Heimskringla


Heimskringla - 13.04.1955, Qupperneq 3

Heimskringla - 13.04.1955, Qupperneq 3
WINNIPEG, 13 APRÍL 1955 HEIMSKRINGLA 3. SÍÐA French-Style SHORTS Fara vel, eru köld, þægileg. Fíu- brugðin úr vel kemdri l)óro»f“- Saumartínir, teygjuband uu‘ ,nltt' ið. . . tvefalt í fyrir með °ln • • • liggja vel að þér . . • “ við eiga. w 13» these facilities paid 300 konur per month for rent and 810 kron- Ur per month for food. (About $68.00 per month). Tlhese rates may be raised slightly during the 1955-56 Academic Year. applications Applications should be ad- dressed to W. J. Waines, Dean °í Arts and Science, University of Manitoba, Winnipeg, Mani- toba. They must reach Winnipeg not later than May 9, 1955. A short autobiography mentioning age, place of birth, educational qualifications, and other train- ing and experience should be in- cluded. Applicants are requested to furnish at least one recom- mendation » ■ - . a peraon familiar with t*heir work and qualified to recommend it. — lye mikilvægt sem SÓTT- hreinsandi Lye er sérstaklega hentugt til hreinsunar vegna hins tvefalda eiginleika, er fram kemur í hreins- unar-áhrifum þess, hvar sem er, en það er að ásamt hreingcrmngunnt, sótthreinsar það um leið, drcpur oft sýkla, bakteríur og snikjudyr, o.s.frv. tJTIHÚS-SÓTTHREINSUN Auðveldasta leiðin og hin áhrifa* mesta, er sem hér segir: Notið einn bolla Gillett’s Lye Flakes i hverri viku. Þetta fl tur fyrir upplausn efnisins, hjálpar til að eyða ó-daun, og rekur burt flttgur. Þvoið sæti °g veggi iðulcga með blöndu af 3 "tatskeiðum af Gillett’s Lye i fötu af vatni Það gerir viðarverk brátt hreint, fagurt og ferskt á lykt. INNANHOSS SALERNI Stráið dálitlu af Gillett’s Lye i skálína ís salerninu. Látið standa a«r n<'tt- Þvóið með salernisbursta InorKni Gerflekkir allir og stífl- un er varist. 6 HÆGT RENSLI Að hreinsa hægt rcnsli, látið 3 mat- skeiðar af Gillett s Lye 0g játið renna og strax á eftir þvi bolla af heitu vatni. Látið standa í 30 mínútur. Till þess að rensli haldi áfram notið 2 matskeiðar af Lye reglulega á viku. SÁPU TILBÚNINGUR Góða sápu er auðvelt að gera fyrir h. u. b. lc. fyrir stóra stöng. Beztu veginn til sápugerðar, er hægt að finna forskrift að á Gillett’s Lye könnu. GLF-223 ■4> 1 Thelma (RAGNAR STEFANSSON ÞÝDDI) Thelma reis á fætur, hissa á framferði han^ og gekk til hans; henni til stórrar undrunar stóð hún augliti til auglitis við gömlu Lóvísu Elsland og þjónustustúlku Dyceworthy? prests, Ulriku. f svip þeirra beggja lýsti sér einkenm- legt sambland af ótta, sigurgleði aé illgimi. Lovísa varð fyrst til að i^a þögnina. “Að lokum!” sagði hún me* ílsku °S heift í röddinni. “Að lokum, Tb^1113 Guldmar, hefir himna faðirinn látið þU SanSa mér 1 greipar Thelma dróg Si^rd að sér og lagði hand legginn yfir um “Vesalings einmana sál”, sagði hún, þý^ega, °S borfði með samúð, en óttalaust á hrukkótta ílskulega andlit gönilu xio^naTinnaTú hlýtur vera þreytt, að reika um hæðirnar eins og þú gerir! Ef að þú ert vinkona hennar”, bætti hún við, og snéri jjjáli sínu til Ulríku, “af hverju læturðu hana ekki hvíla sig heima og halda sér heitri? Hún er svo gömul og lasburða!” “Lasburða!” öskraði Lovísa; “lasburða!”