Heimskringla - 26.10.1955, Blaðsíða 3
WINNIPEG, 26. OKT. 1955
HEIMSKRINGLA
3. SÍÐA
6tétta.
En stefna Peróns í efnahags-
tnálum misheppnaðist. Er hann
tók við völdum í Argentínu, var
þar mikil velmegun, en það verð
ur ekki lengur um landið sagt
Allt gekk þetta þó vel fyrir hon
um, meðan hann gat stutt sig við
verkalýðinn og herinn var hon-
um hollur. En þegar hann hafði
uppi áform um að láta velja konu
sína sem vara-forseta árið 1951,
var hernum nóg boðið. Auðuga
landeigendur fékk hann á móti
sér með því, að ihann talaði um
að skipta jarðeignum í landinu,
og að lokum var hann kominn í
deilu við kaþólsku kirkjuna, en
hún getur oft verið þægileg til
stuðnings, en hættuleg sem and
stæðingur.
í nóvember í fyrra ásakaði Per
ón nokkra biskupa um að hafa
rekið áróður gegn stjórninni, 80
prestar voru handteknir, og mik
il ólga brauzt út í landinu. Stjórn
in greip inn í rétt kirkjunnar til
uppfræðslu, miklar mótmæla-
göngur voru farnar í landinu og
nokkrum prelátum var vísað úr
landi. Hinn 16 júní í vor lýsti
páfinn alla þá í bann, sem staðið
hefðu að brottrekstri kirkjunnar
manna .Sama dag gaus upp bylt
ingin gegn Perón, en honum
tókst í það skipti að hafa yfir-
höndina.
Hvað nú tekur við, vita menn.
ekki enn. Fram til þessa hafa for
ingjar úr hernum staðið á odd-
inum, en varla verður séð, hvaða
þjóðfélagsöfl helzt standa að
baki þeim, þó má telja líklegt,
að þeir styðjist fremur við eigna
menn, kirkju og her landsins.
Það þarf þó ekki að merkja neina
breytingu á stjórnarfari lands-
ins. f Suður-Ameríku fer stjórn
arfarið ekki eftir flokksstefnum
Iheldur fyrst og fremst því, hver
mestu ræður hverju sinni. Þar
eru stjórnmálin því tíðum kapp-
hlaup um völdin og markast
mjög af henti stefnu einstakra
manna. Að þessu sinni hefir Lon
ardi hershöfðingi unnið þetta
kapphlaup, og má á næstunni bú-
ast við, að í Argentínu verði ein-
ræði hershöfðingjanna. Slíkt er
þó engin ný bóla þar í landi- —
Hafa margir hershöfðingjar far-
ið þar með völd, allt síðan José
Uriburu steypti af stóli Irigoyen
forseta 1930. En hvaða afleiðing
ar sem þetta annars kann að haf.i
þá gefst nú ýmsum þeim flokk
um, sem bannaðir hafa verið í
stjórnartíð Peróns, tækifæri íil
að endurskipUieggja starfsemi
sína.
T H I S
SPACE
CONTRIBUTED
BY
WINNIPEG
BREWERY
l. I M I T E O
Thelma
(RAGNAR STEFÁNSSC*N ÞÝDDI)
Og furðu gegnir það, annars, hvað sumum
Ameríku mönnum finnst það mikið í munni að
rekja ætt sína til þessara náunga! Van Clupp
fjölskyldan var auðvitað ekki bezta tegund
ameríkumanna, langt frá því — hún var af þeim
flokki, sem, sökum þess að hún var rík, dæmdi
allt og mældi allt og alla á peningalegan mæli-
kvarða, og leit á jafnvel óhjákvæmilega fátækt
með megnustu fyrirlitningu. Vesalings Van
Clupp! Það var stundum brjóstumkennanlegt
að sjá hvað hann reyndi mikið til að vera fínn
herramaður—reyndi svo mikið að apg móðinn og
fylgja háttum og siðum aðalsfólksins, að hanr.
gerði sig að hjákátlegu og hlægilegu skrípi.
