Heimskringla - 19.01.1955, Síða 3
HEIMSKRINGLA
3. SÍÐA
WINNIPEG, 19 JANÚAR 1955
tímaþjóðfélag þarfnast. Vanti
þessa orku, verða mennirnir að
hverfa atur að frumstæðustu lifn
aðarháttum. Kunnur enskur vís-
indamaður, E. W. Golding, sem
er yfirverkfræðingur brezku raf
orkumála rannsóknarnefndarinn-
ar (Electric Research Ass’n.).
hefur sent Unesco álit sitt á við
horfinu til orkumálanna. Gold-
ing álítur, að birgðir jarðarinnar
af olíu og náttúrlegu gasi verðí
að mestu þrotnar eftir 50—100
ár. Kol til eldsneytis geti hins
vegar ef til vill enzt í 1—2000 ár.
Kjarnorku til friðsamlegra nota
álítur hann, að ekki verði um að
ræða fyrr en eftir hálfa öld, svo
að nokkru nemi.
Verkfræðingurinn bendir á
tvær ótæmandi orkulindir, sem
sjálfsagt sé að beizla, áður en
allt um þrýtur: sólina og vind
inn, en vindar eru mjög háðir
magni sólarljóssins. Hér er, ihvað
vindinn snertir, ekki um beina
nýjung að ræða, því að síðan um
600 hafa vndmyllur verið notað-
ar víða um lönd- Golding gerir
ráð fyrir, að með því að beizla
vinda um heim allan megi vinna
orku, er jafngildi 1500 millj.
lesta af kolum á ári. Jafnframt
er áætlað, að rafmagn frá vind-
rafstöðvum muni ekki verða dýt
ara en rafmagn það, sem nú er
tramleitt með kolakyndingu.
Orka sú, er Golding telur, að
vinna mætti úr sólarhitanum, er
alveg gífurleg eða sem svarar
,17000 milljörðum lesta af kolum
á ári. f því sambandi er þess að
geta, að í Bell rannsóknarstofn
uninni i Bandaríkjunum er ný
búið að smíða rafhlöður, sem
breytt geta sólarljósinu í raf-
straum. Gefa þessar tilraunir,
sem eru enn á byrjunarstigi, von
um góða raun. í Indlandi er ný-
búið að gera uppdrátt að sól-
brennara, sem áætlað er, að verði
mjög ódýr. Hann verður álíka
stór og venjuleg suðuplata og á
honum verður hægt að elda mat
handa fjögra manna fjöskyldu á
hálf-tíma.
Ýmislegt fleira er nú á döf-
inni í þessum efnum úti í heimi.
Veldur tilhugsunin um skort á
orku mannkyninu til handa vís-
indamönnum og öðru hugsandi
fólki sí og æ miklum áhyggjum
og heilabrotum. En meðal ann-
arra orða: Vita þessir vísu menn
ekki um alla ihina mörgu og vatns
miklu, ónotuðu fossa á íslandi?
Sagt var fyrir tveim árum, aö
orkuráðendur í Vestur-Evrópu
hefðu verið að svipast um eftir
virkjanlegum fallvötnum alli
suður til sunnarverðrar Afriku,
en hefðu að þeim athugunum
loknum komizt að þeirri niður-
stöðu, að betur mundi borga sig
að semja um kaup á raforku frá
íslandi. Vonuðu þá ýmsir, að
fossavirkjunardraumar Einars
skálds Benediktssonar, þess
manns, sem einna hæst hefur
hugsað fyrir hönd íslenzku þjóð
arinnar, mundu ef til vill senn
r*tast. En hvernig hefur þetta
stórmál sofnað? Vonandi óttast
menn ekki, að verra né áhættu-
samara sé að selja héðan rafmagn
fyrir nokkur hundruð milljónir
róna í erlendum gjaldeyri á ári
En sPj^a í íslenzka síldarhapp-
c rættinu? Varla mundi það þjóð
hættulegra í nokkurri mynd. Er
nokkuð verra að selja útlending
um rafmagn en t.d. sjávarafurð-
—Samtíðin
Gísli Sveinsson sæmdur
stórkrossi
Forseti íslands sæmdi nýlega
að tillögu orðunefndar, Gísla
Sveinsson fyrrum sendiherra og
alþingisforseta, stórkrossi hinn-
ar íslenzku fálkaorðu. —Mbl.
Vilhjálmur Þór bankastjóri
Bankaráð Landsbanka íslands
samþykkti á fundi sínum í gser
að raða V ilhjalm Þor, forstjóra
SÍS, bankastjóra í stað Jóns
Árnasonar, sem nú hefur látið ai
bankast ‘ órastörfum.
