Heimskringla - 28.09.1955, Page 3

Heimskringla - 28.09.1955, Page 3
WINNIPEG, 28. SEPT. 1955 HEIMSKRINGLA 3. SÍÐA nefndu, sem héldu því fram að íæðismanns þjónustan væri sarr,- bandsmál, sem leysa yrði meö samkomulagi beggja aðila, þar sem hins vegar hið upphaflega norska sjónarmið var, að málið væri skýlaust innbyrðis mál Norðmanna. Frá 1895—1905 var gerð hver tilraunin eftir aðra til að reyna að finna lausn á hinu erfiða vandamál að koma á fót norsku ræðismannskerfi innan sænsku utanríkisþjónustunnar og undir hennar yfirstjórn. Samkomulag náðist um, að leysa skyldi málið með “sam- hljóða lögum”, sem ekki væri hægt að breyta án samþykkis rík isvalds beggja landanna í nóv- ember 1904 var svo langt komið að báðair ríkisstjórnirnar höfðu gert uppkastið að hinum sam- hljóða lögum. Sænska uppkastið fól í sér nokkur ákvæði, seni bentu til sænskra yfirráða, sem þess vegna voru skoðuð frá hinu norska sjónarmiði sem “yfirríkis ákvæði”. Þegar norska stjórnin neitaði að fallast á þau og sú sænska að breyta þeim, leiddi það til endanlegra og ákveðinna lykta í sáttaumleitunum í ræðis- mannamálinu. Umræðunum var formlega slitið í ríkisráði sem skipað var norskum og sænskum mönnum, í Stokkhólmshöllinni, í febrúarmánuði árið 1905. Kon- ungurinn lét bóka óskir sínar um, að enginn skoðanamunur á milli hinna tveggja þjóða kæmi fram af hálfu sambandsins sem slíks. Þessi ósk var óbein tján- ing þess, sem nú mátti búast við, að gerðist. Bæði stjórnmálaleið- togarnir og reyndar öll alþýða Noregs var ákveðin í að stíga nú síðasta skrefið. Og menn voru staðráðnir í að lenda ekki í sömu sporunum og ,1895. Eftir 1890 var tekið til alls- herjar vígbúnaðar í landinu því menn voru á þeim buxunum að láta hart mæta hörðu, ef Svíar vildu ekki taka réttlætiskröfur Norðmanna til greina. Norska Stórþingið hafði stigið óvænt og ákveðið skref, enkum ef það er í huga haft, að það hafði fyrir 1890 samþykkt ályktun þess efn is að leggja alþjóðadeilur i gerð. —Litið var á vígbúnaðinn sem þjóðarnauðsyn og til hans stofn að íþví skyni að tryggja sjálfs- ákvörðunarrétt þjóðarinnar. (Framhald í næsta blaði) MI1SIMS7 BETEL • erfðaskrám yðar BLOOD BANK THIS WINNIPEG BREWERY L I M I T E D Thelma (RAGNAR STEFÁNSSGN ÞÝDDI) Machtenklinken nam staðar, og breitt bros þurkaði út reiðisvipinn á andliti hans. “Þú ert mjög góður og vingjarnlegur, herra Lovelace,” varð honum að orði— “og eg vildi allt gera fyrir þig—en hallarfrúin skilur mig ekki—hún móðgaði mig—það er betra að eg fari.” “Ó, sei, sei! Við skulum ekkert fást um hvað hún segir!” sagði Beau, fjörlega. “Komdu nú— og láttu okkur heyra eitthvað af því bezta sem þú átt til!” Hann leiddi hinn ’hálf nauðuga snilling aft- ur að hljóðfærinu, þar sem hann var kynntur fyrir Thelmu, sem brosti svo yndislega við hon- um að hann fékk nálega ofbirtu í augun. “Ert það þú sem leikur verk Sc'humanns af svo mikilli snilld,” sagði hún. “Maðurinn minn og eg heyrðum til þin á einum af hljómleikum Lamoureaux’s í París. Eg óttast,” hún leit alvar- lega á hann, “að