Hkmn tróð svo miklu af dýrum húsmunum inn í
stórhýsi sitt að það var eins og sýningardeild
í stærri húsgagnaverzlun—við tedrykkjur var
notaður dýrasti “Sevres borðbunaður, þott all-
an smekk og þekkingu skorti til þess að meta
slíka Ihluti. Hann hlóð verðmætum fatnaði og
ósmekklegum skartgripum utan á konu sína
og dóttur, og lét taka mynd af sér í sömu stell-
ingum og hertoginn af Wrigglesbury hafði gert
þegar hans hátign hafði setið fyrir hjá sama
myndasmið! Það var kostulegt að heyra hann
miklast og raupa af sínum pílagríms-forföður—
og í sömu andránni tala með ósvífni og napurri
fyrirlitningu um visst “aðalborið beiningafólk’’
sem var komið út af “Coeur de Lion”! En af því
að Errington-ættin var, auðug jafnframt því að
vera af háum aðli, kraup Van Clupp fyrir Philip
í ógeðslegri auðmýkt, og smjaðraði fyrir
Thelmu með væmniskenndu látbragði—sem gat
þó ekki breitt yfir frekjuna, ruddaskapinn, og
fáfræðina sem voru sterkustu þættirnir í skap-
ferli hans og framkomu; þarflaust er að geta
þess að slíkar lyndiseinkanir og framkoma áttu
ekki við Thelmu, og féll lítt á með þeim. Það
voru aðrir einnig, gróðasjúkir Ameríkumenn,
með endalaust skrum og látlausár íhólræður,
sem angruðu hina hreinu og einlægu lund
hennar—sem var eins fersk og tær eins og vind
urinn sem blés á hennar eigin Norsku fjöllum.
Einn af þessum var herra Francis Lennox, þessi
ungi heldri maður, sem fylgdi ströngustu París-
artízku í klæðaburði, og aldrei virtist hafa neitt
sérstakt fyrir stafni—hún hafði óbeit á honum
—meira þó af eðlishvöt, en að hún hefði veru-
legt tilefni til þess. Hann var hæverskan sjálf
Og lagði sig í líma til þess að þóknast (henni á
allan hátt; þó fannst henni hin brúnu rándýrs-
augu hans hvíla jafnan á sér—hann virtist alltaf
vera við hendina, reiðubúinn að rétta henni te-
bolla, sækja fyrir hana herðaslæðu—finna stól
handa henni—halda á blævængnum hennar —
íhann var stöðugt á verði eins og sérstaklega vel
vaninn húsþjónn. Hún gat ekki, án þess að
beita ókurteisi, haft á móti svona meinlausri og
auðmjúkri hugsunarsemi, og þó hafði hún alltaf
einhvert ógeð á því öllu, hún gat samt ekki
gert sér ljósa grein fyrir af hverju það kom.
Hún hætti á að minnast á það við vinkonu sína,
frú Winsleigh, að sér geðjaðist ekki að vini
hennar, sem hlustaði á hinar feimnislegu athuga
semdir hennar með svip sem ekki var sem við-
feldnastur.
“Vesalings herra Francis!” sagði hún mcö
dálitlum uppgerðarhiátri. “Þetta er nú svo ríkt
í eðli hans að haga sér svona! Taktu þér það
ekki nærri, Thelma! Hann er ekki hættulegur!
Það er aðeins hans aðferð til að kynna sig vel!”
George Lorimer hafði flúið af hólmi
snemma á þessu samkvæmistímabili í London,
og farið til Parísar til þess að dvelja hjá Pierre
Duprez.
Honum fannst það hættulegt að ganga i
berhögg við freiátinguna of oft, því að hann
vissi í sínu einlæga og göfuga hjarta að ást
hans til Thelmu óx í hvert skifti sem hann sá
hana—svo að hann forðaðist hana. Hún saknaði
hans mjög mikið úr hópi sinna nánustu vina,
°g fór oft að finna móður hans.
