Heimskringla - 05.11.1958, Síða 1
ZkSgft
1
CENTURY MOTORS ITO.
247 MAIN—Ph. WHitehall 2-3311
r
L
CENTURY MOTORS LTD*
241 MAIN - 716 PORTAGE
1313 PORTAGE AVE.
S..
LXXIII ÁRGANGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 5. og 12. NÓV. ’58
NÚMER 5. og 6.
FRÉTTAYFIRLIT OG UMSAGNIR
KOSNINGASIGUR JUBA
Mayor Stephen Juba
Eitt af því sem að minsta kosti
verður frægt í sögunni viðvíkj-
andi bæjarkosningunum í Win-
nipeg 22. október, er kosninga-
sigur Stephen Juba. Af atkvaeð-
unum sem borgarstjóra-efnunum
voru greidd, hlaut hann 84%,
eða 58,979 atkvæði.
Sá er næstur honum var og A.
W. Kennedy hét, hlaut 11, 233
atkvæði, en sá þriðji, San Car-
rick, bæjarráðsmaður, fékk að-
eins 746 atkvæði.
Af nýsveinum í -bæjarráði eru
fimm, sem við embættum taka 1.
janúar á komandi ári.
Þeir eru Charles Avery í fyrstu
deild, Oharles Spence og Art
Coulter í annari deild, og Saul
^herniak og Paul Parashin í
þriðju deild^_^-........>. •
Hér á eftir fara nöfn bæjar-
og skólaráðsmanna, er kosningu
náðu:
f fyrstu deild: CEC bæjarráðs
mennirnir Walter Crawford og
J. Gurzon Harvey, og Charles
Avery óháður. Skólaráðsmenn A.
Ross Little CEC, Mrs. Margaret
Trott, CEC.
í annari deild: í bæjarráð:
Lillian Hallonquist, Gharles
Spence CEC, og Art Coulter, C
CF, í skólaráð: Alys Robertson
og George Firth, báðir gagnsókn
arlaust.
í bæjarráð í þriðju deild:—
peter Taraska CEC, Saul Chern
iak CCF og Paul Parachin CEC.
f skólaráð: Dick Johns og Bary-
luk.
H. B. Scott, sem í bæjarráði
hefir verið í 16 ár, féll í ann-
ari deild. Ennfremur féii Frank
Wagner, í þriðju deild, sem fjög
ur ár hefir verið í ráðinu.
Aukalögin um veitingu til D’
taeli-brúar, skóla- og leikvalla,
voru samþykt. En lögin um fjölg
un bókasafna voru feld.
Skráðir voru 166,000 atkvæðis-
bærir, um 70,988 greiddu atkvæði
eða 44%.
FRÁ MANITOBAÞINGI
Hon. Duíi Roblin
Það hófst 23. október með há-
liðlegri viðhöfn a'ð venju eins og
hornablæstri riddarasveitar og
öðru sem samfara er þingsetn-
ingu. Af því má að vísu segja,
ciö fátt sé nýtt, en það varð það,
í ihöndum hinnar nýju stjórnar,
skipaðri ungum foringja og
meiri hluta ungra vaskra manna.
Það er einn undra munur fyrir
augað, að sjá lið hennar taka til
starfa, en liberala, sem ekki sýnd
ust geta eigrað í sæti sín og ekk-
ert vaka fyrir en að verða þar
ellidauðir. Manitobabúar sem við
staddir voru, rýflega 2000 að
tölu, sáu þarna vormenn þessa
fylkis í fyrsta sinni í broddi fylk
ingar. Þingið hafði kastað elli-
belgnum.
Eitt fyrsta þingstarfið var
kosning þing forseta. Hafði
stjórnin komið sér saman um A.
W. Harris, þingmann frá Rock
Lake, Man., og stjórnar-sinna.
