Heimskringla - 13.10.1954, Blaðsíða 2
2. SIÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 13. OKT. 1954
Ifcimskríngíla
(StofnuO 18»»)
Kmmra 6t 6 hverjum mi&rlkudegl.
Elgerdur: THE VIKING PRESS LTD.
855 og 855 Sargent Avenue, Winnipeg, Man. — Talsími 74-6251
VerO bktCsln* er $3.00 árgangurlnn, borgist fyrtríram.
Allar borganlr sendiat: THE VIKING PRESS LTD.
öll viOsklftabréf blaöinu aölútandi sendist:
The Viklng Press Limited, 853 Sargent Ave., Wirmipeg
Ritatjörl STEFAIf EINARSSON
Utanáskrlft tll rltstjórans:
EDITOR HEIMSKRINGLA, 853 Sargent Ave., Winnipeg
Advertising Manager: GUNNAR ERLENDSSON
"Helmskxingla" is published by THE VIKING PRESS LIMITED
and printed by VIKING PRINTERS
855-855 Sargent Avenue, Winnipeg, Man., Canada — Telephone 74-6251
Authorised as Second Clasa Mail—Post Offlce DepL, Ottcrwq
WINNIPEG, 13. OKT. 1954
HEIMSKRINGLA 68. ÁRA
Með fyrsta blaði Heimskringlu í þessum mánuði, hóf hún
sextugasta og níunda aldurs-árið. Hún var stofnuð 1. október 1886.
Þó hún sé ekki ein blaða hér um þennan háa aldur, má ekki
hjá líða að óska henni góðs gengis á nýbyrjuðu ári. Á þessu sama
ári, en 6 mánuðum áður, hóf Sameiningin gönguna. — Og 16 mán-
uðum síðar, eða 14. janúar 1888 ýtir Lögberg úr vör.
Aldur þessara blaða, sem öll koma enn út, er orðinn hár og að
líkindum nokkuð haerri, en menn gerðu sér vonir um, er af stað
var farið. Teljum vér starfið að viðhaldi þeirra eitt hið lofsverð-
asta, er íslendingar hafa sér fyrir hendur tekið í þessu landi.
Viku- eða dagblaða útgáfa er
erfið fyrir það, að meginhluti
tekna þeirra geta aldrei hafst
inn með áskriftagjöldum. Hér-
lend dagblöð fá ekki nema 10—
15% af kostnaði sínum goldinn
frá kaupendunum. Það eru aug-
lýsingar, sem fyrir þeim sjá að
mestu. Með íslenzku blöðin er
hér öðru máli að gegna. Þau fá
eða hafa fengið alt að helming
útgáfu kostnaðins frá áskrif-
endum. En þetta bendir á tvent.
í fyrsta lagi að auglýsingaflutn-
ingur blaðanna er óumflýanleg-
ur sem oft er þó amast við. Að
hinu leytinu sannar útkoma þessi
það, að löngun til lesturs sé
meiri hjá íslendingum, en þjóð
þessa lands í heild sinni, er ensk
blöð les. Og að geta bent á þetta
í fari þjóðarbrots vors hér, er
skemtilegt, vegna þess að hæfni
og löngun manna til lesturs, er
i raun og veru mælisnúra menn-
ingarstigs hverrar þjóðar sem er.
Eins lengi og íslendingar
standa á verði um þennan arf
sinn, lestrar-hneigðina, er þess-
um áminstu öldnu blöðum
þeirra hér borgið. Meðan svo
góðu náir geta blöðin hér verið
vikulegir gestir þeirra með frétt-
ir af því sem f jær og nær gerist.
f sölurnar er ekki mikið lagt af
hverjum áskrifanda á þeim góðu
kjörum, sem þeim bjóðast blöð-
in, sem hálf virði má kalla. Út-
gáfukosnað mætti hér spara, með
því að fækka útkomudögum. En
ef bíða þyrfti eftir fréttunum í
mánuð, ársf jörðung, eða heilt ár,
mundi lesendum finnast sem í
þær væri farið að slá, er þeir
fengju þær.
