Heimskringla - 05.10.1955, Side 3
WINNIPEG 5. OKTÓBER 1955
HEIMSKRINGLA
3. SÍÐA
'þjóðarbrotsins hér vestra. Yfir-
lætislaus og sönn trú mótaði
framkomu hans alla, samfara
drenglyndi jafnt í prívat lífi
sem félagslegri afstöðu. Hann
átti glöggan skilnað á réttri með
höndlun mála á mannfundum
Þessvegna var hann svo affara-
sæll samverkamaður á kirkju-
og þjó'ðræknisþingum og öðrum
mannfundum. Kýmnisgáfu átti
hann í ríkulegum mæli, en beitti
hennijafnan með stillingu og
varúð. Hann var hugljúfur félagi
og samverkamaður sem gott var
að kynnast og ljúft að eiga sam-
leið með, skapfestan mild og
máttug. Ást hans á íslenzkum
erfðum og íslenzku máli og órofa
fastheldni við hvorttveggja var
bygð á djúpri aðdáun og næmurn
skilningi, er gekk tilbeiðslu
næst. Hann var maður víðlesin,
átti ágætt bókasafn, átti mörg
hugðarefni og var víða heima;
minnið var staðgott og trygt.
Hana var einkar ljóðelskur og
kunni ógrynni ljóða jafnt enskra
sem íslenzkra. Oft naut fólk
þess að hann las upp ljóð á mann-
fundum utanbókar. 1 daglegu
tali kryddaði hann oft ræðu sína
með gullkornum úr formálinu—
jafnt og úr ljóðum nútíðar-
skálda. Hann átti djúp ítök í sál-
um samferða manna sinna sökum
skilnings og innsýni á duldum
rökum í reynzlu og lífi manna—
lærisveins lunderni hans gerði
honum ókleyft að ganga á hag
annara manna eða nota hin beittu
brögð—sem óf mjög tíðkast í
viðskiftum og samlífi manna.
Þorsteinn hafði verið lasinn
að heilsu í meira en tvö ár, naut
hann þá sem ávalt frábærrar uiií-
önnunar Lovísu konu sinnar.
Hann var alvarlega veikur þrem-
ur vikum áður en hann dó. Harin
andaðist á sjúkrahúsi í Morden,
þann 19. júlí. Útförin fór fram
þann 22. s.m. Við útförina var
lesið ávap frá vini hins látna—
og um langa hríð sóknarpresti
og samverkamanni hans, dr. Har-
aldi Sigmar, er var hindraður
frá að vera við útförina lasleika
vegna. Einnig mælti sóknarprest
ur umhverfisins, nágranni hins
látna kveðjuorð. Undirritaður
stjórnaði athöfninni og flutti
kveðjumál. Hartnær 300 manns
mun hafa verið viðstatt útförina.
Ástvinir Þorsteins J. Gíslasonar,
ásamt fjölmennum hópi frænda-
liðs, samherja og vina tileinka
honum og helga minningu hans
orð skáldsins:
"Vertu sæll, við SÖknum þírí’
S. Ólafsson
blood bank
THIS
SPACE
CONTRIBUTED
B Y
Drewrys
manitoba
DIVISION
WESTERN
CANADA
BREWERIES
L I M I T E D
Thelma
(RAGNAR STEFÁNSSC'N ÞÝDDI)
“Ójá,” sagði Thelma, blátt áfram. “En eg er
nú ekki vinkona þín ennþá! Þegar við þekkjumst
betur skal eg koma. Við munum sjást oft fyrst—
og þá geturður séð hvort þú munir vilja að eg
sé vinkona þín. Er ekki svo?”
Illa dulin bros sáust á andlitum allra sem
heyrðu þetta tilgerðarlausa en ákveðna svar við
heimboði Van Clupps, þar sem frúin sjálf varð
dálítið auðmýktarleg, og vissi ekki hverju hún
átti að svara. Þessi norksa stúlka vissi auðsjáan
lega ekki, eða var algerlega ókunnugt um
kurteisissiði, samkvæmislífsins, annars hefði
hún vitað og þekkt þá staðreynd að “heimboð"
átti ekkert skylt við sanna vináttu auk þess,
hvað vináttu snerti, hafði ekki frú Van Clupp
forsmáð marga af sínum nánustu ættingjum og
fornkunningjum vegna þeirrar mjög skynsam-
legu ástæðu að hún hafði auðgast en þeir höfðu
lent í fátækt? En nú kom frú Rus'h-Marvelle
í allri sinni mekt og virðuleik. Henni fannst að
hún hefði þau einkaréttindi að hún mætti leggja
handlegginn yfir um mitti Thelmu.