-—Mbl. -8. des.
Pierre leit vissulega fremur illa út. Hann
hafði djúpan skurð á enninu og annan á kinn-
inni; andlit hans var fölt með blóðrákum, og
bráðabirgða umbúðirnar, sem bundnar voru und
ir hökuna, bættu sannarlega ekki útlit hans.
Hann hafði sáran höfuðverk, og kvalir í augun-
um af að vera svona útleikinn úti svo lengi í
hinum sterka sólarhita, en hin eðlilega glaðværð
hans var hin sama, og hann svaraði hlæjandi:
“Góða ungfrú, þú hefir allt of mikið fyrir
mér! Það er að vissu leyti mitt lán að Sigurd
kastaði þessum steini—þar sem það varð til þess
að þú aumkvast yfir mig. En gerðu þér enga
fyrirhöfn; ögn af köldu vatni og hreinn vasa-
klútur er allt sem eg þarfnast.”
En Thelma hafði þegar byrjað á sínum ein-
földu hjúkrunartilraunum. MOeð lipurð og mjúk
um handatiltektum kannaði úhn sárin—þvoði
þau og bjó um þau vandlega—og svo fór hún,
mjúklega og liðlega að því, að Duprez lokaði
augunum og óskaði að þessi læknisaðgerð tæki
sem lengst. Hún tók vínglasið sem faðir hennar
kom með samkvæmt beiðni hennar, og sagði
skörulega:
“Drekktu nú þetta herra Pierre, og svo
verður þú að sitja kyr og hvíla þig þangað til
að tími er kominn til að fara fram í skipið; og
á morgun hefurðu engan verk í sárunum, það er
eg viss um. Og eg held ekki að örin eftir þau
ættu að sjást mjög lengi.”
“Ef það verður”, svaraði Pierre, “ætla eg
að segja að eg hafi fengið sárin í einvígi, og þá
verð eg fræg hetja!—Og allar fríðar konur elska
mig!”
Hún hló—en varð brátt alvarleg. — “Þú
mátt aldrei segja það sem er ekki satt,” sagði
hún. “Það er rangt að blekkja nokkurn, jafnvel
í hva'ð smáu sem er.”
Duprez starði á hana undrandi, ekki ólíkur
barni sem hefir verið ávítað- “Segja aldrei nema
það sem er satt”, hugsaði hann. “Guð minn góð-
ur! Hvað yrði mér þá úr lífinu?”
Á meðan var gamli Guldmar að skenkja hin-
um ungu mönnunum vín og spjalla við þá um
leið. “Eg skal segja þér það, Thelrna mín”,
sagói hann alvarlega, “að eitthvað er alvarlega
rangt við Sigurd okkar. Aumingja drengurinn
hefir alltaf verið auðsveipur og viðráðanlegur,
en í dag var hann eins og villidýr—fullur af
hrekkjum og mótþróa. Eg harma það mikið! Eg
er mjög hræddur um að sá tími geti komið, að
hann verði of hættulegur til þess að vera í þjón
ustu þinni barn”.
“Ó, pabbi!” rödd hennar var þrungin af
kvíða og trega—“vissulega verður það aldrei!
Honum þykir of vænt um okkur til þess að
vinna okkur nokkurt mein—hann er svo þægur
cg þýðlyndur!”
“Það getur verið!” sagði gamli bóndinn, og
hristi höfuðið, efandi. “En þegar vitið er ekki
heilbrigðt, þá er heilinn eins og kjölfestulaust
skip—siglingin verður aldrei örugg, Hann
mundi ekki meina neitt ilt, ef til vill—og þó
gæti hann orðið hættulegur í æðisköstunum, og
iörast þess jafnskjótt á eftir. Það er gagnslítið
að fárast þegar skaðinn er skéður—og eg játa
það að eg er hræddur við það hvernig hann hef-
ir hagað sér í dag”.
“Eftir á að hyggja”, sagði Lorimer, “það
minnir mig á að Sigurd hefir tekið það í sig að
leggja alveg óvenjulega mikla fæð á Philip. Það
er kynlegt, en það er satt. Ef til vill er það
sem æsir taugar hans.
“Eg hefi tekið eftir því sjálfur,” sagði Err-
ington, “og það hryggir mig mikið, því eg heti
ekki gert honum neitt á móti sem eg get munao.
Hann beiddi mig vissulega að fara í burtu heðan
úr Altenfirðinum, og eg neitaði þvi eg hafð:
ekki neina hugmynd um að honum væri svo mik
il alvara með að eg léti að þessari beiðni hans.
