Heimskringla - 21.07.1954, Blaðsíða 2

Heimskringla - 21.07.1954, Blaðsíða 2
2. SÍÐA HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 21 JÚLÍ 1954 Heimakringk (StofnuO 1S»0) Jsjnur át á hverjum mlðvikudegl. Eigendur: THE VIKING PRESS LTD. 853 og 855 Sargent Avenue, Winnipeg. Man. — Talsími 74-6251 VerO bl&Osln* er $3.00 árgangurinn, borgist fyriríram. Allar borganir aendist: THE VIKING PRESS LTD. öll viOskiftabréf blaOinu aPlútandi sendist: The VUdng Press Limited, 853 Sargent Ave., Winnipeg Ritstjóri STEFÁN EINARSSON Utanáskiift til ritstjórans: EDITOR HEIMSKRINGLA. 853 Sargent Ave.. Winnipeg Advertising Manager: GUNNAR ERLENDSSON “Heimskrlngla" is published by THE VIKING PRESS LIMITED and printed by VIKING PRINTERS 853-855 Sargent Avenue, Winnipeg, Man., Canada — Telephone 74-6251 Antboriied aa Second Clasg Mail—Post Office Dept.. Ottawq WINNIPEG, 21 JÚLÍ 1954 MINNINGARRIT Fyrir helgina barst Heimskringlu í hendur rit, er kom út 6. júlí um Ásmund P. Jóhannsson. Er það gefið út af sonum hans, þremur, Jónasi, Wilhelm og Grettir, sem minningarrit um hinn ágæta föður þeirra. En sjötta júlí 1875 var fædingardagur Ásmund- ar. Rit þetta er hið smekklegasta útlits og skipulagning efnisins hins bezta. Hefir Einar P. Jónsson ritstjóri Lögbergs séð um út- gáfuna og skrifaði stutt en ljóst söguágrip hins látna og fieira í ritið. En auk hins góða skerfs hans, leggja talsvert margir til les- málsins, eða um 18 manns alls. Eru það bæði fréttir fluttar við iát Ásmundar í blöðum, ræður við útför hans og svo ýmsar minningar um hann frá kunningjum hans, bæði hér vestra og heima. Ait er það skrifað af hlýhug*og virðingu til hins látna og aðdáun á hinu mikla æfistarfi hans jafnframt ógleymanlegum mannkostum, er gagnvart háum sem lágum lýstu sér hjá honum. Ef einhverjir þær væru, sem gerðu sér það í hug að Ásmundur hefði haldið sig aðeins á meðal hátt settra, en gefið sig lítt við hinum smærri, væri það fráleitasta skoðun sem hægt væri að gera sér um hann. Hann gékk aldrei út af leið sinni til að þóknast þeim háu. En þess eru aftur ófá dæmi, að hann gæfi sig að þeim, sem eitthvað brast, og rétti þeim vinar hönd. Þetta var traustur og óveill eiginleiki í fari Ásmundar. Sigríði, fyrri konu Ásmundar er og helgaður þáttui í bók þess ari, sem mjög vel við átti. Ber og bókin nafnið “Foreldra minn- • _ »» íng. » Ættarskrár hjónanna eru aftast í bókinni. Stuttar æfiskrár manna, sem þessi af Ásmundi, sem synir hans hafa gefið út, er fögur og kær minning og mun ógleymanleg verða vinum hins látna. Slík æfiskrá er óbrotgjarn minnisvarði. Nýju dómararnir í Dakota heiðraðir Þegar íslenzka byggðin í Mouse River, N. D., var í mest- um blóma, er talið að þar hafi verið um þrjátíu íslenzk heimiíi. Margt af þessu fólki mun fyrst hafa átt heima í Pembina daln- um, en er þar tók að þrengjast um kost góðra bújarða, fluttu menn vestur í svo nefndan Mouse River dal, hundrað og fimmtíu mílna veg, og settust þar að á ný. Allmargir komu frá öðrum nýbyggðum hér vestra, eða beint frá fslandi. Þetta fólk var nær undantekningarlaust