“Þú mátt til með að heimsækja mig, góða
mín”, sagði hún með falslausri velvild—móður-
legar tilfinningar höfðu vaknað í brjósti henn-
ar gagnvart þessari stúlku sökum fegurðar
hennar og sakleysis — “Eg þekkti Philip þegar
hann var ungur drengur. Hann getur sagt þér
hvað eg er hræðileg kerling! Þú verður að reyna
að láta þér þykja örlítið vænt um mig hans
vegna.”
Thelma brosti yndislega. “Mig mun alltaf
langa til að láta mér þykja vænt um vinafólk
Philips”, sagði hún, hreinskilnislega. “Eg vor.a
að þér geðjist að mér!”
Frú Rush-Marvelle fékk iðrunar og ásök-
unarsting í hjartað þegar hún minntist þess
hversu treg hún 'hafði verið, og hvað mikla óbeit
hún hafði haft á því að þurfa að kynnast hinni
“lágættuðu” eiginkonu Philips—hún hikaði—
en lét svo stjórnast af hlýjum augnabliks-áhrif-
um, og dróg stúlkuna nær sér og kyssti hir.a
yndislega björtu kinn hennar. “Öllum geðjast
vel að þér, barnið mitt,” sagði hún, einlægnis-
lega. “Philip er gæfumaður! Eg ætla að bjóða
góða nótt, því það er orðð framorðið. —Eg
skrifa þér 4 morgun og ákveð dag sem eg mætt’
eiga von á þér í hádegisverð.”
“En þú verður einnig að koma í heimsókn
til okkar Philips”, svaraði Thelma, og þrýsti
hönd hennar.
“Eg geri það—eg geri það!” Frú Rush-Mar
velle hneigði höfuðið, ljómandi af ánægju, og
lagði leið sína, til frú Winslegh, og sagði, “Góða
nótt, Clara! Þökk fyrr mjög yndislegt kvöld!”
“Clara setti upp ólundarsvip. “Ertu að
fara undireins, Mimsey?” spurði hún—svo
bætti hún við í lægri róm, “Jæja! hvert er álit
þitt á henni?”
“Hún er yndislegt barn—annað ekki!” svar
aði frú Marvelle—svo virti hún, með alvarlegri
athygli fyrir sér hið litfagra, harðlega andlit
dökkhærðu konunnar fyrir framan hana, og
bætti við í mjög lágum róm. “Láttu hana í friði,
Clara—gerðu hana ekki óhamingjusama! Þú
veizt hvað eg á við! Hrein og viðkvæm lund
og saklaust hjartalag er veikt fyrir óverðskuld-
uðum árásum og aðköstum!”
Clara hló hörkuiega og lék sér að blævængn
um sínum. "Hamingjan góða, Mimsey! Þú ert
alveg óþolandi! Heldurðu að eg sé einhver ó-
vættur sem ætli að gleypa hana? Þvert á móti,
eg ætla að vera vinkona 'hennar.”
Frú Marvelle var ennþá alvarleg. “Mér
þykir vænt um að heyra það”, sagði hún; “bara
sumir vinir eru hættulegri en svarnir óvinir.”
Frú Winsleigh yppti öxlum. “Farðu heim,
Mimsey—farðu heim í rúmið!” sagði hún, óþol
inmæðislega. “Þú ert full af grillum! Eg hata
viðkvæmnisleg spakmæli og heimspekilega
orðskviði!” Hún hló aftur, og setti upp hálf-
gerðan iðrunarsvip. “Svona nú! Eg ætlaði ekki
‘ð vera ókurteis! Góða nótt, kæra gamla vina!”
póða nótt, Clara!” og frú Marvelle hafði
upp á manni sínum í einu horni salsins, þar
sem hann hafði verið meira og minna í felum,
og kvaddi samkva»mið með tign og virðuleik.