En það er mjög augljóst að hann virðist ekki
geta þolað nærveru mína.”
“Og þá!” sagði Thelma, blátt áfram og kvið
vænlega, “hlýtur hann að vera mjög veikur
vegna þess að það er öllum eðlilegt að falla þú
vel í geð.” Hún talaði í sakleysi, og af hjartans
sannfæringu; augu Erringtons leiftruðu og
hann brosti—það var eitt af þessum sjaidgæfu
þýðlegu brosum hans, sem ljómaði upp allt and-
litið. “Það er mjög fallegt af þér að segja það,
ungfrú Guldmar!”
“Það er aðeins sannleikur!” svaraði hún
hreinskilnislega.
Á því augnabliki birtist rjótt og blómlegt
andlit í dyrunum með spyrjandi augnaráði.
“Já, Britta!” sagði Thelma brosandi; “við
erum alveg tilbúin.” Andlitið hvarf samstundis
og Olaf Guldmar bauð þeim fram í eldhúsið,
sem var meðfram borðstofa, þar sem ríkulegur
kvöldverður stóð reiðubúinn á stóra, fægða
greniviðarborðinu. Stóri hægindastóllinn bónd-
ans var færður þangað handa Duprez, sem, þó
að hann héldi því fram að hann væri skemmdur
á eftirlæti, virtist kunna því vel; og brátt voru
þau öll sezt við hið vistumhlaðna borð, að Brittu
meðtaldri. Á borðinu glampaði fornog fagur
silfurborðbúnaður og útlent postulín á snjó-
hvítum heimaunnum borðdúk.
Professional and Business
— Directory—=—
Eftir nokkrar mínútur hófst glaðvært sam-
tal. Macfarlane kepptist við hinn síkurteisa og
glaðværa Duprez að hæla Brittu, sem var nógu
lagleg og aðlaðandi til þess að verðskulda slíkt,
og sem var, auðsjáanlega meira, en einföld þjón-
ustau stúlka, þar sem hún var mjög handgengin
sinni ungu húsmóður, og þar sem litið var á hana
eins og eina af fjölskyldunni. Það ríkti ekkert
fálæti eða kuldi í þessum félagsskap, og ómur-
inn af hinum glaðværu röddum bergmálaði í
háu lofthvelfingunni. Þau nutu öll til fullnustu
þessarar ágætu máltíðar, og hinn hái dillandi
hlátur bóndans yfir einhverju snjöllu gaman-
yrði Lorimers, hafði rétt, hljómað gegnum hús-
ið, þegar kuldaleg og óþýð rödd iheyrðist kaila
hátt:
“Olaf Guldmar!” — Það varð skyndileg
þögn. Allir litu hver á annan undrandi. — Aftur
var kallað: “Olaf Guldmar!”
“Já!” þrumaði bóndinn gremjulega, og1
snéri sér snöggt við í stólnum. “Hver hrópar á
mig?
“Það geri eg!” og ihá og visin kvenvera kom
í áttina til þeirra og staðnæmdist í dyrunum,
án þess að koma alveg inn. Hún lét dökkt sjal,
sem hún hafði haft yfir sér, falla niður á herö-
arnar, og úfna hárstrýið hékk niður með visnum
cg hrukkóttum vöngum hennar, og dökku aug-
un hennar glömpuðu illgirnislega þegar hún
renndi þeim yfir ihópinn. Britta rak upp dálítið
hljóð, þegar hún sá hver' komin var og án þess
að hugsa um hvort það yrði talin ósiðsemi eða
ekki, grúfði höfuðið ofan að treyjuermi franska
mannsins, og verður að segja Duprez það til
maklegs hróss, að hann brást mjög vel við þvi!
Bóndinn reis úr sæti sínu og svipur hans var
orðinn harðúðlegur.
“Hvað vilt þú hingað Lovísa Elsland? Hefir
þú gengið alla leið frá Talvig í heimsókn sem
getur engra hluta vegna verið kærkomin?”
