Heimskringla - 15.06.1955, Side 1

Heimskringla - 15.06.1955, Side 1
FRÉTTAYFIRLIT OG UMSAGNIR Stór sigur íhaldsflokksins í Ontario-fylki í fylkiskostningum í Ontario 9. júní, var Læslie Frost stjórnin endurkosinn með miklum meiri- hluta. Hún hlaut 68 þingsæti_í meirihluta af 98 alls. Er þetta í fimta sinni, sem íhaldsstjórn er endurkosin í þessu auðugasta og mannflesta fylki í Canada. Tala þingmanna hinna ýmsu flokka er sem hér segir. Er talan frá 1951 kosningunum í svigum. líhaldsflokkurinn 83 (79), lib- eralar 10 (7), CCF 3 (2), Lib. Lab. 1 (1), Ind. P.C. 1 (0), Lab. Prog. 0 (1). (Þingmenn voru áður 90, en eru nú 98; var fjölgað á síðasta þing tímabili. Eflaust hefir fylki þessu reitt eins vel af, og að líkindum betur, en nokkru öðru fylki landsins. Af því munu stjórnarskifti þar ótíð. Þrátt fyrir þetta, hefir þa'ð verið í andstöðu við sambands-1 stjórn 0g aldrei notið þaðan skófna eins og Quebec hefir gert, nálega öll árin sem liðin eru af þessari öld. í vestur-fylkj um Canada á liberal fransk- lunduð stjórn nú hvergi fylgi nema í Manitoba. Og það er mjög um talað, að vesturfylkin séu betur af fyrir að vera laus við liberalisma. Minjagripur Nýlega sendi ein deild Mani- tobastjórnar út spil sem hún haffti látið gera sem ^minjagripi1 handa leröalongum, áem koma hingað til 9ð sjá sig jury Jg vlija^ ná í eitthvað, sem JmfrAj þá á' staðina, sem þeir he^hws/yfu. Spil j þessi gera þetta. Þ* *uJ fzp met5, ágætlega fögrum Jrai'iciÍum af mörgum stöðum, áín/ifi&ið eru heimsóttir á sumrum, auk nokkra merkra staða úr bæjum og bygð- um í Manitoba. Sem mingjagrip- ur (souvenir) eru spilin því ágæt. En eg er hræddur um að þau séu ekki eins góð til að spila á þau og að þeim, sem til þess nota þau, verði á að horfa meira á myndirnar en hugsa um boðin sín í bridge. Og þá vita menn á hverju er von. Með þakklæti fyr ir sendinguna. Forseti sambandsstjórn- ar þjóna W. Kristjánsson Síðast liðna viku hélt Sam- band stjórnarþjóna í Canada (Canadian Council of Provincial Employer Association) fund í Windsor, Ont. Á fundinum var W. Kristjánsson frá Winnipeg kosinn forseti sambandsins. Hann hefir verið forseti Mani- toba Government Employee As- socation áður, sem er í þessum landssamtökum. Vesturfylkin Alberta, Sask., og Manitoba og Ontario og Que- bec. eru í þessu sambandsfélagi landsins. H, B. Hunter annar maður frá Manitoba, var kosinn féhirðir sambandsfélagsins aj Windsor fundinum. $5,000 árslaun Verða vinnulaun innan skamms orðin $5,000 á ári í Bandaríkjunum? Af grein að dæma s.l. viku í ritinu U.S. News, er ekki efi tal- inn á þessu. Eins og kunnugt er, hafa vinnu laun farið mjög hækkandi síðari árin. Hefir sumum (þótt alveg nóg um það. En aðrir hafa litið á það sem órækasta vottinn um-að fátækt verði brátt upprætt, og sé það raunar nú þegar í landi framfaranna og frelsisins, Banda ríkjunum. Það var fyrir einum 20 árum, sem farið var að halda því fram að kaup almennings mundi brátt hækka upp í $2500 að meðaltali á ári. Það var auðvitað þá talinn draumur. Og þetta dróst fyrstu 15 árin eftir lok fyrra hreims- stríðsins. En úr því fór að skána. Og