Margir af gestunum voru að fara niður til
kvöld- eða miðnættisverðar um það leyti, en
Philip barón var þreyttur af hitanum, ljósadýrð
inni og hávaðanum og hvíslaði að Thelmu ein-
hverju á þá leið hann vildi fara að hugsa
til heimferðar, og hún bjóst undireins til að
kveðja frú Winsleigh.
‘ “Viltu ekki neina hressingu?” spurði frúin.
“Farðu ekki undireins!” En Thelma var ákveðin
í því að letja ekki mann að fara ef hann óskaði
þess—og þar sem frú Winsleigh sá að mótbárur
höfðu engin áhrif, bauð hún þeim góða nótt
mjög alúðlega. “Við verðum að sjást oft og
kynnast mikið!” sagði hún, og þrýsti hönd
Thelmu hlýlega. “Eg vona að við verðum mjög
miklar vinkonur!”
“Eg þakka!” sagði Thelma. “Eg vona það
líka, ef þú óskar svo mikið eftir því. Góða nótt.
Winsleigh lávarður!”
“Lofaður mér að fylgja þér út að vagnin-
um”, sagði hinn göfugi gestgjafi, og bauð henni
handlegg sinn.
“Og lofaðu mér að fylgjast með,” bætti
Beau Lovelace við, og slóst í för með Erring-
tcn, og hvíslaði að 'honum, “hvernig dirfistu að
vera svona ósegjanlega hamingjusamur í þess-
um ömurlega og syndumspillta heimi?” Er-
rington hló—og þessi litli hópur var rétt kominr.
fram að dyrum samkvæmissalsins þegar Thelma
snéri sér skyndilega við.
“Hvar er herra Lorimer?” sagði hún. “Eg
gleymdi að bjóða honum góða nótt, Philip!”
“Hér er eg, barónessa Errington”, Lorimer
kom í hægðum sínum með fremur óeðlilegu j
brosi—brosi sem hvarf alveg, svo að andlit hans
varð óvenjulega dregið og fölt, þegar hún rétt:
fram höndina, og sagði hlæjandi:
“Þú óútreiknanlegi herra Lorimer! Hvar
varstu?’Þú veizt að mér hefði leiðst það ef eg
hefði ekki boðið þér góða nótt. Já, þú ert
hirðulaus bróðir!”
“Komdu heim með okkur, George”, sagði
Philip barón, ákafur. “Þú verður nú góður
drengur og gerir það!”
“Eg get það ekki, Phil!” svaraði Lorimer
með nálega viðkvæmum ákafa. “Eg get það ekki
í kvöld—það er alveg satt! Beiddu mig þess
ekki!” Hann þrýsti hönd vinar síns innilega—
og mætti síðan djarflega brosandi augnaráði
Thelmu. “Fyrirgefðu mér!” sagði hann. “Eg
veit að eg hefði átt að gefa mig meira fram i
kvöld—eg er hræðilega seinlátur, og latur ná-
ungi, eins og þú veizt! Góða nótt!”
Thelma horfði á 'hann grandgæfilega. “Þú
lítur út fyrir að vera—eins og þú segir stundum
sjálfur—ekki vel upplagður!’ sagði hún. “Alls
ekki vel útlítandi. Mundu eftir að koma til okk-
ar á morgun!”
Hann lofaði því—og fylgdist síðan með
þeim út að vagninum—hann og Beau Lovelace
hjálpuðust að því að hlúa að Thelmu með loð-
íeldinum, og voru seinastir að kveðja Philip
með handabandi áður en hann settist við hlið
konu sinnar og kallaði til ökumannsins að keyra
heim. Það var hlýtt og stjörnubjart kvöld—og
þegar Lorimer og Lovelace fóru aftur inn í Win
sleigh höllina, horfði Beau út undan sér á 'hinn
þögula félaga sinn. “Hugrakkur náupgi!” hugs
aði hann; “mér er nær að halda að hann hrædd
ist ekki dauða sinn. Kvalir og píningar toguðn
aldrei leyndarmál hans út úr honum.”
