Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 31.01.1893, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 31.01.1893, Blaðsíða 4
36 Þjóðvil.jw.v uvoi. n, 3. Siraram mónnuiii liefir þótt undarlegt, að eg skuli ekki kafa svarað grein nokk- urri í fylgiblaði með ,Þjóðv. unga‘ I, 28, er ræðir um vegagjörð á Laxárdalsbeiði, eptir Alex. Bjamason. Það befi eg ekki gjórt af þeirri einföldu ástæðu, að eg á- lít greinina ekki svara verða, því að með sönnum rókum tekst böf. ekki að brekja eitt orð af því, sem eg befi sagt um það mál. Það vita allir, sem nokkuð þekkja til. Að taka úr bréfum, prentuðum bók- um og blöðum, annara orð, og rangfæra þau stórkostlega, og setja svo við um- skiptinginn gæsarlappir, er ekki vottur um takmarkalausa sannleiksást, þótt minn gamli kunningi A. B. geri það, sem eg hefi allt til þessa álitið vandaðan mann. Að telja upp allar ýkjur og ósannindi í nefndri grein, yrði of langt mál. Hr. A. B. segist t. d. hafa haft nákvæm kynni af Laxárdalsheiði í 50 ár. Þeir, sem þekkja nokkuð til, vita bezt, hvað satt er í því. Hvar hefi eg sagt, að vegi ætti að leggja sem lægst, einungis til að forðast illviðri? Og hverjir skynberandi menn forðast að leggja vegi, þar sem lægra ber á? Vill hr. A. B. gera svo vel og fræða menn um það? Það vita líklega allir, sem farið hafa yfir Laxárdalsheiði, að vegurinn yfir Kjörs- eyrartungu liggur til vesturs, frá Borð- eyrarbæ, en ekki til norðurs, eins og A. B. segir. Að vegaruðuingar séu yfir höfuð, til að spillavegum, er ný vegfræði, og eins hitt, að hafa opin ræsi, eða rennur, þvert í gegn- um vegi, með hellusteinum á bninunum!! o. s. frv. o. s. frv. Það er allt á eina bókina lært. Það er sorglegt, þegar gamlir og gætnir menn grípa til þess neyðarúrræð- is, að reyna til að dylja glappaskot sín með ósannindum og drembilegu rugli; en það er broslegt, að heyra menn halda hrókaræður um málefni, sem þeir hafa lítið eða erkkert vit á. Kjörseyri í des. 1892. Fwnue Jónsson. Hr. ritstjóri! í ,Þjóðv. unga' II, 4. stendur bréf- kafli með fyrirsógninni: ,Úr Gnmnavík- ursókn er oss ritað 25. nóv.‘ Bréfkafli þessi er viðvíkjandi prests- kosningunni hjá oss, en höfundur hans er ekki nafngreindur; nú um kjörfundinn spunnust nokkrar umræður um bréfkafla þenna, og leyfi eg mér því hér með — eptir beiðni nokkurra kjósenda hér í sókn —•, að skora á yður að birta nafn hóf. að nefndum bréfkafla í yðar heiðr- aða blaði. Með virðingu. Kollsá, 31. des. ’92. J. Arnórsson sóknamefnd arm aður. # * % Við framanskráðri áskorun hins heiðr- aða sóknainefndarmanns geturn vér eigi orðið, þvi að það er föst regla, að blað- stjórar láta ekk-i uppi nöfn höfunda, sem einhverra orsaka vegna hafa óskað, að nafni þeirra væri haldið leyndu. Bitstj. Ísafirði, 31. jan. ’93. Tíðaruar. Síðan með Þorra byrjun hefir verið kuldatíð, stormar og nokkur frost öðru hvoru, en fannkoma lítil. ' AflabröCtK. Með hafísnum kom haf- hlaup af