þegar leið fram að árunum 1940, var kaup 80 af hundraði verkamanna orðið $2,000 á ári. Það höfðu að vísu nokkrir náð takmarkinu fyrir síðara stríð. Það höfðu 1929 um 29% allra f jöl skylda $2,500 í kaup. En sú kauphækkun var ekki almenn fyr en nokkru síðar. En hvað er iþá að segja um $5,000 árslaunin? Þau hafa nú um 40% af öllum fjölskyldum landsins. Og sú kauphækkun virðist mikið skjótar útbreiðast, svo að það pykir mjög sennilegt, að það megi innan skamms telj- ast árskaupið. Þeim sem minna en $2,000 árs- laun hafa, hefir á s.l. 20 árum fækkað um 21 miljón manna. — Þeim sem árslaun hafa er nema $5,000 til $7,500 hefir fjölgað %m 12 miljón fjölskyldur og ein- staklinga. En hvað er nú með verðhækk- un síðari áranna, sem í kjölfar hins háa kaups hefir siglt? — Stenst þar ekki á kostnaður og rbati. Hverfur ekki háa kaupið með háverðinu? Síðan 1929, sem oftast er talað um sem grunnverðlagsár og grunnvinnulauna, hefir framfærslu kostnaður hækkað um 59%, Með þessu er átt við, að nú verður að greiða $4,000 fyr ir það sem áður eða 1929 kostaði $2,500. Ennfremur hefir útgjaldalið- urinn í sköttum hækkað á hverri fjölskyldu á þessum sama tíma úr $17. upp í $600.00. Þrátt fyrir þessa skelli, eru tekjur almennings eða hverrar fjölskyldu nú 30% meiri en þær voru 1929 og 47% hærri en 1925. Hér er um meðaltal að ræða. En útgjöldin leika ekki alla jafnt. Undanþága frá skatti hef ir mikið hækkað. Þeir sem lítinn eða engan skatt greiða, eru því nú alt að helmngi betur af en segjum 1929. A tímabilinu frá. 1950 hefir einn f imti lægst-launaði hluti þjóðarinnar, grætt 14% á sínum tekjum, en einn fimti hluti þjóð- arinnar, sem haestar tekjur fær, hefir aðeins grætt 3% hlutfalls- lega á sínum tekjum. Þær biljónir hækkandi tekna, sem í þessu eru fólgnar, eru ekki allar í vasa manna. Þeim hefir verið eytt í heimilisþægindi, bíla, sjónvörp og annað, sem við köllum óiþarfa og getur verið það, en sem ekki er hikað við að veita sér. Sumt hefir auðvitað verið lagt fyrir til geymslu, eins og banka inneignir sýna. ÍSLENDINGUR KOSINN Paul Thorkelsson Önnur deild þessa bæjar hefir oftast reynst hliðholl fslending- um í bæjar kosningum. Þannig reyndist það og í aukakosningu í skólaráð er fram fór 8. júní. Kosninguna hlaut Paul Thor- kelsson, forstjóri Thorkelsson’s Limited. Hann sótti undir merkj um borgaraflokksins ,CEC. íslendingar óska hinum ágæta og fjölhæfa landa sínum til lukku. % Um 1930 voru 44 miljónir vinn andi manna í Bandaríkjunum, en 10 miljónir vinnulausar. Nú eru 66 miljónir vinnandi og 3 milj- ónir leitandi að vinnu. í verksmiðjum er ekki óvana- legt kaup $2.50 —$3.00 á klukku- stund. Meðalkaup í þeim er talið $1.86. Það var í síðara veraldarstríð- inu 1945, sem vinnulaun hækk* uðu geysilega, vegna vinnu-eftir spurnar: því fylgdi hækkandi v.erðlag. Persónulegar tekjur Bandaríkja þjóðarinnar eru nú 295 biljónir dala. 1945 voru þær 175 biljónir, og 1936, 68 biljónir. í Bandaríkjunum er þetta þakkað hinu “frjálsa framtaki”, þar sem stjórnir skifta sér minna af athafnarekstri, en annars staðar er gert, eins og t.d. í heimi kommúnista og ann- ara landa, er fram fyrir hendur einstaklinganna taka sí og æ. Of mikil afskiftasemi sumra annara stjórna í athafnalífi, sýnir ein- mitt þetta sama. Þar sannast þau orð Emersons: Því minna sem oss er stjórnað, því betra er það ! Utah-íarar Þessir lögðu af stað sunnu- dagskveldið, kl. 6.40 S.T., frá Winnipeg til að vera á hundrað ára afmæli í Spanish Fork þann 15.