Heimskringla - 21.11.1956, Side 3
WINNIPEG, 21. NÓV. 1956
HEIMSKRINGLA
3. SÍÐA
Þetta er stefna vor.
Látum oss öll ákveða með sjálf
um oss þó fá séu, að vinna, hvort
sem er í kirkju, eða öðrum fé-
iagsskap, í þeim anda og í þeim
tilgangi sem hugtakið frelsi
bendir oss á. Gerufti vér það,
verðum vér aldrei mjög fjaerri
sannleikanum og eftir því sem
vér nálgumst honum, verðum
aldrei mjög fjærri sannleikanum
og eftir því sem vér nálgumst
honum, verðum vér frjáls.
Eg minnist að endingu, litla
dæmisögu, sem mér finst vér^
mættum vel taka til Ihugunar
við þetta tækifæri og láta hana^
vera sem hvatningu til vor í sam'
bandi við alla kirkjustarfsemi
vora.
Þar er sagt að í litlu þorpi einu |
í suður Evrópu, þegar síðustu
geislar sólarinnar hverfa, og
skuggar fjallana breiðast yfir
dalinn, þá sé kveikt á lömpum.|
Hvergi er myrkur nema í lítilli
grásteins kirkju sem stendur áj
hæð fyrir ofan bæinn. En þar
sést ekkert ljós.
En gömul helgisögn segir frá
þessari kirkju, sem er kölluð:—
Hús hinna mörgu lampa. Hún
v-ar bygð á sextándu öld, af
gömlum lávarði, sem hugsaði um
hvað hann gæti látið eftir sig,
ti! Þess að minning hans lifði.
A'ð lokum kom honum til hugar
að reisa kirkju, svo fagra að til-j
beiðsluandi kæmi ósjálfrátt yfir
alla, sem inn í hana kæmu. Hann’
lét teikna kirkju, mjög vandaða,
°g hafði mikla unun af að sjá
hana smíði.
Að lokum kom sá mikli dagur
að kirkjan var fullgerð, og þá
tók lávarðurinn eina dóttur sína
að skaða hana. Þau dáðust
bæði áð hinum hreinu og ein-
földu línum, hinni fögru hvelf-
tngu. steinskurðslistinni, lituðu
glermyndunum ígluggunum, og
inum tignarlega svip á allri
oyggingunni.
En , sagði dóttirin við föður
sinn, “Hvar eiga lamparnir að
hanga?”
Það”, svaraði faðir hennar
■íýmma^r°si^ “er sérstök hug-
mynd §a«na pabba.þíns. lamp-
arnir hafa gengið í ættir, frá
einum lið til annars, og geymdir
vandlega. Þegar kirkjuklukkurn
ar gjalla, þá gengur bæjarfólkið
upp brekkuna að kirkjunni, hver
með sinn lampa. Kirkjan er oft-
ast full, því engin vill a'ð sitt
horn verði tómt eða í myrkri.”
Þetta getur verið oss upp-
hvatning og áminning, þó að vér
berum ekki lampa með oss til
að lýsa kirkjuna, þá megum vér
ehki samt láta horn vort í kirkj-
unni vera tómt, er messa er hald
in hér í kirkju vorri. Það verða
engir hangandi lampar hér. Hver
maður verður að bera sinn eigin
lampa. Eg hefi látið útbúa litla
bronz lamþa, einn fyrir hvern í-
búa þorpsins, upp að þeirri tölu
sem kirkjan rúmar.”
Svo bætti hann við: Eittvað
horn í húsi Guðs verður dimt
og tómt, nema allir synir og dæt
ur hans koma til að tilbiðja hann
á hinum tiltekna tíma.
Og þessi orð voru höggvin í
steini yfir aðal innganginum-
Fjögur hundruð ár eru liðin síð-
an að þetta gerðist.
Þetta er hvatningin:
Guð gefi, að vér getum altaf
og í öllu verið trú sjálfum oss,
að oss gefist tækifæri til að iðka
þá list, að vera frjálsir, að viður-
kenna frelsi annara, og að skilja
hvernig frelsi og réttindi allra
sé aðal tilgangurinn, en ekki það,
að trúa samkvæmt reglum eða
fyrirskipun annara. Gef oss skiln
ing og gef oss styrk til að skilja
og að viðurkenna þá ábyrgð sem
á oss hvílir, sem elska frelsið og
leita sannleikans, að styðja trú
arheimili vort og stefnuna sem
það tilheyrir og fylgir nú á kom
andi dögum. Látum aldrei horn
vort, í kirkju vorri, vera tómt
eða dimt. Látum aldrei myrkur
grúfa þar sem lampi vor á að
skína. — Þess biðjum vér í nafni
alls sem satt og gott og heilagt
er, —Amen.
