Heimskringla - 16.04.1958, Síða 2
2. SÍÐA
KEIMSKRINGLA
Hfcimskrtnflla
Kemur út i hverjum miðvikudegi
Eigendur: THE VIKING PRESS LTD.
868 Arlim>ton St. Winnipeg 3, Man. Canada Phone SPruce 4-6251
Verð blaðsins er $3.00 árgangurinn, borgist fyrirfram
Allar borganir sendist: THE VIKJNG PRESS LTD.
öll viðskiftabréf blaðinu aðlútandi sendist:
The Viking Press Limited. 868 Arlington St.. Winnipeg 3
Ritstjóri: STEFAN EINARSSON
Utanáskrift til ritstjórans:
EDITOR HEIMSKRINGLA, 868 Arlington St. Winnipeg 3, Man.
HEIMSKRINGLA is publithed by THE VIKING PRESS LIMITED
and printed by VIKING PRINTERS
868 Arlington St., Winnipcg 3, Man. Canada Phone SPruce 4-6251
Authortaod aa Second Clasa Mctil—Pogt Qfflce Dept.. Ottawa
WINNIPEG, 16. APRfL, 1958
SUMARDAGURINN
FYRSTI
Sumardagurinn fyrsti er i
næstu viku, fimtudaginn 24 apríl.
IVerður hans minst með sam-
komu í Sambandskirkjunni á
Bannig og Sargent af Kvenfélagi
sambandssafnaðar, eins og að
undanförnu. Má þar ávalt eiga
von mikils fagnaðar af að hitta
landa sína og bjóða hver öðrum
á gamla vísu gleðilegs sumars.
Sumur á fslandi eru ekki löng.
En vér j>ekkjum þó ekkert, er
huga þeirra hrífur meira en koma
sumars og sólar. Það má eflaust
gott dæmi af því kalla það sem
í kvæði einu stendur um sólina,
eftir skáldið “Þorskabít”, eitt
hagorðasta skáld Vestur-fslend-
inga. Það býr vissulega almenn-
ur íslenzkur andi í mörgum hend
ingum hans, eins og t.d. í þessari
vísu í nefndu kvæði:
Hvað er það, sem heimi færir
hita og ljós, og gjörvalt nærir
ástar kossum ár og síð,
vekur fugla af vetrar dvala
vermir ungu blómin dala
eins og móðir börn sín blíð.
Eða þá þessi vísa í sama kvæði:
Hún er öllu hærra situr,
hennar kveðju geislinn flytur
guðastóli glæstum frá,
jafnt til allra jarðar búa,
já, og hverju sem þeir trúa,
mun þar gerir engan á.
Þannig mætti mörg kvöld
halda áfram að kveða og kyrja
sér til hugar hægðar í rókkrinuj
ur ljóðum skáldsins og njóta ís-
lenzks unaðar af því, þar er margt
að finna, en út í ekkert af þvi
var hugmyndin að fara hér, nema
þetta eina kvæði, og sem þó hef
ir svo lítillega verið gert, að eg
get ekki látið við svo búið sitja,
nema bæta einni vísu við. Hún
er svona:
Loftsins hnatta leiðargyðja!
Lýðir margir þig til biðja;
mörg er villan verri en sú.
Ekkert það sem augað kannar
eða mannleg vizka sannar
almátt drottins eins og þú.
GLEÐILEGT SUMAR!
MESTA ÆYINTÝRI ÁRS-
INS
Nautilus fer á norðurpólinn
—undir ísnum
Ef einhver hefði flogið yfirj
norðurpólinn sólskinsdag einn 1
haust og litið niður, þá hefði
hann séð einkennilega sjón.
Hann hefði getað séð 1001
ameríska sjómenn eins og spjátr-^
unga í gúmbjörgunarbátum vera
að taka myndir og skemmta sér
í sínum eigin vökum í Norður-J
íshafinu.
Ef hann hefði flogið þarnal
yfir klukkutíma seinna hefðu
bæði bátarpir og sjómennirnir
verið horfnir.
Hann hefði ekki séð neitt
nema ár með fáum vökum. Hundr
uð mílna af úfnum, einmaalegum
ísnum. Og hvergi vott af lífi.
Hinir horfnu sjómenn voru til.