bláfátækt, og bjó fyrst lengi við hin frumstæðustu kjör. Brátt kom það þó í ljós, að þarna höfðu sezt að allmargir mannkosta og dugnaðarmenn, og var byggða- bragur allur frá upphafi með meiri menningar- og fram fara- blæ en efni stóðu til. Byggðar- menn tóku brátt höndum saman um almenn félagsmál, svo sem safnaðarstarf, þjóðræknis- og bindindismál. Mikil rækt var lögð við að efla hugsjónir æsk- unnar og að stuðla að tækifærum hennar til menntunar og frama. Augljóst er að fónarlund og strit frumherjanna hefir borið merkilegan og mikinn árangur, því að frá þessari byggð hefir komið stór hópur nytsamra borg- ara, sem skipar með sóma ábyrgð arstöður í ýmsum stéttum þjóð- félagsins. Nú hin síðari ár hefir þessi sveit skipt mjög um svip, og getur nú ekki lengur talizt ís- lenzk, enda þótt þar dvelji enn allmargt fólk íslenzkrar ættar. Landstjórnin keypti mikinn hluta af bújörðúm frumherjanna og gerði þær að friðlandi fyrir fuglarækt. Er nú svo komið, að þar sem áður stóðu reisuleg hús og heimili eru nú stöðuvötn, for- arfen og urmull af öndum og öðrum vatnafuglum. Meirihluti byggðarfólks tvístraðist í allar áttir. Á sunnudaginn 11. júlí, var nokkrum blöðum flett aftur á bak í óskráðri sögu þessarar litlu en merku sveitar. Sannað- ist þá sem oftar að sú taug er römm sem rekka dregur heima- túna til. Um tvö hundruð manns, niðjar og skyldulið frumherj- enna, safnaðist þá saman í kirkju sveitarinnar, sem á blómaskeiði hennar hafði verið miðstöð menningarlífsins. Er kirkjan hin prýðilegasta að öllu útliti. Er söfnuður sá, sem nú heldur kirkj una, myndaður af lútersku folki af ýmsum þjóðflokkum; þeirra á meðal munu vera flestir þeir ís- lendingar, sem eftir eru í sveit- inni; sameiginlegt tungumál þessa fólks er auðvitað enskan, og fer nú tíðasöngur allur og kirkjuþjónusta fram á því máli. Margt af því fólki sem koni til kirkjunnar þennan áminnsta tíag, var langt að komið. Var þarna því fagnaðarfundur með vinum og ættingjum, sem í sum- um tilfellum höfðu ekki sézt ára- tugum saman. Sá, er hér segir frá, varð var við fólk frá þessum stöðum: North Carolina, Cali- fornia, Washington, Oregon, Montana, Minnesota, Florida, Manitoba, Illinois, og víðsvegar úr North Dakota. Sýnir þessi staðaskrá hversu mjög Mouse River fólkið hefir dreifst, og einnig, að það lagði á sig mikía fyrrhöfn til að geta notið sam- fundar á fornum slóðum þennan dag. Hið sérstaka tilefni þessa mannfagnaðar var það að á þessu ári höfðu tveir synir byggð arinnar verið skipaðir í dómara- stöður í Norður-Dakota ríkinu. Níels G. Johnson lögmaður og fyrrum dómsmálaráðherra ríkis- ins í Bismarck, hafði verið skip- aður hæstaréttardómari, og Ás- mundur Benson lögmaður og fyrrum ríkislögsókn- ari í Bottineau County, hafði verið skipaður héraðsdómari í 2. lögsagnarumdæmi ríkisins. Að tveir menn úr jafnfámennri byggð séu skipaðir í slíkar virð- ingar- og ábyrgðarstöður, mun eins dæmi í sögu Vestur-íslend- Ásmundur Benson inga. Þetta vildi byggðarfólk, bæði það er enn dvaldi heima fyrir og það sem burt hafði flutt viðurkenna, og um