Heimskringla - 13.05.1959, Qupperneq 2
2. SfÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG 13.—20. MAÍ, ’59
Híímakrinpla
ttomit ÍMI/
Keinur út á hverjum miðvikudegi
Eigendur: THE VIKING PRESS LTD.
N8 ArUmíton St. Winnipeg 3, Man. Canada Phone SPruce Mi51
Verð blaðsins er $3.00 árgangurinn, horgist fvrirfrarn
illar borganir sendist: THE VIKING PRESS LTD.
ÖIl viðskiftabréf blaðinu afflútandi sendist:
The Viking Presa Limited, 868 Arlington St., Winnipeg S
Ritstjóri: STEFAN EINARSSON
Utanáskrift til ritatjórans:
EDITOR HEIMSKRINGLA, 868 ArUngton St. Winnipeg * *,
HEIMSKRXNCLA is pubiished bjr THE VIEINC PRESS LIMITED
and printed by VIKING PRINTERS
868 Ariington 9C, Winnipeg 5, Man. Canada Phonc SPruce AAS251
Authorlxod ca Second Claaa M<rU—Pont Offlctt DepU Ottawq
WINNIPEG 13.—20. MAÍ, ’59
FLUGSLYS OG
ORSAKIR ÞEIRRA
Fyrir skmemstu vildi það til,
er amerísk flugvél, Boeing-707
var á leið frá París til Lundúna,
að hreyfill losnaði og þeyttist út
úr flugvélinni. Þrátt fyrir þetta
óhapp komst flugvélin til Lun-
dúna og gat lent þar heilu og
höldnu.
Nákvæm rannsókn mun fara
fram á því, með hverjum hætti
þetta gat orðið. Svo er jafnan
þegar flugslys ber að höndum.
Allar þjóðir heims, nema Rússar,
hafa með sér samning um skjóta
rannsókn, og skal hver þjóð
styðja aðra eftir mætti við slíka
rannsókn. í flestum löndum eru
það samgöngumálaráðuneytin,
sem eiga að sjá um að rannsókn
sé hafin. En oftast nær eru al-
þjóðasérfræðingar kallaðir á vett
vang, og auk þess fulltrúar frá
vátryggjendum flugvélarinnar og
eigendum hennar.
En í hvert skipti sem rannsókn
fer fram, rifjast upp sögur af
eldri slysum. Skal hér nokkurra
getið.
Boeing 202 “stratocruiser”
lagði á stað frá Rio de Janeiro og
var ferðinni heitið til New York.(
Níu manna áhöfn var á flugvél-
inni og 41 farþegi. Veður var
bjart og fagurt. Flugvélin rann
fagurlega á loft og strykaði upp
í 18,000 feta hæð, en í þeirri hæð
var henni ætlað að fljúga. Undir
sólarlag var hún stödd ýfir þétt-
um frumskógi og litt könnuðum.
Fram að því hafði ferðalagið
gengið ágætlega og hún hafði
stöðugt samband við stöðvar á
jörð niðri. En skyndilega þagn-
aði hún og heyrðist ekki framar
til hennar—ekki einu sinni nein
skilaboð um að hún væri í hættu.
Hún “hvarf” bókstaflega.
Hvað gat valdið þessu? Var
það einhver bilun í flugvélinni
sjálfri, eða var hér um skemmd-
arverk að ræða?
Þetta þurfti að rannsakast hið
allra fyrsta, en það var ekki hlaup
ið að því að komast á slysstaðinn,
og var þar við marga örðugleika
að etja, eins og bezt má sjá á fyr
irskipunum þeim, sem rannsókn-
armennirnir fengu. Þeim var skip
að að vera vel vopnaðir og hafa
engin afskipti af hinum viltu
Ghiapos Indíánum, sem eru á
þessum slóðum, nema pví aðeins1
að Indíánarnir gerðu árás, þá:
skyldu þeir skjóta á þá. Þeim var'
skipað að halda altaf hópinn og
gæta iþess að enginn yrði hópn
um viðskila. Þeir skyldi altaf
vera vel á verði gagnvart skógar- j
björnum, hlébörðum, jagúarum,|
eiturslöngum og öðrum skaðræðl
isskepnum í frumskóginum. ÞeirJ
skyldu búa sig svo vel, að föt
þeirra rifnuðu ekki á þyrnum
og þistlum.