Þá hefir og verið haldið fram
að eitt blað nægði hér, og með
því mætti nokkrum sparnaði ná
í áskriftum. Meiri áskriftasparn
aður væri þó að því, að hér væri
ekkert blað! En hvað er þá um
raddirnar er innfyrir búa og
krefjast fróðleiks, er með lestri
einum fæst? Sannleikurinn er sá
að við þyrftum hér þriðja, ef
ekki fjórða blaðsins við til þess,
að sæmilegt og jafnvel nauðsyn-
iegt væri til að geta birt stefnur
og strauma þá, sem í þjóðfélög-
um heimsins bærir nú á.
Vikublöðin tvö hér gera alt
sem þeim er unt í því, að minna
á veigamestu viðburði sem ger-
ast. En það hrekkur ekki til að
gera sagnfræðilega nógu góð
skil helztu viðburðunum, að
ekki sé minst á það sem vísinda-
legt er, eða sérfræðilegt. Rétt
til að minna á það, áttu Vestur-
íslendingar hér eitt sinn rit sem
'hét Öldin, sem Jón Ólafsson
gaf út. Var hún hið lang-fróð-
legasta rit er hér hefir verið
gefið út, og fá rit heima fyr eða
síðar jafnast við. Blaðið Vín-
land, sem hér hefir af sumum
verið talið bezta blað, sem Vest-
ur-íslendingar .hafa gefið út,
kemst ekki nærri Öldinni í fjöl-
breyttum vísindafróðleik, þó all-
fróðlegar greinar birti öðru
hvoru, eins og vikublöðin í raun
inni einnig gera. En hér er ekki
um samanburð á þessum blöðum
að deila. Það sem fyrir vakti, var
að vekja athygli á því, að hér
hefir meiri fjölbreytni ríkt í
blaðaútgáfu en nú gerir og gef-
ist vel. Að íslendingar hafi glat-
að lestrar- og menningarlöngun
sinni, sem telja má einn hinn dýr
mætasta arf þeirra, trúum vér
ekki. En með 'hvérju spori sem
stigið er til þess, að minka hér
bóka- og blaðaútgáfu, er helspá
kveðin að þessum arfi, bókmenta
hneigð íslendinga.
Um verkefni vikublaðanna ætl
um vér svo að gefa Þ.Þ.Þ. orðið
í bók hans “Vestmenn”, bók sem
hver lína í má heita þrungin af
fróðleik um Vestur-íslendinga.
Hann segir á bls. 207:
“Blööin Lögberg og Heims-
kringla eru að mörgu leyti saga
íslendinga í Vesturheimi í næst
um hálfa öld (ritað 1935), þótt
ei sé hún þar öll sögð. Þau eru
hin vikulega íslenzka endur-
vakning hygðanna dreifð vestan
hafs, sem heldur þeim i stöðugu
samhandi við fsland og það sem
gerist þar, með því að birta það-
an flest það, sem markverðast
er. Þau hafa verið skeiðvöllur
skálda og rithöfunda, trúar og
trúleysis, og sýna flest skap-
brigði íslendingsins, ill og góð.
þegar hann í hrifning eða reiði
er frjáls að segja það, sem hon-
um býr í brjósti.
Margt má að hlöðunum finna,
fátæklegt efnisval, ljótt mál,
þröngsýni o.s.frv. En þau flytja
einnig margt það bezta og ís-
lenzkasta sem hugsað hefir ver-
ið fyrir vestan haf. Og þrátt fyr
ir alla gallana, eru þau samt ó-
metanlegur gróði ísenzkri sögu,
íslenzkum samtökum, meðvitund
þjóðernisins og viðhaldi tung-
unnar. Þau eru spegilmynd ís-
lenzku sálarinnar í nýjum heimi.