____ Hún stóð á öndinni af vonsku og hatursfullum ofsa. “Ef eg hefði greiparnar utan um hálsinn á þér, kæmistu fljótt að raun um hvort eg er svo lasburða! Eg-------” Ulrika greip um handlegg hennar og hvíslaði einhverju að henni, sem hafði þau áhrif að ofsinn í henni sljákkaði ofur lítið. “Jæja!” sagði hún, “talaðu þá! Eg get beðið!” Ulrika ræskti sig, og festi dauflegu augun á hinu fagra andliti stúlkunnar. “Þú verður að fara héðan,” sagði hún höstugt og kuldalega. “Þú og faðir þinn og þessi skepna,” hún benti fyrirlitlega á Sigurd sem glápti á hana “Skil- urðu það! Þú verður að fara burtu úr Altenfirð- inum! Fólkið er orðið þreytt á ykkur—þreytt á uppskerubresti, óhöppum, veikindum, og stöðugri fátækt. Þú ert orsök allrar þessarar ógæfu okkar og báginda—og við höfum ákveðið að þú skulir ekki dvelja meðal okkar lengur. Farðu héðan sem fyrst—eitthvað í burtu. Farðu! Eða ef þú neitar því —” “Þá skulum við brenna, brenna, brenna, og leggja allt í rústir!” tók Lovísa fram í, með villi dj)rslegu öskri. “Sterku greniviðar-máttarraft- arwlr i bústað Olafs Guldt.ars eru ágætt í- kveikjuefni, þeir skulu mynda svo stórt bál, að bjarmann af því leggi um allar þessar hæðir— nær og fjær! Engin spíta skal skilin eftir! — ekki snefill af drambi hans —” “Hættu!’ sagði Thelma hægt og einarðlega. “Hvað áttu við? Þið hljótið báðar að vera vit- stola og illgjarnar! Þið krefjist þess að við för- um héðan—þið hótið að brenni heimili okkar— hversvegna? Við höfum ekki gert ykkur neitt mein. Segðu mér vesalings gamla kona!” hún snéri sér að Lovísu, “er það vegna Brittu að þú hótar að brenna húsið sem hún býr í? Það er ekki viturlegt! Þú formæltir mér fyrir fáum dögum—og hversvegna? Hvað hefi eg unnið til þess að þú skulir hata mig?” Gamla konan virti hana fyrir sér með hörku legu grimmu augnaráði. “Þú ert barn móður þinnar!” sagði hún. “Eg hataði hana—eg hata þig! Þú ert galdranorn! Allir í þorpinu vita það —Dyceworthy prestur veit það! Hann segir að við verðum réttlætt fyrir augliti Guðs fyrir að koma fram grimmri hefnd við þig! Ilt skal koma niður á illum!” “Þá skal ilt koma niður á Dyceworthy presti,” sagði stúlkan, rólega. “Hann er vondur sjálfur_og sýnir það greinilega með því að hvetja ykkur til illverka. Hann er fáfróður og falskur—hvergsvegna hafið þið trú á slikum manni?” “Hann er helgur maður—-dýrðlegur!” hrópaði Lovísa, tryllingslega. “Og getur dóttir Satans unnið nokkuð á móti valdi hans? Hún klappaði saman höndunum í trylltri hrifningu. Thelma leit á hana með meðaumkun og brosti “Heillagur maður! Vesalingur, en 'hvað þú þekkir hann lítið!” sagði hún. “Og það er sorg legt að þú skulir hata mig, því eg hefi aldrei gert þér neitt ilt. Eg myndi vilja gera þér eitt- hvað gott, ef eg vissi hvernig eg ætti að fara að því. Segðu mér hvernig eg get gert eitthvað fyrir þig sem gerði þér lífið bærilegra? Það