Þeir voru frá Natilus, hinum
fyrsta kafbáti í heimi, sem er
knúinn kjarnorku og var þarna
við ransóknarstörf. Hann var að
kortleggja heimskautssvæðið
undir ísnum.
Til þess að gefa skipshöfn-
inni tækifæri til að fá séi “frískt
loft” og lika til að sýna, að það
væri hægt, ákvað Wiliiam R.
Anderson, skipherra í sjóhernum
ameríska, að láta kafbát sinn
koma upp á yfirborðið í einhverri
af hundruðum smávaka, sem eru
við norðurheimskautið.
Það var eins og að þræða nál
að stýra Nautilus, sem er 300
fet á lengd, gegnum mjóa rifu
í ísnum. En Nautilus kom örugg-
lega upp á yfirborðið og gat
leyft skipshöfn sinni að líta
heimskautaútsýnina, sem fáir
hafa séð.
Nautilús var hleypt af stokk-
unum fyrir tveim árum og hefir
nú siglt meira en 60 þúsund míl-
ur neðansjávar án þess að þurfa
eldsneyti til viðbótar.
Hann er nú kominn aftur til
Ameríku og er nú að undirbúa
það, sem getur orðið hið mesta
ævintýri 1958.
Everestfjall er nú sigrað og
suðurpóllinn er fallinn fyrir
sameiginlegum árásum Fuchs og
Hillarys og þá eru ekki eftir
mikil ævintýri fyrir rnenn til að
ráðast í.
En Norðurpóllinn er þó eftir.
Flugvélar fljúga yfir hann dag
lega. Svolítill hópur hugrakkra
manna hefir farið þangað fót-
gangandi.
En enginn hefir enn komið
þangað í kafbáti, undir ísnum.
En það er það sem Anderson
skipherra og hans óraga áhöfn
vonast til að geta gert á næst-
unni.
Á fyrstu ransóknarferð sinni
undir hafþökum af is, sem var á
stærð við heilt meginland, kom-
ust þeir í 180 mílna náiægð við
norðurpólinn; það var kvalræði
að þurfa að snúa frá. —En gall-
aður kompás neyddi þá til að
hverfa frá, þegar þeir áttu eftir
nokkurra stunda spöl að tak-
marki sínu.
Tilraun þeirra var ekki fyrsta
tilraun, sem gerð var til þess að
iara slíka för. Fyrir 25 árum fór
brezkur landkönnuður, Hubert
Wilkins að nafni, svipaða leið í
kafbáti, sem líka var kallaður
Nautilus. Nú býr hann við^ suð-
urpólinn í gamalli stöð sem
Scott bjó í einu sinni, og lifir
þar á 47 ára gömlum, niðursoðn-
um mat sem Scott skildi þar eft-
ir.
En Nautilus hinn fyrsti var
skip sem hefði átt að rífa. Eftir
6 daga för kom hann aftur og
hallaðist þá 30 gr. Hann var rif-
inn og skrúfur hans beygðar eft
ir ísinn.
En Það er ólíklegt að áhöfn
in á nýja Nautilus verði fyrir
slíku hnjaski.
í samanburði við skip Sir Hu-
berts er nýji Nautilus eins og
höll og kostaði 90 milljónir doll-
ara að byggja hann.
Kjarnorkan knýr hann ekki
aðeins, heldur sýður hún líka
mat áhafnarinnar. Hún hitar og
endurnýjar loftið í kafbátnumj
og eimar jafnvel vatnið, sem sjo^
.•nennirnir drekka.
Þegar áhöfnin hvílist liggur
hún á madressum úr kvoðu
gúmmíi í herbergum, sem eru
þægileg á lit og hvíla augað. Þau
eru máluð græn, brún og gul.
Og þarna er kvikmyndasalur,
sjálfspilandi grammófónn og al-
mennilegur stigi ólíkur venjuleg
um stigum í skipum.
Jafnvel Nautiuls Jules Vernes
sem var einn af þeim fyrstu sem
hugsaði sér rannsóknir undir ísn-
um í kafbáti, þolir ekki saman-
burð við þenna.
Hvernig er það eiginlega, —
hverju ííkist það, að sigla hundr-
uð mílna með ísþak yfir höfði?
Anderson skipherra skrifaði
um ævintýri sín og lýsir því svo
að það hefði verið heillandi ægi-
legt og úttaugandi.