Að minsta kosti mynd þess illa
og góða, er hún vill sýna og
kann að sýna á prenti. — í jafn
veraldlegum vikublöðum og
Heimskringlu og Lögberg, virð-
ast vera við fyrstu sýn, gætir
þar einkennilega mikið andlegra
mála, trúar og kirkjulifs, einkum
á vissum tímabilum. En þegar
þess er gætt, að ritstjórar ís-
lenzku blaðanna og prestarnir
eru svo að segja þeir einu menn
meðal íslendinga er fá goldin
störf sín með ísl. almenningsfé,
fyrir að ræða og rita á íslenzka
tungu, og haft er í huga að rit-
stjórarnir eru stundum prestar,
en oftast undir beinni eða ó-
beinni handleiðslu presta og
kirkjurnar eins og blöðin, aðal-
boðberar og viðhald íslenzkrar
tungu vestan hafs, —að minsta
kosti átti svo að vera. Var þá trú
in oft brennipunktur geislans,
en íslenzka málið stækkunargler
ið, sem framleiddi hann. Trúir
var andinn—íslenzkan miðillinn.
Þótt blöðin hafi verið all frjáls
lynd í flutningi annara skoðana,
en sinna eigin—sérstaklega Hkr.
þá hafa margir þeirra, er eigi
hafa átt samleið í vestrænni
stjórnmálabaráttu, þeirra og
kirkjumálum, fundið vel að þörf
væri þriðja blaðsins, en enn sem
komið er, hafa þeir ekki haft
bolmagn til þess til langframa.”
Þetta er skrifað fyrir 20 árum
og mun gilda, sem dómur fróðs
manns um verkefni og þörf ís-
lenzku blaðanna um langt skeið,
eða svo lengi sem auðið er að
■ halda þeim úti. Við horfumst í
augu við það, að þeim fækki sem
stund leggja á lestur íslenzku.
En það er full ástæða til að
vona, að lengi megi en fyrir
blöðunum sjá, ef þeir sem ís-
lenzku ætla sér ekki að leggja á
hilluna taka höndum saman um
vernd þeirra. Þau eru hér öllu
dýrmætari í þjóðræknisstarfi ís-
lendinga.
HV0RT HELDUR ÆSKIÐ ÞÉR AÐ LÆRA
ENSKU EÐA FRÖNSKU
Nýir innflytjendur til Canada, er ekki geta sótt tungumála- eða
þegnréttindakenslustundir, geta fengið ókeypis sjálfkensluefni gegn
umsókn til Canadian Citizenship Branch, West Block, Ottawa.
Fyllið út eftirfylgjandi eyðublað og sendið í pósti til Canadian
Citizenship Branch.
Sé áritun til ofangreindar deildar þarf ekki frímerki.
r/~'
Merkið tungumálið sem þér
óskið að læra.
English ( )
French (
Your name and address (please print):
V,
BIRT AÐ TILHLUTUN:
DEPARTMENT OF CITIZENSHIP & IMMICRATION
HON. J. W. PICKERSGILL, P.C., M.P.
Minister of Citizenship and
Immigration
LAVAL FORTIER, O.B.E., Q.C.,
Deputy Minister of Citizenship
and Immigration
BORGIÐ HEIMSKRINGLU—
því gleymd er goldin skuld
STEVE E. JOHNSON
FOR ALDERMAN - WARD 2 - TWO YEAR TERM
A citizen, your neighbor, a
successful businessman with
home and business in Ward
Two, who will look after
your interests in the city
council.
Established in the plumbing
and heating business in Ward
Two for 25 years.
BRETAR ÆTLA AÐ GANGA
ÞVERT YFIR SUÐUR-
SKAUTSLANDIÐ
Bretar eru að undirbúa leiðang
ur til Suðurskautslandsins, og
yrði þá faríð stranda á milli í
fyrsta skifti.
Brezkir vísindamenn og land-
könnuðir vonast til að fara leið-
ina á fæti eða því sem næst, því
að þeir mundu nota hunda og
sleða, eins og Amundsen og
Scott gerðu á sínum tíma fyrir
um fjórum áratugum, þegar þeir
komust til Suðurskautsins.
Ef af verður, er hér um
2700 mílna leið að ræða um
hásléttuna á suðurskautinu, og
vita menn það eitt um suma
hluta hennar, að þar er færð
verri en víðast annars staðar á
hnettinum .
Gert er ráð fyrir, að leiðang-
urinn búi sig endanlega undir
förina á Falklandseyjum, eða
þeim suðlægari eyjum, er heyra
undir það stjórnarumdæmi
Breta, þar sem skammt er til
Grahams-lands, en þar er
skemmst milli Suðurskautslands
ins og Suður-Ameríku, þar sem
Grahams-land er í rauninni gríð
armikill skagi, sem liggur norður
í Suður íshafið.
