Heimskringla - 19.01.1955, Page 2

Heimskringla - 19.01.1955, Page 2
2. SÍÐA HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 19 JANÚAR 1955 Authorlxed tn Second Cla«a Mail—Po«t Otflce Dept., Ottawa WINNIPEG, 19 JANÚAR 1955 PRAVDA-FRÉTT í Pravda flokksblaði kommún- ista í Rússlandi stóð nýlega eft- irfarandi frétt. Bandaríkin eru að reyna að hefta ferðir erlendra manna um Ný-Englandsríkin, vegna hung- urs og allsleysis, sem þar ríkir á meðal íbúanna.(!) Fregnriti er N. Karev iheitir, er borin fyrir fréttinni. Hann hefir verið á ferð hér vestra og hefir með eigin augum séð á- standið. Á móti því sé því ekki til neins að bera. Karev fregnriti segir, að á ferðamannaskrifum Bandaríkj- anna sé alls ekki hægt að fá landabréf eða myndir af héraði því, sem um er ferðast. Fregnritinn heimsótti Lawr- ence Lowell og Haverhill í Mass. og M’anchester í New Hamp- shire, en getur ekki með fréttinni látið myndir fylgja er sýnt gætu bágindin vegna þessa banns. Hér getur verið átt við lög, er nokkur fylki hafa gert hjá sér, um að banna innflutning á kom- múnistum frá Rússlandi. En blaðið heldur áfram. -—A götum bæja í Austur-Banda- ríkjunum sézt ekki maður á ferli, úr hinum miklu strompum klæða- og skóverkstæðanna er ekki reyk að líta. í búðum er hvorki kjöt eða smjör að fá, jafu vel ekki smjörlíki. Alt sem þar faést eru kartöflur, baunir og annað garðhnasl. Ríki þessi hafa þrátt fyrir þetta verið talin miðstöð menn- ingar og bókmennta Norður-Am- eríku. Það er hugsanlegt að New York ríki eigi yfir meiri auði að búa. Eg spurði sessunaut minn víðförulann mann eitt sinn í lesi. frá Niagara til N. Yorkborgar, hvort hanh hefði í löndum þeim sem hann hafði ferðast um í Ev-i rópu og Asíu, nokkurs staðar séð auðnulegri bygð, en ríkið sem við vorum á ferð um. Hann sagði hana hvergi til vera Á með an Bandaríkin framleiða nóg fyr ir hálfan heiminn af mat, virðist lítil ástæða fyrir Rússa að vera að gráta yfir bjargráðaleysi þeirra. Það getur verið að Pravda skáki í því skjóli, að landar sínir viti ekki betur en þetta. En aö þeir séu alls ókunnugir um starf Bandaríkjanna, þrátt fyrir öll járntjöld, er ekki að reiða sig á. Rússinn hefir til þessa átt næga slægvizku til að geta metið boðskap stjó|rna sinna að verð- ugu. ‘MARGT ER SKRÍTIÐ Ekki síður í náttúrunni, manns- eðlinu, og sögunni en í “Harmóníum”. -L. F. Drápgjarnasta dýr merkurinn- ar er sagður vera maðurinn (en þó má kannske undanskilja hreysikattarkynið, og þá sér- staklega wolverine dýrið). Hanri á það því varla skilið að eiga sér “vin og verndara’’ meðal rándýr- anna- En svo er þó. Dýr það (af kattarkyninu) sem á ensku er kallað puma er vingjarnt mann- kyninu. Þess er ekki dæmi aö puma hafi nokkuru sinni ráðist á mann; meira að segja, það ver sig ekki fyrir manninum nema í nauðir reki og ungviði þess sé í hættu og það ver manninn fyr- ir öðrum rándýrum. Náttúru- fræðingurinn W. H. Hudson, og vísindamaðurinn Humbolt, taka þetta skýrt fram í ritum sínum. Hudson lifði í fleiri ár í Argent- inu í suður-Ameríku, en í skóg- um þess er mikið af rándýrum aí kattakyninu, jaguar, spotted leopard (pardus