leið sain- gleðjast byggðarbræðrum sín um í tilefni af heiðri þeim, er þeim sjálfum og byggðinni hafði fallð í skaut með vali þeirra í þessar háu stöður. Ævisögur beggja þessara nýju dómara eru líkastar ævintýri. Það er saga um tvo bláfátæka og umkomulausa sveitapilta, sem brutust áfram til náms og frama, sigruðust á öllum torfær- um, sem fátækt og fordómar leggja oft á veg sona hins út- lenda innflytjanda, náðu því takmarki, sem þeir höfðu sjálfir sett sér og voru svo, er tímar liðu, vegna samvizkusemi og dugnaðar í embættisfærslu sinni, settir miklu hærra, en þá sjálfa, eða nokku rannar hafði látið sér til hugar koma. Eina veganestið, sem þeir fengu frá feðrum sínum var islenzkur manndómur: hug sjónir, heiðvirði, samvizkusemi, einbeittni og dugnaður. En sá arfur i^eyndist þeim gildari en : guii. Ásmundur Benson mun vera meðal þeirra fyrstu úr Mouse River byggðinni, sem lagði út á langskólabrautinu. Hann er fæddur að Akra, N. D., en flutt- ist vestur barn að aldri. Faðir ; bans var Þórður Benediktsson frá Dalhúsum í Eiðaþinghá, og móðirin, kona Þórðar, var Maria Sveinsdóttir Snæbjarnarsonar frá Bæjarstæði í Seyðisfirði. Þau komu til Ameríku árið 1883 og settust fyrst að í Rauðarár- dal; en árið .1894 fluttu þau til Mouse River byggðarinnar og reistu þar bú, með mikla ómegð og lítil efni. Alls voru börnin ellefu. Þórður var talinn vel gef- inn maður, og María var ein með greindustu konum byggðarinn ar; bæði voru þau vinsæl og vel metin í héraði. Þegar Ásmundur að Ioknu barnaskólanámi í heima sveit sinni, lýsti því yfir, aö hann ætlaði sér að verða lög' maður, mun mörgum hafa þótt sá draumur næsta fjarstæðu- kenndu, eins og á stóð. Aðal menntasetur ríkisins, Grand Forks, var í meira en hundrað mílna fjarlægð, og þar átti fjöl skyldan engin ítök eða hlunif- inda að vænta. Framundan lá miðskólanám, menntaskóli os síðan lagadeild háskólans. En Ásmundur var snemma bjart- sýnn og viljasterkur; hann iét engar fortölur á sig fá, en hóí göngu sína eins og sá, sem veit sér fyrirhugaða bjarta braut og beina. En auðvitað var hún hvor- ugt. Oft varð hann að vinna á sumrum lengur en góðu hófi gengdi, og kom því tíðum seint í skólann. En námshæfileiksr hans og þrotlaus iðjusemi við lestur báru hann fram til sigurs að lokum. Um vorið 1915 tók hann embættispróf í lögfræöi með góðri einkunn, og var skömmu síðar tekinn í tölu lög- manna ríkisins. Settist hann þá strax að í Bottineau, og hefir stundað lögfæðileg störf þar ávalt síðan með vaxandi orðstír og almennu trausti stéttar sinn- ar og almennings. Hann hefir tekið virkan þátt í almennum •nálum sveitar sinnar; bæjarráðs maður í Bottineau hefir hann verið í tíu ár, meðlimur í stjórn- Níels G. Johnson arnefnd Elliheimilisins í Minot, N. D., og einnig Elliheimilisins Borg að Mountain, og ríkislög- sóknari í sýslu sinni eins og áður er getið. Árið 1916 (29. marz) kvæntist hann Sigríði Lilju Freeman, dóttur hinna merku hjóna Guðmundar og Guðbjarg- ar Freeman, sem lengi bjuggu rausnarbúi í Mouse River byggð inni. Er frú Benson mjög mynd- arleg og vel