Verk þetta er eitt af því, sem
ekki hefir tekið langan tíma, því
þingforseti er vanalega kosinn
gagnsóknarlaust í virðingar-
skyni fyrir stöðunni. En því var
nú ekki að heilsa. Douglas Camp
bell, fyrverandi forsætisráðherra
tók að andmæla kosningu for-
seta, vegna þess, að hann var
flokksmaður, en fyrir þinginu
væri ólokið starf frá síðasta ári
áhrærandi breytingu á stöðu for
seta; vildi hann kjósa hann til
rnargra ára. Hinn nýi forsætis-
ráðherra kvað sig því ekki mót-
fallinn og það fyrirkomulag
þætti gefast vel á Bretlandi. En
í raun og veru væri starf for
seta meira undir hæfileikum ein
staklingsins komin en nokkru
öðru. Studdi foi"ingi CCF flokks
ins það, og var A. W. Harris kos
ínn þing forseti.
Út af þessu varð Campbell
reiðari en menn höfðu áður séð
hann. Kvað ihann Stinson for-
ingja sie^a undir fölsku flaggi
með þessu, hafa svikið flokk-
sinn og rótgróna vináttu við lib-
erala. En Stinson kvað það út í
hött talað af Campbell, að flokk
ur hans hefði svikið hann, því
hann ætti hjá honum upp á ekk-
ert að telja.
Annað þingmál olli skörpum
deilum degi seinna. Það var mál
áhrærandi lán til bænda, sem
stjórnin fór fram á að veita, svo
nauðsýnleg störf, þyrftu ekki að
bíða eða vera lögð til síðu. Lib-
eralar snerust illa við þessu,
settu aðallega út á vexti á lán-
inu. En stjórnin tók féð að láni
og greidir sjálf vexti af því.
varð sú niðurstaða þessa máls, að
frumvarpig Var -samþykt með
fullu fylgi CCF flokksins.
Til skolamala hefir og mikil
veiting átt sér stað og verið lof-
uð á þingi sem utan þings í blöð
um beggja aðalflokkanna hér.
Það var ekki hugmyndin, að
þing þetta stæði lengi yfir. Það
voru aðeins nefndmál og eitt eða
tvö önnur eins og atvinnumál,
sem stjórnina fýsti að afgreiða.
Henni virðist ætla að takast það
vel, þrátt f yrir endalausar um-
ræður liberala til að hindra sam-
þykt þeirra.
Tvær vantrausts-yfirlýsingar
á stjórnina hafa verið bornar upp
í þingi. Voru þ*r frá andstæð-
íngaflokkunum önnur frá liber-
ölum, en hn frá CCF. En með
þessum flokkum er nú ekki gott
samkomulag og greiddu CCF at-
kvæði á móti tillögu liberala en
þeir á móti tillögu CCF.
Það hringlar í flokkskvörnun-
um á þessu þingi.
Hryllilegt námaslys
Eitt stórkostlegasta námaslys
í Canada, átti sér stað 23. október
í Springhill, Nova Scotia, þorpi
um 75 mílur norð-vestur af Hali-
MRS. R. BECK LÁTIN
Frá Grand Forks, N. Dak, barst
blaðinu frétt um að Mrs. Bertha
Beck, kona dr. Richard Becks,
hefði látist 21. október. Hún var
54 ára, fædd í North Dakota, en
alin upp í Wpg, þar sem fóstur-
foreldrar hennar Jón J. Samson
lögreglustjóri og Guðbjörg kona
hans lengst af hafa búið. Hún
lærði hjúkrunarfræði og vann
um tíma í hernum. Dr. Beck gift-
ist henni 1925. Hafa þau síðan
búið í Grand Forks. Hana lifa
tvö börn þeirra hjóna, Mrs. Paul
Hvitston, í Calif. og Richard, vél
fræðingur.
fax. Um 174 menn voru þar að
verki niðri í námu 13,000 feta
djúpri, er sprenging varð og
námasvæðið fyltist ryki og eitur
gasi og svarta myrkri, svo að
þeir er útkomu leituðu skriðu
hver yfir annan, visu ekkert
hvert þeir voru að fara. Björgun
hófst undir eins og alt að helm
ingur námamaniia fanst á fyrsta
og öðrum degi, meirihlutinn lif-
andi, en margir þó dánir. Síðan
hefir látlaus leit staðið yfir og
munu nú ófundnir um 24 menn
alls. Dánir eru sagðir um 50.
BANDARÍKJA KOSN-
INGARNAR
Kosningar fóru fram í gær til
beggja deilda þingsins. Endanleg
úrslit eru ekki komin af þeim,
en af þeim leynist ekki að demó-
kratar eru aftur orðnir átrúnað-
argóð kjósenda.