dýr) og puma, og setti ihann það fyrir sig að kynnast þeim eftir megni. Hann fullyrðir, að ekki aðeins sé mað- urinn óhulltur fyrir puma-dýr- inu, heldur og verji það hami frá árásum af öðrum dýrum. Hann segir frá manni, sem datt af hesti og fótbrotnaði langt frá manna- byggðum, og lá einn síns liðs og hjálparlaus í fleiri dægur unz hann fannst af leitendum. í all- an þann tíma stóð puma dýr yfir honum og jafnvel barðist við iaguar dýr sem vildi granda hon- um og matast. Hudson segir þetta atvik alls ekki einsdæmi, enda almennt viðurkennt í Ar- gentínu að í puma dýrinu eigi maðurinn vin og verndara, hversu lítið sem hann kann að verðskulda þá vináttu, svo dráp- gjarn sem hann er, og ófyrirleit- inn gegn dýraríkinu. • Á öndverðri 17. öldinni geys- aði langdregin styrjöld á Rúss- landi milli tveggja kirkjuflokka en það sem þeim bar á milli var það, hvort klerkarnir, þegar þeir gáfu blessun sína, skyldi rét'ca upp tvo fingur, sleikifingur og löngutöng (eins og rómversk kaþólskir gera enn í dag), eða þumalinn. Tví-fingurinn bar sig ur úr bítum, en ekki fyrr en fjöldi hafði biðið bana af, og aðrir liðið mikið tjón. Á Eng- landi um sama leyti stóð yfir skæð rimma, með mikilli háreysti og gauragangi, milli tveggja klerka, þeirra Richard Baxters og Dr. Owens, og áhangenda þeirra út af því, hvert dauði Jesús hefði verið gjald þeirrar skuldar sem manninum bæri að borga, eða það sem Guð með- tæki sem jafngildi. (“A payment of the very thing which by lav/ we ought to pay, or something held by God to be equivalent.”/ —Trúarflokkar af mörgu tæi spruttu upp og döfnuðust, sumir um smáatriði guðfræðislegs eðl- is, og manni einum jafnvel tókst að mynda trúarflokk um veiklun sína, sem hann sagði væri lögð á sig af Guði, og hann því helg- ur maður. Af þessu tæi er ekkí svo lítið af “vísdómi fyrri alda.” • í Rómaborg, ihagaðu þér sem Rómverji. (In Rome, do as the Romans do.) —Landkönnuður- inn frægi, Roy Chapman Ar.- drews, segir frá því er hann náði til smáborgar í ytri Mongóliu eftir langa útivist á Góbi eyði- mörkinni. Honum var tekið vin- gjarnlega af bæjarbúum, og sér- staklega af borgarstjóranum, sem flutti hann heim til sín og veitti honum beina af rausn og alla aðhlynning og heiður í hans valdi- Og þegar að háttatíma kom ánafnaði hann Andrew fegurstu dóttir sína til rekkjunauts. Gest- ur færðist undan og sagði hús bónda, svo greinilega sem hann gat á þann hátt sem þeir reyndu að gera sig hvor öðrum skiljan- legan, að þetta væri móti sið- venju í sínu heimalandi, og gæti hann því ekki þegið boðið. En daginn eftir frétti hann að stúlk an fríða, dóttir húsbóndaris, hefði fyrirfarið sér um nóttina með þeim hætti, að steypa sér fram af klettabrún nálægt bæn- um. Hún gat ekki framar lifao við þá svívirðingu sem gesturinr: hafði sýnt henni. En síðan hefur Andrews það á samvizkunni, að hafa ollað bana fagurri stúlku í blóma lífsins—hátt gjald fyrir varðveizlu sakeysis, frá hvaða hlið sem litið er á málið. • Ein af þeim smásögum sem þykir varið í er eftir ameríska blaðamanninn Bob Considine, og heitir: “Well, a Little Moie Time”. (Jæja, dálítinn