Valdemar varð skyndilega æstur. “Eg segi
þér hann sigldi burt!” endurtók hann í háum,
hásum rómi. “Hvar er skipið hans, Valkyrjan?
Reyndu að finna hana nokkurstaðar—á sjó eða
landi! Hún er farin, og hann er farinn með
skipinu eins og konungur og stríðshetja í dýrð
ina, gleði, og sigur! Dýrð, gleði, sigur! Þetta
voru hans síðustu orð!”
Britta hopaði aftur á bak, og tók í hand-
legginn á Ulriku. “Er hann brjálaður?” spurði
hún, hræðslulega.
Valdemar heyrði orð hennar, og stóð upp,
með þjáningar-brosi á andlitinu. “Eg er ekki
brjálaður, Britta”, sagði hann, þýðlega. “Vertu
ekki hrædd! Ef að hinn þungi harmur sem að
mér var kveðinn með dauða húsbónda míns
hefði getað unnið bug á geðsmunum mínum,
þá hefði það skéð fyr en nú—en eg er með öllu
viti, og eg hefi sagt þér sannleikann.”
Hann þagnaði—og bætti svo við í venju-
legri róm, “Þið þurfið meiri eldivið. Eg ætla
að fara út að sækja hann. Hann fór út.
Britta starði á eftir honum orðlaus af undr
un. “Hvað meinar hann?” spurði hún.
“Það sem hann segir,” svaraði Ulrika, ró-
lega. “Þú, eins og aðrir, hlýtur að hafa vitað að
átrúnaður Olafs Guldmars var undarlegur—
greftrun hans hefir líka verið með undarlegum
hætti—það er allt sem um það er!” Hún breytti
fimlega um umtalsefni, og byrjaði að tala um
Thelmu, harma hennar og þjáningar.
Britta var ákaflega óþolinmóð að sjá sína
ástkæru fröken, og fannst fyllilega að Philip
barón hefði ekki þurft að vera allan þennan
tíma einn hjá henni. “Hann hefði getað kallað
í mig, þó að það væri ekki nema eitt augnablik”,
hugsaði Britta raunalega. “Mig langar svo til
að horfa á elskulega andlitið hennar aftur! En
a.llir karlmenn eru eins—þeir hugsa aldrei um
neitt nema sjálfa sig! Hamingjan góða! Hvað
lengi ætli eg þurfi að bíða!” Þannig fjasaði hún
þar sem hún sat við eldinn og drakk heitt te og
talaði við Ulriku — en hlustaði jafnframt eftir
hinu allra minnsta hljóði eða hreyfingu í næsta
herbergi. En ekkert heyrðist—þar var alger og
fullkomin þögn.
Að síðustu stóðst hún það ekki lengur, og
þrátt fyrir mótmæli og röksemdir Ulriku, lædd
ist hún á tánum aS hurðinni sem var lokuð og
varnaði henni að sjá uppáhaldið hennar, hún
snéri hurðarhandfanginu hægt, opnaði og leit
inn. Philip barón sá hana, og gaf henni dálítið
viðvörunar merki, þó að hann brosti. Hann sat
við rúmið, og í faðmi hans hvíldi Thelma með
höfuðið á öxl hans. Hún var stelnsofandi. —
Þjáningardrættirnir voru horfnir af fagra and-
litinu—bros lék um varir hennar—hún andaði
hægt og reglulega—með fölleitan rósroða í
kinnum. Britta stóð og starði á þessa fögru sjón
þangað til tilfinningarnar báru hana ofurliði, og
tárin hrundu eins og demantar af hrokknu augna
hárunum hennar. “Ó, yndið mitt—yndið mitt!”
vhvslaði hún hrærð—þegar það var dálítil mjúk
hreyfing—og tvö stjörnubjört augu opnuðust
eins og blá blóm á móti sól.
