Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 30.09.1893, Side 1

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 30.09.1893, Side 1
Verð ftrgangBÍns (minnst 30 arka)3kr.; í Ameríku 1 doll. Borgist fyrir júní- mánaðarlok. ÞJOÐVIT.JINN UNGI. —---1- A NNiK ÁRGANGDR. =| -- — ■ ii RitstjÓri SKÚLI THORODDSEN cand. JUR. |"~ t—; t ■■■< Uppsögn skrifleg, ðgild nema komin sé til útgef- anda fyrir 30. dag júní- mánaðar. M 29. KEYKJAVÍK, 30. SEPTEMBER. 1893. Útlendar fréttir. Með strandferðaskipinu „Thyra“ bárust þessar fréttir helztar frá útlöndum: Ileiinastjórnarlögin írzkn („Home rule bill“) voru loks samþykkt til fulln- ustu við 3. umræðu í neðri málstofu brezka þingsins 31. ág., og eru þess eigi dæmí, að nokkurt mál hafi fyr vakið slík- ar deilur innan þings og utan; 301 þing- menn voru málinu fylgjandi, en 267 á móti, svo að atkvæðamunurinn varð að lokum að eins 34 atkvæði. Umræður um málið voru þegar byrj- aðar í lávarðadeildinni, og mjög vafasamt, hvernig því myndi reiða þar af. Gladstone hefir ákveðið, að þing skuli halda í haust, eða fyrri part vetrar, til að koma fram ýmsum mikilsverðum mál- um. IMngkosningar á Frakklandi voru alveg um garð gengnar, og þykir lýðveldið aldrei fyr hafa staðið á jafn föstum fæti, sem nú, með því að af konungs- og keis- ara-liðum náðu að eins 58 kosningu. — Mikil tíðindi þóttu það, að Clémenceau, einn af mestu mælskumönnum og þingskör- ungum Frakka, náði ekki kosningu, enda höfðu mótstöðumenn hans eigi sparað, að dengja yfir hann dæma-fáum persónuleg- um skömmum á undan kosningunni, og meðal annars brugðið honum um fjand- samlegt makk, og ráðabrugg, gegn fóstur- jörðinni, við Rosebery lávarð, er allt reynd- ist þó tilhæfulaust. — Af 574 þingmönn- um í fulltrúadeildinni eru 209 „homines noví“ þ. e. menn, sem eigi hafa áður á þingi setið. — Stjórnin telur til síns flokks 292 þingmenn. Þýskalandskeisarl hefir verið að halda heræfingar í Metz, og var þar all vel fagn- að, þó að fjöldi manna í Elsass og Loth- ringen uni enn all-illa aðskilnaðinum frá Frakklandi. Vilhjálmur keisari hélt ræðu mikla við þetta tækifæri, eins og hann á vanda til, og komst þá meðal annars svo að orði: „þér eruð þjóðverjar, og munuð halda áfram að vera þjóðverjar; svo sann- arlega hjálpi oss guð og vopnvor“; þykir sumum blöðum Frakka keisarinn hafa nógu djarft að orði kveðið, því að tíminn geti öllu breytt. Tii vara-konungs á Indlandi hefir Englandsstjórn skipað Henry Norman i stað Lansdowne’s lávarðar, er sleppir því embætti í næstk. decembermán. Kóleran var fremur að breiðast út í Suður Evrópu, Austurríki, Ungarn og Frakklandi; einn maður hafði og látiztúr kóleru í Grímsby á Englandi. Látinn er 5. sept. Vilhjálmur, prinz af Glucksborg, eldri bróðir konungs vors, Kristjáns níunda. — Ný skeð er og látinn Jerome Napoleon Bonaparte. Skemmtiferðir til íslands. í blaði skemmtiferðafélagsins danska (Dansk Turistforenings Medlemsblad) 31. ág. 1893, er fróðleg grein um ferð félags- manna til íslands, og getum vér íslend- ingar fengið af