þér finnist það frekt og sjálfs- elskufullt af mér ef eg beiddi þig að leika aðeins stutt lag? Því auðvitað ertu hér til að skemmta þér og tala við vini þína, og það virðist mjög eigingjarnt að taka þig frá þeim!” Augu vesalings þýzka hljómsnillingsins urðu einhvern veginn undarlega rök. Þetta var í fyrsta sinn á Englandi sem með hann hafði verið farið eins og vin og göfugmenni. Allt til þessa, í öllum boðum og mannfagnaði hafði aldrei verið litið á hann eins og gest á neinn hátt—hann var “listamaður”, ‘góður píanóleik- ari”,—“maður sem hafði leikið fyrir Þýzka- lands keisara” — og það var talið sjálfsagt að hann léki fyrir ekkert, og væri þakklátur fyrir “áhrif” honum í hag—áhrif sem upp að þessum tíma höfðu ekki aflað honum nokkurs skildings. Nú var hér göfug og yndisleg hefðarfrú sem ná- lega bað afsökunar fyrir að biðja hann að leika og á því að taka hann frá “vinum” hans! Hjarta hans fylltist af djúpri og innilegri þakklætis- tilfinningu—vesalings maðurinn átti enga ‘vini’ í London nema Beau Lovelace, sem var honum góður og hlýr, en sem hafði engin áhrif á svið'. hljómlistarinnar—og þegar hin mjúka siðfágaða rödd Thelmu ávarpaði hann, hefði hann getað kropið og kysst skóinn ’hennar fyrir hennar hlý legu kurteisi og vinsemd. “Náðuga barónessi”, sagði hann, með til- beiðslufullri lotningu. “Mér er ánægja að leika fyrír þig—það verður ánægja fyrir hljómlistina að leitast við að gera sig fagra fyrir þig!” Og eftir þessa öfgakenndu tilraun til að slá gullhamra, settist hann við hljóðfærið og lamdi af öllum kröftum á nótu til þess að kveða sér hljóðs. Samtalskliðurinn varð háværari en nokk urn tíma áður—og Thelmu til undrunar settist frú Winsleigh hjá henni og hóf samtal við hana. Herra Machtenklinken barði á aðra nótu— árangurlaust. Hávaðanum af samtalinu í saln- um linnti ekki hið minnsta, og frú Winsleigh spurði Thelmu, að því virtist með miklum á- huga, hvort náttúnufegurðin í Noregi væri ekki v töfrandi. Thelma kafroðnaði og eftir dálítið hik, sagði hún: Fyrirgefðu mér — en eg vildi helzt ekki segja neitt fyr en hljóðfæraslættinum er lokið. Það er ógerlegt fyrir mikinn píanóleikara að gera hugsunum sínum Og tækni nokkur skil nema það sé þögn. Væri ekki betra að biðja alla að hætta að tala meðan þessi herra leikur á hljóðfærið?” Clöru Winsleigh var skemmt. “Góða mín, þú þekkir ekki þetta fólk”, sagði hún ’hirðuleys islega. “Það héldi að eg væri gengin af vitinu ef eg kæmi upp með slíkt! Það eru alltaf fáeinir sem hlusta”. Einu sinni enn hélt píanóleikarinn höndun um í stellingum til að byrja — Thelma leit dá- lítið óánægjulega út. Beau Lovelace sá það, og brá á sitt ráð með það sama, hann snéri sér að hinnum masandi manngrúa, og rétti upp aðra hendina, og kallaði: “Gerið svo vel og gefið hljóð!” Fólkið hastaði undrandi hvað á annað, °g allt datt í dúnalogn—undarlega fljótt. Beau “Okkur langar til að heyra dálítinn 'hljóð- ^æra*^tt”, sagði hann ákaflega rólega, en bit urt. Samtalið getur haldið áfram á eftir”. Hann kinkaði svo glaðlega kolli til