Heimskringla - 03.08.1955, Blaðsíða 1
CENTURY MOTORS LTD*
247 MAIN — Phone 92-3311
fP TR^
CENTURY MOTORS LTD.
241 MAIN-716 PORTAGE
—^
LXIX, ARGANGUR
WINNIPBG, Mli)VIKUDAG®íN, 3. ÁGÚST 1955
NÚMER 44.
NOKKUR KVEÐJUORÐ
ÞORSTEINN J. GÍSLASON
(12/5 1875 — 19/7 1955)
Þegar eg hugsa um alla hina
mörgu einstaklinga, sem eg hef
kynnzt meðal Vestur-fslendinga
undanfarin ár, finnst mér eg
eiga um fáa þeirra hugljúfari
minningar en Þorstein J. Gísla-
son í Brown.
Nú iþekkti eg hann auðvitað
ekki nema nokkur efstu ár hans,
en í mínum augum var hann þó
alltaf ungur—þrátt fyrir ellina,
því að hann var lifandi og vak-
andi í því er var að gerast í
kringum hann. Þorsteinn og
kona ihans ágæt, Lovísa Jóns-
dóttir Þorlákssonar voru nokk-
urskonar íslenzkir verndarvættir
einnar fámennustu íslendinga-
byggðarinnar vestan 'hafs og
settu á hana, að mér fannst, alveg
serstakan svip. Og þótt Þor-
steinn sé nú dáinn, spái eg því,
að áhrifa han« muni lengi gæta
1 byggðinni og hinir yngri menn
taka þar við, sem hann varð frá
að hverfa.
Það er ekki ætlun mín að lýsa
bér lífsferli Þorsteins, hversu
vel hann reyndist móður sinni,
er hann missti föður sinn ungur,
eða skýra frá landnámi þeirra
mæðgina í Brown og víðtækri
hlutdeild hans í málefnum þeirr-
ar byggðar. Það munu aðrir gera,
sem þekktu hann lengur og gerr
en eg. Heldur eiga þessar línur
aðeins að vera dálítii kveðja 'frá
ungum vini Þosteins, er ávallt
mun minnast göfugmennsku
hans og góðra samverustunda
með honum á liðnum árum.
Finnbogi Guðmundsson
DÁN ARFREGN
SIGRÚN BARDARSON DODD
Dáin er að heimili sínu í
Seattle, Wash., 2. júlí s.l., Sigrún
Bardarson Dodd. Sigrún var
fædd í Winnipeg 1. april 1894.
Hún var yngsta barn Sigurðar
Barðarsonar læknis og seinni
konu hans Guðrúnar Davíðsdótt-
ur. Hún var enn á æskuskeiði
þegar hún fluttist með foreldrum
sínum vestur til Blaine, Wash-
ington. Hinn 4. janúar 1815 gift-
ist hún Theodore Dodd, og var
heimili þeirra í Blaine fyrstu 4
árin. Fluttu þau þá til Belling-
ham, þar sem þau bjuggu all-
mörg ár. Síðustu 15 árin var
heimili þeirra í Seattle.
Sigrúnu lifa auk eiginmanns
hennar tveir synir: Theodore og
Lárus báðir til heimilis í Bel-
lingham, ^ tvær dætur: Betty
Erickson og Bonnie Carpenter,
báðar í Seattle. Einn bróðir, Leo
Bardarson, í Oakland, Calif. ein
hálfsystir Mrs. Olson r Seattle,
og 8 barnabörn.
Sigrún var góð kona og hjálp-
söm við iþá sem voru hjálpar-
þurfi og hún náði til. í þessu
fór hún ekki í manngreinarálit
og rétti gjarnan hendur móti
þeim sem aðrir smáðu. Hið síð-
asta mjög erfiða, sjúkdómsstríð
bar hún með Iþolinmæði og
trausti til hans sem lífið gaf.
“Far þú í friði, friður Guðs
þig blessi Hafðu þökk fyrir alt
og alt.” —A. E. K.
BERGMÁL FRÁ ENGLANNA
SÖNG
(Lag: Beautiiul brown eyes)
i
Við syngjum þér sumar í hjarta
sólskin og bros á vör,
þótt hauskvöldið gráti við glugg-
ann
er gleðin með okkur í för.
Viðlag:
Bernskunnar brosljúfi heimur
á bergmál frá englanna söng.
Ó, hlustaðu á vorljóðin ljúfu,
ef leið þín er köld og myrk.
Þau færa þér fegurð og unað.
Þau flyitja þér huggun og styrk.
Bernskunnar brosljúfi o. s. frv.
I sorginni vonirnar vaka,
vorið í haustsins róm,
geislar í rökkursins rósum,
rósemd í stormsins hljóm.
Árelíus Níelsson
M O L A R
Ef Bandaríkin fara burt úr Ev-
rópu væri öll norðurálfan hnýtt
í klafa rússneskra kommúnista.