tíma enn). Hún byrjar á ihimnum uppi, þar sem móðir stingur upp á því við son sinn að hann ætti að taka sér hvíld frá miklum störfum. Hann felst á málið, og ræður að fara til smáhnattar í mikilli fjar- lægð, þar sem hann hafði áður verið fyrir svo sem tveim þús- und árum. Maekael, engillinn stórvængjaði, flytur hann til jarðatinnar og lenda þeir í New York borg, en Maekael heldur þaðan heim aftur. Ferðamaður- inn útvegar sér nútíðar klæðnað og fer svo með loftfari til Miami í Florida. En af því að bæði útlit hans og nafn gefa til kynna að hann sé af vissum kynstofni, mætir hann nokkrum mótþróa af hálfu gestgjafenda að veita hon- um skýli, þó fé sé í boði- Svefn- herbergi eru öll upptekin í betri gistihúsum. Þó nær hann loks inni í minniháttar klúbb einum, þar sem hann er ekki of nákvæm- lega spurður um uppruna, nemz fæðingarstað, en Bethlehem er einnig borg í Bandaríkjunum, i Pennsylvania, þar sem mikið er unnið að járnsteypu. En þar sem hátíð—jól—er í aðsígi, er uppi fótur og fit í klúbbnum og mik- ið um dýrðir og verið að stofna til samsætis þetta kvöld. Klúbbv erjar eru glaðir og vingjarnlegir og bjóða hinum nýja gesti að taka þátt með þeim í hátíðahöld- unum. En er hann var spurðui nð nafni, var sem þeim hrykki við, og blærinn yfir atlotunum við hann breyttist að mun. Það hryggði hann, sannarlega, sagði sá sem fyrir hátíðahöldunum stóð, en reglur klúbbsins, o.s.frv. ‘ Þú sjálfsagt skilur . . .” “Já, eg skil”, svaraði gesturinn. Svo gekk ihann út og að götuhorn- inu, leit upp til stjarnanna og hrópaði á Mnekael. Biðandi, stundi hann við og í hálfum hljóðum: “Jæja, dálítinn tíma enn”. • Megi segja það, að skaparinn, eða náttúran, hafi nokkuð sér- stakt í huga við sköpun karl- mannsins þá er það það, að hann sé hærður á andliti. Frá getnað- arþroska aldrinum til dauðadags vex skegg á vörum hans og kjömmum, látlaust og hvíldar- laust, dag og nött, í sótt og heilbrigði. Hvernig svo sem hann klippir og sker, heldur skeggvöxtur hans fullu fjöii- Flár á skalla hans, þar sem hann þarfnastþess, ekki ósjaldan þynn ist og hverfur, en á andliti, þar sem þess er engin þörf, en er einmitt til lýta og óhagnaðar— hamingjan góða; Þar vex það og vex, hvað sem á daga hans dríí- ur. Þó hann liggi fyrir dauðans dyrum, og þurfi að taka á öllum sínum lífskröftum til að halda við tórunni, þá heldur skegg hans áfram að vaxa, jafnt og þétt, og miskunnarlaust. Missi hann fingur eða augu, sem hann þarfnast til bjargræðis, vaxa þau ekki aftur. Sei, sei, nei! Óhappa atvik, segir náttúran, og skal eg reyna að græða sigg yfir sárin; en skeggvöxt skal eg veita þér, svo lengi sem þú lifir, skeggvöxt nauðugur, viljugur skaltu hafa til daga þinna enda. Af gjafmiidi minni og vizku veiti eg þér þetta hnoss—hár á kjömmum, og skal vöxtur þess aldrei bregðast þér, á hverju sem veltur! • Jimmy Doolittle heitir Ame- rískur flugmaður sem þegar var orðinn frægur á tíma fyrri styrj- aldarinnar. En hann hefur það meira til síns ágætiá, að hann er ræðumaður með afbrigðum, og er því oft beðinn að hafa orðið á samkundm. Hann á það einnig til að vera glettinn, eins og þessi