þorski inn í Djúpið; og komu margir sexæringarnir í Bolungarvík hlaðn- ir að landi 25. þ. m., með 4—5 og á 6. hundrað af fiski; mikið góður afli var þá einnig hjá öllum almenrtingi; en því miður lokaðist Víkin samdægurs af haf- íshroða, svo að skip liafa ekki getað komizt á sjóinn, nema þau, sem ganga úr Ósvör. I Dölunum hefir aptur á móti verið prýðis góður afli; 27. þ. m. var t. d. 100 (tólfrætt) minnzt á skip í Hnífsdal, Hauís. Nokkur liafíshroði liefir kom- ið hér inn á Djúpið, og óminnilega tnik- ill hafís kvað vera á Vestfjörðunum: Súgandafirði, Önundarfirði og Dýrafirði. — Úti fyrir fjörðum er sögð ein sam- felld hafíshella, svo að ekki sér út fyrir. Hreppstjóri Jóhannes Hannesson í Botni var hér staddur 26. þ. mán.; sagði hann vellíðan manna í Súgandafirði, og all-góð aflabrögð til skamms tíma, að því er gjörist þar í byggðarlagi; hæðstur afli hjá Kristjáni bónda Albertssyni á Suður- eyri, sem mun saltað hafa úr rúmum 20 tunnum, síðan í haust. Taugaveikin, sem gengíð hefir á Homi í Sléttuhreppi, kvað vera komin að Steig í Grunnavíkurhreppi, og er oss ritað um það að norðan 10. þ. mán.: „Megn tauga- veiki hefir geysað á Horni í Sléttuhreppi, og einn dó að Steig í Veiðileysufirði 8. þ. mán., Sigurður Einarsson að nafni, ungur maður, rúmlega, tvítugur að aldri; er kennt um samgöngum milli bæjanna Horns og Steigar, og hætt er við, að veiki þessi breiðist út, þar eð ekki inun vera nægilega spornað við saingöngum við bæina í kring, og er það þó ljóta skeytingarleysið af greindu og fullorðnu fólki; sumt af fölkinu liggur mjög þungt enn“. ÞlLSKIPA-ÁBYRGÐARPÉLAO VE3TPIRDINGA heldur fund á Isafirði 13. febr. hæst- komandi. f Þess hefir láðzt að geta, að í haust, er var, um göngurnar, andaðist, Jón bóndi Ót.afsson á Stað í Súgandafirði, dugnað- armaður og gildur bóndi; hann lætur ept- ir sig ekkju og 4 börn. udda með peningum í týndist 28. þ.m. Skilist prentaranum gegn borgun. Iví;" ísslensclct niðursoðið sauða- kjöt fæst í verzlun Björns Pálssonar. KAUPFÉLAGSPUNDUE. Það auglýsist liér með, að aðalfund- ur í „Kaupfélagi ísfirðinga“ verður hald- inn á ísafirði mánudaginn 13. febníar næstk., eða næsta dag að færu veðri. Það er áríðandi, að deildarfulltrúar mæt.i, og hafi með sér póntunarskrár og skýrslur um fiskloforð deilda. ísafirði, 2. jan. 1893. Skúli Thoroddsen. p. t. kaupfélagsstjóri. GJALDDAGI bla'ísins vw í júnhnánii&i, og cru lcaup- endur blaðsins því góðfúslega beðnir að ’/era skil á borguninni sem fyrst. REIKNINGAR af ynisri gerð og stærð, einnig Ú TSVARSSEÐLAR, fást jafnan i prentsmiðju Þjóðviljans unga. 3S5ír Attir ísfirðingar vellcomnir, sem lcynnu að óska, að fá ókeypis leiðbeiningii í 1 ögfræðis'-egum efnum. Slivili Tlioroddseii. ÆRSVEITAMENN ERU BEÐNIR AÐ VITJA „Þjóðviljans unga“ í NORSKA BAKAR- ÍINU HJÁ HR. I. E. SOLLIE. Prentsmiðja Þjóðviljans unga. Prentari Jóhannes Yigfússon.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.