Heimskringla


Heimskringla - 27.04.1955, Qupperneq 3

Heimskringla - 27.04.1955, Qupperneq 3
WINNIPEG, 27 APRÍL 1955 HEIM SKRINGLA 3. SÍÐA um, en ekki eru allir svo heppn- ir að hafa þannig ástæður, og það eru þau börn, sem Barna- vinafélagið Sumargjöf sér fyrir vistarheimilum. Félagið staif- rækir leikskóla, dagheimili, vöggustofur, leikvelli, skóla fyr ir uppeldisfræðinga og fleira. Að vísu njóta þessar stofnanir stuðnings frá ríki og bæ, en reksturinn er kostnaðarsamur og ágóði sumardagsins fyrsta eða Barnadagsins er góður stuðning ur. Og það er sannarlega vel til fundið að velja sumardaginn fyrsta sem dag barnanna, og dag til að minna almenning á, að til eru börn, sem fá eigi notið sólar- blíðu sumarsins af eigin ramleik né foreldra sinna. Enda hefur al menningur aldrei skorizt úr leik um að styðja þennan nytsama' félagsskap og hans háleita mark. Sumardagurinn fyrsti er sann arlega dagur barnanna, hvort sem svo er ákveðið með lögum eða ekki. Sumardagurinn fyrsti er upphaf gróanda og þroska og felur vonir um framtíðina i skauti sér. Börnin sjálf eru gró' andinn í mannlífinu, og við þroska þeirra eru bundnar fram tíðarvonir hverrar þjóðar og gleði og boðar birtu og yl sum- arsins. Þess vegna býð eg ykkur aft- ur, góðir landar _1 GLEÐILEGT SUMAR! — GULLNA HLIÐIÐ Leikfélag landans sýnir á ný þætti úr Gullna hliðinu eftii Davíð Stefánsson íimmtudags- kvöldið 5. maí kl. 8.15 í neðri sal Sambandskirkjunnar við Bann- ing St. Önnur sýning verður í sam- komuhúsi Geysisbyggðar föstu- dagskvöldið 6. maí kl. 8.30, el færð leyfir. Aðgöngumiðar á $1.00 munu fást við innganginn. * * * The regular monthly meeting of the Jon Sigurdson Chapter I.O.D.E. will be iheld Friday evening, May 6, at the home oí Mrs. O. Cain, 14 Vinborg Apts. VIB HÆNSNARÆKT REYN- IST LYE BEZT Þrátt fyrir þó enn sóu til staðir, sem skjótvirk og dýr hreinsunar- efni megi nota við, er þeim sem hænsnarækt stunda ekki að öðru betri notkun, en Lye. Þar verður að muna, að hversu sterkt og skjót- virkt sem efnið til hreinsunar er, eru not þess ekki ávalt tiltækileg. Engin leið hefir betri fundist til að halda fuglahjörðinni við góða heilsu, eins og notkun lye við hreinsun hænsna húsa. LYE GERIR MARGT Lye er bæði ód-.rast og á hrifa- mes‘ við hreinsun á hænsnahúsu- um °g áhöldum, er þú notar við hana. Ekkert hreinsar feiti skjót- ara cða óhreinindi yfirleitt, en LYE; það bæði prýðir það sem hreinsað er, og hefir áhrif á að bæta loftið. (Og hænsni eru við- kvæm fyrir fýlulykt). Lye hefir mikil áhrif á eyðingu gerla eins og Coccidiosis, Laryngotracheitis, Infectious Bronchitis, Pullworm, Fowl Cholera, Racillary, White Diarrhoea ungra fugla, og Round- worm egg. NOTIÐ LYE REGLULEGA Hænsnaræktar maðurinn sem hreinsar að staðaldri með viður- kcndri lye-blöndu (sem kostar um lc. gallonið) mun sjaldan, ef nokkru sinni hafa þörf fyrir sterk og dýr rotvarnarefni. Hann mun heldur ekki verða fyrir tapi í fæðu, sýkingu eða dauða fugla. GLF-23 Thelma (RAGNAR STEFÁNSSON ÞÝDDI) Bóndinn samsinnti því, og benti hópnum að leggja af stað, með Sigurd á undan. Erring- ton dvaldist þó samt sem áður dálítið undir því yfirskini at5 hann hefði gleymt