gefin kona, og hefir hún reynzt manni sínum ómetau legur styrkur á framsóknarbraut hans. Þau hjón eiga tvær dætur, Mrs. D. R. Coleman í Pasadena, California, og Mrs. A. R. Hawk- ins, Jr., sem búsett eru í ríkinu North Carolina Saga Níelsar er í öllum aðal atriðum hliðstæð sögu Ásmund- ar. Hann var fæddur á Akranesi á íslandi, en kom á ungbarns- aldri vestur með foreldrum sín- um, Guðbjarti Jónssyni og Guð- rúnu ólafsdóttur, konu hans. Settust þau að á fremur ófrjóu landi og bjuggu jafnan við þröngan kost. Er Níels í föður- ætt kominn af ættlegg séra Sveins Níelssonar, prófasts á Staðarstað, og mun Níelsarnafn- ið vera víða í ættinni. Af þessari kynkvísl er margt mætra manna komið, kunnugt er, svo sem Sveinn Björnsson, fyrsti lýðveld isforseti íslands, Haraldui Níelsson, prófessor, Friðrik Hallgrímsson, fyrrum dómpró- fastur, og séra Jón Guðnason, núverandi þjóðskjalavörður ís- lands. Níels hlaut barnaskóla- menntun í heimasveit sinni, en miðskólanám í Bottineau. Inn- ritaðist hann þá í ríkisháskól- ann í Grand Forks og stundaði þar nám, unz hann gekk í herinn í fyrri heimsstyrjöldinni. Var hann rúmlega tvö ár í herþjón- ustu, og af þeim tíma varði hann sextán mánuðum í skotgröfum í Frakklandi. Var hans getið á þeim tíma fyrir frækilega fram- göngu. Er heim kom, hóf hann aftur nám þar sem frá var horf- ið, lauk á tilsettum tíma Bach- elor-prófi, og síðan embættis- prófi í lögum með mjög hárri einkunn, og var veitt Juris Doctor gráðan. Hóf hann síðan lögmannsstörf í Leeds, Minna- waukan, og Towner, nokkur ár í hverjum þessara bæja, en flutt ist síðan trl Bismarck, höfuð- borgar ríkisins, er hann var skip aður dómsmálaráðherra Norður Dakota. Hélt hann því embætti í nokkur ár, en hóf síðan aftur lögfræðistörf á eigin reikning, unz hann var skipaður hæstarétt- ardómari. Níels er kvæntur am- erískri konu, Ruth Hallenback að nafni. Eiga þau tvö börn, George, námsmann við háskólann í Grand Forks, og Margot í heimahúsum. Heiðurssamsæti það, sem byggðarfólkið í Uppham hélt þeim dómurunum, hófst, eins og fyrr er getið/nokku eftir hádegi á sunnudaginn, 11. júlí. Sam- kvæmisstjórn hafði með höndum Wm. Freeman, kennari frá Bot- tineau, tengdabróðir Ásmundai, og fóst honum hún vel úr hendi. Af ræðumönnum kvaddi hann fyrstan fram hinn virðulega og víðkunna hæstaréttardómara dr. Guðmund Grímsson frá Bis- marck. Er hann gagnkunnugur báðum hinum nýskipuðu dómur- um, og talaði hann mjög hlýlega til þeirra og um þá. Fórust hon- um m. a. orð á þessa leið u “Af langri reynslu og kynningu, sem eg hefi haft bæði af Níels og Ásmundi, þori eg að fullvissa fslendinga hvar sem*er um það, að þessir menn muni standa vel í stöðu sinni og verða sjálfum sér, sveitungum sínum hér í Up- ham og þjóðflokk sínum til sóma í hinum ábyrgðarmiklu stöðum, sem þeir skipa nú.’’ Rak síðan hver ræðan aðra. Barney Ásmundsson frá Belling- ham, Washington, tengdabróðir Ásmundar, flutti fjöruga og fyndna ræðu á íslenzku. Þá töl- uðu þeir Óskar Benson, lögmað- ur frá Bottineau, bróðir- Ásmund ar, Ólafur W. Johnson, lækmr frá Rugby, N. Dak., bróðir Ní- elsar, og dr. Valdimar J. Ey- lands frá Winnipeg, sem flutti kveðjur frá Þjóðræknisfélagi ía- lendinga í Vesturheimi og frá Kirkjufélaginu, sem Melakton- söfnuðurinn í Upham tilheyrði til skamms tíma Á milli ræðanna voru sungir íslenzkir og enslcir söngvar undir stjórn Kris Ben- son í Upham, bróðursonar Ás- mundar. Þá tóku heiðursgestirn- ir til máls hver af öðrum. Voru þeir báðir innilega hrærðir, en umfram allt þakklátir fyrir sarn- sætið og auðsýnda vináttu og heiður. Báðir rifjuðu þeir upp að nokkru þá persónusögu, sem að framan er greind, og fóru fögrum og maklegum orðum um þau áhrif til góðs, sem þeir hefðu hlotið á uppvaxtarárunum í þessari sveit, bæði frá foreldr- um sínum og öðrum áhugamönn- um menningarmála. Heiðurinn, sem þeim væri sýndur, tilheyrð: miklu fremur frumherjum svcit- arinnar, sem hefði skapað þeim eld í anda, og hvatt þá til dáða. f samkvæmislok voru báðum dómurunum gefnar fallega inn- bundnar bækur, sem allir við- Staddir skrifuðu nöfn sín í, og einnig verðmætir lyndarpennar, sem þeir hver um sig kváðu sig myndi nota við undirskriftir dómsskjala til minningar um daginn. Allmörg símskeyti bár- ust að frá fjarlægum vinum, og voru þau lesin að lokum. Degi var nokkuð tekið að halla er samkvæminu var lokið. Var þá farið niður í neðri sal kirkj- unnar, þar sem ríflegar veiting- ar voru fram bornar. Höfðu menn komið með vistir með sér, en framreiðslu alla annaðist Mrs. Björg Sawer frá Bottineau, bróð urdóttir Ásmundar. Hafði hún og margt annarra kvenna sér til aðstoðar. Dagurinn var hlýr og bjartur. Það mun og lengi bjart yfir minningu han^ hjá þeim, er við- staddir voru. íslendingar víðs- vegar samfagna hinum nýju dóm urum, þessum dáðadrengjum, sem hafa vaxið við hverja raun, og hafa með drenglyndi sínu og dugnaði lagt fram ríflegan skerf til þess álits og virðingar, sem vor litjli þjóðflokkur nýtur á meðal miljónanna hér á vestur- vegum. V. J. E. FLÓÐIN OG SKRIÐUFÖLL í NORÐURÁRDAL HAFA VALDIÐ MILLJÓNA TJÓNI Það var ömurleg eyðileggingar sýn, sem við augum blasti, þegar komið var vestur í Norðárdal í Skagafirði nú á fimmtudaginn, tveimur dögum eftir að skriðu- föllinn urðu þar. Hinn nýlegi, breiði og há vegur er nú á um það bil 5 km. svæði ýmist, hulinn grjóturð og aurleðju, eða sund- urtættur svo að í hann hafa myndazt 6—8 djúp skörð og þetta frá 10—20 m. breið. Tún og byggingar hafa eyðilagzt á bæði Ytri- og Fremri-Kotum og skepnur hafa farizt í skriðunum Farvegur Valagilsár, þar sem vegurinn liggur að henni, er nú átta sinnum breiðari en áður var. Fjallshlíðin ofan Fremri-Kota cr nú sundurkrössuð af skriðuföll- um. Laust eftir hádegi á fimmtu dag lagði stór áætlunarbifreið frá Norðurleið h.f. af stað frá Akureyri og vestur á Öxnadals- heiði. Var ætlunin að reyna að kom- ast vestur að Valagilsá í Norður árdal til þess að sjá vegsum— merkin eftir skriðuföllin, sem urðu þar á þriðjudaginn. Ekkert bar til tíðinda fyrr en komið var vestur undir Klif á Öxnadals- heiði, að þar hafði fallið skriða og skilið eftir bjarg á veginum á stærð við jeppabíl. Voru