henni ýmsar bendingar, sem oss er nauðsynlegt að fara eptir, ef vér viljum stuðla að því, að ferðamenn framvegis leiti hingað. Að öllu saman- lögðu voru hinir útlendu ferðamenn mjög vel ánægðir með ferðina; þeim þótti nátt- úran fögur, stórkostleg og hrikaleg, ferða- lagið unaðslegt og hressandi; þykir þeim ísland eitt hið fegursta land, og miklu einkennilegra og fegurra, en þeir höfðu búizt við. Telja þeir það engum efa bund- ið, að hingað til lands muni með tímanum leiðast mikill „turista“-straumur, ef rétt er að farið, og ef íslendingar sjálfir vilja nokkuð stuðla til þess. að svo verði. Til þess þarf ekki frá ísiendinga hálfu að leggja mikið í sölurnar; menn verða að eins að bæta smá bresti og galla, og gera mönnum þannig ferðalagið dálítið þægi- legra. Seinast í greininni telur ritstjórinn ýmislegt, sem bæta þurfi og finnur eink- um að tvennu: segir hann, að reiðskapur allur hafi verið á ferð þeirra félagsmanna í ólagi, og fylgdarmenn ónýtir. Reiðtýg- in voru í óstandi, gömul og slitin, ístaðs- ólar ónýtar, höfuðleðrin slæm og samstöguð o. s. frv. Þegar menn eru óvanir ferða- lagi og litlir reiðmenn, getur slíkt jafn- vel orðið að slysi, enda er það skömm og hneyxli fyrir landið, að slíkur útbúningur skuli vera boðinn útlendingum. Fylgdar- mennirnir þekktu eigi örnefni, og vissu ekkert um landið, sem þeir fóru um, og voru þess utan hvorki nógu liðugir eða stimamjúkir. Ekki eru útlendingar lengi að reka augun í aðal-galla okkar íslend- inga, tómlætið, enda eru íslendingar orðnir alræmdir fyrir tómlæti; í öllum ferðabók- um er þess getið, og kvarta útlendingar sáran undan seinlæti fylgdarmanna, eng- inn hlutur á fastan stað eða stund. Nokkr- ir félagsmenn höfðu beðið um 6 hesta til útreiðar kl. 10 um morguninn, og höfðu ámálgað það 24 stundum áður, en urðu að bíða altýgjaðir 2^/a klukkustund. í útlöndum eru menn ekki vanir slíku slóri. Að endingu getnr höf. þess, að útlending- ar verði að gæta sín fyrir fjárprettum, og varar menn við að setjast að í Austurldíð, nema á undan hafi verið samið um borgunina, því að þar hafi þeir félagar verið skamm- arlega rúnir (skamlöst Optrækkeri). Það er hin mesta þjóðar-hneisa, að slíkt skuli geta komið fyrir. Ritdómur „Fjallk.“ um Gaungulirólfsrímur. Jeg get ekki stillt mig, að þakka rit- stjóra „Fjallkonunnar“ fyrir þann „dóm“, sem hann hefir lagt á Gaunguhrólfsrímur. Jeg er svo óvanur, að nokkuð sje nefnt í blöðunum afþví, sem jeg geri; jegerekki svo inn undir hjá blaðamönnum, eða nein- um, enda þykir mér ekki mikið varið í þessar lofrollur, sem fylla stundum heila dálka, um fremur ómerkileg kvæði. Rit- stjórinn hefir opt sýnt, að hann vill hlynna að því, sem þjóðlegt er hjá okkur, meðal annars með útgáfum sínum á Fornaldar- sögum og ýmsum íslendingasögum: „Eltandi ðður í spreng þá urgandi doktora-dellu, þjðtandi fast yfir fold með fisið og þúsið og núsið, nema hann breyti þvi nettlega aptur í núsið og þásið", og nú hefir hann fengið tækifæri, til að

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.