—17. júní: Halldóra Thor- steinson, Kristín Johnson, Anna Arnason, Ruby Couch, Helga Goodman, Arthur Reykdal með þrjá drengi sem munu eiga að sýna íslenzka glímu á hátíðinni. Þau fara með bus alla leið til Spanish Fork. Frú Halldóra Thorsteinsson hafði rokk sinn og ýmsa merkilega sýningar- muni er hún hefir sjálf búið til og sezt auðvitað við að spinna á sýningunni. * Ávarp til íslendinga Marcel Boulic, bóndi, við- skiftamaður og fyrverandi oddviti, sendir íslendingum, sem eru fjölmennir í kjördæmi hans, kveðju sína og æskir stuðn ings þeirra í aukakosningunni 27. júní. Hann sækir undir merkjum Progressive Conservative flokks ins. Stjórnina sem nú situr við völd í Manitoba, segir hann orð- ið svo útlifaða, að hún sé farin að skoða það ætlunarverk sitt að koma í veg fyrir nokkrar breyt- ingar til þrifa og framfara, vegna þess að hún óttist að því fylgi féleysi og launalækkun vina sinna. Málin sem stjórnin vildi ekki hlýða á, var að olíuskatturinn væri aðallega notaður til vega- gerða innan sveitanna. Annað var að taka upp Blue Cross skipu lagið í læknmálum og gefa ellistyrk þegum fría lækningu og bót sinna meina. Á vísinda- aðgerðir áhrærandi hveitirækt- ina, en stjórninn var harðánægð með fyrirkomulagið eins og það var og benti á hveitiverðið. Jú, það er nú $1.56 hæst, en það svar ar til 63 centa verðs árið 1939. Íhaldsflokkurinn var á móti endurskoðun grunnskatts, sem fylkisstjórnin ætlaði að græða $400,000 á ef hún fengi breytt. Andstæðingar stjórnar báðu um skýringu á hvað gera ætti ef flóð bæri að höndum í fylkinu. Stjórn in hafði ekki svo mikið sem dott- ið þetta í hug. Nú fáum við flóð- fréttirnar annars staðar að nieð þeirra hræðilegu afleiðingum. Hér er meira en mál komið til að skifta um stjórn og vinna í anda Roblins, Willis, Ross, Ev- ans, Harrison, Thompson og f 1., er fylkið vilja hefja til verð- ugs frama. Ef þið greiðið at- kvæði með mér, gerið þið það, sem eg virðingarfylst vona að þið gerið 27. júní. FJÆR OG NÆR Sex íslendingar komu til Win nipeg frá fslandi s.l. þriðjudags morgun. Þeir komu með “Loft- leiðum til New York. Þeir gera ráð fyrir að sjá sig hér um, eiga flestir hér einhverja kunningja. Hve naer þeir halda heim er ó- ráðið og óvíst að þeir verði sam- ferða til baka. Nöfn gestanna frá íslandi eru þessi: Hjörtur Kristjánsson og frú Ingigerður Sigurðardóttir, og Eva ólafsdóttir, öll frá Reykja- lundi. Soffía Finnbogadóttir frá Sólvöllum í Mosfellssveit, syst- ir séra Braga Friðrikssonar, á Lundar, Manitoba. Bryndís Schram frá Reykjavík. Frú Margrét Karlsd. Bardal frá R.