Upphátt sagði hann: “Heyrðu, erum við
ekki búnir að fá nóg af þessu? Við skulum ekki
hafa kvöldverð hér—ekkert nema undirstöðu-
litlar kökur og rauðvíns glas, það hræðilega gutl
mundi gera mig veikan. Komdu heldur með mér
í klúbbinn”.
Lorimer var því innilega samþykkur—þeir
náðu í yfirhafnir sína hjá hinum stimamjúka
Briggs, gáfu honum ríflegt þjórfé, og fóru leið
ar sinnar.
Það síðasta sem þeir sáu bregða fyrir í
Winsleigh samkvæminu um leið og þeir fóru
var Marcia Van Clupp sem sat á einu stigaþrep-
inu, og var að gæða sér á köldum bringubita af
hænsni—þar sem hinn gæflyndi Masherville lá-
varður stóð á næsta þrepi fyrir ofan hana, og
varð að láta sér nægja gult ávaxtamauk. Hann
hafði ekki getað náð í neitt annað handa sjálf-
um sér, því að hann hafði orðið skelkaður af þvi
að heyra feitan náunga við annan enda borðsins
sem veizluréttirnir stóðu á, hrópa “Kvennfólk
gengur fyrir”, en sá hinn sami hafði þegar laum
að fimm diskum af allskonar góðgæti í horn
bak við gluggatjald, er hann ætlaði sjálfum sér.
Meðan þessu fór fram dróg Philip barón
konu sína að sér, stoltur, ánægður, og sigri hrós
andi, og faðmaði hana að sér meðan þau óku
beimleiðis og sagði,
“Þú varst drotning kvöldsins, ástin mín!
Skemmtirðu þér vel?”
“Ó, eg kalla það ekki að njóta skemmtunar!”
svaraði hún. “Hvernig er mögulegt að njóta
nokkurs meðal svo margs ókunnugs fólks?”
“Jæja, hvað er það?” sagði hann, hlæjandi.
Hún hló líka. “Eg veit sannarlega ekki hvað
það er!” sagði hún. “Eg hefi aldrei séð neitt
því líkt áður. Mér virtist eins og allt fólkið
væri á einhverskonar sýningu af einni eða ann-
ari ástæðu. Og herramennirnir litu sannarlega
þreytulega út—það var ekkert handa þeim að
gera. Jafnvel þú, vinur minn, þú geispaðir nokkr
um sirinum! Vissurðu af því?”
Philip hló, meira en áður. “Eg vissi ekki af
því, yndið mitt!” svaraði hann; “en eg er ekk-
ert hissa á því þó svo hafi verið. Langir og tíðir
geispar eru undantekningarlítið eini árangurinn
af þessum heimboðum. Geðjast þér vel að Beau
Lovelace?”
“Mjög vel”, sagði hún, hiklaust. “En Phil-
ip, mig myndi ekki langa til að eiga eins marga
vini eins og frú Winsleigh. Eg hélt að vinir
væru sjaldgjæfir?”
“Þeir eru það líka! Henni er nákvæmlega
sama um þetta fólk. Það er aðeins málkunningj
ar hennar.”
Professional and Business
—===== Directory =
Office Phone Res. Phone 924 762 726 115 Dr. L. A. SIGURDSON 528 MEDICAL ARTS BLDG. Consultatlons by Appointment Thorvaldson Eggertson Bastin & Stringer Lögfrœðingar Bank of Nova Scotia Bldg. Portage og Garry St Sími 928 291
Dr. P. H. T. Thorlakson WINNIPEG CLINIC St. Mary’s and Vaughan. Winnipeg Phone 926 441 H. J. PALMASON CH.4RTERED ACCOUNTANT 505 Confederation Life Bldg. Winnipeg, Man. Phone 92-7025 Home 6-8182
J. J. Swanson & Co. Ltd. REALTORS Rental. Insurance and Financial Agents Sími 927 538 308 AVENUE Bldg. — Wlnnipeg —V Dr. G. KRISTJANSSON 102 Osborne Medical Bldg. Phone 74-0222 Weston Office: Logan & Quelch Phone 74-5818 - Res. 74-0118
CANADIAN FISH PRODUCERS Ltd. J. H. Page, Managing Director Wholesale Distributors oi Fresh and Frozen Fish 311 CHAMBERS ST. Office Ph. 74-7451 Res. Ph. 72-3917 Rovatzos Floral Shop 253 Notre Dame Ave. Ph. 932 934 Fresh Cut Flowers Daily. Plants in Season We specialize In Wedding and Concert Bouquets and Funeral Designs Icelandic Spoken
' ”V M. Einarsson Motors Ltd. Buying and Selling New and Good Used Cars Distributors for FRAZER ROTOTILLER and Parts Service 99 Osborne St. Phone 4-4395 A. S. BARDAL LIMITED selur líkkistur og annast um útfarir. Allur úifcúnaður sá bestl. Ennfremur selur hann allskonar minnisvarða og legsteina 843 SHERBROOKE ST. Phone 74-7474 Winnipeg
' 1 The BUSINESS CLINIC (Anna Larusson) 216 AVENUE BUILDING OFFICE: 92-7130 HOME: 93-2250 Bookkeeping, Income Tax, Insurance Union Loan & Investment COMPANY Rental, Insurance and Finandal Agents Sími 92-5001 508 Toronto General Trusts Bldg.