einhverju, og tók unnustuna í faðm sinn, og kyssti hana ást- úðlega. “Farðu varlega, yndið mitt!” ihvíslaði hún og hann flýtti sér ti-1 að ná vinum sínum, sem af ásettu ráði höfðu ekki litið aftur, og því ekki séð faðmlög elskendanna. Sigurd, samt sem áður, hafði séð þau kveðj ast, og sú sjón virtist auðsýnilega hafa æst hann og hvatað ferðum hans, því að hann stökk upp fyrstu hæðina í slíku æði, að hinir áttu fullt í fangi með að fylgja honum eftir— og það var ekki fyr en bóndabýlið var komið í hvarf að hann hægði svo ferðina að ihinir gátu þrauta- lítið haldið i við hann. Undir eins og fjallgöngumennirnir voru horfnir sýnum, fór Thelma inn í húsið og sett- ist við rokkinn sinn. Bráðlega kom Britta inn með annað spunaáhald, og stúlkurnar sátu hvor hjá annari nokkra stund og ekkert rauf þögnina nema hið jafna, mjúka hljóð rokkanna, og kurr dúfnanna fyrir utan gluggann. “Fröken Thelma!” sagði Britta að lokum, feimnislega. “Já, Britta?” Og húsmóðir hennar leit upp spyrjandi. “Hvaða gagn er að því að þ ú sért að spinna núna?” spurði litla þjónustustúlkan. “Þú verður fín aðalsmannskona, og þær vinna ekki neitt!” Thelma snéri hjólinu hægar og hægar, þangað til það stöðvaðist alveg. “Vinna þær ekkert?” sagði hún, hugsandi. “Eg held að það geti ekki verið rétt hjá þér, Britta. Það er ó- mögulegt að það sé til fólk sem alltaf er iðju- laust. Eg veit ekkert hvernig aðalsfrúr eru.” “En það veit eg!” Britta kinkaði hrokkna kollinum spekingslega. “Það var stúlka frá Hammerfest sem fór til Christianiu að leita sér að vist — hún var mjög hög í höndunum og vön saumum, og mjög góð að spinna, og fín frú tók 'hana með sér undireins frá Noregi til London. Og frúin keypti rokkinn hennar eins og sýnis- grip, sagði hún, og lét hann standa í horninu í dagstofunni sinni, og sýndi öllum vinkonum sínum Ihann, og þasr hlóu og sögðu: “En hvað þessi 'hlutur er skrítinn og fallegur!” Og Jansena—það var nafn stúlkunnar—spann aldrei eftir það—hún var í línfatnaði sem hún fékk i búðum—og hann var alltaf að bila, og Jansena var alltaf að gera við hann, sífeldar aðgerðir, og fatnaðurinn var svo endingarlaus!” Thelma hló. “Það "ír þá betra að spinna, eftir allt saman, Britta, ætli það sé ekki?” iBritta leit út eins og hún væri á báðum átt- um. “Eg veit það ekki,” svaraði hún, “en eg er viss um að háttstandandi frúr spinna ekki, því eins og eg var að segja þér, fröken, var þessi húsmóðir Jansenu háttsett _frú, og hún vann aldrei neitt—alls ekkert—nema fara í fína bún- inga, og sitja í stofunni sinni, og þegar hún fór eitthvað út ók hún í skrautlegum vagni. Og það munt þú líka gera, fröken!” “Ónei, Britta,” sagði Thelma ákveðin. “Eg gæti aldrei unað slíku iðjuleysi. Er það ekki heppilegt að eg hefi svo mikið af líni fyrirliggj r.ndi? Eg á alveg nægilegt í allan giftingarfatn aðinn.” Litla þjónustustúlkan var hugsandi. “Já, kæra fröken,” sagði hún lágt og hikandi, “en eg var að hug’sa um hvort það ætti við að þú klæddist fatnaði sem þú hefir spunnið í sjálf, því, sjáðu nú til, húsmóðir Jansenu átti alls konar indælan klæðnað allan blúndulagðan, og þessi föt komu öll rifin úr þvottinum, og Jansena varð að standa