Þegar Nautilus lagðist eins og
stór stálhvalur, í köldum gráum
vökum ísheimsins, stóð Ander-
son höfuðsmaður á brúnni á skipi
sínu og horfði á ógestrisna ís-
breiðuna, sem teygði sig óra-
vegu.
Bjartur geislabaugur, sem pól-
farar kalla ísblik hékk yfir hvítri
víðáttunni.
Þokubakkar liðu hjá.
Anderson skipherra minnist
þessa augnabliks. “Eg minntist
allra leyndardómanna, sorgar-
leikanna og hinna hræðiíegu lík-
amlegu óþæginda, sem þarna
höfðu komið fyrir.
Eg hugsaði til könnuðanna —
svo sem Ross, Pearys, Cooks,
Amundsens, Vilhjálms Stefáns-
sonar og sir Hubert Wilkins.”
En nú voru allir á Nautilus ó-
þreyjufullir eftir því að fara
undir ísinn og sjá hvernig það
væri.
Það heyrðist urgandi hávaði í
köfunartækjunum. Hægt og
hægt seig Nautilus í ískaldan
sjóinn.
Og nokkrum mínútum síðar
renndi hann undir ísskörina.
Vísindamenn höfðu sett upp
bergmálsvél á þilfarinu, sem með
hljóðöldum lýsti stöðugt þykkt
íssins og gerð.
Þetta var eitt af þremur vís-
indalegum vandamálum, sem
Nautilusi var ætlað að ráða.
Hin voru þessi: Hversu djúp-
ur er sjórinn? Og: Eru ísjakarn-
ir með egghvössum, banvænum
göddum ofan í sjóinn?
Eftir nokkrar klukkustundir
hafði þessi vél safnað meiri, ná-
kvæmri fræðslu um ástandið í ís-
hafinu en safnað hafði verið í
allri sögu pólrannsóknanna.
Yfirleitt komust menn að því
að ísbreiðan við pólinn er stór-
kostlegt ísmagn, á stöðugri hreyf
ingu.
Sums staðar eru aðeins litlir
ísjakar eða íshroði, sem auðvelt
er að komast í gegnum á hvaða
skipi, sem vera skal.
Megnið af ísnum er óreglu-
legar ísspangir, sem eru að víð-
áttu sumar fáein fet, en aðrar
þúsundir feta.
Eitt af því, sem kom mönnum
mest á óvart var það að fáar ís-
spangir voru meira en 12 fet á
þykkt, en að neðan var ísinn ekki
sléttur heldur mjög óreglulegur.
Ein af hættunum við rann-
sókn undir ísnum er það að vill-
ast.
Þegar verið er svo nálægt seg-
ulpólnum er hætta á því að komp
ásar vísi skakkt til. Þó að Naut-
ilus hefði einn segulmagns átta-
vita og tvo gyroscope áttavita
urðu þeir til þess að svipta And
erson skipherra og skipshöfn
hans þeim heiðri að vera fyrsta
kafbátahöfn til að komast til
norðurpólsins.
Nautilus hélt för sinni áfram.
Eftir að þeir fóru fram hjá 83.
breiddarbaug tók segulmagns
áttavitinn að snúast eins og brjál
aður. En gyroscope-áttavitarnir
hegðuðu sér eðlilega.
Anderson skipherra segir síð-
an: “Við fórum yfir 84. og 85
breiddarbaug. Svo virtist, sem
norðurpóllinn yrði brátt i hendi
okkar.”
En svo sem tveim klukkustund
um síðar, rétt áður en Nautilus
komst að 86. breiddargráðu varð
annar gyroscopic áttavitinn rugl:
aður. “Þetta gerðist svo skyndi-J
lega”, sagði Anderson, “og svo1
óákveðið, að eg starði á það og
trúði ekki ir.ínum eigin augum.
Þá skildist okkur að þetta var
ekki hárri breiddargráðu að
kenna.
Þráður hafði brunnið sundur”.
Þó að mögulegt væri að gera
við þetta er gyro-áttviti venju-
lega margar klukkustundir að
jafna sig aftur.
Nú voru siglingafræðingar að
reikna út stefnuna eftir segul-
magns-áttavitanum, sem snerist
cil og frá og finna meðaltal sveifl
anna til þess að geta áttað sig.
Á 87. gráðu og lengra norður
en nokkurt skip hafði komizt.
aðeins 180 mílur frá pólnum varð
Anderson skipherra mjög nauð-
ugur að skipa svo fyrir að snúið
skyldi við.