‘Ert það þú, Britta?” spurði þýð og undr-
andi rödd—og Britta stökk með hálfkæfðu
fagnaðarópi að rúminu og greip útrétta hönd
helmu og kyssti hana aftur og aftur. Og með-
an Thelma hló af gleði og feiginleik yfir að sjá
hana og strauk hár hennar, ?ýsti Philip baró3n
hinm longu og eríiðu ferð þeirra yíir hjarnið,
^faðlvnd’ R°Íræíl’ dUgnaði‘ °g óþreytandi
glaðlyndi Brittu svo mikið, að rödd hans skalí
af einlægm en Bntta varð blóðrjóð í andliti af
feimm og oframfærm, og neitaði með ákafa að
hún heði gert nokkuð til að verðskulda svo
mikið hól.
Svo eftir langt fagnaðarrikt samtal var
kallað á Ulriku, og Philip barón tók í hönd
hennar svo þétt og innilega að hún varð alveg
fá sér numin.
Mig brestur orð til að þakka þér!” sagði
hann, og úr augum hans skein einlægt þakklæti.
Slíka fórnfýsi og góðvild sem þú hefir sýnt
mér0^6^6^ endurgjaMa! Konan min segir
Sm hííXl't- h?Ur. °S Þ°linmóð umhyggju-
pVt \ 6 verið—að jafnvel þegar hún vissi
h'nii tak™113u iVar hun sér alltaf rneðvitandi um
þinu takmarkalausu og óþreytandi hlýju og alúð
hennar g Það! ÞÚ hefir lífi
“ó, já. sannarlega!’ greip Thelma fram í
þýðlega. “Og lífið broáir nú við mér aftur. Eg
er í svo mikilli þakkarskuld við þig.”
“Þú skuldar mér ekkert”, sagði Ulrika í
þessum kalda og dauflega tón sem hún hafði
upp á síðkastið lært að laga og mýkja; “Ekkert,
Skuldin er öll á mína hlið”. Hún þagnaði
skyndilega—hún roðnaði í andliti— augu henn
ar hvíldu á Thelmu með viðkvæmni og þýðleika.
Philip barón horfði á hana með nokkurri Í
undrun.
“Já”, hélt hún áfram. “Skuldin er öll mín j
megin. Hlustaðu á mig, Philip barón — og þú
lika—þú ‘rós ihinna norðlægu skóga’, eins og
Sigurd var vanur að kalla þig! Þú hefir ekki
gleymt honum?”
“Gleymt honum?” sagði Thelma, blíðlega.
\"Eg gleymi honum aldrei!—Eg unni honum of
mikið til þess!”
Ulrika laut höfði. “Hann var sonur minn!”
sagði hún.
Það varð alger undrunar-þögn. Ulrika þagn
aði—svo, þar sem enginn kom upp nokkru orði,'
leit hún upp djarflega, og hélt áfram í nokkurs-1
konar örvæntingu, en þó ákveðin.
“Þú sérð og skilur, að þú hefir ekkert að;
þakka mér fyrir”, hélt hún áfram, og beindi
máli sínu til Philips baróns, þar sem Thelma
hvíldi höfuð sitt á koddanum, og hélt um hönd j
Brittu, og athugaði hana með nýrri undrun. —
“Ef til vill, ef að þú hefðir vitað hverskonar
persóna eg er, þá hefðir þú ekki viljað að eg
kæmi nálægt—henni”. Hún benti í áttina til
Thelmu. “Þegar eg var ung—fyrir löngu siðan
—elskaði eg—” hún hló bciskjulega. “Það virð-1
ist einkennilegt, er ekki svo? Tölum ekki um
það—söguna um ást mína, synd og ávirðingu,
þarf ekki að segja hér! en Sigurd var barnið mitt
—fæddur á illri örlagastund—og eg—eg reyndi
að myrða hann eftir fæðinguna.”
Thelma rak upp dauft hljóð af hryllingi.