Hundar þeir, sem brezki leið-
angurinn notaði á Grænlands-
jökli og fluttir voru til Bret-
lands í síðustu viku, munu not
aðir í leiðangrinum, svo og af-
kvæmi þeirra, því að þeir verða
notaðir til kynbóta á Falklands-
eyjum.
Sá, er hefur með höndum und
irbúning leiðangursins, er vís-
indamaður við Cambridge-há-
skóla, dr. Vivian Fuchs, sem er
jafnframt yfirmaður vísinda-
deildar Falklandseyjaumdæmis-
ins. —Vísir 26. ágúst.
ALLSHERJARSAMKOMA
Leifs Eiríkssonar félagið, Ice-
landic Canadian Club og Þjóð-
ræknisfélagið hafa í hyggju að
efna til samkomu með félags-
mönnum sínum og bjóða þangað
ungu fólki af íslenzkum ættum,
er nám stundar við hina ýmsu
framhaldsskóla borgarinnar. Er
þetta í líkingu við samkomur
þær, er haldnar hafa verið tvö
undanfarin haust á heimilum
þeirra Walters dómara Lindals
og Thorbjarnar læknis Thor-
lákssonar. Verður samkoma þessi
Kaupið Heimskringlu
Lesið Heimskringlu
Borgið Heimskringlu
Enpu a8 gleyma og „engu aC fresta til
morguns." ÞCr getiS keypt Canada Savings
Bonds gegn mánaSargreiBslum 1 bankanum,
sem þér skiptiS viS, eSa meS fr&drætti af
iaunum ySar, þar sem þér vinniS.
Peningar ySar starfa 1 ySar þjónustu og veita
ySur vexti, ef þeir eru I Canada Savings
Bonds. Og hvar og hvenær, sem er. getiÖ þér
skipt þeim i peninga hjá hvaSa banka, sem
um ræSir fyrir fullvirSi og vexti.
Canada Savings Bonds gefa af sér góSa vöxtu
og þeim má ávalt koma I peninga, vextir nema
3 % per cent á ári og eru ySar elgn unz þér
seljiB veBbréfin.
ÞaS er á allra færi aS kaupa Canada Savings
Bonds — $50, $100, 8500, $1000 eSa $5000.
Þér getiS einnig keypt $500, $1000 eSa $5000 í
skrásettum vevbréfum, en vextir af þeim verSa
greiddir I ávisunum.
Þessi hlunnindi og önnur skipa Canada Savings Bonds í forusiusæii
Hin níunda sala á Canada Savings Bonds upphæSum $500, $1000 $5000; þessum veS-
hefst þann 18. október. Vevbréf þessi verSa bréfum og arSmiSuf má skipta nær, sem
dagsett 1. nóvember 1954 og gilda um 12 ára ra yill
skeiS eSa til 1. nóvember 1966 ArSmiSar Enginn einn má kaupa yflr í5000 upphæS.
hljóSa upp 3% % vox u. a an s endur yfir sérhver meSlimur fjölskyldunnar getur
til 15. nóvember 1954 á 100% jafnvirSi, en , , , , J ”,
upphæSir eru $50, $100. $500, $1000 og ^ert siik kaup. I hans eSa hennar nafni.
$5000. Þau þurfa aS vera skrásett í nafni FinmC bankastjórann aS máli, íésýslumann
hlutaSeiganda, hvort heldur sá er aldinn eCa trúnaðar- aSa lánsfélag og gerlS ráS-
J. 1 eða unvur; í þessu felst trygging gegn stafanir varftandi kaup í hinu nípnda útboði
glötun, þjófnaSi eSa eySIleggingu. aí Canada Savings Bonds gegn poningum út
1 viSbót viS arSmiSa fyrirkomulag veSbréfa, 1 hönd eða meS launafrádrætti, þar sem
fást Canada Savings Bonds í skrásettum hór starfiS.
Allir hafa ástæSu til að spara
Kaupið Canada Savings Bonds
/