Sakirnar standa þannig, að
demókratar hafa nú þegar kosna
í fulltrúadeildina 243, republik-
anar 96—óvíst um 32. Tala þ.m.
alls 435.
í Efrimálstofu, sem kýs 34, en
eru alls 96, hafa demókratar 23
kosna, hafa 36 fyrir, en republik-
anar kosnir eru 8, en 26 fyrir —
óvíst um 3.
Þingið er því algerlega í hönd
um demókrata. Meira um það síð-
ar.
Frægðarför Nautilusar
Sigling bandaríska kafbátsins
Nautilusar undir ísbreiður Norð-
ur-íshafsins er mikið afrek. Með
henni er framkvæmd gömul
draumsýn, sem menn áður héldu
að væri fjarri veruleikanum. —
Franski skáldsagnahöfundurinn
Jules Verne, hinn sami og skrif-
aði bókina “Umhverfsi jörðina á
80 dögum”, skrifaði fyrir 90 ár-
um skáldsögu, þar sem kafbátur-
inn Nautilus er látinn sigla und-
ir ísbreiðuna í Suður-íshafinu.
Nú er sú hugmynd, sem þá var
talin fjarstæða, orðin að veru-
leika, þó að siglingin hafi af
eðlilegum ástæðum orðið á norð-
urslóðum, en ekki við Suðurpól-
inn, þar sem meginland hefur
reynzt vera.
Skipið lagði af stað frá Vest-
ur strönd Bandaríkjanna síðustu
dagana júlí og lagði af stað und
ir ísinn frá Point Barrow, Al-
aska, 1. ágúst og kom upp milli
Grænlands og Svalbarða 4. ágúst.
Sigldi 1830 mílur í kafi undir
ísnum á 96 klukkustundum —
4 sólarhringum.
Sigldi það þar næst upp undir
íslandsstrendur og þar fór skip-
berrann frá borði 8. ágúst og í
flugvél, sem flutti hann til Wash
ington, þar sem Eisenhower
sæmdi hann heiðursmerki. Skip-
herrann heitir W. R. Anderson.
Þetta er í fyrsta skipti sem
leið þessi er farin.
Eftir að uppgötvun þessi var
gerð, var í bili farið að hugsa
um, að í þannig-löguðum atóm-
kafbátum mætti flytja hveiti á
vetrum frá Churohill austur um
haf undir ísnum. Er nú spáð að
ekki verði langt þess að bíða,
að því verði í framkvæmd
hundið.
Hér er um fekina mikla ný-
ungu að ræða, og ef til vill meiri
ei spútnikana sem svo mikið
hefir verið rausað um.
deildinni republikanar 200, en
demókratar 235. í Öldungadeild-
inni republikanar 47, demókratar
49. Spá-átkvæða greiðsla, rétt fyr
ir kosningarnar gefur demókröt
um 8 nýja senatora og 13 nýja í
iulltrúadeild.
MINNINGARORf)
tJR ÖLLUM ÁTTUM
DÁN ARFREGN
John Diefenbaker, forsætisráð
herra Canada og frú lögðu af stað
í byrjun þessarar viku í ferða-
lag til Evrópu og Asíu. Þau gera
ráð fyrir að vera 8 vikur í burtu.
•
Stjórn Manitoba var ein af
þeim fyrstu, að bjóða forsætis-
ráðherra Nova Scotia hjálp í
sambandi við námaslysið í Spring
hill. Nú nema samskot þangað
orðið hálfri miljón.
•
Rússneskur rithöfundur, Boris
Pasternak, að nafni, skrifaði bók
nýlega er hann nefndi Doctor
Zihivago og hlaut Nobels verð-
laun fyrir, um $4x,u00. En bókina
hefir Khrushchev bannað að selja
i Rússlandi vegna þess hvernig
hún segir frá hag fólks þar í
landi. Höfundur hefir skilað
verðlaununum aftur, ekki getað
haldið þeim og dvalið í Rúss-
landi, eins og hann fýsir, en
Khrushohev segir hann fjöri
halda með því einu, að halda
burtu úr landi.