herra Machten- kiinken, sem eftir þessa uppörvun byrjaði eins °Æ Ve ®uPakestur á yndislegu forspili eftir opin. mátt og smátt eftir því sem hann lék lengur, breyttist hið slétta og dráttadaufa andlit hans og e göfugan, hugsandi, hrifningarsvip _'hin hvössu aug'u hans Urðu mild og dreym- andi, það sléttaðist úr hrukkunum á enni hans. og þegar hann mætti hinum bláu alvarlegu aug um Thelmu, brosti hann. Snerting nótnanna varð fínni og mýkri—eftir forspiiið tók við þýð og sérstaklega draumljúf “Nocturne”, sem hann lék af töfrandi snilld, og að síðustu ofur létt og leikandi tónverk, er varð þróttmikið og ang- urvært, og minnti á litfögur blóm er vaxa í öllu sínu dýrðlega skrúði á einmana og gleymdum gröfum. Víðfrægi hljómsnillingurinn hafði ________' fyllstu ástæðu til að þykjast af list sinnt hann va sannur meistari í sinni mennt—og þegar leik hans var lokið, var honum þakkað með há- væru og innilegu lófaklappi, sem Lovelace og Lorimer voru fyrstir til að koma af stað. Hann svaraði því með að hneigja sig djúpt eins og venjulegt er—en hið eiginlegasta og hjartfólgn asta þakklæti hans átti Thelma. Fyrir hana hafði hann tekið á allri sinni kunnáttu og snilld —og hann hafði séð tár í fögr'u augunum henn ar. Hann var eins stoltur af viðurkenningu hennar eins og hringnum sem hann hafði fer.g ið frá Rússa-keisara—og beygði sig djúpt yfir hvítu hendina sem hún rétti honum. “Þú hlýtur að vera mjög sæll, að finna til allra þessara yndislegu tóna í sál þinni!” sagði: hún. “Eg vona að eg sjái þig og heyri aftur eirr- hvern tima eg þakka þér mjög mikið fyrir þá ánægju sem þú hefir veitt mér!” “Lávarðsfrú Winsleigh sagði ekkert—og hlustaði á orð Thelmu með hálfgerðri fyrirlitn ingu. “Er manneskjan hálfviti?” hugsaði hún. “Hún 'hlýtur að vera það, annars væri hún ekki svona hlægilega hrifin og þakklát! Maður inn leikur vel á hljóðfæri—en það er íþrótt og atvinna hans að leika vel—það er heimskulegt að bera lof á þessa tegund fólks—það er aldrei þakklátt, og það þrengir sér upp á mann.” — Hátt spurði hún Philip barón: “Leikur barón essa Errington á hljóðfæri?” “Dálítið”, svaraði hann. “Hún syngur”. Undireins sögðu margar óeðlilega kurteisar raddir í kringum hljóðfærið—allar í einu. “Ó. syngdu ofurlítið, barónessa Errington! Gerðu svo vel að syngja eitt lag fyrir okkur!” Og herra Francis Lennox færði sig nær og horfði deyfðarlegu augunum á Thelmu, og sagði lágt, “Þú verður ekki svo harðbrjósta að neita 'okkur um slíka ánægju?” “Nei, auðvitað ekki!” svaraði hún, undr andi yfir þessari þrábeiðni. Eg er æfinlega glöð og fús til að syngja.” Hún dróg af sér löngu hvítu hanskana og settist við hljóðfærið án allrar tilgerðarlegrar undanfærslu. Hún leit síðan á Philip með ynd islegu brosi, og spurði, “Hvaða lag heldurðu að verði bezt, Philip?” “Eitt þessara gömlu Norsku fjallalaga”, svaraði hann. Hún lék stutt mjúkt forspil—það var svo þögult í salnum m^, að ekki heyrðist hið minnsta hljóð—allir tróðu sér sem næst hljóð- færinu—og störðu forvitnir og töfraðir á hið fagra andlit