saga sýnir. — Það var skömmu eftir fyrra heimsstríðið að hann átti að tala í stórveizlu með háttsettum embættismönn- um í Washington. Hann kom því svo fyrir að andspænis ihonum við borðið sat vinur hans og frægur flugstjóri, Casey Jones. Við enda ræðu sinnar dró Doo- little upp flösku úr vasa sínum sem hann gaf til kynna, en þó Þetta Nýja Ger / Verkar Fljótt Heldur Ferskleika Þarf Engrar Kælingar Nú getið þér bakað í snatri án fersks gers! Takið aðeins pakka af Fleischman’s skjótvirka þurra geri, úr skápnum yðar og notið alveg eins og köku af fersku geri! Hér er alt sem gera þarf: (l)Leysið það vel upp í litlu af volgu vatni og bætið í það einni teskeið af sykur með hverju umslagi af geri. (2) Stráið þurru geri á. Látið standa 10 mínútur. (3) Hrærið vel í. (Vatnið sem notað er í gerið er hluti þess vatns, er forskriftin segir) Fáið mánaðar forða í dag frá kaupmanninum. x 4548—Rev. 1 pakki jafngildir 1 köku af Fresh Yeast! óbeinlínis, að væri full ai' sprengjuefninu nýja, TNT, sem svo mikið orð fór af á seinni ár- um stríðsins. Sagði hann að þetta efni væri svo kröftugt, að sem svaraði þessari flösku-fylli nægði til að gjöreyðileggja sal-j inn og bana öllum viðstöddum. En sá væri hængurinn á við þetta efni, að það væri erfitt meUferOar —páð springi sttmö- um við hristing eða smáhögg. En með því fleygði hann flöskunni til Casey Jones og bað hann að grípa hana. Jones virtist reyna þetta, en varð handaskol, og flaskan datt niður á gólf. Hafði Jones reynt aö grípa hana með annari hendinni, því að í hinni hélt ihann á skambyssu undir borðinu, sem hann hleypti aí, kúlulausu skoti á blikkdall, x sömu andránni er flaskan féll Varð af þessu hvellur mikill. Flöskuna, sem var full af tólg, sakaði ekki, sem er meira en hægt var að segja um taugar þeirra er viðstaddir voru—ann- ara, það er, en þeirra Doolittles og Jones. —Meira. ERU ORKULINDIR ÍS- LANDS GLEYMDAR? Hvar, sem við berum niður í erlendum hlöðum um þessar muildir, cr ovíiagurit\n ocuxal. Hvað eigum við að gera, þegar öll kol og öll olía jarðarinnar ei til þurrðar gengn? Ýmsir hafa litið vonaraugum til kjarnork- unnar, en enn virðist notkun hennar í hernaðarskyni yfir- skyggja öll jákvæð not. Nýlega gat að lesa grein í nor- rænu blaði með fyrirsögninni: Eigum við að lifa á sól og vindi? Inntak greinarinnar var á þessa leið: Frumskilyrði þess, að mann kynið geti lifað á jörðinni, er, að það hafi næga orku til að fram leiða þær vörur, sem sérhvert nu- Á meðal þæginda útibús banka Bankinn í grend við þig, er í nánu sambandi við þig, hérað þitt og banka um allan heim. f strjálbygðum héruðum, njóta Canada-búar hinna sömu þæginda og tryggingar sem í þéttbýli. Þegar bygöir vaxa, eykst bankaþjónusta í þeim eftir þörtum. Það góða við bankarekstur Canada er að forstjóri hvers útibús, getur frætt þig um f járhagsástandið bæði inn og út á við. í Canada eru útibú um allan heim. Hagurinn af þessu bankafyrirkomulagi, er sniðinn eftir þörfum íbúanna, eins og dags daglega sýnir sig í þjónustu bankanna. BANKAR SEM ÞJÓNA BYGÐ ÞINNI Adv. No. 7-54

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.