Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 07.07.1890, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 07.07.1890, Blaðsíða 4
92 pJÓÐVILJINN Nr. 23, lifir liana ásamt 5 börnum; eitt peirra er séra Matthías Eggertsson á Helgastöðum. Guðbjörg heitin var góð kona og vel látin. Nýlega (í f. m.) er og dáinn Halldór bóndi Hermannsson á Bæjum á Snæ- fjallaströnd, er til skamms tima bjó á Nauteyri. „I n f 1 u e n z a“-veikin er nú sem óðast að útbreiðast hér i kaupstaðnum og í ná- grenninu, leggjast fleiri og færri daglega, en yfir liöfuð má veikin heita heldur væg. S a 11 h ú s ætlar verzlunin „H. A. Clau- sens Efterfölger“ að lita reisa í suraar á Látrum í Sléttuhréppi og á Sandeyri í Snæfjallahreppi. Eiskiveiðar Færeyinganna er róa frá Sæbóli kvað þegar hafa vakið töluverðan kurr og óánægju í Sléttuhreppi; þykja Eæreyingar með veiðiaðferð sinni ispilla veiði sveitarmanna. Um fiskprísa heyrist enn ekkert áreið- anlegt frá kaupmönnum, en gizkað á svipað verð og í fyrra, Speculantar eru enn að eins komn- ir tveir hingað í suraar, Markús Snæbjörns- son frá Patreksfirði og Guðmundur-Sche- ving frá Grams verzlun á Jnngeyri. Gufubátur A. Asgeirssonar er enn ókominn; leki hafði koraið upp í honum. er hann var nýfarinn frá Khöfn, svo að hann varð að snúa aptur, til að fá viðgerð. Cand. Skapti Jósepsson, sem fer hér um sveitir í skuldainnheimtu-erind- um fyrir Magnús kaupmann Jochumsson, hafði 4. þ. m. mætt fyrir sáttanefnd Súða- víkurhrepps í yfir 20 skuldarnálum; lík hefir verið yfirferð hr. Skapta i Hóls- Eyrar- og Ogur-hreppum; lengra er leið- angurinn enn ekki korninn. Grasspretta hefir í ár orðið naeð betra móti hér vestra. T i 1 „k a u p f é 1 a g s í s f i r ð i n g a“ kom 5. þ. m. skipið „Boline Marie“, 90,82 tons, skipstj. J. C. Hansen, fermt kolum og steinolíu; hafði haft 16 daga ferð frá Englandi. Fyrirlestur um bjargráð ogfl. flutti séra Oddur Y. Gíslason fyrir miklum fjölda áheyrenda hér á Isafirði 6. þ. nnm. Yms björgunaráhöld sýndi hann um leið. Strandferðaskipið „Laura“ kom hyigað að sunnan 6. þ. m., og fór aptur í morgun til Skagastrandar. Með skipinu var. Hallgrímur biskup Sveinsson á visi- I tatíuferð til Múlasýslna, séra 0. V. Gisla- i son og fl. AUGLÝSINGAR. HÉEAÐSEUNDARBÖ'Ð, Kunnugt gjörist, að mánudaginn 4. ágúst næstkomandi á hádegi verður á ísafirði settur héraðsfundur, og verður þá sam- kvæmt lögum 14. dec. 1877 tekið til um- ræðu og ályktunar „frumvarp til sam- þvkktar um ýmisleg atriði, er snerta fiski- veiðar á opnum skipum á svæðinu frá Öskubak að Geirhölmsgnúp í Ísafjarðar- sýslu“, er samþykkt var á aðalfundi sýslu- nefndarinnar í síðastliðuum marzmánuði. Skrifstofu ísafjarðarsýslu, 24. júní 1890. S k ú 1 i T h o r o d d s e n. SÝSLUNEFNDAREUND U Lí. Sýslunefndin í Isafjarðarsýslu boðast til aukafundar, er hefst á ísafirði mánudag- inn 4. ág. næstk. kl. 4 e. h. Skrifstofu Isafjarðarsýslu, 24. júní 1890. S k ú 1 i T h o r o d d s e n. UP P B O ÐS^UGLÝSING. J>að auglýsist hér með, að við opinbert uppboð, sem haldið verður á Bolungarvik- urmölum laugardaginn 19, júlí næstk. kl. 2 e. h. verður eptir kröfu Gísla Sv. Gísla- sonar í Reykjarfirði seld verbúð og ýmis- legur sjávarutvegur bonum tilheyrandi. Skilmálar verða birtir á undan uppboð- inu á uppboðsstaðnum. Skrifstofu ísafjarðarsýslu, 24. júní 1890. S k ú 1 i T h o r o d d s e n. SKIPTAEUNDUR í dánarbúi Árna heitins Jónssonar á Grund- um verður haldinn á skrifstofu sýslunnar á ísafirði laugardaginn 12. júli næstkom- andi lcl. 4 e. h., og verður þá meðal ann- ars framlögð skrá yfir skuldakröfur þær, sem gjörðar hafa verið í dánarbúið. Skrifstofu Isafjarðarsýslu, 25. júní 1890. Skú 1 i Thoroddsen. U PPBOÐ S AUGLÝSING. Yið þrjú opinber uppboð, sem haldin verða á skrifstofu sýslunnar á Isafirði 5., 12. og 21. júlí næstk., verða seld 2 hndr. að f. m. í jörðinni Bjarnastöðum tilheyr- andi dánarbúi Helgu Halldórsdóttur á Látrum. Skilmálar verða birtir á undan uppboðunum, som hefjast á hádegi nefuda daga. Skrifstofu ísafjarðarsýslu, 24. júní 1890. S k ú 1 i T h o r o d d s e n . LÆKNISY OTTORÐ. I hér um bil sex mánuði hefi eg við og við, þegar mér hefir þótt það við eiga, notað KÍNA-LÍES-ELIXÍR hr. Waldemars Petersens handa sjúklingum mínum. Eg er kominn að þeirri niðurstöðu, að Imnn sé afbragðs matarlyf og hefi eg á ýmsan hátt orðið var við hin heilsusam- legu áhrif hans t. a. m. gegn meltingar- leysi, sen> einatt hefir verið samfara ó- gleði, uppsölu, þyngslum og óhægð fyrir brjóstinu, magnleysi í taugakerfinu, sem og gegn reglulegum bringspalaverk, Lyfið er gott, og get eg gefið því meðmæli mín. Kristianíu, 3. sept. 1887. Dr. T. R o d i a n. Kína-lífs-elixírinn fæst ekta hjá: Hr. E. Eelixsyni. Reykjavík. — Helga Jónssyni. Reykjavík. — Helga Hejgasyni, Reykjavík. — Magnúsi Th. 8. Blöndahl. Hafnar* firði. — Jóni Jasonssyni. Bprðeyri. — J. Y. Havsteen. Oddeyri pr. Akur- eyri, aðalútsölumanni norðanlands. W a1d e m a r Petersén, er býr til hinn eina ekta Kína-lífs-elixir. Frederikshavn. Ðanmörku. K R Ó K A R E F S S A G A , ný útgáfa, er til sölu i prentsmiðju Jsfirð- inga fyrir 5 0 aura hvert éintak. ,..A- hefir Manch eth nappui' 11 r 1 jllfll viravirki. Sá, sem finn’11' °S skilar honum i prentsmiðjuna fær> fundar- laiiH. Prentsmiðja ísfirðinga. Prentari: Jóhannes Vigfússon,.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.