Sir Winston Churchill
Látinn er í Bandaríkjunum
Cordell Hull, ritari Bandaríkj-
anna frá 1933 til 1944. Hann var
84 ára. Hann hlaut friðarverð-
laun Nobels 1945. Hanp var efri
og neðri deildar þingmaður um
mörg ár, og þótti eftir að hann
varð ríkisritari, hafa óvanalega
þekkngu á utanríkismálum fyrir
Bandaríkjamann—að dómi Chur-
chill og annara.
FJÆR OG NÆR
Þjóðræknisfélagsins í Fort Garry
hótelinu á þriðjudaginn og hurfu
heim á leið samdægurs.
EGYPT ALAND ER MIKIÐ
FRAMTÍÐARLAND
A, : V erkmamannamálin eru þó
í betra ásigkomulagi en þau voru.
B. : Að hverju leyti? Ef verka-
rnaðurinn er ekki rekinn af verk-
gefendafyrir oflitla vinnu, er
hann rekinn af verkamannasam-
tökunum fyrir ofmikla vinnu.
ftX
“Fljúgandi diskar eru að minni
skoðun”, segir John Steinbeck,
“glögt tákn ókyrðarinnar í heim-
inum á þessum tímum.”
Mrs. H. F. Danielson, Win-
nipeg, leggur af stað í dag vest-
ur að hafi. Flytur hún ræðu á
íslendingadegi Vancouver og
Blaine-búa 31. júlí í Peace Arch
Park. Hún mun og hafa verið
beðin að flytja ræðu í Seattle
og víðar vestra meðan dvalið er
á Ströndinni.
★ ★ ★
Þeir Hon. Thor Thors sendi-
herra íslends í Bandaríkjunum
og Canada, Valdimar Björnson
ritstjóri frá Minnieapolis og Dr.
Richard Beck prófessor við rík-
ísháskólann í Norður Dakota,
komu hingað til borgarinnar um
síðustu helgi að tilmælum Þjóð-
ræknisfélagsins til að athuga að-
stæður, er leitt gætu til samein-
ingar islenzku vikublaðanna —
Heimskringlu og Lögbergs, og
verður það mál að sjálfsögðu
frekar skýrt á sínum tíma; þeir
satu boð framkvæmdarnefndar
&
MANITOBA pool elevators
Winmpeg Manitoba
SASKATCHEWAN WHEAT POOL
Regina Saskatchewan
ALBERTA WHEAT POOL
Calgary Alberta
Á seinna hluta síðustu aldar kom til hinna lítt-
byggðu sléttufylkja Vestur-Canada, fyrsti hópur
íslenzkra innflytjenda er tók sér bóifestu á strönd
Winnipegvatns. Á árunum sem síðan eru liðin,
hafa áyalt verið að bætast við fyrsta hópinn menn
frá eyjunni í ægi blám. í dag taka afkomendur
þessara innflytjenda mikinn þátt í vexti og upp-
byggmgu þessa lands.
fslendingar hafa sem þjóð sannað að alt er ekki
undir fjölmenninu komið. Það sem mestu varðar,
er að atvinnurekstur sé skapaður sem í því er fólg-
inn, að gera eyðiland að frósamri bygð og færsælli.
■s.
f Canada hafa íslendingar reynst trúir sjálfum
sér, sem í ættlandi sínu; þeir eru er hingað er kom-
ið fyrst og fremst Canadamenn, fúsir til að leggja
fram það bezta sem þeir eiga í bókmentum og
verklegum efnum, þessu landi og þjóð til framfara
og heilla. í sléttufylkjunum hafa .þeir með öðnim
bændum fylgst vel með í hveiti samtökunum. Þeir
hafa staðið þar framarlega í fylkingu.
Hveitisamlag Vestur-Canada er stolt af því að
eiga svo marga menn og konur af íslenzku bergi
brotna.
Egyptar hafa verið landbúnað
arþjóð frá því á dögum Faraó-
anna.
Sjötíu af hverjum 100 íbúum
lifa á landbúnaði. Landbúnaður-
inn leggur til 27% af þjóðartekj
unum, sem nema er svarar til 2.4
miljarða dollara árlega og 94%
af útflutningnum. Það, sem gerði
efnahags afkomuna ótrygga var,
að ekki var nema um einn höfuð
atvinnuveg að ræða, allt snerist
að kalla um baðmullarræktina
og á sviði iðnaðar að vinna úr
baðmullinni, sem Egyptar töldu
hina beztu í heimi. En fólkinu
fjölgaði—og því fjölgar nú um
350,000 á ári—og ekkert var gert
til að auka ræktunina, og næst
um ekkert átak var gert á sviði
iðnaðar.