Hvað hefði gerzt ef Nautilus
hefði í raun og veru villzt? Eða
ef hann hefði orðið fyrir slysi
meðan hann var á ferðinni undir
ísbreiðunni?
Anderson skipherra segir: —
“Ef við hefðum ekki getað fund
ið leið eða op í ísnum, þá hefðum
við getað hallað bátnum upp á
við og skotið nokkrum tundur-
skeytum í ísinn.
Og þar á eftir?
“Ef við hefðum ekki getað kom
iðskipinu öllu upp gegnum ís-
inn, þá hefðum við getað komið
húsi okkar upp með neðansjávar
kíkinum, radartækjunum og
senditækjunum. Og svoleiðis
hefðum við getað komizt í sam-
band við umheiminn. Og víð hefð
um líka getað yfirgefið skipið
gegnum lúkugat á þiljunum.”
Þegar Nautilus að lokum kom
aftur undan ísnum var hann með
beyglaða neðansjávarkíkja. Það
var árangurinn af tveim tilraun-
um til að brjótast upp í gegnum
ísinn.
Þegar hann reyndi í þriðja
sinn tókst það.
En nægum vísindalegum gögn
um hefir verið safnað til þess
að gefa sérfræðingum pólsvæð-
anna og sjókortateiknurum næga
vinnu árum saman.
Alls sigldi Nautilus nærri þús-
und mílur undir ísnum á 74 kl.st.
Þó að tilgangurinn hafi aðal-1
lega verió visindalegur sýndi
ferðin möguleika á því að kaf-
bátafloti, sem knúinn væri kjarn-
orku, gæti starfað undir ísnum
borið eldflaugar og önnur vopn,
gæti gert eyðileggjandi árásir á
óvini, en verið sjálfur óhultur
undir ísnum.
Frá hvaða sjónarmiði, sem á
þessa ferð er litið, ver'Öur hún |
skráð sem eitthvert mesta könn-:
unarafrek.
Skipshöfnin hefir aðeins eina
hugsun núna—að fara aftur af
stað og komast til norðurpólsins,
illa leiðina í þetta sinn.
—Vásir 3. marz
UNDIRBÚNINGUR STÓR-
YELDAFUNDAR
Almenningur í öllum löndum,:
og þó einkum á Vesturlöndum,
bíður þess nú með óþolinmæði
og eftirvæntingu, að til samn-
inga dragi milli Vesturveldanna
og kommúnistaríkjanna. Um leið
gerir almenningur sér litla grein
íyrir þyí í hverju slíkir samning-;
ar ættu að vera fólgnir, heldur
vona flestir að bundinn verði
endi á kalda striðið með ein-|
hverju friðsamlegu og viðunan-;
íegu móti, eða eitthvað verði frið
samlegra umhorfs í heiminum enj
nú er.
Rússar gerðu það upphaflega
að tillögu sinni að hinn marg-j
umtalaði fundur yrði þegar í vor,
en Vesturveldin halda þvi fram
að nauðsyn beri til að athuga
öll mál og málsaðstæður gaum-
gæfulega áður, þar var jafnvel
talið nauðsynlegt eða að minnsta
kosti æskilegt að utanríkisráðhr.
þátttökuríkjanna ættu með sér
undirbúningsfund, þannig ?tð fyr
irfram væri ákveðið um hvað
rætt yrði á “aðalfundinum”, og
á hvaða grundvelli. Rússar lögð i
ust eindregið gegn slíkum undir
búningsfundi, ef til viíl hefur
þeim fyrst og fremst gengið til
að sýna þannig adúð sína á John
Foster Dulles hinum bandaríska
Nú virðist svo sem vesturveldin
WINNIPEG, 16. APRÍL, 1958
FREE...
SEED GRAIN TESTS
Það er hægt að fá vissu fyrir gæðum
heima-ræktaðs útsæðis með því að
hafa það prófað þér að kostnaðarlausu.
Komið með prufu til
UMBOÐSMANNS YÐAR
séu hætt að leggja jafn mikla á-
herzlu á undirbúningsfundinn.
Krefjast þess þó eindregið að
“aðalfundurinn” verði rnjög
vandlega undirbúinn og komið
þannig í veg fyrir að eingöngu
verði um nýja “trúðsýningu” að
ræða í áróðurskyni. Þykir mörg-
um sem nóg sé komið af svo góðu
í bili.