Eftir tveggja mánaða ferðalag
og ótrúlega erfiðleika komust
rannsóknarmennirnir að lokum
á slysstaðinn, en þá voru sumir
þeirra veikir af hitasótt. Þeir
fundu flugvélabrotin og sáu á
trjánum þar um kring, að flug-
vélin hafði fallið lóðrétt til jarð-
ar. Þar hafði eldúr komið upp í
henni og brætt belginn, svo að
ekki voru eftir nema kögglar af
bráðnuðum málmi. Indíánar
höfðu fundið flugvélarhræið og
rænt ýmsu þaðan.
Rannsóknamennirnir báru sam
an á einn stað öll þau brot úr flug
vélinni, sem þeir gátu fundið, og
voru að því í marga daga. En þá
söknuðu þeir eins hreyfilsins.
Þeir komust því að þeirri niður-
stöðu, að þessi hreyfill hefði rif
ið sig lausan, en við það hefði
flugmennirnir misst stjórn á vél-
inni og hún stungist beint til
jarðar.
★
í maímánuði 1952 voru þrír
rannsóknarmenn sendir frá Lun
VIÐ NEITUM
Við sem erum liberaar, neitum að gefa fyrirferðar mikil
loforð til þess að afla okkur atkvæða. ógætni í fjár-
málum og óviturleg höndlun fjármálanna, er ekki leiðin
til þess að byggja upp “Nýja” Manitoba. Það leidir til
aukinna skatta sem bæði eru óvinsælir og ónauðsynlegir.
Liberalar gefa ábyggilega og uppbyggjandi fyrirgreiðslu
og hlunnindi án ábærilegra skatta.
•
Á síðari árum hefur það verið áberandi hjá mörgum í
Manitoba og yfir allt landið, að kjörorð áuðvaldsins eru
stór loforð og gyllingar, fyrir kosningar, en NEFNA
EKKI VERÐIÐ
Fyrir ábyrgðarfulla stjórn
Greiðið L1B€RHL-PR0GR€SSIV€ atkvæði
Authorized by Manitoba Liberal-Progressive Candidates’ Committee
dúnum suður til frönsku Vestur-
Afríku til þess að athuga hvern-
ig á því stæði, að brezk BOAC-
flugvél hafði nauðlent þar, 2400
km. utan við rétta flugleði.
Flugvélin, isem þeir fóru með,
lenti hjá vin 10 km. frá óhappa-
staðnum. Þangað var þá áhöfn
flugvélarinnar komin og einnig
farþegar, þar á meðal kona með
ungbarn. Undir eins og fréttist
um nauðlendinguna, höfðu Frakk
ar sent iþangað f lugvél með lækni
er látinn var svífa til jarðar í
fallhlíf. Læknirinn hafði svo
drifið allt fólkið á stað. Flug-
stjórinn einn iþoldi ekki erfiðið
og hitann í eyðimörkinni, hann
dó á leið til vinjarinnar. En hin-
ir voru þar allir heilir á húfi.
Nú var ifarið þangað sem flug-
vélin stóð. Þá komust rannsókna-
mennirnir að Iþví, að Gyrosyn-
áttaviti flugvélarinnar var öðru
vísi merktur, en vant var um slíka
áttavita. Þar var tíu sinnum
lengra á milli mælistryka, og
þegar áttavitinn sýndi 60 gráð-
ur, heldu þeir að hann sýndi að-
eins 6 gráður. Að vísu höfðu þeir
haft annan áttavita, en þeir heldu
aö hann væri vitlaus, svo mikla
tröllatrú höfðu þeir á hinum nýa
áttavita.
Eftir þetta eru allir Gyrosyn-
áttavitar merktir eins.