Frú Lorimer, sem va rein af allra elskuleg-
ustu gömlum konum sem hægt var að hugsa sér
—hafði undireins gizkað á þetta leyndarmál
sonar síns, en eins og hver önnur várkár og göf-
ug kona, gerði hún það engum uppskátt. Það
Voru mjög fáar ungar konur eins fallegar og
töfrandi eins og hin aldurhnigna frú Lorimer,
með snjóhvíta fallega hárið og mildileg blá
augu, rödd hennar var eins glaðleg og fjörg-
andi eins og þrastarsöngur á vorin. Næst frú
Winsleigh, fell Thelmu bezt við hana af öllum
sínum nýju vinum, og þótti mjög gaman að heim
sækja hana í litla kyrláta húsinu hennar í Kens-
ington—því þar var allt svo yndislega rólegt
að það virtist eins og friðsæl höfn og hvíldar-
staður frá öllu hafróti hefðbundinnar tizku hins
auðvirðilega og tilgangslausa samkvæmislífs
aðalsfólksins.
Og Thelma þarfnaðist oft hvíldar. Eftir
því sem lengra leið á hið setta tímabil skemmt-
analífsins, fannst henni hún einkennilega
þreytt og niðurdregin. Þessir lifnaðarhættir sem'
hún var neydd til að fylgja og taka þátt í voru
svo fjarlægir eðli hennar—þeir voru svo yfir-
borðslegir og þvingandi—og hún var oft langt
frá því að vera í góðu ásigkomulagi. Hvers-
vegna? Já, hversvegna! Hún reyndi allt sem
í hennar valdi stóð—en hún eignaðist óvini alls-
ctaðar. Og aftur mætti spyrja hversvegna? Af
því að hún hafði þann ihættulega og óvinsæla
sið að segja alltaf sannleikann afdráttarlaust—
og hún komst að því smátt og smátt, að mörgu
fólki fannst hún koma undarlega fyrir — og að
aðrir virtust hræddir við hana—og henni barst
stöðugt til eyrna að hún væri álitin sérvitringur.
Svo hún varð ennþá fálátari—jafnvel kuldaleg
—hún lét sér lynda að láta aðra stæla um smá-
muni og láta í ljósi heimskulegar skoðanir, án
þess að gefa því mikinn gaum eða láta uppi
sitt eigið álit á neinu.
Smám saman byrjaði fyrsti skugginn að
falla á hið hamingjusama hjónaband hennar.
Það leiddi einhvern veginn af sjálfu sér þegar
hún og maður hennar voru ekki alveg eins
mikið. saman, félagslífið með öllum sínum skyld
um og kvöðum hafði eðlilega aðskilið þau dá-
lítið, en nú var það stjórnmálaleg metorðagirnd
sem aðskildi þau ennþá meira. Nokkrir velvilj-
aði vinir höfðu lagt að Philip að bjóða sig fram
til þingmennsku, þessi hugiftynd hafði ekki fyrr
náð tökum í huga hans, en hann fylltist sríögg-
íega miklum ákafa, og ákvað að hann hefði allt-
of lengi verið óákveðinn og áhugalaus og ekki
sett sér neitt ákveðið takmark í lífinu—og tak-
mark varð hann að hafa til þess að geta unnið
sér eitthvað til virðingar og frama konu sinnar
vegna. Þessvegna kvaddi hann einkarritara sinn
Neville, tafarlaust sér til aðstoðar, og tók að
sökkva sér með miklum áhuga ofan í hina marg-
þættu stjórnmálaflækju Breta; hann lokaði sig
inni í bókhlöðu sinni dag eftir dag, og las allt
sem hönd á festi viðvíkjandi brezkum stjórn-
málum—skrifaði bréf og svaraði bréfum, og
safnaði nafnalistum—og gekk að þessu með svo
miklum ákafa að hann gleymdi öllu öðru—jafn-
vel ást sinni á Thelmu—sem þó var óbreytt og
hrein og djúp eins og áður.
Ekki það að hann vanrækti hana, hann var
aðeins uppteknari við aðra hluti. Svo að það
leiddi af sjálfu sér að hún fann sárt til ólýsan-
legs tómleika og saknaðarkenndar—fann jafn-
vel meira til þess hugarástands þegar hún var
umkringd af vinum heldur en þegar hún var
ein—og á þessum yndislega tíma ársins á Eng-
landi, júnímánuði, varð hún daufleg og afskifta
laus og augun hennar fylltust oft snögglega af
tárum. Hin litla, trygga og athugula Britta, fór
að veita þessu eftirtekt og brjóta heilann um
ástæðuna fyrir þessari breytingu í útliti hús-
móður sinnar.
