsavíkur hefir
samþykkt að veita 10 þús. kr. til
sjóðstofnunar í sambandi við 10
ára afmæli lýðveldisins, og á sá
sjóður að renna til þess að gera
minnismerki um Garðar Svavars-
son hinn austræna, þann er hafði
vetursetu í Húsavík og landið
var nefnt eftir um skeið.
—Tíminn 20. júní
Dánarfiegn
Borist hefir hingað frétt um
andlát Svanhildar Sigurbjörnsd.
konu Eggerts sál. Sigurgeirsson
ar á Vogar, Man Kveðjuathöfn
fer fram í dag (miðvikudag. 14.
júlí) frá sveitarkirkju Vogar.
Séra Philip M. Pétursson flytur
kveðjuorðin Hin látna var móóir
Björns kaupmanns Eggertsson-
ai á Vogar og þeirra systkina.
Hún var ættuð frá Einarsstöðum
í Kræklingahlíð, og kom til
þessa lands árið 1906, með
manni sínum og börnum.