“Eg veit vel að eg er enginn aufúsugestur
hér,” svaraði Lovísa, með lítilsvirðingu, og tók
eftir hræðslu Brittu og undrunarsvipnum á Err-
ington og vinum hans, “eg verð aldrei boðin
Velkomin hér við neitt tækifær, og allra sízt
þegar setið er að veizlu og sumli—því hvet
gæti svo sem tekið á móti boðskap himnaföðurs- i
ins, sem hefir munninn útroðinn af ljúfmeti ogj
heilann ruglaðann af áfengum vínum? Já, þrátt |
fyrir það allt—þrátt fyrir misgerðir þínar og I
ranglæti Olaf Guldmar er eg hér komin, styrkí l
af guðlegum krafti, þori eg að stíga fæti inn á
þitt andstyggilega heimili, 0g krefjast—einu
* sinni enn réttar míns. Láttu barn minnar látnu j
dóttur af höndum við mig! Skilaðu aftur þessari
villuráfandi stúlkukind, sem ætti að vera stoð
mín og styrkur í elli minni og allsleysi, og væri
það, ef þú hefðir ekki vélað hana frá mér með
heiðinglegum tálsnörum — slepptu henni, og
segðu henni að fara iheim með mér til míiis eyði-
lega bústaðar. Gerirðu það, skal eg koma í veg
fyrir það, reiðarslag sem hvílir ógnandi yfir bú-
stað þínum—eg skal stöðva hið svarta ský tor I
tímingarinnar—eg skal afstýra reiði Guðs.—Já,
vegna hins liðna—vegna, hins liðna!” Síðustu
orðin tautaði hún í lágum hljóðum, við sjálfa
sig, eftir það sveipaði hún að sér sjalinu, og
beið eftir svari.
“Það sver eg við alla guði feðra minna!”
hrópaði bóndinn, með reiðiþrunginni rödd, “að
þetta yfirgengur allan minn skilning og þolin-
mæði! Hefi eg ekki margsinnis sagt þér, heimski
vesalingur! að dóttur-dóttir þín er enginn þræll
hún er frjáls—frjáls að fara til þín aftur ef hún
vill; frjáls að dvelja hjá okkur, þar sem_ hún
virðist hafa fundið ánægjulegra heimili heldur
en þinn aumlega kofa í Talvig. Britta!” og
hann sló hnefanum í borðið. “Líttu upp, barn!
Láttu í ljósi þinn eigin vilja. Þú býrð yfir nægi
legum viljakrafti og sjálfstæði. Hér er þinn
eigin ættingi. Viltu fara með henni? Hvorki eg
eða húsmóðir þín skulum aftra því á nokkuru
hátt að þú gerir það sem þú heldur að sé þcr
fyrir beztu.” x
Britta leit upp svo skyndilega að Duprez—
sem hafði fundist notalegt að litla höfuðið
hvíldi við handlegg hans—hrökk við, og ennþá
meira undrandi varð hánn, þegar hann sá kaida
þrjózkusvipinn, sem kominn var á ihið, litla
kringlótta andlit stúlkunnar.—“Fara með þér;”
æpti hún hátt, og beindi orðum sínum að gömlu
konunni sem stóð í sömu sporum og virtist hin
rólegasta. “Heldurðu að eg sá búin að gleyma
hvernig þú fórst með móður mína, og hvernig
þú barðir mig og sveltir? Þú vonda gamla kona!
Hvernig dirfistu að koma hingað? Eg skammast
mín fyrir þig! Þú hræddir móður mína til dauða
—það veiztu að þú gerðir! Og nú ætlar þú að
gera það sama við mig! En það tekst þér aldrei!
Það get eg sagt þér! Eg er nogu gömul til að
gera eins og eg vil, og eg vildi heldur deyja
heldur en búa hjá þér!” Að svo mæltu brast hún
í grát af æsingnum og reiðinni, og skeytti engu
þótt Duprez reyndi að hugga hana, og ryddi úr
sér heilli þulu af ihrósyrðum á frönsku.
QfGoe Phoae
924 762
Res. Phone
726 115
Dr. L. A. SIGURDSON
528 MEDICAL ARTS BLDG.
Consultations by
Appoiratment
Thorvaldson Eggertson
Bastin & Stringer
Lögirœðingai
Bank oí Nova Scotia Blde-
Portage og Garry St
S(mi 928 291
Dr. P. H. T. Thorlakson
WINMPEG CLIN’IC
St. Mary’s and Vaughan, Winnipeg
Phone 926 441
H. J. PALMASON
CHARTERED ACCOUNTANT
505 Confederation Life Bldg.
Winnipeg, Man.
Phone 92-7025
Home 6-8182
J. J. Swanson & Co. Ltd.
REALTORS
Rental, Inaurance and Financial
Agents
Sími 927 538
308 AVENUE Bldg. — Winnlpeg
Rovatzos Floral Shop
253 Notre Dame Ave. Ph. 932 994
Fresh Cut Flowers Daiiy.
Plants in Season
We specialize in Wedding and
Concert Bouquets and Funeral
Designs
Icelandic Spoken
CANADIAN FISH
PRODUCERS Ltd.