í því stöðugt að gera við þau eins og sín eigin föt. Þau endast ekkert—og þau kosta mikla peninga; en fínar höfðingskonur verða að klæðast svona fötum.” Eg er ekki viss um það, Britta”,sagði Thelma, hugsandi. “Þó gæti verið að Philip yrði ánægður með minn heimaunna brúðarfatn- að. Ef þú hefir meiri þekkingu hvað þessu við- víkur, þá verðurðu að segja mér hvað þú heldur að eigi bezt við.” Britta var í miklum vafa. Hún hafði fræðst um margt af vinkonu sinni, viðvíkjandi lifnað- arháttum í London >hún hafði jafnvel óljósa hugmynd um hvað meint væri með brúðarfatn- aði, með öllu sínu fína útflúri, dýru, og oftast endingarlausum hégóma; en ‘hún vissi ekki hvernig hún ætti að útskýra það fyrir hinni ungu húsmóður sinni, sem geðjaðist bezt að öllu sem einföldustu, og var stranglega á móti hóflausri eyðslu og íburði í nýtízku kvenklæðn- aði, svo að hún sá sinn kost vænstan að segja ekkert. “Eins og Iþú veizt, Britta”, hélt Thelma á- fram, stillilega, “ætla eg að giftast Philip, og eg má ekki gera honum neitt á móti skapi í neinu. En eg skil þettá ekki fyllilega. Eg hefi alltaf klæðst mikið til á sama hátt — og hann hefir aldrei minnst á eða fundið neitt að klæðn- aði mínum.” Hún leit efandi og auðsjáanlega ó- rólega, niður á einfalda ,hvíta ullarkjólinn sinn og sléttað hugsandi úr fellingunum. '^Britta, örlynd og hjartagóð, flýtti sér til hennar, og kyssti hana með kvenlegri einlægni og bjartsýni. “Góða mín! Þú ert yndislegri og fallegri en allar aðrar stúlkur í heiminum! hróp aði hún. “Og eg er viss um að Philip finnst það líka!” Yndislegur roði færðist í kinnar Thelmu, og hún ‘brosti. “Já, eg veit að honum finnst það!” svaraði hún, stillilega. “Að öllu síunan- lögðu skiftir það ekki miklu hverju maður klæðist.” Britta var hugsandi—hún horfði ástúðlega á húsmóður sína—á hið fagra, bylgjandi hár hennar. “Demantar!” sagði hún lágt við sjálfa sig, með hrifningu. “Demantar, eins og sá, eða þessir sem þú hefir á fingrinum, fröken, dem- antar, dreifðir um þitt hrokkna hár eins og daggardropar! Og hvítt, satín, gljáandi, skín- andii-r- fólk héldi að þú værir engill!” Thelma hló dátt. “Britta, Britta! Þú ert að fara með endaleysu! Enginn klæðlst þannig nema drotningar í álfasögum.” “Ekki það?” Og Britta- leit spekingslega út en nokkurn tíma áður. “Við skulum sjá til, góða fröken—við skul- um sjá til!” “Við”, spurði Thelma, undrandi? Litla þjónustustúlkan kafroðnaði, og leit niður fyrir sig feimnislega. “Já, fröken”, sagði hún mjög lágt. “Eg beiddi Philip barón að lofa mér að fara með þér þegar þú færir frá Noregi. “Britta!” Undrun Thelmu var svo mikil að hún kom ekki meiru upp. “Ó, góða mín! Vertu ekki reið við mig; grábtændi Britta, með glampandi augum og roða í kinum. “Eg myndi deyja úr leiðindum hér þegar þú værir farin! Eg sagði föður þínuns það—það gerði eg!