Halldór Sigurðsson & SON LTD. Contractor & Bullder • 526 ARLINGTON ST. Sími 72-1272 V—
MALLON OPTICAL 405 GRAHAM AVENUE Opposite Medical Arts Bldg. TELEPHONE 927 118 Winnipeg, Man.
COURTESY TRANSFER
& Messenger Service
Flytjum kistur, töskur, húsgögn,
píanós og kæliskápa
önnumst allan umbúnað á smáscnd-
ingum, ef óskað er.
Allur fltuningur ábyrgðstur
Sími 526 192 10% Pritchard Ave.
Eric Erickson, eigandi
1
FINKLEMAN
OPTOMETRISTS
and
OPTICIANS
Kensington Building
275 Portage Ave. Winnipeg
PHONE 92-2496
—--~ ~ ■ ■ ■ ■
BALDWINSON’S BAKERY
749 Ellice Ave., Winnipeg
(milli Simcoe & Beverley)
Allar tegundir kaffibrauðs.
Brúðhjóna- og afmæliskökur
gerðar samkvæmt pöntun
Sími SUnset 3-6127
Vér verzlum aðeins með fyrsta
flokks vörur.
Kurteisleg og fljót afgreiðsla.
TORONTO GROCERY
PAUL HALLSON. eigandi
714 Ellice Avc. Winnipeg
TALSIMI SUnset 3-3809
i
GRAHAM BAIN & CO.
PUBLIC ACCOUNTANTS and
AUDITORS
874 ELLICE AVE.
Bus. Ph. 74-4558 _Res. Ph. S-7390
Off. Ph. 74-5257 700 Notre Dame Ave.
Opp. New Matemity Hospital
NELL’S FLOWER SHOP
Wedding Bouquets, Cut Flowers
Funeral Designs, Corsages
Bedding Plants
Mrs. Albert J. Johnson
Res. Phone 74-6753
J. WILFRID SWANSON
& CO.
Insurance in all its branches.
Real Estate — Mortgages — Rentals
210 POWER BUILDING
Telephone 937 181 Res. 403 480
LET US SERVE YOU
DENTIST
Dr. HAR0LD L FLEISCHMAN
AT ARBORG—Every Tues. & Wed.
Phone 7-6342
WINNIPEG—807 Henderson Hwy.,
EAST KILDONAN, MAN.
Phone EDison 0834
.W
GILBART FUNERAL
HOME
- SELKIRK, MANITOBA -
J. Roy Gilbart, Licensed Embalmer
PHONE 3271 - Selkirk
S.-
Hafið HÖFN í Huga
ICELANDIC OLD FOLKS
HOME SOCIETY
l
— 3498 Osler Street —
Vancouver 9, B. C.
__^
&—;—
Phone 223
D. R. OAKLEY, R.O.
OPT OMETRIST
Vision Spccialist — Eyes Examined
Arborg,
T uesda vs
Centre Street,
GIMLI, Man.
~r>
GUARANTEED WATCH, & CLOC.K
REPAIRS
SARGENT JEWELLERS
H. NEUFELD, Prop.
Watches, Diamonds, Rings, Clocks,
Silverware, China
884 Sargent Ave.
Ph. SUnset 3-3170