“Það er þessi hræðilega borg London”.
hugsaði Britta. “Hér er svo heitt og mollulegt—
ekkert ferskt loft handa henni. Allir þessir
dansar og samkvæmi og leikhúsferðir—engin
undur þó að hún sé úttauguð.” En það var eitt-
hvað meira en þreyta sem olli því að augnaráð
Thelmu var oft svo angurvært og kvíðafullt
Einn dag var hún svo viðutan og undarleg að
Britta fann til sárustu meðaumkvunar, hún
veitti henni nána eftirtekt nokkra stund án þess
að reyna að segja nokkuð. Að lokum fékk hún
hugrekki til að segja;
“Fröken!” hún þagnaði. — Thelma virtist
ekki heyra til hennar. — “Fröken, hefir eitt-
hvað komið fyrir sem hefir valdið þér leiðinda
eða angurs í dag?’
Thelma hrökk við og leit upp, kvíðvænlega.
Valdið mér leiðinda eða angurs” — hafði hún
upp eftir henni. “Nei, Britta— því spyrðu að
því ?”
Þú lítur mjög þreytulega út, kæra frök-
en,” hélt Britta áfram, blíðlega. “Þú ert ekki
eins fjörleg og vel útlítandi eins og þegar þú
fyrst komst til London.”
Varir Thelmu titruðu. “Mér—mér líður ekki
vel, Britta”, sagði hún lágt og skyndilega missti
hún stjórn yfir tilfinningum sínum, og brast í
grát. Á sama augnabliki kraup Britta við hlið
hennar, og reyndi að hugga ihana með öllum
blíðyrðum og ástúð sem henni gátu í hug komið,
en varaðist að spyrja hana fleiri spurninga.
Bráðlega varð hún rólegri—hvíldi höfuðið
á öxl Brittu og brosti dauflega. Á því augna-
bliki var drepið hægt á dyrnar og kallað:
“Thelma! Ertu þarna?”
Britta opnaði hurðina, og Philip barón kom
í flýti inn brosandi—en nam staðar snögglega
og horfði á konu sína hissa. “Hvað er þetta,
ástin mín!” Ihrópaði hann hræðslulega. “Hefirðu
verið að gráta?”
Britta læddist út úr herberginu.
Thelma fleygði sér í fang manns síns. “Phil
up, láttu þetta ekki fá neitt á þig!” sagði hún
lágt. “Mér fannst eg bara eitthvað svo einmana
og döpur—það er ekki neitt! En segðu mér—að
þú elskir mig—að þú skulir aldrei verða þreytt-
ur á mér—þú hefir alltaf elskað mig, það er eg
viss um!”
Hann horfði á hana undrandi. “Thelma—
því spyrðu svona einkennilegra spurninga? —
Elska þig? Slær ekki hjarta mitt fyrir þig
eina? Ert þú mér ekki allt í lífinu?” Hann vafði
hana ástúðlega örmum og kyssti hana.