hennar og hið demantskrýnda, gullna hár hennar. Eitt augnablik—og rödd hennar skær, mjúk og þrungin af tilfinningu, hljómaði um salinn í allri sinni tónadýpt og ferska töfrablæ sem gagntók og 'hreif hvert einasta hjarta—og hinn heimski fólksgrúi gapti orðlaus, hreyfingar- laus, undrandi, og ringlaður. Svo þetta var bara f jallasöngur frá Noregi? Hvað hann var frum- lega einkennilegur, og frjáls og ferskur! hvað hann var dásamlega mikilfenglegur! George Lorimer stóð álengdar—hann verkjaði í augun af tárum sem ekki var leyfð útrás. Hann kannaðist vel við þetta lag—og fyrir hugskotsjónum hans reis hið einmanalega, mikilfenglega umhverfi Altenfjarðarhæðanna— ur sá hann Thelmu eins og hann hafði séð hana í fyrsta sinn—í hinum hvíta látlausa búningi að spinna í dimma útskotinu fyrir innan hinn rósumvafða glugga—aftur komu honum í hug orð hins látna dvergs, Sigurds, “Öðrum veitist það ef til vill að njóta sælunnar í fullum mæli —en fyrir þig hafa himnarnir ekkert inni að halda!” Hann horfði á hana nú—eiginkonu Philips—í öllum ljóma hins skrautlega og íburð armikla búnings—hún var yndislegri en nokk urn tíma áður, og hið hreina og saklausa hjarta lag hennar og lundarfar var enn óskemmt af ríkidæminu og munaðinum í kringum hana,- “Góði Guð! Hvílíkt Víti sem 'hún var komin í! hugsaði hann, alvarlegur. “Hvernig fer hún aí komast af við þetta fólk þegar hún fer að þekkja það? Van Clupps, Rush-Marvells, og annað fólk þeim líkt—og hvað Clöru Winsleigh snerti —”. Hann snéri sér við til að athuga lávarðs frúna vandlega. Hún sat mjög nálægt hljóðfærinu—hún horfði niður fyrir sig, en rúbinsteinarnir skreyttu barm hennar bifuðust títt og órólega. og hún fitlaði óþolinmæðislega við blævænginn sinn. “Mér kæmi ekki á óvart”, hélt hann áf alvarlega í huganum, “þó að hún væri að brugga einhverja hrekkvísi einhverjum til meins. Hún lítur þannig út.” Á því augnabliki, lauk Thelma við sönginn, og salurinn bergmálaði af lófaklappi. Herra Machenklinker var himinlifandi af hrifningu og aðdáun. “Þetta er guðdómleg rödd!” sagði hann með samúð og tilfinningaþunga, Hinn fagra söngkona var umkringd af tólki. “Eg vona”, sagði frú Van Clupp, með sinni vanalegu framgirni og menntunarskorti sem aldrei duldist þegar hún var að koma sér í mjúkinn hjá ríku aðalsfólki, “eg vona að þú heimsækir mig, barónessa Errington. Eg er 'heima á hverjum föstudagskvöldi til þess að taka á móti vinum mínum.” Professional and Business Directory -— —————* Offlce Phone Res. Phone 924 762 726 115 Dr. L. A. SIGURDSON 528 MEDICAL ARTS BLDG. Consultations by Appointment Thorvaldson Eggertson Bastin & Stringer Lögfrœðingai Bank of Nova Scotia Bldg. Portage og Garry SL Slmi 928 291 Dr. P. H. T. Thorlakson WINNIPEG CLINIC St. Mary’s and Vaughan, Winnipeg Phone 926 441 H. J. PALMASON CHARTERED ACCOUNTANT 505 Confederation Life Bldg. Winnipeg, Man. Phone 92-7025 Home 6-8182 J. J. Swanson & Co. Ltd. REALTORS Rental, Insurance and Financial Agents Sími 927 538 308 AVENUE Bldg. — Wlnnlpeg Dr. G. KRISTJAN SSON 102 Osborne