hlýtur að vera þungbært að vera gömul og ein- mana!” Dauði þinn myndi hugga mig og gleðja!” svaraði Lovísa, hörkulega. “Hversvegna vélað- urðu Brittu frá mér, og heldur henni?” “Eg 'held henni ekki”, svaraði Thelma. “Hún dvelur hjá mér af því aö hún er ánægð! Af hverju geturðu ekki unnt henni þess að vera hamingjusöm? Og hvað það snertir að brenna hús föður míns, vissulega myndir þú aldrei fremja svo ilt og heimskulegt athæfi! — en þó verðurðu að gera eins og þér sýnist, því við flytjum aldrei úr Altenfirðinum aðeins til þess að láta að óskum þínum.” Ulrika gekk nær, reiðulega. “Þú ætlar að þrjózkast við að hlýða skipunum okkar!” hróp- aði hún. “Þú ætlar ekki að fara”? Og í æsingnum greip hún harkalega um handlegg Thelmu. Sigurd hafði að þessu staðið hjá eins og í leiðslu og ekki tekið neinn þátt í orðakastinu, en við það að sjá Ulriku leggja hendur á hans ástkæru húsmóður, var honum öllum lokið. Hann rauk að Ulriku í hamslausu æði og grimmd eins og þegar villid grimmd, og hratt henni aftur á bak með bar- smíði eins og þegar villidýr ræðst á bráð sína, og þó að gamla Lovísa kæmi fljótlega til bjarg- ar, og Thelma reyndi á allan hátt að sefa hann °g grátbændi hann að hætta aðförunum, var það til einskis; hann hætti ekki fyr en óvinur hans brast í grát a: sársauka og hræðslu. “Djöfull—djöfull!” veinaði hún kjökrandi, þegar hinn hamstola dvergur sleppti henni að lokum úr klóm sínum, og hló ofsalega yfir fengnum sigii. “Lovísa! Lovísa Elsland! Þetta eru allt þín ar aðgerðir; þú neyddir mig út í þetta! Þetta gæti orðið bani minn, og þér væri víst algerlega sama! Ó, Gu5, Guð, vertu mér miskunsamur”. Allt í einu þagnaði hún; augun urðu starandi og andlit hennar varð náfölt af skelfingu. Hún lyfti hægt upp hendinni og benti á Sigurd— hinn einkennilegi fatnaður hans hafði allur far- ið úr lagi í áflogunum, og treyjan hafði rifnað að framan, ogá beru brjósti hans sást langt rautt ör með krosslögun, mjögð greinilegi. “Þetta ör!” tautaði hún. “Hvernig fékk hann þetta ör?” Lovísa starði á hana með óþolinmæði og fyrirlitningu. Thelma var of undrandi til þess að geta svarað samstundis, og Sigurd tók það upp hjá sjálfum sér að gefa svar sem honum fannst mjög tilhlýðilegt. “Það er brennimark Óðins!” sagði hann og klappaði sér á brjóst mjög hreykinn. “Engin undur þó að þú sért hrædd við það! Allir þekkja það—fuglarnir, blómin, trén og stjörnurnar! Jafnvel þú—þú ert skelkuð!” Hann hló aftur tryllingslega og smellti fingrunum framan í hana. Konan jkalf af hræðslu. Hún færði sig hægþ f nær Thelmu, og sagði lágt og titrandi og allur reiðiblær horfinn úr rödd hennar: “Þú ert sögð vond og forhert, og það er sagt að Satan hafi náð yfirráðum yfir sál þinni nú þegar! En eg er ekki hrædd við þig. Nei, eg ætla að fyrirgefa þér, og biðja fyrir þér, ef þú vilt segja mér —” Hún þagnaði, og hélt svo áfram með sýnilegum erfiðismunum. “Já,—segðu mér, hver er þessi Sigurd?’ “Sigurd er barn sem var borið út—og fannst”, svaraði Thelma blátt áfram. “Hann var í körfu á floti á firðinum, og faðir minn bjargaði honum. Hann var ungbarn. Hann hafði þetta ör á brjóstinu þá. Hann hefir átt heima hjá okkar alltaf síðan.” Ulrika horfði á hana með rannsakandi augnaráði—svo leit hún niður fyrir sig—en hvort hún gerði það af þakklátsemi eða örvænt ingu, var erfitt að segja. “Lovísa Elsland , sagði^ hún með tilbreytingarlausri rödd, “eg ætlaj heim. Eg get ekki hjálpað þér neitt lengur! Eg er þreytt—veik,” hún lét skyndilega yfirbugast, veifaði handleggjunum tryllingslega, og hróp- aði: “Ó, Guð, ó, Guð!” og brast í ákafan grát. Thelma, hrærð til meðaumkun, hefði reynt að sýna 'henni hluttekningu en Lovísa kom í veg fyrir það með grimmdarlegri bendingu. “Farðuf sagði gamla nornin, hörkulega. “Þú hefir ært 'hana með töfrakrafti 'þínum—eg er vitni að því! Og ættir þú að komast undan réttlátri hegningu?” Nei! ekki meðan Guð er á himnum, og eg, Lovísa Elsland lifir til þess að sjá um að boðum hans sé hlýtt! Farðu ____ hvíti kvendjöfull—-farðu og færðu þínum tíginborna unnusta margfalda óhamingju! Jæja!” hún brosti illgirnislega þegar stúlkan hörfaði undan henni, fagra andlitið hennar ennþá fölara, “eg hefi snert viðkvæman streng þarna? Hvíldu við brjóst hans, og það skal vera eins og höggormur hefði stungið hann — kysstu varir hans, og snerting þín skal verða eins og eitur—lifðu í óvissu, og deyðu kvalafullum dauða! Farðu! og öll möguleg og ómöguleg óhamingja fylgji þér!” Hún lyfti stafnum hátíðlega eins og hún væri að mynda með honum runastafi—Thelma brost með meðaumkun, en reyndi ekki að svara hinum vitfirringslegu formælingum. “Komdu, Sigurd!” sagði hún rólega, “við skulum leggja á stað heim. Við erum búin að vera svo lengi-pabbi fer að undrast um okkur.” “Já, já,” samþykkti Sigurd, og greip blóma körfuna. “Sólin skín ekki svo skært lengur, og við getum ekki lifað í skuggunum! iþetta eru ekki verulegar eða eðlilegar konur; þær eru draumar—svartir draumar. Eg hefi oft barist við drauma, og eg veit hvernig eg á að skelfa þá! Sérðu hvernig önnur þeirra grætur af því að hún þekkir mig—og hin er komin að því að falla ofan í gröf! Eg heyri þegar moldarköggl- unum er kastað ofan á hana. Það er ekki lengi gert að grafa draum. Komdu, við skulum fylgja sólskininu eftir!” Hann tók hönd hennar sem hún rétti honum, hann snéri sér þó við einu sinni, og kallaði hátt: “Farið vel, vondu draumar!” Professional and Business - Directory= — Office Phone 924 762 Res. Phone 726 115 Dr. L. A. SIGURDSON 528 MEDICAL ARTS BLDG. Consultations by Appointment Thorvaldson Eggertson Bastin & Stringer Lögfrœðmgar Bank of Nova Scotia Blde. Portage og Garry St. Sími 928 291 Dr* P. H. T. Thorlakson WINNIPEG CLINIC St. Mary’s and Vaughan, Winnipeg Phone 926 441 H. J. PALMASON CHARTERED ACCOUNTANT 505 Confederation Life Bldg. Winnipeg, Man. Phone 92-7025 Home 6-8182 J. J. Swanson & Co. Ltd. REALTORS Rental, Insurance and Financial Agents Simi 927 538 308 AVENUE Bldg. — Winnipeg CANADIAN FISH PRODUCERS Ltd. J. H. Page, Managing Director Wholesale Distributors ol Fresh and Frozen