- vík, fer vestur til Vancouver að heimsækja son sinn, Grettir Björnsson. Guðmundur Rós- mundsson frá Urriðaá, Miðfirði, búsettur í Reykjavík. f förinni voru að minsta kosti tveir fleiri er vér náðum ekki í nöfnin á. ★ ★ ★ Mr. Paul Thorkelsson, hinn nýkosni skólaráðs maður í Win- nipeg, biður Heimskringlu að flytja löndum sínum bezta þakk- læti sitt fyrit stuðning þann, er þeir veittu honum við skóla- ráðskostningar. Hann sagði þá með því, hafa sýnt fornan dreng- skap og einingu, er hann mundi ávalt mikils meta og reyna að sýna sig verðugann. ★ ★ * Við uppsögn níunda bekkjar í Sargent skólanum 10. júní i St. Pauls Church á Notre Dame, voru 3 íslenzk börn sæmd ser- stökum heiðri fyrir frammistöðu sína við nám. Lillian Bjarnason hlaut námsskeið fyrir hæstu ein kunn í bekk sínum,- hún hlaut 95.8 stig. Fyrir góð námsafrek hlutu_ þau Dennis Eyjólfson og Heather Sigurdson viðurkenn- ingu. Dennis er forseti stúdenta- ráðs í 7, 8, og 9, bekk. Dennis er sonur Arnheiðar og manns hennar Fred Eyjólfsson- ar, sem nú er látinn. Afi og amma hans eru Guttormur skáld og Jensína kona hans. Heather er féhirðir stúdenta- ráðsins. Hún er dóttir Mr. og Mrs. Joe Sigurdson og dóttur- dóttir Mr. og Mrs. Guttorms- son. Foreldrar Lillian, eru Haf- steinn Bjarnason og Lilja dóttir Jóns Jóhannssonar á Lundar. ★ ★ ★ Kirkjuþing The Western Canada Unitar- ian Conference (fyrv. Sameinaða kirkjufélag íslendinga í Vestur- heimi) heldur kirkjuþing dagana 30. júní—3. júlí í Wynyard, Sask. Fulltrúar sækja eftir því sem enn er vitað með vissu, meðal annars frá hinum frjálstrúar söfnuðum í Wynyard, Edmon- ton, Regina, Gimli, Winnipeg og víðar. Ekki eru allir söfnuðirnir búnir að ákveða fulltrúatölu sína. Gestur og ræðumaður verður Rev. Rchard B. Gibbs frá Bos- ton. Hann er útbreiðslustjóri Unitarafélagsins þar. (Director of Church Extension and Main- tenance). Þingið byrjar fimtu- dagskvöldið 30. júní, með skrá- setningu fulltrúa, og skemtihalds °g byrjar með fundum föstudags morguninn og stendur yfir til sunnudags, 3. júlí. ★ ★ ★ Samband Unitara og frjálstrú- arkvenna heldur þing á sama tíma og heldur opinbera sam- komu laugardagskvöldið þar sem meðal annars verður aðal ræðumaður Rev. Richard B. Gibbs, frá Boston. Einnig verða myndir sýndar. ★ ★ ★ Eitt af því sem góðfrétt má heita er það, að stjórn Saskat- chewan fylkis gerir ráð fyrir að gefa út á 50 ára afmæli fylkisins sögu um íslendnga í fylkinu. Hefir hún fengið Walter Lindal dómara til að skrifa hana. ★ ★ w Steindór Ólafsson frá Garðar, Norður Dakota, og frú og dóttir þeirra, Ólafía frá Denver, Col. komu til bæjarins s.l. fimtudag og héldu til baka daginn eftir. Þau komu i heimsókn til skyld- íólks síns hér i bæ. Mrs. Ólafs- son sagði svipað af veðri syðra og hér og jafnvel enn ósáð ein- hverju, en ekki miklu. ★ ★ ★ Tilkynning Ársþing unitariska kvennasam bandsins verður haldið í Wyn- yard, Sask. 1. júlí 1955. Verður það haldið í sambandi við aðal kirkjuþing Untara í Vestur-Can ada. f tilefni af því vildi eg einn ig tilkynna öllum vinum og styrktarmönnum sumarheimilis- ins á Hnausum, hvaða not hafa verið gjörð af heimilinu í síðast liðin 3 ár síðan við urðum að hætta við að starfrækja það sjálf ar. Hemilið hefur verið lánað endurgjaldslaust munaðarlausum börnum frá Winnipeg (The