Medical Bldg. Phonc 744)222 Weston Office: Logan & Quelch Phone 74-5818 — Res. 74-0118 ^ y CANADIAN FISH PRODUCERS Ltd. J. H. Page, Managing Director Wholesale Distributors oi Fresh and Frozen Fish "311 CHAMBERS ST. Office Ph. 74-7451 Res. Ph. 72-3917 Rovatzos Floral Shop 253 Notre Dame Ave. Ph. 932 934 Fresh Cut Flowers Dally. Plants in Season We specialize in Wedding and Concert Bouquets and Funeral Designs Icelandic Spoken ^ M. Einarsson Motors Ltd. Buying and Selling New and Good Used Cars Distributors for FRAZER ROTOTILLER and Parts Service 99 Osborne St. Phone 4-4395 A. S. BARDAL LIMITED selur likkistur og annast um útfarir. Allur úttoúnaður sá besti. Ennfremur selur hann allskonar minnisvarða og legsteina 843 SHERBROOKE ST. Phone 74-7474 Winnipeg ---V The BUSINESS CLINIC (Anna Larusson) 216 AVENUE BUILDING OFFICE: 92-7130 HOME: 93-2250 Bookkeeping, Income Tax, Insurance j Union Loan & Investment COMPANY Rental, Insurance and Finandal Agents Simi 92-5001 508 Toronto General Trusts Bldg. ~ \ Halldór Sigurðdson & SON LTD. ~ Contractor & Builder • 526 ARLINGTON ST. Sími 12-1212 ^ MALLON OPTICAL 405 GRAHAM AVENUE Opposite Medical Arts Bldg. TELEPHONE 927 118 Winnipeg, Man. COURTESY TRANSFER & Messenger Service Flytjum kistur, töskur, húsgögn, píanós og kæliskápa önnumst allan umbúnað á smásend- ingum, ef óskað er. Allur fltuningur ábyrgðstur Sími 526 192 1096 Pritchard Ave. Eric Erickson, eigandi FINKLEM AN OPTOMETRISTS and OPTICIANS Kensington Building 275 Poruge Ave. Winnipeg PHONE 92-2496 > , BALDWINSON’S BAKERY 749 Ellice Ave., Winnipeg (milli Simcoe & Beverley) Allar tcgundir kaffibrauðs. Brúðhjóna- og afmæliskökur gerðar samkvæmt pöntun Sími SUnset 3-6127 Vér verzlum aðeins með fyrsU flokks vörur. Kurteisleg og fljót afgreiðsla. TORONTO GROCERY PAUL HALLSON, eigandi 714 Ellice Ave. Winnipeg TALSIMI SUnset 3-3809 j GRAHAM BAIN & CO. PUBLIC ACCOUNT ANTS and AUDITORS 874 ELLICE AVE. Bus. Ph. 74-4558 Res. Ph. 3-7390 : Off. Ph. 74-5257 700 Notre Dame Ave. Opp. New Matemity Hospital NELL’S FLOWER SHOP Wedding Bouquets, Cut Flowers Funcral Designs, Corsages Bedding Plants Mrs. Albert J. Johnson Res. Phone 74-6753 J. WILFRID SWANSON & CO. Insurance in all its branches. Real Estate — Mortgages — Rentals 210 POWER BUILDING Telephone 937 181 Res. 403 480 LET US SERVE YOU ( \ DENTIST Dr. HAROLD L FLEISCHMAH AT ARBORG—Every Tues. & Wed. Phone 7-6342 WINNIPEG—807 Henderson Hwy., EAST KILDONAN, MAN. Phone EDison 0834 GILBARTFUNERAL HOME - SELKIRK. MANITOBA - J. Roy Gilbart, Licensed Embalmet PHONE 3271 - Selkirk L l Hafið H0FN í Huga ICELANDIC OLD FOLKS HOME SOCIETY — 3498 Osler Street — Vancouver 9, B. C. Phone 223 D. R. OAKLEY, R.O. OPTOMETRIST Vision Specialist — Eyes Examined Arborg, Tuesdays Centre Street, GIMLI, Man. ---------------^ GUARANTEED WATCH, & CLOC.K REPAIRS SARGENT JEWELLERS H. NEUFELD, Prop. Watches, Diamonds, Rings, Clocks, Silverware, China t 884 Sargent Ave. Ph. SUnset 3-3170 —■———'—

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.