Íslenzki good-templar - 15.04.1893, Síða 3

Íslenzki good-templar - 15.04.1893, Síða 3
ísl. Good-Templar. 69 lagslífi. En er til þess kemur, verða hinir hugsunarlausu frelsisskrumarar enn hámæltari og tala um óhæfilegt hapt á atvinnufrelsi og borgaralegu fjelagslífi, ef banna eigi með lögum alla áfengisverzlun og veitingar. Hugsunarleysið er í því fólgið, að líta að eins á aðra hliðina eða rjettara sagt á eina hlið af mörgum. Þeir skoða að eins málið frá sjónarmiði vínsala og veitingamanna, þó að þeir sjeu ef til vill ekki nema V1000 hluti þjóðarinnar. Þeir skipta sjer ekkert af því, þó að þetta sjerstaklega frelsi handa þessu örsmáa broti þjóð- fjelagsins feli í sjer meira eða minna ófrelsi fyrir alla hina, ef til vill 999 af 1000. Þeir virðast eigi hafa neina hugmynd um það, að þar sem mennutan reglubundins mann- fjelags mega, veraldlega talað eða frá veraldlegu sjónar- miði, aðhafast hvað sem þeim lízt í orðum og gjörðum, þá verður í slíku fjelagi jafan að miða athafnafrelsi hvers eins meira eða minna við það, hvað allri fjelagsheildinni er hollt og bagalaust. Þar má eigi nokkurra manna frelsi vera svo ríkt, að það verði öðrum að ófrelsi eða gæfu- ráni. En áfengisiðnin bakar þorra hverrar þjóðar, er hana hefir lögum helgaða, stórkostlegt ófreisi, beinlínis og óbeinlínis, og fjölda manna hörmulegt gæfurán. Eða eru eigi stórum aukin sveitarþyngsli, er áfengis- iðninni fylgja hvar sem er, kveði nokkuð að henni til rauna, ófrelsisok fyrir þá, sem undir þeim eiga að búa? Er eigi saraa máli að gegna um löggæzlukostnað, vitfirr- ingakostnað og því um líkt? Er eigi háski sá og tjón, er mannfjelaginu stendur af ölœði drykkjumanna, nokkurt ófrelsisböl? Og er eigi loks áfengisveitingaskyldukvöð sú, er drykkjusiðirnir leggja á menn, er ekki vilja láta brigzla sjer um ógestrisni og ekki eru í bindindi, ekki talsvert ófrelsi? Eru þeir eigi nokkru frjálsari, er slíkri kvöð hafa af sjer hrundið eitt skipti fyrir öll, með því að ganga í bindindi bæði fyrir að neyta áfengis og veita það öðrum? Þessu svokallaða frelsi örfárra manna meðal þjóðfje-

x

Íslenzki good-templar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenzki good-templar
https://timarit.is/publication/130

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.