★
Hin 10. janúar 1954 lagði brezk
Comet-þota á stað frá Ciampino-
flugvellinum í Róm og var ferð-
inni heitið til Englands. Húr,
komst skjótt í 35—40,000 feta
hæð, eins og henni var ætlað, en
þegar hún var komin að eynni
Elbu, brotnaði hún sundur og
glóandi brotin úr henni féllu
beint niður í hafið. Þar fórst
hivert mannsbarn, sem í þotunni
var.
Nú var þegar hafizt handa um
að slæða upp brotin ur henni,
og í ágústmánuði hafði tekizt að
slæða upp 70 pórcent af belgn-
um og 80 prócent af vélunum.
-Það sýndist 'harla ólíklegt að
flugvélin hefði liöazt sundur, því
að Havilland verksmiðjurnar
gert hana sterkari og traustari
en þörf var talin á. Og slysið var
mönnum ráðgáta.
Mánuði seinna hrapaði önnur
Cometþota niður í Miðjarðarhaf
ið. Það þótti ekki einleikið. Var
þá bannað um hríð að hafa þess-
ar þotur í ferðum. En vegna þess
að ekki var hægt að ná í brotin
úr þessari flugvél og rannsaka
þau, var reynt að komast að því
ibve mikið þessar iþotur mundu
þola. Var þá gert líkan af þot-
unni og þess gætt að hafa öil
styrkleika hlutföll nákvæmlega
rétt. Þessi þota var síðan reynd
á tilraunastöð “The Royal Air-
craft Establishment” í Farnbor-
ough, og þess gætt að láta hana
verða fyrir álíka hnjaski og flug
vélar sem ferðast um háloftin
með slíkum hraða er Comet-þot-
urnar hafa. Með stuttu millibili
var svo líkanið athugað gaum-
gæfilega. Eftir 1830 slíkar til-
raunir bilaði belgur hennar. Það
kom fyrst ofurlítil sprunga i
hann rétt hjá radarstöðinni en
varð skjótt að gapandi rifu.
Þeir, sem skoðuðu flugvélar
brotin, sem slædd voru upp hjá
Elbu, minntust þess þá að þeir
höfðu séð sár eftir samskonar
rifu á belgbrotum hennar. úr-
skurður rannsóknamanna varð
því sá, að belgir beggja Comet-
þotanna hefði rifnað, vegna þess
að málmurinn hafði lúðst og
(openhagen
HEIMSINS BEZTA
MUNN TóBAK
misst styrkleika sinn vegna hit-
ans af núningsmótstöðu loftsins.
*
Slysin eru dýr, en af þeim má
læra livernig hægt er að gera
flugtækin öruggari. Hvert slys
kennir mönnum eitthvað nýtt.
Cometþoturnar hafa síðan verið
úr haldbetra málmi, og ekkert
slys hefir komið fyrir þær. En
nú skeður það öðru sinni, að
ihreyfill rífur sig lausan í Boeing
flugvél. Það virðist benda til þess
að menn hafi ekki uppgötvað
ÍSLENDINGAR í ST. MATTHEWS KJÖRDÆMI
KJóSIÐ PAUL W- GOODMAN
æfðan og reyndan mann
1
LIBERAL
MARK YOUR BALLOT
Resident of West End for
35 years.
Partner Sargent Electric and
Radio Co. Ltd. since 1927.
Member Master Electricians’
Association.
Past President First Lntheran
Church
Past C.hairman Sports Com-
mittee, Isaac Brock Comm.
Club.
Honorary President Orioles
Conimunity Club.
Fraternal Order of Eagles.
Khartum Temple.
fith year Alderman, Ward
Two.
Chairman Public Works
C.ommittec.
Board of Trustees -- Win-
nipeg General Hospital.
HOW POWERFUL IS IHAT DRINK?
DIFFERENT VOLUMES, EQUAL AMOUNTS OF ALCOHOL
10 oz. beer
lYi oz• wine
1 oz. whiskey
4%* ALCOHOL
BEER
17% * ALCOHOL
WINE
40%* ALCOHOL
WHISKEY
EQUAL VOLUMES, DIFFERENT ALCOHOLIC CONTENT
AND DIFFERENT EFFECTS
*Average strength
MANITOBA COMMITTEE
on ALCOHOL EDUCATION
Department of Education, Room 42.
Legislative Building, Winnipeg 1.