•
Hinn nýi páfi, er kosinn hef-
ir verið í stað Piusar XII, er dó
8. október, er rómverskur karðin-
áli, Angele Roncalli, 67 ára gam-
all og hefir tekið sér nafnið
Pöpe John XXIII. Jón páfi er
hinn 262, sem á páfastóli situr.
•
Yfirmaður Canadadeildar í
Agriculture Research Labora-
tory í Winnipeg, Dr. Thorvaldur
Johnson, hefir nýlega verið veitt
Agricultural Institute Fellow-
ship af vísindastofnun þessari.
Dr. Johnson er ættaður frá Ar-
nesi í Nýja fslandi. Hann er tal-
inn með fremstu mönnum í
heimi í-rannsóknum um ryðgun í
korni.
•
Eisenhower sagði nýlega á
blaðafundi: — Bandaríkjastjórn
hefir hugleitt allar leiðir til þess
að binda enda á Formósudeiluna
með það grundvallar sjónarmið,
að víkja ekki fyrir ofbeldinu, en
beita því ekki heldur að fyrra
bragði. Deilur-ætti að útkljá
við samningsborðið.
•
Heildarafli á íslandsmiðum
skiftist árið 1958 þannig milli
fiskveiðiþjóða heimsins:
Veiðin alls var 857 milj. kg.
Hlutur fslands 348 milj. kg., 45%
Hlutur Bretl. 225 milj kg.—25%
Hlutur Þýzkal. 200 milj. kg.23%
Annara þjóða 48 mil. kg. —6rr.
•
í gær fóru fram kosningar í
Bandaríkjunum. Úrslit þeirra eru
ekki enn frétt, en demókrötum
er þar spáð sigri. Styrkur flokk-
anna í deildum þingsins var fyir
kosningarnar þessi: í fulltrúa-
Jón Halldór Jónsson
------ 1
Hinn 5. júní s.l. andaðist á
sjúkrahúsi í Vancouver. B. C. I
Jón Halldór Jónsson, sem um
mörg ár hefir átt heima að 2907,
6th St., Burnaby, B. C. Hann var
fæddur í Borgarfirði á íslandi,
10. ágúst 1873. Foreldrar hans|
voru hjónin Jón Jónsson fráj
Svarfhóli í Borgarfirði og Sigríð
ur Jónsdóttir.
Sex ára gamall fluttist Jón
með foreldrum sínum vestur um
haf. Settust að í Mikley, Man.,
| á landi því, sem þau nefndu
| Grund. Þar ólst Jón upp. Ungur
tók hann að vinna að fiskveiðum
í Winnipegvatni og átján ára
gamall réðist hann í það ásamt
nágranna sínum Kjartani heit.
Stefánssyni að kaupa og gera út
gufubát á Winnipegvatni. Bát-
urinn hét Ida. Fluttu þeir á bát
þessum fisk af vatninu til Sel-
kirk og vörur út..
Árið 1899 kvæntist hann
Björgu Jónsdóttur frá Borðeyri
í Mikley. Hún var systir Guðjóns
sem nú dvelur í Los Angeles og
Ólafs, sem á heima í Vancouver.
Jón og Björg dvöldu um mörg
ái í Selkik, Man., og höfðu þar
matsöluhús. Eftir að þau fluttu
þaðan dvöldu þau á ýmsum stöð-
um í Manitoba, Howe, Oak Point
og Amaranth. Á Howe reisti Jón
stórt bú, á hinum stöðunum
stundaði hann fiski útgerð og
fiskverzlun. árum saman, er hann
lét af því starfi fluttist hann til
San Diego, California. Þar
bjuggu þau hjónin um nokkur
ár. Þaðan fluttust þau til Burn-
aby og átti hann þar heima til
dauðadags.
Konuna misti Jón áið 1938, og
bjó áfram í heimili sínu ásamt
dóttur sinni Kristínu og börn-
um hennar. Aðra dóttur áttu þatt
Jón og Björg. Heitir hún Þor-
björg, er gift manni að nafni
Duncan C. Walker, eiga þau
heima nálægt Edmonton, Alta.
Auk þessara tveggja dætra ólu
þau hjónin, Jón og Björg, upp
að nokkrum hluta, Norman Svein
son, systur-son Jóns og Archi-
bald C. Orr, sem nú á heima í
Calgary, Alta. Barnabörn Jóns
eru fjögur og þrjú barna barna
börn, auk þess þrjár systur, Mrs.