J. H. Page, Managing Director
Wholesale Distributors of
Fresh and Frozen Fisb
311 CHAMBERS ST4
Office Ph. 74-7451 Res. Ph. 72-3917
A. S. BARDAL
L I M I T E D
selur líkkistur og annast um
utfarir. Allur úSLúnaður sá besti.
Ennfremur selur hann allskonar
minnisvarða og legsteina
843 SHERBROOKE ST.
Phene 74-7474 Winnipeg
c—
M. Einai'sson Motors Ltd.
Buying and Selling New and
Good Used Cars
Distributors for
FRAZER ROTOTILLER
and Parts Service
99 Osbome St. Phone 44395
V-
Union Loan & Investment
COMPANY
Rental, Insurance and Finandal
Agents
Sími 92-5061
508 Toronio General Trusts Bldg.
The BUSINESS CLINIC
(Anna Larusson)
306 AFFLECK BLDG., (Opp. Eaton’s)
Office 92-7130 House 724315
Bookkeeping, Income Tax, Insurance
Mimeographing. Addressing, Typing
r
Halldór Sigurðsson
& SON LTD.
Contractor & Builder
•
526 ARLINGTON ST.
Sími 12-1212
MALLON OPTICAL
405 GRAHAM AVENUE
Opposite Medical Arts Bldg.
TELEPHONE 927 118
Winnipeg, Man.
r'”
'\
FINKLEM AN
OPTOMETRISTS
and
OPTICj^ANS
Kensington Building
275 Portage Ave. Winnipeg
PHONE 92-2496
COURTESY TRANSFER
& Messenger Service
Flytjuin kistur, töskur, húsgögn,
píanós og kæliskápa
önnumst allan umbúnað á smásend-
ingnm, ef óskað er.
Allur fltuningur ábyrgðstur
Simi 526 192 1096 Pritchard Ave.
Eric Erickson, eigandi
S..
Vér verzlum aðeins með fyrsta
flokks vörur.
Kurteisleg og fljót afgreiðsla.
TORONTO GROCERY
PAUL HALLSON, eigandi
714 Ellice Ave. Winnipeg
TALSÍMI 3-3809
1
BALDWINSON’S BAKERY
749 Ellice Ave., Winnipeg
(milli Simcoe & Beverley)
Allar tegundir kaffibrauðs.
Brúðhjóna- og afimÉliskökur
gerðar samkvæmt pontun
Sími 36-127
Off. Ph. 74-5257 700 Notre Dame Ave.
Opp. New Maternity Hospital
NELL’S FLOWER SHOP
Wedding Bouquets, Gut Flowen
Funeral Designs, Corsageís
Bedding Plants
Mrs. Albert J. Johnson
Res. Phone 74-6753
\
GRAHAM I’.AIX & CO.
PUBLIC ACCOUNTANTS and
AUDITORS
874 ELLICE AVE.
Bus. Ph. 744558 _Rts. Ph. 3-7390
Office Ph. 92-5826
Res. 40-1252
DR H. J. SCOTT
Specialist in
EYE, EAR NOSE and THROAT
209 Medical Arts Bldg.
HOURS: 9.30 - 12.00 a.m.
2 — 4.30 p.m.
J. WILFRID SWANSON
& CO.
Insurance in all its branches.
Real Estate — Mortgages — Rentals
210 POWER BUILDING
Telephone 937 181 Res. 403 480
LET US SERVE YOU
p—
Hafið HÖFN í Hug
l
ICELANDIC OLD FOLK
HOME SOCIETY
— 3498 Osler Street ■
Vancouver 9, B. C.
1]
JACK POWELL, B.A. LL
BARRISTER, SOLICITOR,
NOTARY PUBLIC
Off. Ph. 927751 - Res Ph. 56-1015
206 Confederation Building,
Winnipeg,
GUARANTEED WATCH, & CLOCK
REPAIRS
SARGENT JEWELLERS
H. NEUFELD, Prop.
Watches, Diamonds, Rings, Clocks,
Silverware, China
884 Sargent Ave. Phone 3-3170
S_______________
IMMORTAL ROCK
----ihin nýja verðlaunasaga eftir
, frú Laura Goodman Salvarson,
fæst nú í Bjömsons’ Book Store
'að 702 argent Ave. Winnipeg, og
kostar $3 50 (Canadiari noney).
i Póstfrítt út á land.
H E R E ..NOW!
ToastMaster
mightV* FINE BREAD!
At your grocers
J. S. FORREST, j. WALTON
Manager Sales Mgr.
PHONE 3-7144