! Proiessional and Business j Directory—
""u m 3^
Otfice Phone Res. Phone 924 762 726 115 Dr. L. A. SIGURDSON 528 MEÐICAL ARTS BLDG. Consultatlons by Appointment Thorvaldson Eggertson Bastin & Stringer Lögfrœöingar Bank of Nova Scotla Bld«. Portage og Garry St. Simi 928 291
Dr. P. H. T. Thorlakson WINNIPEG CLIMC St. Mary's and Vaughan, Winnipeg Phone 926 441 H. J. PALMASON CHARTERED ACCOUNTANT 505 Confederation Life Bldg. Winhipeg, Man. Phone 92-7025 Home 6-8182
J. J. Swanson & Co. Ltd. REALTORS Rental, Insurance and Financial Agents Simi 927 538 308 AVENUE Bldg. — Winnipeg \ Dr. G. KRISTJANSSON 102 Osborne Medical Bldg. Phone 74-0222 Weston Office: Logan & Quelch Phone 74-5818 - Res. 74-0118 " ~ " ^ < " " "
CANADIAN FISH PRODTJCERS Ltd. J. H. Page, Managing Director Wholesale Distributors ol Fresh and Frozen Fish 311 CHAMBERS ST. Office Ph. 74-7451 Res. Ph. 72-3917 Rovatzos Floral Shop 253 Notre Dame Ave. Ph. 932 934 Fresh Cut Flowers Dally. Plants in Season We specialize in Wedding and Concert Bouquets and Funeral Designs Icelandic Spoken
M. Einarsson Motors Ltd. Buying and Selling New and Good Used Cars Distributors for FRAZER ROTOTILLER and Parts Service 99 Osborne St. Phone 4-4895 A. S. BARDAL L I M I T E D selur líkkistur og annast um utfarir. Allur úttoúnaður sá bestl. Ennfremur selur hann allskonar minnisvarða og legsteina 843 SHERBROOKE ST. Phone 74-7474 Winnipeg
c : ~\ The BUSINESS CLINIC (Anna Larusson) 216 AVENUE BUILDING OFFICE: 92-7130 HOME: 93-2250 Book.keeping, Income Tax. Insurance c ^ Union Loan & Investment COMPANY Rental, Insurance and Financial Agents Sími 92-5001 508 Toronto General Trusts Bldg.
MALLON OPTICAL 405 GRAHAM AVENUE Opposite Medical Aru Bldg. TELEPHONE 927 118 Winnipeg, Man. Halldór Sigurðsson & SON LTD. Contractor & Builder • 526 ARLINGTON ST. Sími 72-1272
COURTESY TRANSFER & Messenger Service Flytjum kistur, töskur, húsgögn, píanós og kæliskápa önnumst allan umbúnað á smásend- ingum, ef óskað er. Allur fltunimgur ábyrgðstur Sími 526 192 1096 Pritchard Ave. Eric Erickson, cigandi \ FINKLEM AN OPTOMETRISTS and OPTICIANS Kensington Buihling 275 Portage Ave. Winnipeg PHONE 92-2496
BALDWINSON’S BAKERY 749 Ellice Ave., Winnipeg (milli Simcoe & Beverley) Allar tegundir kaffibrauðs. Brúðhjóna- og afmæliskökur gerðar samkvæmt pöntun Simi SUnset 3-6127 "1 Vér verzlum aðeins með fyrsta flokks vörur. Kurteisleg og fljót afgreiðsU. TORONTO GROCERY PAUL HALLSON, eigandi 714 Ellice Ave. Winnipeg TALSIMI SUnset 3-3809
GRAHAM BAIN & CO. PUBLIC ACCOUNTANTS and AUDITORS 874 ELLICE AVE. Bus. Ph. 74-4558 Res. Ph. 3-7390 l P Off. Ph. 74-5257 700 Notre Dame Avc. Opp. New Maternity Hospital NELL’S FLOWER SHOP Wedding Bouquets, Cut Flowers I Funeral Designs, Corsages Bedding Plants Mrs. Albert J. Johnson Res. Phone 74-6753
J. WILFRID SWANSON & CO. Insurance in all its branches. Real Estate — Mortgages — Rentals 210 POWER BUILDING Telephone 937 181 Res. 403 480 LET US SERVE YOU MANITOBA AUTO SPRING WORKS CAR and TRUCK SPRINGS MANUFACTURED and REPAIRED Shock Absorbers and Coil Springs 175 FORT STREET Winnipeg - PHONE 93-7487 -
gilbart funeral HOME - SELKIRK, MANITOBA - J. Roy Gilbart, Licensed Embalmet PHONE 3271 - Selkirk Hafið HÖFN í Huga ICELANDIC OLD FOLKS HOME SOCIETY — 3498 Osler Street — Vancouver 9, B. C. 5- r*
C \ Sunnyside Beauty Salon SPECIAL — $10.00 Cold Waves for $7.00 Two wks only — Open Wednesdays PHONE SUnset 3-1060 V
3 GUARANTEED WATCH, & CLOC.K REPAIRS SARGENT JEWELLERS H. NEUFELD, Prop. Watches, Diamonds, Rings, Clcwks, Silverware, China 884 Sargent Ave. Ph. SUnset 3-3170 V ■*