—Og svo fór eg til Philips Professional and Business • = Directory~ Qtfice Phone 924 762 Res. Phone 726115 Dr. L. A. SIGURDSON 528 MEDICAL ARTS BLDG. Consultations by Appointment Dr. P. H. T. Thorlakson WINMPFG CI.INIC St. Mary’s and Vaughan, Winnipeg Phone 926 441 J. J. Swanson & Co. Lld. REALTORS Rental, Insurernce cmd Financictl Agents Slmi 927 5S8 308 AVENUE Bldg. — Winnipeg CANADIAN FISH PRODUCERS Ltd. J. H. Page, Managing Director Wholesale Distributors ol Fresh and Frozen Fish 311 CHAMBERS ST. Office Ph. 74-7451 Res. Ph. 72-5917 r-----------------------------1 M. Einarsson Motors Ltd. Buying and Selling New and Good Used Cars Distributors for FRAZER ROTOTILLER and Parts Service 99 Osbome St. Phone 4-4395 Thorvaldson Eggertson Bastin & Stringer Lögirœðingar Bank of Nova Scotia Bldfi. Portage og Garry SC Sími 928 291 H. J. PALMASON CHARTERED ACCOUNTANT 505 Confederation Life Bldg. Winnipeg, Man. Phone 92-7025 Home 6-8182 Rovatzos Floral Shop 253 Notre Dame Ave. Ph. 932 994 Fresh Cut Flowers Daily. Plants in Season We specialize in Wedding and Coneert Bouquets and Funeral Designs Icelandic Spoken A. S. BARDAL LIMITED selur líkkistur og annast um utfarir. Allur útbúnaður sá besti. Ennfremur selur hann aiiai«>fiT^T minmsvarða og legsteina 843 SHERBROOKE ST. Phone 74-7474 Winnipeg Union Loan & Investment COMPANY Rental, Insurance and Finandal Agents Sími 92-5081 508 Toronto General Trusts Bldg. baróns — hann er svo mikið prúðmenni—stolt- ur, og þó svo ljúfur og lítillátur—og eg beiddi hann að lofa mér að vera þjónustu-stúlkan þín. Eg sagði honum að eg vissi að allar aðalsfrúr ‘hefðu þjónustumeyjar, og ef eg væri ekki nógu ferðug í mér þá gæti eg lært, —og —og” Britta byrjaði að gráta —Eg sagði að eg kærði mig ekki um neitt kaup — aðeins að fá að vera í ein- hverju litlu horni í húsinu sem þú byggir i— til þess að sauma fyrir þig, og sjá þig, og heyra rödd þína stundum —” Hér var ungu stúlkunni allri lokið—og kom ekki meiru upp fyrir gráti, og faldi andlitið í svuntunni sinni. Það glitruðu tár í augum Thelmu, og hún flýtti sér að leggja ‘handlegginn utan um Brittu og reyna að hugga hana með öllum þeim blíðu- yrðum sem henni duttu í hug. “Svona nú, góða Britta mín! Þú mátt ekki gráta svona!” sagði hún, blíðlega. “Hvað sagði svo Philip?” “Hann sagði”, kom Britta loksins upp fyr- ir ekkanum, “að eg væri góð stúlka, og að sér þætti vænt um að mig langaði til að fara!” And lit hennar gægðist ofurlítið útundan svuntunni með eftirvæntingarsvip og þegar hún sá aðeins innilegan og ástúðlegan svip á hinu alvarlega andliti Thelmu, hélt hún áfram hughraustari. “Hann kleip mig ofurlítið í kinnina, hló, og sagði að hann vildi mig heldur fyrir þjónustu- mey heldur en nokkra þar!” Og hún lagði þunga áherzlu á síðasta orðið. Thelma brosti og strauk úfna jarpa hárið hennar. “Mér þykir mjög vænt um þetta, Britta!” sagði hún, einlægnislega. “Ekkert hefði getað glatt mig meira. Eg verð að þakka Philip fyrir þetta. En eg er að hugsa um pabba— hvað gerir þá pabbi og Sigurd?” “Ó, það er allt afráðið, fröken,” sagði Britta, og var nú óðum að ná sér eftir geðshrær inguna. “Bóndinn ætlar í eina af sínum löngu sjóferðum á Valkyrjunni — það er timi til kom- inn að 'hún sé eitthvað notuð —og Sigurd fer með honum. Sjóferð gerir þeim báðum gott — og slaðurstungurnar í Bosekop get þá vaðið elginn eins og þær vilja því ekkert okkar verð- ur hér til þess að gefa því nokkurn gaum!” “Og þú kemst undan hramminum á ömmu þinni!” sagði