Segja má að undirbúningurinn
sé þegar í fullum gangi að tjalda
baki. Bæði í austri og vestri er
reynt, að því er virðist, að sam-
xæma eftir megni ýmiss sjónar-
mið og draga úr átökum. Leið-
togar kommúnistaveldanna eiga
þar að sjálfsögðu auðveldari leik,
þar sem þeir eru ekki eins bundn
ir af almenningsálitinu eins og
eðlilegt hlýtur að teljast í lýð-
ræðislöndum. M|argt bendir þó
til að þeir eigi við nokkra örðug
leika að etja, ekki sízt Pólverj-
arnir, sem virðast vilja ná nokkru
pólitísku sjálfræði fyrir rapacki
tillögurnar. Það má áreiðanlega
gera ráð fyrir að sambúð lýð-
ræðisríkjanna og þeirra kom-
múnistisku verði að þola ýmiss-
legt á næstunni í sambandi við
undirbúninginn að fundinum.
Vesturveldin vinna nú að
mestu leyti í gegnum A.-banda-
lagsráðið, sem enn einu sinni
sýnir og sannar mikilvægi sitt
sem umræðna og viðræðnavett-
vangur Vesurveldanna. Það hef-
ur sýnt sig að rapacki-tillögun-
um hefur smám saman unnizt
fylgi meðal þeirra, en eins og
kunnugt er f jalla :þær um svæði
í Evrópu þar sem bönnuð verði
staðsetning allra kjarnorkuvopna
—það er þó ekki líklegt að til-
lögur þessar hlytu samþykki
þeirra eins og þær nú liggja fyr-
ir, enda búast Pólverjar ekki við
því. Mikilvægastar verða senni-
lega umræðumar, sem þær tillög
ur vekja, meðal annars hvað eft-
irlit með framkvæmd þeirra snert
ír, þar eð það er einmitt á eftir-
litinu, sem allar afvopnunartil-
lögur hafa strandað fyrst og
fremst hingað til.
Gæti samkomulag orðið um
eftirlit með, þótt ekki væri nema
svæðisbundna afvopnun, væri
þar með stórt spor stigið í rétta
átt. Margir munu telja. að þarna
hafi gefizt tækifæri til að koma
samningaumræðúnum úr þeirri
sjálfheldu, sem þær virðast nú
komnar í. —Alþbl. 6. marz.
Umboð Heimskringlu á Lang-
ruth hefir Mrs. G. Lena Thor-
leifson góðfúslega tekið að sér.
Eru áskrifendur blaðsins beðnir
að afhenda henni gjöld og yflr-
leitt greiða fyrir starfi hennar
eins og hægt er.
★ ★ ★
HEIMSKRINGLA er til sölu
hjá Jochum Ásgeirssyni, 685
Sargent Ave. Winnipeg.
Hverja erum við
að blekkja?
55
Hverjum höldum við að við séum að
blekkja með að segja: Börn vor eru ekki
þessu lík. Nágrannar vorir eru gott fólk.
Við þekkjum þá alla. Áfengisneyzla
tíðkast ekki á þeirra samkomum. —Hve
mörg börn vina vorra þekkjum við? Hver
lítur eftir samkomum þeirra? Hvað al-
góður er sá, sem ekur þeim heim?
Hverja blekkjum við, er við segjum,
“Eg ætla að minka neyzluna þegar börn-
in vaxa upp?” Og hvað eru börnin þá
gömul? “Þegar eg vex upp, ætla eg að
gera eins og pabbi”, segja þau. Þegar
þau eru innan við tvítugt eru þau vaxinn
upp úr barnaskap og ráða sjálf hvað þau
gera. Og eftir það er ekki nikið tækifæri
að betrum bæta þau.
Hvern er að saka, ef ofdrykkja verður
fjölskyldu vorri að falli, vegna vors
eigin skeytingarleysis?
Við erum ekki að blekkja börnin okkar,
vini eða nágranna með skeytingarleysi
voru. Þeir vita hver sökina á, ef iHa fer.
VIÐ BLEKKJUM OSS SJÁLFA
One in a series presented
in the public interest by the
Departmont of Ktlucation, Room 42,
Legislative Building, Winnipeg 1.
WHitehall 6-7289