Fish 311 CHAMBERS ST. Office Ph. 74-7451 Rcs. Ph. 72-3917 Rovatzos Floral Shop 253 Notre Dame Ave. Ph. 932 934 Fresh Cut Flowers Daily. Plants in Season We specialize in Wedding and Concert Bouquets and Funeral Designs Icelandic Spoken A. S. BARDAL LIMITED selur líkkistur og annast um utíarir. Allur úlfcúnaður sá bestl. Ennfremur selur hann nli«i»t«*T nainnisvarða og legsteina 843 SHERBRCX>KE ST. Phene 74-7474 Winnipeg M. Einarsson Motors Ltd. Buying and Sellinp New and Good Used Cars Distributors for FRAZER ROTOTILLER and Parts Service 99 Osbome St. Phone 4-4395 Union Loan & Investment COMPANY RentaL Insurance and Finandal Agents Sími 92-5061 508 Toronto General TrusU Bldg. The BUSINESS CLINIC (Anna Larusson) 306 AFFLECK BLDG., (Opp. Eaton’s) Office 92-7130 House 72-4315 Bookkeeping, Income Tax, Insurance Mimeographing, Addressing, Typing Halldór Sigurðsson & SON LTD, Contractor & Builder 526 ARLINGTON ST. Sími 72-1272 MALLON OPTICAL 405 GRAHAM AVENUE Opposite Medical Arts Bldg. TELEPHONE 927 118 Winnipeg, Man. I FINKLEMAN OPTOMETRISTS and OPTICIANS Kcnsington Building 275 Portage Ave. Winnipeg PHONE 92-2496 COURTESY TRANSFER & Messenger Service Flytjum kistur, töskur, húsgögn, píanós og kæliskápa Önnumst allan umbúnað á smásend- ingum, ef óskað er. Allur fltuningur ábyrgðstur Sími 526 192 1096 Pritchard Ave. Eric Erickson, eigandi Vér verzlum aðeins með fyrsta flokks vörur. Kurteisleg og fljót afgreiðsta. TORONTO GROCERY PAUL HALLSON, eigandi 714 Ellice Ave. Winnipeg TALSÍMI 3-3809 1 BALDWINSON’S BAKERY 749 Ellice Ave, Winnipeg (milli Simcoe & Beverley) Allar tegundir kaffibrauðs. Brúðhjóna- og afmæliskökur gerðar samkvæmt pöntun Sími 36-127 Off. Ph. 74-5257 700 Notre Dame Ave. | Opp. New Matemity Hospital NELL’S FLOWER SHOP| Wedding Bouquets, Cut Flowen Funeral Designs, Corsages Bedding PlanU Mrs. Albert J. Johnson Res. Phone 74-6753 -----,----U-I.I-'J-XJ-U-LJ-KJ- GRAHAM BAIN & CO. PUBLIC ACCOUNTANTS and AUDITORS 874 ELLICE AVE. Bus. Ph. 74-4558 -Res. Ph. 3-7390 S.—...............................> Olfice Ph. 92-5826 Res. 40-1252 DR H. J. SCOTT Spedalist in EYE, EAR NOSE and THROAT 209 Medical Aru Bldg. HOURS: 9.30 — 12.00 aan. 2 - 4.30 p.m. J. WILFRID SWANSON & CO. Insurance in all its branches. Real Estate — Mortgages — Rentals 210 POWER BUILDING Telephone 937 181 Res. 403 480 LET US SERVE YOU Hafið HÖFN í Huga ICELANDIC OLD FOLKS HOME SOCIETY — 3498 Oslei Street _ Vancouver 9, B. C. r GILBARTFUNERAL HOME - SELKIRK, MANITOBA - J. Roy Gilbart, Licensed Embalmer PHONE 3271 - Selkirk GUARANTEED WATCH, & CLOCK REPAIRS SARGENT JEWELLERS H. NEUFELD, Prop. Watches, Diamonds, Rings, Clocks, Silverware, China 884 Sargent Ave. Phone 3-3170 JACK POWELL, B.A. LL.B BARRISTER, SOLICITOR, NOTARY PUBLIC Off. Ph. 927751 - Res Ph. 56-1015 206 Confederatiou Building, Winnipeg, Man. 1 HERE _N O W I T oastMaster MIGHTY FINE BREAD! At your grocers * J. S. FORREST, J. WALTON Manager Sales Mgr. PHONE 3-7144

x

Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.