Af þessu leiddi að mikill hluti
þjóðarinnar þjáðist af næringar
skorti—meðaltekjur námu ekki
nema sem svaraði til 90 dollara
á ári.
Hinir nýju menn Egyptalands
eru sannfærðir um, að eina bjarg
ráðið sé að snúa alveg við blaði,
og stefna í aðra átt. Sóknin á
sviði iðnaðar byrjaði Iþó fyrir
þeirra tíð um 1930. Árið 1939
voru starfsmenn í iðnaði 300,000.
f síðari heimsstyrjöldinni
þrengdist um innflutning og það
varð að bæta upp, ennfremur að
fullnægja ýmsum þörfum
250,000 erlendra hermanna, sem
höfðu bækistöðvar í landinu. Og
nú eru 700.000 iðnaðarverkamenn
í landinu, sem framleiða iðnað
arvörur árlega hátt á annað
hundrað milljarð dollara að verð
mæti. Mikil aukning hefur átt
sér stað á sviði vefnaðarvörufram
leiðslu, tilbúnum áburði, stáli o.
s.frv. Útflutningur á ýmsum
iðnaðarvörum er hafinn til Ev-
rópu og Vestur-Asíulanda og
víðar. í Egyptalandi er nú þriðja
stærsta sykurverksmiðja í heimi,
en þar eru framleiddar 230,000
smálestir af sykri árlega. Hún
er eign Ahmeds nokkurs Abboud
sem lætur til sín taka á fleiri
sviðum.
í Egyptalandi bíða hinna
ungu manna, sem nú hafa örlög
landsins í hendi sér mikil við-
fangsefni—viðreisn á öllum svið
am. Deiluefnið mikla, Suezdeil-
an, hefur verið til lykta leidd
með samkomulagi, og nú veltur
allt á því að friður haldist innan
lands, svo að valdhafarnir geti
sinnt viðreisninni án þess að
þurfa samtímis að standa í því
að bæla niður innanlandsóeirðir.
Hið mikla verkefni Gamal Ab
del Nassers forsætisráðherra og
annara leiðtoga er viðreisn á öll
um sviðum, ekki síst á sviði land
búnaðar og iðnaðar. Bæta þarf
lífskjör og afkomuskilyrði þeirra
sem erja jörðina—í landi, þar
sem þurrir sandar hindra frekari
útþenslu rætkaðs lands, nema
hafizt verði handa um miklar
vatnsveitur í landi—í landi þar
Framh. á 4. bls.
Canadian Co-operative Wheat
Producers Limited
WINNIPEG — CANADA
m
nqnuiimn
íslendingadagurinn
í GIMLI PARK
Mánudaginn 1. Agiíst 19 S 5
v
Forseti nefndarinnar: Snorri Jónasson Fjallkonan: Snjólaug Sigurdson
Hirðmeyjar
Joanne Marja Laxdal Heather Sigurdson
íþróttir fyrir börn og ungar stúlkur byrja kl. 12 (D.S.T.)
íþróttasamkepni um Oddson skjöldinn og Hanson bikarinn byrjar kl. 2 e.h.
(D. S. T.).
Bílaskrúðför frá CPR stöðinni á Gimli byrjar kl. 11 f.h. (D.S.T.)
Björgvin Guðmundsson, Tónskáld, spilar íslenzk ilög af plötum og segul-
þræði frá kl. 12.30 til kl. 1.45 e.h. (D.S.T.)
SKEMTISKRÁ BYRJAR KL, 2. e.h. (D.S7T.)
1. O Canada.
2. ó’Guð vors lands.
, 3. Forseti, Snorri Jónasson setur hátíðina.
4. Ávarp Fjallkonunnar, Miss Snjólaug Sigurdson.
5. Fjórraddaður söngur: Albert Halldorson, Hermann Fjelsted, Alvin
Blondal, Prof. Sig. Helgason Undir stjórn B. Violet fsfeld.
6. Ávörp gesta.
7. Söngur
8. Minni íslands: Séra Bragi Friðriksson, Lundar, Manitoba.
9. Kvæði, lesið af Próf. Finnboga Guðmundssyni. * "
10. Söngur
11. Minni Canada: Aðalsteinn F. Kristjansson, L.L.B., Winnipeg
12. Söngur. j 1
13. God Save the Queen.
Skrúðganga að landnema minnisvarðanum, að lokinni skemtiskrá. Fjallkon-
an leggur blómsveig á minnisvarðann. Kveldskemtun byrjar í skemtigarð-
inumjd. 7.45. Fjórir drengir sýna íslenzka glímu. Community singing byrj-
ar kl. 8.
Dans í Gimli Pavilion frá kl. 9.30 til kl. 2.30 f. h.
Inngangur: Börn innan 12 ára frí. Eldri börn og fullorðnir—50 cents.
Aðgangur að dansinum—75 cents fyrir alla.