Thelma, glaðlega, um leið og hún tók til við spunann aftur. Britta hló hjartanlega. “Já, hún kemst lík- lega ekki svo greiðlega til Englands!” hrópaöi hún. “Ó ,hvað eg skal verða glöð og ánægð! Og þú” ___ hún leit biðjandi til húsmóður sinnar — “Þú ert ekki óánægð með mig fyrir þjónustu stúlku?” “Óánægð!” Thelma leit á hana með sam- blandi af ásökun og hlýju. “Þú veizt ihvað méi þykir vænt um þig, Britta! Það verður eins og eg hefði ofurlítinn hluta af gamla heimilinu mínu alltaf hjá mér”. “Þegjandi kyssti Britta á hönd hennar, og þær héldu áfram við verk sitt. Hið jafna, til- breytingarlausa hljóð rokkanna byrjaði á ný— það var eins og þægilegt undirspil við fjörugt samtal stúlknanna, sem eins og allt kvenfólk— allstaðar í heiminum— þurftu að spjalla um og bollaleggja hina nýju og ókunnu lifnaðarhætti sem þær vissu að biðu þeirra í framtíðinni. 1 The BUSINESS CLINIC (Anna Larusson) 306 AFFLECK BLDG., (Opp. Eaton’s) Office 92-7130 House 72-4315 BookJceeping, Income Tax, Insurance Mimeographing, Addressing, Typing Halldór Sigurðsson & SON LTD. Contractor <5> BuUdex • 526 ARLINGTON ST. Sími 12-1212 r* MALLON OPTICAL 405 GRAWAM AVENUE Opposite Medical Arts Bldg. TELEPHONE 927 118 Winnipeg, Man. FINKLEMAN OPTOMETRISTS and OPTICIANS Kensington Building 275 Portage Ave. Winnipeg PHONE 92-2496 COURTESY TRANSFER & Messenger Service Flytjum kistur, töskur, húsgögn, píanós og kæliskápa Onnumst allan umbúnað á smásend- ingum, ef óskað er. Allur fltuningur ábyrgðstur Sími 526 192 1096 Pritchard Ave. EHc Erickson, eigandi Vér verzlum aðeins með fyrsta flokks vörur. Kurteisleg og fljót afgreiðsh. TORONTO GROCERY PAUL HALLSON, eigandi 714 Ellice Ave. Winnipeg TALSIMI 3-3809 I BALDWINSON’S BAKERY 749 Ellice Ave., Winnipeg (milli Simcoe & Beverley) Allar tegundir kaffibrauðs. Brúðhjóna- og afmæliskökur gerðar samkvæmt pöntun Sími 36-127 Off. Ph. 74-5257 700 Notre Dame Ave. Opp. New Maternity Hospital NELL’S FLOWER SHOP Wedding Bouquets, Cut Flowen Funeral Designs, Corsages Bedding Plants Mrs. Albert J. Johnson Res. Phone 74-6753 \ GRAHAM BAIN & CO. PUBLIC ACCOUNTANTS and AUDITORS 874 ELLICE AVE. Bus. Ph. 744558 Res. Ph. 3-7390 0 \ -> A Office Ph. 92-5826 Res. 40-1252 DR H. J. SCOTT Specialist in EYE, EAR NOSE and THROAT 209 Medical Arts Bldg. HOURS: 9.30 - 12.00 a.m. 2 — 4.30 p.m. J. WILFRID SWANSON & CO. Insurance in all its branches. Real Estate — Mortgages — Rentals 210 POWER BUILDING Telephone 937 181 Res. 403 480 LET US SERVE YOU ^ .. "S Hafið HÖFN í Huga ICELANDIC OLD FOLKS HOME SOCIETY — 3498 Osler Sfreeí — Vancouver 9, B. C. Ir GILBARTFUNERAL HOME - SELKIRK, MANITOBA - J. Roy Gilbart, Licensed Embalmcr PHONE 3271 - Selkirk l ■ GUARANTEED WATCH, & CLOCK REPAIRS SARGENT JEWELLERS H. NEUFELD, Prop. Watches, Diamonds, Rings, Clocks, Silverware, China 884 Sargent Ave. Phone 3-3170 - J JACK POWELL, B.A. LL.B. BARRISTER, SOLICITOR, NOTARY PUBLIC Off. Ph. 927751 - Res Ph. 56-1015 206 Confederation Building, Winntpeg, Man. HERE _NOW! T oastMaster MIGHTY FINE BREAD! At your grocers J. S. FORREST, J. WALTON Manager Sales Mgr. PHONE 3-7144 * S-

x

Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.