Þorbjörg Sigurðson, Arborg,
Manitoba; Mrs. Stefarúa Jóns-
son, Los Angeles; og Mrs. Ólafía
J. Melan, Argyle, Man.
Útför Jóns fór fram frá Útfar-
arstofu Champmans, kona nokk-
ur, er veitir forstöðu Spiritista-
söfnuði í Vancouver jarðsöng
hann. Auk þess talaði þar nokkur
kveðjuorð, séra Albert E. Kristj
ánsson frá Blaine, Wash. Var
hann gamall vinur Jóns og skoð-
Frá Minneapolis barst sú frétt,
í fyrri viku, að þar hefði látist
hinn 24. október Hjálmar E.
Björnsson. 54 ára gamall, sonur
Gunnars B. Björnssonar. Hann
var mentaður eins og öll börn
Gunnars voru og lagði fyrir sig
ritstjórn og þótti sem faðir hans
þar ekki neinn hálfdrættingur.
Hann þjáði síðari ár æfinnar löm
unarveiki og varð að fara
um í stól. Hann dvaldi á fslandi
í síðara stríði, sem fjármálaráðu-
nautur Bandaríkjastjórnar.
Hjálmar lifa kona hans, Ella
Jónasson Björnsson og einn son-
ur Kristján Hjálmar að nafni.
Ennfremur sex systkini..
ana bróðir. Voru minningarorð
hans mjög falleg eins og við
mátti búast. Einnig mælti undir-
rituð nokkur orð. Hann var jarð-
settur í mjög fögrum grafreit,
er heitir Forest Lawn Memorial
Park, í Burnaby.
Jón heitinn Jónsson var hinn
mesti merkismaður. Hann átti
langa starfsæfi hér í Manitoba.
Var verkveitandi og fiskikaup-
maður árum saman. Starf sitt
vann hann með miklum dugnaði
og forsjálni. Hann var maður vel
vitiborinn og hefði frá barnæsku
alist upp í skóla reynslunnar í
þessari grein atvinnunnar. 1
starfi sínu kyntist hann og átti
viðskifti við fjölda manns og
naut vinsælda og virðingar
flestra þeirra. Hann var maður
réttlátur, vandaður og allra
manna hjarta beztur og vildi öll-
um hjálpa, sem bágt áttu. Hon-
um sveið sárt hinn mikli munur,
sem rikir ihér í heimi, þar sem
sumir lifa í allsnægtum en miklu
fleiri við sult og seyru. Jafnaðar
stefnan var honum hjartans mál
og hana studdi hann með ráðum
og dáð og breytti samkvæmt
henni. Annað málefni var hon-
um mjög hjartfólgið. Það var
Spiritisminn, trúin á annað lff
var björgföst sannfæring. Þá
sannfæringu sína boðaði hann
hverjum, sem heyra vildi. Auk
þess sem hann veitti fjölda vin-
um og kunningjum tækifæri til
að sækja fund miðla og hlusta á
fyrirlestra og erindi um eilífðar
málin. Það má óhætt að segja
það um Jón að hann var ekki
hálfvolgur í skoðunum sínum,
ekki stóð hann heldur álengdar
og horfði á baráttu mannlífsins
cinbeittur og trúr öllu sem hann
taldi satt og rétt stóð hann undir
því merki sem hann vildi fylgja.
Hann bar ekki á sér yfirskin
guðhræðslunnar heldur var hann
haldinn mætti hennar og krafti.
Sá kraftur suddi hann gegnum
ár langrar æfi til gæfu og gengis.
Hann var gæfu maður, ástvinur
ættingja sinna, konu og -dætra.
Björg kona hans var hin mesta
ágætis kona. Ljúfmannleg og
alúðleg stóð hún við hlíð manns
síns og veitti mörgum hjálp og
huggun á leið sinni gegnum lífið.
För þeirra ej- nú lokið. Þau hafa
flutt einu sinni enn, flutt til bjart
ari og betri stranda, en hér bíða
margir enn, sem muna þau, og
þakka þeim fyrir ágæta viðkynn
ingu og margt gott. Friður sé
með minningu þeirra.
E, J. Melan