Ulrika leit á hana með bænarsvip. “Hataðu mig
ekki!” sagði hún með skjálfandi rödd. “f Guðs
bænum hataðu mig ekki! Þú veitzt ekki hvað eg
hefi liðið! Eg var brjáluð, að eg held, þá— Eg,
henti barninu i sjóinn til að drukkna—faðir
þinn, Olaf Guldmar, bjargaði honum. Eg vissi
það ekki fyr en löngu seinna—árum saman lá
glæpurinn sem eg framdi eins og farg á sál
minni—eg bað og grátbændi Guð fyrirgefning-
ar, en hafði það alltaf á samvitzkunni að mér
yr’ði aldrei fyrirgefið. Lovísa Elsland var vön
að kalla mig morðingja; hún hafði rétt fyrir
sér—eg var það, eða eg hélt það—þangað til
þangað til—daginn sem eg mætti þér, fröken
Thelma, á hæðunum með Sigurd, og drengur-
inn réðist á mig”. Það fór hrollur um hana, og
augu hennar urðu tryllingsleg. nEg þekkti
hann—skiftir litlu hvernig! hann bar örið eftir
áverka minn á sér—hann var sonur minn—mitt
eigið afkvæmi!—þessi vanskapaða, brjálaða vera
sem hafði þó nægilega mikið vit til að elska þig
þig, sem eg þá hataði—en nú—”
Hún þagnaði og gekk nær rúmi Thelmu.
“Nú, er ekki nokkur hlutur til sem eg vildi ekki
gera fyrir þig, góða mín!” sagði hún mjög þýð-
lega. “En þú munt ekki þarfnast mín lengur.
t>ú skilur hvað þú hefir gert fyrir mig—þú og
faðir þinn ? t>ú hefir bjargað mér með því að
bjarga barninu mínu— bjargað mér frá að líða
kvalir helvítis fyrir morðglæp! og þið veittuð
drengnum alla þá lífsánægju sem hægt var með
an hann lifði. Þó að eg þjónaði þér til dauðadags
gæti eg aldrei endurgoldið velgerning ykkar
til fulls. Og af öllu hjarta þakka eg góðum Guði
að hann af miskun sinni leyfði mér að hjúkra
þér og hughreysta i þínum sárustu nauðum—og,
einnig, það að hann hefir gefið mér styrk til að
játa synd mna og breyskleika fyrir ykkur áður
en eg fer. Því nú þegar þrautatíminn er liðinn
hjá, fer eg til þess að skyggja ekki á gleði þina.
Guð blessi þig,—og reyndu að hugsa eins hlý-
lega til mín eins og þú getur— — vegna drengs-
ins míns!”
Hún laut ofan að Thelmu og kyssti hönd
hennar—og áður en nokkur hafði áttað sig, var
hún farin út úr stofunni Þegar Britta, innan
fárra mínútna, fór að leita að henni, var hún
farin.
Hún hafði farið til bústaðar sins i Bose-
kop, og þar uppástóð hún að láta fyrirberast.
Ekki var hægt að fá hana til að koma á fund
Philips eða Thelmu aftur, og það var ekki
fyr en mörgum dögum eftir að þau fóru úr Alt-
firðinum að hún sást aftur úti i þorpinu. Og þá
var hún gerbreytt manneskja.
Áður hafði hún verið höstug, harðneskju-
leg og fráhrindandi, nú var hún ljúf og auð-
mjúk—hún hjúkraði hinum sjúku, og huggaði
hina sorgbitnu—en hún varð sérstaklega víð-
kunn fyrir hvað hún elskaði öll born. Oll born
staðarins þekktu hana, og voru hænd að henni
-og sá tími kom þegar Ulrika, hvít fyrir hær-
um, og róleg og sátt við allt og alla, sast sitja
fyrir utan húsdyr sínar síðdegis að sumrinu,
umkringd af heilum herskara hlæjandi og mas-
andi barna, sem fóru í feluleik fyrir aftan sto1’
inn hennar, og klifruðu upp til að kyssa hrukk-
óttu kinnarnar hennar, og leggja stuttu hand-
leggina utan um háls hennar með þeirri sak-
lausu tiltrú sem börn sýna aðeins þeim sem
þau finna að meta slík vinsemdar—altlot.
Sumir kunningjar hennar voru vanir að
segja að hún væri ekki lengur hin “strang-guð-
hrædda” Ulrika—en hvernig sem þvi var háttað,
var það eitt víst að hún hafði færst nær höfundi
náðarinnar og kærleikans, sem með öllu og öllu
er hið æðsta takmark sem við dirfumst að sækja
að í öllum okkar óliku og mismunandi trúar-
brögðum.
Professional and Business
= Directory
Offlce Phone
924 762
Res. Phone
726 115
Dr. L. A. SIGURDSON
528 MEDICAL ARTS BLDG.
Consultations by
Appointment
Thorvaldson Eggertson
Bastin & Stringer
Lögfrœðingax
Bank oí Nova Scotia Bldg.
Portage og Garry St.