Childrens’ Aid Society), í 6 vik ur, fyrsta árið í tvo mánuði. — Einnig höfum við lánað það í tvær vikur, Broadway Home, Mentally retarded Girls, sem höfðu mikla ánægju af verunni. Nú vil eg fyrir hönd Sambands ins þakka kærlega öllum sem hafa styrkt þetta fyrirtæki með peningagjöfum í Blómasjóðinn, og á annan hátt, og vona í fram- sem vilja styrkja okkur í fram- tíðinni gjöri það ef þeim finst að við séum að gjöra góðverk með því að lofa þessum foreldra lausu börnum að njóta sín í sum- arfríinu. Nafn nýja fjármálarit- ara verður í báðum ísl. blöð- unum í næsta mánuði. Vinsamlegast Sigríður McDowell, fors. DÁNARMINNING Sigríður Sveinson Hinn 25. janúar síðast liðinn lézt á Victoria spítalanum í Win- nipeg Mrs. Sigríður Sveinson frá Marquette, Manitoba. Sigríður var fædd á Glæsibæ Eyjafirði á íslandi 29. júlí 1892. Foreldrar hennar voru þau Ihjón ín Árni Jónsson læknir, (í ætt kominn af hinni fjölmennu Kjarna ætt á íslandi) og Sigur- veig Friðfinnsdóttir. Föður sinn misti hún á unga aldri (1897) og kom hún með móður sinni og stjúpföður til Canada 1905. Þau dvöldu um tíma í Winnipeg en fluttu til Charleswood 1907 og voru búsett þar nær í tuttugu ár. Þar giftist Sigríður eftirlifandi manni sín- um Sveini G. Sveinsyni 24. des- ember 1918. Eignuðust þau fjög- ur börn öll á lífi, þrjá sonu: Dr. Goodwin, dýralæknir í Dauphin, Manitoba; Emil Sigurvin, bú- andi að Marquette, Manitoba, með föður sínum; Henry, starf- andi í Fort Nelson, B. C., og eina dóttur, Eleanor Anna (Mrs. J. E. Thompson) Sault Ste. Marie, Ontario. Tveir bræður Sigríðar eru á lífi: Jón Arnason og Arni Benediktson í St. James Man. Einnig tvær systur: Sig- ríður, á íslandi »og Ingibjörg, Mrs. W. J. McGoregan, St. Vi- tal Manitoba, og svo stjúpfaðir Jón Benediktson í St. James. Sigríður heitin var vel gefin kona til muns og handar, hún var umhyggjusöm og skylduræk- in móðir og eiginkona, og ávalt reiðubúinn að rétta hjálparlhönd til þeirra, sem þess þurftu við Hennar er sárt saknað af vinum og vandafólki, en sérstaklega af manni hennar eftir langa og á- nægjulega samfylgd. Blessuð sé minning hennar. Einar Magnússon frá Selkirk, var staddur í bænum í morgun. ★ ★ ★ Mr. og Mrs. I. N. Bjarnason frá Gimli, komu til bæjarins i morgun. Þau leggja af stað í ferð til fslands í kvöld og gera ráð fyrir að vera heima um tveggja mánaða skeið. Mr. Bjarnason er ættaður frá Reiðar- firði, en Mrs. Bjarnason frá Ak- ureyri. Dvelja þau eflaust lengst af í þeirri fögru Neapel íslands. Héimskringla óskar hinum góðu hjónum ágætrar skemtunar, eins og þau eiga skilið á ferðalaginu. ★ ★ ★ Þjóðræknisdeildin Frón til- kynnir hér með að bókasafn deildarinnar verður lokað 29. þ. m. fyrir sumarmánuðina. Eru þeir sem bækur hafa að láni vin- samlegast beðnir að skila þeim í bókasafnið ekki seinna en 29. júní. Innilegt þakklæti fyrir góða samvinnu á liðnum tíma. Vonum að við sjáumst aftur með haust- inu. Farið vænlega á öllum ferð um ykkar, hvert sem er í lofti, á sjó eða á landi. Góða sumar- skemtun. Fyrir hönd Fróns. J. Johnson 735 Home St.

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.