jaið- ýtur búnar að riðja slóð meðfram steininum, eb honum varð ekki haggað. Enginn teljandi farai- tálmi var þó þarna og var nú haldið rakleiðis vestur að Dag- dvelju, stærsta og illræmdasta gilinu í Giljareit. Undir veginn yfir gilið hefir verið gerð feikna mikil uppfylling. í vatnsflaumn um á þriðjudaginn hefir aurleðja kastast niður gilið og sópað burtu meginhluta uppfyllingar- innar og skilið eftir stórt skarð þar sem áður var breiður vegur. Gilið beggja megin er skafið nið ur á klappirnar en aurdyngjan niðri á eyrum við Heiðará. Þarna voru tvær jarðýtur vega- gerðarinnar að reyna að gera bráðabirgðaveg yfiir gilið. Tókst það svo að jeppi og hinn stóii langferðabíll komust nú yfir gil ið. Var nú vegurinn, að undan- teknum smá leirskríðum, nokk- uð greiðfær vestur að Valagilsá í Norðurárdal. Skaðræðisfjótið Valagilsá Það er auðvelt að skilja lýs- ingu Hannesar Hafstein á “Vala- gilsá” þegar litið er yfir farveg hennar nú. Sjálf er áin nú frekar meinleysisleg þótt enn sé hún mórauð á lit. Við óðum hana auð veldlega á háum stígvélum. En síðastliðið þriðjudagskvöld hef- ir hún ekki verið minni heldur en þegar Hannes beið við hana ílóðtepptur forðum. “Orgar í boðum, en urgar í grjóti, engu er stætt í því drynjandi róti. Á- in, sem stundum er ekki í hné, er orðin að skarðræðisfljóti.” — Áður var yfir ána aðeins stutt brú úr rammgerðri járnbentri steinsteypu. Nú er þarna tveggja metra djúpur og 80-100 m. breið- ur farvegur. Það hafa ekki ver- ið neinar smáræðis hamfarir, sem þeyttu burtu brúnni, svo að ekk- ert sér eftir nema stöpulinn að vestan þar sem hann er grafinn inn í árbakkann. Hvergi sáum við votta fyrir neinu úr brúnni í farveginum, eða á eyrunum fyrir neðan, en við fréttum að í Norðurá niður undan Fremri-Kotum væru ein- hverjir steypusteinar, sem lík- lega væru úr brúnni. Mun þó vera talsvert á annan km. fá Vala gilsá og niður að Fremri-Kotum. Hámark eyðileggingarinnar Eftir að hafa vaðið yfir Vala- gilsá höldum við gangandi nið- ur að Fremri-Kotum. Á þremur stöðum er grafin heljarstór skörð í veginn allt að 6—8 meti- ar á dýpt og hið stærsta um 20 m. á breidd. Skammt framan við bæinn komum við í skríðu sem er samfelld vestur fyrir ofan bæ inn á annan km. á breidd. Hefir skriðan fallið yfir túnið og eyði lagt fjóra fimmtu hluta þess, sóp að burtu fjárhúsum yfir 120 fjár og hlöðu, sem tók 7—800 hesta af heyi, o.g voru í henni um 80 hestar af fyrningum. Öll ull af um 80 kindpm, sem lá undir yfit breiðslu skammt austan við bae- inn, sópaði burt og mun það litla, sem af henni sést í aurnum og grjótinu vera ónýtt sakir leir- leðju sem í henni er. Haughús, sem byggt var austan við fjósið, tók skriðan einnig með sér. Kýri' ar voru í fjósinu og er mildi að skriðan skyldi ekki eyðileggj3 það heldur láta sér nægja a^ sneiða steinstept haughúsið aust an af því. Hluti af skriðunni og vatnsflaumurinn sem henm fylgdi, skall á nýju steinsteptu íbúðarhúsinu, en sakaði þa^ ekki. Vatnsbólið á bænum er nU grafið undir skriðuna og verour

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.