Sími 928 291
Dr. P. H. T. Thorlakson
WINMPEC; C LINIC
St. Mary's and Vaughan. Winnipeg
Phone 926 441
Rovatzos Floral Shop
253 Notre Dame Ave. Ph. 932 9S4
Fresh Cut Flowers Daily.
Plants in Season
We specialize in Weddlng and
Concert Bouquets and Funeral
Designs
Icelandic Spoken
CANADIAN FISH
PRODUCERS Ltd.
J. H. Page, Managing Director
Wholesale Distrlbutors ol
Fresh and Frozen Fish
311 CHAMBERS ST.
Office Ph. 74-7451 Res. Ph. 72-3917
A. S. BARDAL
LIMITED
selur líkkistur og annast um
útíarir. Allur útbúnaður sá besti.
Enníremur selur hann allskonar
minnisvarða og legsteina
843 SHERBROOKE ST.
Phone 74-7474 Winnipeg
M. Einarsson Motors Ltd.
Buyiug and Selling New and
Good Used Cars
Distributors for
FRAZER ROTOTILLER
and Parts Service
99 Osbome St. Phone 4-4395
Union Loan & Investment
COMPANY
RentaL Insurance and Finandal
Agents
SIMI 92-5061
Crown Trust Bldg., 364 Main St., Wpg.
BALDWINSON’S BAKERY
749 Ellice Ave., Winnipeg
(milli Simcoe & Beverley)
Allar tegundir kaffibrauðs.
Brúðhjóna- og afmæliskökur
gerðar samkvæmt pöntun
Sími SUnset 3-6127
Ðalldór Sigurðsson
fc SON LTD.
Contractor & BuUder
Office and Warehouse:
1410 ERIN ST.
PHONE 72-6860
‘
Vér verzlum aðeins með fyrsta
flokks vörur.
Kurteisleg og fljót afgreiðsla.
TORONTO GROCERY
PAUL HALLSON. eigandi
714 Ellice Ave. Winnipeg
TALSIMI SUnset 3-3809
Off. Ph. 74-5257 700 Notre Dame Ave.
Opp. New Maternity Hospital
NELL’S FLOWER SHOP
Wédding Bouquets, Cut Flowen
Funeral Designs, Corsages
■ Bedding Plants
Mrs. Albert J. Johnson
Res. Phone 74-6753
French-Style
SH0RTS
Fara vel, eru köld, þægileg. Fín-
brugðin úr vel kemdri bófull.
Saumarfinir, teygjuband um mitf-
ið . . . tvefalt í fyrir með opi. . .
liggja vfcl að bér . . . Jcdseys er
við eiga. W-19-
MANITOBA AUTO SPRING
WORKS
CAR and TRUCK SPRINGS
MANUFACTURED and RLPAIRED
Shock Ahsorbers and Coil Spríngs
175 FORT STREET Winnipeg
- PHONE 93-7487 -
Hafið HÖFN í Huga
ICELANDIC OLD FOLKS
HOME SOCIETY
— 3498 Oslei Stieet —
Vancouver 9, B. C.
56
^GUARANTEED VVATCH, & CLOCK
REPAIRS
SARGENT JEWELLERS
H. NEUFELD, Prop.
Watches, Diamonds, Rings, Clo.ks.
Silverware, China
884 Sargent Ave. Ph. SUnset 3-3170
S.,
SK YR
LAKELAND DAIRIES LTD
SELKIRK, MAN.
PHONE 3681
At Winnipeg
IGA FÖOD MARKET
591 Sargent Avenue
“HEIMSINS BEZTA
NEFTÖBAK”
r-------------------
HERE NOW!
ToastMaster
MIGHTY FINE BREAD!
At your groœrs
J. S. FORREST, J. WALTON
Manager Sales Mgi
> PHONE SUnset 3-7144
BORGIÐ HEIMSKRINGLU—
því gleymd er goldin sknld
1
THE WATCH SHOP
699 SARGENT AVE.
WATCH, CLOCK & JEWELLRY
REPAIRS
— All Work Guaranteed —
Large Assortment Costume Jewellry
V. THORLAKSON
Res. Phone: 45-943 699 Sargent
r'—
GRAIIAM BAIN & CO.
PUBLIC ACCOUNTANTS and
AUDITORS
874 ELLICE AVE.
Bus. Ph. 74-4558 -Res. Ph. 3-7390
I
\